Ferill 368. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 730  —  368. mál.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Gísla S. Einarssonar um vanskil hjá Byggðastofnun.

     1.      Hver voru vanskil lántakenda hjá Byggðastofnun 1. júlí 1998?
    Upplýsingar um vanskil 1. júlí 1998 liggja ekki fyrir en vanskil eldri en þriggja mánaða voru 1. desember 1998 um 275 millj. kr. eða nálægt 3,3% af útlánum.

     2.      Hver eru vanskil lántakenda hjá Byggðastofnun sem tengjast útflutningi hrossa til Evrópu?
    Aðeins hafa verið veitt tvö lán á síðustu árum vegna útflutnings á hrossum og samkvæmt ákvæðum um þagnarskyldu er því ekki heimilt að veita upplýsingar um stöðu þeirra.

     3.      Eru einhver vanskil eldri en frá árinu 1995 miðað við 1. júlí? Ef svo er, hversu miklar fjárhæðir er um að ræða og hve margir aðilar eiga hlut að máli?
    Vanskil eldri en frá árinu 1995 eru nú um 31,5 millj. kr. og um er að ræða tíu aðila.

     4.      Hvaða vinnuaðferðum er beitt við innheimtu vanskila ef einhver eru?
    Byggðastofnun beitir venjulegum aðferðum við innheimtu. Send eru innheimtubréf, ítrek­anir, o.s.frv. Sé ekki orðið við ítrekuðum áskorunum um greiðslu eru mál afhent lögfræðingi stofnunarinnar.

     5.      Er sams konar innheimtuaðgerðum beitt við alla lántakendur?
    Reynt er að gæta jafnræðis svo sem vera ber lögum samkvæmt. Skuldurum er oft gefinn kostur á að semja um vanskil og afborganir eru færðar aftur fyrir lánin.