Ferill 451. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 749  —  451. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um kyngreindar upplýsingar Hagstofunnar.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



     1.      Hversu margar konur fluttu búferlum innan lands á síðasta ári og hversu margir karlar, skipt eftir kjördæmum?
     2.      Hvenær er þess að vænta að allar upplýsingar Hagstofunnar sem snerta mannlíf í landinu verði kyngreindar, sbr. markmið þess efnis í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar frá 28. maí 1998, um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna?



Skriflegt svar óskast.