Ferill 385. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 654 — 385. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um að skipa nefnd sem geri tillögur um einföldun á tekjukerfi ríkissjóðs.
Flm.: Gunnlaugur M. Sigmundsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd sem geri tillögur um einföldun á tekjukerfi ríkissjóðs með sameiningu og fækkun skatta og fækkun endurgreiðsluliða í tekjuskattskerfinu. Jafnframt verði nefndinni falið að endurskoða innheimtukerfi skattsins og semja tillögur sem leitt gætu til sparnaðar í rekstri og bættrar innheimtu.
Greinargerð.
Á árunum upp úr 1970 var unnið þarft verk við afnám ýmissa smáskatta. Skattar þessir gáfu ríkissjóði litlar tekjur en voru dýrir í innheimtu auk þess sem dýrt var fyrir almenning og atvinnulíf að halda utan um gjaldskylduna. Telja má til árangurs af þessu starfi þá einföldun sem orðið hefur á skattframtölum einstaklinga eftir að flestir frádráttarliðir voru afnumdir en skattprósentan lækkuð á móti. Með tímanum hefur mönnum hins vegar gleymst hversu flókið skattkerfið var orðið. Upp hafa komið hugmyndir um nýja frádráttarliði frá tekjuskatti einstaklinga auk þess sem stjórnvöld hafa verið iðin við að taka upp nýja smáskatta sem eru dýrir í innheimtu og kostar atvinnulífið mikið að standa skil á. Íslenskt atvinnulíf á í alþjóðlegri samkeppni og miklu skiptir að skattlagning þess sé hvorki þung í vöfum né flókin.
Í tillögunni er gert ráð fyrir að endurgreiðslur í tekjuskattskerfinu komi einnig til endurskoðunar en sýnt hefur verið fram á að ef slíkum frádráttarliðum væri fækkað mætti einfalda kerfið og taka upp mjög lága tekjuskattsprósentu.
Fjöldi skatta og gjalda er mikill og erfitt að henda reiður á þeim. Samkvæmt greiðsluáskorun innheimtumanna ríkissjóðs frá því í júní 1998 er um að ræða eftirfarandi gjöld, skatta og álögur, en vera kann að einstök gjöld hafi nú verið felld niður og önnur tekin upp:
| staðgreiðsla tekjuskatts | skipulagsgjald |
| staðgreiðsla útsvars | slysatrygging vegna heimilisstarfa |
| eignarskattur | iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald |
| sérstakur eignarskattur | virðisaukaskattur af skemmtunum |
| tryggingagjald | tryggingagjöld af skipshöfnum |
| virðisaukaskattur | skráningargjöld af skipshöfnum |
| virðisaukaskattur í tolli | vinnueftirlitsgjald |
| áfengisgjald | vörugjald af innlendri framleiðslu |
| launaskattur | vörugjald af ökutækjum |
| aðstöðugjald | eftirlitsgjöld |
| þróunarsjóðsgjald | aðflutningsgjöld |
| kirkjugarðsgjald | útflutningsgjöld |
| bifreiðagjald | skilagjald á umbúðir |
| slysatryggingagjald ökumanna | verðbætur á ógreiddan tekjuskatt |
| fast árgjald þungaskatts | verðbætur á ógreitt útsvar |
| þungaskattur samkvæmt ökumæli | skipagjald |
| skemmtanaskattur | fisksjúkdómagjald |
| miðagjald | jarðarfaragjald |
| gjald í framkvæmdasjóð aldraðra | ofgreiddar barnabætur |
| ofgreiddur barnabótaauki | ofgreiddar vaxtabætur |
Innheimtukerfi ríkissjóðs er kostnaðarsamt og starfskraftar mjög dreifðir. Löggjöfin heimilar ekki að unnt sé að koma við hagræðingu eins og þeirri að fela tilteknum skattstofum eða innheimtuaðilum að sjá alfarið um álagningu og innheimtu tiltekinna gjalda. Sum gjaldanna sem tilgreind eru hér að framan greiða aðeins sárafáir gjaldendur á landinu öllu, en framkvæmd álagningar og innheimta er samt sem áður falin mörgum aðilum. Þingsályktunartillaga þessi felur í sér að tilhögun allrar innheimtu á vegum ríkissjóðs verði endurskoðuð með aukna hagræðingu í rekstri og sparnað í huga. Þrjátíu aðilar sjá nú um innheimtu þessara gjalda. Þeir eru:
| Tollstjórinn í Reykjavík | Sýslumaðurinn á Blönduósi |
| Sýslumaðurinn í Kópavogi | Sýslumaðurinn á Akureyri |
| Sýslumaðurinn í Hafnarfirði | Sýslumaðurinn á Húsavík |
| Sýslumaðurinn í Keflavík | Sýslumaðurinn á Ólafsfirði |
| Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli | Sýslumaðurinn á Seyðisfirði |
| Sýslumaðurinn á Akranesi | Sýslumaðurinn í Neskaupstað |
| Sýslumaðurinn í Borgarnesi | Sýslumaðurinn á Eskifirði |
| Sýslumaðurinn í Stykkishólmi | Sýslumaðurinn á Höfn |
| Sýslumaðurinn í Búðardal | Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum |
| Sýslumaðurinn á Ísafirði | Sýslumaðurinn á Selfossi |
| Sýslumaðurinn í Bolungarvík | Sýslumaðurinn í Vík |
| Sýslumaðurinn á Patreksfirði | Sýslumaðurinn á Hvolsvelli |
| Sýslumaðurinn á Hólmavík | Gjaldheimta Vestfjarða |
| Sýslumaðurinn á Siglufirði | Gjaldheimta Austurlands |
| Sýslumaðurinn á Sauðárkróki | Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum |
Því verður ekki trúað að óreyndu að fyrirkomulag sem byggist á því að fela þrjátíu aðilum að innheimta skatta og gjöld ríkissjóðs sé hagkvæmasta leiðin. Starf nefndar sem þeirrar sem hér er gerð tillaga um leiðir hugsanlega í ljós hvort svo er.