Ferill 468. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 773  —  468. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um Egilsstaðaflugvöll sem varaflugvöll í millilandaflugi.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Er þörf á frekari tækjabúnaði og þjónustu við Egilsstaðaflugvöll til að hann standist betur þær kröfur sem gerðar eru til varaflugvallar fyrir millilandaflug yfir vetrarmánuðina? Ef svo er, hvaða úrbætur þarf þá til og hvenær koma þær til framkvæmda?