Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 704  —  428. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um reglugerð um losunar- og sjósetningarbúnað gúmbjörgunarbáta.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hvenær var fyrst sett reglugerð um losunar- og sjósetningarbúnað gúmbjörgunarbáta?
     2.      Hvenær var ákvæðum hennar frestað og hver var ástæða þess?
     3.      Hve oft hefur setningu reglugerðarinnar verið frestað og af hvaða ástæðum?
     4.      Hvernig er staðið að framgangi þessa máls nú í ljósi þess að ráðuneytið hefur ákveðið gildistöku reglugerðar um fyrrnefndan búnað 1. janúar 2000?


Skriflegt svar óskast.