Ferill 423. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 731 — 423. mál.
Svar
sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Kristins Péturssonar um álitsgerð Sigurðar Líndals um 3. gr. laga um stjórn fiskveiða.
1. Hvað varð um álitsgerð Sigurðar Líndals um að 3. gr. laga um stjórn fiskveiða brjóti í bága við stjórnarskrána sem send var ríkisstjórninni í ágúst 1992 og afhent tvíhöfðanefndinni til frekari skoðunar?
Álitsgerðin var rædd á ríkisstjórnarfundi þann 8. ágúst 1992 og ákveðið að senda hana til nefndar stjórnarflokkanna um fiskveiðistjórnun, sem m.a. hafði það hlutverk að endurskoða lög nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða. Í tillögum nefndarinnar, sem hún skilaði til ráðherra 19. maí 1993, voru ekki lagðar til breytingar á 3. gr. laganna.
2. Hvers vegna var ekki tekið mið af umræddri álitsgerð?
Á það skal bent að í niðurstöðu Sigurðar Líndal í álitsgerð frá 29. júlí 1998 segir m.a. orðrétt: „Ég teldi því í betra samræmi við stjórnarskipan ríkisins að Alþingi sjálft tæki ákvörðun um þann heildarafla sem veiða má.“ Í þessu sambandi skal það einnig áréttað að aðrir lögfræðingar hafa talið að það væri í samræmi við stjórnskipan ríkisins að ráðherra hefði heimild til að ákvarða leyfilegan afla á þann hátt sem gert er í 3. gr. laga nr. 38/1990.
3. Telur ráðherra ekki eðlilegra með tilvísun í álitsgerðina að Alþingi ákveði aflahámark einstakra fisktegunda?
Að lokum er bent á í þessu sambandi að frá árinu 1986 hafa verið ákvæði í lögum um að ráðherra ákveði í reglugerð þann heildarafla, sem veiða má árlega við Ísland. Leyfilegur heildarafli af einstökum tegundum hefur verið ákveðinn í reglugerð hverju sinni fyrir upphaf fiskveiðiárs. Sú ákvörðun hefur verið tekin eftir ítarlegar umræður og kynningu. Á hverju fiskveiðiári kemur iðulega til breytinga á leyfilegum heildarafla, t.d. innfjarðarækju og loðnu, og væri það nokkuð viðurhlutamikið að flytja hverju sinni lagafrumvarp þar sem leyfilegur heildarafli væri ákveðinn eða honum breytt, auk þess sem slíkt gerist einnig utan þess tíma er Alþingi situr. Telja verður að sú skipan sem verið hefur á þessum málum hafi reynst vel og að ekki sé ástæða til þess að breyta henni,