Ferill 426. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 700  —  426. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um skipun hæstaréttardómara.

Frá Svavari Gestssyni.



    Hvað hefur ráðuneytið aðhafst í framhaldi af því að á 117. löggjafarþingi var vísað til ríkisstjórnarinnar frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hæstarétt Íslands (37. mál) þar sem gert var ráð fyrir að Alþingi staðfesti tillögur dómsmálaráðherra um skipun hæstaréttar­dómara?