Ferill 413. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 686 — 413. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um framkvæmd 12. gr. jafnréttislaga.
Frá Guðnýju Guðbjörnsdóttur.
1. Hefur verið áréttað við ráðuneytin að virða beri ákvæði í 12. gr. jafnréttislaganna eins og frekast er unnt, sbr. ummæli forsætisráðherra og félagsmálaráðherra á 122. löggjafarþingi?
2. Ef svo er, hvenær var það gert formlega og hversu oft hlutfallslega hefur verið vitnað í 12. gr. jafnréttislaganna í þeim tilnefningarbréfum sem farið hafa frá ráðuneytunum síðan?