Ferill 441. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 739  —  441. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



     1.      Er úttekt Hagstofu Íslands hafin á því hverjir eiga fasteignir hér á landi og hverjir eru skráðir eigendur þeirra, sbr. lið 5.2 í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna? Ef svo er, hvenær er niðurstaðna að vænta?
     2.      Hvað líður endurskipulagningu Hagstofu Íslands á gagnasöfnun og greiningu vinnutíma hér á landi, sbr. lið 5.3 í framkvæmdaáætluninni?
     3.      Hvað líður könnun á stöðu jafnréttismála hjá Hagstofu Íslands og gerð áætlana um hvernig rétta skuli hlut kynjanna hjá henni, sbr. lið 5.5 í framkvæmdaáætluninni?


Skriflegt svar óskast.