Ferill 390. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 663 — 390. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um ráðstöfun óskiptra liða í fjárlögum.
Frá Kristínu Halldórsdóttur, Gísla S. Einarssyni
og Sigríði Jóhannesdóttur.
Hvernig hefur verið varið fjárframlagi af óskiptum lið 01-190 1.90 Ýmis verkefni að fjárhæð 7,4 millj. kr. í fjárlögum 1998, sundurliðað eftir verkefnum?
Skriflegt svar óskast.