Ferill 479. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 784 — 479. mál.
Skýrsla
Íslandsdeildar Norður-Atlantshafsþingsins fyrir árið 1998.
1. Inngangur.
Segja má að árið 1998 hafi verið ár nýrra verkefna og aðlögunar í starfi Atlantshafsbandalagsins (NATO), en árið 1997 var ákveðið að bjóða Póllandi, Tékklandi og Ungverjalandi aðild að bandalaginu. Aðild þeirra mun taka gildi á 50 ára afmæli bandalagsins í apríl 1999. Ný verkefni hafa á undanförnum árum skapast á sviði öryggis- og varnarmála sem birtast m.a. í útbreiðslu gereyðingarvopna og vopnakerfa sem fær eru um að bera slík vopn. Þá hefur Evrópa enn orðið að þola þjóðernisátök, einkum á Balkanskaga, sem haft hafa í för með sér vaxandi kröfur um aðgerðir af hálfu NATO, en það hefur undanfarin ár reynt að hafa milligöngu og stjórn á átakasvæðum þar. Evrópa virðist því enn þurfa jafnmikið á samvinnu við Bandaríkin á sviði varnar- og öryggismála að halda nú og við stofnun Atlantshafsbandalagsins fyrir 50 árum. Til að bregðast við breyttum kringumstæðum var öryggisstefna bandalagsins til endurskoðunar árið 1998, en ný skilgreining hennar verður gerð opinber á leiðtogafundi NATO á 50 ára afmæli bandalagsins í apríl 1999. Friðargæsla í Bosníu og Hersegóvínu, tilraunir til milligöngu milli stríðandi aðila í Kosovo-héraði í Sambandslýðveldinu Júgóslavíu, endurskoðun varnarstefnunnar og undirbúningur stækkunar til austurs voru þannig meðal helstu verkefna NATO árið 1998. Jafnframt þessu hefur verið unnið að eflingu samskipta og samhæfingar bandalagsríkja og aðildarríkja í friðarsamstarfinu, þróun tvíhliða samstarfs við Rússland og að innri aðlögun bandalagsins sjálfs að nýjum og breyttum verkefnum.
Að sama skapi fór fram öflug starfsemi innan Norður-Atlantshafsþingsins. Endurskoðun öryggisstefnu bandalagsins, ástandið á Balkanskaga, stækkun bandalagsins til austurs og efld samskipti við Rússland og Úkraínu voru efst á baugi í starfi þingsins á árinu. Þá var ákveðið að breyta nafni Norður-Atlantshafsþingsins í NATO-þingið og að vinna að enn frekari eflingu tengsla þess við bandalagið. Á fundum þingsins hefur Íslandsdeild Norður-Atlantshafsþingsins að vanda lagt ríka áherslu á mikilvægi Norður-Atlantshafstengslanna í evrópskum öryggismálum. Hún hefur ítrekað minnt á að trúverðugleiki Atlantshafsbandalagsins liggur einmitt í samstarfi Evrópu og Norður-Ameríku og að ekki megi missa sjónar á því á þessum umbreytingatímum sem hafa valdið óstöðugleika í álfunni og vakið miklar umræður um aukið samstarf og sjálfstæði Evrópu í öryggis- og varnarmálum.
2. Fulltrúar Alþingis á Norður-Atlantshafsþinginu.
Fulltrúar Alþingis á fundum Norður-Atlantshafsþingsins hafa frá upphafi verið tilnefndir af þeim þingflokkum sem stóðu að samþykkt Alþingis um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu, þ.e. Alþýðuflokki, Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki. Eru tilnefndir í Íslandsdeildina þrír aðalmenn og þrír menn til vara. Í samræmi við starfsreglur Norður-Atlantshafsþingsins og ákvörðun þingflokka voru fulltrúar Alþingis sem hér segir árið 1998:
Aðalmenn: Sólveig Pétursdóttir, Sjálfstæðisflokki, formaður Íslandsdeildarinnar, Jón Kristjánsson, Framsóknarflokki, varaformaður Íslandsdeildarinnar, og Guðmundur Árni Stefánsson, Alþýðuflokki.
Varamenn: Árni R. Árnason og Einar Oddur Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki, og Gunnlaugur M. Sigmundsson, Framsóknarflokki. Ritari deildarinnar er Gústaf Adolf Skúlason alþjóðaritari.
Samkvæmt samþykktum þingsins geta fulltrúar aðildarríkja tekið þátt í öllum nefndum
þingsins. Vegna smæðar hefur Ísland þó aðeins atkvæðisrétt í þremur nefndum auk stjórnarnefndar. Sólveig Pétursdóttir á sæti í stjórnarnefnd þingsins en varamaður hennar í nefndinni er Jón Kristjánsson. Annars er skipting Íslandsdeildarinnar í nefndir þannig:
Stjórnmálanefnd: Sólveig Pétursdóttir.
Varnar- og öryggismálanefnd: Jón Kristjánsson.
Til vara: Gunnlaugur M. Sigmundsson.
Félagsmálanefnd: Einar Oddur Kristjánsson.
Til vara: Guðmundur Árni Stefánsson.
Efnahagsnefnd: Árni R. Árnason.
Vísinda- og tækninefnd: Guðmundur Árni Stefánsson.
Sólveig Pétursdóttir var á ársfundi þingsins endurkjörin varaformaður undirnefndar stjórnmálanefndar um samskiptin yfir Atlantshafið og samskipti Evrópuríkja. Þá á Jón Kristjánsson sæti í vinnuhóp varnar- og öryggismálanefndar um öryggismál á norðurslóðum.
3. Fundir sem Íslandsdeildin tók þátt í á árinu.
Norður-Atlantshafsþingið heldur tvo allsherjarfundi árlega, svokallaðan vorfund að vori og ársfund að hausti. Auk þess fundar stjórnarnefnd sérstaklega, ýmist í mars eða apríl. Á svokölluðum febrúarfundum heldur stjórnarnefndin fund með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins og Atlantshafsráðinu, auk þess sem stjórnmála-, efnahags- og varnar- og öryggismálanefndirnar halda sameiginlegan fund. Nefndir og undirnefndir þingsins halda reglulega námsstefnur og fundi á milli þingfunda. Jafnframt stendur öryggis- og varnarmálanefnd árlega fyrir kynnisferð til eins eða fleiri aðildarríkja bandalagsins til að skoða ýmis hernaðarmannvirki og búnað. Loks voru haldnar fjórar Rose-Roth námsstefnur á árinu (sjá fskj. I, b-lið). Á árinu 1998 tók Íslandsdeildin þátt í febrúarfundunum, fundi stjórnarnefndar, heimsókn félagsmálanefndar til Tyrklands, heimsókn undirnefndar um öryggismál á norðurslóðum til Eystrasaltsríkjanna og vor- og haustfundum þingsins. Þá var hin árlega kynnisferð öryggis- og varnarmálanefndar að þessu sinni farin um norðurslóðir, og hafði hópurinn u.þ.b. sólarhringsviðdvöl á Íslandi.
a. Febrúarfundir.
Dagana 15.–16. febrúar voru haldnir svokallaðir febrúarfundir Norður-Atlantshafsþingsins í Brussel. Um var að ræða sameiginlegan fund stjórnmála-, efnahags- og varnar- og öryggismálanefndar annars vegar og fund stjórnarnefndar með Norður-Atlantshafsráðinu og Javier Solana, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, hins vegar. Aukaaðilar hafa ekki seturétt á fundunum. Af hálfu Íslandsdeildarinnar sat Jón Kristjánsson varaformaður fundina, auk Gústafs Adolfs Skúlasonar ritara. Mikilvægi fundanna fer vaxandi, en þar gefst fulltrúum landsdeilda aðildarríkjanna kærkomið tækifæri til að fræðast um það sem helst er á döfinni hjá bandalaginu.
Helstu umræðuefni sameiginlegs fundar nefndanna þriggja voru stækkun bandalagsins, horfur í þjóðþingunum og fyrirsjáanlegur kostnaður; samstarf bandalagsins við Rússland; þróun nýrrar öryggisstefnu bandalagsins; samskipti ESB og Bandaríkjanna á sviði efnahagsmála; framtíð fjölþjóðahersins í Bosníu og Hersegóvínu og hlutverk Evrópuríkjanna sjálfra í öryggismálum álfunnar. Þá hófu bandarísku þingmennirnir ítrekað máls á deilunni við Írak sem þá var í hámæli, en hefur ekki verið formlega á borði Atlantshafsbandalagsins. Loks sendi fundurinn frá sér yfirlýsingu þar sem áréttaður er stuðningur Norður-Atlantshafsþingsins við tilvonandi stækkun bandalagsins og að aðild að því verði áfram fær.
Fundinn ávörpuðu þrír af fimm aðstoðarframkvæmdastjórum Atlantshafsbandalagsins, Klaus-Peter Klaiber sem fer fyrir stjórnmáladeildinni, Anthony J. Cragg sem fer fyrir deild varnarmála og herstjórnarskipulags og Herpert Van Foreest fyrir deild samgöngu-, tækni- og félagsmála. Þá ávörpuðu fundinn Klaus Naumann hershöfðingi, formaður hermálanefndar bandalagsins, Karel Van Miert frá framkvæmdastjórn ESB og Vernon A. Weaver, sendiherra Bandaríkjanna hjá ESB.
Í upphafi fundarins óskaði William V. Roth Jr., þáverandi forseti þingsins, fulltrúum Danmerkur og Kanada til hamingju með að þjóðþing viðkomandi ríkja hefðu orðið fyrst til að staðfesta stækkun bandalagsins. Jan Petersen fundarstjóri sagði þetta fyrsta fund nefndanna eftir að fram kom á ráðherrafundi bandalagsins í desember 1997 að kostnaður við stækkun yrði viðráðanlegur og að nýju aðildarríkin þrjú mundu leggja þar sitt af mörkum. Hann sagði þó vanta nákvæmari upplýsingar um sundurliðun kostnaðar sem vonandi bærust þjóðþingunum innan tíðar. Þess má geta að Tékkland og Ungverjaland munu hvort um sig leggja fram um 0,5% af sameiginlegum sjóðum bandalagsins, en Pólland um 2,5%. Til samanburðar má jafnframt geta þess að framlag Íslands í sameiginlega sjóði er að meðaltali um 0,05%.
b. Heimsókn félagsmálanefndar til Tyrklands.
Dagana 26.–28. febrúar heimsótti félagsmálanefnd Norður-Atlantshafsþingsins Tyrkland, og tók Guðmundur Árni Stefánsson þátt í heimsókninni. Nefndin fundaði með fulltrúum stjórnvalda, stjórnarandstöðu og ýmissa mannréttindasamtaka um ástand mannréttindamála og stöðu minnihlutahópa í landinu og heimsótti m.a. Kúrdahéruð í því skyni.
c. Fundur stjórnarnefndar.
Dagana 22.–24. mars fundaði stjórnarnefnd Norður-Atlantshafsþingsins á Madeira í Portúgal. Af hálfu Íslandsdeildar sótti Sólveig Pétursdóttir formaður fundinn, auk Gústafs Adolfs Skúlasonar, ritara Íslandsdeildarinnar. Meðal helstu dagskráratriða fundarins má nefna skýrslu framkvæmdastjóra um áherslur og forgangsatriði í starfsemi þingsins, umræður um þátttöku í nefndafundum og um frágang skýrslna málefnanefnda þingsins fyrir útgáfu. Þá má geta þess að fulltrúar Póllands, Tékklands og Ungverjalands sátu í fyrsta sinn fund stjórnarnefndar, að þessu sinni sem áheyrnarfulltrúar.
Simon Lunn, framkvæmdastjóri þingsins, kynnti skýrslu sína um áherslur og forgangsatriði í starfsemi þingsins. Hann bað um leiðsögn stjórnarnefndar í ákveðnum atriðum, einkum samskiptum þingsins við Rússland, Úkraínu og ýmis ríki Evró-Atlantshafssamstarfsráðsins sem ekki hafa aukaaðild að Norður-Atlantshafsþinginu. Er þar einkum vísað til svonefndra Kákasus-ríkja eða Mið-Asíu. Ýmis skref hafa verið tekin í þeim efnum og lýst hefur verið vilja til enn frekari samskipta, en Lunn benti hins vegar á mikinn kostnað við þau og bað því um skýrari leiðsögn stjórnarnefndar.
Þýski þingmaðurinn Karsten Voigt, fyrrverandi forseti Norður-Atlantshafsþingsins, vísaði í reynslu sína sem formanns vináttuhóps þýska sambandsþingsins við rússnesku Dúmuna. Hann sagði erfitt að koma á fundum í Rússlandi með fulltrúum Dúmunnar, en þeim mun auðveldara að fá þá til að heimsækja Þýskaland. Því þyrfti e.t.v. að endurskoða þá áherslu Norður-Atlantshafsþingsins að fjölga fundum með rússneskum þingmönnum í Rússlandi, en bjóða þeim þess í stað til funda og námsstefna innan ríkja Atlantshafsbandalagsins. Þá varaði hann eindregið við tilraunum til að efla samskiptin við ríki Evró-Atlantshafssamstarfsráðsins sem ekki væru með aukaaðild, það væri of stórt verkefni til þess að þingið réði við það. Þess í stað bæri að leggja áherslu á samskiptin við Rússland og Úkraínu annars vegar og þau ríki sem sækt hefðu um aðild að bandalaginu hins vegar. Spænski varaforsetinn Raphael Estrella greindi frá því að hann mundi ásamt Sir Geoffrey Johnson-Smith leggja fram áætlun um tilhögun samskiptanna við Rússland og Úkraínu á vorfundinum í Barcelona í maí nk., en áætlunin er samin í kjölfar samninga bandalagsins við Rússland og Úkraínu á liðnu ári þar sem óskað er efldra samskipta Norður-Atlantshafsþingsins við þjóðþing þessara ríkja. Aðrir sem tóku til máls undir þessum lið lýstu almennt stuðningi við orð Voigts, þeirra á meðal þáverandi forseti þingsins, bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn William V. Roth Jr.
Bandaríski þingmaðurinn Douglas Bereuter vakti máls á því að tímabært væri að Norður-Atlantshafsþingið tæki upp formleg samskipti við Atlantshafsbandalagið, en þau samskipti hafa verið að eflast undanfarin ár þótt enn séu þau óformleg og þingsins hvergi getið í sáttmálum bandalagsins. Lunn greindi frá því að Javier Solana, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, væri jákvæður gagnvart þessari hugmynd en sagði það ekki gilda um alla fastafulltrúana. Spænski þingmaðurinn Javier Ruperez greindi frá því að Norður-Atlantshafsþingið hefði mun veikari stöðu gagnvart framkvæmdarvaldinu en t.d. Evrópuráðs-, VES- og ÖSE-þingin, en hann gegndi um þær mundir forsæti í því síðastnefnda. Engin ákvörðun var tekin í þessum efnum en greinilegur vilji nefndarinnar var að þarna yrðu gerðar breytingar.
Þá var rædd staða þjóðþinga Austurríkis, Finnlands, Írlands og Svíþjóðar, en þau hafa haft áheyrnaraðild að þinginu sem mörgum hefur þótt óeðlilegt á meðan t.d. Úkraína og Rússland eru með aukaaðild. Þessi þjóðþing höfðu hins vegar áður afþakkað boð um aukaaðild, en það var ítrekað í kjölfar ársfundar þingsins í Búkarest í október 1997. Lunn greindi frá því að enn hefði ekkert heyrst frá Írlandi vegna þessa máls. Hins vegar væri von á formlegum svörum frá hinum þremur, og væri reiknað með jákvæðu svari frá Finnlandi.
Fyrir fundinum lá bréf frá ítalska þingmanninum Gian Giacomo Migone, formanni félagsmálanefndar. Þar leggur hann til að hætt verði að greiða atkvæði um skýrslur í nefndum, einungis verði greidd atkvæði um ályktanir en allar skýrslur gefnar út engu síður. Ekki var samstaða um þetta á fundinum og var tillagan felld. Áfram verður þeirri reglu fylgt að allar skýrslur séu gefnar út en þess skýrt getið hvort þær hafi hlotið samþykki viðkomandi nefndar eða hvort einungis sé um skoðanir framsögumannsins að ræða.
Þá var fjallað um hátíðahöld í tilefni af 50 ára afmæli Atlantshafsbandalagsins í apríl 1999. Helsti viðburðurinn verður leiðtogafundur í Washington, en Solana hefur lýst vilja til samstarfs við Norður-Atlantshafsþingið um hátíðahöld í tilefni hálfrar aldar afmælisins. Lunn sagði að gott væri að fá upplýsingar frá hverju landi fyrir sig um hvað þar standi til fyrir vorfundinn í Barcelona, til þess að atburðirnir rækjust ekki á um of.
Loks kynntu Sir Geoffrey Johnson-Smith, gjaldkeri þingsins, og Simon Lunn fjárhagsstöðu þingsins. Rekstrarafgangur árið 1997 nam um 42 millj. kr.
d. Vorfundur.
Dagana 22.–26. maí var vorfundur Norður-Atlantshafsþingsins haldinn í Barcelona. Fundinn sóttu af hálfu Íslandsdeildarinnar Sólveig Pétursdóttir, formaður, Jón Kristjánsson, varaformaður, Guðmundur Árni Stefánsson og Árni R. Árnason, auk Elínar Flygenring, forstöðumanns alþjóðasviðs skrifstofu Alþingis. Á fundinum var einkum rætt um fyrirhugaða stækkun Atlantshafsbandalagsins, samskipti þess við Rússland og Úkraínu og ástand mála í Kosovo.
Að venju funduðu málefnanefndir þingsins auk stjórnarnefndar og sat Sólveig Pétursdóttir í stjórnarnefnd og stjórnmálanefnd, Jón Kristjánsson í öryggis- og varnarmálanefnd, Guðmundur Árni Stefánsson í félagsmálanefnd og Árni R. Árnason í efnahagsnefnd. Á fundum nefndanna voru ræddar skýrslur til afgreiðslu á næsta ársfundi þingsins, og er nánar greint frá þeim í umfjöllun um árfsundinn síðar, en vorfundurinn er nokkurs konar undirbúningsfundur fyrir hann. Þá ávörpuðu ýmsir góðir gestir fundi nefndanna. Á fundi stjórnarnefndar var m.a. fjallað um áherslur í starfi þingsins, samskiptin við NATO, stöðu þjóðþinga sem ekki eru með fulla aðild að þinginu, 50 ára afmæli NATO í apríl 1999, fjármál þingsins o.fl. Ekki er venjan að vorfundur þingsins sendi frá sér ályktanir, en eftirfarandi aðilar ávörpuðu allsherjarþingfundinn: William V. Roth Jr., þáverandi forseti þingsins; Joan Clos, borgarstjóri Barcelona; Jordi Pujol, héraðsforseti Katalóníu; Federico Trillo-Figueroa, forseti spænska þingsins; Jose-Maria Aznar, forsætisráðherra Spánar; Klaus Naumann hershöfðingi, formaður hermálanefndar NATO; og Zbigniew Brzezinski, fyrrum þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna.
e. Heimsókn undirnefndar um öryggi á norðurslóðum til Eystrasaltsríkjanna.
Dagana 8.–12. júní heimsótti undirnefnd öryggis- og varnarmálanefndar um öryggi á norðurslóðum Eystrasaltsríkin, Eistland, Lettland og Litháen. Árni R. Árnason tók þátt í heimsókninni af hálfu Íslandsdeildar. Í heimsókninni var fundað með stjórnvöldum viðkomandi ríkja og hernaðarmannvirki skoðuð, en öll sækjast ríkin eftir aðild að NATO.
f. Árleg kynnisferð á vegum öryggis- og varnarmálanefndar.
Að vanda efndi öryggis- og varnarmálanefnd til árlegrar kynnisferðar þar sem skoðuð eru hernaðarmannvirki og að þessu sinni var förinni heitið á norðurslóðir, nánar tiltekið til Danmerkur, Grænlands, Íslands, Noregs og Rússlands. Hópurinn hafði tæplega sólarhringsviðdvöl á Íslandi dagana 29.–30. ágúst, heimsótti m.a. varnarliðið í Keflavík og sat kvöldverðarboð Íslandsdeildar á Þingvöllum.
d. Ársfundur.
Dagana 9.–13. nóvember var ársfundur Norður-Atlantshafsþingsins haldinn í Edinborg. Fundinn sóttu af hálfu Íslandsdeildar Sólveig Pétursdóttir, formaður, Jón Kristjánsson, varaformaður, og Guðmundur Árni Stefánsson, auk Gústafs Adolfs Skúlasonar, ritara Íslandsdeildarinnar. Á fundinum bar það m.a. til tíðinda að ákveðið var að breyta nafni þingsins í NATO-þingið, en ekki var ákveðið nákvæmlega hvenær breytingin tekur gildi. Á dagskrá fundarins kenndi ýmissa grasa, og voru stækkun NATO og ástandið á Balkanskaga ofarlega á baugi. Hæst bar hins vegar endurskoðun á öryggisstefnu bandalagsins, en henni á að ljúka fyrir leiðtogafund bandalagsins í apríl 1999. Í því sambandi var við afgreiðslu ályktana einkum tekist á um hvort tekið skyldi fram að NATO ætti ávallt að þurfa skýrt og sértækt umboð frá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna eða ÖSE áður en stofnað væri til hernaðaraðgerða utan svæðis. Var niðurstaðan sú að slík skilyrði yrðu ekki tekin fram í ályktunum þingsins. Þá var Javier Ruperez, formaður utanríkismálanefndar spænska þingsins, kjörinn forseti Norður-Atlantshafsþingsins.
Að venju funduðu málefnanefndir þingsins og sat Sólveig Pétursdóttir fundi stjórnmálanefndar, Jón Kristjánsson fundi öryggis- og varnarmálanefndar og Guðmundur Árni Stefánsson fundi félagsmálanefndar. Á fundum nefndanna voru ræddar skýrslur og afgreiddar ályktanir, auk þess sem ýmsir góðir gestir ávörpuðu fundina. Ályktanir nefndanna voru að venju lagðar fyrir þingfundinn til samþykkis.
Á fundi stjórnmálanefndar voru ræddar skýrslur um samskiptin yfir Atlantshafið og hið nýja NATO, opnar dyr NATO, þróunina í átt til sameiginlegs evrópsks stjórnmála- og öryggissvæðis, samstarf NATO og ÖSE og samstarf Póllands og nágrannaríkja á sviði öryggismála. Þá fjallaði nefndin jafnframt um skýrslu sérstaks starfshóps um málefni Miðjarðarhafssvæðisins. Á meðal þeirra sem ávörpuðu nefndina og svöruðu spurningum nefndarmanna má nefna Alexander Vershbow sendiherra, fastafulltrúa Bandaríkjanna hjá NATO.
Á fundi öryggis- og varnarmálanefndar voru ræddar skýrslur um ný hlutverk og verkefni NATO-herja, hið nýja NATO og öryggi óskiptrar Evrópu, horfur á umbótum í rússneska hernum og um framtíðarverkefni í Bosníu og Hersegóvínu. Á meðal þeirra sem ávörpuðu nefndina og svöruðu spurningum nefndarmanna má nefna Hans Hækkerup, varnarmálaráðherra Danmerkur.
Á fundi félagsmálanefndar voru ræddar skýrslur um hlutverk friðargæslusveita gagnvart borgaralegum hjálparstarfsmönnum, um fjölmiðla og borgarastyrjaldir með hliðsjón af reynslunni í Bosníu og Hersegóvínu og um stöðugleikahorfur í Suðaustur-Evrópu. Á meðal þeirra sem ávörpuðu nefndina og svöruðu spurningum nefndarmanna má nefna dr. Marjorie Mowlam, ráðherra málefna Norður-Írlands.
Á fundi efnahagsnefndar voru ræddar skýrslur um kostnaðinn af stækkun NATO, mið-evrópska vopnamarkaði, stækkun ESB í ljósi nauðsynlegrar frjálsræðisaukningar í landbúnaði og tengslanna við Alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO), vaxandi ógn af skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu og Ameríku og um einkavæðingu í Ungverjalandi, Póllandi og Tékklandi.
Á fundi vísinda- og tækninefndar voru ræddar skýrslur um kjarnorkuvopnadeiluna í Suður-Asíu og framtíð stefnunnar um hömlur við útbreiðslu kjarnorkuvopna, viðskipti með hefðbundin vopn, Kyoto-bókunina um takmarkanir á losun gróðurhúsalofttegunda, byltingu í skipulagi NATO-herja og um jarðsprengjur.
Sólveig Pétursdóttir sat fund stjórnarnefndar. Á fundinum var skipan sérstaks starfshóps um málefni Miðjarðarhafssvæðisins tekin til endurskoðunar. Hópurinn var settur á stofn vorið 1996 og átti upphaflega að vera skipaður fimm þingmönnum úr hverri þriggja nefnda, stjórnmála-, félags- og öryggis- og varnarmálanefnd, eða samtals fimmtán. Síðan þá hafa verið gerðar nokkrar breytingar á samsetningu hópsins og talsverðar deilur verið um skipan hans. Því var ákveðið að hann yrði héðan í frá skipaður af landsdeildum aðildarríkjanna og geta Miðjarðarhafsríkin tilnefnt allt að þrjá fulltrúa í hópinn en önnur aðildarríki allt að tvo.
Samskipti Norður-Atlantshafsþingsins og NATO voru rædd og samstaða náðist um nokkrar hugmyndir um hvernig efla mætti þau samskipti án þess þó að gera Norður-Atlantshafsþingið að formlegum hluta bandalagsins. Má þar nefna að leiðtogafundur bandalagsins á 50 ára afmæli þess í apríl 1999 verði nýttur til þess að efla þessi tengsl, m.a. með óbeinni þátttöku fulltrúa þingsins í fundinum. Þá var samþykkt að fara þess á leit að forseti þingsins og framkvæmdastjóri sitji í framtíðinni fundi utanríkisráðherra NATO. Jafnframt var ákveðið að nafni Norður-Atlantshafsþingsins skyldi breytt og verður það í framtíðinni kallað NATO-þingið. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær nafnbreytingin kemur til framkvæmda.
Staða Norður-Kýpur, eða tyrkneska hlutans, var tekin til umfjöllunar þar sem Tyrkir telja eðlilegt að fulltrúum Norður-Kýpur sé boðið að taka þátt í fundum á vegum þingsins þar sem málefni eyjunnar eru til umræðu. Samþykkt var, gegn áköfum mótmælum Grikkja, að starfshópur um málefni Miðjarðarhafssvæðisins geti boðið fulltrúum Norður-Kýpur á fundi sína, enda sé fulltrúum suðurhlutans jafnframt boðið og málefni eyjarinnar til umræðu á dagskrá fundarins.
Þá var aukaaðild Finnlands að þinginu samþykkt, en Finnlandi, Svíþjóð, Írlandi og Austurríki hefur öllum verið boðin slík aukaaðild. Einungis Finnland hefur þegið boðið. Loks voru fjármál þingsins tekin til umfjöllunar. Fulltrúi endurskoðenda frá NATO kynnti skýrslu þeirra þar sem engar alvarlegar athugasemdir eru gerðar við rekstur þingsins árið 1997. Enn fremur kynnti Sir Geoffrey Johnson Smith, gjaldkeri þingsins, drög að fjárlögum þingsins fyrir árið 1999 þar sem framlög aðildarríkjanna eru óbreytt fjórða árið í röð, og voru þau samþykkt.
Föstudaginn 13. nóvember fór fram allsherjarþingfundur. Fyrst fluttu þar ávörp Betty Boothroyd, forseti neðri deildar breska þingsins; bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn William V. Roth Jr., forseti Norður-Atlantshafsþingsins; Javier Solana, framkvæmdastjóri NATO; Wesley Clark hershöfðingi, yfirmaður sameiginlegs herafla NATO í Evrópu; Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands; og fulltrúar Evrópuþingsins og ÖSE-þingsins. Þeir Javier Solana og Wesley Clark svöruðu jafnframt spurningum fundarmanna.
Þá var kosið í embætti forseta og fjögur embætti varaforseta þar sem einungis einn sitjandi varaforseti, Frakkinn Arthur Paecht, gat gefið kost á sér til endurkjörs. Paecht var endurkjörinn en jafnframt hlutu kosningu til varaforseta bandaríski fulltrúadeildarþingmaðurinn Thomas J. Bliley, Bretinn Frank Cook og Tyrkinn Tahir Köse. Spánverjinn Javier Ruperez var sem fyrr segir kjörinn forseti þingsins.
Að loknu kjöri í embætti forseta og varaforseta voru teknar til afgreiðslu ályktanir nefnda þingsins. Frá stjórnmálanefnd var afgreidd ályktun um endurskoðun á skipan öryggismála í Evrópu og Norður-Ameríku. Frá öryggis- og varnarmálanefnd voru afgreiddar ályktanir um NATO og Eystrasaltsríkin og um nýja öryggismálastefnu NATO. Frá félagsmálanefnd voru afgreiddar ályktanir um hlutverk friðargæslusveita gagnvart borgaralegum hjálparstarfsmönnum og um stöðugleikahorfur í Suðaustur-Evrópu. Frá efnahagsnefnd var afgreidd ályktun um rússnesk efnahagsmál. Frá vísinda- og tækninefnd var afgreidd ályktun um útbreiðslu kjarnorkuvopna. Loks var afgreidd sérstök ályktun um öryggismál í kjarnorkuverum sem lögð var fram af Sir Peter Emery, formanni undirnefndar vísinda- og tækninefndar, um útbreiðslu tækni í hergagnaframleiðslu.
Þá kynnti William V. Roth Jr., fyrrverandi forseti Norður-Atlantshafsþingsins, skýrslu sína um NATO á 21. öldinni, og er þar á ferðinni yfirgripsmikil samantekt um bandalagið, það sem helst er á döfinni á vegum þess og helstu verkefni sem bíða. Í kjölfarið fylgdu almennar umræður um hlutverk NATO á næstu öld. Í ræðu sinni þar sagði Sólveig Pétursdóttir að draga mætti lærdóm af reynslu undanfarinna ára, þar á meðal að ekki væri hægt að ganga að friði í Evrópu sem vísum, þrátt fyrir fall járntjaldsins, og að enn væru til öfl í okkar heimshluta sem virtust ekki hika við að færa hörmungar og þjáningar yfir saklaust fólk til að efla pólitísku stöðu sína. Sólveig sagði helsta lærdóminn þó vera þann að NATO og traust samskipti Evrópu og Norður-Ameríku á sviði öryggis- og varnarmála væru enn grundvallarþættir evrópskra öryggismála. Hún sagði að engan skyldi undra þótt sífellt fleiri ríki og þjóðarbrot beindu augum sínum til NATO í leit að öryggi, enda hefði bandalagið sannað að það væri traustsins vert. Því væri rétt að halda stækkunarferlinu áfram, svo og aðlögun hersveita og herstjórna bandalagsins að breyttum verkefnum utan svæðis. Hins vegar sagði Sólveig mikilvægt að NATO tækist ekki á hendur of umfangsmiklar eða lítt skilgreindar skuldbindingar í þeim efnum. Sameiginlegar varnir aðildarríkjanna ættu áfram að vera meginverkefni bandalagsins.
Sökum langrar mælendaskrár þurfti Guðmundur Árni Stefánsson að leggja ræðu sína fram skriflega. Í henni fjallaði hann um framtíðarsýn við aldahvörf, hvernig tryggja mætti komandi kynslóðum frið og öryggi. Þá fjallaði hann meðal annars um þær hættur sem stafað gætu af misnotkun nútímatækni, sem ásamt falli járntjaldsins stuðluðu að mun flóknari og margbreytilegri heimsmynd en þeirri sem við hefðum lengi átt að venjast. Hann taldi upplýsingabyltinguna auka öll samskipti og skilning, en jafnframt skapa áður óþekkt vandamál. Guðmundur Árni sagði áframhaldandi tilvist NATO ekki vera markmið í sjálfu sér, en hins vegar hefði bandalagið áfram hlutverki að gegna til að tryggja frið og stöðugleika í breyttum heimi. Bandalagið væri fyrirmynd til eftirbreytni um hvernig gagnkvæmt traust væri skynsamlegasta leiðin til að tryggja okkur og komandi kynslóðum öryggi og frið.
Alþingi, 9. febr. 1999.
Sólveig Pétursdóttir,
form.
Jón Kristjánsson,
varaform.
Guðmundur Árni Stefánsson.
Árni R. Árnason.
Fylgiskjal I.
Almennt um Norður-Atlantshafsþingið.
Fimmtán nýjum lýðræðisríkjum úr hópi fyrrverandi kommúnistaríkja hefur verið veitt aukaaðild að þinginu sem þýðir að þau geta nú tekið þátt í störfum og umræðum á þinginu sem beinast í auknum mæli að öryggismálum Evrópu í heild og að efnahagslegum og pólitískum vandamálum ásamt menningar- og umhverfismálum sem tengjast ríkjum Mið- og Austur-Evrópu. Með Rose-Roth áætluninni veitir þingið nú einnig virkan stuðning við þróun þingbundins lýðræðis í þessum ríkjum (sjá nánar í b-lið).
a. Hlutverk og starfssvið þingsins.
Í Atlantshafssáttmálanum 1949 var ekki gert ráð fyrir þinglegri ráðgjafarsamkundu, en með tímanum jókst skilningur manna á því að nauðsyn væri á einhvers konar skipulegu samstarfi þjóðþinga í tengslum við og til stuðnings Atlantshafsbandalaginu (NATO). Þingið hefur því enga formlega stöðu innan bandalagsins en smám saman hefur komist á náin og virk samvinna stofnananna.
Meginhlutverk þingsins er að upplýsa og efla samstöðu þjóðþinga á milli. Þingið gerir þingmönnum aðildarríkja bandalagsins og nú einnig þingmönnum ríkja Mið- og Austur-Evrópu kleift að koma á framfæri áhuga- og áhyggjuefnum ríkja sinna og skiptast á upplýsingum um mismunandi viðhorf í hinum ýmsu löndum og svæðum til mikilvægra sameiginlegra hagsmunamála. Fulltrúar á þingið eru kjörnir af þjóðþingum samkvæmt aðferðum sem þjóðþingin ákveða. Á þinginu endurspeglast því afar breitt svið pólitískra skoðana.
Þingið kemur saman tvisvar á ári til allsherjarfundar, vorfundar sem stendur í þrjá daga og ársfundar er stendur í fimm daga. Fundir eru haldnir í aðildarríkjunum til skiptis í boði þjóðþinganna.
Starfsemi þingsins fer að mestu fram í fimm málefnanefndum, stjórnmálanefnd, varnar- og öryggismálanefnd, efnahagsnefnd, vísinda- og tækninefnd og félagsmálanefnd. Þessar nefndir eru bæði vinnuhópar og meginvettvangur umræðna. Þær rannsaka og fjalla um samtímamál er koma upp á starfssviði þeirra. Óski nefnd þess að gera ítarlega rannsókn á tilteknu máli kýs hún undirnefnd eða kemur á fót vinnuhóp til að afla um það upplýsinga.
Nefndarálit eru oftast sett fram í formi tillagna eða ályktana sem nefndin samþykkir og þingið greiðir síðan atkvæði um á allsherjarfundi. Tillögum er beint til Norður-Atlantshafsráðsins og í þeim er hvatt til tiltekinna aðgerða en ályktunum þingsins er beint til ríkisstjórna aðildarríkja.
Þótt þingið sé óháð Atlantshafsbandalaginu hafa samskipti þingsins við bandalagið, sem fyrr segir, smám saman tekið á sig fastara form og meðal formlegra samskipta má nefna: Formlegt svar við tillögum þingsins af hálfu framkvæmdastjóra bandalagsins fyrir hönd Atlantshafsráðsins, ávarp framkvæmdastjóra bandalagsins á haustfundum þingsins, aukafundi nefnda í Brussel í febrúarmánuði ár hvert til að greiða fyrir samskiptum við starfsmenn og embættismenn bandalagsins og SHAPE (Supreme Headquarters Allied Powers in Europe — æðstu bækistöðvar bandamanna í Evrópu) og loks fundi milli forustumanna í þinginu og Atlantshafsráðsins til gagnkvæmra skoðanaskipta.
b. Samskiptin við ríki Mið- og Austur-Evrópu.
Eins og Atlantshafsbandalagið sjálft hefur þingið endurskoðað hlutverk sitt í ljósi mikilla breytinga á alþjóðavettvangi. Þótt enginn vafi leiki á þörf fyrir bandalagið og hið einstæða samband sem það felur í sér milli þjóða beggja vegna Atlantshafs er þörf breytinga til aðlögunar að nýjum aðstæðum sem skapast hafa. Umfram allt kallar þetta á þróun fyrirkomulags í öryggismálum sem byggist á samvinnu og umræðum fremur en árekstrum.
Norður-Atlantshafsþingið hóf tilraunir til að koma á samskiptum við þjóðir Mið- og Austur-Evrópu árið 1987. Það var þó ekki fyrr en í nóvember 1990, á ársfundi í Lundúnum, að samskiptum þessum var komið í fastara form er þjóðþing Búlgaríu, Tékkóslóvakíu (nú Tékkland og Slóvakía), Ungverjalands, Póllands og fyrrverandi Sovétríkjanna (nú Rússland) fengu aukaaðild að Norður-Atlantshafsþinginu. Síðan þá hafa þjóðþing Albaníu, Hvíta-Rússlands, Eistlands, Lettlands, Litháens, Moldavíu, Rúmeníu, Slóveníu og Úkraínu fengið aukaaðild að þinginu. Mikilvægi aukaaðildarinnar felst í því að hún veitir löggjöfum hinna nýju lýðræðisríkja tækifæri til að taka virkan þátt í störfum þingsins.
Þingið hefur einnig átt frumkvæði að öðrum áætlunum að því er varðar Mið- og Austur-Evrópu. Í samræmi við áætlun, sem sett var fram árið 1991 af tveimur bandarískum þingmönnum og nú fyrrverandi forsetum Norður-Atlantshafsþingsins, Charlie Rose og William V. Roth Jr., beinir Norður-Atlantshafsþingið nú kröftum sínum í ríkum mæli að því að efla þróun þingræðis í Mið- og Austur-Evrópu. Meginþátturinn í Rose-Roth áætluninni er röð námsstefna og ráðstefna þar sem fjallað er um sérstök vandamál Mið- og Austur-Evrópulanda þar sem reynsla og þekking þingfulltrúa kemur að gagni og þingið getur lagt verulega af mörkum vegna sérstöðu sinnar sem fjölhliða umræðuvettvangur. Margar þessara námsstefna fjalla beint eða óbeint um samskipti hers og borgaralegra stjórnvalda, einkum um lýðræðisleg yfirráð yfir herafla. Þeim er ætlað að miðla upplýsingum og sérþekkingu sem nauðsynleg er til þess að tryggja virka þátttöku þjóðþinga í gerð varnaráætlana og ákvörðun fjárveitinga til varnarmála og herafla. Frá upphafi áætlunarinnar og fram til ársloka 1998 höfðu verið haldnar 38 námsstefnur.
Norður-Atlantshafsþingið býður einnig starfsmönnum frá löndum Mið- og Austur-Evrópu til stuttra rannsóknardvala (í þrjá til sex mánuði) á alþjóðaskrifstofunni. Einnig hefur verið komið á laggirnar þjálfunaráætlun til þess að starfslið þjóðþinga Mið- og Austur-Evrópulanda geti öðlast beina reynslu af starfsemi alþjóðlegra stofnana.
Af margvíslegri starfsemi Norður-Atlantshafsþingsins sem að framan er lýst má vera ljóst að þingið hefur bætt nýrri vídd sem beinist að Evrópu allri við hið hefðbundna hlutverk sitt að hlúa að Atlantshafstengslunum.
c. Fulltrúar á Norður-Atlantshafsþinginu og embættismenn þess.
Á Norður-Atlantshafsþinginu eiga sæti 188 þingmenn. Fjöldi fulltrúa frá hverju landi ræðst að mestu af fólksfjölda. Stærsta sendinefndin er sú bandaríska með 36 þingmenn frá öldungadeild og fulltrúadeild bandaríska þingsins. Sendinefndir Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Bretlands skipa 18 þingmenn hverja. Kanada, Spánn og Tyrkland senda 12 fulltrúa hvert land. Frá Belgíu, Grikklandi, Hollandi og Portúgal koma sjö frá hverju landi. Danmörk og Noregur senda fimm fulltrúa hvort land og frá Íslandi og Lúxemborg koma þrír frá hvoru landi. Auk fulltrúanna má hvert þjóðþing tilnefna jafnmarga varamenn sem mega taka þátt í öllum störfum þingsins en hafa ekki atkvæðisrétt. Ráðherrar í ríkisstjórnum mega ekki vera fulltrúar á Norður-Atlantshafsþinginu. Aukaaðilar taka þátt í nefndafundum og allsherjarfundum en hafa ekki atkvæðisrétt.
Embættismenn þingsins eru sex og eru fimm þeirra kjörnir ár hvert af fulltrúum á allsherjarfundi (forseti og fjórir varaforsetar). Sjötti embættismaðurinn er gjaldkerinn en hann er kjörinn annað hvert ár af stjórnarnefndinni. Norður-Atlantshafsþinginu er stjórnað af stjórnarnefnd en í henni eiga sæti formenn allra sendinefndanna, forseti, varaforsetar, gjaldkeri og nefndaformenn.
d. Fjármögnun.
Starfsemi þingsins er fjármögnuð með framlögum þjóðþinga eða ríkisstjórna aðildarríkja. Framlög eru reiknuð á grundvelli þeirra viðmiða sem notuð eru við gerð fjárhagsáætlunar NATO um kostnað annan en herkostnað. Til þess að standa straum af hluta kostnaðar við árlegt þinghald greiðir NATO einnig árlegt framlag til þingsins.
Fylgiskjal II.
| NORÐUR-ATLANTSHAFSÞINGIÐ Kemur saman á allsherjarfundi tvisvar á ári, á vorfund og ársfund |
||
| Sendinefndir aðildarríkja 16 aðildarríki Atlantshafsbandalagsins 188 þingmenn Fjöldi þingsæta er í hlutfalli við fólksfjölda |
Aukaaðilar Frá Albaníu, Búlgaríu, Eistlandi, Hvíta-Rússlandi, Lettlandi, Litháen, Moldavíu, Póllandi, Rúmeníu, Rússlandi, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklandi, Ungverjalandi og Úkraínu Hafa ekki atkvæðisrétt |
|
| Framkvæmdastjórn Kosin árlega Forseti, fjórir varaforsetar, gjaldkeri, framkvæmdastjóri |
Stjórnarnefnd Formenn sendinefnda Formenn nefnda Hvert land hefur eitt atkvæði Kemur saman þrisvar á ári |
|
| Nefndarfundir Fimm nefndir: Félagsmálanefnd Varnar- og öryggismálanefnd Efnahagsnefnd Stjórnmálanefnd Vísinda- og tækninefnd Taka saman, ræða og greiða atkvæði um skýrslur og ályktanir Mynda undirnefndir til að rannsaka afmörkuð mál og afla upplýsinga |
Allsherjarfundir Greiða atkvæði um tillögur nefndanna fimm og fjárhagsáætlun Ræða afmörkuð málefni sem ofarlega eru á baugi Hlýða á ávörp gesta Þátttaka auka- og áheyrnaraðila |
Önnur starfsemi Árleg kynnisferð til að skoða hernaðarmannvirki og búnað Námsstefnur og hringborðsumræður innan Rose-Roth áætlunarinnar |
Fylgiskjal III.
UNDIRNEFNDIR
Stjórnmálanefnd.
(42 fulltrúar.*)
Undirnefnd um stækkun NATO og nýju lýðræðisríkin.
Undirnefnd um evrópskar stofnanir og stofnanir sem lönd beggja vegna Atlantshafs eiga aðild að.
Varnar- og öryggismálanefnd.
(42 fulltrúar.*)
Undirnefnd um varnar- og öryggissamstarf Evrópu og Norður-Ameríku.
Undirnefnd um öryggismál á norðurslóðum.
Efnahagsnefnd.
(35 fulltrúar.*)
Undirnefnd um efnahagssamstarf og samhæfingu austurs og vesturs.
Félagsmálanefnd.
(31 fulltrúi.*)
Undirnefnd um samvinnu og öryggi almennra borgara.
Vísinda- og tækninefnd.
(31 fulltrúi.*)
Undirnefnd um útbreiðslu hernaðartækni.
* Fulltrúum fjölgar um einn eða tvo eftir því sem Íslendingar og Lúxemborgarar, með þrjá fulltrúa hvor þjóð, skipa fulltrúum sínum í einhverjar þrjár af þessum fimm nefndum.