Ferill 386. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 655 — 386. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um aukna fjölbreytni atvinnutækifæra í dreifbýli.
Flm.: Gunnlaugur M. Sigmundsson.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því að auka fjölbreytni atvinnutækifæra í dreifbýli með því að innleiða á markvissan hátt „fjarstörf“ í ríkisrekstri.
Greinargerð.
Á síðasta ári flutti flutningsmaður þingsályktunartillögu sem efnislega var samhljóma þeirri er hér er flutt. Tillagan kom ekki til afgreiðslu á Alþingi þá og er því endurflutt nú. Frá þeim tíma hafa atvinnumál í dreifbýli verið meira til umræðu en áður og ýmsir bæði utan þings og innan orðið til að taka undir þær hugmyndir sem í tillögunni felast þótt víða sé ruglað saman hugtökunum „fjarstörf“ og „fjarvinnsla“.
Fábreytni atvinnulífs í dreifbýli er talin ein af ástæðum þess hve hallað hefur á landsbyggðina á undanförnum árum. Framboð á störfum hjá ríkisstofnunum og ríkisfyrirtækjum er mest á höfuðborgarsvæðinu þótt viðkomandi stofnunum sé ætlað að þjóna landinu öllu. Gerðar hafa verið tilraunir til að flytja ríkisstofnanir út á land með misjöfnum árangri. Margir benda á að það þjóni illa íbúum landsbyggðarinnar ef þeir geta ekki sameinað þau erindi sem viðkomandi kunna að eiga við hinar ýmsu stofnanir í einni ferð til höfuðborgarinnar. Í þessu kann að felast nokkur sannleikur sem hefur orðið til þess að ekki hefur verið sótt af neinni festu að ríkisstofnanir séu fluttar út á land. Störf í ríkisstofnunum krefjast í vaxandi mæli aukinnar sérþekkingar en framboð á störfum sem byggjast á langskólamenntun og sérþekkingu eru af skornum skammti í dreifbýli. Á sama tíma færist í vöxt að makar langskólagengins fólks séu einnig langskólagengnir. Þegar kemur að því að velja stað til búsetu að loknu námi er eðlilega horft til þess hvort líkur séu á að hjónin geti bæði fengið vinnu á sínu sviði. Skortur á fjölbreytni í störfum er talin ein af helstu ástæðum þess að menntað fólk sem ættað er af landsbyggðinni er ekki tilbúið að flytja aftur í heimabyggð að loknu háskólanámi. Ef mjög fáir þeirra sem fara til langskólanáms af landsbyggðinni flytjast heim aftur að námi loknu er ljóst að afleiðingin verður atgervisflótti sem ekkert byggðarlag fær staðist til lengdar.
Tæknin gerir nú mönnum fært að búa og starfa fjarri vinnuveitanda. Með tilkomu tölvu, internets og tölvumyndavéla hafa gefist stórkostlegir möguleikar til að dreifa þeim stöfum út um land sem ríkisvaldið þarf að láta vinna og skapa þannig raunverulegan möguleika fyrir fólk í dreifbýli til að búa við svipaða fjölbreytni í starfsvali og fólk í þéttbýli býr við. Sú tegund starfa sem tillaga þessi gerir ráð fyrir að komið sé á er hér nefnd „fjarstarf“ sem þýðing á enska orðinu „telecommuting“. Fjarstörf eru nú þegar algeng í Bandaríkjunum og er reynslan af þeim svo góð að fyrirtæki á þéttbýlli svæðum eru jafnvel farin að hvetja starfsmenn til að vinna heima hluta úr vinnuvikunni. Vilja fyrirtækin þannig minnka þann tíma sem fer í ferðir milli vinnustaðar og heimilis og fá þannig ánægðari starfsmenn auk þess sem slíkt fyrirkomulag er liður í því að draga úr þeirri loftmengun sem fylgir aukinni umferð. Nokkrir einstaklingar búa á Íslandi og inna störf af hendi fyrir fyrirtæki á vesturströnd Bandaríkjanna. Ef slíkt er gerlegt milli heimshluta ætti ekki að vera vandamál að færa á sama hátt störf í ríkisstofnunum út á land.
Hugmynd flutningsmanns gengur út á að ákveðið hlutfall opinberra starfa verði á hverjum tíma veitt fólki sem býr á landsbyggðinni og sinnir starfinu með aðstoð tölvu og nútímafjarskiptatækni. Með tilkomu samskiptabúnaðar á borð við Lotus Notes, ljósleiðara, tölvuskönnun skjala og annarri hraðvirki samskiptatæki er lítill munur á hvort starfsmenn sem vinna að sama verkefni sitja hver í sínu herbergi eða hver í sínum landshluta. Til að innleiða þann starfsmáta sem fylgir fjarstörfum mætti hugsa sér sem raunhæft markmið að þegar í stað verði tíu opinber störf færð yfir í hvert hinna sex landsbyggðarkjördæma og þau auglýst til umsóknar sem fjarstörf. Á næsta einu og hálfu ári verði svo metið hvernig til tekst og ríkisreksturinn aðlagaður frekari breytingum í þessa veru. Á grundvelli fenginnar reynslu verði stefnt að því að ekki færri en 2% allra opinberra starfa standi til boða sem fjarstörf árið 2003 og að í lok árs 2007 verði ekki færri en 5% allra opinberra starfa fjarstörf. Einnig kæmi vel til greina að örva einkafyrirtæki til að gefa kost á fjarstörfum með því að veita tímabundna skattalega umbun fyrir hvert starf sem þannig væri búið til.
Rétt er að vekja athygli á þeim mun sem er á hugtökunum fjarstarf og fjarvinnsla en sumir þingmenn hafa að undanförnu rætt þann möguleika að nýta fjarvinnslu til að auka fjölbreytni atvinnulífs í dreifbýli. Fyrir um einum og hálfum áratug var mikil ásókn fyrirtækja erlendis í að spara í rekstri með því að færa ákveðna þætti starfsemi sinnar til láglaunasvæða. Sem dæmi má nefna að flugfélög og stórar verslunarkeðjur settu upp aðstöðu á láglaunasvæðum þar sem fólk sat við tölvur og sló inn upplýsingar af flugfarseðlum og afsláttarmiðum úr verslunum. Sú hugmynd var um tíma rædd hér á landi að skapa mætti störf í dreifbýli með því að láta innslátt skattframtala eiga sér stað úti á landi. Þessar hugmyndir voru góðra gjalda verðar á sínum tíma en tækninni hefur fleygt svo fram á síðustu árum að nú er minni þörf fyrir slíka vinnslu. Flugfarseðlar og afsláttarmiðar, svo dæmi séu tekin, eru nú með strikamerkingar og innfærsla þeirra gerist því um leið og viðskipti eiga sér stað. Skattframtöl rekstraraðila eru komin í rafrænt form og verði þróunin hér á landi í takt við tímann mun skattstofan senda launafólki til staðfestingar skattframtalsblöð sem eru útfyllt fyrir fram á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Vilji einstaklingur koma að leiðréttingum verður það gert um internetið eða einfaldlega með því að nota símtækið til að slá inn leiðréttingarnar. Fjarvinnsla er því ekki lengur hentug til að auka fjölbreytni starfa í dreifbýli og því síður til að skapa hálaunastörf því eðli máls samkvæmt verður innsláttur gagna ætíð láglaunastarf sem krefst lítillar þekkingar. Með hugtakinu fjarstörf er hins vegar átt við að störf séu unnin með aðstoð tölvutækni af einum eða fleiri einstaklingum fyrir vinnuveitanda sem getur verið í hundruð kílómetra fjarlægð. Fjarstarf gefur því raunverulegt val á starfi án tillits til búsetu en fjarvinnsla er bundin við runukeyrslu eða gagnainnslátt fjarri endanlegum notanda.
Geri Íslendingar nú átak í að koma á fjarstörfum er þó langt í frá að við verðum fyrstir þjóða til að beita tölvutækninni á þennan hátt. Rakið hefur verið hversu vinsæl fjarstörf eru í Bandaríkjunum. Í Vinnunni, blaði ASÍ, var fyrir rúmu ári greint frá því að danska blaðið Aktuelt hefi greint frá nýlegri Gallup-könnun í Danmörku sem sýni að u.þ.b. sjötti hver Dani vinni heima með aðstoð tölvutækni. Skoðanakönnunin sýndi að Danir vilja mjög gjarnan vinna heima í einn til tvo daga í hverri viku. Flestir, eða 48%, sögðu ástæðuna vera frelsið til að ráða vinnutíma sínum, 6% nefndu barnagæslu og 23% sparnað í ferðakostnaði. Blaðið Vinnan greinir einnig frá því að hinn mikli áhugi starfsfólks og atvinnurekenda fyrir fjarstörfum hafi ýtt við dönsku verkalýðshreyfingunni. Sagt er frá því að fyrir tíu árum hafi verkalýðshreyfingin talið fjarstörf ógnun þar sem þessi tegund starfa gæti leitt til „frumskógarvinnumarkaðar lausráðins fólks“ en nú sjái danska verkalýðshreyfingin fjarstörf sem leið starfsfólks til að hafa aukin áhrif á skipulag eigin vinnu. Á árinu 1997 fékk yfir ein milljón danskra launþega ákvæði um fjarstörf inn í kjarasamninga og hið sama má segja um 620.000 starfsmenn sveitarfélaga og 60.000 starfsmenn í banka- og fjármálastörfum.
Geta má þess að á Ísafirði hefur fyrir atbeina Fjórðungssambands Vestfjarða og fleiri aðila verið komið á laggirnar svokölluðu vinnusetri þar sem fólk sem stundar ólík störf, þar á meðal fjarstörf fyrir ýmsa vinnuveitendur, getur leigt aðstöðu og þannig átt þau félagslegu samskipti við annað fólk sem er mikilvægur þáttur í vinnu. Ef ríkisstjórn Íslands sýnir vilja sinn í þessu máli munu fjölmörg byggðarlög fylgja fordæmi Ísfirðinga og koma upp slíkum vinnusetrum þannig að þeir sem sinna fjarstörfum eigi þess kost að stunda vinnu í heimabyggð sinni og njóta jafnframt ánægjunnar sem fylgir því að starfa innan um annað fólk. Þeir sem hins vegar sinna fjarstörfum en kjósa að starfa á heimilum sínum eða annars staðar eiga þann möguleika eftir sem áður.
Ríkisstjórn Íslands er með þingsályktunartillögu þessari hvött til að hafa frumkvæði að sköpun fjarstarfa hér á landi og stuðla þannig á raunhæfan og markvissan hátt að jöfnun á framboði og fjölbreytni starfa milli landsbyggðar og þéttbýlis.