Ferill 424. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 697 — 424. mál.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um mannréttindi.
Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.
1. Hefur ráðherra beitt sér fyrir því að fjölskyldur nýbúa fái nauðsynlegan stuðning til að festa rætur í íslensku samfélagi?
2. Ef svo er, til hvaða aðgerða hefur verið gripið í því sambandi?
3. Hefur ráðherra beitt sér fyrir aðgerðum sem miða að því að uppræta fordóma í garð þeirra sem skera sig úr vegna kynþáttar, trúarbragða eða menningar eða í garð fjölskyldna samkynhneigðra?
4. Ef svo er, í hverju eru þær aðgerðir fólgnar?