Ferill 396. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 724 — 396. mál.
Svar
sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Kristínar Halldórsdóttur, Gísla S. Einarssonar og Sigríðar Jóhannesdóttur um ráðstöfunarfé ráðherra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur verið varið 3 millj. kr. framlagi til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun ráðherra á lið 05-199 í fjárlögum 1998, sundurliðað eftir verkefnum?
Á síðasta ári nýtti sjávarútvegsráðherra 2.920 þús. kr. af ráðstöfunarfé sínu sem var 5 millj. kr. þar sem 2 millj. kr. voru vannýttar frá árinu 1997 og lögðust við ráðstöfunarfé ársins 1998.
Ráðherra nýtti fé þetta til tveggja verkefna. Annars vegar til styrktar námsmönnum, en þrír námsmenn fengu styrki. Þetta voru námsmenn í framhaldsnámi í stofnerfðafræði, í fiskeldi og í framhaldsnámi í tengslum við fjölstofnarannsóknir Hafrannsóknastofnunarinnar. Samtals námu námsstyrkir þessir 1.320 þús. kr. Hins vegar styrkti ráðherra Hafrannsóknastofnunina um 1,6 millj. kr. til að standa straum af kostnaði við ritun fiskveiðisögu Norður-Atlantshafsins. Eftirstöðvar ráðstöfunarfjár samkvæmt ákvörðun ráðherra, 2.080 þús. kr., leggjast við ráðstöfunarfé ársins 1999.