Ferill 343. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 661  —  343. mál.




Breytingartillaga



við brtt. á þskj. 657 [Stjórn fiskveiða (veiðileyfi o.fl.)].

Frá Svavari Gestssyni, Margréti Frímannsdóttur og Sigríði Jóhannesdóttur.



    Við 10. tölul. C-liður (V.) orðist svo:
    Lög um stjórn fiskveiða falla úr gildi 31. desember 2002. Fyrir Alþingi það sem hefst haustið 2001 verði lögð tillaga um nýja skipan fiskveiðimála er taki mið af 1. gr. laganna, fenginni reynslu og fyrirliggjandi dómum Hæstaréttar.
    Til að undirbúa tillöguna kýs Alþingi níu manna nefnd hlutfallskosningu þegar að loknum næstu alþingiskosningum. Nefndin starfar á ábyrgð og á kostnað Alþingis en hefur sérstaka samvinnu við sjávarútvegsráðuneytið sem leggur til sérfræðiþekkingu og aðstoð eftir því sem nefndin óskar eftir. Nefndin hafi samráð við alla aðila málsins í störfum sínum. Nefndin kýs sér sjálf formann.