Ferill 423. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 696  —  423. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um álitsgerð Sigurðar Líndals um 3. gr. laga um stjórn fiskveiða.

Frá Kristni Péturssyni.



     1.      Hvað varð um álitsgerð Sigurðar Líndals um að 3. gr. laga um stjórn fiskveiða brjóti í bága við stjórnarskrána sem send var ríkisstjórninni í ágúst 1992 og afhent tvíhöfða­nefndinni til frekari skoðunar?
     2.      Hvers vegna var ekki tekið mið af umræddri álitsgerð?
     3.      Telur ráðherra ekki eðlilegra með tilvísun í álitsgerðina að Alþingi ákveði aflahámark einstakra fisktegunda?


Skriflegt svar óskast.