Ferill 432. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj.  711 —  432. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um eftirlit með ferðaskrifstofum.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hvernig er háttað eftirliti samgönguráðuneytis með ferðaskrifstofum, þ.e. að gæði og þjónusta hótela/hótelíbúða séu í samræmi við auglýsingar?
     2.      Hve mörg kærumál og athugasemdir hafa ráðuneytinu borist vegna vanefnda ferðaskrifstofa á sl. fimm árum?
     3.      Hafi kærumál borist, hvernig hefur meðferð þeirra verið og hvernig hefur þeim lyktað?