Ferill 420. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 693 — 420. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um menningarhús.
Frá Svanfríði Jónasdóttur.
1. Hversu stór á hlutur ríkisins í byggingu menningarhúsa að verða, eða endurgerð eldri húsa ef sú leið verður valin? Hve miklu fé ætlar ríkið að verja til þessara framkvæmda og á hvaða tíma?
2. Hver er forgangsröðun framkvæmdanna?
3. Hver á að verða rekstraraðili menningarhúsanna og hversu mikinn þátt mun ríkið taka í rekstri þeirra?