Ferill 384. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 653 — 384. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um skipun nefndar um samningu leiðbeininga um mat á hugviti og fleiru í reikningsskilum fyrirtækja.
Flm.: Gunnlaugur M. Sigmundsson.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að skipa nefnd sérfræðinga sem hafi það hlutverk að semja leiðbeiningar um mat á hugviti og öðrum óefnislegum eignum í reikningsskilum fyrirtækja.
Greinargerð.
Því hefur verið haldið fram að nútímabókhald og reikningsskil byggist í grundvallaratriðum á þeim hugmyndum sem munkurinn Luca Pacioli setti fram fyrir meira en 500 árum. Með tímanum hafa verið settar fleiri reglur en þær hafa ekki breytt þeim ramma sem notaður er til að mæla eignir í efnahagsreikningi. Hefðbundin reikningsskil draga fram verðmæti efnislegra fjármuna og grundvöllur matsins er oftar en ekki sá kostnaður af því að koma sér upp viðkomandi eign en ekki þau verðmæti sem skapast við reksturinn. Eftir því sem hreyfiafl þjóðfélagsins hefur færst frá hefðbundnum iðngreinum yfir í atvinnulíf sem byggist á þekkingu og „óefnislegum eignum“ hefur komið í ljós sá mikli munur sem er á eignamati slíkra fyrirtækja og hinna sem teljast til hefðbundinna atvinnugreina. Kostnaður getur t.d. aldrei orðið grundvöllur eignamats í þekkingargreinum. Fjárfestar, endurskoðendur og lánastofnanir standa frammi fyrir þeim vanda að reikningsskil fyrirtækja taka einungis til hluta af þeim verðmætum sem felast í þeim. Til þessa hefur verið tiltölulega auðvelt að meta lánshæfni fyrirtækja. Brunabóta- eða fasteignamat, endurkaupsverð véla og búnaðar hefur verið skoðað og hliðsjón höfð af því mati sem fram kemur í eignahlið ársreikninga. Hjá fyrirtækjum í hefðbundnum greinum, grjótnámi, malbikun, steypuframleiðslu, prentun o.s.frv. gefur sú mynd sem ársreikningurinn dregur upp oftast nokkuð góða mynd af eignastöðu fyrirtækja. Öðru máli gegnir um fyrirtæki sem byggja tilveru sína á hugviti og þekkingu. Tölvufyrirtæki, hugbúnaðarfyrirtæki, fyrirtæki í netþjónustu og auglýsingastofur eru með arðbærustu fyrirtækjum í heiminum nú. Fæst eiga þessi fyrirtæki umtalsverða fastafjármuni. Úr því að slík fyrirtæki eru arðbær er þá rétt að sá grunnur sem þau byggja tilvist sína á, þ.e. þekkingin, sé einskis metinn í efnahagsreikningi? Hvaða leiðbeiningar eiga yfirmenn banka í harðri samkeppni um bestu viðskiptavinina að gefa starfsmönnum við mat á því hvort fyrirtæki í þekkingariðnaði sé lánshæft? Hvaða augum mun Fjármálaeftirlitið líta lán til fyrirtækja sem grundvallast á þekkingu en eiga ekki hefðbundna „eign“ til að veðsetja? Eigi þekkingariðnaður að þróast hér á landi og njóta eðlilegrar lánafyrirgreiðslu verða lánastofnanir að setja sér vinnureglur um mat á óefnislegum eignum og lánshæfni slíkra fyrirtækja.
Til að sýna fram á þann vanda sem menn standa frami fyrir í þessum efnum má taka nokkur dæmi.
Dæmi 1. Kortafyrirtæki byggja tilveru sína á þeim þúsundum einstaklinga sem nota kreditkort til kaupa á vöru og þjónustu. Fjöldi korthafa er þannig hinn raunverulegi grundvöllur rekstursins; annað skiptir litlu í þeim samanburði. Góðar reikningsskilavenjur gera ekki ráð fyrir að verðmæti sem fólgin eru í fjölda kreditkorta séu færð til eignar í eignahlið efnahagsreiknings.
Dæmi 2. Ársreikningar flugfélaga sýna flugvélar sem eign en hvað um bókunarkerfi? Í ársreikningum American Airlines sem á hið arðbæra „Sabre“ bókunarkerfi er þeirrar eignar hvergi getið þrátt fyrir þá staðreynd að bókunarkerfið er miklu arðbærara en flugvélareksturinn.
Dæmi 3. Samanburður á IBM og Microsoft sýnir að þótt brúttósala IBM sé mikið meiri en Microsoft er markaðsverðmæti Microsoft samt mun meira. Í nóvember 1996 var markaðsverðmæti IBM tæpir 71 milljarður dollara en verðmæti Microsoft á sama tíma 85,5 milljarðar dollara. Nettóeign í ársreikningi IBM var þá 16,6 milljarðar dollarar en samsvarandi liður í ársreikningi Microsoft nam 930 milljónum dollara. Með öðrum orðum fékk kaupandinn 23 dollara af áþreifanlegum eignum fyrir hverja 100 dollara sem varið var í hlutabréf í IBM en sama fjárfesting í Microsoft tryggði einungis um einn dollara í áþreifanlegum eignum (fixed assets). Sá sem kaupir hlut í Microsoft er því ekki að kaupa „eign“ í hefðbundnum skilningi þess orðs.
Dæmi 4. Brookings Institution í Bandaríkjunum gerði árið 1982 athugun á hlutfalli milli markaðsverðmætis iðnfyrirtækja og áþreifanlegra eigna í efnahagsreikningi (lóðir, fasteignir og vélar). Athugunin leiddi í ljós að mat áþreifanlegra eigna svaraði þá til 62,3% af markaðsverðmæti fyrirtækjanna. Sama athugun var framkvæmd tíu árum síðar og sýndi þá að hlutfallið var komið niður í 37,9%. Athugunin náði sem fyrr segir til hefðbundinna iðnfyrirtækja og því má velta fyrir sér hvert hlutfallið sé hjá fyrirtækjum í þekkingariðnaði?
Einhverjir kynnu að vilja skýra þann mismun sem er á verðmætamati fyrirtækis á markaði og bókfærðu verðmæti eingöngu með því að vísa til hugtaksins „good will“ eða viðskiptavildar. Það skýrir hins vegar að mjög takmörkuðu leyti þennan mismun og er því allt og einföld og óígrunduð skýring á mismunandi mati á efnislegum og óefnislegum verðmætum sem hér er gert að umræðuefni. Hugtakið viðskiptavild hefur fyrst og fremst þjónað þeim tilgangi að vera notað til að réttlæta kaupverð fyrirtækja sem ganga kaupum og sölum í heild en ekki sem eiginlegt mat á verðmætum.
Hlutverk ársreiknings fyrirtækja er að gefa eigendum og fjárfestum upplýsingar sem koma að gagni við mat á raunverulegu verðmæti. Með tilkomu fyrirtækja sem byggja tilvist sína á hugviti og óefnislegum þáttum má draga í efa að ársreikningar gagnist fjárfestum með sama hætti og áður.
Erlendis eru til bankar sem sérhæfa sig í lánveitingum til fyrirtækja í þekkingariðnaði og þótt slíkar lánveitingar hafi farið hægt af stað er eftirspurnin mikil. Royal Bank í Kanada er einn þeirra banka sem gefa þekkingariðnaði sérstakan gaum. Bankinn hefur sett upp deild til að sinna þekkingariðnaði og er stærstur á þessu sviði í Norður-Ameríku með um 4,5 milljarða dollara í lánum til þekkingariðnaðar og vöxturinn er um 25% á ári. Yfirmaður viðkomandi deildar hefur sagt um þessa tegund lánastarfsemi: „Þetta eru alveg ný fræði og engar skráðar reglur eru til svo að við verðum að þreifa okkur áfram með hvernig eigi að meta lánshæfni þeirra sem byggja tilveru sína á þekkingu og óáþreifanlegum eignum á markaði þar sem vöxtur er gífurlega ör en hviklyndur. Bankinn getur gleymt öllu því sem stendur í gömlu lánareglunum, þær reglur henta ekki líftækniiðnaði þar sem þróunarferlið er mjög langt en salan á afurðinni getur tekið snöggt við sér og orðið gífurleg ef vel tekst til. Sama er að segja um hugbúnaðariðnaðinn þar sem hægt er að hefja fjöldaframleiðslu án þess að eiga verksmiðju og landamæri eru engin hindrun. Hugbúnaðariðnaðurinn er jafnframt atvinnugrein þar sem nýr samkeppnisaðili með betri vöru getur birst allt í einu eins og þruma úr heiðskíru lofti.“
Leiðbeiningar sérfræðinganefndar um mat á þeirri eign sem liggur í óefnislegum fjármunum og verður til innan fyrirtækjanna sjálfra mun án efa auðvelda bönkum og öðrum lánastofnunum áhættumat við lánveitingar til fyrirtækja í þekkingariðnaði.
Í sjálfu sér er það ekki nýtt að erfitt geti verið að setja efnahagslega mælistiku á þekkingu sem í fyrirtækjum býr eða þá þjónustu sem þau veita. Lögfræði- og endurskoðunarstofur hafa t.d. ekki átt auðvelt með að mæla verðmæti þjónustunnar svo að brugðið hefur verið á það ráð að nota tímamælingu sem grundvöll til að verðleggja þjónustuna. Sú spurning vaknar hins vegar hvort meira verðmæti sé fólgið í því fyrir viðskiptavin að fá þjónustu frá einstaklingi sem þarf 50 klst. til að skila sömu vinnu og annar einstaklingur getur skilað á 10 klst. Klukkutímar eru einungis mælieining fyrir kostnað en segja ekkert um verðmæti þeirrar þjónustu sem viðskiptavinurinn fær eða þá eign sem fyrirtækið býr yfir. Engum dettur þó í hug að endurskoðunarstofa í rekstri sé ekki „eign“.
Endurskoðendur og bankamenn sem þurfa að setja sér vinnureglur um hvernig meta skuli þekkingu til eignar, hvort heldur er í ársreikningum eða sem tryggingu fyrir láni, eiga erfitt verk fyrir höndum. Stjórnvöld geta auðveldað það verk með því að setja á laggirnar nefnd sem skili fræðilegri umfjöllun um slíkt mat.