Ferill 418. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 691 — 418. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um skattframtöl.
Frá Guðmundi Árna Stefánssyni.
1. Ætlar ráðherra að fara að ábendingum Ríkisendurskoðunar varðandi skattframtöl og þá einkanlega um einföldun þeirra?
2. Stefnir ráðherrann að því að skattframtöl einstaklinga verði þannig unnin að upplýsingar launagreiðenda og aðrar venjubundnar upplýsingar, svo sem frá opinberum aðilum og fleirum, verði færðar fyrir fram inn á skattframtölin, þannig að staðfesting framteljenda á að upplýsingar séu réttar nægi?
3. Er ekki ástæða til að ætla að það fyrirkomulag sem lýst er hér að framan og þekkist víða erlendis mundi bæta skil á skattframtölum og fækka áætlunarframtölum?