Ferill 239. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 715 — 239. mál.
Svar
samgönguráðherra við fyrirspurn Lúðvíks Bergvinssonar um samkeppnisrekstur Landssímans.
Leitað var til Landssíma Íslands hf. um svör við fyrirspurninni.
1. Hefur fjárreiðum þeirra deilda Landssímans hf., sem eru í samkeppni um einkaréttarþjónustu, verið haldið aðskildum frá öðrum rekstri, sbr. 11. gr. laga nr. 103/1996?
Fjárreiðum deilda Landssímans sem eru í samkeppni hefur verið haldið aðgreindum frá öðrum rekstri.
2. Hvaða deildir telur Landssíminn hf. að séu í samkeppnisrekstri?
Frá 1. janúar 1995 voru eftirfarandi rekstrareiningar skilgreindar sem samkeppnisrekstur:
a. farsímarekstur, þ.e. NMT- og GSM-farsímakerfin og Boðkerfi,
b. gagnaflutningur, þ.e. Almenna gagnaflutningskerfið X.25, Gagnahólf og Háhraðanet, þ.m.t. internetþjónusta,
c. sala notendabúnaðar og rekstur þjónustuverkstæðis.
Önnur starfsemi var talin í einkarétti til loka ársins 1997.
Frá 1. janúar 1998 er ekki lengur um rekstur í einkarétti að ræða en fjarskiptarekstur er háður rekstrarleyfi sem Póst- og fjarskiptastofnun úthlutar. Telja verður að farsímaþjónusta og internetþjónusta séu í vaxandi mæli í samkeppni við almenna talsímaþjónustu.
3. Eru fjármunir fluttir frá deildum, sem eru ekki í samkeppnisrekstri, til deilda sem eru í slíkum rekstri?
Frá 1. janúar 1998 hefur Landssími Íslands hf. ekki einkarétt til neins konar fjarskiptaþjónustu. Fjárhagsleg aðgreining skv. 11. gr. laga nr. 103/1996 á því ekki lengur við. Landssíminn heldur fjárreiðum einstakra rekstrareininga aðgreindum, sbr. svör við 1. og 2. lið.
4. Hver var hagnaður eða tap hverrar deildar á árinu 1997?
Þar sem hér er um fjárhags- og viðskiptahagsmuni að ræða telur Landssími Íslands hf. að það sé andstætt hagsmunum félagsins að gefa opinberlega upplýsingar um afkomu einstakra rekstrareininga en vísar í ársskýrslu fyrir árið 1997. Í þessu sambandi vísast til 5. gr. upplýsingalaga, nr. 50/1996, um mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni fyrirtækja, sbr. og til hliðsjónar 3. tölul. 6. gr. sömu laga varðandi undanþágu frá upplýsingaskyldu vegna viðskiptastofnana og fyrirtækja í eigu ríkis, að því leyti sem þau eru í samkeppni við aðra.
5. Hver var upphafleg fjárfesting Landssímans hf. (P&S) í Cantat-3 strengnum og hversu mikil bandvídd var keypt?
Fjárfesting í Cantat-strengnum nam á verðlagi hvers árs 1.599,8 millj. kr. sem er framreiknað miðað við byggingarvísitölu 1.864,8 millj. kr. Í upphafi nam flutningsgetan 155 mb/s með möguleika á tvöföldun síðar.
Sæsímastrengurinn Cantat er einn og sér aðeins hluti af millilandasamböndum Landssímans. Fjárfest hefur verið í öðrum streng, Canus, sem liggur frá Kanada til Bandaríkjanna, enda fer megnið af símaumferð vestur um haf þangað. Sömuleiðis hefur verið fjárfest í strengjum í Evrópu til þess að tryggja öruggan og sem ódýrastan flutning á símaumferð innan Evrópu. Auk þessa hefur af öryggisástæðum verið byggð jarðstöð á Höfn í Hornafirði sem gegnir hlutverki varaleiðar ef Cantat rofnar. Þessi kerfi ásamt jarðstöðinni Skyggni mynda fjarskiptasambönd Íslands við umheiminn.
6. Hver er rekstrarkostnaður Landssímans hf. við Cantat-3 á ári?
Landssími Íslands telur að upplýsingar um rekstrarkostnað, nýtingu og verð á einstökum þjónustuþáttum umfram það sem birt er í gjaldskrám og árskýrslu fyrirtækisins séu viðskiptaupplýsingar sem ekki sé eðlilegt að birta opinberlega. Landssíminn á þegar í nokkurri samkeppni um flutning milli landa og fyrirsjáanleg er meiri samkeppni á þessu sviði. Samkeppnisaðilar hafa lagt áherslu á að fá aðgang að rekstrarlegum upplýsingum á borð við þær sem um er spurt en Landssími Íslands hf. telur það í andstöðu við viðskiptahagsmuni sína að gefa nákvæmar upplýsingar af þeim toga og vísast um þá afstöðu til 6. gr. upplýsingalaga, nr. 50/1996, þar sem fyrirtæki í ríkiseigu eru undanþegin upplýsingaskyldu um viðskiptaleg samkeppnismál.
7. Hve mikil bandvídd Landssíma hf. og forvera hans (P&S) hefur verið í notkun (seld) 1995, 1996 og 1997? — Óskað er eftir að svar verði sundurliðað eftir árum og í eftirfarandi flokka:
a. Ísland – Kanada,
b. Ísland – Evrópa,
c. Kanada – Evrópa.
Enn fremur er óskað eftir að í svari verði sundurliðað hvert sé meðalsöluverð Landssímans hf. og forvera hans á fyrrgreindum leiðum hvert áranna 1995–97 á Mbit.
Fjárfestingar Pósts og síma í Cantat-strengnum árið 1992 miðuðust við að tryggja fullnægjandi fjarskiptasamband við útlönd um langt skeið. Því miðaðist fjárfestingin við spár um aukna umferð næstu árin og hafa þær væntingar fullkomlega gengið eftir og flutningsgetan er enn fullnægjandi. Fyrstu árin var því tiltölulega mikil flutningsgeta ónýtt fyrir umferð að og frá landinu en þetta hlutfall hefur eðlilega farið lækkandi. Landssíminn hefur hins vegar leitast við að selja öðrum aðilum flutning um strenginn og fá þannig tekjur til að bera uppi fjárfestingarkostnað af ónýttri flutningsgetu. Það fer því eftir ýmsu hverning meta á ónýtta flutningsgetu en viðmið Landssímans hefur verið það að geta jafnan og tafalaust séð fyrir nýjum þörfum á flutningi, bæði til Evrópu og Ameríku, og það á öllum tímum sólarhringsins. Þetta viðmið kallar á umtalsverða umframflutningsgetu miðað við meðalnýtingu á strengnum.
Ný tækni til lagningar sæstrengja, stóraukin flutningsgeta á langleiðum og bættur búnaður af margvíslegum toga leiðir þessi missirin til mikilla lækkana á millilandasímtölum. Landssíminn tekur þátt í þessari þróun, lækkaði millilandasímtöl um 22% í nóvember á sl. ári og um 13% að jafnaði til viðbótar nú á haustmánuðum. Fyrirtækið hyggst halda þessari þróun áfram jafnframt því sem boðin verður fram ný tækni við millilandasímtöl, internetsími, sem lækka mun gjald fyrir þau enn frekar. Þessi þróun, ásamt gríðarlegri aukningu á gagnaflutningum milli landa, einkum um internetið, veldur því að umferð um fjarskiptanetin til og frá útlöndum vex nú hraðfara. Af þeim ástæðum hefur Landssíminn nú hafið athugun á því hvernig hagkvæmast verður að auka enn flutningsgetu til útlanda og öryggi í tal- og gagnasendingum, en flest bendir til þess að á allra næstu árum verði þörf fyrir stórum meiri flutningsgetu en nú. (Sjá einnig svar við 6. lið.)
Meðfylgjandi er gjaldskrá sem gilt hefur fyrir leigulínur til útlanda árin 1995, 1996 og 1997.
(3 síður myndaðar)