Ferill 481. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 786 — 481. mál.
Skýrsla
samstarfsráðherra Norðurlanda um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 1998.
(Lögð fyrir Alþingi á 123. löggjafarþingi 1998–1999.)
I. SKÝRSLA SAMSTARFSRÁÐHERRA
UM STÖRF NORRÆNU RÁÐHERRANEFNDARINNAR 1998
1. Inngangur.
Í fyrsta hluta (I.) skýrslu þessarar er lýst störfum Norrænu ráðherranefndarinnar á öllum fagsviðunum árið 1998. Auk þess er gerð grein fyrir samstarfi forsætisráðherra og utanríkisráðherra landanna þó þeir séu ekki hluti af Norrænu ráðherranefndinni. Sú starfsáætlun sem samstarfsráðherrar Norðurlanda hafa ákveðið ásamt meginþáttum Norrænu fjárlaganna fyrir 1999 er lögð fram sem II. hluti skýrslu þessarar. Á árinu 1998 fór fram víðtækur undirbúningur fyrir formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 1999 í samstarfi allra ráðuneytanna. Það starf skilaði sér í þeirri heildaráætlun sem lögð er fram sem III. hluti þessarar skýrslu. Jafnframt var ákveðið að á formennskuárinu yrði lögð megináhersla á lífskjör, náttúruvernd og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda á Vestur-Norðurlöndum og öðrum norðlægum slóðum og er markmiðunum lýst í sérstakri áætlun, nefndri „Fólk og haf í norðri“ sem lögð er fram sem IV. hluti skýrslu þessarar.
Skýrslan gefur því glögga mynd bæði af samstarfi norrænu ríkisstjórnanna árið 1998 og af fyrirhuguðu starfi Norrænu ráðherranefndarinnar og íslenskum áherslum á formennskuárinu 1999.
2. Samstarf forsætisráðherra Norðurlanda.
Forsætisráðherrar Norðurlanda marka pólitíska stefnu fyrir samstarf ríkisstjórna Norðurlanda. Auk þess hafa þeir reglubundið samráð um norræn og alþjóðleg stefnumál og hefur gildi þess þáttar samstarfsins aukist til muna undanfarin ár.
Forsætisráðherrarnir áttu samkvæmt venju tvo formlega fundi á árinu 1998 og var annar þeirra haldinn 27. júní í Málmey í Svíþjóð og hinn samtímis þingi Norðurlandaráðs þann 9. nóvember í Ósló. Við það tækifæri áttu þeir fundi með forsætisnefnd Norðurlandaráðs, oddvitum stjórna Færeyja, Grænlands og Álandseyja, forsætisráðherrum Eystrasaltsríkjanna og fjármálaráðherrum Norðurlanda.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra flutti stefnuræðuna á þingi Norðurlandaráðs í Ósló þar sem hann gerði grein fyrir áherslum og horfum í norrænu samstarfi 1999 og þeirri stefnu sem Ísland hyggst fylgja í samstarfinu (sjá III. og IV. hluta skýrslu þessarar) en við áramót 1998/1999 tóku Íslendingar við forustuhlutverki í samstarfinu, eins og getið er í formála, úr hendi Svía.
Á fundinum í Málmey var fjallað um árangur leiðtogafundar ESB í Cardiff og talið að þar hefðu verið gefin fyrirheit um að markmiðum Amsterdam-samningsins yrði fylgt eftir með aðgerðum á sviði umhverfis- og atvinnumála. Einnig var fjallað um aukin áhrif Norðurlanda á stefnu ESB, m.a. á sviði velferðarmála. Fjölgun aðildarríkja ESB var til umræðu svo og afstaðan til Tyrklands. Seta þeirra norrænu ríkja sem ekki eiga aðild að ESB á Evrópuráðstefnunni var rædd og því lýst yfir að norrænu aðildarríkin styddu óskir Íslands og Noregs þar að lútandi.
Viðræður um Schengen-samninginn voru ræddar á báðum fundum ráðherranna. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, benti í því sambandi á að því aðeins yrði samningurinn aðgengilegur fyrir Íslendinga og Norðmenn að þeir fengju möguleika til áhrifa á pólitískar ákvarðanir sem teknar yrðu á grundvelli samningsins. Áhersla var lögð á mikilvægi þess stuðnings sem norrænu ESB-aðildarríkin hefðu sýnt málinu við meðferð þess hjá ESB.
Forusta Finnlands, Svíþjóðar og Danmerkur í ESB á tímabilinu frá 1999 til 2002 var rædd en varað við of mikilli bjartsýni hvað varðar möguleika norrænu ríkjanna sem tækju við forustu, til áhrifa á ákvarðanatöku. Forustuhlutverkið fælist aðallega í því að koma áleiðis málum sem þegar væru á dagskrá á borð við dagskrá 2000 og öðru sem tengist stækkun sambandsins. Því hefði Finnland lagt ríka áherslu á að koma Norðlægu víddinni á dagskrá áður en forustutímabilið hæfist.
Mikilvægi norræns samráðs um alþjóðleg efnahagsmál og um Evrópska myntbandalagið var rætt á fundinum í Málmey. Með hliðsjón af þeim áhrifum sem fyrirsjáanlegt væri að Evrópumyntin hefði á efnahagslíf allra norrænu ríkjanna ákváðu ráðherranir að bjóða fjármálaráðherrum landanna til fundar við sig 8. nóvember í Ósló. Sá fundur þótti gagnlegur og var því ákveðið að framhald yrði á slíku samráði.
Norrænt samstarf á grannsvæðum Norðurlanda var til umræðu á fundinum í Málmey, bæði leiðtogafundurinn í Ríga og Barents- og Norðurskautssamstarfið.
Á Óslóarfundinum var til umræðu forusta Íslands 1999 í norrænu samstarfi ásamt skýrslu sem gefin var af hálfu Svía í lok forustuárs þeirra í samstarfinu og leiðtogafundur ESB í Portschack.
Ráðherrarnir samþykktu tvær yfirlýsingar á Óslóarfundinum, aðra um sjálfbær Norðurlönd og hina í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá samþykkt mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna og hafa samstarfsráðherrar Norðurlanda þegar lagt drög að því, hvernig yfirlýsingunni um sjálfbær Norðurlönd verði fylgt eftir.
Á fundi ráðherranna með leiðtogum sjálfsstjórnarsvæðanna var m.a. ákveðið að leita eftir áheyrnaraðild fyrir Norrænu ráðherranefndina hjá Norðurskautsráðinu. Þar var og kynnt tillaga Færeyinga um norrænt samstarf um rannsóknir á samspili haf- og loftstrauma, sem forsætisráðherrarnir lýstu stuðningi við að yrði skoðuð með það að markmiði að fjármagna verkefnið af norrænu fjárlögunum, að uppfylltum nauðsynlegum skilyrðum.
Á fundi forsætisráðherranna með forsætisnefnd Norðurlandaráðs voru til umræðu málefni Sameinuðu þjóðanna, Evrópumál, svæðisbundið samstarf í Evrópu ásamt nauðsyn þess að gera norrænt samstarf markvissara.
Á fundinum með forsætisráðherrum Eystrasaltsríkjanna (3+5) voru rædd fjölmörg mál tengd fyrirhugaðri aðild þeirra að ESB. Einnig var hið alvarlega ástand í Rússlandi rætt ásamt aðgerðum í kjölfar leiðtogafundarins í Ríga.
Vegna þess að ekki gafst nægur tími til umræðna um þau mál, sem voru á dagskrá á fundinum með forsætisráðherrum Eystrasaltsríkjanna, var ákveðið í lok fundarins að halda þessum umræðum áfram við fyrsta tækifæri. Því hefur verið boðað til nýs fundar 8. febrúar nk. samtímis fundi Norðurlandaráðs og Eystrasaltsráðsins í Helsinki. Auk þess fundar eru fyrirhugaðir tveir fundir forsætisráðherranna á þessu ári, sá fyrri á Íslandi í júní og sá síðari í nóvember samtímis 51. þingi Norðurlandaráðs.
3. Störf samstarfsráðherra Norðurlanda.
Samstarfsráðherrunum ber samkvæmt Helsingforssamningnum að stuðla að auknu samstarfi og samræmingu þess milli hinna ýmsu fagsviða. Auk þess ber þeim að taka ákvarðanir um skipulag sem nær til margra samstarfssviða. Þeir bera ábyrgð á upplýsingamiðlun ráðherranefndarinnar og ákveða norrænu fjárlögin. Þeir hafa samráð við fagráðherranefndirnar eftir því sem við á. Þeir bera og ábyrgð á að áherslur samstarfsins og skipting fjárveitinga séu í samræmi við þau pólitísku markmið sem ákveðin eru fyrir samstarfið hverju sinni.
Á árinu áttu ráðherrarnir fundi með samstarfsráðherrum Eystrasaltsríkjanna, með forsætisnefnd Norðurlandaráðs og með sendiherrum norrænu ríkjanna í Brussel, og formaður samstarfsráðherranna átti í upphafi ársins fund með forseta Norðurlandaráðs.
Á fundinum með samstarfsráðherrum Eystrasaltsríkjanna var formennskuáætlun Svía kynnt sem og áherslur í grannsvæðaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmið hennar er að stuðla að friði og öryggi á svæðinu, að aðstoða ríkin við þróunina í átt að lýðræði og markaðsbúskap og að stuðla að notkun umhverfisvænnar tækni og framleiðslu. Lýst var áhuga á að auka samstarfið við Rússland. Af hálfu Eystrasaltsríkjanna var lögð áhersla á mikilvægi stuðnings Norðurlanda við undirbúning ríkjanna fyrir aðild að ESB. Einnig lýstu ríkin yfir ánægju með þau samnorrænu námsdvalar- og styrkjakerfi sem gera aðilum frá Eystrasaltríkjunum kleift að dvelja í einu Norðurlandanna til náms og starfa. Rétt er að geta þess að nú hefur verið ákveðið að endurskoða það kerfi sem Norræna ráðherranefndin starfar eftir.
Á fundi formanns samstarfsráðherranna með forseta Norðurlandaráðs og fundi samstarfsráðherranna með forsætisnefnd Norðurlandaráðs voru til umræðu norrænu fjárlögin, undirbúingur fyrir Norðurlandaráðsþingið og helstu áherslur samstarfsins.
Á fundi ráðherranna með sendiherrum norrænu ríkjanna í Brussel voru til umræðu málefni sem efst voru á baugi í Evrópusambandinu, þar á meðal Schengen-viðræðurnar og hvernig efla mætti samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við sendiráð ríkjanna í Brussel.
Önnur helstu mál sem samstarfsráðherrarnir fjölluðu um á starfsárinu 1998 fara hér á eftir.
Upphæð fjárlaga ársins 1999 var ákveðin 716,9 millj. d.kr. Skipting fjárveitinga milli verkefna var endanlega ákveðin í samræmi við tillögu frá Norðurlandaráði á þingi þess í Ósló í nóvember síðastliðnum.
Evrópumálin voru að venju á dagskrá á öllum fundum ráðherranna og bar þar hæst komandi formennsku Finnlands í Evrópusambandinu ásamt stækkun sambandsins í austur. Finnar kynntu hugmyndir sínar um „Norðlægu víddina“ en markmið hennar er að beina áherslu ESB að lausn þess margþætta vanda sem við er að etja á norðlægum svæðum í Rússlandi og á Eystrasaltssvæðinu og að auka hlut svæða Evrópu í Evrópusambandinu. Stöðuskýrsla á sviði Evrópumála 1997–1998 var kynnt og samþykkt í júní og hún síðan send Norðurlandaráði.
Yfirlýsing forsætisráðherra Norðurlanda um sjálfbær Norðurlönd var rædd og í byrjun árs 1999 tekin ákvörðun um hvernig ráðherranefndin skyldi fylgja henni eftir, en hún tekur m.a. til samstarfs á sviði samgangna, orkumála, landbúnaðar og sjávarútvegs. Umhverfisráðherrarnir munu samræma það starf sem í hönd fer og sem leiða á til þverfaglegrar samnorrænnar stefnu um sjálfbæra þróun á Norðurlöndum og grannsvæðum þeirra. Stefnt er að framlagningu hennar árið 2000.
Í júní samþykktu ráðherrarnir samnorræna stefnu um rannsóknir og vísindi. Markmiðið með henni er að styrkja norræna vísindasamfélagið og stuðla að uppbyggingu þekkingar á Norðurlöndum ásamt því að tryggja norrænt notagildi og yfirsýn yfir samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar að rannsóknum og vísindum. Með þessari stefnu á að tryggja að áherslur á sviði rannsókna og vísinda séu í samræmi við almennar pólitískar áherslur í samstarfinu.
Á árinu var norræni þjónustusíminn „Halló Norðurlönd“ opnaður og Norræna félaginu í Svíþjóð var falin umsjón með þjónustu þessari sem er rekin í tilraunaskyni. Markmiðið er að norrænir aðilar sem ferðast eða flytja milli norrænu landanna og hafa rekist á hindranir í kerfinu geti leitað þangað um aðstoð.
Á árinu tóku samstarfsráðherrarnir ákvörðun um að skipa vinnuhóp sem skyldi fylgja eftir starfi þeirrar nefndar sem Ilkka Suominen leiddi árið 1994 og sem hafði það að markmiði að auka verkaskiptingu milli stofnana á Norðurlöndum. Hópnum var sérstaklega ætlað að kanna hvernig norrænu löndin geti komið á, aukið eða dýpkað enn frekar samstarf sín á milli, löndunum til hagsbóta, með markmiðið um norrænt notagildi að leiðarljósi.
Ráðherranefndartillaga um samstarf við frjáls félagasamtök á Norðurlöndum var samþykkt á árinu. Markmið tillögunnar er að auka vitneskju um hlutverk frjálsra félagasamtaka í norrænu samfélagi, að efla norrænt samstarf frjálsra félagasamtaka og samstarf þeirra við félagasamtök í Eystrasaltsríkjunum, efla netkerfi og bæta tengsl þeirra við Norrænu ráðherranefndina.
Ýmsar ákvarðanir voru teknar á árinu sem snúa að aukinni skilvirkni í störfum ráðherranefndarskrifstofunnar og bættri verkaskiptingu milli stofnana þeirra sem heyra undir ráðherranefndina, stjórna þessara stofnana og Norrænu ráðherranefndarinnar.
Ákveðið var að hefja undirbúning sameiningar upplýsingadeilda Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs, með það að markmiði að því starfi verði lokið á fyrsta misseri árins 1999.
Viðmiðunarreglur um kynjaskiptingu í norrænu samstarfi voru samþykktar á árinu. Samkvæmt þeim á hlutfall beggja kynja að vera minnst 40% í embættismannanefndum, stjórnum samnorrænna stofnana, nefndum og vinnuhópum. Samstarfsráðherra kynnti í kjölfarið þessar reglur á fundi í ríkisstjórn Íslands.
Samstarfsráðherrarnir veittu á árinu styrki af óráðstöfuðu fé ráðherranefndarinnar til ýmissa verkefna. Meðal annars var veittur styrkur til samnorrænna aðgerða í tilefni af Ári hafsins og til þingmannaráðs Sama. Fjárveitingar af óráðstöfuðu fé eru bornar undir Norðurlandaráð áður en endanleg ákvörðun er tekin.
Í upphafi árs 1999 kynnti Halldór Ásgrímsson, samstarfsráðherra, formennskuáætlun Íslands og hlaut hún jákvæðar undirtektir allra ráðherranna, sérstaklega sá þáttur er snýr að því að auka hlut Færeyja, Grænlands og norðlægra svæða almennt í samstarfinu. Um mitt ár 1999 verður skýrsla lögð fyrir samstarfsráðherrana um stöðu mála hvað varðar framkvæmd áætlunarinnar en undirbúingur nokkurra mála er þegar hafinn og má þar nefna sérstaklega þverfaglegar áherslur Íslands „Fólk og haf í norðri“ og árþúsundamótin.
4. Samstarf utanríkisráðherra Norðurlanda
og norrænt samstarf á alþjóðavettvangi.
Utanríkisráðherrar Norðurlanda eru ekki hluti af Norrænu ráðherranefndinni en hafa samt sem áður með sér öflugt samráð. Ráðherrarnir halda nú tvo reglulega samráðsfundi á hverju ári. Auk þess hittast utanríkisráðherrarnir alloft óformlega á hverju ári vegna annarra utanríkisráðherrafunda, t.d. í Norðurlandaráði, Eystrasaltsráðinu, Evrópuráðinu, OECD, Barentsráðinu og á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Fundir norrænu utanríkisráðherranna á árinu voru haldnir í Svíþjóð, sá fyrri í Thoresta Herrgård og sá síðari í Västerås, en Svíþjóð fór með formennsku Norðurlanda árið 1998. Á fyrri fundinum var rætt um hefðbundið Norðurlandasamstarf, grannsvæðasamstarf, málefni Evrópusambandsins og Schengen-samstarfið. Nýskipan öryggismála og ástand mannréttindamála var einnig rætt ítarlega.
Utanríkisráðherrum Eystrasaltsríkjanna þriggja var boðið að halda fund með norrænu utanríkisráðherrunum í Västerås en þar var stækkun Evrópusambandsins rædd, öryggismál í Evrópu ásamt svæðisbundinni samvinnu við Eystrasaltið. Á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna var fjallað um mikilvægi Norðurlandasamvinnunnar í evrópsku samhengi auk málefna Eystrasaltsráðsins, Barentsráðsins og Norðurskautsráðsins. Í umræðum um öryggismál var lögð áhersla á sjálfsákvörðunarrétt ríkja og áframhaldandi þróun friðarsamstarfs Atlantshafsbandalagsins. Aleksandr Avdeyev, varautanríkisráðherra Rússlands, var gestur á sérstökum fundi og var þar aðallega fjallað um hið alvarlega ástand í Kosovo, en einnig um málefni ÖSE, svæðisbundna samvinnu og umbótastarf innan Sameinuðu þjóðanna.
Skýrsla um norrænt samstarf í utanríkismálum — reynsla og niðurstöður frá því á vormisseri 1995 — var samþykkt á fundinum í Västerås. Skýrslan er yfirlit yfir norrænt samstarf á ýmsum sviðum utanríkismála í því skyni að bregða ljósi á þá reynslu sem fengist hefur frá því að Finnar og Svíar gengu í Evrópusambandið (ESB).
Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna hefur náið samstarf Norðurlanda haldið áfram eftir inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í ESB. Þótt löndin komi sjaldnar fram sem ein heild þar sem ESB reynir eftir fremsta megni að tala fyrir munn allra aðildarríkjanna, leitast ESB-ríkin við að veita Íslandi og Noregi færi á því að móta sömu afstöðu og unnið er að meðal aðildarríkjanna. Í framboðsmálum er fylgt norrænu skiptireglunni og sameiginlegur stuðningur veittur norrænum frambjóðendum. Hvað umbætur á skipulagi Sameinuðu þjóðanna snertir hafa tillögur Norðurlanda notið mikils stuðnings. Innganga Finnlands og Svíþjóðar í ESB hafa aðeins í litlum mæli haft áhrif á norrænt samstarf á sviði þróunarmála.
Langvarandi og sterk hefð er fyrir norrænu samstarfi í mannréttindamálum. Minna kann að bera á formlegu samstarfi í mannréttindanefndinni en áður en óformlega samstarfið heldur áfram óbreytt. Samstarfið hefur leitt til meiri áhrifa á ESB-samstarfið í samræmi við sérstöðu Norðurlanda á þessu sviði.
EES-samningurinn felur í sér samræmingu á lögum og reglugerðum Norðurlanda á fjölda sviða og tengir þannig löndin enn nánar saman. Öll löndin hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta innan innri markaðarins. Þar með hafa opnast möguleikar á að nota reglubundið norrænt samstarf sem vettvang til að fara saman yfir mikilvæg mál innan Evrópustefnunnar þrátt fyrir að tengslin við ESB séu mismunandi. Slíkt kerfisbundið samráð hefur leitt til þess að norræn afstaða og norrænt gildismat, sem Ísland og Noregur koma einnig að, hefur náð miklum áhrifum innan löggjafarstarfs ESB. Verðandi stækkun ESB felur einnig í sér stækkun EES og því er náið norrænt samstarf nauðsynlegt varðandi stækkunarferlið.
Hefð er fyrir því að samstarf Norðurlanda nái til sem flestra sviða nema utanríkis- og öryggismála. Jákvæð þróun undanfarinna ára í Evrópu hefur hins vegar skapað skilyrði fyrir nánara samráði í öryggismálum milli Norðurlanda. Norðurlönd vinna áfram saman að því markmiði að geta, þegar þörf krefur, sent sameiginlegar friðarsveitir á vettvang. Löndin hafa komið á víðtæku samstarfi til að efla öryggi Eystrasaltsríkjanna. Norrænt samstarf í varnarmálum er líklega meira en nokkru sinni fyrr.
Náið, óformlegt norrænt samstarf heldur áfram innan margra alþjóðastofnana, t.d. ÖSE, Evrópuráðsins, Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og OECD. Norrænt samstarf verður æ samtvinnaðra samvinnu grannsvæðanna. Sú samvinna á sér stað m.a. innan Eystrasaltsráðsins, Barentsráðsins og Norðurskautsráðsins.
5. Menningarmál.
Af öðrum samstarfsstofnunum á menningarsviðinu er m.a. að nefna Norræna húsið í Reykjavík, Norðurlandahúsið í Færeyjum, Norræna stofnunin á Álandseyjum og Norræna stofnunin á Grænlandi. Þessar stofnanir gegna alhliða menningarhlutverki þótt umsvif þeirra og verksvið séu nokkuð mismunandi. Norræna húsið í Reykjavík minntist 30 ára afmælis síns í ágúst 1998. Veittar voru 240 þús. d.kr. af ráðstöfunarfé ráðherranefndar menningarmála til endurnýjunar á húsgögnum í kaffistofu hússins en þau húsgögn voru hönnuð af Alvar Aalto eins og húsið sjálft. Fé hefur einnig verið veitt til viðhaldsframkvæmda (sjá nánar um Norræna húsið, kafla 25.1.).
Á myndlistarsviði starfa tvær stofnanir, Norræn stofnun um samtímalist í Helsingfors, sem árið 1997 leysti af hólmi Norrænu listamiðstöðina er þar var áður, og Norræna listamannamiðstöðin Dalsåsen á Fjölum í Noregi. Á báðum stöðum eru starfræktar gistivinnustofur fyrir myndlistarmenn og hafa ýmsir íslenskir listamenn notið þeirrar aðstöðu.
Á sviði kvikmynda og fjölmiðlunar eru þrjár samstarfsstofnanir: Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn, Norræna blaðamannamiðstöðin í Árósum og Norræn upplýsingamiðstöð um fjölmiðlarannsóknir (NORDICOM). Gildistími núverandi samnings um starfsemi Norræna kvikmynda- og sjóvarpssjóðsins rennur út í árslok 1999. Ráðherranefnd menningarmála hefur ákveðið að stefna beri að framhaldi á starfi sjóðsins, en að honum standa ásamt ráðherranefndinni helstu kvikmyndastofnanir og sjóvarpsstöðvar á Norðurlöndum. Sjóðurinn hefur reynst íslenskri kvikmyndagerð styrk stoð.
Af sérstökum styrkjakerfum sem lúta formlegum reglum, þótt ekki séu í sjóðsformi, er m.a. að nefna styrki til þýðinga á grannlandabókmenntum. Til þeirra renna um 2,4 millj. d.kr. árlega. Þessir styrkir hafa reynst mikilvægir til að stuðla að útgáfu norrænna bóka í þýðingum hér á landi og íslenskra bóka í þýðingum annars staðar á Norðurlöndum.
Sleipnir er kerfi ferðastyrkja fyrir unga listamenn í öllum listgreinum, ætlað til að auðvelda þeim að kynnast listastarfsemi á Norðurlöndum utan heimalandsins og stuðla að því að líta megi á Norðurlönd öll sem eitt vinnusvæði listamanna. Ákveðið var á árinu að láta þetta styrkjakerfi einnig ná til ferða ungra listamanna og gagnrýnenda til og frá grannsvæðum Norðurlanda í Eystrasaltslöndunum og norðvesturhluta Rússlands. Verður sá háttur hafður til reynslu um eins árs skeið og 1 millj. d.kr. veitt í því skyni til viðbótar við hina reglulegu fjárveitingu til Sleipnisstyrkjanna, sem er rúmlega 2,5 millj. d.kr.
Styrkir til norræns íþróttasamstarfs eru veittir af árlegu framlagi sem numið hefur ríflega 1 millj. d.kr. Tilgangur þeirra er að efla samvinnu á íþróttasviði milli Grænlendinga, Íslendinga og Færeyinga og íþróttasamskipti vestnorrænu þjóðanna við aðrar Norðurlandaþjóðir. Úthlutun styrkjanna er í höndum samstarfsnefndar norrænu íþróttasambandanna. Lögð er áhersla á stuðning við hópa sem standa höllum fæti í íþróttastarfinu.
Á listasviðinu starfa fjórar fagnefndir sem eru ráðherranefnd menningarmála til ráðuneytis en þær hafa jafnframt umsjón með ýmsum samstarfsverkefnum hver í sinni grein. Einnig gegna þær umsagnarhlutverki gagnvart Norræna menningarsjóðnum. Starf fagnefndanna fer nú fram á grundvelli árangursstjórnarsamninga sem ráðherranefndin gerir við þær eins og aðrar samstarfsstofnanir. Norræna bókmennta- og bókasafnanefndin annast m.a. úthlutun þýðingarstyrkjanna og fjárstuðnings til samstarfs á sviði almenningsbókasafna, þar á meðal endurmenntunarnámskeiða. Meðal sérstakra verkefna Norrænu myndlistar- og listiðnaðarnefndarinnar er að annast stjórn Norrænu listamannamiðstöðvarinnar Dalsåsen, en nefndin veitir einnig fjárstuðning til einstakra samstarfsverkefna. Norræna leiklistar- og dansnefndin úthlutar styrkjum til gestaleikja og stendur fyrir endurmenntunarnámskeiðum fyrir leikhúsfólk. Norræna tónlistarnefndin veitir m.a. styrki til samstarfsverkefna á tónlistarsviði, þar á meðal til norrænu æskulýðshljómsveitarinnar, og annast úthlutun tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs.
Stjórnarnefnd um menningar- og fjölmiðlasamstarf fjallar um samvinnu á sviði kvikmynda og fjölmiðlunar og er ráðherranefnd menningarmála til ráðuneytis í þeim efnum. Nefndin stýrir m.a. samningagerð um Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn, annast úthlutun styrkja til samstarfsverkefna á sviði margmiðlunar, veitir fé til námskeiða á kvikmyndasviði og er mikilsverður upplýsinga- og samráðsvettvangur um þróun í fjölmiðlamálum.
Stjórnarnefnd um norræn menningarverkefni erlendis hefur umsjón með samstarfsverkefnum sem lúta að kynningu norrænnar menningar utan Norðurlanda á grundvelli starfsáætlunar sem gerð er til nokkurra ára í senn. Árið 1998 var m.a. norræn menningarhátíð í Póllandi sem tók til bókmennta, tónlistar, byggingarlistar og kvikmynda auk listasmiðju fyrir börn og unglinga. Þátttaka var frá Íslandi á öllum þessum sviðum. Íslenskir listamenn áttu einnig verk á norrænni listsýningu í Nútímalistasafninu í París snemma á árinu. Norræn menningarkynning í Suður-Afríku hófst á árinu og heldur áfram 1999. Lögð er áhersla á að stofna til gagnkvæmra menningartengsla og samvinnu milli norrænna og suður-afrískra listamanna. Verkaskipting er milli Norðurlandaþjóðanna um skipulagningu einstakra þátta kynningarinnar og er umsjón bókmenntaþáttarins í höndum Íslendinga. Í þeim þætti beinist starfið einkum að samvinnuverkefni norrænna og suður-afrískra höfunda og myndskreyta um gerð barnabókar og kom hópur höfunda hingað til lands vorið 1998 í því skyni. Unnið er að undirbúningi viðamikilla sýninga í Norður-Ameríku árið 2000 um norræn samfélög á víkingaöld og vesturfarir norrænna manna.
Stjórnarnefnd norræns samstarfs um barna- og æskulýðsmenningu hefur umsjón með framkvæmd starfsáætlunar sem gerð var fyrir tímabilið 1996–2000 undir yfirskriftinni „Norræn framtíð“ („Ett kommande NORDEN“) og ætlað er að efla samvinnu um menningarstarf með þátttöku og í þágu barna og ungmenna. Nefndin styrkti m.a. æskulýðsráðstefnu sem haldin var í Reykjavík í júlí 1998 á vegum Vestnorræna ráðsins.
Norræna æskulýðsnefndin veitir rekstrarstyrki til samnorrænna æskulýðssamtaka og styður jafnframt einstök samstarfsverkefni á sviði æskulýðsmála. Árið 2000 er fyrirhugað fjölmennt æskulýðsmót á Íslandi á vegum norrænna ungmennasamtaka sem Ungmennafélag Íslands á aðild að og er skipulagning í höndum UMFÍ. Á mótinu á að leggja áherslu á menningar- og umhverfismál. Ráðherranefnd menningarmála hefur veitt 500 þús. d.kr. framlag til undirbúnings mótsins.
Norræna safnanefndin starfar með tímabundnu umboði að því að efla samvinnu milli safna á Norðurlöndum, bæði á sviði menningarsögu og lista. Að frumkvæði nefndarinnar var sérstökum starfshópi falið að undirbúa tillögur um hvernig söfnin á Norðurlöndum gætu í tilefni árþúsundamótanna stuðlað að því að beina athygli barna og ungmenna að norrænni fortíð og framtíð. Á grundvelli tillagna starfshópsins hefur verið samþykkt að styrkja sex verkefni í þessu skyni, þar á meðal nokkur með þátttöku íslenskra safna.
Árið 1998 höfðu Svíar á hendi formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Í stefnulýsingu þeirra fyrir formennskuárið var að því er menningarsviðið varðar m.a. lögð áhersla á að fylgja fram áætlunum um samstarf sem beinist að börnum og ungmennum, vinna að útbreiðslu norrænna bókmennta, styrkja samstarfið á sviði lista og menningararfleifðar, samvinnu í sjónvarpsmálum, menningartengsl við grannsvæði Norðurlanda og aðgerðir sem fallnar væru til að hamla gegn útlendingaandúð og styrkja fjölmenningarsamfélagið. Síðastnefnda áhersluatriðinu var á árinu m.a. fylgt eftir með fjárstuðningi við ýmis verkefni á grundvelli sérstakrar framkvæmdaáætlunar.
Á fundi ráðherranefndar menningarmála í júní 1998 var samþykkt greinargerð um stefnumið í norrænu menningarsamstarfi við árþúsundamót. Sú stefnumörkun sem í greinargerðinni felst lýtur bæði að inntaki og starfsþáttum í norrænni menningarsamvinnu á vegum ríkisstjórnanna. Þar er því lýst, að meginmarkmið samvinnunnar sé að þróa og styrkja sameiginleg gildi norrænna þjóða og dregnir eru fram eftirfarandi áhersluþættir:
– að efla norræna samkennd meðal barna og ungmenna, jafnframt því að áhersla sé lögð á alþjóðlegan skilning,
– að efla vitund Norðurlandabúa um sameiginlega menningu,
– að stuðla að gagnkvæmum áhuga, þekkingu og virðingu milli fólks af mismunandi þjóðerni í fjölmenningarsamfélögum Norðurlanda,
– að styrkja menningarsamstarf milli ríkjanna fimm og sjálfstjórnarsvæðanna þriggja á Norðurlöndum,
– að efla þátttöku almennings í norrænu menningarsamstarfi,
– að stuðla að samvinnu við frjáls félagssamtök á menningarsviðinu og milli þeirra innbyrðis,
– að efla samstarf um þróunar- og nýbreytniverkefni milli fagmanna, stofnana, samtaka og stjórnvalda á menningarsviðinu,
– að ýta úr vör og styðja norræna samvinnu um verkefni sem eru vel grundvölluð faglega og innan einstakra landa og eiga möguleika á að þróast áfram á eigin spýtur að loknu byrjunarskeiði,
– að koma á framfæri, innan Norðurlanda og utan, árangri af norrænni starfsemi atvinnumanna á menningarsviðinu,
– að efla menningarstarfsemi sem fallin er til að vekja víðtækan áhuga um Norðurlönd á alþjóðavettvangi.
Að því er starfshætti varðar er í greinargerðinni m.a. lögð áhersla á að norræn menningarsamvinna sé skilvirk og árangursmiðuð og að skipulag hennar stuðli að því. Mikilvægt er talið að samstarfið eigi sér á hverjum tíma traustar rætur í stjórnmálalegum ákvörðunum og styðjist við framkvæmdaáætlanir sem undirbúnar séu í samráði við faglega fulltrúa menningargeirans. Lögð er áhersla á sveigjanleika í ráðstöfun fjármuna til að stuðla að þessum markmiðum.
Greinargerðin var lögð fyrir Norðurlandaráð í formi ráðherranefndartillögu á þingi ráðsins í Ósló í nóvember 1998. Í ályktun sinni um tillöguna lagði Norðurlandaráð áherslu á að efnt yrði til samráðs milli ráðherranefndarinnar og ráðsins um nánari útfærslu þeirrar stefnu sem mörkuð er í greinargerðinni.
Við upphaf formennskuárs síns lýstu Svíar áhuga á að vettvangur norrænnar menningarsamvinnu væri notaður til upplýsingaskipta og samráðs um málefni tengd ESB/EES sem væru ofarlega á baugi hverju sinni. Þessu fylgdu þeir eftir af sinni hálfu með skipulegri upplýsingamiðlun. Á fundi ráðherranefndar menningarmála í júní var m.a. skipst á sjónarmiðum um þau drög sem þá lágu fyrir að rammaáætlun ESB um samstarf á sviði menningarmála.
6. Menntun og rannsóknir.
Samstarf Norðurlanda um menntamál og rannsóknir er mjög umfangsmikið svið innan ráðherranefndarinnar og tekur til samstarfs á grunn- og framhaldsskólastigi, fullorðinsfræðslu, háskóla og rannsókna. Hefur starfsemi þess einkum falist í starfsemi stofnana innan vébanda sviðsins sem eru alls níu talsins, föstum styrkjakerfum og tímabundnum verkefnum sem stjórnað er af föstum stjórnarnefndum en þær hafa m.a. umsjón með faglegum vinnuhópum, sem skipaðir eru tímabundið til þess að vinna að tilteknum verkefnum. Að jafnaði er lögð áhersla á samfellu í þeirri starfsemi sem fyrir er og verkefnum sem mörkuð hafa verið af fyrrverandi formennskulöndum fylgt eftir. Starfsáætlanir innan mennta- og rannsóknasviðsins taka til fimm ára í senn. Unnið er að mestu eftir starfsáætlunum fyrir árin 1997–2000.
Formennska í norrænu samstarfi árið 1998 var í höndum Svía og á sviði menntamála og rannsókna var lögð áhersla á áframhaldandi samstarf um tungumálasamvinnu, málefni barna og unglinga, kennslu í stærðfræði, náttúrufræði og tækni, upplýsingatækni á sviði menntunar og rannsókna, áætlun um norræna rannsóknastefnu og Evrópumálefni. Sérstök áhersla var lögð á gæði í skólastarfi, hlutverk menntunar á vinnumarkaði, fullorðinsfræðslu svo og endurskoðun norræna samningsins um æðri menntun.
Hefur samstarfið beinst að því að auka almennt samstarf landanna á þessum sviðum auk þess að styrkja samstarf við grannsvæði Norðurlanda og önnur Evrópuríki og unnið er að fjölmörgum verkefnum sem taka til þessara áhersluþátta á vettvangi ráðherranefndarinnar.
Á undanförnum árum hefur verið unnið að því að gera starfsemina skilvirkari, styrkja og þróa samstarf á sviði menntamála og rannsókna og stefnt að því að jafnauðvelt verði að mynda tengsl, skiptast á hugmyndum og flytjast frá einu fræðslu- og rannsóknarumhverfi til annars á Norðurlöndum og í eigin landi.
Ráðherranefnd menntamála og rannsókna heldur þrjá fundi árlega. Á árinu 1998 ákváðu ráðherrarnir að taka tiltekin þemu til umræðu á fundum sínum, sem tækju mið af þeim málefnum sem ráðherrarnir leggja áherslu á að ræða og vinna að á norrænum vettvangi á sviði mennta- og rannsóknamála. Þema fundarins í Kaupmannahöfn í desember sl. var mat og gæði á öllum skólastigum að háskólastigi meðtöldu. Þá var ákveðið að þema fundarins í mars 1999 yrði staða norrænna málsamfélaga í ljósi hraðfara þróunar upplýsingatækni.
Norrænar stofnanir.
Á vettvangi ráðherranefndar menntamála og rannsókna eru starfandi níu norrænar stofnanir en þar á meðal er Norræna Eldfjallastöðin (NORDVULK). Dr. Guðmundur Sigvaldason lét af störfum við Eldjallastöðina eftir um það bil aldarfjórðungsstarf sem forstöðumaður. Dr. Karl Grönvold stýrir stofnuninni þar til gengið verður frá ráðningu nýs forstöðumanns (sjá nánar um Norrænu eldfjallastöðina, kafla 25.2.). Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir var ráðin framkvæmdastjóri við NORDINFO vorið 1998 og sama vor var íslenskur lektor, Ragnhildur Vigfúsdóttir, í fyrsta sinn ráðinn við Norræna lýðháskólann (Nordens folkliga akademi), sem er ein af stofnunum innan vébanda ráðherranefndarinnar um menntamál og rannsóknir. Um tímabundna ráðningu er að ræða. Fyrir tilstilli lektorsins voru haldnar tvær námstefnur hér á landi á árinu.
Fastar nefndir.
Á vegum ráðherranefndar um menntamál og rannsóknir starfa auk embættismannanefndar, sem m.a. undirbýr ráðherrafundi, þrjár stjórnarnefndir, NSS, HÖGUT og FOVU, sem í eiga sæti einn fulltrúi frá hverju Norðurlandanna. Verksvið nefndanna spannar grunnskóla og framhaldsskóla auk skóla á háskólastigi og fullorðinsfræðslu. Gerðar eru áætlanir um samstarf á vegum stjórnarnefndanna til þriggja ára. Auk stjórnarnefndanna starfa ýmsir vinnuhópar að tilteknum verkefnum. Sérstök áhersla er lögð á að styrkja tengslin milli hinna vestlægu Norðurlanda og annarra ríkja Norðurlanda.
Á vegum stjórnarnefndanna hafa verið haldnar fjölmargar ráðstefnur á árinu um þau málefni sem undir þær heyra auk þess sem þær hafa staðið fyrir ýmsum útgáfum. Þá hafa FOVU- og NSS-stjórnarnefndirnar sameiginlega staðið fyrir fimm námstefnum um fjölmenningarlega kennslu og aðferðir til að sporna við kynþáttamisrétti. Í byrjun desember var haldinn fundur hér á landi með kennurum af öllum skólastigum, námsráðgjöfum, fulltrúum frá félagsmálayfirvöldum, lögreglu o.fl. þar sem einn af norrænu verkefnisstjórunum greindi frá norræna verkefninu og fjallaði um ýmsa þætti þessara mála.
Samstarf á á sviði grunn- og framhaldsskóla.
NSS-stjórnarnefndin fjallar um samstarf Norðurlanda á sviði skólamála en það samstarf hefur verið allumfangsmikið á undanförnum árum. Áætlun NSS-stjórnarnefndarinnar spannar árin 1997–2000. Við val á samstarfsverkefnum er tekið mið af því sem ofarlega er á baugi í löndunum öllum og felst samstarfið í því að leita sameiginlegra lausna og draga lærdóm af því sem vel er gert í einstökum löndum. Samstarfið einkennist af þremur meginþáttum. Í fyrsta lagi er um að ræða samstarf milli Norðurlandanna, í öðru lagi samstarf við nágrannasvæði svo sem Eystrasaltslöndin og í þriðja lagi er lögð áhersla á tengsl við verkefni á sviði skólamála sem unnið er að á vettvangi Evrópusambandsins. Norrænt samstarf á þessu sviði hefur verið mjög gagnlegt fyrir Ísland en það hefur opnað mögleika á að fylgjast náið með því sem er að gerast annars staðar á Norðurlöndum og hafa fjölmargir kennarar og aðrir skólamenn tekið þátt í verkefnum sem unnið hefur verið að.
Unnið er að miklum fjölda verkefna á þessu sviði. Meðal verkefna sem unnið er að nú má nefna:
– samninga innan grunn- og framhaldsskóla á Norðurlöndum,
– hlutverk kennarans með hliðsjón af breyttum námskrám og breyttum kröfum til skóla,
– frumkvöðlafræðslu,
– nám og kennslu í náttúrufræðigreinum og stærðfræði,
– fámennar iðngreinar og
– mat á skólastarfi.
Síðastnefndu verkefni var nýlega hleypt af stokkunum. Var það tekið upp að frumkvæði Íslands á formennskuári þess 1994. Á formennskuári Íslands 1999 verður því fylgt eftir með aukinni áherslu á mat og gæði í skólastarfi í samræmi við þemaumræðu ráðherra á fundi þeirra í desember 1998.
Málasamstarf Norðurlandanna hefur skipað veigamikinn sess á undanförnum árum og hefur NSS-stjórnarnefndin umsjón með NORDMÅL-áætluninni sem tekur til tungumálasamstarfs Norðurlandaþjóðanna. NORDMÅL-áætlunin sem nú er unnið eftir var staðfest af Norrænu ráðherranefndinni í mars árið 1995. Á árinu 1998 samþykkti ráðherranefndin sérstakar áherslur í norrænni málstefnu í samræmi við tillögur málstefnunefndar á vegum nefndarinnar. NORDMÅL-áætluninni er ætlað að styrkja norrænt tungumálasamfélag og tekur til námskeiðahalds, gerðar kennsluefnis, orðabókargerðar, rannsókna, upplýsingastarfsemi og fleiri verkefna. Margar stofnanir koma að NORDMÅL-áætluninni, m.a. norrænar málastofnanir. Á vegum NORDMÅL hafa verið haldin fjölmörg námskeið fyrir kennara og túlka, gefnar út námsbækur sem þýddar hafa verið á finnsku, færeysku og íslensku og unnið er að orðabókarsmíði.
Áætlun á vettvangi NSS um hreyfanleika og tengsl snýr sérstaklega að ungu fólki. Þar er um að ræða styrkveitingar á vegum NORDPLUS-junior sem er áætlun fyrir nemendur og kennara í framhaldsskólum, nemendaskipti með sérstöku tilliti til samskipta milli Íslendinga, Grænlendinga og Færeyinga og annarra Norðurlandaþjóða.
Norrænt samstarf um fullorðinsfræðslu.
FOVU-stjórnarnefndin hefur umsjón með norrænu samstarfi um fullorðinsfræðslu. Nefndin starfar í samræmi við verkefnaáætlun fyrir árin 1997–2000. Lögð hefur verið áhersla á að efla þátttöku félaga, samtaka og stofnana á vettvangi fullorðinsfræðslu í vinnuhópum og í ráðstefnum á vegum nefndarinnar til að skapa betri tengsl. Ýmsir samstarfsstyrkir gegna líka mikilvægu hlutverki í þessu skyni. Af ýmsum verkefnum á vegum FOVU má nefna að á árinu hófst nýtt verkefni um þátt lýðfræðslunnar í þróun og eflingu lýðræðis á Norðurlöndum. Þá hefur verið fjallað um notkun upplýsingatækni í fræðslu fullorðinna og hefur sérstaklega verið lögð áhersla á að styrkja þátt almenningsbókasafna í að opna almenningi aðgang að netheimum. Einnig hefur verið unnið að því að styrkja þróun lýðfræðslu á grannsvæðum Norðurlanda. Mikilvægur liður í þessu starfi eru einnig námskeið og námsstefnur á vegum Norræna lýðháskólans (NFA) fyrir þátttakendur frá þessum svæðum sem haldnar voru á árinu.
Norrænt nám í kennslufræði fullorðinna hófst öðru sinni á árinu 1998. Einn háskóli í hverju norrænu landi stendur fyrir viku námskeiði, en þátttakendur koma frá öllum löndunum. Af hálfu Íslands tekur Kennaraháskóli Íslands þátt í þessu verkefni.
FOVU-stjórnarnefndin hefur um nokkurn tíma gert tilraun með að veita sérstaka ferðastyrki til þeirra sem starfa á sviði fullorðinsfræðslu á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum til að gera þeim betur kleift að fara í námsheimsóknir til annarra norrænna landa.
Samstarf um æðri menntun.
HÖGUT-stjórnarnefndin hefur umsjón með samstarfi um æðri menntun á norrænum vettvangi. Haustið 1996 var gert mat á starfsemi HÖGUT að hennar frumkvæði. Að fengnu því mati voru gerðar nýjar samþykktir vegna starfsemi hennar sem staðfestar voru af ráðherranefndinni árið 1997. Á árinu 1998 var samþykkt áætlun HÖGUT sem spannar árin 1999–2000. Helsta hlutverk HÖGUT er að stuðla að eflingu norræns samstarfs um æðri menntun m.a. með athugunum, sérstökum verkefnum, ráðstefnum og samráði við háskóla. Á verksviði nefndarinnar eru meðal annars verkefni á sviði grunnmenntunar og rannsókna og auk þess hefur HÖGUT umsjón með Nordplus-áætluninni sem felst í stúdenta- og kennaraskiptum. Styrkveitingum á vegum NORDPLUS-áætlunarinnar hefur verið haldið áfram. Á hverju ári taka alls um 5000 nemendur og kennarar á Norðurlöndum þátt í áætluninni. Í NORDPLUS gefst námsmönnum tækifæri til að stunda hluta af námi sínu, allt að eitt ár, við háskóla annars staðar á Norðurlöndum og fá námið metið að fullu til eininga í heimalandi sínu. Þá er gefinn kostur á kennaraskiptum og fleiru er lýtur að kennslustörfum.
Á árinu 1998 hefur verið unnið að endurskoðun á Norðurlandasamningi um aðgang að æðri menntun sem undirritaður var árið 1996 og rennur út við árslok 1999. Meginatriði samningsins er að allir norrænir stúdentar hafa jafnan aðgang að öllum háskólum á Norðurlöndum. Í samningnum eru ákvæði um greiðslukerfi sem Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð hafa tekið upp sín á milli. Samkvæmt þessu kerfi skulu þau ríki sem senda frá sér fleiri stúdenta en þau taka á móti greiða ákveðið gjald fyrir mismuninn. Ísland hefur verið undanþegið frá þessum ákvæðum.
Norrænt rannsóknarsamstarf.
Á rannsóknasviði ráðherranefndarinnar starfar ráðgefandi norrænt vísindastefnuráð, Nordisk Forskningspolitisk Råd (FPR), sem heyrir undir ráðherranefnd um mennta- og rannsóknarmál en er jafnframt ráðgefandi um stefnumörkun í vísinda- og tæknirannsóknum á öðrum sviðum ráðherranefndarinnar eftir því sem við á. Á undanförnum misserum hefur verið unnið að endurskipulagningu á hlutverki og starfsemi ráðsins en helsta hlutverk þess er að leggja tillögur fyrir ráðherranefndina þar sem tekið er mið af eftirfarandi þáttum: mótun norrænnar rannsóknarstefnu til að stuðla að markvissri forgangsröðun verkefna, stefnumörkun með þverfaglegt samstarf í huga, tillögur um forgangsröðun í rannsóknum á vettvangi ráðherranefndarinnar einkum með tilliti til forgangsröðunar í hinum einstöku löndum og þróun gæðastjórnaraðferða í norrænu rannsóknasamstarfi. Á árinu 1998 var samþykkt áætlun um rannsóknir á Norðurslóðum og verkefnisstjórn skipuð af því tilefni. Þá samþykkti ráðherranefndin tillögur FPR um að hefja tímabundið norrænt rannsóknasamstarf árið 2000 á þremur áherslusviðum sem eru kynbundið ofbeldi, tungutækni og faraldsfræði.
Frá því árið 1996 hefur verið starfandi sérstök ráðgjafarnefnd um stefnumótun í upplýsingatækni fyrir ráðherranefnd um menntamál og rannsóknir. Á árinu 1998 samþykkti ráðherranefndin í samræmi við tillögu nefndarinnar þriggja ára rannsóknar- og þróunaráætlun sem nefnist NORDUnet2. Markmið áætlunarinnar er að viðhalda og efla samkeppnishæfni norrænu þjóðanna á sviði menntunar og rannsókna með því að þróa ný samvinnu- og samskiptaform byggð á aðferðum upplýsingatækninnar. Með því er stefnt að því að Norðurlönd nái aftur þeirri forustu í notkun háþróaðra tölvuneta (með Internettækni) sem þau höfðu í upphafi þessa áratugar þegar norræna samnetið, NORDUnet, var stofnað. Tekið hefur verið mið af áþekkum þróunaráætlunum í Bandaríkjunum.
Ávinningur af þátttöku í NORDUnet2 fyrir Íslendinga ef vel tekst til felst m.a. í beinni þátttöku iðnaðarins, netþjónustufyrirtækja, rannsóknabókasafna, skóla, opinberra fjölmiðla o.fl. í verkefnum sem styrkt verða undir hatti áætlunarinnar. Íslensk fyrirtæki, sem framarlega standa, t.d. í margmiðlun, fá því tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri á álitlegu markaðssvæði og geta sótt um styrki til þess. Íslenskir notendur Internetsins fá aðgang að nýjum nýtingarmöguleikum jafnskjótt og aðrir Norðurlandabúar.
7. Umhverfismál.
Samstarf umhverfisráðherra Norðurlanda (MR-Miljø) byggist á Norrænu umhverfisáætluninni 1996–2000 (Den Nordiske Miljøstrategi 1996–2000). Í áætluninni koma fram þau markmið sem sett eru í samstarfinu bæði innan Norðurlanda og á alþjóðavettvangi. Framkvæmd umhverfisáætlunarinnar er í höndum fastra vinnuhópa og annarra nefnda sem falin eru sérstök verkefni. Á árinu var ákveðið að framlengja áætlunina út árið 2000. Embættismannanefndin fylgist með vinnu nefndanna fyrir hönd ráðherranna og upplýsir þá um gang mála. Því eru einstök verkefni almennt ekki á dagskrá ráðherrafunda. Í lok ársins sendu umhverfisráðherrar Norðurlanda sameiginlegt bréf til breska umhverfisráðherrans þar sem þeir lýstu yfir áhyggjum sínum vegna losunar geislavirks úrgangs í hafið frá endurvinnsluverinu í Sellafield.
Umhverfisráðherrafundir eru að jafnaði þrisvar á ári. Það sem hæst bar á þeim vettvangi á árinu voru alþjóðleg málefni, svo sem fundur um loftslagsbreytingar í Buenos Aires og samstarfið á Norðurslóðum en fyrsti formlegi fundur Norðurskautsráðsins var haldinn á árinu. Umhverfisráðherrar Norðurlanda lögðu þar fram sameiginlegt bréf til að undirstrika enn frekar mikilvægi umhverfissamstarfs á Norðurslóðum. Evrópumál eru fastur liður á dagskrá umhverfisráðherra. Þar eru rædd almenn málefni, sem og dagskrá komandi funda í ráðherraráði Evrópusambandsins (ESB).
Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) heyrir undir samstarfið um umhverfismál (sjá nánar um NEFCO, kafla 26.5.).
Störf vinnunefnda:
Samstarfsnefnd um umhverfis- og orkumál.
Þessi nefnd er vettvangur fyrir samráð umhverfis- og orkuráðuneyta. Megináhersla hefur verið lögð á málefni sem tengjast loftslagssamningnum og bókuninni við hann sem kennd er við Kyoto.
Á árinu 1998 kom út skýrsla á vegum nefndarinnar um: „Omsettelige utslippskvoter i Norden“ sem fjallar um viðskipti með losunarkvóta og tekur dæmi af öðrum kvótakerfum m.a. viðskiptum með fiskveiðikvóta hér á landi. Á lokastigi eru m.a. skýrslur um hagtölur sem tengjast losun gróðurhúsalofttegunda á Norðurlöndum, aðferðir til að vega saman gróðurhúsaáhrif mismunandi lofttegunda og tengsl kvótaviðskipta og rafmagnsviðskipta milli Norðurlandanna.
Í undirbúningi eru skýrslur um: bindingu kolefnis með ræktun, viðskipti með losunarkvóta, leiðir til að draga úr losun flúorkolefna og hvernig taka má tillit til sérstöðu þjóða í loftslagssamningnum.
Nefndin stóð fyrir tveimur ráðstefnum á árinu.
Samstarfsnefnd um Norræna umhverfis- og sjávarútvegsáætlun.
Nefndin starfar á grundvelli Norrænu umhverfis- og sjávarútvegsáætlunarinnar sem samþykkt var af umhverfis- og sjávarútvegsráðherrum Norðurlandanna í Reykjavík í febrúar 1995. Hlutverk nefndarinnar er að vinna að framgangi þeirra stefnumála sem sett eru fram í áætluninni og fylgjast með framkvæmd þeirra í umboði embættismannanefnda umhverfis- og sjávarútvegsmála.
Samstarfsnefndin er skipuð tveimur fulltrúum frá hverju Norðurlandanna, einum frá umhverfisyfirvöldum og einum frá sjávarútvegsyfirvöldum.
Samstarfsáætlunin tekur til hafsins, auðlinda þess og strandsvæða og tekur m.a. mið af Norrænu umhverfisáætluninni og Norrænu sjávarútvegsáætluninni. Tilgangur þessa samstarfs er að stuðla að því að aukið tillit sé tekið til umhverfissjónarmiða í sjávarútvegi og að finna leiðir til þess að bæta umgengni og stuðla að sjálfbærri þróun í nýtingu sjávarauðlinda.
Á þessu ári hefur megin verkefni nefndarinnar verið að endurskoða áætlunina og gera tillögur til embættismannanefndanna um nýja Norræna áætlun í umhverfis- og sjávarútvegsmálum fyrir tímabilið 1999–2002.
MKB ad-hoc hópurinn 1998.
Á fundi hópsins í janúar var m.a. rætt um hvernig staðið skyldi að norrænu samstarfi um mat á umhverfisáhrifum eftir áramótin 1998/1999 en þá verður MKB ad-hoc hópurinn lagður niður í núverandi mynd. Einkum var rætt um að koma á laggirnar norrænu internetsambandi (MKB netkerfi). Bent var á nauðsyn þess að halda áfram samstarfi á stjórnvaldsstigi um internetsamband (MKB netkerfi) í formi námskeiða og námsstefna og með útgáfu fréttabréfs.
Á fundi hópsins í ágúst var einkum rædd tillaga Nordregios og MKB ad-hoc hópsins til EK-M (embættismannanefnd um umhverfismál) um skipulag og fjármögnun áframhaldandi samvinnu um norrænt MKB netkerfi. Embættismannanefndin hefur samþykkt tillöguna og EK-M, NERP og Nordregio munu styrkja verkefnið með 900.000 d.kr. á ári.
Efnavörunefndin.
Vinnunefndin um efnavörur (NKG) er í forsvari fyrir norrænu samstarfi á sviði eiturefna og hættulegra efna. Hún vinnur að öflun og úrvinnslu gagna sem lagðar eru til grundvallar fyrir ákvarðanir og aðgerðir heima fyrir, í Evrópusamstarfi og á alþjóðavettvangi. Hún stuðlar að samvinnu stjórnvalda og að samræmingu verkefna þannig að tiltækt fjármagn nýtist sem best. Nefndin hefur í vaxandi mæli beint starfi sínu að verkefnum sem nýtast í alþjóðlegri samvinnu. Á síðustu árum hafa verkefni, er nýtast norrænu löndunum vegna aðildar þeirra að samningnum um EES og ESB, fengið aukið vægi. Vaxandi áhugi er nú á Norðurlöndum á samstarfi á þessu sviði. Ísland hefur tekið þátt í starfi efnavörunefndarinnar frá því árið 1989 og fór með formennsku í nefndinni á árinu.
Verkefni sem unnið hefur verið að á árinu eiga sér stoð í norrænu umhverfisverndaráætluninni fyrir árin 1996–2000. Í grófum dráttum skiptast verkefni vinnunefndarinnar í fjóra flokka, þ.e. flokkun hættulegra efna, skilgreiningu á áhættu vegna efnanotkunar, áhættumat og takmörkun áhættu.
Undir vinnunefndinni starfa ráðgefandi verkefnahópar og átti Ísland fulltrúa í átta þeirra.
Meðal verkefna sem unnið hefur verið að í verkefnahópum á árinu 1998 má nefna eftirfarandi: þróun aðferða til að meta áhættu af efnanotkun, söfnun upplýsinga og skipulögð samvinna rannsóknastofnana á Norðurlöndum. Aflað hefur verið upplýsinga og unnar úttektir varðandi eiturefna- og umhverfiseiturefnafræðilega eiginleika varnarefna og einnig endurskoðaðar úttektir sem gerðar eru á vegum ESB. Unnið var að samræmingu áætlana og aðgerða til að draga úr notkun ósoneyðandi efna og unnið að verkefnum sem lagðar eru til grundvallar fyrir ákvarðanir á því sviði. Unnið hefur verið að flokkun hættulegra efna hvað varðar áhrif á umhverfi og/eða heilsu manna.
Vinnunefnd um umhverfi hafs og lofts.
Hlutverk nefndarinnar er að vera stjórnvöldum til ráðgjafar og móta tillögur að aðgerðum á alþjóðavettvangi. Því er lögð áhersla á verkefni sem styrkja vísindalegan bakgrunn tillagna og mat á þeim aðgerðum sem fram hafa farið.
Verkefnasviðin 1998 skiptust í fjóra eftirfarandi aðalþætti: súrt regn og oxunarefni, þungmálma, lífræn eitruð efni þ.m.t. þrávirk lífræn efni og ofauðgun næringarefna í hafinu.
Af einstökum verkefnum má nefna verkefni um útreikninga á „critical load“ fyrir kvikasilfur og námsstefnu um mat á uppsprettum, á flæði með andrúmslofti og hringrás þrávirkra efna í umhverfinu svo og á áhrifum TBT og botnmálninga sem innihalda kopar á lirfustig þorsks.
Auk þess er á fjárlögum nefndarinnar hálf staða ritara fyrir Kaupmannahafnarsamkomulagið (samvinna gegn mengun sjávar af völdum olíu og annarra skaðlegra efna).
Hópur um hreinni tækni.
Verkefni hópsins er að vinna að samræmingu og skilgreina sameiginleg verkefni á sviði hreinni framleiðslutækni og sorphirðu. Hópurinn tekur fyrst og fremst mið af hlutverki stjórnvalda á framangreindu sviði m.t.t. þess að hlutverk þeirra er að setja ramma til að innleiða hreinni tækni og bæta sorphirðu. Í störfum sínum tekur hópurinn mið af norrænu umhverfisstefnunni.
Á árinu hefur áhersla verið lögð á framleiðsluvöruháða umhverfisstefnu (POMS). Í janúar var haldin þverfagleg ráðstefna um þessi mál í Svíþjóð í samvinnu umhverfis-, neytenda- og atvinnumálasviða. Þá hefur hópurinn fjallað nokkuð um verkefnið Faktor 4/10. Í kjölfarið hefur hópurinn breytt áherslum sínum og fjallar nú meira um vörur og vöruþróun m.t.t. áhrifa á umhverfið. Þetta er unnið bæði innan hópsins og í þverfaglegu samstarfi við önnur samstarfssvið. Nafni hópsins var breytt í lok ársins og er nú „hópur um vörur og úrgang“.
Í mars var haldin námsstefna um sorpbrennslu. Hópur um sorpbrennslu hefur verið að störfum allt árið og m.a. fjallað um væntanlega tilskipun um brennslu úrgangs.
Vinna hópsins um hreinni tækni fer að stærstum hluta þannig fram að settar eru á laggirnar verkefna- og tengiliðahópar, sem annars vegar hafa það hlutverk að stýra tilteknum verkefnum og hins vegar að styrkja norræna samvinnu og auka upplýsingastreymi milli aðila sem vinna innan málaflokksins. Vinna í hópnum um hreinni tækni og undirhópum hans tekur mið af samningnum um EES og fjalla tengiliðahópar um nýjar gerðir sem koma inn í samninginn og framkvæmd samningsins.
Vinnunefnd um náttúruvernd og útivistarmál.
Náttúruverndar- og útivistarnefndin hefur það hlutverk að skilgreina samnorræn markmið og leiðir í náttúruvernd, útivist og verndun menningarlandslags. Nefndin starfar í umboði Norrænu ráðherranefndarinnar í samræmi við norræna stefnu í umhverfismálum (Den Nordiske Miljøstrategi 1996–2000).
Á árinu var lögð áhersla á verkefni sem einkum snerta verndun líffræðilegrar fjölbreytni, þar á meðal verndun búsvæða og tegunda, útivistarmál og verndun menningarlandslags.
Finnland tók við formennsku í nefndinni í upphafi árs og mun leiða hana í tvö ár. Á árinu var lokið við sex verkefni og skýrslum skilað þar að lútandi. Gefinn var út bæklingur sem sýndi dæmi um náttúruvernd á vegum sveitarfélaga og skýrsla um ráðstefnu sem haldinn var í tengslum við verkefnið um menningar- og náttúruarfleið heimsins. Á árinu var einnig haldinn ráðstefna um erfðabreyttar lífverur og námskeið um ofbeit og jarðvegsrof.
Á árinu 1997 var stofnaður nýr hópur um verndun heimskautasvæða. Hópnum er ætlað það hlutverk að leggja árið 1999 fram áætlun um verkefni sem stuðla að náttúruvernd og sjálfbærri nýtingu á þeim sviðum náttúruverndar og útivistar sem aðrar alþjóðlegar stofnanir eða samtök taka ekki til. Framkvæmdaáætlunin verður gefin út á sumri komandi.
Vinnunefndin um náttúru- og útivist fjallaði einnig um hvernig mætti auka áherslur og samstarf við grannsvæðin um náttúruvernd og hvaða verkefni væru brýnust á því sviði. Á vegum hópsins starfar einnig verkefnahópur sem vinnur að verndun menningarminja.
Vinnunefnd um umhverfisvöktun og meðferð gagna (NMD).
Starfsemi vinnunefndarinnar (NMD) tók þeim breytingum á síðasta ári að formennskan fluttist frá Íslandi til Noregs en Ísland hafði haft formennsku í nefndinni í þrjú ár. Samhliða var dregið nokkuð úr þátttöku Íslands í fundum vinnunefndarinnar á árinu. Að öðru leyti eru störf nefndarinnar í föstum skorðum og flest stærstu verkefnin eru verkefni til nokkurra ára. Það verkefni sem hæst ber er vinna við skýrslu um fjölbreytni náttúrunnar (biodiversity) en skýrslan á að koma út á árinu 2000. Á árinu var lokið vöktunarverkefni á strandsvæðum, samstarfsverkefni milli Íslands, Færeyja og Noregs en Breiðafjörður er vöktunarstaður Íslands. Verkefninu var lokið með ráðstefnu hér á landi. Einnig er verkefni í gangi varðandi líffræðilega vöktun í fersku vatni en það tengist væntanlegri rammatilskipun ESB á sviði vatnsmála.
8. Byggðamál
Embættismannanefndin um byggðamál.
Samstarf Norðurlandanna í byggðamálum byggist aðallega á þremur þáttum. Mestum fjármunum er varið til samstarfshéraðanna, síðan er samstarf um menntun og rannsóknir á sviði byggðaþróunar og skipulagsmála. Þriðji þáttur samstarfsins eru samskipti embættismanna um byggðastefnu og mótun hennar. Fulltrúar Norðurlandanna í embættismannanefndinni koma frá ráðuneytum sem bera stjórnsýslulega ábyrgð á byggðamálum en einnig frá þeim sem hafa umsjón með byggðaáætlunum. Þeim málum er komið fyrir á ólíkan hátt í löndunum. Vegna aukins mikilvægis skipulagsmála í samstarfi á þessu sviði hefur nú verið ákveðið að fulltrúi umhverfisráðuneytisins taki þátt í störfum fullskipaðrar embættismannanefndar í byggðamálum.
Aðlögun hinna norrænu samstarfshéraða að auknum fjárveitingum frá ESB er nú að ganga yfir en NORA, Norræna Atlantssamstarfið sem Ísland tekur þátt í, er hið eina sem er algerlega utan ESB og ekki að neinu leyti hluti INTERREG-áætlunar sambandsins. Samstarf Norðurlandanna og Skotlands í byggðamálum hefur nú einnig fengið fjárveitingar frá Byggðasjóði Evrópusambandsins en Norðmenn greiða sinn hluta af því verkefni sem gengur undir nafninu Northern Periphery. Eins og áður hefur komið fram hafa Íslendingar tekið þátt í sumum verkefnum þessa samstarfs og hafa áhuga á að halda því áfram. Þar er samstarf háskóla í dreifbýli sérstaklega áhugavert.
Eins og áður hefur verið getið hafa embættismannanefndirnar í byggðamálum og landbúnaðarmálum haft með sér samstarf um nokkurra ára skeið. Hefur það að mörgu leyti gefist vel. Meðal þeirra verkefna sem unnið hefur verið að er efling matvælavinnslu í smáum stíl og verkefni í ferðamálum í dreifbýli hafa verið studd. Þá hefur verið gerð rannsókn á málefnum þjónustu í fámennum sveitarfélögum í þeim tilgangi að miðla góðum lausnum á milli sveitarfélaga sem við slíkar aðstæður búa.
Upplýsingamiðlun milli embættismanna í byggðamálum er í nokkuð föstum skorðum. Reglulegt upplýsingaflæði er um málefni ESB og EES. Embættismannanefndin hefur einnig tekið upp ýmis mál sem áhugi er á samstarfi um. Meðal þess sem unnið hefur verið að á undanförnum misserum er undirbúningur að samstarfi sem tæki á möguleikum upplýsingatækninnar til að bæta lífskjör í dreifbýli. Þá hefur verið unnið að athugunum á helstu hindrunum í vegi fyrir flæði fólks yfir landamæri innan Norðurlandanna með áherslu á norrænu samstarfshéruðin. Þetta verk hefur verið unnið í samvinnu við Norrænu samstarfsnefndina.
Enda þótt stuðningi ríkisvaldsins við fyrirtæki séu settar nokkuð ákveðnar skorður með þeim reglum um byggðastyrki sem gilda innan EES er byggðastefna Norðurlandanna í stöðugri endurskoðun í ljósi nýrra aðstæðna og vanda. Í Svíþjóð og Noregi stendur nú yfir veigamikil endurskoðun á aðferðum í þessum efnum. Upplýsingamiðlun og skoðanaskipti milli embættismanna eru reglubundinn hluti af hinu norræna samstarfi á þessum vettvangi en pólitísk skoðanaskipti hafa einnig átt sér stað á ráðherrafundum.
Lánasjóður Vestur-Norðurlanda (sjá nánar kafla 26.6.) heyrir undir samstarfið í byggðamálum.
Norræna Atlantsnefndin (Nordisk Atlantsamarbejde — NORA).
Á árinu 1996 breyttist samstarf hinna vestlægu Norðurlanda í byggðamálum, Noregur bættist við og tók Norræna Atlantsnefndin, NORA, til starfa í byrjun árs 1996, þannig að nefndin hefur starfað í tvö ár.
NORA er samstarfsvettvangur Íslendinga, Grænlendinga, Færeyinga og Norðmanna og heyrir nefndin undir Norrænu embættismannanefndina í byggðamálum (NERP).
Skrifstofa nefndarinnar hefur þessi ár verið staðsett í Þórshöfn í Færeyjum. Starfandi eru einnig fulltrúar/skrifstofur NORA í hverju aðildarlandi. Hér á landi hefur Byggðastofnun haft umsjón með starfi NORA. Framkvæmdaráð, þar sem sæti á einn fulltrúi frá hverju aðildarlandi, sér um að undirbúa ákvarðanir í samstarfi við starfsmenn í hverju landi, leggja fram tillögur og veita framkvæmdastjóra leiðsögn í einstökum málum.
Meginmarkmið með starfi nefndarinnar hefur verið;
– Að hvetja til og efla samvinnu innan svæðisins með áherslu á eftirfarandi atriði: (1) auðlindir og umhverfismál sjávar, (2) landbúnað, (3) verslun og viðskipti, (4) ferðaþjónustu og (5) samgöngur.
– Að koma á samstarfi milli nefndarinnar og annarra aðila sem vinna að hliðstæðum og tengdum verkefnum innan samstarfssvæðisins. Einkum hefur verið lögð áhersla á samvinnu við atvinnuþróunar- og rannsóknarstofnanir í löndunum fjórum.
– Að miðla reynslu og þekkingu í byggða- og atvinnumálum milli landanna.
– Að stuðla að rannsóknum og þróun á framangreindum sviðum, þar sem löndin geta notið góðs af reynslu hvers annars með því að koma á samskiptum stofnana, fyrirtækja og fólks í millum. Endurskoða á starfsemi NORA á árinu 1999 m.t.t. hvaða áherslu eigi að leggja í starfinu í framtíðinni.
Þrír fulltrúar frá hverju landi eiga sæti í nefndinni og eru fulltrúar Íslands skipaðir í nefndina af forsætisráðherra.
Á þessum tveimur árum sem nefndin hefur starfað hafa borist margar umsóknir um stuðning við verkefni frá öllum löndunum fjórum en skilyrði fyrir stuðningi er að minnst tvö aðildarlönd séu umsækjendur að hverju verkefni. NORA hefur einnig í auknum mæli beint starfi sínu að verkefnum sem nefndin sjálf hefur frumkvæði að.
Fjárveiting til nefndarinnar á árinu 1998 var um fimm millj. d.kr. og hefur henni að stærstum hluta verið ráðstafað sem stuðningi til verkefna þar sem sótt er um stuðning frá fyrirtækjum og stofnunum í að minnsta kosti tveimur löndum á svæði NORA og í minna mæli til þess að setja af stað verkefni sem tengjast áður nefndum markmiðum og NORA hefur haft frumkvæði að.
Þátttaka Íslendinga í verkefnum nefndarinnar hefur verið mikil þessi tvö ár sem nefndin hefur starfað. Þannig hafa Íslendingar verið þátttakendur ásamt a.m.k. einu öðru landi í á milli 25 til 30 verkefnum af ýmsum toga. Sjávarútvegur og verkefni tengd veiðum og vinnslu sjávarafurða hafa verið áberandi í starfi nefndarinnar enda er sjávarútvegur eitt það svið sem tengir þessi lönd saman. NORA hefur einnig haft frumkvæði að verkefnum svo sem ráðstefnu um fjarnám og fjarlækningar sem eru verkefni sem skipta miklu máli í dreifðum byggðum á norðurslóðum.
9. Efnahags- og fjármál.
Ráðherrafundir.
Efnahags- og fjármálaráðherrar Norðurlandanna héldu tvo formlega fundi á árinu 1998, í júní og nóvember. Á þessum fundum var rætt um stöðu og horfur í efnahagsmálum á Norðurlöndunum, atvinnu- og umhverfismál, fjárfestingaráætlun fyrir Eystrasaltsríkin og áhrif Efnahags- og myntbandalagsins (EMU). Enn fremur samþykktu ráðherrarnir nýtt samkomulag fyrir Norræna fjárfestingarbankann sem miðar að því að styrkja stöðu hans sem alþjóðlegrar fjármálastofnunar og ákváðu jafnframt hækkun á hlutafé og útlánarömmum. Þá var ákveðið að láta kanna möguleika á auknu samstarfi norrænna kauphalla og verðbréfaþinga sem hugsanlega næði einnig til Eystrasaltsríkjanna þriggja.
Auk þessara formlegu funda héldu ráðherrarnir óformlegan fund í París í tengslum við ráðherrafund OECD-ríkjanna í apríl. Jafnframt var haldinn sameiginlegur fundur forsætis- og fjármálaráðherra um Efnahags- og myntbandalagið, í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Ósló, og var ákveðið að ráðherrarnir hittust reglulega til að ræða þessi mál.
Í nóvember kom út árleg skýrsla ráðherranna um stöðu og horfur í efnahagsmálum á Norðurlöndum, Økonomiske udsigter i Norden (sjá umfjöllun um starf efnahagsnefndar fjármálaráðherra).
Helstu nefndir, skýrslur o.fl.
a. Embættismannanefndin (EK-Finans). Nefndina skipa háttsettir embættismenn í fjármálaráðuneytum landanna, einn frá hverju landi. Verkefni nefndarinnar eru fjölþætt. Megin verkefnið er að undirbúa ráðherrafundi og vera ráðgefandi í öllum málefnum sem varða starf ráðherranna á norrænum vettvangi. Nefndin hefur þannig haft yfirumsjón með skýrslugerð og greinargerðarskrifum fyrir ráðherrafundina. Jafnframt hafa gjarnan starfað sérstakir vinnuhópar á vegum nefndarinnar til að sinna ákveðnum verkefnum. Á árinu 1998 voru málefni Norræna fjárfestingarbankans mikið til umfjöllunar, bæði hjá embættismannanefndinni og ráðherrunum, eins og áður er getið. Á árinu 1998 hefur enn fremur verið unnið að sérstakri athugun á áhrifum hagsveiflunnar á stöðu ríkisfjármála og er gert ráð fyrir að henni verði lokið á næsta ári.
b. Eystrasaltsnefndin (Baltikumudvalget). Árið 1992 samþykkti Norðurlandaráð norræna fjárfestingaráætlun fyrir Eystrasaltsríkin sem miðaði að því að hjálpa litlum og meðalstórum fyrirtækjum og koma á fót sérstökum fjárfestingarbönkum í þessum ríkjum. Hlutverk þessarar nefndar er að hafa eftirlit og yfirumsjón með þessu verkefni. Nefndina skipa að mestu sömu fulltrúar og sitja í embættismannanefndinni. Starf nefndarinnar hefur að mestu falist í að greiða fyrir og leitast við að tryggja framgang fjárfestingaráætlunarinnar. Í þessu skyni hefur nefndin haft náin samskipti við fulltrúa Norræna fjárfestingarbankans (NIB), Evrópubankans í London (EBRD) og Norræna verkefnaútflutningssjóðsins (Nopef). Nefndin hefur sent árlegar skýrslur til Norðurlandaráðs um stöðu og framkvæmd fjárfestingaráætlunarinnar. Þessari áætlun lýkur formlega árið 2000.
c. Efnahagsnefndin (Konjunkturgruppen). Helsta verkefni þessarar nefndar er að fjalla um ástand og horfur í efnahagsmálum, einkum á Norðurlöndum. Auk þess hefur nefndin iðulega fjallað um afmörkuð verkefni á sviði efnahagsmála sem eru ofarlega á baugi hverju sinni. Nefndin hittist tvisvar á ári og hana skipa embættismenn úr fjármálaráðuneytum landanna. Á hverju hausti skilar nefndin sérstakri skýrslu (Økonomiske udsigter i Norden) til fjármálaráðherranna sem síðan er lögð fram á þingi Norðurlandaráðs.
d. Ráðgjafanefnd í gjaldeyris- og peningamálum (Nordiskt finansielt udvalg). Eins og nafnið ber með sér er nefndin ráðgefandi aðili fyrir fjármálaráðherrana í gjaldeyris- og peningamálum. Enn fremur annast nefndin undirbúning og samræmingu norrænna sjónarmiða á þessu sviði á alþjóðavettvangi, einkum fyrir fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Einnig hefur nefndinni verið falið að fylgjast náið með framvindu og undirbúningi vegna Efnahags- og myntbandalagsins og gera ráðherrunum grein fyrir stöðu mála. Nefndina skipa embættismenn frá fjármálaráðuneytum og Seðlabönkum landanna.
e. Vinnuhópur á sviði umhverfismála (Kontaktgruppe for miljø og økonomi). Á vegum tveggja embættismannanefnda, þ.e. þeirra sem fjalla um efnahagsmál (EK-Finans) og umhverfismál (EK-Miljø), starfar sérstakur vinnuhópur sem einkum fjallar um hagrænar aðgerðir á sviði umhverfismála. Fjármálaráðuneytið og umhverfisráðuneytið eiga sinn fulltrúann hvort í þessum hópi. Meginverkefni hópsins eru almenn skoðanaskipti um umhverfismál út frá hagrænu sjónarmiði og notkun á hagrænum stjórntækjum í umhverfismálum. Á vegum nefndarinnar hafa verið unnar fjölmargar skýrslur um umhverfismál, efnt til ráðstefna og samráðs við Evrópusambandið á þessu sviði. Á árinu 1998 var meðal annars haldin ráðstefna í samráði við vinnuhóp um orku- og umhverfismál. Ráðstefnan fjallaði um ákvæði Kyoto-bókunarinnar og viðskipti með losunarkvóta.
f. Sérfræðinganefnd um norræn fjárlög (Budgetexpertgruppen). Hlutverk nefndarinnar er að skila faglegri umsögn um tillögu samstarfsráðherra um frumvarp til norrænu fjárlaganna, bæði tæknilegri og efnislegri. Nefndin tekur einnig til umfjöllunar afmörkuð mál sem samstarfsráðherrar vísa til hennar. Á vegum nefndarinnar hefur meðal annars verið gerð úttekt á fyrirkomulagi samningsstjórnunar í norrænum rekstri. Einnig var gerð sérstök athugun á framsetningu norrænu fjárlaganna og gerðar tillögur um breytingar og úrbætur sem miðuðu að betri og skýrari miðlun upplýsinga. Auk embættismanna fjármálaráðuneyta viðkomandi landa sitja starfsmenn frá Skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar fundi nefndarinnar.
g. Norræna launa- og starfsmannanefndin (Löne- och personaleutskottet). Norræna launa- og starfsmannanefndin er ráðgefandi fyrir ráðherranefndina (samstarfsráðherra Norðurlanda) og stjórnarnefnd Norðurlandaráðs í launa-, ráðningar- og lífeyrismálum þeirra sem starfa við norrænar stofnanir og skrifstofur Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Nefndin fær þessi mál til umfjöllunar ýmist frá samstarfsnefndinni, ráðherranefndinni, Norðurlandaráði eða skrifstofum þeirra, en getur einnig að eigin frumkvæði skotið málum varðandi ráðningar- og starfskjör til ráðherranefndarinnar og stjórnarnefndarinnar. Enn fremur á nefndin að tryggja að um málefni er varða stofnanirnar fari eftir 5. gr. sáttmála þjóðanna um réttarstöðu norrænna stofnana frá 9. desember 1988 og að starfsmannafélög njóti umsagnarréttar áður en ákvörðun er tekin. Á árinu 1998 var fram haldið heildarúttekt á launasetningu starfsmanna á skrifstofu ráðherranefndarinnar, sem og umfjöllun um ráðningarform og ráðningarmál í norrænum stofnunum. Miðar þeirri úttekt vel og telja menn sig að farið sé að sjá fyrir endann á henni. Þá voru einnig áberandi sem fyrr mál sprottin af stofnanaúttektinni. Mörg mál af ýmsum toga, einstaklingsmál/endurskoðun lífeyrissamnings o.fl., komu til umfjöllunar og túlkunar í nefndinni en verða ekki sundurgreind hér frekar.
h. Norræn starfsmannaskipti (nordisk tjenestemandsudveksling). Starfsmannaskiptin voru með óbreyttu sniði á árinu 1998 frá því sem var á fyrra ári. Hlutdeild Íslendinga nam 103.500 d. kr. eða 5,72% af heildarfjárveitingu ráðherranefndarinnar. Íslenskir styrkþegar voru fimm talsins og hlutu þeir hver um sig styrk til dvalar í allt frá einum mánuði til fjögurra mánaða, auk ferðakostnaðar. Styrkþega er getið í greinargerð fjármálaráðuneytisins til Skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar um styrkveitingu hverju sinni. Að lokinni skiptidvöl, eða eigi síðar en þremur mánuðum eftir að skiptidvöl lýkur, skila styrkþegarnir skriflegri skýrslu um dvölina til fjármálaráðuneytisins og ráðuneytis eða stofnunar viðkomandi styrkþega.
Ákveðið hefur verið af hálfu hinnar norrænu starfsmannaskiptanefndar að gefa út nýjan bækling með upplýsingum um starfsmannaskiptin sem staðið hafa frá árinu 1979, en á þeim tíma hafa næstum 2000 ríkisstarfsmenn frá öllum Norðurlöndunum fengið tækifæri til tímabundinna starfa utan síns heimalands.
i. Samstarf yfirmanna skattamála í fjármálaráðuneytum á Norðurlöndum. Samstarfið hófst 1989 að frumkvæði fjármálaráðherra Norðurlanda í þeim tilgangi að skapa vettvang til upplýsingamiðlunar og skoðanaskipta milli landanna um þróun í skattamálum. Samstarfið er fólgið í einum árlegum fundi yfirmanna skattamála og á milli þeirra er upplýsingum miðlað meðal annars með því að send eru milli ráðuneytanna frumvörp og skýrslur um skattamál. Á hinum árlegu fundum er gerð grein fyrir þeim breytingum á skattalögum, sem gerðar hafa verið í hverju landi um sig og unnið er að á hverjum tíma. Annar fastur liður er greinargerð um breytingar í skattamálum innan Evrópusambandsins, einkum með tilliti til áhrifa þeirra á Norðurlöndum, og er sjónarmiðum landanna utan ESB þá komið á framfæri. Í þriðja lagi eru rædd þau skattamál sem til umfjöllunar eru á vettvangi OECD og afstaða landanna til þeirra samræmd eftir atvikum. Að lokum er á fundum þessum fjallað um einstök stærri mál á svið skatta, sem einstök lönd óska eftir að ræða. Fundur yfirmanna skattamála 1998 var haldinn í Reykjavík.
j. Norræna skattrannsóknaráðið. Ráðið var stofnað 1973 með samningi milli Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. Að undangengnum nokkrum samskiptum við ráðið ákvað ríkisstjórnin fyrr á þessu ári að leita eftir því að Ísland gerðist aðili að samningi þessum. Á fundi ráðsins í Helsinki í byrjun nóvember var samþykkt að mæla með aðild Íslands og er nú unnið að nauðsynlegum breytingum á samningi landanna þess vegna. Verkefni ráðsins eru að efla fræðilegar rannsóknir á skattamálum á Norðurlöndum á sviði lögfræði og hagfræði. Er verkefninu annars vegar sinnt með því að úthluta styrkjum til fræðimanna og annarra til að vinna tiltekin rannsóknarverkefni sem sótt er um styrk til og hins vegar með því að halda árlega ráðstefnu þar sem tekin eru fyrir með fræðilegum hætti skattamál sem höfða til allra landanna. Á árinu 1998 sóttu fulltrúar Íslands fund ráðsins og ráðstefnu þess sem gestir. Á ráðstefnunni var fjallað um samspil skatta og félagslegrar aðstoðar á Norðurlöndum.
k. Samstarf fjárlagastjóra Norðurlandanna. Fjárlagastjórar og/eða forstöðumenn þeirra skrifstofa í fjármálaráðuneytum Norðurlandanna sem hafa umsjón með fjárlögum hittast alla jafna tvisvar á ári. Á þessum fundum er fjallað um ýmis þau málefni sem eru efst á baugi í fjárlagagerð landanna hverju sinni. Enn fremur eru tiltekin mál tekin til umræðu sem hafa áhrif á fjárlagagerðina, til lengri eða skemmri tíma, sem lúta jöfnum höndum að nýjungum í fjárlagagerð og einstökum efnisþáttum þeirra.
Norræni fjárfestingarbankinn.
Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) var stofnaður 1975 til að styrkja norræna samvinnu og efnahag Norðurlandanna. Með aukinni alþjóðavæðingu atvinnulífs á Norðurlöndunum og stuðningi eigenda hans hefur starfsemi bankans orðið alþjóðlegri. Lán og ábyrgðir eru nú ekki aðeins veittar til verkefna á Norðurlöndum heldur og utan þeirra. Þannig er hlutverk bankans nú að nýta traust lánshæfi á alþjóðamarkaði til að veita lán á almennum bankakjörum til fjárfestingarverkefna einkaaðila og opinberra aðila í þágu bæði Norðurlanda og þeirra ríkja utan Norðurlanda, sem fá lán eða ábyrgðir frá bankanum. Í ljósi aukinnar alþjóðlegrar starfsemi bankans og þeirrar auknu áhættu sem því fylgir er talið mikilvægt að treysta með formlegum hætti alþjóðlega stöðu bankans.
Sem fyrr segir hafa fjármála- og efnahagsráðherrar Norðurlanda nú samþykkt nýtt samkomulag um Norræna fjárfestingarbankann með þessi meginmarkmið að leiðarljósi og var það undirritað í Ósló 23. október 1998 af fulltrúum stjórnvalda allra Norðurlandanna með fyrirvara um samþykkt viðkomandi þjóðþinga. Jafnframt hefur Forsætisnefnd Norðurlandaráðs fjallað um og samþykkt hið nýja samkomulag. Samkomulagið hefur verið lagt fyrir þjóðþing einstakra landa til afgreiðslu og er miðað við að það taki gildi í upphafi árs 1999. (Sjá nánar um Norræna fjárfestingarbankann, kafla 26.1.).
Önnur starfsemi á vegum fjármálaráðherra.
Auk þeirra verkefna sem hér hafa verið nefnd er rétt að vekja athygli á að fjármálaráðherrar Norðurlanda hafa um árabil haft náið samstarf og samráð á vettvangi ýmissa alþjóðastofnana. Þannig hafa ráðherrarnir samráð fyrir fundi Alþjóðagjaldeyris-sjóðsins eins og áður hefur verið minnst á. Enn fremur má nefna hliðstætt samráð vegna funda á vegum OECD. Meginlínurnar eru gjarnan lagðar á norrænum ráðherrafundum og þeim er fylgt eftir á hinum ýmsu fundum innan OECD, jafnt ráðherrafundum sem öðrum. Þá má nefna aðild ráðherranna að Eystrasaltsráðinu, ásamt fjármálaráðherrum Þýskalands, Póllands og Eystrasaltsríkjanna, en þessir aðilar halda að jafnaði einn fund á ári. Á fundi þessara aðila síðastliðið vor var meðal annars fjallað um stöðu undirbúnings Efnahags- og myntbandalagsins, atvinnumál og uppbyggingu og þróun velferðarkerfisins og hugsanlegar breytingar í lífeyrismálum. Loks má nefna starfsemi Evrópu-bankans í London. Norðurlöndin eiga þrjá fulltrúa í stjórn bankans sem hafa náið en óformlegt samráð þar sem leitast er við að samræma norræn sjónarmið.
10. Orkumál.
Samstarf Norðurlandanna á sviði orkumála hefur styrkst og öðlast aukið vægi á undanförnum árum. Starfið byggir einkum á yfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlandanna um sjálfbæra orkuöflun á Eystrasaltssvæðinu, sem samþykkt var í Bergen árið 1997 og tillögum sem fram koma í skýrslu orkuráðherra Norðurlanda til forsætisráðherranna frá nóvember 1997. Það byggir enn fremur á skýrslu orkuráðherra til Norðurlandaráðs frá nóvember 1996. Í henni er gerð grein fyrir starfinu og áformum um eflingu þess. Haustið 1998 hefur, í tengslum við undirbúning áætlunar Íslands um starf á formennskuári, verið unnið að gerð rammaáætlunar um samstarfið og stefnt er að því að hún verði samþykkt snemma á næsta ári. Hér á eftir verður gerð grein fyrir helstu verkefnum á árinu 1998.
Norrænn raforkumarkaður.
Á þessum áratug hafa átt sér stað miklar breytingar á skipan raforkumála á Norðurlöndum. Norðmenn riðu á vaðið með breytingar og gáfu viðskipti með rafmagn frjáls og síðan hafa bæði Svíar og Finnar komið á markaðsbúskap í viðskiptum með raforku. Í Danmörku er nú unnið að breytingum á löggjöf og skipulagi raforkumála, meðal annars til þess að hrinda í framkvæmd tilskipun ESB um innri markað á sviði raforku, en frestur til þess rennur út 19. febrúar 1999. Þessar breytingar hafa haft talsverð áhrif á viðskipti með raforku milli ríkjanna. Um árabil hefur verið skilvirkt samstarf og mikil viðskipti með raforku milli Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. Samstaða er um að mikilvægt sé að tryggja að framhald verði á samstarfi ríkjanna og þróa raforkuviðskipti á milli landanna í ljósi áðurnefndra skipulagsbreytinga. Loks er lögð áhersla á samvinnu við önnur ríki við Eystrasalt. Síðla hausts var settur á fót starfshópur til að sinna þessu verkefni.
Meðal annars með tilvísun til tilmæla Norðurlandaráðs 6/1996/när voru á árinu könnuð áhrif raforkuvinnslu á Norðurlöndum á losun gróðurhúsalofttegunda og umhverfi.
Markaður fyrir jarðgas.
Gerðar hafa verið athuganir á aukningu markaðar fyrir jarðgas á Norðurlöndum og grannsvæðum þeirra í austri. Á árinu var settur á fót samstarfshópur um efnið. Ísland hefur ekki tilnefnt fulltrúa í hópinn. Hópurinn á að fylgjast með og vinna að verkefnum sem miða að því að byggja upp kerfi til að flytja jarðgas um Norðurlöndin og grannsvæðin í austri, m.a. til að draga úr umhverfisáhrifum orkuvinnslu og orkunotkunar. Jafnframt á hópurinn að fylgjast með vinnu á vegum Evrópusambandsins á þessu sviði en sem kunnugt var á árinu samþykkt tilskipun um innri markað á sviði jarðgass.
Orku- og umhverfismál.
Á árinu 1998 hefur starfað sameiginlegur starfshópur ráðherranefndanna um orkumál og umhverfismál. Verkefni starfshópsins hafa fyrst og fremst snúist um viðfangsefni sem tengjast rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Starfshópurinn gekkst m.a. fyrir ráðstefnu í febrúar 1998 í Gautaborg í tengslum við fund Norðurlandaráðs. Á ráðstefnunni var farið yfir niðurstöður ráðstefnu aðildarríkja samningsins í Kyoto, túlkun bókunarinnar sem þar var samþykkt og rætt um annars vegar verkáætlun vegna undirbúnings aðildarríkjaráðstefnunnar í Buenos Aires, sem haldin var í nóvember, og hins vegar verkefni til lengri tíma. Í maí var haldinn vinnufundur í Helsingfors um bindingu koltvíoxíðs. Í október var haldin ráðstefna og vinnufundir í Stokkhólmi meðal annars um bindingu koltvíoxíðs í gróðri og viðskipti með losunarheimildir. Meðal verkefna sem unnið er að á vegum hópsins eru athuganir á viðskiptum með losunarheimildir milli Norðurlanda, athugun á losun þriggja flokka gróðurhúsalofttegunda þ.e. HFC, (P)FC og SF6 og möguleikum til að nýta önnur efni í þeirra stað og loks yfirlit um og mat á sveigjanleikaákvæði í Kyotobókuninni. Ákveðið hefur verið að starfshópurinn starfi áfram a.m.k. næstu tvö árin.
Orkurannsóknir.
Norræna orkurannsóknaráætlunin hefur frá árinu 1987 verið skipulögð sem markáætlun til þriggja eða fjögurra ára í senn. Markmiðið hefur verið að styrkja grunnþekkingu og efla samstarf háskóla, rannsóknastofnana o.fl. með það fyrir augum að stuðla að bættri samkeppnisstöðu landanna. Núverandi rannsóknaáætlun lýkur á árinu 1998 og ný áætlun, sem nær til áranna 1999–2002, tók gildi frá og með áramótum 1998/99. Áætlunin tekur til sjö sviða. Kostnaður við áætlunina greiðist að mestum hluta beint af löndunum af því fjármagni sem veitt er til orkurannsókna.
Evrópusambandið, Evrópska efnahagssvæðið og alþjóðaorkumál.
Á fundum ráðherranefndarinnar, embættismannanefndarinnar og starfshópa á hennar vegum er að jafnaði fjallað um mál er varða Evrópska efnahagssvæðið og þróun á sviði orkumála innan Evrópusambandsins. Fyrir fundi í ráðherraráði Evrópusambandsins um orkumál eru haldnir óformlegir fundir norrænu orkuráðherranna og sitja fulltrúar Íslands og Noregs þá fundi.
Samstarf við grannsvæði Norðurlanda.
Í yfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlanda frá 27. júní 1998 um sjálfbæra þróun á sviði orkumála umhverfis Eystrasaltið fólu þeir orkuráðherrunum að vinna að tilteknum verkefnum. Þessi verkefni lúta að möguleikum til að auka nýtingu endurnýjanlegra orkulinda, notkun jarðgass í stað olíu eða kola, samvinnslu raforku og varma, orkusparnaði o.fl. Í nóvember 1998 var lögð fyrir forsætisráðherra Norðurlanda skýrsla þar sem fjallað er um fyrstu niðurstöður þessara verkefna. Í tengslum við þetta starf hefur starfshópur sá er vinnur að málinu meðal annars sótt ríkin við Eystrasalt heim og gengist fyrir ráðstefnum um orkumál á Norðurlöndum og í ríkjunum við Eystrasaltið. Á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og „Baltic Task Force“ Evrópusambandsins var um mánaðarmótin nóvember/desember haldinn fundur orkuráðherra Norðurlanda og orkuráðherra landanna við Eystrasaltið. Á fundinum sem haldinn var í Stafangri var m.a. samþykkt verkáætlun fyrir næsta ár. Ákveðið var að efla samstarf landanna við Eystrasalt á þessu sviði. Sérstök áhersla er lögð á verkefni er lúta að þróun sameiginlegs raforkumarkaðar, mat á því hvaða forsendur þurfa að vera til staðar til að auka notkun jarðgass og loks könnun á leiðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ákveðið var að setja á fót vinnuhópa til að sinna þessum málum á næsta ári. Einnig var ákveðið að setja á stofn vinnuhóp til að athuga leiðir til skilvirkari orkunýtingar, þar sem athygli verði m.a. beint að blandaðri framleiðslu raforku og varma. Húshitun verður könnuð, þ.m.t. breytt tækni, aðferðir við fjármögnun framkvæmda og nauðsynlegur lagarammi. Ákveðið var að fjalla um árangur þessa starfs á ráðherrafundi, sem haldinn verður í Finnlandi í október 1999.
Á vegum ráðherranefndarinnar hefur verið komið upp þjálfunaráætlun annars vegar fyrir verk- og tæknifræðinga sem starfa hjá orkufyrirtækjum og hins vegar fyrir kennara við háskóla og tækniskóla í Eystrasaltsríkjunum. Áætlunin miðar einkum að því að tengja betur hagræna þætti inn í áætlanagerð og rekstur á orkusviðinu.
Niðurlag.
Starf Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði orkumála er gagnlegt fyrir Ísland, þó svo að orkulindir okkar, nýting þeirra og orkukerfi landsins sé frábrugðið því sem er annars staðar á Norðurlöndum. Mikilvægt er að fylgjast með þróun raforkumarkaðarins í löndunum og skiptast á upplýsingum um skipan þessa málaflokks meðal annars vegna þeirrar endurskoðunar á löggjöf um orkumál sem nú er unnið að. Starf ráðherranefndarinnar í tengslum við rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar hefur stuðlað að betri og víðtækari þekkingu á því sviði og létt undirbúning Íslands vegna vinnu í tengslum við samninginn. Mikilvægt er að því starfi verði haldið áfram. Íslendingar hafa notið góðs af orkurannsóknaráætluninni og hefur af Íslands hálfu verið lögð áhersla á að því samstarfi verði haldið áfram. Þá eru fundir á vegum ráðherranefndarinnar mikilvægir til að skiptast á skoðunum varðandi orkumál er tengjast Evrópska efnahagssvæðinu og öðru alþjóðlegu samstarfi á sviði orkumála. Í framhaldi af yfirlýsingu forsætisráðherranna í Bergen 1997 hafa verkefni ráðherranefndarinnar í auknum mæli beinst til grannsvæðanna í austri en vaxandi áhersla verður nú lögð á norðvestursvæðið.
11. Landbúnaður og skógrækt
Norrænt samstarf á sviði landbúnaðar og skógræktar stendur á gömlum merg og hefur verið mjög virkt frá upphafi aldarinnar. Þetta samstarf skilar stöðugt hugmyndum að nýjum viðfangsefnum og áherslum inn í það starf sem unnið er á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar. Á liðnu ári var unnið áfram eftir þeirri starfsáætlun fyrir tímabilið 1996–2000 sem samþykkt var í Kupio í Finnlandi á 47. þingi Norðurlandaráðs. Eins og í öðrum starfsáætlunum innan hins norræna samstarfs er gengið út frá meginmarkmiðunum þremur, norrænu notagildi, tengingu við alþjóðamál einkum innan Evrópusamstarfsins og tengslum við svo nefnd grannsvæði í Eystrasaltsríkjunum og Norðvestur-Rússlandi.
Megináherslur í hinni nýju samstarfsáætlun eru á verkefni sem hafa skírskotun og tengsl til eftirfarandi fjögurra sviða:
– Gæði í landbúnaðarframleiðslunni með áherslu á umhverfið.
– Varðveisla erfðafræðilegs fjölbreytileika.
– Byggðaþróun á landssvæðum sem eru sérstaklega háð landbúnaði og skógrækt.
– Sjálfbær skógrækt.
Náttúrulegar forsendur til landbúnaðar og skógræktar skera sig nokkuð úr því sem eru í flestum löndum álfunnar og öflugt norrænt samstarf á þessum sviðum er því sérlega verðmætt t.d. við sókn norrænu landanna inn í rannsóknaáætlanir Evrópubandalagsins. Af þeim ástæðum er meðal annars lögð mikil áhersla á þau beinu tengsl sem eru milli NEJS og verkefna sem lúta að rannsóknum og þróun. Landbúnaðarráðherrarnir hafa því lagst eindregið gegn þeim hugmyndum sem lúta að því að færa sem mest af samstarfinu á þessu sviði til samráðsnefndar menntamálaráðuneytanna. Landbúnaðarráðherrarnir telja að málaflokknum sé betur fyrir komið í núverandi kerfi og þjóni sem mjög gott verkfæri í þróun allrar samvinnu innan atvinnuvegarins.
Ráðherrafundirnir eru nú tveir á ári. Sumarfundurinn er umfangsmeiri og er skipt í tvær málstofur þar sem fjallað er annars vegar um landbúnað og hins vegar um skógrækt auk sameiginlegrar umræðu. Að þessu sinni var sumarfundurinn haldinn í Svíþjóð dagana 24.–25. júní. Á sameiginlega hluta fundarins var fjallað um þátt líftækninnar í nýtingu náttúruauðlindanna og þá siðfræðiumræðu sem nú á sér stað í Svíþjóð gagnvart beitingu hennar. Hnattrænar umhverfisbreytingar og þau áhrif sem breytingar sem spáð er kunna að valda á Norðurlöndunum voru einnig teknar fyrir. Að lokum var fjallað um umhverfismál í Eystrasalti í tengslum við samstarf þjóðanna sem eiga þar land að. Í landbúnaðardeild fundarins var einkum fjallað um eftirfylgni Norðurlandanna gagnvart ásetningi landanna í tengslum við World Food Summit innan landanna, í norrænu samstarfi og í alþjóðlegu samstarfi. Einnig var fjallað um margþætt hlutverk landbúnaðarins gagnvart byggðaþróun. Í skógræktardeildinni voru tekin fyrir málefni af svipuðum toga en auk þess sérstaklega fjallað um hlutverk innfluttra plantna í skógrækt, málefni sem er ofarlega á baugi hér á landi. Á ráðherrafundinum var einnig til umræðu stefnumörkun gagnvart varðveislu erfðabreytileikans sem hlýtur mikið vægi í framkvæmdaáætlun þeirri sem gildir til ársins 2000. Ljóst er að sú umræða verður fyrirferðamikil árið 1999 þegar Ísland fer með formennsku í Norðurlandaráði.
Stofnanir sem heyra undir ráðherranefnd landbúnaðar og skógræktar (MR-JS) hafa fengið háa einkunn með hliðsjón af „norrænu notagildi“ og virðist það jafnvel styrkjast vegna hlutverks þeirra í að fylgja málum eftir í alþjóðlegri umræðu svo sem gagnvart varðveislu erfðaefnis og líffræðilegum fjölbreytileika og sjálfbærri nýtingu lands í matvælaframleiðslunni. Norræni Genbankinn kemur með mjög virkum hætti að þessum málaflokkum gagnvart alþjóðlegu samstarfi og er einnig mjög virkur í samstarfi við Eystrasaltsríkin og Rússland. Efling hefur einnig orðið í starfsemi Norræna Genbankans fyrir húsdýr. Stofnanir og helstu langtímaverkefni á vegum NEJS er:
– Norræni genbankinn fyrir nytjaplöntur (NGB),
– Norræni genbankinn fyrir húsdýr (NGH),
– Norræna samstarfsráðið fyrir landbúnaðarrannsóknir (NKJ),
– Norræna bútækniráðið (NTS),
– Samstarfsnefndin um norrænar skógræktarrannsóknir (SNS),
– Samstarf landbúnaðarháskólanna (NOVA),
– Norræna dýralæknasamstarfið (NKVet),
– Samstarfsnefnd um plöntusjúkdóma og samræmingu reglna um innflutning plantna.
Auk þessara viðfangsefna veitir NEJS fjármagni til ýmissa verkefna sem rekin eru á verkefnagrundvelli á grundvelli umsókna. Þar má nefna gæðastýringu í landbúnaði með sérstaka áherslu á umhverfismál, varðveislu erfðaefnis, þróun landbúnaðar og skógræktar og sjálfbæra framleiðslu skógarnytja. Embættismannanefndin hefur fjármagnað verkefni í samvinnu við embættismannanefndina um umhverfismál (EK-Miljø) og embættismannanefndina fyrir byggðaþróun (NERP). Þessum verkefnum er ekki lokið. Þá hefur embættismannanefndin lagt mikla áherslu á matvælaöryggi þar á meðal þá hættu sem stafar af lyfjaleyfum í matvælum og öryggi matvæla með hliðsjón af salmonellumengun. Þessi verkefni verða áframhaldandi ofarlega á verkefnaskrá nefndarinnar. Á árinu var að mestu lokið við fjögur viðamikil rannsóknaverkefni sem styrkt voru af umhverfisáætlun Norðurlandaráðs og stýrt af NKJ og SNS. Íslendingar hafa tekið virkan þátt í þremur þessara verkefna sem snúa að hringrás næringarefna í jarðvegi og áhrifum breytinga í samsetningu lofthjúpsins á vöxt plantna. Í báðum verkefnaflokkum hefur þátttaka íslenskra vísindamanna gert þeim kleift að taka þátt í umsóknum í fjórðu rammaáætlun Evrópusambandsins og einnig skapað mikilvægan þekkingargrunn vegna þátttöku í alþjóðlegri umræðu um umhverfismál svo sem hnattrænar loftslagsbreytingar. Á árinu var á vegum NKJ gerð úttekt á faglegum gæðum og ávinningi þessara verkefna og var formennska þeirrar úttektar í höndum Íslendinga. Niðurstaða þeirrar úttektar var mjög á þann veg að mæla með áframhaldandi samstarfi þjóðanna á sviði landbúnaðartengdra umhverfisverkefna.
Í lok ársins var hafinn undirbúningur að starfi næsta árs með því að Ísland kynnti formennskuáætlun á sviði landbúnaðar og skógræktar. Auk þess sem lögð er áhersla á að ljúka verkefnum sem eru í gangi, er lögð áhersla á að efla samvinnu landa í vesturhluta Norðurlanda og auka þátttöku Færeyja og Grænlands og kynna gagn og virkni norrænar samvinnu fyrir öðrum nágrannalöndum í vestri. Þá verður lögð áhersla á varðveislu og endurheimt landgæða með hliðsjón af því að landbúnaður byggir í grundvallaratriðum á hæfilegri landnýtingu og lögð áhersla á framlag landbúnaðarstofnana á Íslandi til þeirrar umræðu. Enn fremur er lagt til að kannaðir verði möguleikar á að koma á skipulögðum skiptum æskufólks úr sveit milli hinna norrænu landa.
12. Sjávarútvegsmál
Í norræna sjávarútvegssamstarfinu setti umræða um umhverfismerkingar í víðum skilningi mestan svip á árið 1998. Sem fyrr var einnig reynt að styrkja innviði sjávarútvegsins í löndunum með stuðningi við ýmiss konar rannsóknir sem tengjast honum. Þessi áhersla er ekki ný og hefur verið sem rauður þráður í samstarfinu undanfarin ár.
Norræna samstarfið á sjávarútvegssviðinu fellur undir efnahags- og atvinnusamstarf í samræmi við breytingar sem gerðar voru á heildarskipulagi Norrænu ráðherranefndarinnar árið 1996. Unnið er eftir fjögurra ára samstarfsáætlun sjávarútvegssamstarfsins sem gildir fyrir árin 1997–2000. Sjávarútvegssamstarfið hélt sínum hlut í fjárveitingum frá fyrra ári og hafði til ráðstöfunar árið 1998 um 7 millj. d.kr. 600 þús. d.kr. voru lagðar í samstarfsverkefni sjávarútvegs- og umhverfisgeiranna. Frá því þessu þverfaglega samstarfi var komið á og fram til þessa hefur framlag sjávarútvegssamstarfsins numið 1 millj. d.kr. árlega og svo verður áfram. Undir lok ársins lauk endurskoðun á fyrirkomulagi þess samstarfs og hefur ný og breytt samstarfsáætlun verið samþykkt í báðum geirum. Skipulagi samstarfsins er nokkuð breytt, stýrihóp er falið að leita verkefna og samþykkt þeirra er ekki lengur háð samþykki embættismannanefndanna. Stýrihópurinn hefur vald til að verja þeim 2 millj. d.kr. á ári, sem í þetta samstarf fara, í samræmi við árlega framkvæmdaáætlun sem embættismannanefndirnar samþykkja.
Meðal verkefna sem styrkt voru af fé samstarfsins var ráðstefna um samspil veðurfars og göngumynsturs þorska og rannsóknir á vinnuumhverfi í fiskvinnslu, öryggismálum sjómanna og nýjum möguleikum varðandi uppsjávarfiska. Þá var árs hafsins minnst með myndarlegum hætti með gerð vefsíðu fyrir norræn ungmenni og í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Ósló var haldin sýning á sjávarútvegsverkefnum úr einum skóla í hverju norrænu landi.
Í maí kynnti danska ráðgjafarfyrirtækið Mandagmorgen skýrslu sína um þær kröfur sem gerðar verða til norræns sjávarútvegs á næstu árum. Þar komu m.a. fram ábendingar um að sjávarútvegur eigi á hættu að öðlast ímynd ofnýtingar og sóunar, þar sem afurðum sé ekki að treysta m.a. vegna vaxandi mengunar. Fram kom í úttekt á fiskveiðistjórn einstakra landa að á Íslandi væri líkast til stundaður sjálfbærasti sjávarútvegur á Norðurlöndum. Á árinu lauk fyrsta hluta upplýsingarherferðar sem efnt var til í tilefni af stóraukinni umræðu um umhverfismerkingar sjávarafurða. Umræðu um framhald hennar er ekki lokið. Leitað hefur verið til Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) um skýrslu um sjálfbærni veiða úr einstökum stofnum í Norðurhöfum. Þar verður byggt á þeirri vinnu sem hjá ICES hefur verið lögð í að skilgreina hvað felist í varúðarleiðinni svokölluðu. Fyrsta skýrslan af því tagi gæti orðið til á næsta ári. Um er að ræða nokkurs konar einkunnargjöf fyrir stjórn veiða fyrir næstliðið ár. Einnig hefur verið reynt að setja þessi mál í víðara samhengi svo sem innan FAO og WTO og var efnt til tæknifundar FAO að norrænu frumkvæði um viðmið fyrir merkingar afurða síðla árs. Búast má við að stór hluti þessa samstarfs verði áfram helgaður því að svara með ýmsum hætti kröfum um að sjálfbærni sé höfð að leiðarljósi í sjávarútvegi og hvernig neytendur geti sannreynt það.
Í tengslum við 50. þing Norðurlandaráðs var haldinn fundur sjávarútvegsráðherra Norðurlanda og ráðherrarnir hittust einnig tvisvar í Stokkhólmi m.a. vegna kynningarinnar á skýrslu fyrirtækisins Mandagmorgen. Embættismannanefndin hittist fjórum sinnum. Svíar höfðu á hendi formennsku í starfinu á þessu ári en Íslendingar taka sem kunnugt er við formennsku um áramót.
Hafin verður á næsta ári endurskoðun samstarfsáætlunar sjávarútvegssamstarfsins en gildandi áætlun er til ársins 2000. Megin markmið hennar er að stuðla að því að efla sjávarútveg sem mikilvægan þátt þjóðlífs í löndunum. Það telst sérstaklega mikilvægt að styðja verkefni sem snerta þau lönd eða þá landshluta sem háðastir eru sjávarútvegi. Markmiðin fela í sér áherslu á verndun auðlinda sjávar og skynsamlega nýtingu þeirra. Ekki er ástæða til að ætla að þessu verði breytt en vænta má áherslubreytinga hvað varðar form samstarfsins, ekki síst í ljósi þess að það hefur undanfarin ár orðið pólitískara, í breiðum skilningi þess orðs. Mikilvægur þáttur í samstarfinu er og verður starf fiskveiðiráðgjafa Norrænu ráðherranefndarinnar sem sér um daglegan rekstur og samræmingu. Formlegt samstarf er nú á hendi embættismannanefndar sem felur annars vegar vísindanefnd að meta umsóknir og hins vegar vinnunefnd frekari umsjón starfsins.
13. Samgöngumál.
Eins og fram hefur komið í fyrri skýrslum samstarfsráðherra fer norrænt samstarf um samgöngumál að mestu fram í norrænni embættismannanefnd um samgöngumál (NET), en í henni eiga sæti ráðuneytisstjórar samgönguráðuneytanna á Norðurlöndunum, ásamt staðgenglum og ráðgjöfum. Nefndin hefur að jafnaði haldið tvo fundi á ári og svo var einnig á þessu ári. Samgönguráðherrar Norðurlandanna héldu fund í Ósló í nóvember í tengslum við þing Norðurlandaráðs.
Á þessum fundum voru eftirtalin mál m.a. til umfjöllunar:
Efst á baugi í samgöngumálum Norðurlandanna.
Á fundum NET kynnir hvert land það sem efst er á baugi í samgöngumálum hvers lands.
Í ár voru samræmdar samgönguáætlanir, framkvæmdir í járnbrautarkerfinu og skipulagsbreytingar í sjó- og flugsamgöngum ofarlega á blaði í Finnlandi, endurskoðun ferjuflotans og hugmyndir um uppbyggingu flugvallarins í Færeyjum, samræmd áætlanagerð og forgangsröðun framkvæmda í samgöngum í Noregi og umhverfismál samgöngukerfisins og almenningssamgöngur í Danmörku. Jafnframt var greint frá breytingum á samgönguráðuneytunum í Svíþjóð og Danmörku.
Ísland gerði grein fyrir langtímaáætlun í vegagerð sem nær til ársins 2010, fjögurra ára áætlun í flugvallagerð og fjögurra ára áætlun í hafnagerð. Unnið er að samræmdri áætlun vegna framkvæmda við vegi, flugvelli og hafnir. Einnig var greint frá opnun Hvalfjarðarganga og þverun Gilsfjarðar.
Málefni, er varða EES/ESB og Norðurlönd, svo og annað alþjóðlegt samstarf.
Á fundum ráðherranna og NET voru kynnt og rædd þau mál sem til umræðu voru á árinu í samskiptum EES/ESB og Norðurlanda. Af einstökum málum má nefna umhverfismál samgöngugeirans og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA). Einnig var væntanleg tilskipun ESB um flugvallagjöld rædd. Hvað varðar umferðaröryggismál var skipst á skoðunum um áfengismagn í blóði ökumanna og rædd tillaga ESB um að 0,5 prómill verði lögleidd innan ESB og EES. Grænbók um hafnir og siglingar verður gefin út af ESB á næstunni og kom fram að þar væri ýmislegt sem löndin þyrftu að athuga vel.
Störf vinnuhópa á árinu 1998.
Á árinu störfuðu vinnuhópar á vegum NET að eftirtöldum verkefnum:
– Umferðaröryggismál í Eystrasaltslöndunum. Starf þetta var unnið á ábyrgð Finnlands og lauk með námstefnu í Litháen, þar sem rússnesk þýðing á umferðaröryggishandbók var kynnt.
– Samgöngur og umhverfismál. Noregur greindi frá störfum vinnuhópsins. Helstu áhersluatriði snerta umhverfisgjöld og nauðsyn þess að framfylgja ákvæðum Kyoto-samningsins.
– Upplýsingatækni í samgöngumálum. Verkefnið er unnið á ábyrgð Norðmanna. Bráðabirgðaskýrsla var lögð fram í lok ársins en endanleg skýrsla verður tilbúin fyrri hluta næsta árs.
– Norðurlönd og ESB. Finnland fór með formennsku í þessum starfshópi. Skýrsla liggur fyrir.
Samstarfið í framtíðinni.
Það er sameiginlegt álit samgönguráðherra Norðurlandanna, að áhugi sé fyrir og þörf á að viðhalda norrænu samstarfi á sviði samgöngu-og umferðarmála. Þetta samstarf getur átt sér stað annað hvort innan vébanda Norrænu ráðherranendarinnar eða milli einstakra landa.
Samgöngumál snerta alla þætti þjóðlífsins og ekki óeðlilegt að þau séu vistuð á einum stað þótt þau gangi þvert á verkefni annarra ráðuneyta. Þetta á einkum við um umhverfismál samgöngugeirans, svo og upplýsingatækni í samgöngum.
Samstarf Norðurlanda í samgöngumálum á næstu árum mun greinast í þrennt. Í fyrsta lagi samnorræn verkefni en á því sviði hefur að undanförnu verið lögð áhersla á upplýsingatækni í samgöngu- og umferðarmálum, sbr. hér að framan.
Í öðru lagi mun kastljósið beinast að Evrópumálum. Þar er fyrst að nefna TEN-verkefnið eða þann þátt þess sem nær yfir nyrstu héruð Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Einnig verður lögð áhersla á umhverfismál og hugað að mengun frá hinum ýmsu samgöngutækjum, aðgengi og nýtingu annarra brennsluefna en nú eru notuð og tekið upp samstarf við ríki er liggja að Norðurlöndunum um að draga úr mengun samgöngutækja. Eins og fram kemur hér að framan hefur sérstakur starfshópur unnið að greinargerð um stærð og mikilvægi samgöngugeirans á Norðurlöndunum til undirbúnings formennsku Finnlands í Evrópusambandinu á næsta ári. Haldið verður áfram umræðu um mál er snerta ESB og EES og um framkvæmd og fullgildingu tilskipana ESB á Norðurlöndunum.
Í þriðja lagi verður lögð áhersla á að ræða samgöngur við grannsvæðin, einkum við Rússland og Eystrasaltsríkin. Milli þessara ríkja og norrænu landanna, einkum Finnlands og Svíþjóðar, er vaxandi bílaumferð og er meðalaldur bifreiða í þessum löndum hár og ástand þeirra lélegt. Litið er á það sem sérstakt verkefni að vinna að bættu öryggi umferðar milli þessara landa, að draga úr mengun og að gera umferðina ábatasamari en nú er raunin.
14. Samstarf við grannsvæði Norðurlanda.
Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við grannsvæðin tekur til eftirfarandi starfsemi: starfsemi upplýsingaskrifstofanna, upplýsingamiðlunar og samskipta, styrkjakerfa og þróunarverkefna á ýmsum sviðum. Fjárveiting ráðherranefndarinnar til grannsvæðasamstarfsins var 52 millj. d.kr. á árinu. Þar að auki voru yfirfærðar 3 millj. d.kr. af fjárveitingum ársins 1997 til menntunar- og rannsóknaverkefna í Norðvestur-Rússlandi. Auk þessa renna u.þ.b. 33 millj. d.kr. frá öðrum samstarfssviðum til samstarfs við grannsvæðin.
Upplýsingaskrifstofur og samskipti.
Upplýsingaskrifstofurnar í Vilníus, Ríga, Tallinn og Pétursborg hafa gegnt mikilvægu hlutverki við framkvæmd styrkjakerfanna, Nordpraktik-verkefnisins svo og Östjobb-verkefnisins, sem er nýtt. Skrifstofurnar í Eystrasaltsríkjunum stóðu á fyrsta ársfjórðungi ársins 1998 fyrir röð námsstefna með það að markmiði að miðla reynslu norrænu ríkjanna við undirbúning aðildar að ESB. Vegna mikillar eftirspurnar hafa allar skrifstofurnar haldið námskeið í norrænum tungumálum og þær hafa einnig staðið fyrir fjölmörgum menningarviðburðum til að kynna norræna menningu og norræn gildi.
Til að koma til móts við þær óskir sem fram hafa komið á fundum samstarfsráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna, hefur upplýsingamiðstöðvum og tengiliðum fjölgað. Í Eistlandi er nú upplýsingamiðstöð í Tartu og tengiliður í Narva sem liggur við rússnesku landamærin. Í Lettlandi hefur verið stofnað til samstarfs við háskólann og ýmis samtök í Daugavpils um upplýsingamiðlun.
Til að hægt sé að miðla upplýsingum um starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar, og þá sérstaklega um styrkja- og dvalarkerfin, hafa verið skipaðir tengiliðir í Archangelsk og Petrozavdsk. Ráðherranefndin aðstoðar við að færa formennskuna í svæðisráði Barentsráðsins til Múrmansk með því að kosta starfsmann sem aðstoðar við að byggja upp hina nýju skrifstofu svæðisráðsins í lénsstjórnkerfi Múrmansk. Þessi starfsmaður hóf störf í desember 1998 og gegnir hann einnig hlutverki tengiliðs ráðherranefndarinnar í Múrmansk.
Styrkjakerfi.
Styrkjakerfin voru endurskoðuð á árunum 1997–1998 með það að markmiði að tryggja norrænt notagildi þeirra. Á árinu 1998 hafa styrkir til embættismanna verið aðgreindir frá öðrum styrkjum. Upplýsingaskrifstofurnar í löndunum hafa umsjón með styrkjum til embættismanna en markmiðið er að minnka skriffinnsku og greiða fyrir samskiptum við stjórnkerfi hvers lands. Styrkjakerfið fyrir kennara, vísindamenn og nemendur hefur þróast og styrkir nú einnig tengslanet og frjáls félagasamtök. Styrkjakefi fyrir þingmenn hefur gert hópi þingmanna frá Eystrasaltsríkjunum og Rússlandi kleift að heimsækja Norðurlönd og kynna sér þingræði og lýðræði.
Verkefnastarfsemi.
Verkefnastarfsemin skiptist í fjögur svið: lýðræði og velferð, menningarmiðlun, sjálfbær nýting auðlinda og markaðsþróun. Sem dæmi um verkefni sem stuðla eiga að þróun lýðræðis má nefna stuðning til þróunar frjálsra félagasamtaka. Innan verkefnaáætlunar ráðherranefndarinnar er lokið einu verkefni sem miðar að því að mennta leiðtoga fyrir frjáls félagasamtök utan höfuðborgarsvæðanna. Einnig er unnið að því að koma á tengslaneti milli frjálsra samtaka á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum, sem með miðlun upplýsinga og reynslu mun efla samskipti og samstarf.
Á sviði velferðarmála hafa fyrirbyggjandi aðgerðir og aðgerðir sem stuðla að auknu heilbrigði haft mikið vægi. Má þar nefna baráttuna gegn smitsjúkdómum, þar sem íslensk sérþekking hefur nýst, og fyrirbyggjandi aðgerðir gegn krabbameini. Einnig hefur verið unnið að því að koma á nothæfu kerfi tölfræðiupplýsinga en slíkt kerfi er grundvöllur skipulagningar og ákvarðana um aðgerðir á sviði heilbrigðismála.
Menningarmiðlun er eitt af mikilvægustu hlutverkum upplýsingaskrifstofanna. Þýðingar á norrænum bókmenntum vega þungt en ráðherranefndin hefur veitt styrki til 22 þýðinga. Upplýsingaskrifstofurnar hafa einnig mikilvægu hlutverki að gegna við framkvæmd Valhalla-verkefnisins, sem ætlað er að auka upplýsingastreymi og stuðla að myndun tengslaneta milli þeirra sem starfa að barna- og æskulýðsmennningu á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum.
Í því skyni að efla sjálfbæra nýtingu auðlinda hefur ráðherranefndin styrkt umhverfisbætandi aðgerðir gegnum styrktarsjóð NEFCO. Lokið hefur verið við verkefni sem hafa það að markmiði að þróa aðferðir og tækni til að fylgjast með ástandi umhverfisins á grannsvæðunum. Ráðherranefndin hefur tekið þátt í að tryggja varðveislu plöntuerfðaefnis á Vavilov-stofnuninni í Pétursborg ásamt því að koma að endurnýjun stofnunarinnar, þannig að hún geti á ný orðið einn af leiðandi genbönkum veraldar.
Með því m.a. að miðla reynslu og halda uppi styrkja- og dvalarkerfi hefur Norræna ráðherranefndin aðstoðað við að móta innviðagerð til grundvallar virku markaðshagkerfi. Nordpraktik-áætlunin veitir ungum starfsmönnum fyrirtækja á grannsvæðunum möguleika á starfsþjálfun hjá norrænum fyrirtækjum. Á árinu hófst svonefnd Östjobb-áætlun sem gerði tveimur hópum norrænna ungmenna kleift að dveljast í Rússlandi og í Ríga. Einnig má nefna útflutningsþróunarverkefni í Lettlandi sem Íslendingar leiddu en u.þ.b. 50 lettnesk fyrirtæki eiga aðild að því tengslaneti sem spratt af verkefninu.
Samstarfsáætlun Norðurskautssvæðisins.
Norðurskautssamstarfið er nú hluti af grannsvæðasamstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar. Auk samstarfsáætlunar um málefni Norðurskautssvæðisins hefur á árinu verið unnið að undirbúingi rannsóknaáætlunar um málefni Norðurskautssvæðisins.
Innan samstarfsáætlunar Norðurskautssvæðisins hefur verið lögð mikil áhersla á málefni frumbyggja, lífskjör þeirra og afkomu. Innan ramma verkefnis um framleiðsluþróun, fullvinnslu og markaðsfærslu hefðbundinna afurða frá Norðurskautssvæðinu hefur nú verið gerð forkönnun vegna samískrar þekkingarmiðstöðvar og mun sú reynsla einnig nýtast á öðrum norðlægum svæðum. Einnig hefur verið gerð samburðarkönnun á lífskjörum Ínúíta og Sama, sem gefur tölfræðilegar upplýsingar um lífskjör þessara þjóða.
Samstarf um fjarlækningar er aðkallandi mál í Norðurskautssamstarfinu. Námsstefna með það að markmiði að stuðla að miðlun reynslu og koma á netkerfi var haldin á Íslandi á árinu.
Til að stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda á Norðurskautssvæðinu hefur ráðherranefndin tekið þátt í starfi innan ramma AEPS (Arctic Environment Protection Strategy). Innan þessa samstarfs eru verkefni sem miða að varveislu jurta- og dýraríkis á Norðurskautssvæðinu svo og samstarfsáætlun um verndun svæðisins.
15. Heilbrigðis- og félagsmál.
Ráðherrafundur.
Dagana 15. og 16. júní var árlegur fundur heilbrigðis- og félagsmálaráðherra haldinn í Sønderborg í Danmörku. Á fundinum var fjallað um ýmis helstu verkefni og vandamál í heilbrigðisþjónustu landanna. Má þar nefna samvinnu um styttingu biðlista sjúkrahúsa og aðgerðir til að bæta gæði og árangur þjónustunnar.
Á fundinum var samþykkt að talmeinafræðingar, fótaaðgerðarfræðingar og meinatæknar fengju aðild að samningum um gagnkvæma viðurkenningu á menntun heilbrigðisstétta á Norðurlöndum. Ráðherrarnir beindu þeim tilmælum til ferðaiðnaðarins að hann legði sitt að mörkum í baráttunni gegn kynferðislegri misnotkun barna. Mikil aukning berkla, kynsjúkdóma og fleiri smitsjúkdóma er gífurlegt vandamál í Eystrasaltsríkjunum og norðvesturhluta Rússlands. Norðurlönd hafa sameinast um að aðstoða þessi lönd við að fyrirbyggja og draga úr þessum sjúkdómum. Ráðherrarnir lögðu ríka áherslu á áframhaldandi fjárhagslegan og faglegan stuðning við þetta verkefni. Í lok fundarins voru kynntar aðgerðir dönsku ríkisstjórnarinnar sem miða að því að fyrirtæki og stofnanir taki aukna félagslega ábyrgð í samskiptum við starfsmenn sína.
Embættismannanefndin.
Norræna embættismannanefndin á sviði heilbrigðis- og félagsmála (ÄK-S) hélt þrjá fundi á árinu. Óhefðbundin læknisfræði var þema fundar í mars og kom fram tillaga af hálfu Dana um að koma á fót norrænni þvervísindalegri miðstöð á því sviði. Hin löndin töldu það hins vegar ekki tímabært þar sem í a.m.k. tveimur af löndunum væri í gangi víðtæk úttekt á þessum málum. Kynnt var skýrsla um norrænu velferðarsamfélögin í framhaldi af ráðstefnu ráðherranefndarinnar um „Velferðarsamfélag morgundagsins“, sem haldin var í Reykjavík árið 1996. Fjallað var um úttektina „Norðurlönd sem sameiginlegur heilsumarkaður“, þar sem athugaðir voru möguleikar á samvinnu landanna við að stytta biðlista og kaupa þjónustu hvert af öðru. Gerð var grein fyrir lokaskýrslu norræna átaksverkefnisins gegn krabbameini. Enn fremur var hefðbundin umfjöllun um fjárlagatillögur, þjónustusamninga og erindi frá Norðurlandaráði.
Á fundi í júní var, auk undirbúnings fundar ráðherranna, rædd úttekt á starfsemi NOPUS og hvernig unnt væri að fylgja eftir verkefninu um velferðarsamfélögin á Norðurlöndum.
Á dagskrá haustfundar voru fjárveitingar til rannsóknar- og samvinnuverkefna, þjónustusamningar við norrænar stofnanir og nefndir og væntanleg endurskoðun á norræna samningnum um félagslega þjónustu. Rætt var um málefni Eystrasaltslanda, samvinnu Norðurlanda og Japans í öldrunarmálum og helstu mál á dagskrá Evrópusambandsins. Af Íslands hálfu var gerð grein fyrir formennskuáætluninni árið 1999 á sviði heilbrigðis- og félagsmála. Kynnt var starfsemi Norræna heilsufræðaskólans í Gautaborg og framtíðaráform. Á síðari degi haustfundarins var haldinn samráðsfundur með fulltrúum Eystrasaltslandanna um málefni er snerta samskipti þeirra og Norðurlanda á sviði heilbrigðis- og félagsmála.
1. Norræni heilbrigðisfræðaháskólinn (NHV).
Norræni heilbrigðisfræðaháskólinn í Gautaborg, Svíþjóð, er samnorræn menntastofnun fyrir æðri menntun og rannsóknir innan heilbrigðisfræðinnar.
Árangur ársins 1998 var í samræmi við sett markmið. Þannig hafa aldrei fleiri lokið meistaragráðu frá skólanum eða 18 og eru það tvöfalt fleiri en að meðaltali síðastliðin fimm ár.
Á árinu var hafist handa við framtíðarstefnumótun fyrir skólann. Var m.a. hafin greining á því hvernig skólinn gæti helst nýst heilbrigðisþjónustunni í nánustu framtíð.
Gerður var samstarfssamningur milli skólans og Alþjóðaheilbrigðis-málastofnunarinnar varðandi réttindi sjúklinga. Var skólinn þannig gerður að svokölluðu WHO Collaborating Centre á því sviði.
Á annan tug Íslendinga stunduðu nám við skólann á árinu auk þeirra sem sóttu þar ráðstefnur og þeirra sem fengu stuðning og leiðsögn við rannsóknarverkefni. Ísland tekur sem áður beinan þátt í nokkrum norrænum rannsóknum sem stýrt er frá skólanum. Má þar m.a. nefna rannsókn á heilsufari barna.
2. Norræn stofnun til prófunar efna til tannlækninga (NIOM).
Fyrir íslenska tannlækna eru tengslin við NIOM hagkvæm vegna upplýsinga um gæði og aukaverkanir efna til tannlækninga. Ekki síst til þess að koma í veg fyrir að verið sé að nota efni áður en þau eru fullreynd.
Verkefnum NIOM er skipt í fjóra meginþætti:
– stöðlun („standariseringu“),
– prófun efna,
– rannsóknir og
– fræðslu.
Á alþjóðlegum vettvangi tekur NIOM þátt í mótun staðla varðandi gæði og öryggi í tannlækningum með þátttöku í ISO (International Organization for Standardization), CEN (Comité Européen de Normalisation) og FDI (Federation Dentaire Internationale).
NIOM starfar nú ekki aðeins á norrænum vettvangi heldur hefur stofnunin fengið heimild til starfsemi á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Í ljósi þess er í auknum mæli reynt að fjármagna rekstur stofnunarinnar með því að selja þjónustu hennar á þeim markaði.
3. Norræna lyfjanefndin (NLN).
Norræna lyfjanefndin er samstarfsvettvangur Norðurlanda í lyfjamálum. Kostnaður við störf nefndarinnar er um 3 miljónir s.kr. og greiðist að mestu af fjárlögum Norrænu ráðherranefndarinnar. Verkefni nefndarinnar eru m.a.:
– að stuðla að samræmingu laga, reglugerða og framkvæmd lyfjamála á Norðurlöndum,
– að stuðla að norrænni samvinnu um samstarf Evrópu um lyfjamál, innan Evrópsku lyfjaskrárnefndarinnar, EFTA, ESB og Lyfjamálastofnunar Evrópu (EMEA),
– að stuðla að norrænum rannsóknum og samvinnu um lyfjamál og vera ráðgefandi fyrir ríkisstjórnir Norðurlanda og Norrænu ráðherranefndina,
– að gera reglulega samanburð á lyfjanotkun og -kostnaði milli Norðurlanda (þar með talið ATC, DDD og ATCvet).
Stjórn nefndarinnar undirritaði nýlega samstarfssamning við Norrænu ráðherranefndina sem nær til næstu þriggja ára. Samkvæmt samningnum mun nefndin á næstu þremur árum leggja megináherslu á „rétta lyfjanotkun“ en það hefur í för með sér að nefndin mun með ýmsum ráðum og nýjum hugmyndum vinna að bættri lyfjanotkun og bættri læknismeðferð fyrir sjúklinga og þjóðfélög Norðurlanda.
NLN tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi og hefur fengið áheyrnarfulltrúa í ýmsa mikilvæga vinnuhópa um lyfjamál innan ESB. Nýjar tilskipanir ESB um lyfjamál eru sendar NLN til umsagnar. NLN hefur með styrk frá ráðherranefndinni tekið að sér aðstoð við Eystrasaltslöndin, Eistland, Lettland og Litháen við að skipuleggja lyfjamál í löndunum.
Norræna lyfjanefndin hefur ótvírætt mikla þýðingu fyrir Íslendinga. Við skipulag lyfjamála á Íslandi hefur einkum verið tekið mið af skipulagi þessara mála á hinum Norðurlöndunum en það hefur einmitt verið talið vera til fyrirmyndar fyrir önnur lönd.
4. Norræna rannsóknarnefndin á sviði vímuefna (NAD).
Aðalverkefni NAD (Nordiska nämnden för alkohol och drogforskning) er að efla og þróa þverfaglega samvinnu á sviði áfengis- og fíkniefnarannsókna. Rannsóknir þessar hafa yfirleitt verið samfélagslegar innan félagsvísinda og félagsgeðlækninga.
NAD leitast við að þróa og dýpka þekkingu á notkun áfengis og annarra fíkniefna; forvörnum, stefnu stjórnvalda í þessum efnum; skaðsemi efnanna og meðferð neytenda. Markmið NAD er að stuðla að öflugum norrænum rannsóknum á áfengis- og lyfjaneyslu og áhrifum hennar á samfélagið í heild sinni. NAD er samstarfsvettvangur fyrir Norðurlandabúa sem áhuga hafa á áfengis- og fíkniefnavandanum. NAD liðsinnir ekki einungis vísindamönnum heldur auk þess félagsráðgjöfum, sálfræðingum, sagnfræðingum og öðrum sem áhuga hafa á þessu starfi.
NAD gefur út eigin rit (ritröð NAD) og vinnur með „Nordisk Alkohol og Narkotika tidskrift“ (NAT) ásamt ensku útgáfunni „Nordic studies on Alcohol and Drugs“.
Á árinu var margvíslegum verkefnum veittur styrkur; svo sem SNAPS-verkefninu svo og nokkrum einstökum vísindamönnum til rannsókna á áfengis- og fíkniefnavandanum á Norðurlöndum.
5. Norræna hagskýrslunefndin á sviði félagsmála (NOSOSKO).
Meginverkefni NOSOSKO er að vinna að samanburðarhæfri skýrslugerð um velferðarmál á Norðurlöndum og gefa árlega út skýrslu um það efni. Af öðrum verkefnum má nefna að nefndinni ber að fylgjast með alþjóðlegu samstarfi í hagskýrslugerð og vinna að samræmingu upplýsinga sem frá þátttökulöndunum koma.
Allar Norðurlandaþjóðirnar fimm eru aðilar að samvinnu Evrópulanda á sviði hagskýrslugerðar, Eurostat, ýmist vegna aðildar sinnar að Evrópusambandinu eða EES. Eurostat vinnur að bættri hagskýrslugerð á sviði heilbrigðis- og félagsmála og sundurliðun útgjalda eftir svonefndri ESSPROS-flokkun.
Á aðalfundi nefndarinnar var, auk fastra dagskrárliða, sérstaklega fjallað um brottfall fólks af vinnumarkaði. Þar kom fram að allt bendi til þess að Íslendingar starfi að meðaltali 5–10 árum lengur á vinnumarkaðinum en aðrir Norðurlandabúar. Meðalaldur þeirra sem fara á eftirlaun á hinum Norðurlöndunum er um og innan við 60 ár en á Íslandi er þessi aldur talinn vera nærri 70 árum í flestum starfsstéttum.
Í september stóð NOSOSKO fyrir ráðstefnu um tölfræði- og hagskýrsluleg málefni í Tallinn í Eistlandi fyrir embættismenn og sérfræðinga í Eystrasaltslöndunum þremur.
6. Norræna heilbrigðistölfræðinefndin (NOMESKO).
Norræna heilbrigðistölfræðinefndin (Nordisk Medicinalstatistisk Komité, NOMESKO) hefur það að markmiði að auðvelda samanburð á heilbrigðistölfræði á Norðurlöndum og að taka frumkvæðið að þróunarverkefnum á því sviði. Að auki hefur nefndin staðið að samvinnu við Eystrasaltsríkin og við Barenthafsríkin. Þá fylgist nefndin með þróuninni í heilbrigðistölfræði á alþjóðavettvangi. Nefndin gefur út ritið Health Statistics in the Nordic Countries, sem er allviðamikið árlegt rit með tölfræðilegum upplýsingum og upplýsingum í texta um heilbrigðistölfræði allra Norðurlanda.
Helstu verkefni NOMESKO 1998 hafa verið eftirfarandi: (1) Samræming á skráningu á sjúkrahúsum; (2) Samræming upplýsinga sem mögulegt er að fá frá heilsugæslu og sjálfstætt starfandi sérfræðingum á Norðurlöndum; (3) Samræming dánarvottorða; nýlega voru á Íslandi samþykkt ný lög um dánarvottorð o.fl.
Flokkunarmiðstöð sjúkdóma og heilbrigðisvandamála í Uppsölum. NOMESKO hefur náið samstarf við hina norrænu miðstöð Alþjóðaheilbrigðis-málastofnunarinnar um sjúkdómaflokka og skylda starfsemi. Miðstöðin er staðsett í Uppsölum í Svíþjóð.
7. Norræna menntamiðstöðin á sviði daufblindu (NUD).
Aðalverkefni NUD (Nordisk Uddannelsescenter for Døvblindepersonale) er að mennta starfsfólk sem vinnur með daufblindum, að þjóna sem þekkingarmiðstöð, vinna að söfnun og þróun þekkingar og sinna alþjóðlegu samstarfi á sviði daufblindu.
Fjárveiting Norrænu ráðherranefndarinnar til NUD er eftir rammasamningi til þriggja ára í senn. Árið 1998 var sérstakt þar sem því var bætt við samninginn sem gilti frá 1995–1997. Undirritaður hefur verið nýr þriggja ára samningur fyrir árin 1999–2001.
Haldin voru fjögur þemanámskeið, þrjú grunnnámskeið, tvær ráðstefnur og ein námsvika. Umsækjendur í allt voru 201 en þátttakendur 168 og 22 í námsviku. Þátttakendur voru 15 frá Íslandi á námskeiðum á árinu; þar af var enginn daufblindur þátttakandi en íslenskir umsækjendur voru samtals 21.
8. Norðurlandasamningur um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna.
Samningurinn fjallar um gagnkvæmar viðurkenningar prófskírteina ákveðinna starfsstétta innan heilbrigðis- og dýralæknaþjónustunnar og á að tryggja aðgang norrænna ríkisborgara að norrænum vinnumarkaði á þessum sviðum. Samningurinn nær nú í heild til 22 faghópa en Ísland er þó einungis aðili varðandi 19 hópa.
Þrátt fyrir samning frá 2. maí 1992 um EES er áfram talin þörf á norrænum reglum um viðurkenningu starfsgreina. Í fyrsta lagi að því er varðar sérgreinar sem EES-reglur ná ekki til. Í öðru lagi því er varðar einstaklinga sem hlotið hafa menntun sína í þriðja landi og í þriðja lagi vegna norrænna ríkisborgara sem ella hefðu lakari möguleika á að stunda starfsemi sína í öðru norrænu landi.
Eftirlitsnefndin vann að því á árinu að endurskoða samninginn með tilliti til þess að fjölga þeim heilbrigðisstéttum sem undir samninginn heyrðu. Þeirri vinnu lauk með því að þrjár nýjar stéttir bættust við hann, þ.e. meinatæknar, fótaaðgerðafræðingar og talmeinafræðingar.
16. Matvæli.
Á árinu 1998 hefur Norræna embættismannanefndin um matvælamál (EK-Livs) og fastanefndir á hennar vegum, sem eru nefndir um fæðueiturefnafræði, örverufræði, eftirlit, löggjöf og manneldi, lagt áherslu á áhættugreiningu vegna eiturefna í matvælum og vegna matarsjúkdóma í þeim tilgangi að tryggja öryggi matvæla. Jafnframt hafa önnur mál á sviði neytendaverndar og neytendafræðslu verið ofarlega á baugi og hefur samstarf við aðrar embættismannanefndir verið eflt vegna þessa. Má hér sérstaklega nefna málefni sem tengjast umbúðamerkingu matvæla. Fé til verkefna á ofangreindum sviðum var aukið á árinu 1998 og á þingi Norðurlandaráðs í nóvember 1998 var rætt um öryggi matvæla og fræðslu og upplýsingar til neytenda um framleiðslu og samsetningu matvæla. Ákveðið var að auka enn frekar það fé sem veitt er til samstarfs Norðurlandanna á þessum vettvangi á árinu 1999.
Áhættugreining skiptist í þrjá megin þætti, þ.e. áhættumat, áhættustjórnun og áhættukynningu. Að mestu er fjallað um þessi mál í fastanefndunum um fæðueiturefnafræði, matvælaörverufræði og matvælaeftirlit svo og vinnuhópum á þeirra vegum en einnig er samvinna við aðrar fastanefndir, m.a. nefndina sem fjallar um manneldismál. Áhættumat byggir á skoðun eiturefnafræðilegra og faraldsfræðilegra þátta sem tengjast efnum eða örverum í matvælum og matarsjúkdómum sem upp hafa komið, nánar tiltekið hvaða áhrif þessir þættir geta haft á öryggi matvæla. Áhættustjórnun er leið löggjafans og matvælastofnana til að stjórna áhættuþáttum, m.a. með því að setja reglur um matvæli, sinna eftirliti og gefa ráðleggingar. Markmið áhættukynningar er síðan að koma boðskap til neytenda þannig að þeir séu upplýstir, öðlist þekkingu og geti notað hana við fæðuval. Til að fjalla um þessi mál hafa verið haldnir fundir og ráðstefnur á árinu 1998 og er frekara starf ráðgert á komandi árum.
Umfjöllun um umbúðamerkingar matvæla byggir nú á samstarfi embættismannanefnda um matvæli, neytendamál, umhverfismál, sjávarútveg og landbúnað. Markmiðið er að fá fram óskir þessara nefnda um þær upplýsingar sem þeir vilja koma á framfæri við neytendur með umbúðamerkingum eða á annan hátt. Þar er m.a. rætt um umhverfismerkingar sjávarafurða. Jafnframt er unnið að könnun á umbúðamerkingum matvæla og hvernig neytendur nýta þær upplýsingar sem þar koma fram. Þá er stefnt að því að samstarf Norðurlanda um umbúðamerkingar og neytendafræðslu geti leitt til niðurstaðna sem nota má í tengslum við áherslur í löggjöf og öðrum störfum Evrópusambandsins og alþjóðlegu samstarfi á vegum Alþjóðlega staðlaskrárráðsins fyrir matvæli (Codex Alimentarius, FAO/WHO).
Neytendamál hafa nú mikið vægi í starfi Evrópusambandsins (ESB) á matvælasviði og hefur skipulag mála verið endurskoðað með hliðsjón af því. Evrópumál eru fastur liður í starfsemi embættismannanefndarinnar um matvæli og þau mál hafa forgang í ákvörðunartöku um verkefni á vegum nefndarinnar. Þá var tekin ákvörðun um að koma á föstu samstarfi embættismannanefnda um matvæli og um neytendamál með sérstöku tilliti til öryggis matvæla og neytendafræðslu. Samstarf við embættismannanefndina um landbúnaðarmál hefur einnig verið til skoðunar en þar liggur ákvörðun ekki fyrir. Áherslur sem rætt hefur verið um í slíku samstarfi eru að samræma eftirlit með frumframleiðslu og síðan vinnslu og frekari dreifingu matvæla. Einnig að tryggja að eftirlit sé haft á öllum stigum matvælaframleiðslu frá „hafi og haga til maga“.
Miklar kvaðir eru nú lagðar á stjórnvöld í hverju ríki við að framfylgja löggjöf ESB um matvæli. Embættismannanefndin um matvæli hefur sérstaka fastanefnd um matvælalöggjöf sem sem tekur fyrir álitamál um túlkun löggjafar. Einnig hafa verið fundir og ráðstefnur þar sem farið er yfir skyldur stjórnvalda um að hafa yfirumsjón og eftirlit með framkvæmd matvælaeftirlits á hverjum stað. Þessar áherslur hafa m.a. komið fram vegna umfangsmikils yfireftirlits af hálfu ESB og eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Frekari verkefni á þessu sviði eru fyrirliggjandi á komandi ári.
17. Neytendamál.
1. Norræn samvinna.
Norrænn ráðherrafundur um neytendamál.
Hinn árlegi fundur ráðherra sem fara með málefni neytenda var haldinn í Stokkhólmi 3. febrúar 1998. Fundinn sóttu m.a. Nigel Griffith, ráðherra frá Bretlandi og Horst Reichenbach, ráðuneytisstjóri í framkvæmdastjórn ESB, sem sérstaklega var boðið til fundarins. Af þeirra hálfu kom fram að innan ESB-ríkja sé gjarnan litið til þess hversu framarlega norræn ríki standa á sviði neytendaverndar. Ríkur vilji er fyrir hendi hjá framkvæmdastjórn ESB að leita í smiðju hinna norrænu þjóða við framtíðaruppbyggingu neytendastarfs á grundvelli Amsterdam-samningsins.
Ný samstarfsáætlun um neytendamál.
Í samræmi við ákvörðun ráðherra sem fara með málefni neytenda hefur norræna embættismannanefndin undirbúið nýja samstarfsáætlun sem spannar fimm ára tímabil, þ.e. frá árinu 1999 til ársins 2004. Við undirbúning áætlunarinnar hefur sérstaklega verið leitast við að tryggja ríka samstöðu um hana, jafnt þeirra sem starfa á vegum stjórnvalda sem og frjálsra neytendasamtaka á Norðurlöndum. Það hefur verið gert með því að leita eftir skriflegum umsögnum og í lok umsagnarferilsins var haldið málþing í Stokkhólmi þar sem dregnar voru saman helstu niðurstöður. Á fundi embættismannanefndarinnar í nóvember 1998 var samþykkt að leggja drög að nýrri samstarfsáætlun fyrir ráðherrana til samþykktar.
Stefnuáætlun Íslands á formennskuári 1999.
Á árinu hefur verið unnið að stefnuáætlun Íslands á formennskuári 1999 og var hún kynnt á fundi norrænu embættismannanefndarinnar í nóvember 1998. Viðskipti með tölvutækni eru ört vaxandi m.a. vegna samfelldrar þróunar til að greiða fyrir viðskiptum með notkun tölvutækninnar. Nauðsynlegt er að samstaða náist á Norðurlöndum um þær lágmarkskröfur sem gera þarf á þessu sviði svo að samnorrænum markmiðum um ríka vernd neytenda verði ekki raskað. Ísland hefur því óskað eftir því að til umfjöllunar á norrænum vettvangi verði tekin atriði sem varða tölvutækni og neytendavernd, svo sem undirritun í tölvum, tölvutækni og markaðsfærsla einkum m.t.t. barna og unglinga, fjarsala o.fl. Af Íslands hálfu verður einnig lögð áhersla á virkara samstarf við vestnorrænu grannríkin á formennskuárinu 1999, þ.e. Grænland og Færeyjar.
Samstarfið innan stýrihópa.
Til aðstoðar norrænu embættismannanefndinni starfa þrír stýrihópar að framgangi þeirra mála er skipta neytendur máli en þeir eru lögfræðilegi stýrihópurinn, stýrihópur um vörur og vöruöryggi og stýrihópur um efnahags- og upplýsingamál fyrir neytendur. Að venju hefur verið unnið að ýmsum verkefnum og haldin hafa verið málþing í því skyni að styrkja áhrif neytenda á ýmsum sviðum. Fjallað hefur verið um grænbækur og stefnuáætlanir framkvæmdastjórnar ESB á sviði fjármálaþjónustu, norrænar reglur um markaðsfærslu á veraldarvefnum einkum að því er varðar börn og unglinga, samanburðarauglýsingar og tilskipun ESB um það efni, öryggi leikfanga og annarra vörutegunda fyrir börn. Auk samstarfsins í stýrihópum fer fram mikilvægt samráð og samstarf innan NKU sem er samstarfsvettvangur norrænna neytendasamtaka.
Neytendarannsóknir.
Norrænir ráðherrar hafa lagt áherslu á að auka rannsóknir þar sem málefni neytenda eru í brennidepli. Ráðherrar hafa samþykkt reglur um styrkveitingar til þess að efla grunnrannsóknir á þessu sviði og ráðgjafi starfar að samræmingu þessara mála. Haldið var norrænt rannsóknaþing í Lillehammer í nóvember 1998 þar sem kynntar voru helstu rannsóknir sem fram fara á þessu sviði á Norðurlöndum um þessar mundir (alls um 50 verkefni, samtals að verðmæti u.þ.b. 40 millj. d.kr.). Lýst var yfir vonbrigðum með að engin þátttaka var af hálfu íslenskra rannsóknastofnana þrátt fyrir að af hálfu íslenskra stjórnvalda hafi verið reynt að hvetja til aukinnar þátttöku á þessu sviði rannsókna. Á norrænum vettvangi verður áfram unnið að frekari framgangi norrænna neytendarannsókna svo og samþættingu þeirra við annað rannsóknastarf t.a.m. innan fimmtu rammaáætlunar Evrópusambandsins.
2. Norðurlönd og ESB/EES.
Samráð hefur verið haft um nýja löggjöf á vettvangi Evrópusambandsins sem varðar neytendur, t.a.m. drög að tilskipun um fjarsölu á sviði fjármálaþjónustu, drög að tilskipun um ábyrgð á seldum hlut og ábyrgðaryfirlýsingar. Auk þess hefur lögleiðing ýmissa tilskipana verið rædd á vettvangi neytendasamstarfsins og unnið að samræmingu og norrænu samráði eftir því sem þurfa þykir, t.d. varðandi tilskipun um fjarsölusamninga, verðmerkingar o.fl.
3. Norðurlönd og grannsvæðin.
Í samræmi við stefnumótun Norðurlanda um aðstoð við grannsvæðin hefur grannsvæðanefndin á sviði neytendamála stuðlað að auknu samstarfi og aðstoð við grannsvæðin. Áhersla hefur verið lögð á aðstoð við uppbyggingu frjálsra neytendasamtaka og hvernig haga megi skipulagningu neytendastarfs. Reynsla Norðurlandanna er mikilvæg fyrir grannsvæðin þegar markaðsbúskapur er að ryðja sér þar til rúms. Þess er vænst að í framtíðinni megi auka þátttöku stýrihópanna í þessu samstarfi.
18. Vímuefnamál.
Árið 1998 starfaði norræna embættismannanefndin á sviði fíkniefna (EK-Narkotika) undir formennsku Svía, sem hvöttu áfram til góðs samstarfs í þessum málum við Eystrasaltsríkin. Fyrri stóri fundur nefndarinnar var haldinn í Stokkhólmi í tengslum við fund norrænna ráðherra um vímuefnamál í maí sl. þar sem félagsmálaráðherra Svíþjóðar sýndi hvað mestan áhuga á hinu norræna starfi í fikniefnamálum ásamt ráðherrum Eystrasaltsríkjanna, sem voru gestir á fundinum. Stefna Íslands í fíknefnamálum ásamt verkefninu Vímaefnalaust Ísland árið 2002, sem er verkefni á landsvísu á Íslandi, vöktu verulega athygli fundarmanna.
Lagt var til að Norðurlöndin treystu böndin við Eystrasaltsríkin og ættu samleið um gagnkvæm verkefni. Þá voru fundarmenn sammála um, að innan ramma verkefnis í umsjá NAD (Nordisk alkohol og drogforskning), PT-hópsins (lögregla og tollur) sem og Pompideu-hópsins yrði haldið áfram að mæla og rannsaka vímuefnaneyslu og útbreiðsluaðferðir þeirra, sem selja slík efni.
Seinni stóri fundur embættismannanefndarinnar var haldinn á Grænlandi í október þar sem fulltrúar Grænlands og Íslands hvöttu til eflingar samstarfs um vímuefnamál á Vestur-Norðurlöndum og þá sérstaklega með formennskuár Íslands í huga árið 1999. Voru flestir jákvæðir varðandi þær hugmyndir.
Í lok fundarins á Grænlandi var gefin út fréttatilkynning, þar sem lögð var áhersla á samstarf allra landanna um að styrkja forvarnir og upptöku efna. Þar var sagt frá verkefnum, sem nefndin legði til að væru styrkt, svo sem vinnu- og upplýsingafundir, rannsókn á miðlægum upplýsingum varðandi verkefni landanna og hverju þau skila.
Ákveðið var að styrkja Pallas-Athena-göngu unglinga á fund jafnaldra þeirra um alla Evrópu. Ákveðið var að fylgjast sérstaklega með hugsanlegum tengslum innflytjenda og flóttafólks við fíkniefni, bæði hvað snertir neyslu og innflutning.
Fulltrúar Íslands lögðu til umræðuefni með lögreglu og tollvörðum á fundi á Íslandi á næsta ári. Var bent á að Ísland tekur ekki þátt í Pompideu-hópstarfinu. Vegna þessa fór lyfjafræðingur frá heilbrigðisráðuneytinu á fund hjá þessum hópi nýlega og er stuttrar skýrslu að vænta frá honum bráðlega.
19. Málefni dómsmálaráðuneytis.
Norrænt samstarf um löggjafarmál miðar að því að koma á, eftir því sem unnt er, samræmdri löggjöf innan Norðurlandanna. Stöðugt er unnið að aðlögun eða endurskoðun og skipst er á upplýsingum um verkefni sem fyrirhuguð eru. Samstarfið miðar einnig að því að finna norræna lausn sem leggja megi til grundvallar við undirbúning nýrra reglna innan ESB/EES.
Samstarf á þessu sviði tengist fyrst og fremst samstarfsáætlun sem dómsmálaráðherrar Norðurlanda gengu frá sumarið 1996 og framkvæmdaáætlun sem samstarfsáætluninni fylgir og endurskoðuð er árlega, síðast á fundi dómsmálaráðherra í júní. Sem sérstök viðfangsefni á árunum 1998/1999 eru tilgreind viðfangsefni er varða baráttu gegn brotastarfsemi sem fram fer yfir landamæri innan Norðurlandanna og nærliggjandi svæða, samstarf yfirvalda sem vinna að afbrotavörnum, barátta gegn útlendingahatri og kynþáttamisrétti, viðbrögð gegn kynferðislegri misnotkun barna, upplýsingatækni og löggjöf, samstarf um einkamálaréttarfar og á sviði sifjaréttar. Þar eru og tilgreind viðvarandi viðfangsefni, svo sem á sviði refsiréttar og refsiréttarfars, þar á meðal varðandi brotastarfsemi bifhjólagengja og efnahagsbrot, einkamálaréttarfar, þar á meðal endurskoðun Brussel og Lúganó samninganna um dómsvald og fullnustu dóma í einkamálum, stjórnarfarsréttur og upplýsingaskylda, hlutafélög, Schengen, sjóréttur, höfundaréttur, vörumerkjaréttur, fjármunaréttur almennt, þar á meðal neytendakaup, og sifjaréttur, þar á meðal alþjóðlegur sifjaréttur. Samstarfsáætlunin inniheldur fyrst og fremst leiðbeiningar um vinnuferli og tilhögun samstarfs, m.a. við undirbúning gerða innan ESB og við upptöku ESB tilskipana í landsrétt.
Samstarf um löggjafarmál fer einkum fram með fundum dómsmálaráðherra Norðurlanda og embættismannanefndarinnar um löggjafarsamstarf (EK-LOV) þar sem unnið er að samræmingu á samstarfinu og sameiginleg hagsmunamál rædd.
Á sumarfundi dómsmálaráðherranna var auk endurnýjunar á framkvæmdaáætlunni fjallað sérstaklega um tvo meginþætti, annars vegar brotastarfsemi yfir landamæri, þar á meðal peningaþvætti, samstarf um réttaraðstoð án landamæra og rannsóknaraðferðir, og hins vegar um rafræn viðskipti. Ákveðið var að auka samstarf varðandi brotastarfsemi yfir landamæri, m.a. til að afnema hindranir sem eru á samstarfi dómstóla og ákæruvalds yfir landamæri. Einnig var rætt um möguleika á samstarfi við Eystrasaltslöndin um þróun réttarvörslukerfisins og baráttu gegn brotastarfsemi við Eystrasalt og hugsanlega með dómsmálaráðherrum Eystrasaltslandanna á árinu 1999.
Embættismannanefndin hittist reglulega, að jafnaði þrisvar eða fjórum sinnum á ári, en auk þess hittast fulltrúar dómsmálaráðuneytanna eða annarra fagráðuneyta á viðkomandi sviði, þar sem það á við, formlega eða óformlega, og er þar skipst á upplýsingum og einstök löggjafarviðfangsefni rædd. Þetta samstarf fer og fram í tengslum við alþjóðlega fundi, svo sem á vettvangi ESB/EES eða Evrópuráðsins, þar sem norrænir fulltrúar hafa náið samstarf og samræma sjónarmið sín eftir því sem unnt er.
Meðal viðfangsefna sem rædd hafa verið á fundum embættismannanefndarinnar eða einstakra samráðshópa má nefna brotastarfsemi yfir landamæri, útlendingahatur og kynþáttamisrétti, kynferðisleg misnotkun barna og alþjóðleg einkaréttarmálefni á sviði sifjaréttar, auk þess sem rædd eru þau viðfangsefni önnur sem framkvæmdaáætlunin felur í sér.
Embættismannanefndin hefur stuðlað að nokkrum málþingum. Í desember 1997 var haldið málþing um hlutafélög (félagarétt) og í janúar 1998 var haldið málþing um sifjarétt. Í framhaldi þess var ákveðið að taka saman yfirlit þar sem fram komi í hverju mismunur á sifjalöggjöf landanna liggur helst, m.a. til að draga fram hvar um er að ræða sérlegt óhagræði vegna mismunar. Þá var í maí 1998 haldið málþing í Stokkhólmi um „Free movement for companies“. Samþykkt hafa verið fjárframlög til nokkurra viðfangsefna á árinu 1999. Þá er unnið að endurskoðun starfsreglna fyrir tengiliði um rannsóknir á Evrópurétti með það fyrir augum að veita því umboð og ábyrgð til að skipuleggja málþing og rannsóknarverkefni á þessu sviði.
Málefni flóttamanna.
Samráðsnefnd æðri embættismanna um málefni flóttamanna fjallar um stefnumótun í málefnum er varða flóttamenn. Þar fara og fram víðtæk upplýsingaskipti milli stjórnvalda um þróun löggjafar um málefni útlendinga almennt, um móttöku flóttamanna, um breytingar á framkvæmd mála er varða flóttamenn, ákvarðanatöku í slíkum málum o.fl. Viðfangsefni nefndarinnar hafa eins og undanfarin ár að verulegu leyti snúist um málefni fyrrum Júgóslavíu og aðstoð við heimflutning flóttamanna þaðan. Víðtækt samstarf er og um öflun upplýsinga vegna aðstæðna í löndum þaðan sem flóttamenn koma, m.a. með miðlun skýrslna sem sendinefndir einstakra landa til þessara landa gera. Haft er samráð um ýmis atriði er varða útlendingaeftirlit, með hliðsjón af norræna vegabréfasambandinu og Schengen samstarfinu. Þróun mála eftir gildistöku Dublin samnings Evrópusambandsríkjanna um hæli hefur verið rædd og staða Íslands og Noregs í því sambandi. Samstarf á þessu sviði nær og til þeirra ráðherra sem fara með málefni er varða flóttamenn og innflytjendur.
Björgunarsamstarf.
Á árinu 1989 hófu Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð formlegt samstarf um björgunarþjónustu (NORDRED) og var þá gerður samningur milli landanna þar að lútandi. Samningurinn er rammasamningur um samstarf yfir landamæri og er þannig viðbót við aðra samninga milli landanna.
Samvinnan tekur til þess að koma í veg fyrir eða takmarka tjón á mönnum, eignum eða umhverfi vegna slysa eða óhappa. Markmiðið er að auðvelda gagnkvæma aðstoð vegna óhappa skipa á friðartímum og að hraða því að koma hjálparliði og búnaði á vettvang.
Íslandi hefur staðið til boða að gerast aðili að samningnum samkvæmt beinu ákvæði í 8. gr. hans. Á árinu 1997 var haldinn fundur í samstarfshópnum í Reykjavík þar sem samstarfið var kynnt og norrænum fulltrúum kynnt aðstaða hér. Ísland hefur síðan tekið þátt í samstarfinu með áheyrnaraðild og tóku íslenskir fulltrúar m.a. þátt í ráðstefnu um hlut sjálfboðaliða í björgunarstörfum sem haldin var í Stafangri í september 1998. Var þar gerð grein fyrir skipulagi á björgunarstarfi hér á landi og hlut opinberra aðila og sjálfboðaliðasamtaka í því.
Ákveðið hefur verið að Ísland gerist aðili að samningi hinna Norðurlandanna um björgunarþjónustu og er unnið að formlegum frágangi þeirrar aðildar. Með aðild að samningnum verður gagnkvæm aðstoð í björgunarmálum við hinar Norðurlandaþjóðirnar treyst.
20. Norrænn vinnumarkaður.
Samstarfið á vinnumálasviðinu.
Norrænt samstarf á vinnumálasviðinu byggir fyrst og fremst á áætlun um samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði vinnumarkaðs- og vinnuumhverfismála 1995-2000.
Samstarfið á vinnumálasviðinu á árinu 1998 hefur einnig mótast af þeim áherslum sem Svíar hafa haft á vinnumálasviðinu á sínu formennskuári.
Meðal helstu markmiða Svía hefur verið að auka samhæfingu norræns vinnumálasamstarfs og vinnumálasamstarfs á Evrópska efnahagssvæðinu. Þá hefur verið lögð sérstök áhersla á að bæta stöðu ungs fólks og fatlaðra á vinnumarkaðinum og auka jafnrétti kynja á vinnumarkaðinum. Tiltekin verkefni hafa einnig verið sett í gang til að ná þessum markmiðum, m.a. var unnin norræn skýrsla um atvinnumál á árinu sem lögð var fram sem umræðugrundvöllur um atvinnumál á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi en þessi umræða hefur fengið aukið vægi vegna sæmbærilegrar umræðu á vegum ESB. Málefni ungs fólks, fatlaðra og jafnrétti kynjanna eru samþætt í þessari skýrslu og umfjöllun.
Skipulag norræna vinnumálasamstarfsins.
Norræna vinnumálasamstarfið vinnur nú samkvæmt skipulagi sem tók gildi 1. janúar 1997. Hlutverk embættismannanefndarinnar (EK-A), sem skipuð er einum fulltrúa frá hverju landi, er að vera stefnumarkandi í vinnumálum.
Á vegum embættismannanefndarinnar starfa nú fimm fastanefndir, tveir verkefnahópar og tveir samskiptahópar. Auk þess heyrir ein stjórnarnefnd stofnunar, þ.e.a.s. NIVA, undir embættismannanefndina. Fastanefndirnar eru skipaðar sérfræðingum til að fjalla um einstaka málaflokka. Þetta eru nefndir um atvinnu- og vinnumarkaðsmál, um vinnuverndarmál, um vinnuverndarrannsóknir, um atvinnulíf og vinnuréttarmál og nefnd um fólksflutninga. Sérstök samskiptanefnd undirbýr fundi embættismannanefndarinnar í samráði við skrifstofu ráðherranefndarinnar en auk þess annast hún vinnumálasamskipti við grannsvæði Norðurlanda. Nefndirnar hafa allar gert nákvæma grein fyrir hlutverkum sínum og verkefnum í sérstökum stefnu- og verkefnaskjölum.
Enn fremur eru starfandi starfshópar um afmarkaðri verkefni. Einn slíkur er NIAL sem sér um „Informationsprojektet“, sem er fjölbreytt útgáfustarfsemi um vinnumál. Á vegum þessa verkefnis eru tímaritin „ARBETSLIV I NORDEN“ og „NORDIC LABOUR JOURNAL“. Auk þess undirbýr hópurinn þátttöku Norðurlanda í „Employment week“ í Brussel á hverju ári. Þá er einnig starfshópur um evrópsk vinnumál og sérstakur samskiptahópur um vinnumarkaðsþjónustu.
Vinnumarkaðssamstarf.
Vinnumarkaðsnefndin er vettvangur fyrir umræðu um atvinnumál, vinnumarkaðsmál og vinnumarkaðsrannsóknir í norrænu samstarfi.
Samstarfshópur um vinnumarkaðsþjónustu annast samstarf um vinnumiðlun, atvinnuleysistryggingar og starfsmenntun í atvinnulífinu.
Eitt helsta verkefni á vegum vinnumarkaðsnefndarinnar er NORDJOBB, sem byggir á atvinnuskiptum ungs fólks milli Norðurlandanna, en Norrænu félögin annast nú þessi samskipti á Norðurlöndum. Á árinu hafa 174 íslensk ungmenni farið í vinnu á Norðurlöndum á vegum NORDJOBB og 122 norræn ungmenni hafa komið til vinnu á Íslandi.
NORDPRAKTIK er sambærilegt verkefni fyrir Eystrasaltslöndin á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og hafa átta einstaklingar komið frá Eystrasaltsríkjunum á þessu ári.
ÖSTJOBB er nýtt verkefni þar sem íslensk ungmenni sækja heim Eystrasaltslöndin og Pétursborg og fóru tveir héðan á þessu ári.
Helstu verkefni sem nú eru í gangi á vegum nefndarinnar eru:
– Þróunaraðstoð við vinnumarkaðinn í Norðvestur-Rússlandi.
– Rannsókn á samspili virkrar vinnumarkaðsstefnu og dagpeningakerfis m.t.t. hagþróunar.
– NOKON-verkefnið sem er samstarfsverkefni með áherslu á frumkvöðlastarf ungs fólks, hugmyndavinnu og staðbundið þróunarstarf.
– Rannsókn á samspili launa og atvinnuleysis.
– Rannsókn byggð á atvinnuleysistölum m.t.t. menntunar, lífeyris og fötlunar hinna atvinnulausu.
– álþing um jafnrétti í vinnumiðlunarþjónustu.
– Viðhorfskönnun meðal notenda vinnumiðlunarþjónustu sem tæki til að bæta þjónustu við atvinnuleitendur og vinnuveitendur.
– Nefndin gefur árlega út árbækur annars vegar um vinnumarkaðsrannsóknir á Norðurlöndum og hins vegar um stöðu og þróun vinnumarkaðar á Norðurlöndum.
Starfsmenntun.
Haldinn var sérfræðingafundur í Bergen í september, þar sem fjallað var um þróunina á Norðurlöndum í starfsmenntunarmálum og þörf vinnuaflsins fyrir símenntun m.t.t. vinnumarkaðs framtíðarinnar.
Atvinnuleysistryggingar.
Norrænt samstarf vegna atvinnuleysistrygginga heyrir nú undir vinnumarkaðsnefndina og samstarfshóp um vinnumarkaðsþjónustu. Hins vegar starfa tveir hópar áfram um afmörkuð verkefni. Um er að ræða samstarfshóp vegna flutnings atvinnuleysisbóta milli Norðurlanda og nefnd vegna ráðstefna um atvinnuleysistryggingar sem haldnar eru á þriggja ára fresti.
Atvinnulíf og vinnuréttur.
Norræna samstarfsnefndin um atvinnulíf og vinnurétt er ætlað að vera vettvangur fyrir kynningu, umræður og samræmingu norrænna sjónarmiða í málefnum á sviði atvinnulífs og vinnuréttar bæði innan og utan Norðurlanda.
Vinnuréttarnefndin hefur lagt megináherslu á að fjalla um áhrif nýrra tillagna á sviði vinnuréttarmála sem hafa verið til umfjöllunar hjá Evrópusambandinu og framkvæmd annarra sem þegar hafa verið samþykktar af Evrópusambandinu og fyrirhugað er að nái til Evrópska efnahagssvæðisins. Í öðru lagi hefur verið lögð rík áhersla á samstarf við aðila vinnumarkaðarins ekki síst um vinnuréttartilskipanir Evrópusambandsins. Umfjöllunin hefur einnig náð til annarra þátta í evrópsku og alþjóðlegu vinnumálasamstarfi. Á vegum nefndarinnar var m.a. haldin ráðstefna með þátttöku aðila vinnumarkaðarins í Ósló í október um sveigjanlegt vinnuskipulag á Norðurlöndum.
Vinnuvernd.
Norræna samstarfsnefndin um vinnuvernd hefur það meginhlutverk að vinna að samstarfi stjórnvalda á Norðurlöndum á sviði vinnuverndarmála.
Áður var unnið að samræmingu lagafyrirmæla og reglna en það hefur að mestu færst yfir á vettvang ESB og EES samningsins. Nú er hins vegar lögð áhersla á samræmingu sjónarmiða Norðurlanda í staðlagerð á vettvangi Evrópsku staðlastofnunarinnar CEN. Mikill fjöldi staðla myndar grunninn að þeim kröfum sem gerðar eru um öryggi og hollustu tækja og búnaðar sem ætlaður er til notkunar við atvinnurekstur. Norðurlöndin starfa nú sameiginlega að þessum málum til hagræðis og til að auka áhrif sín. Ísland hefur umsjón með þátttöku Norðurlanda í stöðlun véla til matvælavinnslu.
Skipst er á upplýsingum um aðferðir sem beitt er til þess að bæta aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum með eftirliti, fræðslu, fyrirbyggjandi heilsuvernd, átaksverkefnum o.fl. Fundir og ráðstefnur eru haldnar í þessu skyni og var m.a. fjallað um starfsmannaheilsuvernd á árinu með þátttöku aðila vinnumarkaðarins.
Norræna ráðstefnan um eftirlit á vinnustöðum var haldin á Íslandi í júní sl. með um 80 þátttakendum. Fulltrúar Eystrasaltslandanna sátu hana einnig.
Fjármunum er varið til rannsókna- og þróunarverkefna af ýmsu tagi og má sem dæmi taka að lokið var við verkefni um áhættumat véla á árinu. Verulegum fjármunum hefur verið varið til samstarfsverkefnis um vinnu barna og unglinga á Norðurlöndum og er því stjórnað frá Íslandi. Markmiðið er að kanna umfang og eðli vinnu 13–17 ára ungmenna á Norðurlöndunum. Sambærilegar kannanir voru gerðar í lok árs 1997 og í byrjun árs 1998 á öllum Norðurlöndunum. Norræn skýrsla mun liggja fyrir um málið í byrjun árs 1999.
Nefndin hefur samræmt aðstoð Norðurlanda við Eystrasaltslöndin á sínu sviði. Haldin var ráðstefna í Tallinn um árangursríkar aðferðir við framkvæmd eftirlits á vinnustöðum. Veittur var styrkur í verkefnið Vinnuumhverfi í fiskiðnaði í Eistlandi. Verkefnisstjórn var í höndum Íslands. Verkefninu lauk með námskeiði sem haldið var í Tallinn í nóvember fyrir þá eftirlitsmenn í Eistneska vinnueftirlitinu sem hafa með fiskiðnað að gera.
Vinnuverndarrannsóknir.
Hlutverk samstarfsnefndarinnar um vinnuverndarrannsóknir er að vinna að samstarfi um rannsóknir á sviði vinnuverndar, m.a. með því að veita styrki til rannsóknarverkefna.
Stærsti styrkurinn sem nefndin veitir hefur um árabil farið til norræns hóps sem vinnur að því að taka saman vísindalegar forsendur sem leggja ber til grundvallar þegar stjórnvöld landanna setja mengunarmörk fyrir varasöm efni á vinnustöðum.
Eitt af þeim verkefnum sem nefndin styrkir er ráðstefna sérfræðinga á sviði vinnuverndar sem haldin er árlega til skiptis á Norðurlöndunum, en hún var haldin á Íslandi í ágúst sl. og voru þátttakendur tæplega 200. Á vegum nefndarinnar starfar undirnefnd sérfræðinga um grundvöll mengunarmarka fyrir vinnustaði.
Á þessu ári verður efnt til ráðstefnu um framtíðarsýn í atvinnulífinu með þátttöku stjórnenda rannsóknarstofnana og vinnueftirlita, fulltrúa ráðuneyta og þeirra annarra sem móta stefnuna í vinnuvernd og atvinnulífi.
NIVA (Nordiska institutionen för vidareutbildning inom arbetsmiljöområdet).
Vinnueftirlit ríkisins á fulltrúa í stjórn NIVA sem er norræn menntastofnun og hefur aðsetur í Helsinki í Finnlandi. NIVA stendur að námskeiðum fyrir sérfræðinga á sviði vinnuverndar og hafa nokkur slík námskeið verið haldin hérlendis. Íslendingar hafa einnig sótt þessi námskeið til Norðurlandanna. Þessi starfsemi hefur reynst Íslandi mjög mikilvæg.
Samráðsnefnd um ESB málefni.
Félagsmálaráðuneyti og Vinnueftirlit ríkisins hafa tekið virkan þátt í norrænu samstarfsnefndinni um ESB málefni. Í henni er fjallað um undirbúning löggjafar ESB á sviði vinnumarkaðs- og vinnuverndarmála, skipst á skoðunum og stefnt að samræmingu sjónarmiða. Á þessum vettvangi má fá upplýsingar um undirbúning mála á frumstigi og um umfjöllun mála hjá ráðherraráðinu og Evrópuþinginu. Samskipti samkvæmt EES samningnum eru takmörkuð við framkvæmdastjórn ESB og því gefur þessi vettvangur frekari möguleika til að afla upplýsinga og koma sjónarmiðum á framfæri.
21. Jafnréttismál
Norrænt samstarf á sviði jafnréttis kvenna og karla byggir á norrænni samstarfsáætlun sem tekur til tímabilsins 1995 til 2000. Jafnréttisráðherrar Norðurlanda héldu einn fund á árinu. Norræna embættismannanefndin um jafnréttismál (ÄK-Jäm) hélt fjóra fundi á árinu.
Norræn samstarfsáætlun á sviði jafnréttismála.
Samstarfsáætlunin var samþykkt í byrjun ársins 1995 og gildir til ársins 2000. Markmiðið með samstarfi Norðurlanda í jafnréttismálum er:
– að samstarfið leiði til þess að haldið verði áfram að þróa sameiginlega lífsýn Norðurlandaþjóða, svo og sameiginlega stefnu þeirra í víðara samstarfi innan Evrópu og á alþjóðavettvangi,
– að samstarfið stuðli að árangursríkara og öflugra jafnréttisstarfi á innanlandsvettvangi í hverju og einu Norðurlandanna,
– að það verði sjálfsagt að gæta jafnréttissjónarmiða í starfi á mismunandi sviðum stefnumótunar í þjóðfélaginu. Einnig skal gæta jafnréttissjónarmiða á þeim sviðum stefnumótunar sem starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar tekur til.
Ráðherranefndin mun á gildistíma áætlunarinnar beina samstarfi sínu að starfsemi sem:
– stuðlar að því að konur og karlar fái jafnan aðgang að ákvarðanatöku í stjórnmálum og efnahagsmálum,
– stuðlar að jafnri stöðu og áhrifum kvenna og karla í efnahagsmálum en aðgerðir sem stuðla að launajafnrétti kynja eru mikilvægar í slíku starfi,
– stuðlar að jafnri stöðu kynjanna í atvinnulífinu,
– gefur konum og körlum bætt tækifæri til að sameina foreldrahlutverk og launavinnu,
– hefur áhrif á þróun jafnréttismála innan Evrópu og á alþjóðavettvangi.
Í því skyni að ná árangri með starfi sínu á sviði forgangsverkefnanna mun ráðherranefndin vinna að:
– þróun aðferða sem stuðla að virku jafnréttisstarfi.
Ein aðferð sem ráðherranefndin leggur einkar ríka áherslu á, er að jafnréttissjónarmiða sé gætt á öllum sviðum stefnumótunar, í nánasta umhverfi, í sveitarstjórnum, við stjórn landsins og á vettvangi Norðurlanda. Aðrar áhrifaríkar aðferðir eru gerð hagtalna um konur og karla, kvenna- og jafnréttisrannsóknir, menntun í jafnréttismálum ásamt upplýsinga- og fræðslustarfsemi.
Verkefni samkvæmt samstarfsáætluninni.
Jafnréttissjónarmiða gætt við stefnumótun. Eitt af forgangsverkefnunum samkvæmt samstarfsáætluninni er að þróa og prófa aðferðir og tæki sem stuðla að því að jafnréttissjónarmiða sé gætt á öllum stjórnsýslustigum landanna við alla málaflokka. Hið sama á við um stjórnsýslu Norrænu ráðherranefndarinnar. Til þess að stuðla að slíkri þróun aðferða eru nú í gangi sérstök verkefni í öllum norrænu ríkjunum sem byggja á þessum hugmyndum sem á erlendum málum kallast „mainstreaming“.
Markmiðið með verkefninu er að þróa aðferðafræði og tæki til þess að gera sjónarmið kynjajafnréttis miðlæg í allri almennri stefnumótun. Verkefnið nær til tveggja málaflokka, til starfs og stefnumótunar í málum ungmenna og til starfs og stefnumótunar í vinnumarkaðsmálum. Verkefnið er til þriggja ára og mun ná til allra Norðurlandanna og Skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar. Starfandi er norrænn verkefnisstjóri og innlendur verkefnisstjóri í hverju landi. Á Íslandi er verkefnið einskorðað við starf og stefnumótun í málefnum ungmenna. Skrifstofa jafnréttismála stýrir verkefninu en unnið er að því hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur og Íþrótta- og tómstundaráði Akureyrar.
Á árinu 1998 hefur verið unnið að fræðslu fyrir þá sem starfa með ungu fólki, bæði í íþróttahreyfingunni og í félagsmiðstöðvum. Sænskur sérfræðingur í jafnréttisvinnu kom til landsins í byrjun ársins og hélt námskeið og kynningu á aðferðafræði samþættingar fyrir pólitíska fulltrúa, embættismenn og starfsmenn í þessum málaflokki. Aðaláherslan hefur verið á upplýsingaöflun og stöðumat með tilliti til stöðu ungs fólks í annars vegar tómstundastarfi (Reykjavík) og hins vegar íþróttastarfi (Reykjavík og Akureyri) sem er skipulagt í tengslum við bæjaryfirvöld í þessum sveitarfélögum. Þessar upplýsingar eru nú aðgengilegar í skýrslunni „Mainstreaming“, Samþætting jafnréttismála í störfum ÍTR og ÍTA.
Jafnréttissjónarmið við stefnumótun á Skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar. Einnig er unnið að samþættingu sjónarmiða jafnréttis kynja á Skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar. Starfandi er ráðgjafanefnd um starfsmannamál og jafnrétti kynja sem hefur skipulagt ýmis konar aðgerðir m.a. fræðslu til yfirmanna. Þá hefur Norðurlandaráð ítrekað samþykkt að unnið skuli að því að jafna hlut kynja í norrænum nefndum og stjórnum. Skrifstofa norrænu ráðherranefndarinnar tekur árlega saman yfirlit yfir hlutfall kynja. Samstarfsráðherrar Norðurlanda samþykktu á árinu leiðbeinandi reglur um hvernig markmiðinu um minnst 40% hlut hvors kyns í sérhverri nefnd og stjórn skuli náð.
Skýrsla frá norrænu ráðstefnunni „Konur, vinna og efnahagsmál“. Skýrsla frá ráðstefnunni kom út á árinu í TemaNord ritröðinni. Meginþemu ráðstefnunnar voru rétturinn til starfa og réttra launa, konur í kjarasamningum og ólíkir hópar kvenna — styrkur ekki veikleiki. Í heftinu eru birtir fyrirlestrar frá ráðstefnunni og samantektir frá þeim starfshópum sem þar störfuðu.
Á ráðstefnunni komu fram tillögur að áframhaldandi norrænu samstarfi á þessu sviði. Á árinu var sænskum hagfræðingi falið að taka saman yfirlit yfir aðgerðir norrænu landanna á þessu sviði frá því norræna jafnlaunaverkefninu lauk á árinu 1994. Stefnt er að útgáfu þeirrar skýrslu í byrjun næsta árs.
Verkefnið „Halva makten — nordiska kvinnor på väg“. Á vegum embættismannanefndarinnar er unnið að útgáfu á bók um völd og áhrif kvenna á Norðurlöndum. Bókinni er ætlað að fylgja eftir því verki sem hófst með útgáfu bókarinnar „Den ofärdiga demokratin“ sem kom út árið 1983 og hefur verkefnið gengið undir nafninu „Halva makten — nordiska kvinnor på väg“. Tilgangur verkefnisins er að lýsa stöðu kvenna á Norðurlöndum að því er varðar völd og áhrif og lýsa hvernig og hvers vegna norrænar konur og norræn stjórnvöld í hverju landi fyrir sig hafa náð þeim árangri sem raun er. Í ritinu er m.a. fjallað ítarlega um ábyrgð, skipulag og þátttöku stjórnvalda og opinberra stofnana í jafnréttismálum og hvernig samvinna frjálsra félagasamtaka og stjórnvalda hefur þróast. Að verkinu koma konur frá öllum norrænu löndunum. Verkefninu er lokið en bókin mun væntanlega ekki koma út fyrr en í byrjun næsta árs. Heiti bókarinnar hefur verið ákveðið „Likestillte demokratier? — Kjönn og politikk i Norden“. Hún mun koma út á skandinavísku máli, finnsku og ensku og samantekt mun koma út á íslensku. Ákveðið hefur verið að enska útgáfan verði kynnt á blaðamannafundi í Brussel í byrjun 1999.
Norrænt fréttabréf um jafnréttismál. Frá árinu 1996 hefur verið gefið út norrænt fréttabréf um jafnréttismál. Tilgangur þess er að miðla fréttum um jafnréttisstarfið á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og á Norðurlöndunum. Fréttabréfið er gefið út á finnsku, íslensku, skandinavísku og á ensku í 3000 eintökum, þar af eru 200 eintök á íslensku. Blaðið kemur út þrisvar á ári.
Upplýsingabanki á Netinu um kvennahreyfinguna á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum. Norrænu rannsóknarstofnuninni í kvenna- og jafnréttisfræðum hefur verið falið að safna upplýsingum um kvennahreyfingar á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum og koma þeim á Internetið. Kvenréttindafélag Íslands er tengiliður rannsóknarstofnunarinnar hér á landi. Verkefninu lýkur í lok þessa árs.
Karlar og jafnrétti kynja. Jafnréttisráðherrar Norðurlanda samþykktu á árinu 1997 sérstaka framkvæmdaáætlun fyrir tímabilið 1997 til 2000 um karla og jafnrétti kynja. Í áætluninni eru samtals fimmtán verkefni sem öll hafa það að markmiði að auka virka þátttöku karla í starfinu. Framkvæmdaáætlunin, ásamt greinargerð frá starfshópnum sem hana vann, hefur verið gefin út á íslensku. Á árinu 1998 var haldin ráðstefna um föðurhlutverkið í Finnlandi og er skýrsla frá ráðstefnunni komin út. Í tengslum við ráðstefnuna var haldinn sérfræðingafundur þar sem rætt var um næstu verkefni samkvæmt áætluninni en þau eru rannsókn á föðurhlutverkinu, hugmyndarit um karla og jafnrétti í atvinnulífinu og viðamikið verkefni um ofbeldi karla. Þá hefur verið gefin út skýrsla um feðraorlof á Norðurlöndum.
Önnur verkefni.
Norræn rannsóknarstofnun í kvenna- og jafnréttisfræðum, NIKK. Norræn rannsóknarstofnun í kvenna- og jafnréttisfræðum var stofnuð á árinu 1995. Rannsóknarstofnunin, sem er þverfagleg, hefur aðsetur í Ósló.
Stjórnin er skipuð fulltrúum frá hverju Norðurlandanna til þriggja ára í senn. Hlutverk norrænu rannsóknarstofnunarinnar er að samhæfa norrænar kvenna- og jafnréttisrannsóknir, byggja upp gagnagrunn um rannsóknir á þessu sviði, samræma gagna- og upplýsingaþjónustu á Norðurlöndum og skipuleggja og standa fyrir ráðstefnum og námskeiðum fyrir fræðikonur/-menn. Á stofnuninni er aðstaða til að halda námskeið fyrir fræðimenn og nemendur og aðstaða fyrir gestafræðimenn. Einnig skal rannsóknarstofnunin skipuleggja og veita aðstöðu vegna stúdenta- og fræðimannaskipta. Stofnunin er tengiliður við ýmis alþjóðasamtök og stofnanir og hefur sem slík orðið til að auka alþjóðlegt samstarf og styrkja tengsl við erlenda fræðimenn og stofnanir.
Mikil áhersla er lögð á að auka samstarf milli fræðimanna á Norðurlöndunum. Íslendingar eru þátttakendur í flestum rannsóknarverkefnum sem stofnunin stendur fyrir og hefur tilkoma hennar stórlega aukið þátttöku okkar í norrænum rannsóknum á þessu sviði. Á árinu voru haldin nokkur rannsóknarnámskeið fyrir fræðimenn bæði á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Undirbúningur heimsþings um kvennarannsóknir sem haldið verður í Tromsö í Noregi í júní 1999 er hafinn en NIKK er ein þeirra stofnana sem stendur að þeim undirbúningi. Þetta verður í fyrsta sinn sem heimsþingið verður haldið á Norðurlöndum.
Ákvörðun var tekin um nýtt þriggja ára verkefni um söfnun, miðlun og samhæfingu karlarannsókna á Norðurlöndum. Sérstakur starfsmaður hefur verið ráðinn og mun hann hefja störf í byrjun næsta árs.
Samstarf við Eystrasaltsríkin.
Baltnesk/norræn framkvæmdaáætlun. Starfandi er sérfræðingahópur sem hefur það verkefni að fylgja eftir verkefnaáætlun við Eystrasaltsríkin á sviði jafnréttismála. Áætlunin tekur til tímabilsins 1998–2000. Meginþemu hennar eru:
– Samstarf stjórnvalda/embættismanna sem vinna að jafnrétti kynja.
– Samstarf um fræðslu/miðlun upplýsinga.
– Samstarf um kvenna- og jafnréttisrannsóknir.
– Samstarf félagasamtaka.
– Samstarf um að vinna gegn ofbeldi gagnvart konum.
22. Húsnæðis- og byggingarmál.
Starf á vegum embættismannanefndar um húsnæðis- og byggingarmál á árinu hafði að leiðarljósi samstarfsáætlun sem samþykkt var af húsnæðisráðherrum Norðurlandanna fyrir tímabilið 1998–2001 en þar er lögð áhersla á þrjú megin viðfangsefni:
– félagslega þætti húsnæðismála,
– sjálfbæra þróun í byggingar- og húsnæðismálum,
– samvinnu við grannsvæðin.
Í samstarfsáætluninni er lögð áhersla á norrænt notagildi og breyttar áherslur á þessum vettvangi síðastliðin ár. Félagslegir þættir, staða og aðskilnaður ólíkra hópa á húsnæðismarkaði og aðstæður þeirra sem verst eru settir hafa verið í brennidepli. Þannig hefur dregið úr vægi tæknilegra þátta er lúta að nýbyggingum að öðru leyti en því sem viðkemur vistvænum byggingum, umhverfi og sjálfbærri þróun sem fengið hefur sífellt meira vægi.
Samstarfið hefur haft að leiðarljósi miðlun reynslu og þekkingar varðandi leiðir og lausnir í húsnæðismálum. Á árinu var unnið að rannsóknarverkefnum varðandi stefnumótandi þætti húsnæðismála, gefnar út skýrslur og haldnar námsstefnur auk þess sem unnið var að undirbúningi fyrir ný verkefni.
Á fyrri hluta ársins var haldin námsstefna í Ósló um húsaleigubætur á Norðurlöndum. Farið var yfir stöðu og horfur í hverju landi fyrir sig ásamt því að prófessor frá enskum háskóla flutti fræðilegt erindi um fyrirkomulag húsaleigubóta í Evrópu.
Fjallað var um framtíð norræns samstarfs á sviði húsnæðis- og byggingarmála á sameiginlegum fundi húsnæðisráðherra og fulltrúa frá Norðurlandanefnd Norðurlandaráðs. Niðurstaðan var m.a. sú að lögð skyldi megin áhersla á félagslega þætti húsnæðismála.
Áfram var unnið að verkefni er snýr að félagslegum aðskilnaði sérhópa á húsnæðismarkaði en skýrsla kom út á árinu 1997 (Bostadspolitik mot segregation). Embættismannanefndin stofnaði til samstarfs við Samband sænskra sveitarstjórna sem tók að sér undirbúning að norrænu samstarfi um hvernig megi styrkja ímynd íbúðarhverfa og samheldni íbúanna. Á árinu 1998 hófst vinna við rannsóknarverkefni undir heitinu „húsnæðismál aldraðra í framtíð“. Markmiðið er að lýsa reynslu af mismunandi fyrirkomulagi í húsnæðismálum aldraðra á Norðurlöndum. Gert er ráð fyrir samanburðarrannsókn á fyrirkomulagi og framkvæmd þessara mála. Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað árið 1999 málefnum aldraðra.
Unnið var að samanburðarrannsókn undir heitinu „Housing in the Nordic Countries“ sem er ætlað að draga upp heildarmynd af fyrirkomulagi og stöðu húsnæðismála á Norðurlöndum. Markmið þessa verkefnis er að gefa út rit með upplýsingum um húsnæðismál á Norðurlöndum sem yrði aðgengilegt fyrir Eystrasaltslöndin, Austur-Evrópu og Evrópusamstarfið. Skýrslan verður gefin út á ensku á næsta ári.
Skýrsla sem kom út árið 1997 undir heitinu „Nordisk bustadsrett“ var gefin út á ensku á árinu 1998. Efni skýrslunnar, sem er samanburðargreining á gildandi réttarreglum um húsnæðismál á Norðurlöndum, hefur vakið mikla athygli.
23. Iðnaðar- og atvinnumál.
Á árinu 1998 höfðu Svíar með höndum formennsku í hinu norræna samstarfi og þar með á sviði iðnaðar- og atvinnumála (næring).
Stefnumarkandi ráðherrafundur iðnaðar- og orkuráðherranna var haldinn í júní í Þrándheimi en auk þess fundaði embættismannanefndin sjö sinnum til þess að leggja á ráðin og framfylgja ákvörðunum ráðherranna og Norðurlandaráðs. Forustuhlutverkið flyst á árinu 1999 til Íslendinga.
Höfuðáherslan í starfi ráðherranefndarinnar árið 1998 hefur eftir sem áður verið á þremur meginsviðum: að betrumbæta norræna samkeppnisstöðu til atvinnuaukningar og hagsældar, að samræma atriði er varða EES og ESB svo og eftirfylgni samstarfsmála í þágu grannsvæðanna í austri. Nýsköpun og þróun hefur verið í fyrirrúmi og upplýsinga- og samskiptatækni, rafræn viðskipti atvinnumarkaðarins og framþróun dreifbýlisbyggða.
Á Norðurlandavettvangi.
Hinn 1. september 1998 lauk víðtækri úttekt og skýrslugerð á vegum ráðherranefndarinnar um hið norræna samstarf og samstarfskosti, að því er tekur til nýsköpunar og þróunar. Embættismannanefndin hefur síðan gaumgæft niðurstöðurnar, og mun það starf allt verða lagt til grundvallar að samstarfinu á sviði nýsköpunar í þágu atvinnulífsins sem og framtíðarhlutverk Norræna iðnaðarsjóðsins að því er þetta varðar en ráðherranefndin fer með mál er varða stofnunina.
Í ársbyrjun 1998 lauk skýrslugerð um það með hvaða hætti atvinnulífið á Norðurlöndum notfærir sér upplýsingatæknina. Einkum var tekið mið af litlum og meðalstórum fyrirtækjum en tilgangurinn var að bera kennsl á sameiginlega þætti og þar með skyggnast um eftir nýjum hugmyndum og aðgerðum á norrænum vettvangi.
Rafræn viðskipti og hagnýting upplýsingatækni í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja var sérstaklega á dagskrá ráðherranna á júnífundi þeirra. Fólu þeir embættismannanefndinni að fylgjast grannt með framvindu mála, einnig á sviði annarra atvinnugreina.
Ráðherrarnir fjölluðu um athuganir á möguleikum og hindrunum á því að Norðurlönd gætu haft áhrif út á við sem ein heild. Með tilliti til þessa hratt embættismannanefndin af stað rannsókn á því hvernig bæta má samkeppnishæfi landanna með auknu samstarfi Norðurlandanna í atvinnumálum. Skal kostað til þessa verks 1 millj. d.kr.
Veitt var fé til og lagður grunnur að tilraunaverkefni um notkun upplýsinga- og samskiptatækni í norrænum fyrirtækjum. Stefnt var m.a. að því að móta reglur um hvernig leggja megi mat á hagnýtingu upplýsingatækni í norrænum fyrirtækjum og þar með leiða í ljós samræmdan grundvöll fyrir tölfræðilegar mælingar á Norðurlöndum og síðar innan vébanda Evrópusambandsins og OECD. Áfram verður unnið að þessu máli á árinu 1999.
Ráðist var í forathugun og skýrslugerð um sambærilegar tölulegar upplýsingar um rafeindaiðnaðinn og þau norrænu fyrirtæki er starfa við upplýsingatækni.
Um var að ræða söfnun samræmdra tölulegra upplýsinga sem einskorðaðar eru við þjónustu, vörur og atvinnugreinar á framangreindum sviðum.
Í framhaldi ákvörðunar viðskiptaráðherranna var skipaður starfshópur um rafræn viðskipti. Starfsemin hefst árið 1999 og beinist þá að því að menn miðli reynslu hver frá sínu landi og hreyfi síðan hugmyndum og tillögum við ráðherrana.
Á grundvelli skýrslu um samþættingu, samverkun atvinnulífs, vinnumarkaðar og byggðasvæða var efnt til ráðstefnu í Stokkhólmi í febrúar. Norrænir þátttakendur voru 80. Þessi málefni og leiðir til styrktar atvinnulífi í dreifbýli voru áfram á dagskrá iðnaðar- og atvinnumálaráðherranna í júní.
Í ársbyrjun var efnt til 100 manna norrænnar ráðstefnu um umhverfisvæna framleiðslustefnu. Þar var til umfjöllunar samþætt stefna í umhverfis- og framleiðslumálum. Ræddir voru m.a. norrænir samstarfshættir og hugmyndir að raunhæfum samstarfsverkefnum í umhverfis-, neytenda- og atvinnumálum, einnig frumkvæði og ráðgjöf.
Á árinu 1998 var áfram unnið að samstarfsverkefni Iðntæknistofnunar Íslands og Færeyinga til eflingar ferðamannaiðnaði, sem byggir á menningarlegum og umhverfisvænum grundvelli.
Veitt var nokkurt fé með embættismannanefndinni um menningarmál til tilraunaverkefnis er lýtur að ferðamálum í Eystrasaltslöndunum.
Útflutningsráð Íslands fékk styrk til forrannsóknar á útflutningsþróunarverkefnum í Litháen. Niðurstöður lágu fyrir um mitt ár.
EES/ESB.
Að venju voru málefni Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins fastur dagskrárliður á fundum iðnaðarráðherranna svo og embættismannanefndarinnar. Er þá leitað svara og veittar óformlegar upplýsingar um það sem menn helst vilja fregna af þeim vettvangi.
Til þess að hlutast til um aukið gagnkvæmt upplýsingastreymi á sviði iðnaðar- og atvinnumála fundaði embættismannanefndin í október með iðnaðarfulltrúum Norðurlandanna í Brussel ásamt fulltrúum EFTA-skrifstofunnar og Evrópusambandsráðsins. Þessi kynni gáfu góða raun og verða efld áfram.
Grannsvæðin.
Á umliðnum árum sem og 1998 hafa talsverð samskipti átt sér stað á vegum ráðherranefndarinnar við stjórnvöld grannsvæðanna til eflingar þeirri viðleitni Eystrasaltsríkjanna og grenndar Pétursborgar að aðlagast ESB og EES á sviði iðnaðar- og atvinnumála. Um er að ræða málþing, námsferðir og þjálfun sérfræðinga frá grannsvæðunum.
Fé til þessa hefur verið veitt af fjárlagaliðum ráðherranefndarinnar til einstakra samstarfsverkefna.
Þannig var á árinu hrundið af stað verkefni sem nefnist „Östjobb“ og felst í því að senda ungt fólk frá Norðurlöndum, sem er í starfsþjálfun, í þjálfunar- og kynnisferðir til Eystrasaltsríkjanna. Veittar voru 400 þús. d.kr. á árinu vegna 20 þátttakenda sem fóru til Pétursborgar og Lettlands.
Af sérstökum fjárveitingalið, sérstaklega ætluðum hinum norrænu samskiptum við grannsvæðin, voru áfram veittar 3,5 millj. d.kr. á árinu til verkefnisins „Nordpraktik“, sem fólst í að aðstoða og þjálfa 130 sérfræðinga frá grannsvæðunum á Norðurlöndum.
Stofnanir:
Norræni iðnaðarsjóðurinn.
Norræni iðnaðarsjóðurinn er stofnun á vegum ráðherranefndarinnar um iðnaðar- og atvinnumál (sjá nánar um Norræna iðnaðarsjóðinn, kafla 26.2.).
Nordtest.
Í nóvember 1998 var fagnað 25 ára afmæli stofnunarinnar.
Helstu áherslusvið Nordtest eru upplýsinga- og rafeindatækni, gæðakröfur, efnistækni og umhverfismál. Samkvæmt þeirri framkvæmdaáætlun, sem iðnaðarráðherrarnir samþykktu síðla árs 1997, skal Nordtest stuðla áfram að öryggi, góðu umhverfi og gæðum með því að efla norræna samvinnu um prófunartækni. Hið góða orðspor, sem Nordtest nýtur, hefur leitt til þess að aðferðir og tækniskýrslur stofnunarinnar eru gjarnan lagðar til grundvallar í alþjóðlegu og evrópsku þróunar- og stöðlunarstarfi á sviði prófunartækni. Það hefur svo aftur leitt til þess að norrænar aðstæður og sjónarmið í þessum efnum eru mjög ríkjandi. Áfram verður mikil áhersla lögð á Evróputengslin og samstarfið við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og stofnanir þess.
Umfangsmikil úttekt og endurskoðun, líkt og gerð var á iðnaðarsjóðnum, var hafin síðla árs og lýkur henni væntanlega á fyrri hluta árs 1999.
Nordtest birtir ársskýrslu sína fyrir starfsárið um miðjan febrúar 1999.
24. Upplýsingatækni.
Í formennskutíð Norðmanna 1997 voru mótaðar hugmyndir um aukið samstarf Norðurlanda á sviði upplýsingatækni. Þann 20. mars 1998 var síðan haldinn samráðsfundur ráðherra Norðurlanda á sviði upplýsingatækni í Haga-höllinni í Stokkhólmi. Á þeim fundi var tekin ákvörðun um að stofna til formlegs norræns samstarfs um upplýsingatækni og mynda norrænt tengslanet milli þeirra ráðuneyta sem ábyrgð bera á samræmingu á sviði upplýsingatækni. Á fundi samstarfsráðherra í Kaupmannahöfn 13. janúar 1999 var tekin formleg ákvörðun um að setja á laggirnar ráðherranefnd og embættismannanefnd um samstarf landanna á þessu sviði.
25. Norrænar stofnanir á Íslandi.
25.1. Norræna húsið.
Formlegt hlutverk hússins er að koma til móts við og örva áhuga á norrænum málefnum á Íslandi og miðla þekkingu um Ísland á öðrum Norðurlöndum. Hefur þetta verið hlutverk stofnunarinnar frá því hún hóf störf árið 1968.
Norræna húsið er norræn menningarmiðstöð á breiðum grunni og heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Það er að mestu leyti rekið af ráðherranefndinni og þar með af Norðurlöndunum sameiginlega.
Árið 1998 var merkisár í sögu Norræna hússins, því stofnunin hefur starfað í þrjátíu ár. Starfsemin hefur ávallt verið mjög öflug og fjölbreytt og forstjórar Norræna hússins hafa á þessu þrjátíu ára tímabili verið góðir merkisberar norræns samstarfs. Nýr forstjóri, Riitta Heinämaa frá Finnlandi, tók til starfa 1. janúar 1998, þegar Torben Rasmussen lét af störfum að loknu fjögurra ára starfstímabili.
Ný stjórn Norræna hússins tók einnig til starfa. Tove Veierød, upplýsingafulltrúi hjá Norsk Hydro i Noregi, var kosin formaður stjórnarinnar. Varaformaður er Sigríður Anna Þórðardóttir, alþingismaður. Skipunartími stjórnar er 3 ár. Í stjórninni eiga sæti 7 manns, 3 frá Íslandi og 1 frá hverju landanna Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Starfsmenn Norræna hússins eru 16, þar af 3 verkefnaráðnir.
Starfsemi Norræna hússins var með hefðbundnu sniði og var fólgin í rekstri bókasafns, kaffistofu, sýningarsalar, með sýningum í anddyri, fyrirlestra- og tónleikahaldi, barnadagskrám, vestnorrænu fjölmiðlaverkstæði, skólaheimsóknum og upplýsingastarfsemi um norræn málefni. Að venju var Jónsmessan haldin hátíðleg að norrænum sið og í desember var Lúsíuhátíð haldin samkvæmt sænskri hefð. Mörg félög, félagasamtök, stofnanir, tónlistarfólk og aðrir tóku fundarsal og fundarherbergi á leigu vegna funda, málþinga, ráðstefnuhalds, tónleika o.fl. Tónleikar á vegum tónleikanefndar Háskóla Íslands voru á vor- og haustmánuðum og kynningar á óperum Richards Wagners voru haldnar á vegum Wagnerfélagsins.
Hefðbundin bókmenntakynning sendikennara Norðurlanda við Háskóla Íslands var haldin í samvinnu við bókasafn hússins í febrúar. Bókasafnið er opið alla daga vikunnar. Útlán bóka hefur verið svipað og undanfarin ár. Norræn myndbönd og geisladiskar með norrænni tónlist hafa bæst við safnið í æ ríkara mæli. Góðar bókagjafir bárust safninu í tilefni af afmæli hússins. Sænski utanríkisráðherrann Lena Hjelm-Wallén færði bókasafninu að gjöf „Nationalencyklopedin“ á margmiðlunardiskum.
Norræna húsið átti samstarf við norrænar stofnanir og listasöfn um sýningar á árinu; Norrænt ljós og myrkur með listamönnum frá norðurhéruðum Svíþjóðar og Finnlands, ljósmyndasýningin Ung i Norden í samvinnu við NIFIN og sýning á verkum sænska listmálarans Rojs Fribergs í samvinnu við Hjørring Kunstmuseum, Listasavn Førøyar og Listasafn Akureyrar.
Í anddyri voru myndlistarsýningar auk ljósmyndasýninga, m.a. frá Álandseyjum og Grænlandi.
Norræna húsið á sæti í fulltrúaráði Listahátíðar í Reykjavík. Framlag Norræna hússins til Listahátíðar 1998 var sýningin „Skjáir veruleikans“ í sýningarsölum og anddyri. Myndlistarmenn frá Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi, auk Daða Guðbjörnssonar og Helga Þorgils Friðjónssonar frá Íslandi, áttu verk á sýningunni. Sýningin var einnig sett upp í Listasafninu á Akureyri, verður í Norðurlandahúsinu í Færeyjum í janúar 1999 og lýkur í Horsens Kunstmuseum í apríl 1999. Norræni menningarsjóðurinn og Norræni myndlistar- og listiðnaðarsjóðurinn veittu styrk til sýningarinnar. Sýningin Norrænt grafíkþríár með þátttöku grafíklistamanna frá Norðurlöndum og Póllandi var haldin í samvinnu við félagið Íslensk grafík. Sumarsýning Norræna hússins, „Þeirra mál ei talar tunga“, var haldin í samvinnu við Kvennasögusafn Íslands. Á sýningunni voru verk eftir listakonur sem voru frumherjar í íslenskri myndlist. Sumardagskrá Norræna hússins var helguð verkum íslenskra kvenna á sviði tónlistar, skáldskapar, leiklistar og kvikmynda og var einnig í samvinnu við Kvennasögusafnið. Tónlistarmenn, kórar og kammersveitir frá Norðurlöndum héldu tónleika í Norræna húsinu á árinu. Í desember voru opnaðar sýningar helgaðar aldarminningu finnska arkitektsins Alvars Aaltos (1898-1976). Þar voru til sýnis ljósmyndir og líkan af bókasafninu í Víborg sem Aalto teiknaði og var tekið í notkun 1935.
Viðamikil afmælishátíð var haldin í ágúst með þátttöku margra gesta frá Norðurlöndum, m.a. frá menntamálaráðuneytum Norðurlanda, Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni. Einnig var boðið gestum frá stjórnsýslu- og menntastofnunum í Reykjavík auk kirkju og alþingi.
Fjölbreytt dagskrá var í Opnu húsi laugardaginn 23. ágúst. Þar komu fram tónlistarmenn frá Álandseyjum, Danmörku, Finnlandi, Grænlandi, Noregi og Svíþjóð. Menntamálaráðuneyti viðkomandi landa færðu Norræna húsinu þetta framlag tónlistarmannanna að afmælisgjöf. Í bókasafni var sett upp sýning frá Þjóðminjasafni Eistlands á hefðbundnu handverki og var sýningin gjöf frá Menntamálaráðuneyti Eistlands. Margar góðar gjafir og kveðjur bárust Norræna húsinu frá norrænum stofnunum, Norrænu félögunum og einstaklingum. Sérstök dagskrá fyrir börn og unglinga fór fram sunnudaginn 24. ágúst, og hátíðardagskrá fyrir boðsgesti fór fram síðdegis sama dag. Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands flutti hátíðarræðu, og Berit Brørby Larsen, forseti Norðurlandaráðs og Søren Christensen, aðalritari skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar, fluttu ávörp. Auk þess fluttu íslenskar tónlistarkonur verk eftir Jórunni Viðar. Mánudaginn 25. ágúst var leikskólabörnum boðið að koma og hlýða á finnska tónlistarhópinn Mukaralla.
Mikil áhersla var lögð á efni fyrir yngri kynslóðina og var börnum úr leikskólum borgarinnar og nágrenni boðið að koma og fræðast um Norðurlönd. Kynningin var í höndum verkefnisstjóra og var veittur styrkur til verkefnisins frá Norrænu ráðherranefndinni. Norræn barnakvikmyndahátíð var haldin í Reykjavík í október og voru erindi flutt í Norræna húsinu. Auk þess stóð verkefnisstjórinn fyrir málþingi um norrænar barnakvikmyndir í tengslum við hátíðina, með þátttöku fyrirlesara frá Norðurlöndum.
Vestnorræna fjölmiðlaverkstæðið hélt áfram starfsemi sinni. Tímaritið OZON kom út tvisvar á árinu (5. og 6. tbl.), og var því dreift, eins og áður, til framhaldsskóla í hinum vestnorrænu löndum. Forstjóri Norræna hússins ber meginábyrgð á verkefninu og verkefnisstjórar frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi annast daglega framkvæmd. Verkefninu lýkur í árslok 1998. Það er fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni og vestnorrænu stofnununum þremur, Norðurlandahúsinu í Færeyjum, Norræna húsinu í Reykjavík og Norrænu stofnuninni á Grænlandi.
Tvö tveggja vikna sumarnámskeið um íslenska tungu og menningu voru haldin í júlí og voru þátttakendur 26 frá öllum Norðurlöndum og 2 frá Lettlandi.
Norrænn skólaráðgjafi hefur haft aðsetur í Norræna húsinu en heyrir undir NORDMÅL, sem er verkefni á vegum NSS (Styringsgruppen for nordisk skolesamarbejde). Stöðugildið er nú 1,5. Fjöldi grunnskólabarna fékk fræðslu um Norðurlönd og einnig hópar sem komu frá Norðurlöndum til að fræðast um Ísland og íslenska menningu. Norrænn skólaráðgjafi verður með sjálfstæðan rekstur og verður leigutaki í Norræna húsinu árið 1999.
Norræna húsið hefur fengið í grunnframlag u.þ.b. 55 millj. ísl. kr. frá Norrænu ráðherranefndinni árin 1996–98. Veitt var aukaframlag vegna viðgerða á fasteigninni og til endurnýjunar á húsgögnum í kaffistofu. Norræna húsið fékk einnig styrki úr ýmsum sjóðum til sérverkefna.
Í árslok 1998 lauk samningi um verkefnavísa sem gerður var við Norrænu ráðherranefndina fyrir tímabilið 1995–1998.
25.2. Norræna eldfjallastöðin.
Meginhlutverk Norrænu eldfjallastöðvarinnar er að stunda rannsóknir í jarðvísindum með áherslu á eldvirkni, flekahreyfingar og umhverfisrannsóknir þeim tengdar og á að þróa norrænt samstarf í grundvallarvísindum á sínu sviði. Stofnunin heyrir undir Norrænu ráðherranefndina og fjárveiting til stofnunarinnar árið 1998 er 77,4 millj. ísl. kr. en auk þess fær stofnunin á þessu ári fjárveitingar frá öðrum til kaupa á nýjum massagreini, til reksturs sumarskóla, til ýmissa sérverkefna og reksturs húsnæðis.
Miklar breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi við stofnunina á árinu og ennþá ekki séð fyrir endann þar á. Forstjóri stofnunarinnar frá upphafi, Guðmundur E. Sigvaldason, lét af störfum 1. júlí en Karl Grönvold gegnir nú stöðu forstöðumanns.
Rannsóknir.
Norræna eldfjallastöðin var stofnuð til þess að gefa Norðurlandabúum tækifæri til þess að stunda rannsóknir á eldvirkni á stað þar sem slík virkni er nánast alltaf í gangi í einhverri mynd og þar sem þekking er veruleg og vaxandi. Um leið og Norðurlönd fá þannig aðgang að þekkingu og reynslu er stofnunin styrkur fyrir þær rannsóknir sem fyrir eru í landinu.
Mikið af jarðmyndunum hinna Norðurlandanna eru mynduð við forna og löngu útkulnaða eldvirkni og til þess að skilja betur þessar myndanir, sem margar hafa verulegt efnahagslegt gildi, getur aðgangur að svæðum sem virk eru í dag skipt miklu máli. Fyrir þá sem búa í eldfjallalandi skiptir miklu að hafa eins mikinn skilning á eðli, orsökum og hegðun eldvirkni og mögulegt er á hverjum tíma.
Kvikumyndun og kvikustreymi eru hluti af gríðarlegum efnisflutningum úr iðrum jarðar og til yfirborðs þar sem kvikan leggur til efni til nýmyndunar jarðskorpu og hefur áhrif á efnasamsetningu grunnvatns, sjávar og andrúmslofts. Þessir efnisflutningar hafa í mörgu afgerandi áhrif á ýmsa umhverfisþætti á Norður-Atlantshafi. Eldvirkni er þannig ekki bara sú ógnun og hætta sem eldgos eru íbúum landsins heldur einnig mikilvægur umhverfisþáttur.
Stofnun á stærð við Norrænu eldfjallastöðina á eingöngu möguleika á því að vera framarlega í rannsóknum á afmörkuðum sviðum eldfjallafræði og nú beinist áhersla sérfræðinga stofnunarinnar að mælanlegum jarðskorpuhreyfingum og að jarðefnafræði. Mörgum sviðum er snerta eldfjallarannsóknir, eins og t.d. jarðskjálftaathugunum, er þegar sinnt á öflugan hátt í landinu en öðrum sviðum, eins og eldgosahegðun (physical-volcanology), mætti vera betur sinnt.
Jarðskorpuhreyfingar á Íslandi hafa einkum tvennar orsakir — landið er að gliðna um rekbeltin og bergkvika er á hreyfingu í jarðskorpunni. Hvort tveggja veldur mælanlegum landslagsbreytingum. Framfarir í mælitækni hafa verið hraðstígar á undanförnum árum og hefur stofnunin jafnan verið vel búinn til slíkra mælinga - bæði hvað varðar aðkeypt tæki og sérhönnuð og heimasmíðuð. Undanfarið hefur áhersla verið á notkun radarmynda úr gervihnöttum þar sem bornar eru saman myndir teknar á mismunandi tímum. Þetta gerir það mögulegt að kanna hreyfingar á stærri svæðum, en jafnframt er eldri mælinetum sinnt eftir því sem tilefni gefst til.
Jarðefnafræði er beitt til skilnings á myndun og þróun bergkviku í iðrum jarðar og síðan þeim áhrifum sem eldvirkni hefur á umhverfið. Slík umhverfisáhrif eru mikil, bæði þegar litið er til langs tíma og þegar litið er til skammtímaáhrifa. Mjög stór eldgos eru líkleg til þess að hafa afgerandi áhrif á umhverfi sitt, þar með talið veðurfar. Sem betur fer eru stórgos þeim mun sjaldgæfari sem þau eru stærri en með rannsóknum á minni gosum má fá haldbærar upplýsingar um líkleg áhrif stórgosa.
Miklar framfarir verða stöðugt í efnagreiningartækni sem er undirstaða slíkra rannsókna og á þessu ári eignaðist eldfjallastöðin nýtt tæki, massagreini, sem opnar nýja möguleika á sviði jarðefnafræði. Tækið er keypt með styrkjum frá Rannsóknarráðum Íslands, Noregs og Danmerkur og frá sjóði Knut og Alice Wallenberg í Svíþjóð. Er vonast til þess að tækið verði komið í fulla notkun snemma á næsta ári.
Norrænir styrkþegar og alþjóðatengsl.
Stofnunin ræður yfir fimm stöðum styrkþega fyrir unga vísindamenn frá Norðurlöndum og auk þeirra hafa þrír aðrir notið aðstöðu á stofnuninni í ár. Allir þessir styrkþegar og gestir vinna að verkefnum í samvinnu við sérfræðinga stofnunarinnar. Sérfræðingar stofnunarinnar taka einnig þátt í margvíslegum alþjóðlegum rannsóknarverkefnum m.a. í Frakklandi, Bretlandi, Bandaríkjunum, á Norðurlöndum og víðar m.a. sem þátttakendur í samvinnuverkefnum á vegum Evrópusambandsins.
Sumarskóli.
Fjórði sumarskóli Norrænu eldfjallastöðvarinnar var haldinn að Kirkjubæjarklaustri í september og fjármagnaður af NorFA og Evrópusambandinu. Þátttakendur voru 50 ungir vísindamenn og leiðbeinendur sem allir eru meðal helstu sérfræðinga, hver á sínu sviði. Viðfangsefni sumarskólans voru niðurstöður úr athugunum á ískjörnum frá Grænlandi og breytingar á veðurfari á Norður-Atlantshafi seinustu árþúsundin. Jöklar og stórhraun Suðurlands mynduðu hvetjandi umhverfi fyrir skólann sem einnig naut ómetanlegrar aðstoðar Sigfúsar J. Johnsen og Árnýjar E. Sveinbjörnsdóttur hjá Raunvísindastofnun háskólans.
26. Norrænir sjóðir.
26.1. Norræni fjárfestingarbankinn (NIB).
Starfsemi og afkoma.
Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) er fjölþjóðleg fjármálastofnun í eigu Norðurlandanna fimm. Bankinn fékk fyrst alþjóðlegt lánshæfismat árið 1982 og hefur síðan óslitið notið besta mögulega vitnisburðar matsfyrirtækjanna Standard & Poors og Moody´s (AAA/Aaa).
Árið 1998 er 23. starfsár bankans. Eignaraðild Íslands er u.þ.b 1%. Hlutverk Norræna fjárfestingarbankans (NIB) er að veita lán og ábyrgðir á markaðskjörum til fjármögnunar fjárfestinga, sem í senn uppfylla kröfur um norræna hagsmuni og hagsmuni lántakenda, jafnt innan sem utan Norðurlanda. Bankinn veitir einnig lán til verkefna í Eystrasaltslöndum innan sérstakrar norrænnar fjárfestingaráætlunar þeirra vegna. Auk þess annast bankinn nýja fjárfestingaráætlun á sviði umhverfismála á grannsvæðum Norðurlanda. Höfuðstöðvar bankans eru í Helsinki, en auk þess hefur bankinn svæðisskrifstofur í Kaupmannahöfn, Ósló, Reykjavík og Stokkhólmi auk Singapore. Starfsmenn eru nú alls 122 og þar af sex Íslendingar.
Fimmta árið í röð sýnir rekstur Norræna fjárfestingarbankans stöðugan og góðan hagnað. Á tímabilinu 1.1. – 31.8. 1998 var hagnaður bankans ECU 78 millj. (ISK 6.224 millj.), samanborið við ECU 80 millj. á sama tímabili í fyrra. Vaxtamunur fyrstu átta mánuði ársins var ECU 91 millj. en samsvarandi tala í fyrra ECU 87 millj.
Lykiltölur fyrir tímabilið 1.1. – 31.8. 1998 eru í stuttu máli þessar:
– Norræni fjárfestingarbankinn var rekinn með ECU 78 millj. hagnaði fyrstu átta mánuði ársins. Þetta er svipaður hagnaður og á sama tímabili í fyrra.
– Vaxtamunur var ECU 91 millj. á tímabilinu en var 87 millj. á sama tíma árið áður.
– Tekin voru 45 lán í 13 gjaldmiðlum. Stærsta einstaka lánið var 500 millj. bandaríkjadala. Einnig gaf bankinn út sín fyrstu skuldabréf í pólskum zloty og grískum drökhmum. Endurgreiðslur áður tekinna lána námu ECU 1.082 millj. (ECU 762 millj.).
– Niðurstaða efnahagsreiknings í ágústlok reyndist ECU 10,7 milljarðar í lok tímabilsins en var 10,0 á sama tíma í fyrra.
Síðustu fjögur ár hefur ávöxtun eigin fjár bankans verið nálægt 12% að nafnvirði sem jafngildir um 9–10% raunávöxtun á ári. Útlit er fyrir fyrir svipaða niðurstöðu árið 1998. Útlánastofn bankans hefur vaxið um 12% á ári síðustu fjögur ár og hefur bankinn greitt út arð til eiganda sinna ár hvert. Síðustu tvö ár námu arðgreiðslur til eigenda ECU 35 millj. (ISK 2,8 milljörðum) hvort ár.
NIB á Íslandi.
Útistandandi lán til til íslenskra lögaðila nema ríflega ISK 37 milljörðum og svarar það til nærri 8% af heildarlánveitingum bankans til Norðurlanda. Þessu til viðbótar koma umsamin óútborguð lán til Íslands að jafnvirði ISK 4,4 milljarða. NIB er stærsti einstaki erlendi lánveitandinn til Íslands og nemur hlutdeild bankans um 15% af öllum erlendum langtímaskuldbindingum þjóðarbúsins. Rúmlega 54% útistandandi lána NIB til Íslands eru til ýmissa innviðaframkvæmda á sviði raforkudreifingar og -framleiðslu, fjarskipta og samgangna. Lán til sjávarútvegs nema rúmlega 16% af útlánum bankans til Íslands. Lán til byggðamála nema um 9% af útlánum bankans. Útlán bankans til umhverfisfjárfestinga bæði í iðnaði og innviðum hafa vaxið hröðum skrefum. Lán til ýmissa verkefna á sviði umhverfismála, eins og sorphirðu og frárennslis nema rúmlega 5% af útlánum til Íslands. Önnur útlán NIB til Íslands eru m.a. á sviði iðnaðar og ferðaþjónustu.
Útborguð ný lán til Íslands á árinu 1997 námu ISK 6,5 milljörðum. Á tímabilinu janúar til nóvember 1998 hafa verið samþykkt sex ný lán til Íslands að jafnvirði 3,1 milljarður króna Ný samþykkt lán á fyrstu ellefu mánuðum ársins 1998 greinast þannig á einstaka flokka: Bankar 1.360 millj., einkafyrirtæki 1.150 millj. og fyrirtæki í eigu hins opinbera 560 millj. Gert er ráð fyrir að útborguð ný lán á árinu 1998 nemi alls um 5,5 milljörðum króna.
NIB hefur lagt bönkum og lánastofnunum í aðildarlöndunum og utan þeirra til lánaramma. Þannig lánar bankinn innlendum lánastofnunum fjármuni sem þær endurlána síðan til verkefna sem uppfylla kröfur bankans um lánshæfi. Þessi aðferð hefur reynst vel á Íslandi þar sem hefðbundin lánastarfsemi bankans var áður að mestu bundin við hið opinbera og stærstu fyrirtæki landsins. Veitt rammalán til Íslands námu alls ISK 4,6 milljörðum á árunum 1995–1997 og það sem af er árinu 1998 hafa verið samþykktir lánarammar til Íslands að jafnvirði ISK 1.360 millj.
Rammafyrirkomulagið hefur orðið til þess að lán bankans renna nú til mun fleiri verkefna en áður og með lánarömmum getur NIB nú þjónað smáum og meðalstórum íslenskum fyrirtækjum mun betur en áður.
NIB hefur einnig lagt áherslu á aukið samstarf við íslenska banka með lánarömmum, samstarfi í útlánum og kynningu á nýjungum bankans sem heimfæra má á íslenska fjármálakerfið. Nýtt áhættustýringarkerfi NIB hefur m.a. verið kynnt íslenskum bönkum. Þá er fyrirhugað að kynna íslenskum lánastofnunum aðferðir bankans við umhverfismat en kerfisbundin gerð slíks mats er forsenda lánveitinga NIB.
Alþjóðalán NIB.
Eftirspurn eftir alþjóðlegum lánum NIB fer vaxandi. Á fyrstu átta mánuðum ársins 1998 var gengið frá nýjum alþjóðalánum að fjárhæð ECU 195 millj. sem er 28% aukning frá sama tímabili árið 1997.
Útistandandi lán NIB utan Norðurlanda námu ECU 1.323 millj. í ágústlok 1998. Nýir samningar um réttarstöðu NIB hafa verið gerðir í Argentínu, Botswana, Kólumbíu, Króatíu, Mauritius, Rúmeníu og Túnis en slíkir samningar eru forsenda fyrir lánveitingum af bankans hálfu.
NIB hefur átt í viðræðum við nokkur íslensk fyrirtæki sem hyggjast sækja á alþjóðamarkaði og vill leggja sitt af mörkum til að styðja álitleg útrásarverkefni í íslensku atvinnulífi.
Lán af þessu tagi hefur þegar verið veitt til jarðhitaveitu í borginni Tianjin í Kína sem verkfræðifyrirtækið Virkir-Orkint stóð að. NIB lánaði fé til þessa verkefnis í samvinnu við Norræna þróunarsjóðinn (NDF). NIB hefur veitt lán til jarðhitaveitu í Galanta í Slóvakíu sem Virkir-Orkint undirbjó. Bæði Hitaveita Reykjavíkur og Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) eiga aðild að því verkefni. Þá lánuðu NDF og NIB til sjávarútvegsfyrirtækis með íslenskri aðild í Namibíu. Þess utan hefur NDF lánað til fiskveiðiverkefna eða fiskirannsókna með íslenskri þátttöku í Malaví, Mozambique og á Grænhöfðaeyjum. Íslenskir ráðgjafar hafa einnig komið við sögu í fiskveiðiverkefni á Maldiveseyjum sem fjármagnað var af NDF.
NDF, Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (NOPEF) og NEFCO eiga gott samstarf við NIB, eru með aðsetur í höfuðstöðvum bankans og njóta þar þjónustu frá honum. Allir þjóna þessir aðilar norrænum fyrirtækjum.
Meðal verkefna utan Norðurlanda með íslenskri þátttöku sem eru til athugunar hjá NIB um þessar mundir má nefna ný háhitaverkefni á Yuannan og Tianjin svæðunum í Kína og stóra jarðhitaveitu í Kosice í Slóvakíu.
Umhverfislán NIB.
Á síðustu átta árum hefur Norræni fjárfestingarbankinn veitt lán til um 170 umhverfisfjárfestinga á Norðurlöndum sem nema um ECU 1,3 milljörðum. NIB hefur bæði lánað til iðnfyrirtækja sem þróa umhverfisvæna framleiðslu eða framleiðsluaðferðir og einnig til umhverfisfjárfestinga á vegum sveitarfélaga. Um það bil fimmtungur heildarlána NIB hefur farið til umhverfisfjárfestinga.
Í ágústmánuði árið 1996 ákváðu forsætisráðherrar Norðurlanda að stofna skyldi við NIB nýjan umhverfislánaflokk sem í byrjun byggir á ECU 100 millj. norrænni ábyrgð eða 7,9 milljörðum ISK og hófust lánveitingar á árinu 1997. Þessum lánum skal varið til að auðvelda umhverfisbætur á grannsvæðunum í austri þ.e. við Eystrasalt, Barentshaf og á Kólaskaga. Á þessum slóðum eru umhverfismál í ólestri og mikil þörf á að draga úr mengun í lofti og legi. Markmiðið með þessum nýja umhverfislánaflokki er að draga úr mengun sem berst út í Eystrasalt og í norðvestur héruðum Rússlands. Lán hafa þegar verið veitt til vatnsveitu- og frárennslisframkvæmda í Pétursborg og til umhverfisframkvæmda á vegum sveitarfélaga í öllum Eystrasaltslöndunum og Póllandi. Dæmi um verkefni sem er til sérstakrar athugunar í bankanum um þessar mundir er endurnýjun á nikkelbræðslum í Pechenga á Kólaskaga. Markmiðið með þátttöku Norðurlanda í endurbótum á þessu fyrirtæki er að draga úr stórhættulegri efnamengun á svæðinu, sem hefur áhrif í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.
NIB í Eystrasaltsríkjunum.
Frá árinu 1993 hefur NIB í samvinnu við Evrópubankann og NOPEF annast framkvæmd fjárfestingaráætlunar Norðurlanda í Eystrasaltsríkjunum (BIP). NIB hefur einnig lagt fjárfestingarbönkunum þremur sem starfræktir eru í Eystrasaltsríkjunum til lánsfé og tæknilega aðstoð. Bankinn hefur þegar lánað um ECU 50 millj. til u.þ.b. 35 verkefna til Eystrasaltsríkjanna innan ramma fjárfestingaráætlunarinnar. Þá hefur hann einnig lánað beint til norrænna fyrirtækja til fjárfestinga í Eystrasaltríkjunum. Mest hafa umsvifin verið í Eistlandi enda hafa Eistlendingar náð lengst í uppbyggingu markaðshagkerfis af Eystrasaltsríkjunum þremur.
Stefnt er að því að smám saman dragi úr tæknilegri aðstoð NIB við fjárfestingarbankana þrjá í Eystrasaltsríkjunum. Bankinn hefur þegar að mestu dregið sig út úr rekstri fjárfestingarbanka Eistlands, sem getur nú staðið óstuddur. NIB hefur lagt áherslu á að nýir og öflugir hluthafar með þekkingu í bankaviðskiptum eignist aðild að hinum bönkunum. Í samráði við Norrænu-Baltnesku fjárfestingarnefndina (NBIC, embættismannanefnd sem hefur umsjón með BIP) hefur NIB nýtt Norræna fjárfestingarsjóðinn til að greiða fyrir þessu.
Nú hefur finnsk-sænska samsteypan Merita-Nordbanken keypt ráðandi hlut í fjárfestingarbanka Lettlands. Þá er stefnt að sölu hlutabréfa í Litháíska fjárfestingarbankanum til nýrra hluthafa sem geta eflt starfsemi hans.
Markmið og meginstefna NIB.
Nýverið lauk ítarlegri stefnuvinnu innan bankans þar sem markmið og langtímastefna hans voru mótuð. Slík stefnumótun er ekki síst mikilvæg í ljósi þeirra miklu breytinga sem nú standa yfir í evrópsku atvinnu- og fjármálalífi. NIB fylgist náið með þeirri þróun og er nægjanlega sveigjanlegur til að geta brugðist við væntanlegum breytingum, en það er mikilvæg forsenda áframhaldandi velgengni bankans.
Meginmarkmið NIB er að stuðla að hagvexti á Norðurlöndum. Í því skyni vill hann:
– Stuðla að auknu norrænu samstarfi í atvinnulífi og eflingu innviða á Norðurlöndum.
– Hvetja til fjárfestingar yfir landamæri innan Norðurlanda og til markaðssóknar og fjárfestingar norrænna fyrirtækja á grannsvæðum Norðurlanda og á öðrum nýjum markaðssvæðum.
– Vera í forustu fyrir fjármögnun umhverfisverkefna á Norðurlöndum og á grannsvæðum í austri og fjárfestingar í umhverfisvænni nýsköpun og framleiðslu ásamt því að stuðla að eflingu rannsókna og þróunar í atvinnulífinu.
– Leggja áherslu á samstarf við aðrar lánastofnanir sem viðbót við bankakerfi Norðurlanda.
Til þess að bankinn geti framvegis sem hingað til boðið góð lánskjör verður hann að viðhalda besta lánshæfismati. NIB er ein örfárra fjármálastofnana sem hefur lánshæfiseinkunnina AAA/Aaa á alþjóðlegum fjármálamarkaði og er þess vegna mikilvæg viðbót við lánakerfi Norðurlandanna.
Til þess að vinna að framgangi þessarar meginstefnu mun NIB:
– Kynna bankann sem öfluga lánastofnun í þágu atvinnulífsins á Norðurlöndum og sem viðbót við þjónustu annarra banka.
– Efla sérþekkingu og þjónustu við fjármögnun umhverfis-, orku- og innviðaverkefna annars vegar og hins vegar rannsókna og þróunarverkefna.
– Auka lán til fjárfesta utan Norðurlanda til verkefna á Norðurlöndum sem og fjármögnun norrænna fjárfestinga á nýjum mörkuðum.
– Fjölga þeim löndum sem eiga kost á PIL lánum bankans.
– Rækta samstarf við norrænar og alþjóðlegar fjármálastofnanir.
– Efla hlutdeild bankans í innviðafjárfestingum með þátttöku einkaaðila og öðrum verkefnum á sviði einkarekstrar.
– Auka fjárhagslegt bolmagn bankans og vera í fremstu röð í áhættustýringu við ávöxtun fjármagns hans.
Aukið stofnfé NIB.
Miðað við núverandi vöxt útlána til verkefna á Norðurlöndum má búast við því að útistandandi lán nálgist á næsta ári mjög þau mörk, sem núverandi stofnfé bankans setur þeim. Verkefnalán utan Norðurlanda (PIL-Projektinvesteringslån) fylla einnig sinn lánaramma á næsta ári.
Hlutfall stofnfjár og útlána Norræna fjárfestingarbankans hefur efri mörkin 2,5, m.ö.o. er miðað við að heildarútlán verði aldrei hærri en 2,5 sinnum stofnféð. Því þarf að koma til umtalsverð hækkun stofnfjár til að halda megi ofangreindri áætlun um aukningu útlána. Á fundi sínum í júní 1998 veitti Norræna ráðherranefndin samþykki sitt fyrir eftirfarandi:
– Eigið fé Norræna fjárfestingarbankans verði aukið úr ECU 2.809 millj. í ECU 4.000 millj.
– Af aukningunni, sem nemur ECU 1.191 millj., skulu ECU 100 millj. greiðast af hluthöfum en afgangurinn vera í formi aukinna ábyrgða eigenda.
– Af þeim ECU 100 millj. sem hluthafar greiða skulu ECU 70 millj. koma úr varasjóði bankans. ECU 30 millj. greiðist beint af eigendum með jöfnum greiðslum á þremur árum, í fyrsta skipti í ársbyrjun 1999.
Aukið svigrúm til lána utan Norðurlanda.
Vaxandi alþjóðavæðing í norrænu atvinnulífi hefur leitt til aukinnar eftirspurnar eftir langtímalánum á samkeppnishæfum kjörum til verkefna utan Norðurlanda. PIL lánaflokkurinn hefur gegnt mikilvægu hlutverki í útrás margra norrænna fyrirtækja. Frá árinu 1982 hafa aðildarlönd NIB ábyrgst 90% af hverju PIL láni. Ábyrgðarféð nemur nú í heild ECU 1.800 millj. en var í upphafi SDR 350 millj. árið 1982. Á þeim rúmu 15 árum sem PIL lánin hafa verið veitt hefur aldrei reynt á ábyrgð eigenda bankans.
Miðað við vöxt útlána í PIL lánaflokknum og horfur varðandi verkefnaútflutning virðist ljóst að til ársins 2005 getur aukning PIL lána numið 10–12% á ári án þess að bankinn þurfi að auka áhættu í lánveitingum. Áætlun til næstu 5 ára gerir því ráð fyrir aukningu PIL lánaflokksins í ECU 3,3 milljarða.
Í ljósi þeirrar góðu reynslu sem fengist hefur af PIL lánaflokknum hefur ráðherranefndin tekið ákvörðun um eftirfarandi:
– Lánarammi PIL verði aukinn úr ECU 2 milljörðum í ECU 3,3 milljarða á árinu 1999.
– Heildarfjárhæð ábyrgðar eigenda verði eftir sem áður ECU 1,8 milljarðar.
– Fyrir hvert einstakt PIL lán nemi ábyrgð eigendanna framvegis sem hingað til 90% af andvirði lánsins en ábyrgð bankans 10% en þó fari skuldbindingar eigendanna aldrei fram úr ECU 1,8 milljörðum í heild.
Stofnfjáraukningin sem hér um ræðir og bíður samþykktar þjóðþinganna fimm, mun auka heildarbolmagn bankans til útlána innan og utan Norðurlanda úr ECU 9–10 milljörðum í ECU 14 milljarða.
Nýr stofnsamningur NIB.
Starfsemi Norræna fjárfestingarbankans hefur orðið mun alþjóðlegri en fyrirsjáanlegt var við stofnun hans árið 1975. Ástæður þessa er fyrst og fremst að finna í breytingum á atvinnulífi Norðurlandanna þar sem fyrirtæki sækja nú fastar á erlenda markaði en áður. Á þessum rúmu tveimur áratugum hefur einnig orðið veruleg breyting á því umhverfi sem bankinn starfar í, bæði hvað varðar skattareglur og reglur á fjármálamarkaði.
Aðildarríkin (Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð) hafa nú undirritað nýjan stofnsamning sem treystir stöðu NIB sem alþjóðlegs lögaðila og miðar að því að bankinn standi jafnfætis öðrum fjölþjóðlegum fjármálastofnunum sem hann starfar með.
Staðfesting hins nýja stofnsamnings Norræna fjárfestingarbankans er nú til meðferðar hjá þjóðþingunum fimm.
Evran: Ný reikningseining NIB.
Frá árinu 1993 hafa reikningar NIB verið færðir í ekum (ecu). Þegar þriðji og síðasti áfangi Efnahags- og myntbandalagsins (EMU) hefst í ársbyrjun 1999 mun bankinn skipta um reiknings- og fjármagnseiningu og taka upp evru (euro) í stað eku (ecu), í hlutfallinu 1:1. Þessi breyting mun að ýmsu leyti styrkja stöðu NIB. Hin nýja reikningseining, evra, verður nú raunverulegur gjaldmiðill 11 Evrópulanda, og mun hasla sér völl sem alþjóðlegur gjaldmiðill við hlið Bandaríkjadals. NIB hafði lítið gagn af eku (ecu) í útlánum eða lántökum enda ekan „gengisgjaldmiðill“. Evran mun á hinn bóginn einfalda fjárstýringu NIB að ýmsu leyti. Þegar fram líða stundir og fjármagnsmarkaður EMU vex fiskur um hrygg verður einnig AAA/Aaa-lánshæfiseinkunn NIB án efa enn verðmætari en fyrr við lánsfjáröflun. Þetta skiptir miklu máli ekki síst á tímum ólgu og óvissu á alþjóðlegum fjármagns- og gjaldeyrismörkuðum.
Sú efling bankans sem felst í hinum nýja stofnsamning, fjármagnsaukningunni og upptöku evrunnar sem reikningseiningar kemur því á réttum tíma.
Horft til framtíðar.
Til lengri tíma litið mótast starfsemi bankans af þeirri þróun sem verður í efnahagslegu og alþjóðlegu umhverfi Norðurlanda. Greina má þessa meginstrauma:
– Alþjóðavæðing atvinnulífs og fjármálastarfsemi.
– Evrópusamruni þar sem Efnahags- og myntbandalagið (EMU) er þungamiðjan um þessar mundir.
– Tenging ríkja sem áður bjuggu við miðstýrðan áætlunarbúskap við alþjóðlega markaðskerfið.
– Einkavæðing innviða og iðnaðar í opinberri eigu um allan heim.
Þessi þróun mun án efa færa með sér ný og ögrandi verkefni fyrir allar fjármálastofnanir. Hlutverk NIB er að vinna með norrænum fyrirtækjum og fjármálastofnunum að því að efla samkeppnishæfni og heilbrigða framvindu efnahagsmála í þessu nýja og síbreytilega umhverfi.
26.2. Norræni iðnaðarsjóðurinn
Á árinu 1998 var starfsemi Norræna iðnaðarsjóðsins í samræmi við nýja stefnumörkun, sem iðnaðarráðherrarnir höfðu samþykkt. Þar er lagður til grundvallar styrkur norrænnar samvinnu á sviði iðnaðarrannsókna og þróunar í evrópsku samhengi. Mun sjóðurinn hér eftir fást í enn ríkari mæli við fjármögnun á frumskeiði nýsköpunarferlis og hvetja til verkefnahugmynda á norrænum vettvangi. Verkefna sem ýmist væri hægt að fjármagna frá Evrópu eða í viðkomandi landi. Megináherslan er eftir sem áður lögð á starfsemi lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem og þróun og framleiðslu þar sem höfð er hliðsjón af umhverfisvernd, lífsgæðum og heilbrigði.
Árið 1998 var hið fyrsta þriggja ára rekstraráætlunar 1998–2000. Í júnímánuði var minnst aldarfjórðungsafmælis sjóðsins og í ágúst tók nýr forstjóri við stjórnartaumum þar.
Í framhaldi framangreindrar skýrslugerðar og umfjöllunar ráðherra- og embættismannanefndar um hið norræna samstarf og samstarfskosti að því er tekur til nýsköpunar og þróunar, vinnur stjórn og framkvæmdastjóri að tillögugerð varðandi hlutdeild af sjóðsins hálfu.
Ársskýrsla Norræna iðnaðarsjóðsins fyrir starfsárið kemur út í febrúar 1999.
26.3. Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (Nopef).
Samstarf um útflutningsverkefni.
Markmið Norræna verkefnaútflutningssjóðsins, (Nopef) er að efla alþjóðlega samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja og stuðla að þátttöku þeirra í verkefnum á alþjóðavettvangi. Þetta gerir sjóðurinn með því að styðja for- og arðsemisathuganir á verkefnum sem talið er að geti leitt til nýrra viðskiptatækifæra á erlendum mörkuðum. Í þessu skyni veitir Nopef lán á hagstæðum kjörum. Jafnframt stendur sjóðurinn fyrir almennum athugunum sem geta komið norrænu viðskiptalífi að gagni í þessu samhengi.
Nopef styður við forathuganir vegna útflutningsverkefna eftir tveimur meginleiðum. Annars vegar er um að ræða almennan stuðning við slík verkefni utan aðildarríkja ESB og EFTA. Hins vegar styður sjóðurinn samstarf norrænna og baltneskra fyrirtækja með því að veita lán til stofnunar lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Eistlandi, Lettlandi og Litháen (BIP-lán). Að auki hefur Nopef með höndum nokkur smærri verkefni, m.a. stuðning við grannsvæðin í Norðvestur-Rússlandi og samstarfsverkefni við ESB.
Almenn verkefni.
Nopef veitir fyrirtækjum áhættulán til for- og arðsemisathugana á verkefnum sem til þess eru fallin að efla útflutning frá Norðurlöndum og stuðla að alþjóðavæðingu norrænna fyrirtækja. Lánin geta svarað til allt að 50% af kostnaði við gerð slíkra athugana og getur sjóðurinn breytt þeim í styrk reynist ekki grundvöllur fyrir verkefninu en annars ber að endurgreiða þau. Lánin eru vaxtalaus.
Helstu forsendur fyrir stuðningi Nopefs eru:
– Verkefnið verður að vera vel skilgreint og byggt á viðskiptalegum grunni.
– Verkefnið verður að tengjast löndum utan ESB og EFTA.
– Norrænir hagsmunir þurfa að liggja að baki verkefninu.
– Raunhæf fjárhagsáætlun vegna verkefnisins þarf að liggja fyrir.
Verkefnin geta verið af margvíslegu tagi og er lögð megináhersla á að viðunandi líkur séu á að þeim verði hrint í framkvæmd.
Lán vegna baltnesku ríkjanna (BIP).
Í tengslum við fjárfestingaráætlunina fyrir baltnesku ríkin (BIP) hafa norrænu löndin falið Nopef að styðja norræn fyrirtæki til að stofna lítil og meðalstór fyrirtæki í þessum löndum. Í vissum tilvikum kemur einnig til greina að styrkja fyrirtæki frá umræddum ríkjum ef það er í samstarfi við norrænan aðila. Stuðningurinn samkvæmt þessari áætlun, sem nær til ársloka 1999, er í formi vaxtalauss láns eins og þegar um almennan stuðning er að ræða. Lánin geta hins vegar numið allt að 60% af áætluðum kostnaði við athuganirnar og ef verkefnið leiðir til árangurs er hægt að sækja um 20% viðbótarlán. Ef verkefni er ekki hrint í framkvæmd getur lántaki sótt um niðurfellingu lánsins. Verkefnin eru jafnframt skilgreind víðar en almennu verkefnin, m.a. ná þau til undirbúnings viðskiptaáætlana og samstarfssamninga, tillögugerðar um endurskipulagningu fyrirtækja o.fl. Hámarksstuðningur við hvert verkefni er 600 þúsund finnsk mörk.
Verkefnin 1998.
Nopef studdi 99 verkefni á árinu 1998 og nam stuðningurinn við þau rúmlega 298 millj. ísl. kr. Þar af voru tvö íslensk verkefni sem fengu samtals 7 millj. ísl. kr. Hér á eftir er sýndur fjöldi verkefna eftir löndum og fjárhæðir fyrir árin 1997 og 1998.
| Fjöldi | Fjárhæð (millj. ísl. kr.) | |||
| 1997 | 1998 | 1997 | 1998 | |
| Danmörk | 39 | 43 | 118,7 | 141,3 |
| Eistland | 1 | 4 | 3,5 | 12,4 |
| Finnland | 24 | 12 | 64,3 | 33,7 |
| Ísland | 2 | 2 | 8,7 | 7,0 |
| Litháen | 1 | 3,9 | ||
| Noregur | 16 | 16 | 52,6 | 44,3 |
| Svíþjóð | 23 | 21 | 61,4 | 55,4 |
| Samtals | 105 | 99 | 309,2 | 298,0 |
Enginn vafi er á því að starfsemi Nopef hefur verið að styrkjast undanfarin ár og árangurinn að aukast, sérstaklega hefur áherslan á grannsvæðin verið að skila sér. Verkefnum hefur fjölgað sem leitt hafa af sér viðskipti og jafnframt hefur eftirspurn eftir stuðningi frá sjóðnum aukist.
Nopef, sem settur var á stofn árið 1982, er systurstofnun Norræna fjárfestingarbankans (NIB), Norræna þróunarsjóðsins (NDF) og Norræna umhverfissjóðsins (NEFCO). Þessar stofnanir eru allar staðsettar í Helsingfors.
26.4. Norræni þróunarsjóðurinn (NDF).
Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) tók formlega til starfa 1. febrúar 1989. Hann hefur aðsetur hjá Norræna fjárfestingarbankanum (NIB) í Helsinki og nýtur samrekstrar með honum að mörgu leyti. Ákvörðun var tekin vorið 1996 um að ríflega tvöfalda stofnfé sjóðsins, sem er nú 515 millj. SDR (um 50 milljarðar ísl. kr.), sem greiðist af Norðurlöndunum samkvæmt viðtekinni kostnaðarskiptareglu.
Markmið sjóðsins er að styrkja efnahagslegar og félagslegar framfarir í þróunarríkjum í samvinnu við aðrar lánastofnanir. Fyrst og fremst er lánað til fátækustu ríkja heims. Lánakjörin eru með þeim bestu sem þekkjast. Lán eru til 40 ára, afborganalaus fyrstu 10 árin, vaxtalaus, en bera 0,75% þjónustugjald á ári fyrir þann hluta láns, sem er útgreiddur, og 0,5% staðfestingargjald fyrir þann hluta láns, sem ekki hefur verið greiddur. Í litlum mæli hafa einnig verið veitt áhættulán til einkafyrirtækja.
Á árinu 1998, fram til 1. desember, hafði sjóðurinn undirritað lán að fjárhæð 42,1 millj. SDR, en heildarlán á árinu nema væntanlega hátt í 50 millj. SDR (tæpir 5 milljarðar ísl. kr.) til alls 14 verkefna. Frá stofnun hefur sjóðurinn þar með veitt lán að fjárhæð um 360 millj. SDR (um 35 milljarðar ísl. kr.).
Sex lán hafa verið undirrituð þar sem íslensk fyrirtæki eiga beinna hagsmuna að gæta:
a. Lán var veitt til fiskveiðiverkefnis í Malawi að fjárhæð 2,8 millj. SDR (um 270 millj. ísl. kr.). Sjóðurinn tekur þátt í verkefninu ásamt Alþjóðabankanum og Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ). Verulegur hluti lánsins var notaður til byggingar tveggja skipa á Íslandi, rannsóknarskips og togveiðiskips, auk þess sem ýmiss annar tækjabúnaður var keyptur frá Íslandi.
b. Fiskveiðiverkefni í Namibíu hlaut 1,5 millj. SDR lán (um 150 millj. ísl. kr.). Sjóðurinn tók þátt í fjármögnun verkefnisins ásamt NIB. Verkefnið er samstarfsverkefni Íslenskra sjávarafurða hf. og félags í eigu namibískra stjórnvalda, sem í sameiningu hafa ráðist í verulegar fjárfestingar vegna uppbyggingar veiða og vinnslu í sameiginlegu fyrirtæki, Seaflower Whitefish Corporation í bænum Luderitz. Lán NDF var notað til kaupa á tækjabúnaði í frystihús og frystitogara fyrirtækisins, m.a. frá Íslandi.
c. Á Grænhöfðaeyjum hefur sjóðurinn tekið þátt í verkefni í samvinnu við ÞSSÍ um fjármögnun fiskveiðiverkefnis. Veitt hefur verið lán að fárhæð 2,1 millj. SDR (rúmar 200 millj. ísl. kr.) til að kosta fræðslustarfsemi, ráðgjöf og tækjabúnað. Verkefnið var að hluta til undirbúið af íslenskum ráðgjöfum fyrir hönd NDF og tækjabúnaður keyptur frá Íslandi að hluta til.
d. Í Tanggu í Kína hefur NDF tekið þátt í hitaveituverkefni í samvinnu við NIB. NDF hefur lánað um 0,7 millj. SDR (um 70 millj. ísl. kr.) en NIB tvöfalt meira. Íslenskir ráðgjafar hafa starfað að verkefninu og töluvert af búnaði var keyptur frá Íslandi til verkefnisins, sem nú er lokið.
e. Sjóðurinn hefur veitt rammalán að fjárhæð 5,6 millj. SDR (um 550 millj. ísl. kr.) til Þróunarbanka Austur-Afríku (East African Development Bank), sem er í eigu ríkissjóða Kenya, Tansaníu og Uganda, með aðsetur í Kampala. Þessum lánaramma er ætlað að styðja smá- og meðalstór fjárfestingarverkefni. Íslenskum aðilum var veitt lán að fjárhæð 500 þús. bandaríkjadala (um 35 millj. ísl. kr.) til fjárfestinga í fiskveiðum og vinnslu við Viktoríuvatn.
f. Sjóðurinn hefur veitt lán til fiskveiðiverkefnis í Mozambique í samvinnu við ÞSSÍ og dönsku þróunarsamvinnustofnunina DANIDA. Lán sjóðsins er 3,6 millj. SDR (um 350 millj. ísl. kr.) og hefur að hluta til verið notað til að fjármagna rekstur rannsóknarskipsins Fengs. Breytingar og viðhald á skipinu, áður en það hélt til Mozambique, voru unnar á Íslandi.
Að auki má nefna að á árinu 1998 hefur þátttaka sjóðsins í endurfjármögnun Seaflower-fyrirtækisins í Namibíu verið undirbúin í samvinnu við Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins á Íslandi. Þar er íhugað að NDF veiti áhættulán.
Þess er vænst að þremur verkefnum, sem sjóðurinn hefur stutt í samvinnu við ÞSSÍ, muni ljúka á næsta ári, þ.e. fiskveiðiverkefninu á Grænhöfðaeyjum, fiskveiðiverkefninu í Malawi og rannsóknarþætti sjávarútvegsverkefnis í Mozambique, en líkur eru á að framhald verði á einhverjum þessara verkefna.
Heildarlán til verkefna með beinum íslenskum hagsmunum eru u.þ.b. 16 millj. SDR (tæpir 1,6 milljarðar ísl. kr.). Íslensk fyrirtæki hafa unnið samninga sem nema um 1,8% af heildarfjárhæð samninga við norræn fyrirtæki sem sjóðurinn hefur fjármagnað frá stofnun hans. Hlutdeild Íslands í fjármögnun sjóðsins er 1,1%. Auk þess hefur sjóðurinn í allnokkrum mæli keypt íslenska sérfræðiþjónustu til verkefnaundirbúnings og eftirlits.
Á árinu 1999 mun fara fram heildarmat á starfsemi sjóðsins til undirbúnings ákvarðanatöku um frekari fjármögnun hans árin 2001–2005.
Í stjórn Norræna þróunarsjóðsins sitja fulltrúar Norðurlandanna fimm. Fulltrúi Íslands í stjórn er Ingvar Birgir Friðleifsson, forstöðumaður Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, en hann gegndi stjórnarformennsku frá miðju ári 1997 fram á mitt ár 1998. Varamaður hans er Björn Dagbjartsson, forstjóri ÞSSÍ. Starfslið sjóðsins telur 14 starfsmenn. Meðal þeirra er einn Íslendingur, Guðmundur Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu. Hann gegnir starfi sérstaks ráðgjafa (Senior Adviser) um tveggja ára skeið í fjarveru Engilberts Guðmundssonar, aðstoðarforstjóra sjóðsins, sem starfar tímabundið hjá Alþjóðabankanum í Washington.
26.5. Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO)
Árið 1998 var áttunda starfsár Norræna umhverfisfjármögnunarfélagsins (NEFCO). Stofnfé félagsins er 80 millj. ekna.
Megintilgangur félagsins samkvæmt stofnsamningi Norðurlandanna er að stuðla að umhverfisbótum svo sem bættum mengunarvörnum í löndum Mið- og Austur-Evrópu. NEFCO tekur þátt í verkefnum með því að leggja fram fjármagn í formi hlutafjár eða lána til fyrirtækja. Þátttaka NEFCO er ákveðin á grundvelli mats á umhverfisáhrifum verkefna og fyrirtækja. Almenn skilyrði fyrir þátttöku NEFCO í umhverfisverkefnum er að fyrirtæki eða einstaklingar í því landi þar sem verkefnið er unnið og frá einu norrænu landanna eigi aðild að verkefninu og leggi til þess fjármagn. Hlutdeild NEFCO nemur að jafnaði ekki meiru en 25% af heildarhlutafé.
Í árslok 1998 hafði stjórn NEFCO samþykkt þátttöku í alls 43 verkefnum með fjármögnun í formi hlutafjár og lána að upphæð 49,09 millj. ekna en áætluð heildarfjárfesting í þessum verkefnum er um 592,5 millj. ekna.
Verkefnin skiptast þannig eftir löndum: Pólland 13, Tékkland 4, Slóvakía 2, Eistland 8, Lettland 11, Litháen 2 og Rússland 3. Aðild norrænna fyrirtækja skiptist þannig eftir löndum: Ísland 2, Danmörk 10, Finnland 11, Noregur 9 og Svíþjóð 11.
Styrktarsjóður NEFCO (Blødgøringsfaciliteten).
Árið 1996 var tekin ákvörðun um að stofna styrktarsjóð við NEFCO og starfrækja hann næstu þrjú ár. Árið 1998 námu framlög til sjóðsins 35 millj. d.kr., 25 millj. d.kr. frá norrænu löndunum og 10 millj. d.kr. af norrænum fjárlögum.
Frá stofnun sjóðsins hafa 21 verkefni verið til umfjöllunar og ýmist verið tekin ákvörðun um styrk eða lýst yfir vilja til að styrkja. Sjö þessara verkefna eru komin til framkvæmda. Samtals hefur sjóðurinn ráðstafað og samþykkt framlög að fjárhæð um 87 millj. d.kr. og ef talin eru með þau verkefni sem lýst hefur verið vilja til að styrkja hefur um 124 millj. d.kr. verið ráðstafað.
Á árinu 1998 fór fram úttekt á starfsemi sjóðsins ásamt mati á árangri starfseminnar. Í framhaldi af því var ákveðið að halda áfram starfsemi sjóðsins 1999–2003 á svipuðum grunni og áður, þ.e. með árlegum framlögum frá aðildarríkjum og úr sameiginlegum sjóði Norrænu ráðherranefndarinnar. Nafni sjóðsins var breytt og heitir hann nú norræni umhverfisþróunarsjóðurinn (Nordiska Miljöutveklingsfonden — NMF).
26.6. Lánasjóður Vestur-Norðurlanda.
Samþykktir.
Ráðherranefndin ákvað 1997 breytingu á samþykktum sjóðsins með gildistöku áramótin 1997/98. Breytingin felur í sér að sjóðnum er ætlað að leggja aukna áherslu á lánveitingar til Færeyja og Grænlands og er honum ekki lengur ætlað að lána til fyrirtækja á Íslandi nema þau séu í samstarfi við Færeyinga eða Grænlendinga. Færeyingar og Grænlendingar geta á hinn bóginn sótt einir um lán til verkefna sinna eða þá í samstarfi við hvaða þjóð sem er.
Breyting samþykktanna felur einnig í sér að sjóðnum er ætlað að nota hluta af hagnaði sínum (allt að 1,5 MDKK) til að styrkja starfsemi NORA, Norrænu Atlantsnefndarinnar, sem vinnur að samstarfi Færeyja, Grænlands, Íslands og Noregs. Framlag sjóðsins bætist við landsframlög frá Færeyjum, Íslandi og Grænlandi.
Rekstur.
Breytingar hafa verið gerðar á rekstri sjóðsins 1998 í samræmi við hinar nýju samþykktir og í byrjun ársins ákvað stjórn sjóðsins að gera stefnumótandi áætlun fyrir starfsemina næstu árin, sem borin hefur verið undir ráðherranefndina og hlotið samþykki hennar.
Opnaðar hafa verið skrifstofur í Færeyjum og á Grænlandi til þess að styrkja starfsemi sjóðsins þar. Einn starfsmaður hefur verið fluttur frá Reykjavík til skrifstofunnar í Færeyjum en nýr starfsmaður hefur verið ráðinn til skrifstofunnar á Grænlandi. Á aðalskrifstofunni er forstjórinn auk tveggja starfsmanna í hálfu starfi.
Á næstunni mun aðalskrifstofan flytja úr leiguhúsnæði sínu til margra ára hjá Byggðastofnun í nýtt leiguhúsnæði hjá Landsbanka Íslands við Suðurlandsbraut 24 í Reykjavík.
Útlán.
Í samræmi við hinar nýju samþykktir voru engar íslenskar lánsumsóknir lagðar fyrir stjórn sjóðsins á árinu, en átta lán til iðnfyrirtækja á Íslandi sem sótt hafði verið um 1997 eða fyrr, voru borguð út á árinu.
Veruleg aukning varð á umsóknum frá Færeyjum og Grænlandi 1997 og 1998. Í lok ársins 1998 var gert ráð fyrir allt að níu útborguðum lánum til þessara landa á árinu (fimm lán til útgerðar, fiskvinnslu og iðnaðar í Færeyjum og fjögur lán til hótela á Grænlandi).
Stjórn.
Stjórn Lánasjóðs Vestur-Norðurlanda skipa sjö menn, einn frá hverju Norðurlandanna auk fulltrúa frá Grænlandi og Færeyjum og hefur hver þeirra einn varamann.
26.7. Norræni menningarsjóðurinn
Fjöldi umsókna sem bárust Norræna menningarsjóðnum árið 1998 var meiri en nokkru sinni fyrr, eða 995 umsóknir að upphæð 230 millj. d.kr. Fjöldi veittra styrkja hefur ekki verið í samræmi við þessa miklu aukningu í fjölda umsókna síðast liðin ár. Þess má geta að frestur til að skila inn umsóknum er frá og með áramótunum 1997/1998 tvisvar sinnum á ári í stað fjórum sinnum áður. Stjórnarfundir á árinu voru þrír.
Styrkir að upphæð 28,5 millj. d.kr. voru veittir á árinu, þar af voru styrkir að upphæð 23 millj. d.kr. greiddir út af fjárveitingu ársins 1998 en 5,5 millj. d.kr. eru greiddar út af fjárveitingu ársins 1999 og er þar um að ræða verkefni vegna norrænu menningarborganna árið 2000, Bergen, Helsinki og Reykjavík.
Stjórnin tók á árinu ákvörðun um að vinna að þróunaráætlun fyrir sjóðinn. Áherslur, ný styrksvið, nýir markhópar og starfsemi sjóðsins í ljósi markmiðsins um þrjár stoðir norræns samstarfs eru meðal málefna sem skoða á nánar. Jafnvel mætti skoða nánar hvernig verkefnum sem hlotið hafa styrk er fylgt eftir, gera úttektir á verkefnum sem lokið er og byggja á fenginni reynslu þegar mótaðar eru framtíðaráherslur.
Norræni menningarsjóðurinn fékk í nóvember aukafjárveitingu fyrir árið 1999 að upphæð 1,5 millj. d.kr. sem mun efla sjóðinn og auka möguleikana á að koma til móts við eftirspurn eftir styrki.
II. STARFSÁÆTLUN NORRÆNU RÁÐHERRANEFNDARINNAR (C2)
OG MEGINÞÆTTIR NORRÆNU FJÁRLAGANNA 1999
Inngangur.
Styrkur hins norræna samstarfs felst í langri hefð, rótgrónu neti náinna persónulegra tengsla, áþekkum viðhorfum til samfélagsins og einlægum áhuga á að finna í sameiningu nýjar leiðir til að þróa norrænt samfélag. Breytingar á formi samstarfsins við ríki meginlands Evrópu hafa því fremur eflt en veikt norrænt samstarf. Á æ fleiri sviðum leiðir norrænt samstarf til árangurs sem með eðlilegum hætti má nýta í samstarfinu í Evrópu.
Norrænt samstarf er í stöðugri þróun. Á síðasta þingi Norðurlandaráðs gáfu varnamálaráðherrarnir í fyrsta sinn skýrslu. Verður svo einnig framvegis. Undir formennsku Norðmanna hafa ráðherrar á sviði upplýsingatækni hist og væntanlega leiðir það framtak til norræns samstarfs af formlegri toga á þessu sviði. Í formennskutíð Svía árið 1998 hefur verið hafist handa um að kanna hvort hentugt sé að koma á kerfisbundnu norrænu samstarfi á fleiri sviðum.
Sú grunnhugmynd stenst að norrænt samstarf eigi að veita aðildarríkjum samstarfsins aukinn ávinning. Samstarfið á Norðurlöndum hvílir á því grunngildismati sem Norðurlandaþjóðirnar standa vörð um. Það fjallar um samkennd bæði hvað varðar menningu og tungu en einnig sameiginlegt gildismat hvað varðar lýðræði, grunnréttindi af félagslegum toga og aðra þætti sem móta gott samfélag handa íbúunum. Á allnokkrum sviðum skila samnorrænar lausnir augljósum ávinningi í aukinni hagkvæmni, eflingu norrænnar ímyndar og hagstæðari samkeppnisstöðu á alþjóðavettvangi. Þetta á einnig við um samstarfið við grannsvæðin og innan Evrópu.
Samkvæmt tilmælum Norðurlandaráðs skal efla vægi grannsvæða í starfinu svo að heildarhlutur þess þáttar nálgist fimmtung fjárlaga. Þennan áhersluauka ber einnig að telja samnorrænt framlag til eflingar norðlægri vídd Evrópusambandsins.
Umbótastarfi undanfarinna ára á starfssviðum Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar með áherslu á stoðirnar þrjár og á starfsemi sem stuðlar að því að varpa ljósi á hina pólitísku vídd samstarfsins hefur á árinu 1998 verið fylgt eftir með m.a. skipulagsbreytingu á skrifstofu ráðherranefndarinnar. Komið hefur verið á rökréttari ábyrgðarskiptingu milli hinna ýmsu aðila á vettvangi ráðherranefndarinnar. Skipulagsbreytingin á skrifstofunni felur í sér að hún getur verið virkari við undirbúning og eftirfylgd pólitískra ákvarðana með augljósari ábyrgð aðila innan stofnunarinnar.
Hið virka formennskuhlutverk skapar góða undirstöðu fyrir pólitíska forgangsröðun í norrænu samstarfi. Formennska Svía á árinu 1998 á sér stoð í undangenginni formennsku Norðmanna og slíkt stuðlar að stöðugri þróun. Í áætlun Svía er athyglinni beint að atvinnumálum og sjálfbæru samfélagi — og sér þess einnig stað í starfsemi komandi árs.
Starfsáætlunin og fjárlagafrumvarpið fyrir árið eru að ýmsu leyti breytt. Norðurlandaráð hefur í allnokkrum tilmælum sínum óskað eftir því að starfsáætlunin og fjárlagafrumvarpið yrðu einfölduð bæði að inntaki og uppbyggingu svo að kröfum um yfirsýn væri betur fullnægt. Starfsáætlunin nær í ár einungis til pólitískra heildaráætlana og athyglinni er beint að stoðunum þrem. Í fjárlagafrumvarpinu er í innganginum að finna greinargóða samantekt á frumvarpinu eins og það skiptist á stoðirnar þrjár. Fjárlagatextarnir eru kerfisbundnari þannig að tilgangur hvers liðs er greinilegur, áherslur varðandi árið 1999 koma glögglega fram og stuttlega er gerð grein fyrir afkomu ársins 1997.
A. STARFSÁÆTLUN NORRÆNU RÁÐHERRANEFNDARINNAR (C2)
Samstarfið á Norðurlöndum.
Norrænt samstarf grundvallast á meginstoðunum þrem. Samstarfið á Norðurlöndum er þó áfram fjöreggið. Þar með er ekki sagt að samstarfið eigi að dvelja við það sem var - síður en svo. Styrkur samstarfsins felst í getunni til endurnýjunar, m.a. í tengslum við forgangsröðun þess lands sem fer með formennsku, en jafnframt er ljóst að varðveita og þróa ber allnokkur grunnsamstarfssvið.
Svar við spurningunni um hvers vegna starfsemi eigi að fara fram undir samnorrænni stjórn ræðst áfram af skilyrðinu um „norrænt notagildi“ sem tekið var upp í kjölfar skýrslu sameiginlegs starfshóps á vegum Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar um umbætur í norrænu samstarfi.
Um alla norræna starfsemi skal gilda að hún
– færi að öðrum kosti fram undir stjórn hvers ríkis fyrir sig en samnorrænum lausnum fylgi veruleg jákvæð áhrif;
– staðfesti og efli norræna samkennd;
– bæti norræna starfshæfni og samkeppnisstöðu.
Beiting reglunnar um norrænt notagildi hefur m.a. leitt til sýnilegs árangurs í tengslum við úttektina á samnorrænum stofnunum. Allnokkrar stofnanir hafa breyst eða verið lagðar af og aðrar og skilvirkari leiðir hafa þróast fyrir norrænt samstarf, t.d. í formi tengslaneta sem haga starfsemi sinni eftir þörfinni hverju sinni.
Starfsemi og framtíð samnorrænna stofnana er stöðugt í athugun. Mat á stofnununum skal áfram miðast við norrænt notagildi þeirra.
Á mörgum sviðum fer fram árangursríkt samstarf án nokkurs samnorræns fjárframlags. Samnorrænar fjárveitingar ráða ekki úrslitum um það hvort koma megi á norrænu samstarfi. Almennt má segja að ekki er mikið um samnorræna starfsemi sem er fjármögnuð eingöngu með fjárveitingum á norrænu fjárlögunum. Áhrif norræns fjármagns magnast ef það nýtist framvegis í meiri mæli en endranær sem aflvaki, sem kveikja að frekara norrænu samstarfi.
Samstarf á sviði menningar, menntamála og vísinda er mikilvægt vegna þess að það festir í sessi norræna ímynd hvað varðar tungu, menningu og gildismat. Það tryggir að Norðurlandaþjóðirnar eru á allmörgum sviðum vísinda meðal fremstu þjóða heims, einnig á svokölluðum þröngum vísindasviðum þar sem Norðurlandaþjóðirnar myndu hver í sínu lagi vera of veikburða.
Efla ber vísindasamstarfið og beina því að sviðum þar sem norrænn ávinningur næst og Norðurlönd geta látið til sín taka á alþjóðavettvangi og enn fremur þar sem Norðurlandaþjóðirnar eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta. Samstarfið kemur til með að eflast og vera í háum gæðaflokki í krafti þeirrar norrænu stefnumótunar um rannsóknir og vísindi sem samþykkt hefur verið til að stuðla að samræmingu og skapa sameiginlegan grundvöll fyrir mat á samnorrænni vísindastarfsemi.
Endurskoðun menningarsamstarfs er nú í undirbúningi og lögð verður fram tillaga að stefnumótun um samstarf á komandi árum á sviði menntamála og vísinda.
Börn og ungmenni eru í brennidepli og unnið er af kappi að því að hrinda í framkvæmd áætlunum um norrænt menningarsamstarf í þágu barna og ungmenna. Áfangaskýrsla varðandi framkvæmdaáætlunina um menningarsamstarf í þágu barna og ungmenna 1996 -2000 verður lögð fyrir 50. þing Norðurlandaráðs.
Á sviði fjölmiðlunar er lögð mikil áhersla á að fylgja eftir sameiginlegri afstöðu menningarmálaráðherranna um að efla almenningsþjónustu (public service). Þessi starfsemi er vænleg til að ná mikilvægum meningarlegum markmiðum, sem festa ber í sessi og þróa þegar nýja stafræna tæknin verður tekin í notkun. Enn fremur er viðleitni í þá veru að skapa opið tæknikerfi til móttöku á stafrænu sjónvarpi, þ.e. að finna sameiginlegar tæknilegar lausnir varðandi hentugan móttökubúnað. Norðurlandaþjóðirnar starfa einnig saman að því að fylgja eftir tækniþróuninni hvað eftirlit varðar.
Mikilvægt áherslusvið er að viðhalda framleiðslu norrænna kvikmynda og norræns sjónvarpsefnis með styrk frá Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum. Bæði á sviði kvikmynda og sjónvarps er lögð áhersla á framleiðslu efnis í háum gæðaflokki sem höfðar til barna og ungmenna.
Í framtíðinni verða aðgerðir gegn útlendingaandúð og til eflingar skilnings á fjölmenningu áberandi á mörgum sviðum, ekki síst á sviði menningar- og menntamála. Menningarstarfsemi og íþróttir gegna mikilvægu hlutverki í þeirri viðleitni að stuðla að jákvæðri afstöðu til fjölmenningar Norðurlanda.
Á sviði tungumálasamstarfs verður lögð fram tillaga að heildarstefnu Norðurlanda varðandi tungumál. Hún getur orðið undirstaða frekari þróunar á þessu sviði og stuðlað að aukinni samþættingu aðgerða á tungumálasviði við aðra starfsemi ráðherranefndarinnar.
Áætlanir um aukin ferðalög og náms- og starfsdvöl eru mikilvægar í því skyni að efla sjálfsímynd unglinga og þroska hana í þá veru að hún nái til Norðurlanda í heild enda hefur í mörg ár verið lögð áhersla á þessa staðreynd. Á sviði menntamála og vísinda njóta þessar áætlanir áfram forgangs. Norræna ráðherranefndin hyggst viðhalda Nordjobb-áætluninni, sem veitir unglingum tækifæri til að fá sumarvinnu annars staðar á Norðurlöndum.
Á sviði samstarfs um byggðamál verður áfram unnið að því að styðja byggðastefnu þjóðanna með því að miðla þekkingu og reynslu. Á árinu 1999 verður lögð fram tillaga að samstarfsáætlun á sviði byggðamála. Samstarfi landamærasvæða verður haldið áfram í því skyni að efla efnahagslega og menningarlega samþættingu á landamærasvæðum.
Framkvæmd norrænnar áætlunar, sem nær yfir mörg svið og fjallar um aukið öryggi matvæla, verður brýnt áherslusvið. Meðal brýnustu viðfangsefna verða þverfagleg verkefni um merkingu matvæla, ásamt vinnu starfshóps sem m.a. á að athuga vandamál varðandi salmónellu og varðandi fúkalyf í skepnufóðri.
Norrænu samstarfi á sviði umhverfismála verður beint að því að tryggja framkvæmd Norrænnar umhverfisáætlunar 1996–2000. Samstarf verður hafið um þróun sameiginlegra norrænna markmiða varðandi umhverfisgæði, og sama á við um aukna skilvirkni í nýtingu auðlinda, í því skyni að stuðla að því að langtímamarkmiðum verði náð um sjálfbær Norðurlönd með tilliti til umhverfismála.
Samstarf á sviði orkumála, sem byggt er á yfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlandanna árið 1997, beinist að því að tryggja sjálfbæra orkuöflun á Norðurlöndum og annars staðar kringum Eystrasalt.
Innan sjávarútvegsins verður á árinu 1999 áfram unnið að framkvæmd upplýsingaáætlunar („Den Grønne Bølge“). Unnið er að því að áætlunin geti orðið fyrirmynd fyrir ESB en innan sambandsins eru uppi óskir um að veita neytendum gleggri upplýsingar um sjávarútveg.
Í formennskutíð Svía á árinu 1998 hefur verið lögð áhersla á að vinnumarkaðssviðið væri lykilsvið. Ný samstarfsáætlun fyrir vinnumarkaðs- og vinnuumhverfissviðið verður undirbúin á árinu 1999, og hyggst ráðherranefndin efla starfið í því skyni að fjölga atvinnutækifærum og styrkja málefni vinnumarkaðarins sem hluta af velferðarkerfi Norðurlanda. Sérstaklega verður lögð áhersla á aðgerðir til þess að bæta möguleika þeirra hópa sem eiga í erfiðleikum með að komast inn á vinnumarkaðinn. Enn fremur hyggst ráðherranefndin athuga afleiðingar þess með tilliti til vinnuréttar og vinnuumhverfis að tekin er í notkun ný tækni.
Ráðherranefndin hyggst vinna áfram að því að þróa norrænt samstarf á sviði jafnréttismála í því skyni að festa jafnréttisstarf í sessi og auka skilvirkni þess auk þess að tryggja norrænan vettvang fyrir frekara samstarf. Í einu verkefni er ætlunin að þróa aðgerðir og starfshætti til þess að tryggja að jafnréttissjónarmið ryðji sér til rúms í málefnum vinnumarkaðar og æskulýðsmálum. Jafnvel í eigin starfsemi ráðherranefndarinnar verður vægi jafnréttisstarfs aukið.
Samstarf við frjáls félög og almenningssamtök verður aukið og eflt. Stuðla ber að sífelldri umræðu og hin frjálsu félagasamtök eiga í þeim mæli sem unnt er að dragast inn í norrænt samstarf. Við mat á nýrri skipan samstarfs, sem fullnægir skilyrðum um norrænt notagildi, skulu frjálsu félagasamtökin ávallt vera með í skoðanaskiptum um það hvernig best sé að leysa verkefnið.
Í norrænu samstarfi skipa Vestur-Norðurlönd áfram þýðingarmikinn sess og menningartengslin sem liggja om norrænu húsin og stofnanirnar skulu efld og þróuð.
Samstarfið við Evrópu/ESB/EES.
Samstarf ráðherranefndarinnar um málefni Evrópu/ESB/EES hefur breyst með afgerandi hætti að loknum umbótum í norrænu samstarfi á árinu 1995 og eftir að Finnar og Svíar gengu í ESB. Evrópumálefni eru nú órjúfanlegur hluti af starfi Norrænu ráðherranefndarinnar. Samstarf Norðurlanda á vettvangi ráðherranefndarinnar skal byggt á hinum sameiginlega grunni Norðurlanda og stuðla að þróun hans. Samstarfinu skal beint að þeim sviðum þar sem Norðurlöndin eiga sameiginlega hagsmuni og hafa uppi óskir um að hafa áhrif á dagskrána í Evrópusamvinnunni. Norrænt samstarf á jafnframt að mynda brú milli þeirra ríkja Norðurlanda sem eru með í ESB og hinna auk sjálfstjórnarsvæðanna sem eru tengd Evrópusamstarfinu vegna EES og annarra samninga.
Evrópska víddin í norrænu samstarfi felur einkum í sér samstarf innan ESB en einnig samstarf innan EES. Norrænt samstarf varðandi Evrópumálefni getur þó jafnvel fjallað um samstarf í tengslum við aðrar evrópskar stofnanir, t.d. Evrópuráðið. Stefnt er að því að finna vettvang fyrir pólitíska samstillingu og, þegar forsendur verða til þess, sameiginlegt frumkvæði.
Framkvæmd ESB-víddarinnar í norrænu samstarfi hvílir bæði á sameginlegri ákvörðun forsætisráðherranna og Norðurlandaráðs um umbætur frá árinu 1995 og samþykkt samstarfsráðherranna í Uppsölum 1996. Ekki liggur fyrir nein megináætlun um samstarf ráðherranefndarinnar við ESB/EES. Meðferð ESB/EES-mála er oftast tvinnuð inn í samstarfs- og framkvæmdaáætlanir á hinum ýmsu sviðum.
Samstarfið að Evrópumálunum fær þannig á sig eðlilegan svip samráðs og upplýsingamiðlunar. Engin ósk er um það að norræn samskipan í ESB-málum eigi að leiða til samfylkingar innan ESB en kerfisbundið samráð veitir Norðurlandaþjóðum tækifæri til að gæta sameiginlegra hagsmuna. Skiptast má á upplýsingum bæði á undirbúningsstigi, fyrir fundina í ráðherraráði ESB og á framkvæmdastigi þegar formleg ákvörðunartaka er að baki.
Atriði sem ítrekað er til umræðu á fundum norrænna forsætisráðherra er spurningin um samráð varðandi stefnumarkandi og pólitískt veigamikil ESB/EES-málefni. Árlegur fundur samstarfsráðherra og ESB-sendiherra í Brussel skiptir miklu varðandi samræmingu á afstöðu ráðherranefndarinnar í ESB-málefnum. Aðaltilgangur þessa fundar er að tryggja upplýsingamiðlun um ESB/EES-mál sem á döfinni eru þar sem eru samnorrænir þættir sem huga þarf að, svo og að þróa samstarfið milli ráðuneytanna, ráðherranefndarinnar og sendinefnda ESB á forgangssviðum. Pólitísku merkin sem slíkur fundur sendir út skipta miklu máli fyrir þróun hins svokallaða „þríhyrningssamstarfs“ með þátttöku höfuðborganna, sendinefnda landanna hjá ESB og skrifstofu ráðherranefndarinnar.
Mikilsverður þáttur þessa „þríhyrningssamstarfs“ er nýhafið fyrirkomulag þar sem ráðgjafar ráðherranefndarskrifstofunnar dvelja hjá einni af norrænu sendinefndunum hjá ESB í Brussel. Tveir starfsmenn dvöldu þannig í Brussel á árinu 1998 og hugmyndin er að þrír starfsmenn geri það á tveggja vikna tímabili 1999.
Það markmið að stuðla að norrænni réttareiningu skiptir miklu þegar löggjöf landanna er löguð að tilskipunum ESB. Í ljósi þessa þarf að tryggja norræna samræmingu innan ramma Norrænu ráðherranefndarinnar áður en aðlögunin fer fram.
Á árinu 1999 verður fyrirkomulag samstarfs milli ráðuneytanna, sendinefnda landanna hjá ESB í Brussel og ráðherranefndarinnar tekið upp á þeim fagsviðum sem hlut eiga að máli. Upplýsingamiðlunin fer alfarið fram með óformlegum hætti og miðast við framkvæmdaáætlanir á fagsviðunum, samstarfsáætlanir, veigamikil rit o.fl. Ráðherranefndin hefur unnið að þróun kerfis sem getur haft uppi á nýjum aðferðum til að tryggja aðgang að upplýsingum og samstarfi eins snemma á ferlinu og hægt er í löggjafarstarfi ESB, svo og til að auðvelda skrifstofunni að taka upp og undirbúa ESB-málefni sem þjóna sameiginlegum norrænum hagsmunum fyrir fundi ráðherranefndarinnar.
Starfinu skal almennt beint að langtímamálefnum eins snemma og unnt er á undirbúningsskeiði málsins hjá ESB. Þegar Norðurlandaríkin þrjú, sem eru aðilar að ESB, gegna formennsku í ESB á komandi árum, Finnland árið 1999, Svíþjóð árið 2001 og Danmörk árið 2002, verður það ákveðinn prófsteinn á norrænt samstarf. Möguleikar þess að finna sameiginleg viðfangsefni eða viðfangsefni sem fylgt verður eftir í formennskutíð þessara þriggja þjóða verða ræddir á árinu. Brýnt viðfangsefni af þessum toga er Norðlæga víddin í ESB. Ráðherranefndin fylgist með gildistöku myntbandalagsins ásamt viðræðum um aðild nýrra ríkja að Evrópusambandinu.
Svo getur farið að samstarfshættir sem miðast við svæðasamstarf komi framvegis til með að skipta meira máli í evrópska samstarfinu. Verði aðildarlönd ESB ríflega 20 talsins er margt sem bendir til að grannríki með skylda menningu telji enn eðlilegra en nú að starfa saman að málefnum í tilvikum þegar slík takmarkaðri umgjörð er talin hagkvæm. Ljóst er að í öðru svæðisbundnu samstarfi á borð við samstarfið í Benelux-ríkjunum og Eystrasaltsráðinu líta aðilar á norrænt samstarf sem fyrirmynd að þróun þeirra eigin stofnana. Þau tengsl sem þegar hefur verið komið á við m.a. Benelux-skrifstofuna verða þróuð enn frekar á árinu 1999. Að frumkvæði ráðherranefndarinnar verður haldin sameiginleg ráðstefna með Benelux-skrifstofunni í Brussel á árinu 1999, þar sem meginviðfangsefnið verður pólitískt mikilvægi svæðisbundins samstarfs innan ESB.
Samstarf við grannsvæði Norðurlanda ásamt Norðurskautssvæðinu.
Forsendur og stefnumarkandi umgjörð.
Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við grannsvæðin hófst árið 1990 og beindist það fyrst að Eystrasaltslöndunum en síðan var samstarfið aukið 1994 og náði þá til norðvesturhluta Rússlands. Síðan 1995 hefur ráðherranefndin haft Norðurskautsáætlun. Frá og með árinu 1999 teljast grannsvæðin á Norðurskautssvæðinu samkvæmt skilgreiningu ráðherranefndarinnar hluti af grannsvæðum Norðurlanda.
Almenn markmið ráðherranefndarinnar með samstarfinu við grannsvæðin eru skilgreind í skýrslunni „Nordiskt samarbete i en ny tid“ (Norrænt samstarf á nýjum tímum), eins og hér segir:
– að stuðla að stöðugleika og þróun lýðræðis á grannsvæðum Norðurlanda,
– að ýta undir mótun vel virks markaðsbúskapar,
– að vinna að því að virðing fyrir mannréttindum aukist og
– að stuðla að ábyrgri og sjálfbærri nýtingu auðlinda.
Á grundvelli tillagna umbótahópsins var árið 1996 skipaður starfshópur (svonefndur Lyra-hópur) sem átti að móta sameiginlega norræna stefnumörkun varðandi grannsvæðin. Á grundvelli tillagna þess hóps samþykktu samstarfsráðherrarnir í októbermánuði 1996 m.a. stefnumarkandi forgangsröðun hvað varðar samstarf ráðherranefndarinnar við grannsvæðin og eru markmið hennar þessi:
– að beina aðgerðum að svæðum þar sem norrænt samstarf skilar ávinningi svo og miðlun norræns gildismats,
– að leggja áherslu á stærri og sýnilegar áætlunarheildir og verkefni,
– lýðræðisþróun ásamt stuðningi við þróun réttarríkis og eflingu á samtökum vinnumarkaðarins og sérstaklega á frjálsum félagasamtökum,
– styrking þess hlutverks sem upplýsingaskrifstofurnar sinna í miðlun norræns gildismats, norrænnar menningar og þekkingar í norrænum tungumálum.
Meðal annarra meginþátta í samþykkt samstarfsráðherranna var m.a. upplýsingamiðlun í því skyni að beina starfsemi ráðherranefndarinnar að þeirri þörf sem fyrir hendi er á grannsvæðunum, auk samstarfs og upplýsingamiðlunar í samskiptum við önnur alþjóðleg samtök og stofnanir sem starfa á grannsvæðum.
Ákvörðuninni um stefnumörkun verður hrint í framkvæmd í starfsáætlun ráðherranefndarinnar með því að verkefnastarfseminni aðallega verður skipt í eftirgreind fjögur viðfangssvið:
– stuðningur við lýðræðisþróun og málefni þegnanna,
– menningarmiðlun,
– sjálfbær auðlindabúskapur og
– efling virks markaðsbúskapar.
Sameiginlegur þáttur í ofannefndum viðfangssviðum er sérstök áhersla á stuðning við viðræður Eystrasaltsríkja um aðild að Evrópusambandinu, svo og þróun hins frjálsa félagageira.
Markmið sameiginlegrar norrænnar stefnu varðandi Norðurskautssvæðin voru skilgreind í tillögu ráðherranefndarinnar að samstarfi á Norðurskautssvæðinu 1995 og í samstarfsáætlun Norðurskautssvæðisins fyrir 1996 eins og segir hér:
að þróa og bæta lífsgæðin svo og forsendur varðandi efnahagsmál og samgöngu- og veitukerfi til að stuðla að áframhaldandi búsetu á Norðurskautssvæðum, og skal sérstaklega hugað að aðstæðum frumbyggja;
– að stuðla að því að varðveita yfirbragð óbyggða, náttúrugæði og líffræðilega fjölbreytni, svo og stuðla að því að koma á forsvaranlegri og sjálfbærri nýtingu auðlinda svæðisins;
– að minnka og fjarlægja orsakir mengunar land-, haf- og íssvæða og afmarkaðra svæða;
– að þróa hagkvæma samstarfshætti og samstarfsstofnanir með þátttöku ríkja á Norðurskautssvæðinu þar sem tekin er ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun nauðsynlegra aðgerða.
Nýjar krefjandi aðstæður fyrir samstarfið.
Sýnilegustu nýju þættirnir í samstarfi ráðherranefndarinnar við grannsvæðin eru í fyrsta lagi aðild Eystrasaltsríkjanna að evrópskum samruna en slíkt skapar ný tækifæri og gerir nýjar kröfur til samstarfs milli ríkja sem liggja að Eystrasalti. Í öðru lagi er nú með formlegri stofnun upplýsingaskrifstofunnar í Pétursborg unnt að láta samstarf ráðherranefndarinnar við Norðvestur-Rússland ná til Pétursborgarsvæðisins, Barentssvæðisins og Kaliningrad.
Á ráðstefnu sem ráðherranefndin hélt haustið 1997 um samstarfið milli Norðurlanda og grannsvæðanna voru eftirtalin verkefni talin öðrum mikilvægari í framtíðarsamstarfi ríkja sem liggja að Eystrasalti og Barentshafi:
– stækkun ESB í austurátt og þörfin sem því er tengd fyrir að efla íhlutun ESB í málefni Norður-Evrópu (hinn norðlægi þáttur ESB),
– framtíðartengsl milli Eystrasaltslanda og Rússlands svo og
– þróun innri málefna í Rússlandi.
Ef ætlunin er að stefna að stöðugri þróun í Eystrasaltsríkjunum er mikilvægasti þátturinn stækkun ESB stig af stigi. Öll verðandi aðildarríkin eru með í stefnumótun sem felur í sér aðildaráætlun og stuðning við undirbúning að aðildinni á þrennan mismunandi hátt: PHARE, Ispa og pre-FEOGA. Eystrasaltsríkin hafa m.a. með Evrópusamningum sínum, sem tóku gildi í febrúarmánuði 1998, stigið mikilvæg skref í átt að fullri þátttöku í innri markaði Evrópu. Ljóst er að krafa um vegabréfaáritun hefur verið afnumin milli allra Eystrasaltsríkja, Norðurlanda og nokkurra annarra Evrópuríkja. Árið 1995 var gefin út samstarfsyfirlýsing Eystrasaltsríkjanna og EFTA. Líta ber á viðleitni í þá veru að koma á innri markað Eystrasaltsríkjanna sem mikilvægan þátt í undirbúningi fyrir innri markað Evrópu.
Í Rússlandi hafa átt sér stað pólitískar, efnahagslegar og félagslegar umbætur á tíunda áratugnum. Aðildar- og samstarfssamningurinn (PC-samningurinn) milli ESB och Rússneska sambandslýðveldisins, sem öðlaðist gildi í desember 1997, er grundvöllur fyrir þróun samstarfsins milli Rússlands og ESB/EES-ríkja. Samningurinn myndar umgjörð fyrir pólitískar viðræður, er stuðningur við lýðræðisþróunina og upptöku markaðsbúskapar.
Eystrasaltssvæðið er eitt þeirra efnahagssvæða í Evrópu sem er í hvað örustum vexti. Mjög margir aðilar hafa áhuga á samstarfinu á þessum markaði. Öll ríki Norðurlanda hafa tekið þátt í tvíhliða samstarfi eða fjölþjóðlegu samstarfi á grannsvæðunum. Jafnframt eiga að minnsta kosti 80 alþjóðlegar stofnanir eða samtök aðild að samstarfi á Eystrasaltssvæðinu. Norræna ráðherranefndin er í þessu samhengi samstarfsstofnun sem hefur tök á að framkvæma verkefni, hefur eigin fjárlög, skrifstofu og tengslanet á landsvísu þar sem víðfeðm sérfræðiþekking er fyrir hendi.
Náið samstarf við Baltnesku ráðherranefndina verður á næstu árum mikilvægur þáttur í mótun baltnesk-norræna samstarfsins í átt að samstarfi þar sem stuðningsaðgerðir víkja fyrir vaxandi pólitískum samböndum og viðskiptasamböndum. Í samræmi við þá forgangsröðun sem fram kom á fundi baltneskra og norrænna samstarfsráðherra í febrúarmánuði 1998 er stuðningurinn við aðlögunarferli Eystrasaltsríkja að ESB almennt skilyrði fyrir grannsvæðastarfsemi ráðherranefndarinnar. Enn fremur verður athyglinni sérstaklega beint að því hvernig starfsemi upplýsingaskrifstofanna sérstaklega verður aukin á svæðum utan höfuðborgarsvæða.
Samnorræn þátttaka í alþjóðlega skipulögðum ráðstöfunum til þess að uppræta verstu mengunina af Eystrasaltssvæðinu í samræmi við úttekt HELCOMs á sérlega illa útleiknum stöðum verður áfram mikilvæg. Sérstaklega ber að huga að mengun frá Pétursborgarsvæðinu og Kaliningrad.
Ráðherranefndin, Barentsráðið og svæðisráð þess eiga með sér stöðugt samstarf og miðla sín á milli upplýsingum. Gert er ráð fyrir að sameiginleg fjármögnun komi einnig framvegis til greina í tilvikum þegar um verður að ræða skilgreinda sameiginlega hagsmuni. Auk þátttöku sinnar í Barents-samstarfinu hyggst ráðherranefndin þróa reglubundin og stöðug tengsl við utanríkisþjónustu Rússneska sambandslýðveldisins og lénsstjórnirnar á rússnesku grannsvæðunum.
Þau markmið sem fram voru sett í ráðherranefndartillögu um samstarf á Norðurskautssvæðinu árið 1995 eru enn í fullu gildi. Beðið er eftir þróun mála í Norðurskautsráðinu og líkur eru á því að áheyrnaraðild fáist að ráðinu í fyrirsjáanlegri framtíð en slíkt veitir tækifæri til að samræma betur aðgerðir á Norðurskautssvæðinu og einnig á Barentssvæðinu. Meðan beðið er eftir að tengslunum verði formlega komið á var hafist handa um að skiptast reglulega á upplýsingum við Norðurskautssráðið.
Laga verður starfshættina að starfsemi þjóðbundinna og alþjóðlegra samtaka. Á grundvelli fyrrnefndrar Lyra-skýrslu og sambærilegra gagna sem síðar er aflað er ljóst að aðgerðir einstakra norrænna og sérstaklega evrópskra þjóða til þess að geta skipst á þekkingu við grannsvæðin eru af allt annarri stærðargráðu en samnorrænar aðgerðir. Dæmi um afgerandi aðgerðir, sem fyrst hafa orðið áþreifanlegar eftir að skýrsla Lyra-hópsins kom fram, er þekkingarmiðlunin innan ramma hinna sænsku „Eystrasaltsmilljarða“, tvíhliða danskar, finnskar og norskar stuðningsáætlanir og nýjar stuðningsaðgerðir ESB í tengslum við stækkunarferlið.
Með opinberri opnun upplýsingaskrifstofunnar í Pétursborg haustið 1997 er ráðherranefndinni orðið kleift að auka starfsemi sína á grannsvæðunum í Norðvestur-Rússlandi. Sérstaklega verður athyglinni beint að Kaliningrad sem er á jaðarsvæði miðað við rússneska byggðakjarna en telst jafnframt til grannsvæða Norðurlanda sem og Eystrasaltslanda.
Aðgerðir einstakra þjóða í tvíhliða samstarfi við lönd í Austur- og Mið-Evrópu, þar sem efnahagsþróun er hröð og hagstæð, minnka stig af stigi. Þetta á við um t.d. Pólland og Eistland en samstarfið við þau lönd einkenndist af auknum gagnkvæmum viðskiptasamböndum. Ráðherranefndinni ber fyrir sitt leyti að taka afstöðu til þess hvaða svæði hafi áfram þörf fyrir efnahagsaðstoð og hvar skapast hafi aðstæður fyrir samstarf á öðrum forsendum að ekki sé minnst á stigvaxandi eiginfjármögnun. Athuga ber hvort nauðsynlegt sé að endurskilgreina að einhverju leyti þá túlkun sem nú er beitt á grannsvæðishugtakið.
Áætlanirnar fyrir árið 1999 fela í sér áþreifanlega aukna starfsemi á grannsvæðunum. Aukning þessi, hraðfara þróun á grannsvæðunum svo og óskir Norðurlandaráðs um skilvirkari samræmingu grannsvæðastarfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar miðað við aðra þjóðbundna og alþjóðlega starfsemi hafa beint athygli að þörfinni á athugun á stefnumörkun ráðherranefndarinnar varðandi starfsemi á grannsvæðunum á árinu 1999.
B. MEGINÞÆTTIR NORRÆNU FJÁRLAGANNA 1999
Frumvarp að fjárlögum fyrir árið 1999 er á verðlagi ársins 1999 og eru niðurstöðutölur þess 732,3 millj. d.kr. Innan þessa heildarramma hefur fjárveiting að fjárhæð 11,5 millj. d.kr. verið flutt til grannsvæðaáætlunarinnar. Þetta er í samræmi við óskir Norðurlandaráðs varðandi grannsvæðastarfsemina. Þetta mikil breyting hefur að sjálfsögðu áhrif á möguleika þess að koma öðrum nýjum forgangsverkefnum að í fjárlögunum. Engu að síður hefur tekist að koma nokkrum nýjum liðum inn í frumvarpið og auka vægi annarra með auknum fjárveitingum.
Það var forsenda fjárlagatillögunnar að unnt yrði að skapa skilyrði fyrir öflugu norrænu samstarfi sem tæki mið af þeim breytingum sem verða á Norðurlöndum, í Evrópu og á grannsvæðunum, án þess að hækka fjárlagarammann. Á þingi Norðurlandaráðs haustið 1997 tók Norðurlandaráð ákvörðun um áherslur varðandi fjárlögin (tilmæli 1/97). Sú ákvörðun hefur ásamt þeim áherslum sem fram eru settar í formennskuáætlun Svía verið undirstaða að mótun fjárlagafrumvarpsins.
Ný verkefni og auknar áherslur í fjárlagafrumvarpinu.
Í fjárlagavinnunni er með virkum og kerfisbundnum hætti unnið að því að finna fé á fjárlögunum fyrir nýjungar og aukið fjármagn til þeirra verkefna sem nú þegar er lögð mikil áhersla á. 11,5 millj. d.kr. af því fjármagni sem „losað“ hefur verið um hafa runnið til grannsvæðaáætlunarinnar. Afgangurinn af því fé, sem „losað“ hefur verið, hefur farið í ný verkefni og verkefni sem leitt hafa til nýrra fjárlagaliða eða aukinnar áherslu á þá sem fyrir voru. Þessum verkefnum og auknu áherslum hefur verið forgangsraðað og þau verið valin út frá eftirfarandi forsendum :
– Er verkefnið eða hin aukna áhersla í samræmi við tilmæli sem Norðurlandaráð samþykkti á þinginu?
– Er verkefnið eða hin aukna áhersla í samræmi við formennskuáætlun Svía?
– Er verkefnið eða hin aukna áhersla byggð á áætlun innan tiltekins geira?
–
Er þetta verkefni eða aukin áhersla sem nær til fleiri geira?
Í frumvarpi til fjárlaga er að finna eftirfarandi ný verkefni og auknar áherslur. (Þetta er til viðbótar þeim 11,5 millj. d.kr. sem fara til grannsvæðaáætlunarinnar):
| Titill | þús. d.kr. |
| Árþúsundamótin með börnum og ungmennum | 1.023 |
| Lesið á Norðurlöndum — Tungumálaskilningur | 256 |
| Uppbygging „framleiðslufyrirtækis“ á sviði kvikmyndaiðnaðar | 496 |
| Viðhald menningarhúsanna | 1.023 |
| Nordplus mini (tilraunaverkefni) | 1.187 |
| Þróunarverkefnið NORDUnet2 | 460 |
| Framkvæmd rannsóknaráætlunar | 512 |
| Aukin norræn skilvirkni í nýtingu auðlinda — Faktor 4/10 | 512 |
| Markmið umhverfisgæða | 409 |
| Norræn framkvæmdaáætlun um matvælaöryggi | 614 |
| Styrkjafyrirkomulag fyrir táknmálstúlkun | 614 |
| Upplýsingatæknisamstarf lítilla og meðalstórra fyrirtækja | 614 |
| Frjáls félagasamtök | 614 |
| Norræni menningarsjóðurinn | + 2.061 |
| Styrkir til norrænna málnefnda | + 842 |
| Upphaf rannsóknaráætlunar um velferðarmál | +1.637 |
| Fyrirhuguð aukning á rannsóknaráætluninni Norðurlönd og Evrópa | +3.378 |
| Samræmingarfulltrúi í norrænum karlarannsóknum, NIKK | +851 |
| Húsnæði og byggingar | +818 |
| Matvæli | +1.120 |
| Skrifstofa ráðherrranefndarinnar | +3.320 |
| Samtals | 22.361 |
Athugasemd: Einungis allra mikilvægustu auknu áherslurnar eru teknar með. Allir nýir fjárlagaliðir eru sýndir. Táknið + gefur til kynna aukningu miðað við 1998 á fjárlagalið sem þegar var fyrir hendi.
Ný verkefni og auknar áherslur miðað við núverandi markmið, og án breytinga á fjárlagarammanum, fela í sér niðurskurð annars staðar í fjárlagafrumvarpinu. Mestur verður niðurskurðurinn á eftirgreindum liðum:
| þús. d.kr. | |
| – Fyrirhuguð menningarverkefni í samstarfi við aðra geira — almennt | - 1.632 |
| – Norræn rannsóknaráætlun um málefni Norðurskautssvæðisins (frestun) | - 5.608 |
| – Norræni iðnaðarsjóðurinn | -2.410 |
| – Fjárveiting til endurskipulagningar stofnana | -2.040 |
| – Varasjóður ráðherranefndarinnar | -5.497 |
Frjáls félagasamtök.
Liður í formennskuáætlun Norðmanna 1997 var að leggja skyldi áherslu á gerð áætlunar um samstarf við frjáls félagasamtök. Í ljósi þessa var samin skýrslan „Norræna ráðherranefndin og frjálsu félagasamtökin — tillaga að stefnu“, sem á haust- og vetrarmánuðum 1997/98 var til umsagnar innan Norrænu ráðherranefndarinnar og hjá frjálsum félagasamtökum á Norðurlöndum. Norrænu samstarfsráðherrarnir samþykktu á þessum forsendum í júlímánuði 1998 ráðherranefndartillögu um stefnu fyrir samstarfið við frjáls félagasamtök. Tillagan var lögð fyrir Norðurlandaráð sem á þingi sínu í Ósló í nóvembermánuði 1998 samþykkti hana.
Umsagnirnar sýndu að margir eru þeirrar skoðunar að greining og lýsing á raunverulegri þróun á vettvangi frjálsra félagasamtaka og í samskiptum þeirra og annarra hluta samfélagsins eigi rétt á sér og hafi gildi. Þrátt fyrir mismun milli norrænu landanna er bent á að eins konar „norrænt módel“ sé til á vettvangi frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndum, sem m.a. víkja í nokkru frá uppbyggingu og starfsemi frjálsra félagasamtaka á meginlandinu og í enskumælandi löndum.
Umsagnaraðilarnir meta einstakar tillögur í áætluninni með tiltölulega ólíkum hætti. Almennt er stuðningur við aðgerðir sem eru til þess fallnar að auka vitneskju um frjálsu félagasamtökin og efla þannig starfsemina, t.d. ferðastyrkir til þátttakenda frá félagasamtökum á vestnorrænum löndum, fjárstuðningur vegna túlkunar, svo og fjárstuðningur vegna áætlunar um skiptiheimsóknir fyrir félagsmenn í félagasamtökum á borð við þá möguleika á starfsmannaskiptum sem standa opinberum starfsmönnum til boða. Óskað er eftir nánari samskiptum ráðherranefndarinnar og frjálsu félagasamtakanna innan þess fyrirkomulags og samskiptanets sem þegar er fyrir hendi. Hins vegar koma fram verulegar efasemdir um réttmæti stofnana eða heildaráætlana sem gætu falið í sér hættu á miðstýringu markmiðslýsinga og að skipan samstarfs við frjáls félagasamtök verði um of steypt í sama mót.
Í frumvarpi að fjárlögum fyrir 1999 er gert ráð fyrir ákveðinni fjárveitingu vegna ráðherranefndartillögunnar að áætlun um samstarf við frjálsu félagasamtökin. Í tillögum að stefnumótun um rannsóknir og vísindi eru ráðgerðar undirbúningsrannsóknir á hlutverki frjálsra félagasamtaka í framtíðarsamfélagi Norðurlanda. Þessar rannsóknir eru einn þátturinn í tillögu að rannsóknum á norræna velferðarsamfélaginu. Enn fremur er lagt til að tilteknum fjármunum á fjárlögunum (Stuðningur við frjáls félagasamtök) verði varið til aukaframlags vegna ferðastyrkja, verkefnastarfsemi og túlkunar. Jafnframt er í frumvarpinu að fjárlögum gert ráð fyrir auknu fjármagni til embættismannaskipta opinberra starfsmanna með það fyrir augum að fyrirkomulagið komi einnig umsækjendum úr röðum frjálsra félagasamtaka til góða. Af menningargeiranum er einnig veitt auknu fjármagni til nýrra verkefna varðandi frjáls félagasamtök.
Í fjárlagafrumvarpinu er, hvað varðar grannsvæðasamstarfið, lögð áhersla á starfsemi sem til þess er fallin að efla starfsemi frjálsra félagasamtaka í Eystrasaltsríkjum. Sérstök áhersla er lögð á aukningu styrkja og starfsmannaskipta þar sem einnig komi til greina sem umsækjendur fulltrúar frjálsra félagasamtaka. Auk þess verður lögð áhersla á menntun forustumanna frjálsra félagasamtaka, svo og fjölda stakra verkefna, m.a. varðandi konur og tengslanet, alþýðufræðslu og nýjar aðferðir í fullorðinsfræðslu.
Norræn stefnumótun um rannsóknir og vísindi.
Ráðherranefndin hefur ákveðið að fylgja sérstakri norrænni stefnumótun um rannsóknir og vísindi, þar sem lýst er skilyrðum um ábyrgð og starfshæfni þegar nýjum verkefnum á sviði rannsókna og þróunar er hleypt af stokkunum og þau fjármögnuð af norrænu fjárlögunum. Stefnumótun þessi á að tryggja jöfn gæði og stuðla að heilsteyptu ferli þegar kemur að því að ýta úr vör, forgangsraða og taka ákvörðun um ný tímabundin rannsóknarverkefni með megináherslu á þvervísindalegt samstarf sem nær til margra sviða. Þannig verður þess kostur að öðlast heildarsýn varðandi stefnuna í vísindum. Undirbúningur nýrra norrænna rannsóknaverkefna getur þar með farið í venjulegan farveg, sem fylgt er í löndunum, um alþjóðlegt rannsókna- og þróunarstarf. Markmiðið er að efla vísindasamstarf og starfshæfni á Norðurlöndum. Ákvarðanir um nýjar rannsóknir munu byggja á framkvæmdaáætlunum fagráðherranefndanna og ráðgjöf vísindasamfélagsins. Jafnt og þétt verður unnið að undirbúningi og forgangsröðun nýrra tillagna. Stefnumótunin á að stuðla að endurnýjun norræns samstarfs á sviði rannsókna og þróunar með stuðningi við þverfaglega vísindastarfsemi í formi rannsóknaráætlana, tengslaneta vísindamanna og vísindanáms. Vísindastefnumótunin tekur til tímabundinna nýrra verkefna en ekki grunnfjárveitinga vegna rekstrar stofnana.
Fagráðherranefndirnar bera ábyrgð á því að ýta úr vör og útfæra rannsókna- og þróunarstarfsemi hver á sínu sviði og þær taka sjálfar ákvarðanir um ráðstafanir fjármagns innan geirans.
Menntamála- og vísindaráðherrarnir (MR-U) bera meginábyrgð á samræmingu tillagna og semja árlega tillögu til samstarfsráðherranna (MR-SAM) um forgangsröðun nýrra verkefna ásamt skýrslu um starfsemina á sviði rannsókna og þróunar en samstarfsráðherrarnir ákveða heildarramma fjárveitinga til rannsóknarstarfseminnar.
Norræna vísindastefnuráðið (FPR) ber ábyrgð á samræmingu og undirbúningi nýrra verkefna í samstarfi við fagsviðin. Skipan ráðsins breytist á árinu 1999 svo að það verður hæfara til að taka ákvarðanir um þverfagleg verkefni. Vísindastefnuráðið skal árlega undirbúa heildartillögu að forgangsröðun nýrra verkefna sem lögð er fyrir ráðherranefndina til ákvörðunar. Í samstarfi við fagsviðin mótar vísindastefnuráðið samhæft gæða- og matskerfi ásamt almennum reglum um fyrirkomulag varðandi umsóknir, skipulag, framfylgd, skýrslugerð um árangur og upplýsingar.
Rannsóknirnar fara fram í norrænum háskólum, æðri menntastofnunum og öðrum rannsóknarstofnunum, að meðtöldum samnorrænum rannsóknarstofnunum. Ábyrgðin á vísindalegu mati, gæðaeftirliti, framkvæmd og framfylgd þarf að vera í höndum áætlanastjórna sem skipaðar skulu af viðkomandi fagráðherranefnd. Stjórnunarleg ábyrgð skal vera í höndum stofnana á Norðurlöndum sem búa yfir nauðsynlegri hæfni. Samningsstýrikerfi Norrænu ráðherranefndarinnar skal beitt varðandi allar fjárveitingar.
Í frumvarpi að fjárlögum fyrir árið 1999 eru veittar 512.000 d.kr. til útfærslu á norrænni stefnumótun um rannsóknir og vísindi.
Greining á afleiðingum þess að flytja tilteknar stofnanir af norrænu fjárlögunum.
Norðurlandaráð óskaði í tilmælum sínum 1/97 eftir því að ráðherranefndin gerði í frumvarpi sínu til fjárlaga fyrir árið 1999 grein fyrir því hvernig draga mætti úr eða fella niður fjárveitingar á norrænu fjárlögunum til Norræna iðnaðarsjóðsins, til NIAS, NORDITA, Norrænu sjóréttarstofnunarinnar og Norrænu eldfjallastöðvarinnar, hugsanlega þannig að annars konar fjármögnun kæmi í staðinn, og enn fremur að hún lýsti forsendunum fyrir því og afleiðingum.
Allar umræddar stofnanir hafa í síðustu úttektum, þar á meðal úttektinni á notagildi reynst hafa mikið norrænt notagildi. Stofnanirnar hafa margar hverjar komið á fót góðu vísindaumhverfi sem laðar til sín vísindamenn, ekki aðeins frá Norðurlöndum heldur í reynd hvaðanæva úr heiminum. Þörf á breytingum og endurskipulagningu meðal stofnana á vísindasviðinu á að meta í tengslum við sviðið sem stofnunin starfar á. Meta ber tilvist rannsóknarstofnana og framtíðarsvip þeirra eftir hlutverki þeirra í hinni nýju norrænu stefnumótun um rannsóknir og vísindi. Því er áríðandi að fagráðherrarnir framfylgi tillögunum um stofnanirnar að teknu tilliti til þeirra framkvæmdaáætlana sem starfað er eftir.
Almenn sjónarmið.
Rétt er í upphafi að líta til þess hvaða meginreglur liggja til grundvallar norræna mennta- og vísindasamstarfinu. Í norrænu samstarfi ber að:
– leggja aukna áherslu á skipulag sem eykur sparnað,
– stuðla að hreyfanleika í norræna mennta- og vísindasamstarfinu,
– efla norðlægu víddina í evrópsku samstarfi,
– stuðla að verkaskiptingu og sérhæfingu einstakra ríkja á Norðurlöndum á sviði æðri menntunar og vísinda.
Inntak hugtaksins norrænt notagildi hefur verið víkkað. Við beitingu þess sem mælistiku:
– styður Norræna ráðherranefndin starfsemi sem annars hefði átt að fara fram á vegum einstakra landa en skilar betri árangri ef fleiri norræn ríki koma að henni,
– vekur Norræna ráðherranefndin athygli á og eflir norræna samkennd,
– eykur Norræna ráðherranefndin norræna starfskunnáttu og samkeppnishæfni.
Meginmarkmið norræna vísindasamstarfsins er að:
– auka umfang norræns vísinda- og þróunarstarfs,
– gera norrænar áherslur sýnilegar,
– tryggja gæði og gildi.
Staða norrænna stofnana í vísinda- og rannsóknasamstarfinu.
Norræna ráðherranefndin hefur orðið þess áskynja að miklir möguleikar eru faldir í norrænu vísindasamstarfi sem getur eflt og aukið verðmæti fjárfestinga heima fyrir. Á vegum ráðherranefndarinnar eru nú starfrækt styrkja- og dvalarkerfi í því skyni að efla starfskunnáttu norrænna vísindamanna, myndun tengslaneta, vísindaáætlanir og samnorrænar stofnanir.
Það kann að vera rétt að gaumgæfa betur hvernig þróa megi norrænar stofnanir þannig að þær nýtist betur í norræna vísinda- og rannsóknasamstarfinu í samræmi við hina norrænu stefnumótun um rannsóknir og vísindi. Jafnvel þótt þær stofnanir sem nefndar eru í tilmælum ráðsins séu samkvæmt öllum gerðum úttektum á háu gæðastigi og fullnægi kröfunum um norrænt notagildi verður samt með reglulegu millibili að yfirfara uppbyggingu þeirra og fjármögnun. Stofnanirnar eru afar ólíkar innbyrðis hvað varðar uppbyggingu og markmið. Því er áríðandi að meta hverja stofnun fyrir sig. Norrænar rannsóknarstofnanir geta haft mismunandi hlutverk og verkefni; verið miðstöðvar norrænnar sérþekkingar, staðið fyrir menntun vísindamanna, verið viðbót við rannsóknastörf í löndunum o.fl.
Til dæmis hefur Norræna kjarnfræðistofnunin (NORDITA) náð svo sterkri stöðu að hún getur haft hlutverki að gegna við samhæfingu vísindastarfsemi innan einstakra landa, átt aðild að samnorrænum vísindarannsóknum, forgangsröðun og mati á nýjum rannsóknarsviðum og rannsóknarefnum. Stofnunin getur þannig veitt faglegan stuðning til þess vísindastarfs sem í gangi er og þá um leið styrkt norræna samstarfið með áþreifanlegum hætti. Það er því nauðsynlegt að norrænir vísindamenn telji stofnunina bjóða mikilvæga sameiginlega aðstöðu, en telji hana ekki vera eins konar „norrænan botnlanga“ frá starfseminni heima fyrir. Norrænt notagildi slíks starfs verður helst metið eftir þeim áhuga sem ríkir á alþjóðavettvangi fyrir starfsemi stofnunarinnar.
Aðrar norrænar vísinda- og þróunarstofnanir leysa annars konar verkefni. Ófáar stofnanir hafa skipta fjármögnun þar sem norræna fjármagnið er einungis hluti af fjárhagsáætluninni. Mikilvæg spurning varðandi stofnanirnar eru tengsl þeirra við rannsóknarstofnanir í hverju landi og hvaða starfsemi á að fjármagna með norrænu fjármagni. Nú þegar er fé veitt samkvæmt tímabundnum samningnum, en sjálf stofnunargerðin ber með sér að starfsemin er þó til langframa.
Ekki má horfa framhjá því að sífelldar umræður um framtíð stofnananna hefur í för með sér óöryggi og getur skaðað starfið, ekki síst þegar leitað er eftir nýju hámenntuðu fólki til starfa þar. Samkvæmt stefnumótuninni í rannsóknum og vísindum ber að þróa skilmála í því skyni að tryggja gæði og mat á norrænum stofnunum. Þannig þróast starf stofnananna og markmið þeirra stöðugt með það að markmiði að þær styðji framþróun norræns vísinda- og þróunarstarfs.
Norrænar stofnanir sem framtíðartæki í vísinda- og rannsóknasamstarfinu.
Áhugavert getur verið að ræða á almennum nótum, alveg óháð þeim stofnunum sem nú eru starfandi, hvaða hlutverki stofnanir geti gegnt í vísinda- og rannsóknasamstarfinu í framtíðinni, miðað við þau markmið sem upp eru sett, sem annar kostur en vísindaáætlanir og aðrar samstarfsaðferðir. Í ljósi slíkra hugmynda getur það verið spurning, hvort ekki ætti frekar að nýta norrænu stofnanirnar og miðstöðvarnar fremur en leggja þær niður. Hér fara á eftir nokkur dæmi slíkra hugmynda:
1. Ein hugmyndin fjallar um sjálfstæðar norrænar stofnanir sem hefðu náið samstarf við vísindasamfélögin í löndunum og á alþjóðavettvangi. Stofnanir af því tagi ætti að starfrækja sem norrænar þekkingarmiðstöðvar sem taka að sér samræmingu rannsóknarstarfsemi í einstökum löndum, þátttöku í samnorrænu nýherjastarfi á sviði vísinda, forgangsröðun og mat á nýjum rannsóknarsviðum og rannsóknarefnum. Grunnfjárveiting ætti þá að vera á norrænu fjárlögunum.
2. Annars konar stofnun gæti verið miðstöð sem væri miðpunktur norræns tengslanets á sviði þar sem mikilvægt er að norræn starfshæfni sé fyrir hendi án þess að ofuráhersla verði lögð á að stofnunin teldist hluti hins alþjóðlega vísindasamfélags. Dæmigerð þess háttar stofnun gæti borið ábyrgð á starfsemi á sviði þar sem norræn vísindasamfélög eru lítil hvert um sig og því hagkvæmt að standa sameiginlega að verkefnum. Grunnfjárveiting ætti þá að vera á norrænu fjárlögunum.
3. Nokkrar norrænu stofnananna eru þegar virtustu stofnanir á Norðurlöndum á sínu sviði („centers of excellence“). Slíkar norrænar miðstöðvar má stofna innan háskólasamfélaga sem þegar eru starfandi. Gegnum slíka miðstöð fengi háskólinn aukafjármagn gegn því að „taka að sér“ viðkomandi miðstöð. Þessar miðstöðvar, sem störfuðu í tengslum við háskóla yrðu af nýjum toga og yrðu mikilvæg tæki til að viðhalda norrænum vísinda- og menntasamfélögum sem eru í háum gæðaflokki og sýnileg í Evrópu. Það mætti einnig líta á þær sem einn aðila í þeirri verkaskiptingu sem til þarf að koma á nýjum sviðum þar sem einstökum þjóðum getur reynst erfitt að þróa vísindasamfélög sem eru nægilega öflug.
Norrænt fjármagn sem rynni til slíkra háskólamiðstöðva væri viðbót við fjármögnun gestgjafalandsins og fjármagnaði að hluta starfsemi, tímabundnar sérstakar prófessorsstöður og ýmiss konar norræna styrki. Æskilegt væri að slík fjárveiting væri veitt til fimm ára í senn með möguleika á framlengingu.
Niðurstöður ráðherranefndarinnar.
Norrænar vísindastofnanir eru þannig eitt af mörgum tækjum í heildarvísindasamstarfi á Norðurlöndum. Þær stofnanir sem getið er í tilmælum Norðurlandaráðs eru innbyrðis ólíkar hvað varðar uppbyggingu og markmið. Þeim er það sameiginlegt að samkvæmt nýjasta mati fullnægja þær bæði kröfunum um norrænt notagildi og mikil gæði.
Þáttur í norrænu stefnumótuninni um rannsóknir og vísindi er að Norræna vísindastefnuráðið tekur nú að sér ábyrgð á að koma á framfæri við Norrænu ráðherranefndina tilmælum um hlutverk stofnananna og fjármögnun þeirra á grundvelli mats á gæðum þeirra og norrænu notagildi. Stofnanirnar hafa í því sambandi sjálfar það verkefni að þróa starfsemi sína og sýna fram á notagildi hennar. Úrslitum ræður að aðferðin við mat á stofnunum sé gerð formleg og sé þáttur í eðlilegu samstarfi milli stofnana og Norrænu ráðherranefndarinnar til langframa svo að starfsemi stofnananna hljóti ekki skaða af.
Ráðherranefndin álítur að starfrækja beri áfram sem sjálfstæðar norrænar stofnanir þær stofnanir sem rækja sitt hlutverk vel og varar við því að leggja þær niður af fljótfærni eða stöðva norrænar fjárveitingar til þeirra.
Ráðherranefndin telur að fylgja beri eftirfarandi grundvallarreglum:
– líta ber til þess hvernig stofnun nýtist í norrænu samstarfi til að framfylgja Norrænu stefnumótuninni um rannsóknir og vísindi,
– að stofnanir svo sem Nordita, Norræna eldfjallastöðin, NIAS, Norræna sjóréttarstofnunin og Norræni iðnaðarsjóðurinn, sem þjóna vel sínu hlutverki, starfi áfram sem sjálfstæðar norrænar stofnanir,
– að áfram verði fyrir hendi möguleikinn á því að stofnanir geti, þegar til lengri tíma er litið, orðið hluti af rannsóknarstofnunum í einstökum löndum eða miðstöðvar við háskóla og fengið áfram grunnfjárveitingu frá Norrænu ráðherranefndinni
– og að taka megi stofnanir út af norrænu fjárlögunum ef slíkt er talið hagkvæmt og gestgjafalandið tekur smám saman við fjármögnun starfseminnar, hugsanlega ásamt öðrum löndum sem vilja koma að málinu.
Skipting fjárlagafrumvarpsins eftir stoðunum þrem.
Tvenns konar framsetning er á fjárlagadrögum þessa árs. Auk hefðbundinnar lýsingar á fjárlagaliðunum er hér á eftir að finna lýsingu á skiptingu fjárveitinganna í fjárlagadrögunum miðað við stoðirnar þrjár. Hér eru dregnir saman megindrættir norræns samstarfs á komandi ári á hverju sviði.
Í fjárlagadrögum ársins hefur orðið veruleg aukning á grannsvæðastarfseminni og jafnframt nokkur aukning á þeirri starfsemi sem beinist að Evrópu. Samanborið við niðurstöðutölur ársins 1997 er aukningin um 30%. Þessi þróun er árangur þess pólitíska vilja að efla samstarfið við grannsvæði Norðurlanda.
Samstarfið innan Norðurlanda.
Samstarfið undir hinni svonefndu Norðurlandastoð vegur eðlilega þyngst í norrænu samstarfi og gert er ráð fyrir að um 72% af fjárlögum Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 1999 renni þangað.
Þetta er þó hlutfallsleg lækkun miðað við fyrri ár enda runnu á árinu 1996 og 1997 um 75% af fjármagninu til samstarfsins innan Norðurlanda.
Þessi þróun er afleiðing af breyttri forgangsröðun milli stoðanna innbyrðis, grannsvæðunum í vil, og er það í samræmi við vilja m.a. Norðurlandaráðs.
Samstarf á sviði menntamála, vísinda og menningar hefur á liðnum árum ávallt haft öflugt norrænt inntak og sama gildir árið 1999 en þá er gert ráð fyrir að 91% af fjárveitingunum á sviði menntamála og vísinda og 85% af fjárveitingunum á sviði menningar renni til samstarfsins innan Norðurlanda.
Samsvarandi norrænt vægi á félags- og heilbrigðismál er 89%, á sviði velferðar og byggingar- og húsnæðismála er það 85%, en hins vegar er þetta vægi tiltölulega takmarkað á sviði umhverfis- og orkumála.
(Kökurit — mynduð.)
Samstarf sem beinist að Evrópu.
Samstarf ráðherranefndarinnar varðandi Evrópu/EES er samtvinnað öðru starfi sem fer fram innan einstakra geira. Ekki er starfað eftir neinni eiginlegri Evrópuáætlun fyrir heildarstarfsemi ráðherranefndarinnar. ESB-málefnum er aftur á móti oft gefinn forgangur í framkvæmda- og samstarfsáætlunum einstakra geira.
Samstarfið undir ESB-stoðinni er aðallega í formi pólitískrar umræðu sem ekki byggir á fjárveitingum sem nokkru nemur og þetta eðli samstarfsins endurspeglast í heildarfjárlagadrögunum. Innan einstakra geira er samstarfið þannig í miklum mæli fólgið í norrænu samráði og miðlun upplýsinga við undirbúning og framkvæmd ESB-tilskipana og áætlana.
Norrænum verkefnum sem snúa að viðfangsefnum tengdum ESB/EU hefur þó verið gefinn forgangur á mörgum samstarfssviðanna.
Skipting fjárlaga 1999 eftir stoðum innan samstarfssviða.
(Súlurit — myndað, ein síða.)
Sérstaklega skal tekið fram að á sviði neytendamála er ætlunin að verja um 44% af heildarfjárlögunum til verkefna sem tengjast ESB. Sérstök áhersla er lögð á að þróa norræn og norræn-evrópsk tengslanet svo að þau verði mikilvæg tæki til samræmingar og áhrifa á gerð evrópskra reglna. Enn fremur er ætlunin að framkvæma í norrænu neytendasamstarfi pólitíska og lögfræðilega greiningu á þeim möguleikum sem opnast hafa fyrir tilstilli Amsterdamsáttmálans til að taka á pólitískt í neytendamálum í ESB. 40% af fjárveitingunum á matvælasviðinu eru ætluð til að framkvæma verkefni sem hafa að markmiði að hafa áhrif á stofnanir í Evrópu í því skyni að færa haldbær rök í málum sem könnuð hafa verið sérstaklega á Norðurlöndum. Á sviði löggjafar er sem fyrr 35% af fjárlögunum varið til að halda áfram rannsóknarverkefnum á sviði evrópsks samrunaréttar.
Á sviði umhverfismála er það ofarlega á pólitísku dagskránni að hafa áhrif á umhverfisstefnu ESB. Sérstakri athygli verður beint að hreinni framleiðslutækni og þróun og framkvæmd umhverfislöggjafar innan ESB/EES. Innan umhverfisgeirans er 35% af heildarfjárveitingunum varið til ESB-verkefna.
Samstarf við grannsvæði Norðurlanda.
Samkvæmt mati verður um 140 millj. d.kr. varið til samstarfs við grannsvæðin, en þar af tekur grannsvæðaáætlunin ásamt starfsemi um málefni Norðurskautssvæðanna til sín 65,5 millj. d.kr. Í samanburði við fjárlög ársins 1998 og niðurstöðutölur ársins 1997 felur þetta í sér um 30% aukningu. Utan grannsvæðaáætlunarinnar sjálfrar er framlag menningargeirans, annars vegar fyrir tilstilli Norræna menningarsjóðins og hins vegar á fjölmiðlasviðinu, stærsta framlag innan geira.
Verulega aukinnar starfsemi er vænst innan fjármálageirans, þar sem grannsvæðastarfsemi kemur inn sem þáttur í árangurssamningi Norræna verkefnaútflutningssjóðsins. Innan orkumálageirans hefur orðið mikil aukning vegna starfsemi sem beinist að þróun orkumarkaðarins í kringum Eystrasalt og vegna myndunar tengslaneta meðal orkumálaráðherra og embættismanna landanna. Á sviði byggðamála er einnig um aukningu að ræða vegna aðgerða til þekkingaruppbyggingar hjá stjórnvöldum Eystrasaltsríkja vegna fyrirhugaðrar aðildar að ESB.
Skipting fjárlaga fyrir árið 1999 milli áherslusviða.
Í kjölfar þeirra umbóta sem gerðar hafa verið á norrænu samstarfi á síðustu árum, hefur verið unnið víðtækt stefnumótandi starf innan norræna kerfisins. Það hefur ekki einungis beinst að stoðunum þrem, heldur hefur verið gerð tilraun til að finna hentuga starfshætti fyrir verkefni sem eru pólitískt áhugaverð. Pólitískar áherslur eru breytilegar frá einum tíma til annars og full ástæða er til þess að leitast við að endurspegla í norrænu fjárlögunum þau pólitísku samstarfssvið sem eru ný.
Samstarfssviðin sem kynnt eru í fjárlagadrögunum endurspegla enn fremur nýja starfshætti á skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar. Eftirfarandi skipting er notuð:
– Menningar-, mennta- og vísindamál.
– Umhverfis- og auðlindamál (þar á meðal grannsvæðin)
nær til sviðanna: umhverfismál, efnahags-/fjármál, byggðamál, orkumál, samgöngur, sjávarútvegsmál, landbúnaður og skógrækt.
– Velferðarmál-, iðnaðar- og atvinnumál
nær til sviðanna: félags- og heilbrigðismál, vímuefnamál, neytendamál, matvæli og löggjöf, iðnaðar- og atvinnumál, bygginga- og húsnæðismál, vinnumarkaður, vinnumhverfi og jafnrétti.
– Annað.
Skipting fjárlaga fyrir árið 1999 milli samstarfssviða.
(Kökurit — myndað.)
Þróun fjárlaganna á árunum 1993–1999.
(Súlurit — myndað.)
| millj. d.kr. | 1993 | 1994 | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 |
| Nafnvirði | 650,7 | 655,9 | 718,9 | 707,5 | 702,6 | 716,9 | 732,3 |
| Á verðlagi 1998 | 723,4 | 711,4 | 762,9 | 736,0 | 716,7 | 716,9 | 716,9 |
Afgangur á fjárlögunum.
| þús. d.kr. | 1994 | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 |
| Afgangur *) | 31.331 | 17.689 | 5.900 | 2.500 | 0 **) | 0 ***) |
| þar af: | ||||||
| endurgreitt til landanna | 0 | 0 | 2.000 | 0 | 1.689 | 0 |
| til ráðstöfunar ráðherranefndar | 31.331 | 17.689 | 3.900 | 2.500 | 0 | 0 |
| Fjárlög | 655.886 | 718.925 | 707.474 | 702.636 | 716.931 | 732.308 |
| Ráðstöfunarfé | ||||||
| Norrænu ráðherranefndarinnar | 687.217 | 736.614 | 711.374 | 705.136 | 716.931 | 732.308 |
*) Afgangurinn er frá síðast þekkta reikningsári fyrir fjárlagaárið. Þ.e. fyrir 1999 er það afgangurinn frá árinu 1997 o.s.frv.
**) Halli að fjárhæð 2.314 þús. d.kr. frá 1996 var bættur upp árið 1997 með endurgreiðslum frá stofnunum sem lagðar höfðu verið niður.
***) Fjárhagsreglunum var breytt á árinu 1998 þannig að afgangur er alltaf endurgreiddur til landanna.
Afgangurinn af starfseminni hefur minnkað stöðugt síðan 1994. Ástæðan er umfram allt minnkandi vaxtatekjur.
Sérfræðinganefndin um norræn fjárlög hefur í skýrslu bent á misræmi milli þess hvernig farið er með annars vegar afgang og hins vegar halla á norrænu fjárlögunum. Ráðherranefndin hefur, eftir að hafa að nýju haft samband við sérfræðinganefndina, kosið að viðhalda núverandi kerfi varðandi meðferð á vöxtum. Fjárhagsreglunum hefur verið breytt á árinu 1998 þannig að farið er með afgang og halla á sama hátt. Það felur í sér að afgangurinn er endurgreiddur löndunum en að löndin verða á hinn bóginn að bæta hugsanlegan halla. Afgangur er í þessu samhengi munurinn milli þeirra tekna sem gert var ráð fyrir á fjárlögunum og raunverulegra tekna.
Tekjuhlið fjárlaganna.
Starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar er að langmestum hluta fjármögnuð með beinum framlögum frá löndunum en skipting þeirra er ákveðin samkvæmt sérstakri skiptireglu. Skiptireglan miðast við hlutdeild hlutaðeigandi lands í vergum þjóðartekjum á Norðurlöndum miðað við framleiðsluverð tveggja síðustu ára sem upplýsingar liggja fyrir um, sem nú eru 1995 og 1996.
| Tekjur, þús. d.kr. | Reikningur | Fjárlög | Fjárlög | Skiptiregla |
| 1997 | 1998 | 1999 | 1999 | |
| Launatengd gjöld | 8.197 | 6.000 | 7.000 | |
| Vaxtatekjur | 11.126 | 11.500 | 10.500 | |
| Aðrar tekjur (eða hugsanl. tap) | 3.067 | 800 | 800 | |
| Framlög ríkjanna | 681.935 | 698.631 | 714.008 | |
| Þar af: | ||||
| - Danmörk | 162.003 | 173.260 | 182.072 | 25,5% |
| - Finnland | 119.120 | 122.959 | 126.379 | 17,7% |
| - Ísland | 7.501 | 6.986 | 7.140 | 1,0% |
| - Noregur | 163.908 | 151.603 | 154.940 | 21,7% |
| - Svíþjóð | 229.404 | 243.822 | 243.477 | 34,1% |
| Fjárlög samtals | 704.325 | 716.931 | 732.308 | 100,00% |
Athugasemdir:
Launatengd gjöld: á við gjaldskyld laun starfsmanna skrifstofunnar.
Vaxtatekjur: Gert er ráð fyrir vaxtatekjum að fjárhæð 10,5 millj. d.kr. sem eru áætlaðar á grundvelli væntanlegra 3,65% vaxta á árinu 1999 og meðalgreiðslugetu á árinu að fjárhæð 290 millj. d.kr.
Aðrar tekjur: Undir þennan tekjulið færast endurgreiðslur verkefnafjármagns frá ýmsum stjórnsýslustofnunum og óráðstafað fjármagn stofnananna frá fyrri árum.
Tafla um alla fjárlagaliði
| Í þús. DKK | Fjárlög | Fjárlög | Mismunur | |
| 1999 | 1998 | +/- | Prósent | |
| Menningar-, mennta- og vísindamál | 328.705 | 325.274 | 3.431 | 1,1% |
| Menningarsamstarf | 142.485 | 137.844 | 4.641 | 3,4% |
| Almenn menningarverkefni | 27.098 | 25.517 | 1.581 | 6,2% |
| Ráðstöfunarfé - menning | 2.148 | 2.628 | -480 | -18,3% |
| Norræni menningarsjóðurinn | 24.950 | 22.889 | 2.061 | 9,0% |
| Börn og ungmenni | 12.988 | 11.616 | 1.372 | 11,8% |
| Verkefnafé og almennir styrkir | 12.988 | 11.616 | 1.372 | 11,8% |
| Norrænt íþróttasamstarf | 1.125 | 1.040 | 85 | 8,2% |
| Norræna æskulýðsnefndin | 5.316 | 5.046 | 270 | 5,4% |
| Stjórnarnefnd um norræna barna- | ||||
| og æskulýðsmenningu | 5.524 | 5.530 | -6 | -0,1% |
| Árþúsundamót með börnum og unglingum | 1.023 | - | 1.023 | - |
| Kvikmyndir og fjölmiðlar | 31.962 | 31.332 | 630 | 2,0% |
| Verkefnafé og almennir styrkir | 27.452 | 26.923 | 529 | 2,0% |
| Stjórnarnefndin um norrænt menningar- | ||||
| og fjölmiðlasamstarf | 3.257 | 3.184 | 73 | 2,3% |
| Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn | 19.095 | 18.666 | 429 | 2,3% |
| Forgangsverkefni í norrænu kvikmynda- | ||||
| og fjölmiðlasamstarfi | 4.604 | 5.073 | -469 | -9,2% |
| Uppbygging framleiðslufyrirtækis | 496 | - | 496 | - |
| Stofnanir | 4.510 | 4.409 | 101 | 2,3% |
| NORDICOM | 1.482 | 1.449 | 33 | 2,3% |
| Norræna blaðamannamiðstöðin (NJC) | 3.028 | 2.960 | 68 | 2,3% |
| Listir | 40.005 | 39.603 | 402 | 1,0% |
| Verkefnafé og almennir styrkir | 18.139 | 17.914 | 225 | 1,3% |
| Norræna bókmennta- og bókasafnanefndin (NORDBOK) | 6.903 | 6.748 | 155 | 2,3% |
| Norræna lista- og listiðnaðarnefndin (NKKK) | 2.669 | 3.459 | -790 | -22,8% |
| Samisk menningarstarfsemi | 2.448 | 2.393 | 55 | 2,3% |
| Sleipnir | 2.558 | 2.550 | 8 | 0,3% |
| Norræni menningararfurinn | 1.535 | 1.561 | -26 | -1,7% |
| Menning og upplýsingatækni | 409 | 520 | -111 | -21,3% |
| Sérstakar aðgerðir á listasviðinu | 491 | 683 | -192 | -28,1% |
| Norræna listamannaheimilið í Róm | 870 | - | 870 | - |
| Lesið á Norðurlöndum | 256 | - | 256 | - |
| Stofnanir | 21.866 | 21.689 | 177 | 0,8% |
| Leiklist og dans á Norðurlöndum | 6.637 | 6.488 | 149 | 2,3% |
| Norræna tónlistarnefndin (NOMUS) | 5.656 | 5.540 | 116 | 2,1% |
| Norræna listamannamiðstöðin (Dalsåsen) | 1.404 | 1.389 | 15 | 1,1% |
| Norræna stofnunin fyrir nútímalist | 8.169 | 8.272 | -103 | -1,2% |
| Norræn menningarhús (stofnanir) | 22.123 | 19.760 | 2.363 | 12,0% |
| Norræna húsið í Reykjavík | 5.960 | 5.259 | 701 | 13,3% |
| Norræna húsið í Færeyjum | 9.382 | 9.154 | 228 | 2,5% |
| Norræna stofnunin á Álandseyjum | 1.624 | 1.306 | 318 | 24,3% |
| Norræna stofnunin á Grænlandi (NAPA) | 4.134 | 4.041 | 93 | 2,3% |
| Viðhald menningarhúsa | 1.023 | - | 1.023 | - |
| Önnur menningarverkefni | 8.309 | 10.016 | -1.707 | -17,0% |
| Verkefnafé og almennir styrkir | 8.309 | 10.016 | -1.707 | -17,0% |
| Þverfagleg verkefnastarfsemi | 0 | 1.632 | -1.632 | -100,0% |
| Norræn menningarverkefni erlendis | 6.386 | 6.242 | 144 | 2,3% |
| Aðgerðir gegn útlendingaandúð | 1.565 | 1.530 | 35 | 2,3% |
| Menningardagskrá þinglandanna | 358 | 612 | -254 | -41,5% |
| Menntamál og vísindi | 186.220 | 187.430 | -1.210 | -0,6% |
| Almenn mennta- og vísindaverkefni |
||||
| Ráðstöfunarfé — Mennta- og vísindamál | 2.278 | 4.055 | -1.777 | -43,8% |
| Menntamálasamstarf | 85.225 | 81.889 | 3.336 | 4,1% |
| Skólasamstarf | 17.130 | 15.285 | 1.845 | 12,1% |
| Verkefnafé og almennir styrkir | 17.130 | 15.285 | 1.845 | 12,1% |
| Norrænt skólasamstarf (NSS) | 5.215 | 5.098 | 117 | 2,3% |
| NORDPLUS-junior | 9.090 | 8.886 | 204 | 2,3% |
| Nemendaskipti á Vestur-Norðurlöndum | 1.638 | 1.301 | 337 | 25,9% |
| NORDPLUS-mini (tilraunaverkefni) | 1.187 | - | 1.187 | - |
| Almennings- og fullorðinsfræðsla | 16.332 | 15.977 | 355 | 2,2% |
| Verkefnafé og almennir styrkir | 10.111 | 9.884 | 227 | 2,3% |
| Stjórnarhópurinn um almennings- | ||||
| og fullorðinsfræðslu | 3.299 | 3.225 | 74 | 2,3% |
| Styrkjafyrirkomulag í þágu almennings- | ||||
| og fullorðinsfræðslu | 6.812 | 6.659 | 153 | 2,3% |
| Stofnanir | 6.221 | 6.093 | 128 | 2,1% |
| Norræni lýðháskólinn (NFA) | 6.221 | 6.093 | 128 | 2,1% |
| Æðri menntun | 32.736 | 32.877 | -141 | -0,4% |
| Verkefnafé og almennir styrkir | 32.736 | 32.877 | -141 | -0,4% |
| Stjórnarhópurinn um æðri menntun — HÖGUT | 1.023 | - | 1.023 | - |
| NORDPLUS | 30.690 | 31.420 | -730 | -2,3% |
| Framlag til Norræna sumarháskólans (NSU) | 1.023 | 1.457 | -434 | -29,8% |
| Tungumálasamstarf | 14.976 | 14.120 | 856 | 6,1% |
| Verkefnafé og almennir styrkir | 10.266 | 9.135 | 1.131 | 12,4% |
| Styrkur til norrænna málnefnda | 1.862 | 1.020 | 842 | 82,5% |
| Norræn námskeið í tungumálum og bókmenntum | ||||
| (NORDKURS) | 1.916 | 1.873 | 43 | 2,3% |
| Tungumálasamstarf á Norðurlöndum (NORDMÅL) | 5.530 | 5.306 | 224 | 4,2% |
| Kennsla um Norðurlönd erlendis | 958 | 936 | 22 | 2,4% |
| Stofnanir | 4.710 | 4.985 | -275 | -5,5% |
| Norræna stofnunin í Finnlandi | 4.710 | 4.985 | -275 | -5,5% |
| Almennar áætlanir — öll stig upplýsingatækni | 4.051 | 3.631 | 420 | 11,6% |
| Stefnumörkunarhópur ráðherranefndarinnar | ||||
| í upplýsingatækni (MR-U) | 522 | 510 | 12 | 2,4% |
| Upplýsingatækni í kennslu | 3.069 | 3.121 | -52 | -1,7% |
| Þróunarverkefnið NORDUnet2 | 460 | 0 | 460 | 100,0% |
| Vísindasamstarf | 98.717 | 101.486 | -2.769 | -2,7% |
| Verkefnafé og almennir styrkir | 52.255 | 55.444 | -3.189 | -5,8% |
| Norræna vísindastefnuráðið (FPR) | 2.046 | 2.536 | -490 | -19,3% |
| Norræni vísindaháskólinn (NorFA) | 36.302 | 36.836 | -534 | -1,4% |
| Vísindaáætlunin Norðurlönd og Evrópa | 10.325 | 6.947 | 3.378 | 48,6% |
| Norrænt tengslanet um þjóðminjar | 2.046 | 2.193 | -147 | -6,7% |
| Norræn norðurskautsvísindaáætlun | 512 | 6.120 | -5.608 | -91,6% |
| Framkvæmd stefnumótunar í vísindum | 512 | - | 512 | - |
| Norræna nefndin um lífsiðfræði | 512 | 812 | -300 | -36,9% |
| Stofnanir | 46.462 | 46.042 | 420 | 0,9% |
| Norræna kjarnfræðistofnunin (NORDITA) | 17.355 | 17.400 | -45 | -0,3% |
| Norræna stofnunin um sjórétt (NIfS) | 2.521 | 2.558 | -37 | -1,4% |
| Norræna stofnunin um Asíurannsóknir (NIAS) | 7.760 | 7.781 | -21 | -0,3% |
| Norræn samstarfsnefnd um vísindaupplýsingar | ||||
| (NORDINFO) | 5.128 | 5.249 | -121 | -2,3% |
| Norræna eldfjallastöðin (NORDVULK) | 7.705 | 6.973 | 732 | 10,5% |
| Norræna Samastofnunin (NSI) | 5.993 | 6.081 | -88 | -1,4% |
| Umhverfis- og auðlindamál og grannsvæðin | 182.522 | 169.841 | 12.681 | 7,5% |
| Grannsvæðin | 65.554 | 54.101 | 11.453 | 21,2% |
| Upplýsingastarfsemi og samskipti | 10.200 | 9.400 | 800 | 8,5% |
| Styrkjaáætlunin fyrir Eystrasaltsríkin og Rússland | 15.350 | 15.000 | 350 | 2,3% |
| Verkefnafé | 40.004 | 27.620 | 12.384 | 44,8% |
| Lýðræði og málefni þegnanna | 15.440 | 13.370 | 2.070 | 15,5% |
| Menningarmiðlun | 3.960 | 2.200 | 1.760 | 80,0% |
| Markaðsbúskapur | 7.220 | 5.050 | 2.170 | 43,0% |
| Sjálfbær auðlindabúskapur | 11.000 | 7.000 | 4.000 | 57,1% |
| Norðurskautssamstarf | 2.384 | 2.081 | 303 | 14,6% |
| Orkumál | 4.386 | 4.400 | -14 | -0,3% |
| Verkefnafé — orkumál | 3.363 | 4.400 | -1.037 | -23,6% |
| Norrænar orkurannsóknaráætlanir | 1.023 | - | 1.023 | - |
| Umhverfismál | 40.890 | 40.105 | 785 | 2,0% |
| Verkefnafé — umhverfismál | 34.752 | 35.005 | -253 | -0,7% |
| Styrktarsjóður NEFCO | 5.217 | 5.100 | 117 | 2,3% |
| Skilvirkni í nýtingu auðlinda Faktor 4/10 | 512 | - | 512 | - |
| Markmið umhverfisgæða | 409 | - | 409 | - |
| Efnahags- og peningamál | 11.016 | 11.236 | -220 | -2,0% |
| Verkefnafé — efnahags- og peningamál | 1.023 | 1.000 | 23 | 2,3% |
| Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (Nopef) | 9.993 | 10.236 | -243 | -2,4% |
| Byggðamál | 29.940 | 30.062 | -122 | -0,4% |
| Verkefnafé — byggðamál | 20.076 | 20.400 | -324 | -1,6% |
| Stofnanir | 9.864 | 9.662 | 202 | 2,1% |
| Norræn miðstöð um rannsóknir og þróun | ||||
| í byggðamálum (NORDREGIO) | 9.864 | 9.662 | 202 | 2,1% |
| Samgöngumál | 254 | 248 | 6 | 2,4% |
| Verkefnafé — samgöngumál | 254 | 248 | 6 | 2,4% |
| Landbúnaður og skógrækt | 23.161 | 22.549 | 612 | 2,7% |
| Verkefnafé | 8.934 | 8.364 | 570 | 6,8% |
| Verkefnafé — landbúnaður og skógrækt | 7.277 | 7.344 | -67 | -0,9% |
| Samstarfsráðið fyrir landbúnaðarrannsóknir (NKJ) | 1.043 | 1.020 | 23 | 2,3% |
| Norræn framkvæmdaáætlun um matvælaröryggi | 614 | - | 614 | - |
| Stofnanir | 14.227 | 14.185 | 42 | 0,3% |
| Norræni genbankinn (NGB) | 8.826 | 8.645 | 181 | 2,1% |
| Norrænar skógaræktarrannsóknir (SNS) | 5.401 | 5.540 | -139 | -2,5% |
| Sjávarútvegur | 7.321 | 7.140 | 181 | 2,5% |
| Verkefnafé — sjávarútvegur | 7.321 | 7.140 | 181 | 2,5% |
| Velferðar- og atvinnumál | 142.213 | 139.618 | 2.595 | 1,9% |
| Vinnumarkaður og vinnuumhverfi | 13.554 | 13.540 | 14 | 0,1% |
| Verkefnafé | 11.173 | 11.164 | 9 | 0,1% |
| Verkefnafé — Vinnumarkaður og vinnuumhverfi | 7.081 | 7.371 | -290 | -3,9% |
| Nordjobb | 2.762 | 2.672 | 90 | 3,4% |
| Upplýsingaverkefni | 1.330 | 1.121 | 209 | 18,6% |
| Stofnanir | 2.381 | 2.376 | 5 | 0,2% |
| Norræn stofnun fyrir framhaldsmenntun | ||||
| á vinnuumhverfissviði (NIVA) | 2.381 | 2.376 | 5 | 0,2% |
| Félags- og heilbrigðismál | 35.325 | 34.556 | 769 | 2,2% |
| Verkefnafé | 5.371 | 5.090 | 281 | 5,5% |
| Verkefnafé — félags- og heilbrigðismál | 3.734 | 3.968 | -234 | -5,9% |
| Norræna ráðið um málefni fatlaðra (NHR) | 1.023 | 1.122 | -99 | -8,8% |
| Styrkjafyrirkomulag vegna táknmálstúlkunar | 614 | - | 614 | - |
| Stofnanir | 29.954 | 29.466 | 488 | 1,7% |
| Norræna lyfjanefndin (NLN) | 3.086 | 2.802 | 284 | 10,1% |
| Norræni heilbrigðisfræðaháskólinn (NHV)1 | 32.513 | 31.844 | 669 | 2,1% |
| Stofnun til prófunar efna til tannlækninga (NIOM) | 8.511 | 8.870 | -359 | -4,0% |
| Norræna rannsóknarnefndin á sviði vímuefna (NAD) | 2.511 | 2.507 | 4 | 0,2% |
| Norræna samstarfsnefndin um málefni fatlaðra (NSH) | 7.664 | 7.506 | 158 | 2,1% |
| Norræna menntamiðstöðin á sviði daufblindu (NUD) | 6.565 | 6.197 | 368 | 5,9% |
| Norræn menntunaráætlun fyrir félagslega þjónustu | ||||
| (NOPUS) | 1.617 | 1.584 | 33 | 2,1% |
| Jafnrétti | 7.435 | 6.524 | 911 | 14,0% |
| Verkefnafé — jafnrétti | 2.681 | 2.621 | 60 | 2,3% |
| Stofnanir | 4.754 | 3.903 | 851 | 21,8% |
| Norræn rannsóknarstofnun í kvenna- og jafnréttisfræðum (NIKK) | 4.754 |
3.903 |
851 |
21,8% |
| Vímuefnasamstarf | 614 | 510 | 104 | 20,4% |
| Verkefnafé — vímuefnasamstarf | 614 | 510 | 104 | 20,4% |
| Velferðarmál | 1.739 | 510 | 1.229 | 241,0% |
| Verkefnafé — velferðarmál | 102 | 510 | -408 | -80,0% |
| Velferðarrannsóknir | 1.637 | - | 1.637 | - |
| Vinnumál | 68.676 | 71.228 | -2.552 | -3,6% |
| Verkefnafé — vinnumál | 1.432 | 1.312 | 120 | 9,1% |
| Upplýsingatæknisamstarf lítilla og meðalstórra | ||||
| fyrirtækja | 614 | - | 614 | - |
| Stofnanir | 66.630 | 69.916 | -3.286 | -4,7% |
| Norrræni iðnaðarsjóðurinn | 55.286 | 57.696 | -2.410 | -4,2% |
| Nordtest | 11.344 | 12.220 | -876 | -7,2% |
| Bygginga- og húsnæðismál | 818 | 0 | 818 | 100,0% |
| Verkefnafé - bygginga- og húsnæðismál | 818 | 0 | 818 | 100,0% |
| Neytendamál | 7.834 | 7.658 | 176 | 2,3% |
| Verkefnafé - neytendamál | 5.747 | 5.618 | 129 | 2,3% |
| Svanurinn - Norræn umhverfismerking | 2.087 | 2.040 | 47 | 2,3% |
| Matvæli | 5.348 | 4.228 | 1.120 | 26,5% |
| Verkefnafé - matvæli | 5.348 | 4.228 | 1.120 | 26,5% |
| Löggjöf | 870 | 864 | 6 | 0,7% |
| Verkefnafé - löggjöf | 870 | 864 | 6 | 0,7% |
| Önnur starfsemi | 78.868 | 82.198 | -3.330 | -4,1% |
| Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinna r (NMRS) | 58.724 | 55.404 | 3.320 | 6,0% |
| Samband Norrænu félaganna | 2.706 | 2.713 | -7 | -0,3% |
| Nordens Administrativa Förbund | 153 | 156 | -3 | -1,9% |
| Norrænt Sama-samstarf | 1.294 | 1.295 | -1 | -0,1% |
| Framlag til Vestur-Norðurlanda | 2.455 | 2.393 | 62 | 2,6% |
| Norrænt tölfræðisamstarf | 1.481 | 1.428 | 53 | 3,7% |
| Ráðstöfunarvarasjóður framkvæmdastjórans | 358 | 357 | 1 | 0,3% |
| Endurskipulagning stofnana | 0 | 2.040 | -2.040 | -100,0% |
| Varasjóður ráðherranefndar | 1.983 | 7.480 | -5.497 | -73,5% |
| Styrkur til frjálsra félagasamtaka | 614 | - | 614 | - |
| Upplýsingamiðlun | 3.433 | 2.652 | 781 | 29,4% |
| Upplýsingamiðlun utan Norðurlanda | 1.228 | 2.040 | -812 | -39,8% |
| Þýðingar og túlkun | 777 | 780 | -3 | -0,4% |
| Starfsmannaskipti | 2.046 | 1.836 | 210 | 11,4% |
| Útgáfustarfsemi | 1.616 | 1.622 | -6 | -0,4% |
| Samtals | 732.308 | 716.931 | 15.377 | 2,1% |
III. ÁÆTLUN ÍSLANDS VEGNA FORMENNSKU
Í NORRÆNU RÁÐHERRANEFNDINNI 1999
Ísland leggur fram eftirfarandi starfsáætlun um samstarf norrænu ríkisstjórnanna árið 1999 en í ár gegna Íslendingar formennsku á þeim vettvangi.
Í inngangi áætlunarinnar eru meginþættir og helstu áherslur reifaðar og í hinum köflum hennar er gerð grein fyrir áætlunum fagsviðanna fyrir næsta ár. Þverfagleg áætlun, nefnd „Fólk og haf í norðri“ liggur með sem fylgiskjal og er hér birt sem IV. hluti skýrslu samstarfsráðherra.
1. INNGANGUR
Hið hnattræna og hið evrópska.
Einkennandi fyrir þróunina nú í lok 20. aldar er að þjóðríkin verða í auknum mæli háðari umheiminum og samskiptum við hann. Jafnframt eru skilin milli innanríkis- og utanríkismála mun óljósari en áður og alþjóðamál spanna nú í ríkara mæli en áður allan heiminn og norrænt samstarf hefur sannað að það á sinn sess í því fjölþætta hnattræna og alþjóðlega samstarfi, sem þróast hefur á síðustu áratugum. Fyrirhuguð stækkun Evrópu leiðir einnig til þess að mikilvægi svæðisbundins samstarfs eykst og að sama skapi hlutverk norræns samstarfs í Evrópu.
Þessi þróun á alþjóðlegum og evrópskum vettvangi hefur á síðustu árum aukið vægi norræns samstarfs, samvinnu og samráðs um alþjóðamál. Þannig hefur þýðing reglubundinna funda milli norrænu forsætisráðherranna og utanríkisráðherranna aukist. Að auki hefur nú verið tekið upp samband milli norrænu forsætisráðherranna og fjármálaráðherranna til upplýsinga og umræðna um Evrópska myntbandalagið.
Næsta ár verður stækkun Evrópusambandsins, NATO, Schengensamningurinn, Evrópska myntbandalagið og Norðlæga víddin svo og Sameinuðu þjóðirnar og Endurreisnar- og þróunarbankinn (IBRD) á dagskrá funda norrænu forsætisráðherranna og norrænu utanríkisráðherranna. Markmiðið verður að móta norræna afstöðu til málefna sem efst eru á baugi í Evrópu, á alþjóðavettvangi og hnattrænt, þegar hagsmunir Norðurlanda falla saman.
Í tilefni þess að nú eru 50 ár liðin síðan mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt gáfu norrænu forsætisráðherrarnir út yfirlýsingu á 50. þingi Norðurlandaráðs í Ósló, þar sem þeir hvetja til sameiginlegs átaks til stuðnings grundvallarmannréttindum og frelsi og gegn skerðingu á þessum réttindum. Þessu ber að fylgja eftir á norrænum og alþjóðlegum vettvangi.
Ísland leggur áherslu á að auka tengslin milli Norrænu ráðherranefndarinnar og formennskulands Evrópusambandsins. Vegna formennsku Finnlands þar seinni hluta 1999 og formennsku Danmerkur og Svíþjóðar í framhaldinu gefst gott tækifæri til að styrkja þessi tengsl. Mikilvægt er að nýta þessa möguleika markvisst á svo mörgum sviðum sem mögulegt er bæði í norrænu samstarfi ráðherra og embættismanna.
Árið 1999 tekur Ísland við formennsku í Evrópuráðinu og Noregur tekur við formennsku hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE). Hugmyndir um aukið samstarf milli þessara samtaka hafa verið lagðar fram. Þannig verða Norðurlönd og norrænar áherslur sýnilegri í Evrópusamstarfi en áður.
Ísland leggur áherslu á norrænt samráð þegar þess er kostur við undirbúing við lögfestingar tilskipana Evrópusambandsins í því skyni að stuðla að norrænni réttareiningu. Með skipulögðum hætti ber að ganga úr skugga um að slíkt samráð eigi sér stað á öllum sviðum hins norræna samstarfs.
Ísland leggur áherslu á aukið upplýsingaflæði milli aðalskrifstofa Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar og höfuðstöðva Evrópusambandsins í Brussel. Þess vegna er lögð áhersla á að styrkja það kerfi sem byggt hefur verið upp til að gefa starfsmönnum Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs kost á að dvelja við sendiráð Norðurlanda í Brussel.
Fólk og haf í norðri.
Ísland vill beina sérstakri athygli að hinu strjálbýla Norðurskautssvæði og Vestnorræna svæðinu og leggur fram þau markmið sem æskilegt er að unnið verði að til hagsbóta fyrir íbúa þessara svæða í þverfaglegu áætluninni „Fólk og haf í norðri“. Markmið hennar eru: bætt lífsskilyrði á svæðunum, sjálfbær nýting náttúruauðlinda, atvinnuþróun, náttúruvernd, aukin samskipti innan svæðisins og aukin þekking umheimsins á lífi, kjörum og menningu þeirra þjóða sem þar búa. Áætlunin, sem tekur bæði til verkefna sem heyra undir norræna stoð og grannsvæðastoð hins norræna samstarfs á umhverfis-, sjávarútvegs-, byggðamála-, menntunar-, rannsókna-, landbúnaðar- og skógræktarsviði. Það er æskilegt að áætlunin verði höfð að leiðarljósi bæði innan þessara sviða og annarra eftir því sem við á. Listi yfir verkefni sem falla að markmiðum áætlunarinnar verður kynntur fyrir árslok 1998. Vonir eru bundnar við að þessi verkefni og önnur verkefni tengd „Fólki og hafi í norðri“ komi til framkvæmda innnan Norrænu rannsóknaáætlunarinnar um málefni Norðurskautsins og Norrænu samstarfsáætlunarinnar um málefni Norðurskautssvæðisins.
Grannsvæði Norðurlanda.
Samstarf Norðurlanda við Eystrasaltsríkin og grannsvæði Norðurlanda í Rússlandi sem og við Norðurskautssvæðið er mikilvægt. Með tilliti til þess takmarkaða fjármagns af fjárlögum Norrænu ráðherranefndarinnar sem hægt er að veita til þessa samstarfs leggur Ísland áherslu á nauðsyn hagkvæmrar verkaskiptingar milli Norrænu ráðherranefndarinnar og annarra sem eiga samstarf við þessi svæði þannig að komist verði hjá tvíverknaði. Jafnframt er mikilvægt að samnorrænni aðstoð sé beint að verkefnum sem hafa í för með sér hvað mest norrænt notagildi. Í formennskutíð Íslands verður lögð áhersla á að bæta stöðu barna á grannsvæðum Norðurlanda. Þegar ákvarðanir um samnorrænar aðgerðir til að bæta stöðu barna þar eru teknar ber m.a. að líta til niðurstaðna og upplýsinga sem fram komu á barnaráðstefnu Norðurlandaráðs (BARNforum) í desember 1998.
Í tilefni formennsku Finna í Evrópusambandinu leggja þeir áherslu á að auka samstarf og aðstoð Evrópusambandsins við Norðvestur-Rússland og Eystrasaltssvæðið. Þetta átak „Norðlæga víddin“ er mikilvægt áherslumál fyrir Norðurlönd öll og grannsvæði þeirra. Ísland leggur áherslu á góðar upplýsingar um inntak þessarar áherslu og frjóar umræður á norrænum vettvangi um hana.
Hið hefðbundna norræna.
Mikilvægt er að hugað verði að því þegar í upphafi árs 1999 hvernig árþúsundamótanna verður minnst á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Æskilegt er að rætt verði við Norðurlandaráð um sameiginlegt framlag í þessu skyni.
Ísland vill leggja sitt af mörkum til þess að vestnorrænu löndin, Færeyjar og Grænland ásamt með Álandseyjum verði sýnilegri í norrænu samstarfi og að þau taki í auknum mæli þátt í verkefnasamstarfi á fagsviðunum.
Ísland leggur áherslu á að þróa og styrkja það norræna samstarf sem nú þegar er hafið á sviði upplýsingatækni. Þetta á við það pólitíska samstarf undir leiðsögn þeirra ráðherra sem fara með upplýsingatæknimál, þar sem miðlæg áherslusvið eins og notkun upplýsingatækninnar til eflingar lýðræði og til að tryggja jafnræði hvað varðar aðgengi að upplýsingasamfélaginu standa í fyrirrúmi. Og þetta á einnig við um aukna notkun upplýsingatækni á öðrum samstarfssviðum norræna samstarfsins, ekki síst á menningar- og menntamálasviði ásamt neytendasviði, þar sem auka ber notkun upplýsingatækni til að ná eða miðla settum markmiðum. Í upplýsingasamfélagi nútímans er það jafnframt mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vernda tungumál lítilla málsamfélaga. Samvinna Norðurlanda um verndun norrænna mála á að stuðla að því að þau verði notuð hnökralaust í samskiptum manns og tölvu. Jafnframt þarf að vinna markvisst að því að auka gagnkvæma þekkingu og skilning á tungumálum norrænu grannþjóðanna. Einnig á að leggja áherslu á að viðhalda og vekja athygli á þeirri málstefnu sem fylgt er á Norðurlöndum til að vernda norrænu tungumálin.
Við eigum einnig að taka upplýsingatæknina í okkar þjónustu við miðlun upplýsinga um menningararf okkar, norrænt vísindastarf og samfélagsmál. Á þessu sviði eru margir samstarfsfletir eins og framleiðsla á margmiðlunarefni fyrir menntakerfi og almenning. Jafnframt ber að auka stuðning til margmiðlunarverkefna á sviði menningar.
Ísland vill beina sjónum að menningarmiðlun til barna og ungmenna á Norðurlöndum ásamt því að auka samskipti norrænna barna og ungmenna. Í þessu sambandi er vakin sérstök athygli á norrænu ungmennamóti sem fyrirhugað er að halda í Reykjavík árið 2000 á vegum aðildarfélaga NSU (Norrænna samtaka um ungmennasamstarf). Á mótinu verða þátttakendur frá öllum norrænu löndunum og menningar- og umhverfismál verða þar í fyrirrúmi.
Sérstök áhersla verður lögð á þátttöku frá jaðarsvæðum og þátttöku fámennra þjóðarsamfélaga í norrænu menningarsamstarfi.
Eitt áherslumálanna er að efla norrænt samstarf um menningarkynningar utan Norðurlanda á þann veg að öll norrænu löndin fái tækifæri til að kynna menningu sína. Nú þegar er hafinn undirbúningur viðamikillar farandsýningar í Norður-Ameríku árið 2000 um víkingatímann og vesturferðir Norðurlandabúa við síðustu aldamót sem Ísland leggur mikla áherslu á að komist til framkvæmda ásamt öðrum menningarkynningum utan Norðurlanda.
Í samstarfi við Svíþjóð, fráfarandi formennskuland, er lögð áhersla á að á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar verði tekið upp samstarf við frjáls félagasamtök, samkvæmt þeirri áætlun um samstarf við slík samtök sem samþykkt var á 50. þingi Norðurlandaráðs.
Með hliðsjón af norrænni samstarfsáætlun um sjávarútvegsmál, verður aðalmarkmið sjávarútvegssamstarfsins að efla sjávarútveg, sem mikilvægan þátt þjóðlífs í löndunum.
Ári hafsins verður fylgt eftir m.a. með aukinni umræðu um ábyrga nýtingu sjávarauðlinda og með því að stuðla að auknum skilningi á alþjóðavettvangi á sjónarmiðum norrænu ríkjanna um fiskveiðistjórnun, sjálfbærni og umhverfismál. Samhliða þessu verður stefnt að samræmingu norrænna sjónarmiða og kynningu á þeim í svæðisbundnu samstarfi og á alþjóðavettvangi.
Umhverfismál verða áfram meðal áherslumála og áhersla lögð á að fylgja eftir yfirlýsingu norrænu forsætisráðherranna sem nefnd hefur verið „Sjálfbær Norðurlönd“. Á sviði umhverfis og sjávarútvegs verður lögð áhersla á verndun hafsins og nýtingu sjávarauðlinda, sem og á verndun og nýtingu ferskvatns.
Umhverfismálin á grannsvæðunum eru eins og undangengin ár eitt af meginverkefnum samstarfsins, þar skiptir norræna umhverfisfjármögnunarfélagið NEFCO miklu. Sama gildir um umhverfismál á Norðurskautssvæðinu sem í auknum mæli verður unnið að í samstarfi við önnur alþjóðasamtök, m.a. innan ramma Norðurskautssráðsins. Á umhverfissviði er jafnframt mikilvægt að auka enn frekar samskiptin við Evrópusambandið og Evrópska efnahagssvæðið.
Það er markmiðið að auka og styrkja hið pólitíska samstarf á sviði neytendamála með það fyrir augum að samnorræn stefnumótun geti haft áhrif á stefnu Evrópusambandsins, Evrópska efnahagssvæðisins og á alþjóðavettvangi.
Auk þess sem fram kemur í norrænu samstarfsáætluninni á sviði neytendamála fyrir árin 1999–2004 leggur Ísland m.a. áherslu á mótun samnorrænnar stefnu hvað varðar upplýsingatækni, samnorrænar lágmarkskröfur við nýja lagasetningu um neytendavernd og að neytendamál verði samþætt öðrum sviðum.
Lögð er áhersla á að haldið verði áfram því starfi sem hafið var 1998 við að ryðja úr vegi þeim fjölmörgu hindrunum og óþægindum sem mæta Norðurlandabúum sem flytjast milli norrænu landanna til að stunda atvinnu eða menntun. Upplýsingar um mál af þessum toga, sem Norræna félagið í Svíþjóð safnar frá þeim er nýta þjónustusímann „Halló Norðurlönd“, verða m.a. notaðar við þessa vinnu.
Einnig verður leitast við að auka upplýsingamiðlun milli norrænu landanna um atvinnuhorfur, húsnæðismál, skólamál, félagsmál og fleira með það fyrir augum að aðstoða fólk sem vill flytja búferlum frá einu landi til annars. Þessum markmiðum má ná með aukinni nettengingu milli viðkomandi stofnana á Norðurlöndunum.
Á sviði landbúnaðar og skógræktar er stefnt að því að styrkja samstarfið við Grænland og Færeyjar og taka upp samstarf um sameiginleg hagsmunamál við aðila í Skotlandi, á Orkneyjum, Írlandi og í Kanada. Vakin er athygli á þörfinni á að viðhalda og endurheimta landgæði á hinum viðkvæmu svæðum Norðurskautsins. Einnig er lögð áhersla á að aðstoða þróunarríkin þar sem þekkingu á nýtingu landgæða skortir oft á tíðum.
Margt bendir til þess að áhugavert og verðmætt efni kunni að leynast í þeim fjölmörgu skýrslum og verkefnum sem lokið hefur verið við á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar án þess að niðurstöður þeirra hafi verið notaðar sem skyldi. Lagt er til að þessi gögn verði skoðuð á ný á viðkomandi fagsviðum í því skyni að meta, hvort nú séu möguleikar fyrir hendi, sem ekki voru þar áður til að fylgja málum eftir.
Það er alkunna að almenningur hefur í mörgum tilfellum takmarkaða vitneskju um norræna styrkjakerfið, möguleika á þátttöku í verkefnasamstarfi eða á því að notfæra sér þá þjónustu sem norrænar stofnanir bjóða, ekki einungis á menningar- og rannsóknasviði heldur á mörgum öðrum sviðum. Því er stefnt að því að efla og bæta hagnýtar upplýsingar og leita skilvirkari leiða til að koma þeim á framfæri, m.a. með auknum atbeina nýrrar upplýsingatækni.
2. MENNINGARMÁL
1. Á fundi Norrænu ráðherranefndarinnar, menningarmálaráðherranna, 8. júní 1998 var samþykkt greinargerð um stefnumið í norrænu menningarsamstarfi við árþúsundamót. Sú stefnumörkun sem í greinargerðinni felst lýtur bæði að inntaki og starfsháttum í norrænni menningarsamvinnu á vegum ríkisstjórnanna.
Á formennskuári Íslendinga verður mikilvægt verkefni að fylgja þessari stefnumörkun eftir, m.a. stuðla að því að verkaskiptingu milli samstarfsstofnana ráðherranefndarinnar á menningarsviðinu verði þróuð í samræmi við þau sjónarmið sem lögð eru til grundvallar í greinargerðinni.
2. Á fundi ráðherranefndar menningarmála í júní 1998 var einnig fjallað um tillögur starfshóps um norræna málstefnu, en verkið var unnið á vegum ráðherranefndar menntamála og vísinda. Margar af tillögunum varða menningarmálasviðið, t.d. þær sem lúta að þætti bókmennta og fjölmiðla. Af íslenskri hálfu er lögð áhersla á að tillögum í þessum efnum verði fylgt eftir með raunhæfum hætti. Í því sambandi verður m.a. hugað að aðgerðum sem fallnar eru til að efla gagnkvæma kynningu barna- og unglingabókmennta á Norðurlöndum.
3. Nærtækt er að Íslendingar beiti sér fyrir því á formennskuári sínu að hugað verði sérstaklega að stöðu jaðarsvæða og fámennra þjóðarsamfélaga í norrænu menningarsamstarfi. Til greina kemur að efna til ráðstefnu á Íslandi þar sem reynt verði að varpa ljósi á hver hlutur íbúa þessara svæða er nú, hvers þeir vænta af samstarfinu, hvað veldur þeim örðugleikum og hvernig mætti efla þátttöku þeirrra og stuðla að því að samstarfið kæmi þeim að sem bestum notum.
4. Oft verður þess vart að almenningur á Norðurlöndum, jafnt á Íslandi sem annars staðar, hefur óljósa vitneskju um það samstarfskerfi sem byggt hefur verið upp á sviði menningarmála og á því óhægt um vik að nýta þá möguleika sem samstarfið býður. Því virðist enn þörf á að efla og bæta hagnýtar upplýsingar, t.d. um ýmis styrkjakerfi, og leita skilvirkari leiða til að koma þeim á framfæri, m.a. með auknum atbeina nýrrar upplýsingatækni.
5. Áfram ber að leggja áherslu á nýtingu nútímalegrar upplýsingartækni í menningarsamstarfinu sjálfu, ekki einungis til að koma á framfæri upplýsingum um samvinnuna heldur og til að auka fjölbreytni verkefna, greiða fyrir þátttöku og auðvelda aðgang almennings að menningarverðmætum. Nú þegar er nokkru fé varið til samvinnu um margmiðlunarverkefni, en kanna þarf hvernig skipuleggja megi öflugri stuðning við framleiðslu á norrænu efni fyrir slíka miðlun.
6. Gildistími samnings um Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn rennur út í lok árs 1999. Íslendingar hafa hug á að stuðla að því eftir föngum, að búið verði í haginn fyrir öflugt framhald á starfsemi sjóðsins.
7. Mikilsvert er að norrænt samstarf um menningarkynningar utan Norðurlanda haldi áfram og eflist og nýtist öllum þjóðunum til að koma menningu sinni á framfæri og stofna til nýrra menningartengsla. Uppi eru áform um umfangsmikla sýningarstarfsemi í Norður-Ameríku aldamótaárið til að minnast landafunda og vesturfara norrænna manna. Af íslenskri hálfu er lögð áhersla á að það undirbúningsstarf sem vinna þarf á næstu misserum stuðli að því að þau áform takist sem best.
3. MENNTUN OG RANNSÓKNIR
Samstarf á sviði menntamála og vísinda á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar mun á formennskuári Íslands áfram beinast að því að auka almennt samstarf landanna auk þess að styrkja samstarf við önnur Evrópuríki sem og við grannsvæði Norðurlanda. Markmiðið er að jafn auðvelt verði að mynda tengsl, skiptast á hugmyndum og flytjast frá einu fræðslu- og rannsóknarumhverfi til annars á Norðurlöndum og í eigin landi. Lögð verður áhersla á að styrkja norræn viðhorf í alþjóðasamstarfi og gera starfsemina skilvirkari. Lögð verður sérstök áhersla á að styrkja tengslin milli hinna vestlægu Norðurlanda og annarra ríkja Norðurlanda.
Á formennskuári Íslands verður lögð áhersla á sjálfbært samfélag á Norðurlöndum, sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og málefni hafsins. Þessir áhersluþættir hafa skírskotun til verkefna sem þegar er unnið að í norrænu samstarfi. Starfsemi á sviði menntunar og rannsókna innan ráðherranefndarinnar mun því taka mið af þeim og því beint til viðkomandi nefnda og stofnana innan mennta- og rannsóknasviðsins að huga að því hvernig þessi áhersluatriði falli að starfsemi þeirra og að metið verði hvort forsendur séu fyrir nýjum verkefnum undir þessum formerkjum.
Eitt þeirra verkefna sem nýlega hefur verið hleypt af stokkunum er verkefnið mat í skólastarfi. Var þetta verkefni tekið upp að frumkvæði Íslands á formennskuári þess 1994. Á formennskuári Íslands 1999 verður því fylgt eftir með aukinni áherslu á mat og gæði í skólastarfi að háskólastigi meðtöldu. Það fellur vel við umræðuefnið á fundi mennta- og rannsóknamálaráðherra í desember 1998 en þeir hafa ákveðið að taka tiltekin umræðuefni fyrir á fundum sínum. Munu umræðuefnin hverju sinni taka mið af þeim málefnum sem ráðherrarnir leggja áherslu á að ræða á norrænum vettvangi. Formennskulandið mun sjá um samhæfingu í undirbúningi þeirrar umræðu í samstarfi við menntamálaráðuneyti landanna og skrifstofu ráðherranefndarinnar. Hafa ráðherrarnir þegar rætt nokkrar hugmyndir um fleiri umræðuefni.
Áætlunin um norræna tungumálasamvinnu mun skipa forgangssess á formennskuári Íslands. Mikilvægi þess að varðveita hin norrænu tungumál eykst stöðugt í hraðfara þróun upplýsingasamfélagsins þar sem enska ræður stöðugt meira ríkjum. Í þeim samanburði eru norrænu tungumálin lítil málsamfélög. Nauðsynlegt er því að á vettvangi ráðherra um menntun og rannsóknir verði unnið skipulega að því að viðhalda norrænu málunum og stuðla að framgangi þeirra í upplýsingasamfélaginu og því ákjósanlegt umræðuefni á fundi ráðherranna.
Áfram verður unnið að því að styrkja norræna samvinnu á sviði upplýsingatækni með sérstakri áherslu á að skapa börnum og unglingum tækifæri til að nýta sér þá tækni sem best þekkist í þeim efnum enda munu málefni barna og ungmenna skipa áfram forgangssess á formennskuári Íslands í samræmi við þær áherslur sem ríkt hafa um árabil innan Norrænu ráðherranefndarinnar.
Á formennskuári Íslands á sviði menntunar og rannsókna verður lögð áhersla á samfellu í þeirri starfsemi sem fyrir er. Verkefnum sem mörkuð hafa verið af fyrrverandi formennskulöndum verður fylgt eftir á verksviði hinna ýmsu nefnda og vinnuhópa innan sviðsins. Helstu starfsáætlanir innan mennta- og rannsóknarsviðsins taka til fimm ára í senn. Unnið er að mestu eftir starfsáætlunum fyrir árin 1997–2000.
Nefna má eftirfarandi áætlanir og verkefni:
– Mat í skólastarfi.
– Upplýsinga- og samskiptatækni (IKT) í skólastarfi.
– Brottfall nemenda úr skilgreindu framhaldsnámi.
– Skilgreining á hlutverki kennarans.
– Símenntun.
– Rannsóknarverkefni um atvinnulíf og lýðfræðslu.
– Norræn endurmenntun í kennslufræði fullorðinna.
– Fullorðinsfræðsla og upplýsingatækni.
– Efling lýðræðis.
– Lítil fyrirtæki og lýðfræðsla.
– Auka og hvetja til stúdenta- og kennaraskipta (mobilitet — Nordplus).
– Grunnmenntun og rannsóknir.
– Áhersla á svæðisbundið samstarf.
– Alþjóðlegt samstarf.
– Mótun norrænnar rannsóknarstefnu (Nordisk forskningspolitisk strategi) til að stuðla að markvissri forgangsröðun verkefna.
– Stefnumörkun með þverfaglegt samstarf í huga.
– Tillögur um forgangsröðun í rannsóknum á vettvangi ráðherranefndarinnar einkum með tilliti til forgangsröðunar í hinum einstöku löndum.
– Þróun gæðastjórnaraðferða í norrænu rannsóknasamstarfi.
Ráðstefnur á formennskuári Íslendinga.
Fyrirhugað er að halda ráðstefnur um þau málefni sem lögð er áhersla á í norrænu samstarfi um menntun og rannsóknir og er ráðgert að halda eftirfarandi ráðstefnur á formennskuári Íslands á sviði menntunar og rannsókna.
– Mat í skólastarfi. Það er eitt meginforgangsefni á sviði ráðherranefndarinnar um menntun og rannsóknir á vegum NSS.
– Fjármögnun og skipulag háskóla, en fjármögnun háskólastigsins er orðið mjög aðkallandi úrlausnarefni í flestum löndunum. Högut-nefndin mun undirbúa ráðstefnuna og koma með tillögu um tímasetningu.
– Meginstraumar í símenntun á norrænum, evrópskum og alþjóðlegum vettvangi. Horft verður um öxl og litið fram á veginn með hliðsjón af verkefnaáætlun FOVU 1997–2000. FOVU-nefndin mun undirbúa ráðstefnuna og koma með tillögu um tímasetningu.
4. UMHVERFISMÁL
Inngangur.
Samstarfið á umhverfissviðinu byggir í grundvallaratriðum á Norrænu umhverfisáætluninni 1996 til 2000. Upphaflega var áætlað að hún gilti til ársloka árið 1999, en gera má ráð fyrir því að samþykkt nýrrar umhverfisáætlunar geti dregist fram á mitt ár 2000. Á formennskuári Íslands mun þó hefjast undirbúningur að gerð nýrrar umhverfisáætlunar. Mikilvægur þáttur í því er að líta yfir farinn veg og leggja mat á það hvernig til hefur tekist við að ná þeim markmiðum sem sett voru í áætluninni sem nú er unnið eftir. Niðurstöður úr slíkri endurskoðun ber að nýta við undirbúning og gerð nýrrar áætlunar.
Á formennskuári Íslands verður gengið út frá þeim þremur stoðum sem byggt er á í norrænu samstarfi, Norðurlönd, grannsvæðin og norðurslóðir og Evrópa og önnur alþjóðamál.
Norræna stoðin.
Á formennskuári Íslands verður áhersla lögð á að styrkja norrænu stoðina í umhverfissamstarfi á nyrðri og vestari svæðum Norðurlandanna.
Í norrænu stoðinni er nærtækt að leggja áherslu á hafið á næsta ári. Í áætlun um þverfagleg málefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar á næsta ári kemur áherslan á hafið skýrt fram og af Íslands hálfu verður lögð áhersla á að umhverfisgeirinn leggi sitt af mörkum að því er varðar málefni hafsins. Leggja verður áherslu á að fjallað verði um alla þætti sem snerta umgengni við hafið og nýtingu auðlinda þess. Hér er átt við mengun, verndun búsvæða, sjálfbærar veiðar o.fl.
Lögð verður áhersla á að fylgja eftir yfirlýsingum ráðherra og samningum sem undirritaðir voru á ráðstefnunni „Environment for Europe“ í Árósum í júnílok sl. Enn fremur ber að vinna að markmiðum sem sett eru í OSPAR-samningnum.
Af verkefnum vinnuhópa sem Ísland hyggst leggja áherslu á eru vernd og nýting vatns, þ.m.t. fráveitumál og enn fremur vernd strandsvæða. Af verkefnum vinnuhópa sem Ísland hyggst leggja áherslu á eru vatnsmálin og strandsvæði verða sérstakt áherslumál Íslendinga. Áfram mun verða lögð áhersla á þverfaglegt samstarf við aðra geira og sem dæmi um ný verkefni sem kom til álita er greining á fjárhagslegu verðmæti náttúrunnar.
Grannsvæðin/Norðurslóðir.
Undanfarin ár hafa Norðurlöndin, saman og sitt í hverju lagi unnið markvisst að því að styðja jákvæða þróun umhverfismála á grannsvæðunum við Eystrasalt. Á formennskuári Íslands mun því starfi haldið áfram. Miðað er við það að Styrktarsjóður NEFCO haldi áfram sínu starfi og að reyna að vinna að því að umhverfismál fái aukið framlag úr grannsvæðasjóði Norrænu ráðherranefndarinnar.
Auk þess er það sérstakt áherslumál að styrkja tengsl við norðurslóðir enn frekar, bæði með því að leggja áherslu á að starfi fastra vinnuhópa verði beint frekar á þann vettvang og því að efla samvinnu við aðra sem starfa á þeim vettvangi. Sem dæmi um hið síðarnefnda eru tengsl við hópa sem vinna undir Arctic Environmental Protection Strategy (AEPS), einkum að því er viðkemur að draga úr mengun á svæðinu, náttúruvernd og varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni. Sem dæmi um einstök verkefni má nefna framkvæmd á Regional Programme of Action sem er liður í því að hrinda í framkvæmd Global Programme of Action for the Protection of the Marine Environment from Land-Based Pollution (GPA) og alþjóðlegum samningaviðræðum um þrávirk lífræn efni. Jafnframt verður sérstakur gaumur gefinn að hættu sem stafar af geislavirkum úrgangi í Norðvestur-Rússlandi.
Í heild má segja að markmiðið sé að starf Norrænu ríkjanna á Norðurslóðum falli vel að þeim markmiðum sem þau hafa sett sér í samstarfinu innan Norðurskautsráðsins. Áhersla verður lögð á að vinna að sjálfbærri þróun á Norðurslóðum og meðal verkefna sem Ísland mun stuðla að er gerð staðardagskrár 21 fyrir smærri samfélög á köldum svæðum.
Evrópa og önnur alþjóðamál.
Ísland mun á formennskutímabili sínu stuðla að því að styrkja samskiptin við ESB og EES. Fyrsta skrefið í því efni er að taka til gaumgæfilegrar athugunar og umræðu innan umhverfisgeirans hvernig þessum samskiptum verði best háttað. Ræða þarf hvort og þá hvernig eigi að hafa reglulegt samráð eða samskipti við framkvæmdastjórn ESB og hvernig eigi að haga samskiptum við EFTA. Að mati Íslands þarf að ræða bæði kosti og galla slíks fyrirkomulags.
Í þessu sambandi er ástæða til að ræða sérstaklega undirbúning og lögbindingu gerða sem gilda eiga á EES-svæðinu. Dæmi eru um vel heppnað starf af því tagi í efnavöruhópnum (Kemikaliegruppen), en spurningin er hvort starfið eigi að vera kerfisbundnara. Ekki verður framhjá því litið að umhverfislöggjöf Norðurlandanna, þ.m.t. þeirra sem standa utan ESB, á að stórum hluta uppruna sinn í tilskipunum sambandsins. Undir hatti sumra embættismannanefnda eru starfandi sérstakir lagahópar og það má velta því fyrir sér hvort taka eigi þennan þátt út með svipuðum hætti innan umhverfisgeirans. Hér er þó eingöngu um umræðugrundvöll að ræða en ekki beinar tillögur.
Á formennskutímabilinu mun Ísland leggja áherslu á að Norðurlöndin starfi áfram saman á alþjóðavettvengi eftir því sem við verður komið. Í því sambandi er vísað til þess sem segir að ofan um samningaviðræður um þrávirk lífræn efni og um framkvæmd á GPA. Jafnframt verður áfram stuðlað að samvinnu á sviði annarra samninga sem máli skipta. Þar má m.a. nefna gagnlegt samstarf sem oft hefur átt sér stað um Rammasamning S.þ.um loftslagsbreytingar og líffræðilega fjölbreytni.
5. BYGGÐAMÁL
1. Samstarfsáætlun 2000–2004.
Á árinu 1999 á að undirbúa samstarfsáætlun í byggðamálum fyrir árin 2000–2004. Undirbúningur áætlunarinnar hófst með málþingi í Stokkhólmi í september en meiri hluti vinnunnar mun fara fram á næsta ári. Samstarfið í byggðamálum hefur verið í þremur meginflokkum: hin norrænu samstarfssvæði; rannsóknir og kennsla og samskipti embættismanna.
Sú þróun hefur einkennt flest samstarfssvæðin (fyrir utan norræna Atlantssamstarfið) að þau njóta einnig umtalsverðs stuðnings ESB frá INTERREG áætluninni. Meginverkefni næstu ára er að viðhalda hinu norræna samstarfi í skugganum af mikilli fjárhagslegri fyrir-greiðslu. Ljóst er að fé af fjárlögum Norrænu ráðherranefndarinnar má sín lítils í slíkum samanburði til að hafa umtalsverð áhrif á efnahagsþróun svæðanna í samstarfinu. Hins vegar getur það nýst til að efla samstarf á milli þeirra sem er, þrátt fyrir allt, ekki kjarni stuðningsins af hálfu ESB. Norræn sjónarmið mega sín ef til vill ekki mikils í endurskoðun INTERREG áætlunarinnar en þó er nauðsynlegt að þeim sé komið á framfæri.
Nordregio hefur nú starfað í rúmt ár. Í samstarfsáætluninni þarf að leggja áherslu á eflingu hennar vegna þess að þar verður hægt að byggja upp kennslu og rannsóknir sem nýtast mun Norðurlandaþjóðunum öllum enda hafa þær ekki möguleika á að standa fyrir slíku sjálfar. Nánar er fjallað um Nordregio hér að neðan.
Samstarf og upplýsingamiðlun milli embættismanna í byggðamálum á Norðurlöndum gengur mjög greiðlega. Því verður væntanlega haldið áfram á sama grunni og verið hefur.
Verkefni ársins er að standa vel að því að gera og samþykkja samstarfsáætlunina.
2. Efling Nordregio.
Komið hefur fram tillaga um að gera Nordregio að miðstöð þekkingar og þekkingarmiðlunar í umhverfismati á Norðurlöndunum. Ekki er mögulegt að stunda nauðsynlega fræðslu í þeim efnum einungis innanlands. Unnið verður að þessu verkefni á árinu 1999. Jafnframt þarf að tryggja að fræðsla á þessu sviði, svo og á sviði skipulags- og byggðaþróunarmála fari ekki einungis fram í Stokkhólmi. Er bæði hægt að hugsa sér að námskeið verði haldin í hinum löndunum og að notast verði við netið og fjarkennslu. Á árinu 1999 þarf að kanna hvort grundvöllur er fyrir því að Nordregio tæki upp þekkingarmiðlun til þeirra sem starfa að staðbundinni atvinnuþróun.
3. Samvinna milli byggða- og vinnumarkaðsmála.
Undanfarin ár hefur staðið yfir samstarf milli embættismannanefndanna í byggðamálum og landbúnaðarmálum. Það hefur að mörgu leyti verið gagnlegt enda þótt það hafi meðal annars leitt í ljós erfiðleika í samstarfi milli tveggja ráðuneyta í sama landi. Af þessu samstarfi hefur fengist reynsla sem hægt er að læra af áður en farið yrði út í samstarf milli byggðaráðuneyta og ráðuneyta sem standa fyrir almennum vinnumarkaðsaðgerðum. Rétt er að hefja málið á því að gert yrði uppkast að mögulegum samstarfsverkefnum af ráðgjöfum Norrænu ráðherranefndarinnar á þessum sviðum og ræða tillögur á grundvelli skýrslu frá þeim. Markmiðið er að á árinu 1999 verði gerð samstarfsáætlun milli hinna norrænu embættismannanefnda á sviðum byggðamála og vinnumarkaðsaðgerða ef niðurstaða starfsins er að það sé gagnlegt.
4. Norrænt samstarf í ferðaþjónustu í strjálbýli.
Eitt af samstarfsverkefnum landbúnaðar- og byggðanefndanna hefur leitt til stofnunar tengslahóps um ferðaþjónustu. Áður hafa verið gerðar tilraunir til að auka samstarfið á þessu sviði. Ekki er undarlegt að í byggðamálunum sé mjög horft til möguleika ferðaþjónustunnar og þar er gagnlegt að miðla reynslu og upplýsingum. Á árinu 1999 verður ákveðið með hvaða hætti málefnum ferðaþjónustu í dreifbýli verður sinnt í norrænu samstarfi.
5. Upplýsingatækni og byggðaþróun.
Árið 1997 fór, að frumkvæði norska formannsins, fram umræða um mikilvægi upplýsingatækni fyrir byggðaþróun og hvaða áhugaverð og mikilvæg sjónarmið gætu orðið uppi í hugsanlegri norrænni samvinnu á því sviði. Vorið 1999 mun NERP taka ákvörðun um áætlanir um sameiginlega þekkingaröflun á sviði upplýsingatækni og byggðaþróunar og jafnframt meta hvort ástæða sé til að taka slíkt með sem eitt af áhersluverkefnum í samstarfsáætlun í byggðamálum fyrir árin 2000-2004.
6. Menningarsamstarf á samstarfssvæðunum.
Árið 1999 verður ýtt úr vör þriggja ára áætlun um eflingu menningarverkefna á samstarfssvæðunum. Markmiðið er að hvetja samstarfssvæðin til að þróa heilsteypta langtímasýn og ráðast síðan í verkefni sem gætu leitt til aukins menningarframboðs á svæðunum. Slíkt framboð gæti komið til viðbótar innanlandsaðgerðum og leitt í ljós að sameiginlegt átak fyrir allt samstarfssvæðið getur hvatt til nýrra og meira spennandi verkefna.
6. EFNAHAGS- OG FJÁRMÁL
1. Almenn efnahagsmál.
Almenn umræða og skoðanaskipti um stefnumörkun í efnahagsmálum er fyrirferðamikil í samstarfi efnahags- og fjármálaráðherra Norðurlanda. Enn fremur hafa ráðherrarnir reglubundið samráð á vettvangi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, OECD og Eystrasaltsráðsins, ásamt Þýskalandi, Póllandi og Eystrasaltsríkjunum.
Áfram verður eitt veigamesta verkefnið á þessu sviði á komandi starfsári umfjöllun um stefnumörkun í ríkisfjármálum og peningamálum með það fyrir augum að treysta stöðugleika í efnahagsmálum, efla hagvöxt og stuðla að aukinni atvinnu.
Á árinu 1998 hefur verið unnið að umfangsmikilli athugun á áhrifum hagsveiflna á stöðu opinberra fjármála á öllum Norðurlöndunum. Þessari athugun verður fram haldið á næsta ári og áformað að ljúka henni þá með sérstakri skýrslu. Í tengslum við þetta verður efnt til alþjóðlegrar ráðstefnu um málið. Jafnframt verður fjallað um hugsanlegt framhald þessa málefnis.
Nú er unnið að sérstakri athugun á auknu samstarfi norrænna kauphalla og verðbréfaþinga þar sem meðal annars eru kannaðar leiðir til að samræma reglur á þessu sviði. Vaxandi alþjóðavæðing hefur leitt til aukinnar samkeppni og jafnframt knúið á um aukna samvinnu á þessum vettvangi. Enn fremur verða möguleikar á samvinnu milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á þessu sviði kannaðir.
Í mörgum löndum hefur tilhögun lífeyrismála verið til endurskoðunar, meðal annars í ljósi breyttrar aldurssamsetningar og áhrifa hennar á uppbyggingu velferðarkerfisins á næstu árum og áratugum. Norðurlöndin standa að mörgu leyti betur en aðrar þjóðir á þessu sviði. Að tillögu Íslands verða þessi mál tekin til sérstakrar skoðunar á árinu 1999.
2. Starfsemi og verksvið Norræna fjárfestingarbankans.
Starfsemi Norræna fjárfestingarbankans hefur í vaxandi mæli verið til umræðu á vettvangi fjármálaráðherranna. Annars vegar í tengslum við sérstaka fjárfestingaráætlun fyrir Eystrasaltsríkin sem fjármálaráðherrarnir höfðu frumkvæði að á sínum tíma (sbr. lið 5). Hins vegar hefur verið vaxandi þörf fyrir lánsfé, ekki síst áhættufé, til ríkjanna í Mið- og Austur-Evrópu sem hefur kallað á auknar ríkisábyrgðir og aukið hlutafé í bankanum. Með aukinni alþjóðavæðingu atvinnulífs á Norðurlöndunum og stuðningi eigenda hans hefur starfsemi bankans orðið alþjóðlegri. Lán og ábyrgðir eru nú ekki aðeins veittar til verkefna á Norðurlöndum heldur og utan þeirra. Þannig er hlutverk bankans nú að nýta traust lánshæfi á alþjóðamarkaði til að veita lán á almennum bankakjörum til fjárfestingarverkefna einkaaðila og opinberra aðila í þágu bæði Norðurlanda og þeirra ríkja utan Norðurlanda, sem fá lán eða ábyrgðir frá bankanum. Í ljósi aukinnar alþjóðlegrar starfsemi bankans og þeirrar auknu áhættu sem því fylgir er talið mikilvægt að treysta með formlegum hætti alþjóðlega stöðu bankans.
Fjármála- og efnahagsráðherrar Norðurlanda hafa nú samþykkt nýtt samkomulag um Norræna fjárfestingarbankann með þessi meginmarkmið að leiðarljósi og var það undirritað í Ósló 23. október 1998 af fulltrúum stjórnvalda allra Norðurlandanna með fyrirvara um samþykkt viðkomandi þjóðþinga. Jafnframt hefur Forsætisnefnd Norðurlandaráðs fjallað um og samþykkt hið nýja samkomulag. Samkomulagið hefur verið lagt fyrir þjóðþing einstakra landa til afgreiðslu og er miðað við að það taki gildi í upphafi árs 1999.
3. Umhverfismál.
Á vegum tveggja embættismannanefnda, þ.e. þeirra sem fjalla um efnahagsmál (EK-Finans) og umhverfismál (EK-Miljø), starfar sérstakur vinnuhópur um umhverfismál, einkum beitingu hagrænna aðgerða á því sviði. Fjármálaráðuneytið og umhverfisráðuneytið eiga sinn hvorn fulltrúann í þessum hópi. Meginverkefni hópsins hefur verið gerð skýrslna um stöðu umhverfismála á Norðurlöndunum frá efnahagslegu sjónarmiði og er Ísland aðili að þessari skýrslugerð. Á vegum nefndarinnar hefur einnig verið efnt til ráðstefna og samráðs við Evrópusambandið á þessu sviði. Á árinu 1998 var meðal annars haldin ráðstefna í samráði við vinnuhóp um orku- og umhverfismál þar sem fjallað var um ákvæði Kyoto-bókunarinnar og viðskipti með losunarkvóta. Að tillögu Íslands mun þessi vinnuhópur á næsta ári taka til sérstakrar skoðunar ýmsa efnahags- og umhverfislega þætti sem tengjast nýtingu náttúruauðlinda.
4. Evrópumál.
Í tengslum við almenna umræðu um efnahagsmál hafa málefni Evrópusambandsins mikið verið rædd á vettvangi efnahags- og fjármálaráðherranna. Sérstaklega hafa mál tengd stofnun Efnahags- og myntbandalagsins verið rædd, ekki einungis á milli norrænu ráðherranna heldur einnig á öðrum vettvangi svo sem OECD og á sameiginlegum fundum milli EFTA og Evrópusambandsins. Haustið 1998 var haldinn sameiginlegur fundur forsætis- og fjármálaráðherra Norðurlanda um málefni EMU. Jafnframt var ákveðið að ráðherrarnir myndu hittust reglulega til að ræða þessi mál og er áformað að næsti fundur verði haldinn á Íslandi í júní 1999.
5. Stuðningur við Eystrasaltsríkin og rússnesku nærhéruðin.
Mikil áhersla hefur verið lögð á samskipti og stuðning Norðurlanda við Eystrasaltsríkin, einkum í tengslum við hina sérstöku fjárfestingaráætlun (Det baltiske investeringsprogram, BIP) sem hrundið var í framkvæmd í mars 1992 og framlengd á árinu 1996 fram til ársins 2000. Með þessari áætlun hafa Norðurlöndin veitt umtalsverðum fjármunum, eða sem nemur um 1.500 milljónum íslenskra króna, til uppbyggingar efnahagslífs í Eystrasaltsríkjunum með milligöngu Norræna fjárfestingarbankans, Evrópubankans í London og Norræna verkefnaútflutningssjóðsins. Þessi áætlun hefur þegar skilað umtalsverðum árangri.
7. ORKUMÁL
Inngangur.
Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði orkumála hefur öðlast aukið vægi á síðustu árum. Í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hefur verið komið á markaðsbúskap í raforkumálum. Það hefur leitt til mikilla breytinga í viðskiptum með raforku á Norðurlöndum. Frá árinu 1993 hafa verkefni er lúta að loftslagsbreytingum („gróðurhúsavandanum“) haft nokkurn forgang í samstarfinu og unnið hefur verið að fjölmörgum athugunum og verkefnum. Þessi vinna hefur verið þýðingarmikil bæði fyrir starfið á þessu sviði í löndunum sem og fyrir hinar alþjóðlegu samningaviðræður í tengslum við rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Norræna orkurannsóknaráætlunin hefur mikla þýðingu við eflingu samstarfs háskóla og rannsóknastofnana á Norðurlöndunum og við að miðla niðurstöðum rannsókna. Áætlunin er fjármögnuð með framlagi beint frá löndunum. Mikil áhersla hefur verið lögð á samstarf við Eystrasaltsríkin (Eistland, Lettland og Litháen) og önnur ríki við Eystrasalt. Samstarfið fékk aukið vægi með yfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlanda í Bergen árið 1997. Í yfirlýsingunni fólu forsætisráðherrarnir orkuráðherrum Norðurlanda að meta tilteknar leiðir til að stuðla að sjálfbærri þróun í orkuöflun við Eystrasalt. Miklar breytingar eiga sér stað á orkusviðinu á alþjóðavettvangi, ekki síst innan ESB. Ráðherraráð Evrópu og Evrópuþingið hafa samþykkt tilskipanir um innri markað á sviði raforku og jarðgass. Norrænt samstarf á orkusviðinu byggist á greinargerð sem Norræna ráðherranefndin lagði fyrir Norðurlandaráð í nóvember árið 1996, yfirlýsingu forsætisráðherranna í Bergen sumarið 1997 um sjálfbæra þróun í orkuöflun við Eystrasalt og úrvinnslu úr tilmælum Norðurlandaráðs.
Markmið.
Markmiðið með samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði orkumála er að stuðla að sjálfbærri, skilvirkri, samkeppnishæfri og öruggri orkuöflun á Norðurlöndunum og grannsvæðunum. Nýta ber orkulindir og orku með skilvirkum hætti til að efla atvinnulíf og styrkja efnahag án þess að ganga á hið náttúrulega umhverfi. Áherslur í samstarfinu og þau verkefni sem unnið er að eiga að hafa pólitíska þýðingu fyrir Norðurlöndin.
Rammaáætlun fyrir norrænt samstarf á sviði orkumála.
Um áramótin 1998/1999 er gert ráð fyrir að samþykkt verði rammaáætlun fyrir orkusamstarf á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Áætlunin mun meðal annars byggja á þeim verkefnum sem unnið hefur verið að, sérstaklega forgangsröðun í formennskuáætlun Svía en með þeim hætti verður stuðlað að samfellu í samstarfinu. Í áætluninni er lýsing á samstarfinu, einkum þeim sviðum þar sem gert er ráð fyrir að efla það.
Gert er ráð fyrir að vægi norrænu stoðarinnar verði aukið. Mikilvægustu verkefnin verða á sviði orkumarkaðar, loftslagsbreytinga, upplýsingamála og orkurannsókna. Í áætluninni verður lögð aukin áhersla á samstarf við aðra málaflokka, einkum umhverfis-, flutninga- og fjármálasvið.
Samstarfið hvað varðar grannsvæðin í austri mun grundvallast á því starfi sem unnið hefur verið í samræmi við Bergenyfirlýsinguna og niðurstöðum fundar norrænu orkuráðherranna og starfsbræðra þeirra handan Eystrasaltsins, sem haldinn var í Stafangri 1. desember 1998.
Samvinna Norðurlandanna um alþjóðlegt samstarf á sviði orkumála mun einkum beinast að framkvæmd tilskipana ESB um innri markað á sviði raforku og innri markað á sviði jarðgass. Mikilvægt er meðal annars að fjalla um hvernig unnt verður að veita svokölluðu „grænu rafmagni“ forgang á markaðinum, þ.e.a.s. rafmagni sem unnið er með endurnýjanlegum orkulindum.
Norrænt orkusamstarf undir íslenskri formennsku.
Hér á eftir verður í stuttu máli gerð grein fyrir nýjum verkefnum sem Íslendingar ætla að leggja mesta áherslu á á formennskuári. Áherslur hvað varðar grannsvæðin verða í samræmi við niðurstöðu Stafangursfundarins.
Í fyrsta lagi er lögð áhersla að löndin skiptist á upplýsingum og gögnum um orkumál og að efla miðlun upplýsinga um orkusamstarfið og orkusviðið. Íslendingar munu leggja til að settur verði á fót starfshópur, þar sem löndin skiptist á upplýsingaefni um orkusviðið jafnframt því sem hópurinn geri tillögu um starfsáætlun á upplýsingasviðinu. Sérstaklega verði hópnum falið:
a) Að gera tillögu að heimasíðu á Veraldarvefnum um samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði orkumála.
b) Að meta þörf fyrir upplýsinga- og kynningarefni fyrir skóla, ungt fólk, fjölmiðla o.fl. Efnið á að lýsa samstarfinu; stefnu einstakra landa í orkumálum; skipulagi orkumála; orkulindum Norðurlandanna og hagnýtingu þeirra; orkumarkaðinum; orkunotkun og hagkvæmri orkunýtingu; samhengi orku, efnahags, atvinnu og umhverfis; tengingu orku og loftslagsbreytinga sem og orkurannsóknum. Hópnum ber auk þess að fjalla um að hve miklu leyti áhugi kunni að vera á efninu utan Norðurlandanna.
Stefnt er að því að fjalla um niðurstöður og tillögur hópsins á fundi orkuráðherranna á Íslandi í ágúst 1999.
Í öðru lagi verður lögð áhersla á að koma á fót samstarfi milli orkusviðsins og annarra málaflokka, einkum flutningasviðsins. Þróun á samgöngu- og flutningasviðinu mun hafa mikla þýðingu fyrir loftslagsmálin. Því er mikilvægt að fara skipulega yfir þær leiðir sem færar eru til að draga úr olíunotkun í samgöngum og flutningum í bráð og lengd. Meðal áhugaverðra verkefna til skemmri tíma er gerð yfirlits yfir mögulegar aðgerðir til að spara olíu, að hrinda slíkum aðgerðum í framkvæmd og að miðla upplýsingum um það efni til íbúa landanna. Þegar litið er til lengri tíma er mikilvægt að kanna hvaða annað eldsneyti getur komið í stað olíu, sem og nýjungar í þróun farartækja (bílar, skip, flugvélar og járnbrautir), með það að markmiði að draga úr orkunotkun.
Í þriðja lagi eru áform um að styrkja samvinnuna við heimastjórnarsvæðin, einkum Færeyinga og Grænlendinga. Á síðustu árum hefur samvinnan á orkusviðinu einkennst af mörgum verkefnum er lúta að endurskipulagingu raforkukerfa í löndunum og grannsvæðunum. Mestur áhugi á þessum verkefnum hefur verið í Skandinavíu og Finnlandi. Með vísan til þessa er mikilvægt að hefja eitt eða fleiri verkefni þar sem Færeyjar, Grænland og Ísland koma til að hafa veigamikið hlutverk. Til skoðunar er hugmynd sem lýtur að því að meta með hvaða hætti nýta má orkulindir þessara landa með sjálfbærum hætti, einnig m.t.t evrópska orkumarkaðsins.
Í fjórða lagi er unnið að undirbúningi norrænnar námstefnu um ALTENER áætlun ESB. Öll Norðurlöndin taka þátt í og leggja fé til áætlunarinnar. Á námstefnuni munu löndin m.a. skiptast á upplýsingum um reynsluna af ALTENER I áætluninni sem lokið er. Jafnframt munu þau skilgreina hvaða árangurs þau vænta af ALTENER II, fjalla um á hvaða sviðum áhugamál landanna fara saman svo og um samstarf þeirra í milli.
8. LANDBÚNAÐUR OG SKÓGRÆKT
Á formennskuári Íslands verður lögð áhersla á að efla norræna samvinnu innan ramma samstarfsáætlunarinnar á sviði landbúnaðar og skógræktar og halda áfram þeim verkefnum sem unnið er að innan ramma áætlunarinnar.
Við munum leggja áherslu á að efla samvinnu landa í vesturhluta Norðurlanda og auka þátttöku Færeyja og Grænlands. Auk þess er áhugi Íslands á því að kynna gagn og virkni norrænar samvinnu fyrir öðrum nágrannalöndum í vestri, sem eiga sameiginlegar rætur og menningu með Norðurlöndunum. Hér er átt við Skotland og eyjarnar, einkum Orkneyjar, Írland, og jafnvel austurfylki Kanada, svo sem Nova Scotia, Prince Edward Island og Nýfundnaland. Við ætlum að hefja undirbúning að ráðstefnu, að líkindum árið 2000, með þátttöku ofangreindra þjóða og Norðurlandanna og jafnframt kanna hvort um sé að ræða sameiginleg áhugamál milli þessara aðila sem væri vert að hefja samstarf um.
Ísland telur að finna þurfi framtíðarlausn fyrir aðbúnað og rekstur Norræna genbankans. Ísland telur bankann vera flaggskip norrænnar samvinnu í landbúnaðarmálum en hann er í reynd orðinn að fyrirmynd fyrir genbanka víða um heim. Húsnæðismál bankans þurfa sérstakrar athugunar við með lausn til framtíðar sem markmið. Á sama hátt þarf að komast að niðurstöðu um framtíð Húsdýragenbankans.
Á norðurslóðum, þar sem land er viðkvæmt, og víða hjá öðrum löndum er lögð vaxandi áhersla á varðveislu og endurheimt landgæða, en landbúnaður byggir í grundvallaratriðum á hæfilegri landnýtingu þar sem ekki er gengið á auðlindina sem slíka og landinu skilað jafn hæfu til framleiðslu frá einni kynslóð til annarrar. Hér er um ung vísindi að ræða, sem hafa aflað sér sér viðurkenningar á síðustu árum. Á formennskuári Íslands verður lögð sérstök áhersla á að vitneskja sem þegar er orðin til á þessu sviði verði nýtt. Í því sambandi verði einnig horft til þróunarlanda þar sem vankunnátta í meðferð landgæða mun leiða til skertrar framleiðslugetu.
Önnur þýðingarmikil svið sem við munum leggja áherslu á innan samvinnu Norðurlanda er frekari þróun í átt að sjálfbærum landbúnaði og skógrækt og að stuðla að aukinni hollustu og hreinleika matvara, t.d. með því að forðast eða draga úr notkun vaxtaraukandi efna, fúkkalyfja og hormóna í landbúnaði jafnt innan Norðurlandanna sem á alþjóðlegum vettvangi. Sem fyrr munum við leita eftir samstarfi við EK-Livs og EK-Miljø um þessi verkefni.
Sem sérlega áhugavert verkefni má nefna rannsóknir á mengun af þungmálmum í matvælum og leiðir til að draga úr mengun, svo sem notkun hagrænna stjórntækja til að hafa áhrif á þróun framleiðsluhátta í landbúnaði og skógrækt ásamt samstöðu um verkefni á sviði dýraverndar og dýrasiðfræði. Markmið norræns samstarfs á þessum vettvangi, auk innra gildi þess, er einnig að hafa áhrif á alþjóðlega þróun þessara mála.
Norðurlöndin hafa gert áætlun um hvernig eigi að fylgja eftir samþykktum FAO fundar þjóðarleiðtoga um matvælaöryggi sem haldinn var í Róm 1996. Ísland hyggst halda því verki áfram eins og áætlað var, en í áætluninni var einmitt lögð áhersla á hollustu og hreinleika matvæla og að takmarka notkun vaxtaraukandi efna.
Ísland hefur ásamt Noregi hvatt til þess að auka umræðu á samnorrænum vettvangi um málefni EU/EES og lagt áherslu á regluleg skipti á upplýsingum. Einnig leggjum við áherslu á aukið samráð á norrænum vettvangi um málefni sem verða á dagskrá hjá WTO.
Þó skógrækt hafi ekki sömu fjárhagsþýðingu hérlendis og í Skandinavíu metum við mikils samstarf á þeim vettvangi jafnt með tilliti til framleiðslu sem vegna umhverfisáhrifa og munum því leggja áherslu á samvinnu innan SNS.
Innan ESB hefur fengist góð reynsla af að efla samskipti ungs sveitafólks milli landa. Ísland mun á formennskuárinu kanna möguleika á að koma á skipulögðum skiptum æskufólks úr sveit milli hinna norrænu landa. Tilgangur þess er að auka þekkingu æskufólks hverrar þjóðar á lífskjörum og starfsháttum hinna þjóðanna auk þess að efla kynni meðal æskufólks úr sveit á Norðurlöndum.
9. SJÁVARÚTVEGSMÁL
Formennskuáætlun Íslands fyrir sjávarútvegssviðið á árinu 1999 byggir á grunni fjögurra ára samstarfsáætlunar sem gildir árin 1997–2000. Samkvæmt henni er höfuðmarkmið að efla sjávarútveg, sem mikilvægan þátt þjóðlífs í löndunum.
Þróun á alþjóðavettvangi hefur æ meiri áhrif á forsendur og umhverfi þeirra sem nýta lifandi auðlindir sjávar. Miklu skiptir að skilningur sé á því innan norræns sjávarútvegs að aðilar hans þurfa sjálfir að bregðast við þeim kröfum sem þar verða til.
Á formennskuári Íslendinga verður lögð áhersla á að miðla upplýsingum á Norðurlöndum um kröfurnar sem að sjávarútveginum beinast, en jafnframt að auka upplýsingamiðlun út á við um það hvernig sjávarútvegur er rekinn á Norðurlöndum.
Í framhaldi af ári hafsins verður aukin umræða um ábyrga auðlindanýtingu. Norræn sjónarmið um m.a. fiskveiðistjórnun, sjálfbærni og umhverfismál þurfa að vera sýnilegri og heyrast betur en verið hefur, fyrir þá sem áhuga hafa. Það markmið er sett að samræma, þar sem við á, afstöðu norrænu ríkjanna og reyna að ná samstöðu um að koma norrænum sjónarmiðum á framfæri bæði í svæðasamstarfi og alþjóðlegu samstarfi.
Margs konar norrænt frumkvæði hefur verið tekið í ljósi umræðu um umhverfismerkingar sjávarafurða með sjálfbærni að leiðarljósi. Meðal þeirra er að greina hvaða kröfur verða gerðar til sjávarútvegsins í framtíðinni, upplýsingaveita til að upplýsa almenning um norrænan sjávarútveg, beiðni til Alþjóðahafrannnsóknaráðsins (ICES) um að það geri skýrslu um sjálfbærni veiða í Norðurhöfum, erindi til sjávarútvegsdeildar Evrópusambandsins um þessi mál auk þess sem efnt var til tæknifundar Alþjóða matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) um alþjóðleg viðmið fyrir sjálfbærnimerki á sjávarafurðir.
Þessu starfi verður haldið áfram og það styrkt í formennskutíð Íslendinga.
Meðal nýrra verkefna á árinu er að beina upplýsingaherferðinni að fiskkaupendum í markaðslöndum, stjórnmálamönnum, fjölmiðlum, áhugafélögum og ungu fólki. Þá þarf að afmarka með ICES, umfang skýrslunnar um sjálfbærar veiðar í norðurhöfum og frekari notkun þeirra upplýsinga sem þar koma fram. Íslendingar munu beita sér fyrir því að norrænu Evrópusambandsríkin haldi áfram innan ESB að koma á framfæri norrænum sjónarmiðum í málum sem varða þau öll og koma, ef hægt er, þannig t.d. að endurskoðun sjávarútvegsstefnu bandalagsins. Íslendingar munu beita sér fyrir því á formennskuárinu að fylgja eftir innan FAO norrænum sjónarmiðum sem fram komu á tæknifundi FAO um umhverfismerkingar haustið 1998.
Norrænt sjávarútvegssamstarf er lifandi og hefur m.a. sýnt að hlustað er á norrænu ríkin þegar rætt er um sjávarútveg. En einnig hefur komið í ljós að nauðsynlegt er að styrkja innri umræðu og þekkingu í greininni um svæðisbundið og alþjóðlegt samstarf og hvaða þýðingu þær ákvarðanir sem þar eru teknar geta haft á greinina í heild. Undir íslenskri stjórn verður lögð áhersla á það hlutverk sem sjávarútvegssamstarfið hefur við að miðla upplýsingum jafnt til sem frá greininni.
Þá verður haft frumkvæði að því að safna saman frekari upplýsingum úr alþjóðlegu ríkja- og félagasamstarfi þar sem Norðurlöndin eru ýmist fáliðuð eða taka ekki þátt. Markmiðið er að auka þekkingu á alþjóðlegum ferlum sem í gangi eru áður en að ákvörðunum er komið, ferlum sem gætu breytt þeim ramma sem norrænn sjávarútvegur býr við. Þekking sem þannig verður til er þarft innlegg í norræna umræðu innan málaflokksins og getur orðið til að sameiginlegum norrænum sjónarmiðum verði haldið fram á viðeigandi stað og tíma.
Vestnorrænu ríkin framleiða sjávarafurðir og selja stærstan hluta þeirra til Evrópusambandslandanna m.a. til norrænu ríkjanna innan sambandsins. Ísland mun á formennskuári styðjast við þá skilgreiningu á grannsvæðum sem sett er fram í gildandi samvinnuáætlun sviðsins en þar segir að grannsvæði Norðurlanda á sjávarútvegssviðinu taki til svæða þar sem eftirsóknarvert er að vinna saman. Í samræmi við þetta er Barentshafssvæðið, heimskauta- og Norður-Atlantshafssvæðið sérstaklega áhugavert í sjávarútvegssamstarfinu.
Meðal þeirra nýju krafna sem beint er að norrænum sjávarútvegi er að flétta inn í allan rekstur hans umhverfisverndarsjónarmiðum. Á árinu 1999 tekur gildi ný norræn umhverfis- og sjávarútvegsáætlun sem gildir til ársins 2002. Innan norræna sjávarútvegssamstarfsins er þetta þverfaglega samstarf talið til góðs og aðilar þess vilja leggja sitt af mörkum til að leysa verkefni sem liggja á mörkum umhverfis- og sjávarútvegsmála. Nauðsynlegt er að blása nýju lífi í samvinnu umhverfis og sjávarútvegsráðuneyta er varðar alþjóðasamstarf á þessu sviði.
Auk þess er vilji til þess innan sjávarútvegssamstarfsins að hvetja þá sem ábyrgð bera á öðrum sviðum að tryggja, eins og mögulegt er, heilbrigði sjávar sem er forsenda fyrir því fjölbreytilega lífi sem þar er að finna. Meðal þess er rétt væri að beina athygli að á næsta ári er:
– Að auka starf við að takmarka mengun hafsins.
– Að beita sér fyrir snörum alþjóðlegum viðbrögðum til að takmarka hættu af mengun vegna lestarvatns í skipum. Það er oft flutt um langan veg og getur borið lífverur sem eru skaðlegar á nýjum stað.
– Að auka skilning á áhrifum hafsins á veðurfar.
Sjávarútvegsrannsóknir hafa fram til þessa verið stærstur hluti norræna sjávarútvegssamstarfsins. Aukin verkefni er varða stefnumótun (pólitískari verkefni) hafa orðið til þess að hlutur rannsókna hefur minnkað. Þrátt fyrir það eru rannsóknir ofarlega á forgangslista enda stuðla þær að frekari þróun og eru nauðsynlegur grundvöllur umræðu dagsins t.d. um sjálfbærni. Nauðsynlegt er að forgangsraða af festu rannsóknum sem styrktar eru.
Á formennskuári Íslendinga viljum við setja fé í rannsóknir og þróun veiðarfæra með sérstakri áherslu á kjörhæfi þeirra og hvaða áhrif þau hafa á umhverfið. Enn fremur er lögð áhersla á gæði sjávarafurða. Líta þarf bæði til krafna stjórnvalda í viðskiptalöndunum um öryggi og heilnæmi afurðanna en einnig viðbótarkrafna viðskiptavina og neytenda. Íslendingar vilja einnig styrkja rannsóknir, þróun og kennslu um öryggi, vinnuumhverfi og heilbrigði sjómanna.
Gildandi samstarfsáætlun norrænu ríkjanna á sjávarútvegssviðinu verður endurskoðuð árið 2000. Í ljósi þessarar áætlunar og þeirra breytinga sem átt hafa sér stað innan samstarfsins á undanförnum árum þykir Íslendingum rétt að umræða um skipulag þess hefjist þegar á árinu 1999.
Mikilvægir viðburðir er varða sjávarútvegssamstarfið á árinu 1999 eru:
CSD: Nefnd Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, heldur fund í New York í apríl þar sem hafið er á dagskrá. CSD er sú stofnun Sameinuðu þjóðanna sem á að fylgja eftir Ríó-ráðstefnunni og framkvæmdaáætlunarinnar Agenda 21 sem samþykkt var í kjölfar hennar. Í tengslum við fundinn er áhugi á því í norrænu samstarfi að ljósi verði varpað á norræna umhverfishugsun, norræna fiskveiðistjórnun og samvinnu.
FAO-COFI: Fundur er í sjávarútvegsnefnd Matvæla og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna í febrúar. Á fundinum er þess vænst að rætt verði um alþjóðlegan ramma um umhverfismerkingar sjávarafurða í framhaldi af tæknifundi um sama mál sem haldinn var í FAO að norrænu frumkvæði haustið 1998.
FAO ráðherrafundur: FAO hefur boðað sjávarútvegsráðherra heimsins á fund í byrjun mars. Þar er búist við að merkjamál verði einnig til umræðu.
ICES (Alþjóða hafrannsóknaráðið) hefur verið beðið um að vinna skýrslu um nýtingu fiskistofna í Norðurhöfum þar sem sagt er til um hvort þeir hafi á næstliðnu ári verið nýttir á sjálfbæran hátt. ICES hefur orðið við þessari beiðni og verður fyrsta skýrslan birt árið 1999. Á norrænum vettvangi verður það rætt á árinu hvernig þessar upplýsingar verða settar fram og notaðar við að koma á sjálfbærum veiðum.
Norræna sjávarútvegsráðstefnan verður haldinn í 25. sinn. Til hennar var fyrst efnt 1949 og hefur hún verið haldin reglulega síðan. Ráðstefnan verður á Íslandi 16. og 17. ágúst. Yfirskrift hennar er: „Hvernig á að nýta lifandi auðlindir sjávar“?
10. SAMGÖNGUMÁL
Í lok júlí 1998 var lögð fyrir Norðurlandaráð greinargerð samgönguráðherra Norðurlandanna um stöðu og þróun norræns samstarfs á sviði samgöngumála. Greinargerðin var unnin af norrænu embættismannanefndinni um samgöngumál (NET) og staðfest af ráðherrum eða fulltrúum þeirra í júní.
Þær breytingar sem orðið hafa á sviði samgöngumála á Norðurlöndunum og á Eystrasaltssvæðinu, ásamt þeim breytingum sem gengið hafa yfir Evrópu á síðustu árum, hafa leitt til breytinga á samstarfi landanna. Þetta á fyrst og fremst við um afstöðu landanna til ESB, til þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað í upplýsingatækni, til aukinna krafna um bætt umferðaröryggi og til umhverfismála.
Markmið þessa samstarfs er að búa þannig um hnútana að samgöngur á Norðurlöndum og milli þeirra, svo og við næsta umhverfi, séu greiðar, öruggar og að mengun frá þeim sé í lágmarki.
Samstarfið í framtíðinni.
Það er sameiginlegt álit samgönguráðherra Norðurlandanna að áhugi sé fyrir og þörf á að viðhalda norrænu samstarfi á sviði samgöngu- og umferðarmála. Þetta samstarf getur átt sér stað annað hvort innan vébanda Norrænu ráðherranefndarinnar eða milli einstakra landa.
Samgöngumál snerta alla þætti þjóðlífsins og ekki er óeðlilegt að þau séu vistuð á einum stað þótt þau gangi þvert á verkefni annarra ráðuneyta. Þetta á einkum við um umhverfismál samgangna og umferðar, svo og upplýsingatækni í samgöngum.
Samstarfið á næstu árum greinist í þrennt. Í fyrsta lagi samnorræn verkefni og hefur á því sviði að undanförnu verið lögð áhersla á upplýsingatækni í samgöngu- og umferðarmálum. Á árinu 1998 hefur sérstök nefnd á vegum NET unnið að úttekt á þessum málum á Norðurlöndum og er að vænta skýrslu frá henni í lok þessa árs. Í framhaldi af henni er stefnt að frekari vinnu á þessu sviði sem gæti leitt til niðurstöðu og lausna sem gagnast gætu fleirum en hinum norrænu löndum. Markmiðið með þessu starfi er að leita að lausnum sem bætt gætu öryggi umferðar og minnkað mengun, væntanlega með því að draga úr umferð, og aukið afköst hennar og hagkvæmni.
Í öðru lagi mun kastljósinu verða beint að Evrópumálum. Þar er fyrst að nefna TEN-verkefnið eða þann þátt þess sem nær yfir nyrstu héruð Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Lögð verður áhersla á umhverfismál og hugað að mengun frá hinum ýmsu samgöngutækjum, aðgengi og nýtingu annarra brennsluefna en nú eru notuð og samstarfi við ríki sem liggja að Norðurlöndunum um að draga úr mengun samgöngutækja. Sérstakur starfshópur á vegum samgönguráðherranna vinnur að greinargerð um stærð og mikilvægi samgöngugeirans á Norðurlöndum út frá evrópskum sjónarhóli til undirbúnings formennsku Finna í ESB á næsta ári. Þar verða dregnar fram þær sérstöku aðstæður sem samgöngur Norðurlandanna búa við og ekki finnast í öðrum Evrópuríkjum. Einnig er þar gerð grein fyrir samgöngum við þau lönd sem liggja að norrænu ríkjunum, eins og við Eystrasaltsríkin og Rússland. Samgönguráðherrarnir munu halda áfram umræðu um mál er snerta ESB og EES og um framkvæmd og fullgildingu tilskipana ESB á Norðurlöndum.
Í þriðja lagi munu samgönguráðherrarnir leggja áherslu á að ræða samgöngur við nágrannaríkin, einkum við Rússland og Eystrasaltsríkin. Milli þessara svæða og norrænu landanna er vaxandi bílaumferð og er meðalaldur bifreiða í þessum löndum mjög hár og ástand þeirra lélegt. Litið er á það sem sérstakt áhersluverkefni að vinna að bættu öryggi umferðar á milli þessara landa, að draga úr mengun og að gera umferðina ábatasamari en nú er. Samgönguráðherrarnir munu hafa það sem forgangsverkefni að taka upp samstarf við samgönguyfirvöld í Rússlandi og í Eystrasaltsríkjunum til að ná ofangreindum markmiðum í samgöngum milli landanna.
Áhersluatriði Íslands á árinu 1999.
Á formennskuári sínu mun Ísland fylgja eftir þeim samþykktu áformum um samstarfið í framtíðinni sem um er fjallað í greinargerð samgönguráðherranna hér að framan.
Auk þess mun samgönguráðuneytið á árinu beita sér fyrir nokkrum málum sem sérstaka þýðingu hafa fyrir íbúa Vestur-Norðurlanda. Þar eru efst á blaði aðgerðir til þess að bæta samgöngur á svæðinu, þ.e. á milli Íslands og Grænlands annars vegar og milli Íslands og Færeyja hins vegar og þá einkum aðgerðir er varða bættar flugsamgöngur. Einnig er áhugi fyrir því að taka fyrir umhverfismál í samgöngugeiranum með hliðsjón af Kyoto-samningnum og upplýsingatæknimál samgöngukerfisins.
Áhersla verður á það lögð að á sumarfundi norrænu embættismannanefndarinnar og hugsanlega ráðherrafundi, sem stefnt er að að halda á Íslandi, verði aðalfundarefnið samgöngumál þessa svæðis.
11. HEILBRIGÐIS- OG FÉLAGSMÁL
Inngangur.
Til grundvallar norrænu samstarfi á sviði heilbrigðis- og félagsmála liggur samstarfsáætlun sem samþykkt var í lok ársins 1994 og nær hún til tímabilsins 1995–2000.
Eins og á öðrum sviðum hins opinbera samstarfs landanna hvílir samvinnan í heilbrigðis- og félagsmálum á þrem meginstoðum:
– Samstarfi innan Norðurlanda.
– Samstarfi við ESB/EES.
– Samstarfi við grannsvæði Norðurlanda (þar með talin lönd við Norðurheimskautið).
Í gildandi samstarfsáætlun eru skilgreind þrjú helstu markmið samstarfsins og gerð grein fyrir þeim aðgerðum sem ætlað er að beita til að tryggja framkvæmd áætlunarinnar. Heilbrigðis- og félagsmálaráðherrarnir leggja áherslu á eftirfarandi:
8. Að styrkja stoðir félags- og heilbrigðisgeirans í norrænum velferðarmálum.
9. Að vinna að því að grundvallaratriðum í hinu norræna velferðarlíkani verði haldið á lofti í alþjóðasamstarfi - ekki síst í því evrópska.
10. Að tryggja áhrifamátt og árangur samstarfsins með skipulegri upplýsingastarfsemi.
Í formennskutíð sinni ætlar Ísland að beita sér fyrir því að hafin verði endurskoðun á samstarfsáætlun landanna. Hugmyndin er sú að ný samstarfsáætlun taki einkum mið af nýjum áherslum í alþjóðasamstarfi og sameiginlegum þróunarverkefnum á sviði heilbrigðis- og félagsmála í aðildarlöndunum.
Forgangsverkefni árið 1999.
1. Aukin gæði og árangur heilbrigðisþjónustu.
Ísland leggur mikla áherslu á að starfsemi heilbrigðisþjónustunnar byggi á vísindalegum grundvelli og aðgerðum sem skilað hafa árangri. Í því skyni er ætlunin að styðja við starfsemi sem snýr að mati á árangri og hagkvæmni læknisaðgerða og annarra meðferðarúrræða heilbrigðisþjónustunnar. Sömuleiðis er mikilvægt að stuðlað verði að auknum gæðum heilbrigðisþjónustu með þróun klínískra leiðbeininga og kjörmeðferðar við sjúkdómum og öðrum heilsufarsvandamálum.
Heilbrigðisþjónustan og flest önnur svið þjóðfélagsins einkennast af gífurlegu flæði upplýsinga sem mörgum reynist erfitt að átta sig á hvort séu byggðar á nægjanlega traustum grunni. Þetta á jafnt við um heilbrigðisstarfsmenn, neytendur, vísindamenn eða stjórnmálamenn. Það er einfaldlega mjög örðugt að vinna á árangursríkan hátt úr sívaxandi straumi upplýsinga um heilbrigðismál og önnur málefni. Til þess að mæta þessum vanda innan heilbrigðisþjónustunnar lagði breski faraldsfræðingurinn Archie Cochrane til, árið 1972, að unnin væru skipuleg gagnrýnin yfirlit um árangur heilbrigðisþjónustu, eftir sérgreinum eða undirgreinum, sem byggðu á tvíblindum slembiúrtökum eða -rannsóknum (RCT, randomized controlled trials).
Sérstök rannsóknarmiðstöð, sem kennd er við Archie Cochrane, með greinar um öll Norðurlönd, hefur verið starfrækt undanfarin ár og eru aðalstöðvar hennar í Kaupmannahöfn. Tilgangur starfseminnar er að vinna skipuleg yfirlit yfir árangur meðferðar á ýmsum sviðum læknisfræðinnar. Norrænu Cochrane miðstöðvarnar gegna mikilvægu hlutverki við þróun árangursríkrar læknisfræði (evidence based medicine) á Norðurlöndum.
Í formennskutíð Íslands verður lögð áhersla á verkefni er miða að auknum gæðum heilbrigðisþjónustu og að tryggja grunnfjárveitingar til starfsemi Cochrane miðstöðva, auk þess sem stuðla verður að aukinni alþjóðasamvinnu þessara miðstöðva og námskeiðhaldi á vegum þeirra eða í tengslum við þær.
2. Réttindi sjúklinga.
Mikilvægt er að réttarstaða sjúklings gagnvart heilbrigðisþjónustunni sé tryggð og að heilbrigðisstarfsmenn haldi trúnað við sjúklinga. Starfi heilbrigðisstarfsmanna fylgir ábyrgð gagnvart einstaklingum og samfélagi og þeir geta því aðeins vænst trausts að þeir uppfylli þær siðfræðilegu kröfur sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma. Samtímis er brýnt að siðareglum sé komið á framfæri við starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar svo tryggt sé að þeim sé kunnugt um ábyrgð og skyldur sem á þeim hvíla.
Aukinni áherslu á mannréttindi sjúklinga fylgir að virða ber sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Í því felst að sjúklingurinn eigi, eins og frekast er unnt, að fá að ráða því hvernig heilbrigðisþjónustu hann þiggur. Læknar geta ekki lengur tekið ákvarðanir fyrir sjúkling án samráðs við hann. Þessi viðhorfsbreyting kallar á breytt og betri samskipti heilbrigðisstarfsmanns og sjúklings.
Í framhaldi af Amsterdam yfirlýsingunni um réttindi sjúklinga árið 1994 hafa flest Norðurlöndin sett sér löggjöf um réttindi sjúklinga. Í löggjöf Norðurlanda er rík áhersla lögð á að tryggja einstaklingsbundin réttindi sem eiga við um alla menn jafnt, óháð lögum og án skilyrða. Þessi einstaklingsbundnu réttindi miða að því að vernda frelsi einstaklingsins og fela í sér ákvæði um að yfirvöld gangi ekki á mannhelgi hans.
Í ljósi mikilla samskipta Norðurlanda og vaxandi alþjóðlegs samstarfs á sviði heilbrigðisþjónustu er mikilvægt að stuðlað sé að ákveðinni samhæfingu í gerð og framkvæmd löggjafar sem varðar réttindi sjúklinga. Enn fremur er brýnt að samræmi sé í túlkun og framkvæmd alþjóðlegra sáttmála og samninga er snerta réttindi sjúklinga.
Ísland leggur áherslu á að í tengslum við árlegan fund heilbrigðis- og félagsmálaráðherra Norðurlanda árið 1999 verði efnt til sérstaks málþings um réttindi sjúklinga. Enn fremur verði stuðlað að auknu samstarfi embættismanna og sérfræðinga á þessu sviði.
3. Heilsufar kvenna.
Heilsufar kvenna hefur verið til umræðu á alþjóðlegum vettvangi á undanförnum árum. Alþjóðaheilbrigðisþingið samþykkti árið 1992 ályktun um málið og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur staðið fyrir ráðstefnum um málið. Stofnunin er þeirrar skoðunar að konur hljóti að gegna veigamiklu hlutverki við stefnumótun í heilbrigðismálum og uppbyggingu heilbrigðisþjónustu.
Athuganir benda til þess að í heilsufarslegu tilliti sé staða kvenna víða mun lakari en karla. Skortur er einnig á kynbundnum gögnum um heilsufar og upplýsingum um afleiðingar sjúkdóma fyrir konur. Til þess að bæta úr ástandinu hefur víða verið efnt til rannsókna á heilsufari kvenna og jafnvel sums staðar verið komið á fót sérstökum rannsóknarstofnunum á þessu sviði.
Konur leita meira til heilbrigðisþjónustunnar en karlar. Hluti af þessum mun tengist vandamálum varðandi getnaðarvarnir og barneignir. Konur ganga undir fleiri rannsóknir en karlar, konum er ávísað meiri lyfjum en körlum og konur sækjast meira eftir óhefðbundnum lækningum en karlar.
Helstu dánarorsakir kvenna eru hjarta- og æðasjúkdómar og illkynja æxli. Dánartíðni vegna blóðþurrðarsjúkdóma hefur minnkað hjá báðum kynjum á undanförnum árum. Aftur á móti hefur dauðsföllum vegna illkynja æxla fjölgað hlutfallslega meðal kvenna, þar vega dauðsföll vegna lungnakrabbameins og brjóstakrabbameins þyngst. Dánartíðni vegna lungnakrabbameins meðal kvenna á Norðurlöndum er með því hæsta sem þekkist í Evrópu.
Í formennskutíð Íslands verður lögð áhersla á frekari stuðning við athuganir á heilsufari kvenna á Norðurlöndum. Sömuleiðis telur Ísland mikilvægt að löndin nýti betur niðurstöður rannsókna á sviði forvarna, heilsuverndar og meðferðar helstu heilbrigðisvandamála kvenna á Norðurlöndum.
4. Bætt umhverfi fjölskyldunnar.
Á Íslandi hefur á undanförnum árum verið unnið að mótun opinberrar fjölskyldustefnu. Meginforsendur hennar eru að fjölskyldan sé hornsteinn samfélagsins og ríkisstjórnum og sveitarfélögum beri á hverjum tíma að marka sér opinbera stefnu í málefnum fjölskyldunnar í því skyni að styrkja hana og vernda. Fíkniefnaneysla og misnotkun áfengis er fjölskylduvandi sem sporna verður gegn með skipulegum aðgerðum á sviði forvarna og stuðnings við fjölskyldur.
Fjölskyldan og þá einkum foreldrarnir eru augljóslega best til þess fallnir að veita börnum öryggi og tækifæri til þroska og ljóst er að þeir eru almennt alfarið á móti áfengis- og vímuefnaneyslu barna sinna. Stjórnvöld geta á ýmsan hátt létt undir með foreldrum við umönnun og uppeldi barna sinna. Til dæmis með því að stuðla að efldum skilningi atvinnurekenda á mikilvægi uppeldishlutverks foreldra og gildi samstarfs foreldra og skóla.
Á formennskuári Íslands verður lögð áhersla á að verkefni sem stuðlað geta að bættu umhverfi fjölskyldunnar njóti ákveðins forgangs. Sérstaklega er mikilvægt að norrænir aðilar leggi sitt af mörkum til þess að skapa skilyrði fyrir því að jafnvægi náist á milli fjölskyldulífs og atvinnu foreldra.
Eftirfylgni.
Ísland undirstrikar mikilvægi þess að Norræna embættismannanefndin um heilbrigðis- og félagsmál (EK-S), fagnefndir, stofnanir og vinnuhópar á því sviði taki í störfum sínum mið af þeim áherslum sem formennskulandið hefur lagt fram. Þessir aðilar verða síðan á miðju ári 1999 beðnir um skýrslur um framvindu mála og hvernig þeir hafi staðið að því að hrinda áherslum Íslands í framkvæmd. Þegar þær upplýsingar liggja fyrir verður metið hvort ástæða sé til frekari aðgerða eða hvort einstakir þættir framkvæmdaáætlunarinnar þarfnist endurskoðunar.
12. MATVÆLI
Helstu tillögur og markmið:
Stjórn og skipan málaflokksins.
– Fagráðherrar, sem fara með matvælalöggjöf og matvælaeftirlit, verði kallaðir saman og ræði framgang matvælamálefna í norrænu samstarfi og hvort ástæða er til að stofna ráðherranefnd fyrir matvælamál. [Samvinna á Norðurlöndum].
– Samstarf vestnorrænu landanna verði aukið m.a. með aukinni áherslu á verkefni sem skipta máli fyrir vestnorrænu þjóðirnar. [Norðurlönd og grannsvæðin].
– Stuðlað verði að aukinni samvinnu fagsviða (sektora) í norrænu samstarfi sem fara með mál sem geta haft áhrif á öryggi og hollustu matvæla og sem fara með mál á sviði neytendaverndar og neytendafræðslu . [Samvinna á Norðurlöndum].
Öryggi matvæla og neytendavernd.
– Norðurlöndin dragi sameiginlegan lærdóm af yfireftirliti ESB og ESA í þeim tilgangi að bæta og samræma yfirstjórn með eftirliti og tryggja að ESB og ESA túlki löggjöf um matvæli og framfylgi henni með sama hætti á EES . [Norðurlönd og ESB/EES].
– Markmiðum og stefnu um matvælalöggjöf í „Green Paper“ framkvæmdastjórnar ESB verði fylgt eftir með samstarfi Norðurlanda til að hafa áhrif á þróun mála. Samræming og einföldun reglna um hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla er meðal áhersluatriða. [Norðurlönd og ESB/EES].
– Lögð verði áhersla á samræmda áhættugreiningu og gagnasöfnun til að vinna gegn matarsjúkdómum. Sérstaklega er bent á skoðun mála vegna lyfjanotkunar og afleiðinga hennar á myndun fjölónæmra örvera í matvælum. [Samvinna á Norðurlöndum].
– Stuðlað verði að samstarfi og sérhæfingu rannsóknastofnana á sviði matvælarannsókna og matarsjúkdóma og að þær geti veitt ráðgjöf og þjónustu fyrir öll Norðurlöndin. [Samvinna á Norðurlöndum].
– Könnuð verði þörf á formlegu samstarfi staðlaskrárnefnda (Codex nefnda) á Norðurlöndunum í þeim tilgangi að hafa áhrif á Codex-staðla. [Samvinna á Norðurlöndum].
Ofangreindar tillögur og markmið falla undir þau þrjú forgangssvið sem nú er unnið eftir í norrænu samstarfi, þ.e. [Samvinna á Norðurlöndum], [Norðurlönd og ESB/EES] og [Norðurlönd og grannsvæðin], sbr. þær merkingar sem fram koma í tengslum við hvert markmið. Ísland leggur áherslu á að stjórn og skipan málaflokksins verði tekin til skoðunar. Einnig er lagt til að samstarf milli vestnorrænu landanna verði aukið m.a. með auknu verkefnasamstarfi. Til greina kemur að fjármagna það með umsóknum í þá sjóði sem til eru á þessu sviði og af verkefnafé geirans. Markmiðið er að tryggja virkari þátttöku þessara landa í norrænu samstarfi, að þau hafi þar áhrif á framvindu mála og að fjallað verði um mál sem geta haft sérstöðu fyrir íbúa á vestnorræna svæðinu.
Samstarf um matvælaeftirlit tekur mið af því að ekki verði slakað á kröfum og eftirliti til að tryggja öryggi matvæla og að neytendur fái þær upplýsingar sem þeir eiga rétt á um samsetningu, eðli eða áhrif matvæla. Matarsjúkdómar virðast aukast um allan heim og má einnig rekja til áður óþekktra orsaka. Þá hafa komið fram stofnar fjölónæmra örvera sem geta valdið alvarlegum matarsjúkdómum. Þetta kallar á markvissa áhættugreiningu sem Norðurlöndin eiga að vinna saman að. Meðal annars þarf að leggja áherslu á gagnasöfnun og samanburð á sjúkdómsvaldandi örverum og faraldsfræðilegum upplýsingum er tengjast matvælum og matarsjúkdómum.
Áhersla á matvælalöggjöf tekur ekki síst mið af markmiðum ESB sem fram komu í skjalinu „The general principles of food law in the European Union - Commission Green Paper“ og þeirrar stefnu sem mörkuð er á grundvelli þess. Auk áherslu á alþjóðlegt samstarf á vegum ESB/EES er nauðsynlegt að styrkja áhrif Norðurlandanna í starfsemi Alþjóðlega staðlaskrárráðsins fyrir matvæli (Codex Alimentarius Commission, FAO/WHO). Staðlar og verklagsreglur ráðsins eru notaðir af ESB og öðrum ríkjum við mótun matvælalöggjafar og framkvæmd eftirlits. Þá notar Alþjóða viðskiptastofnunin (WTO) Codex staðla ef upp kemur ágreiningur í alþjóðlegum viðskiptum með matvæli. Norðurlönd hafa unnið saman að Codex málum, en Ísland leggur til að rætt verði hvort koma skuli á formlegu samstarfi staðlaskrárnefnda á Norðurlöndunum.
13. NEYTENDAMÁL
1. Inngangur.
Grundvöllur neytendasamstarfsins á formennskuári Íslands er hin nýja „Stefnuáætlun fyrir norrænt samstarf á sviði neytendamála 1999–2004“.
Forgangssvið hinnar norrænu samvinnu eru:
– samvinnan á Norðurlöndum svo og á Vestur-Norðurlöndum,
– Norðurlönd og ESB/EES,
– grannsvæðin,
Ísland telur að mikilvægt sé að auka og dýpka samvinnu á Norðurlöndum í þeim tilgangi að samnorræn stefnumótun á sviði neytendamála geti lagt grunn að frekari stefnumótun og haft áhrif innan ESB/EES, svo og á alþjóðavettvangi.
Ísland leggur því áherslu á að auka megi stjórnmálalega samvinnu á sviði neytendamála á formennskuárinu.
Ísland býður til fundar öllum þeim ráðherrum sem fara með neytendamál á Norðurlöndum. Af tilliti til þeirra ráðherra sem bera ábyrgð á fleiri fagsviðum þá verður boðað til fundarins í tengslum við fundi annarra fagsviða en í Danmörku, Finnlandi og á Íslandi ber sami ráðherra ábyrgð málefnum iðnaðar,- atvinnu- og neytendamála. Til bráðabirgða er stefnt að slíkum fundi í Reykjavík í lok ágústmánaðar 1999.
Enn fremur leggur Ísland til að fulltrúum frá þingnefndum í þjóðþingum Norðurlandanna, sem fjalla um lagafrumvörp til verndar neytendum, verði kynnt sérstaklega hin nýja norræna stefnuáætlun um samstarf á sviði neytendamála og þar með þau helstu álitamál er varða neytendur. Þannig verður hin nýja stefnuáætlun þegar frá upphafi tengd við störf þingmannanna í þágu neytendaverndar sem fram fer í þjóðþingunum, svo og við störf Norðurlandaráðs.
Ísland vill auk þess sérstaklega stefna að virku samstarfi við grannríki sín á vestnorræna svæðinu um málefni er varða vernd neytenda, þ.e. Grænland og Færeyjar.
2. Samvinnan á Norðurlöndum.
Neytendur og ný löggjöf til verndar neytendum.
Ísland telur nauðsynlegt að styrkja enn frekar norræna stefnumótun á sviði löggjafar er varðar neytendavernd. Markmið með sameiginlegri stefnumótun er að tryggja að norrænar lágmarkskröfur verði hafðar að leiðarljósi við frekari stefnumótun í málefnum neytenda á öðrum vettvangi t.d. hjá ESB eða á alþjóðavettvangi (OECD, WTO, S.þ. o.fl.).
Til grundvallar verði lögð hin samnorræna stefnuáætlun á sviði neytendamála árin 1999–2004.
Ísland vill þó sérstaklega óska eftir því að til umfjöllunar verði tekin á formennsku þess eftirtalin málefni á sviði neytendaverndar:
a. mótun sameiginlegrar norrænnar stefnu um upplýsinga- og tölvutækni, þar á meðal:
– undirritun í tölvum,
– internet og persónuvernd,
– tölvutæknin og kaupalögin,
– tölvutæknin og samningalögin,
– tölvutæknin og auglýsingar,
– tölvutæknin og markaðfærsla, einkum m.t.t. barna og unglinga,
– fjarsala,
– uppbyggingu samnorrænna gagnagrunna (t.d. um óréttmæta samningsskilmála, neytendarannsóknir, o.fl.).
b. mótun samgeiginlegra norrænna lágmarksskrafna í lögum á sviði neytendaverndar þar á meðal:
– gjaldeyrisfærslur milli landa (sbr. tilskipun ESB um credit transfers),
– trygging lágmarksneytendaverndar við einkavæðingu opinberrar þjónustu (svo sem rafmagnsveitna, sjúkrahúsa, grunnskóla, o.fl).
c. framkvæmd löggjafar á sviði neytendaverndar:
– Ísland leggur áherslu á að löggjöf sem sett er til verndar hagsmunum neytenda sé virt í framkvæmd, að neytendum sé tryggður góður og greiður aðgangur að upplýsingum um hver séu réttindi þeirra og skyldur og ef löggjöfin er of flókin þá verði hún einfölduð án þess þó að það leiði til þess að vernd neytenda verði minni en nú er. 1
Fjárhags- og upplýsingamál neytenda:
Á þessu sviði vill Ísland á formennskuári sínu leggja áherslu á að:
– mótaðar verði leiðir til þess að auka möguleika neytenda til að hagnýta sér bestu kjör sem bjóðast á markaðnum hverju sinni,
– móta leiðir sem geta leitt til þess að neytendur hafi betri aðgang að upplýsingum og að gæði upplýsinganna verði betra, t.d. með aðstoð tölvutækninnar og notkun upplýsingagrunna fyrir tölvur, svo sem með því að setja upp samnorræna upplýsingagrunna þegar það á við og er fallið til þess að auka neytendavernd, sbr. einnig áðurnefnd áhersluatriði um löggjafarmálefni hér að framan.
Málefni neytenda að því er varðar vörur og vöruöryggismál:
– mótuð verði sameiginleg forgangsatriði Norðurlanda að því er varðar vöruöryggismál og opinbera markaðsgæslu,
– unnið verði að samnorrænum verkefnum á sviði vöruöryggis sem að gagni koma í alþjóðlegu samstarfi,
– gerð verði áætlun um það hvernig miðla megi upplýsingum um vöruöryggismál til neytenda í því skyni að gera þá meðvitaðri um mál sem snerta öryggi vöru,
– tryggja þarf áhrif neytenda á þær kröfur sem gerðar eru til matvæla þ.e. matvælaframleiðslu, merkinga á matvöru, o.fl.
Samþætting neytendamála við önnur samstarfssvið:
Í formennskutíð Íslands verður lögð sérstök áhersla á að unnið verði að sameiginlegri norrænni stefnuáætlun um samþættingu neytendamála og stjórnvalda er varða:
– atvinnulífið,
– umhverfismál, þ.m.t. atriði er varða matvæli og matvælaframleiðslu,
– menntamál, þ.m.t. að stuðla að virkri framkvæmd norrænu áætlunarinnar um neytendafræðslu.
3. Norðurlönd og ESB/EES.
Öll Norðurlöndin hafa nána samvinnu við Evrópusambandið; Danmörk, Finnland og Svíþjóð með aðild að ESB en Ísland og Noregur með aðild að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Á sviði neytendaverndar gildir nánast sami „acquis communautaire“ fyrir öll ríkin og er því samvinna þeirra ekki síst af þeirri ástæðu mikilvæg á þessu sviði, bæði að því er varðar þróun nýrrar löggjafar sem og lögleiðingu þegar samþykktra tilskipana.
Ísland leggur því áherslu á að í samstarfi við Evrópusambandið og stofnanir þess verði tryggt að sjónarmið Norðurlanda á sviði neytendaverndar verði höfð til hliðsjónar við mótun gerða sem gilda eiga á EES-svæðinu.
Ísland telur að á grundvelli velmótaðrar norrænnar stefnumótunar í málefnum neytenda sem byggir á hinni löngu norrænu hefð um samvinnu á þessu sviði eiga Norðurlönd að hafa frumkvæði og forustuhlutverki að gegna á vettvangi ESB á sviði neytendamála, þ.m.t að:
– hafa áhrif á undirbúning og lögleiðingu ESB-gerða, t.d. tilskipunar um fjarsölusamninga, tilskipunar um lögbannsaðgerðir til verndar hagsmunum neytenda,
– miðla af norrænni reynslu af kvörtunar- og úrskurðarnefndum og stuðla að því að innan ESB verði skipulögð kerfi sem annist úrlausnir utan dómstóla fyrir neytendur er sæki fyrirmyndir til hins norræna kerfis (sbr. tilmæli framkvæmdastjórnar ESB þess efnis),
– tryggja sameiginlega hagsmuni vegna uppbyggingar og reksturs Norðurlanda á norræna umhverfismerkinu „Svaninum“ og hafa áhrif á þróun evrópska umhverfismerkisins,
– stuðla að því að fjármagni sé veitt til verkefna á sviði neytendamála innan fimmtu rammaáætlunar ESB á sviði rannsókna og þróunar.
4. Norðurlönd og grannsvæðin.
Ísland vill leggja áherslu á að sú stefna norrænu landanna að styðja lýðræðisþróunina á grannsvæðunum og stuðla að jafnvægi og aukinni réttarvernd fyrir neytendur á þessum svæðum komist til framkvæmda, m.a. með því að veita þeim aðstoð:
– við þróun löggjafar á sviði neytendaverndar og miðlun upplýsinga um norræn kerfi fyrir kvörtunar- og úrskurðarnefndir,
– við þróun kennsluefnis til neytendafræðslu í skólum.
og aðra almenna ráðgjöf og upplýsingar um uppbyggingu á sviði neytendaverndar á Norðurlöndum.
14. VÍMUEFNAMÁL
1. Á formennskutímabili Íslands hjá Norrænu ráðherranefndinni mun rík áhersla vera á m.a. samstarfi vestnorrænu þjóðanna. Vestnorrænu þjóðirnar eru, af landfræðilegum ástæðum, betur varðar gegn markaðssetningu og misnotkun ólöglegra fíkniefna en hin Norðurlöndin. Engu að síður er fyllsta ástæða til þess að leggja áherslu á mikilvægi norræns samstarfs, gagnkvæm upplýsingaskipti um reynslu þjóðanna og á umræður um fíkniefnamál er geti komið að gagni á Vestur-Norðurlöndum.
2. Á árinu 1999 mun megin áherslan í samstarfinu um fíkniefnamál halda áfram að byggjast á samstarfsáætluninni Norrænt samstarf um fíkniefnamál 1997–2000, en á grundvelli hennar er nauðsynlegt að fjalla um aukið samstarf lögreglu og tollayfirvalda á Norðurlöndum, PTN, ásamt því að halda áfram umræðum í ráðherranefndinni um að fella norrænar rannsóknaniðurstöður, NAD, inn í þær umræður. Á formennskuárinu verður áhersla lögð á þá stefnu í fíkniefnamálum er einkennir Norðurlöndin þar sem heftandi eftirlitsaðgerðir eru framkvæmdar ásamt almennum fyrirbyggjandi aðgerðum til þess að draga úr eftirspurn eftir fíkniefnum, leit og manneskjulegum meðferðartilboðum fyrir fíkla. Á formennskuári sínu mun Ísland miðla af reynslu sinni sem fæst með verkefninu „Fíkniefnalaust Ísland“, en ráðherrar annarra Norðurlanda hafa sýnt því áhuga. Jafnframt verður tekið frumkvæði að undirbúningsumræðum um nýtt samstarfsverkefni eftir árið 2000 sem mun byggjast á þeirri reynslu sem fæst úr núverandi samstarfi og þeim skipulagsbreytingum sem gerðar voru árið 1997. Á formennskuárinu verður áfram tekið tillit til forgangsverkefna innan tengdra greina, svo sem félags- og heilbrigðissviða og refsigeirans. Þverfagleg verkefni fá forgang í þeim tilvikum þar sem slíkt er talið gagnlegt.
3. Á formennskuárinu verður mikil áhersla lögð á pólitískt samráð á efri stjórnstigum um fíkniefnamál. Með tilvísun til umræðnanna á fundi Norrænu ráðherranefndarinnar í Stokkhólmi í júní 1998, þar sem viðstaddir ráðherrar gáfu skýr skilaboð um þennan málaflokk, og á grundvelli þeirrar athygli sem fundur þessi hlaut, munu íslensku ráðherrarnir boða til ráðherrafundar í Reykjavík árið 1999. Þetta er talið mikilvægt varðandi Vestur-Norðurlönd sem þurfa ekki síður athygli í þessum efnum en eystri svæðin. Á formennskuári Íslands eru aðilar reiðubúnir til stefnumótandi umræðna við þingmenn í Norðurlandaráði óski ráðið þess.
4. Í samstarfinu skal vera samhengi við forgangsverkefni frá árinu áður. Ljúka skal þeim verkefnum sem hafin eru og umræðum skal ljúka eða þeim haldið áfram. Þetta á við t.d. um verkefnið er lýtur að misnotkunarmynstri og unglingamenningu, ásamt grænlenska verkefninu sem útfæra mætti m.a. til Færeyja, Íslands og annarra jaðarsvæða. Bæði verkefnin eru rekin í samstarfi við NAD. Halda ber áfram sænska forgangsverkefninu um umræður um þróunina í fíkniefnamálum á Norðurlöndum (Narkotikasituationen 1990–1996) fram að aldamótum, samstarfsverkefninu sem framundan er og mögulega einnig uppfærslu útgefinna rita eftir tvö eða þrjú ár.
5. Hvað varðar fyrirbyggjandi aðgerðir hafa Íslendingar um margra ára skeið haft áhuga á gerð miðlægs gagnagrunns á Norðurlöndum sem hafi að geyma upplýsingar frá viðkomandi löndum um þróun fíkniefnavandans en þó með megináherslu á mat á forvarnar- og meðferðarverkefnum. Norðurlöndin búa öll yfir umtalsverðri þekkingu á forvarnaraðgerðum en hins vegar er hlutfallslega lítið fyrirliggjandi af upplýsingum um niðurstöður þeirra. Hjá ESB hefur verið unnið að kerfisbundinni söfnun upplýsinga um fíkniefnavandann en starfinu hefur miðað hægt. Norðurlöndin ættu að geta, án þess að hætta sé á að fleiri séu að sinna einu og sama verkefninu, haft eigin forgagnsverkefni og undirbúið aðgerðir varðandi kerfisbundna söfnun upplýsinga um mat á forvarnaraðgerðum. Vegna óvissu um niðurstöður evrópsks samstarfs og vegna mismunandi menningarlegra aðstæðna í Suður- og Norður Evrópu, gerir Ísland tillögu um að Norræna ráðherranefndin ýti úr vör norrænu samstarfi um nákvæmt mat á möguleikum og tilgangi stofnunar norræns gagnagrunns með það að markmiði að glæða baráttuna gegn fíkniefnanotkun á Norðurlöndum nýju lífi.
6. Nýjar rannsóknir hafa varpað ljósi á samspil uppeldismynsturs og tilhneigingar síðar á æviskeiðinu til (tilrauna-)misnotkunar á áfengi og fíkniefnum. Þörf virðist vera á þemaumræðum, mögulega á þverfaglegum vettvangi, með talsmönnum mennta- og leikskólageirans, um í hvaða mæli og hvernig grípa megi til fyrirbyggjandi aðgerða fyrr en nú tíðkast, þ.e. strax á forskólaaldri með nálgun við börn og foreldra þeirra.
7. Á formennskutímabilinu verður unnið að því að gera norrænar aðgerðir um fíkniefnalaust unglingaumhverfi og norræna reynslu sýnilega ungu fólki á Norðurlöndum og utan þeirra, ásamt því að skapa aðstæður til að stofna til og styrkja samskipti, og miðlun á reynslu milli ungs fólks á Norðurlöndum á þessu sviði. Á formennskutímabilinu verður því lögð áhersla á að stuðla að því að tvö verkefni með ungt fólk sem markhóp verði vel kynnt. Norræna borgarráðstefnan, sem fjalla mun um lífskjör ungs fólks og haldin verður í Reykjavík í júní 1999, hefur hlotið fjárhagsstuðning frá Norrænu ráðherranefndinni. Ísland leggur jafnframt til að stuðningur verði veittur við sérstaka norræna útfærslu unglingaverkefnisins Pallas Athena Thor með þátttöku ungs fólks frá öllum Evrópuríkjunum. Einnig er mælt með fjárhagsstuðningi við þátttöku fulltrúa frá Eystrasaltsríkjunum.
8. Með tilvísun til samstarfsverkefnisins og forgangsröðunar mála er lúta að fíkniefnavandanum, gerir Ísland það að tillögu sinni að haldin verði ráðstefna um fíkniefnaneyslu í fangelsum. Einnig að gerð verði tilraun með fíkniefnalausar deildir í fangelsum, tengingu afplánunar og meðferðar, meðferðar á afplánunartíma, þjálfunar starfsmanna o.fl. Ísland er reiðubúið að vera gestgjafi slíkrar ráðstefnu eða fundar um málefni þetta innan vébanda embættismannanefndarinnar.
9. Með vísan til evrópskra og annarra alþjóðlegra málefna verður áhersla lögð á það á formennskuári Íslands að Norræna ráðherranefndin og embættismannanefndin nýtist vel sem vettvangur samráðs og, í þeim mæli sem mögulegt er, til samræmingar norrænna viðhorfa varðandi baráttuna við fíkniefnavandann. Þetta skapar vestnorrænu þjóðunum, sem eru tengdar evrópsku samstarfi með öðrum hætti en hin Norðurlöndin, dýrmæt tækifæri til þátttöku og til að hafa áhrif á umræður.
15. LÖGGJAFARMÁL
Inngangur.
Norrænu dómsmálaráðherrarnir ákveða á hverju ári starfsáætlun, sem lögð er til grundvallar löggjafarsamstarfinu. Tilgangur slíkrar starfsáætlunar er að tryggja sameiginlegar áherslur í norrænu löggjafarsamstarfi, með því markmiði að viðhalda hefðbundinni einsleitni hinnar norrænu löggjafar auk þess að hafa frumkvæði að nýrri löggjöf varðandi sameiginlega norræna hagsmuni.
Það land sem fer með formennsku gegnir mikilvægu hlutverki við mótun árlegrar starfsáætlunar. Starfsáætlunin fyrir tímabilið júni 1999 til júní 2000 verður ákveðin af dómsmálaráðherrum Norðurlandanna í júní 1999.
Áhersluatriði.
Á formennskuári Íslands hjá Norrænu ráðherranefndinni mun barátta gegn glæpum og forvarnir verða forgangsverkefni. Á formennskuárinu verður samvinnan þróuð milli afbrotavarnarráða á Norðurlöndunum með útgáfu áætlunar til samræmingar og skiptingu verkefna.
Samvinnan við Eystrasaltsríkin verður bætt og er fyrirhugaður fundur milli dómsmálaráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í september 1999. Megin áhersla fundarins verður baráttan gegn skipulagðri glæpastarfsemi sem teygir sig yfir landamæri ríkja á Norðurlöndum og aðliggjandi landa.
Í hinni hefðbundnu löggjafarsamvinnu Norðurlandanna verður rík áhersla lögð á gæði lagasetningar.
Enn fremur mun samvinnan varðandi fjölskyldurétt, sem hefur verið ein af þungamiðjum norrænnar löggjafarsamvinnu, verða styrkt sérstaklega. Á formennskuári Íslands verður vinnu haldið áfram við rannsóknir, sem þegar eru hafnar og leiða eiga í ljós mismun í löggjöf á sviði fjölskylduréttarins á Norðurlöndum. Athyglinni verður sérstaklega beint að því að skilgreina þau svið, þar sem þörf er á frekari norrænni samvinnu með það fyrir augum að varðveita einsleitni í löggjöf Norðurlandanna á sviði einkamálaréttar.
Samræmd innleiðing ESB-reglna í innanlandsrétt er afar mikilvæg til þess að varðveita hina norrænu einsleitni. Embættismannanefndin um löggjafarmálefni mun áfram tryggja samráð Norðurlanda við innleiðingu ESB- og EES-löggjafar. Í þessu skyni verður verkefnum varðandi vandamál lögleiðingar ESB- og EES-reglna ýtt úr vör.
Sérstök verkefni.
– Fundur fyrirhugaður milli dómsmálaráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í september 1999.
– Útgáfa skýrslu um sérstaka meðferð sem refsingu fyrir þá sem dæmdir eru fyrir kynferðislega misnotkun á börnum.
– Skipun vinnuhóps til að takast á við vandamál vegna lögleiðingar ESB- og EES-reglna.
– Haldin verður þverfagleg ráðstefna um rafræn viðskipti í samvinnu við aðila er hafa málefni neytenda og athafnalífs á sinni könnu.
– Málþing verður haldið um einkamálaréttarfar.
16. NORRÆNN VINNUMARKAÐUR
Ísland vill áfram leggja áherslu á þau markmið sem unnið hefur verið eftir undanfarin ár af öðrum norrænum ríkjum, þ.e. að efla atvinnulífið og atvinnusköpun með þeim aðferðum sem möguleg eru í norrænni samvinnu.
Ísland vill einnig leggja áherslu á að samþætta norræna samstarfið á vinnumálasviðinu sem mest evrópsku og innlendu vinnumálasamstarfi þannig að stefnumörkunin horfi til allra þessara svæða samtímis. Þannig er mikilvægt að draga fram þá þætti í vinnumálasamstarfinu sem eru þýðingarmestir og mest samstaða er um á öllum þessum svæðum.
Ísland vill efla heildarsýn á vinnumarkaðs- og vinnuumhverfissviðinu með því að auka skipti á upplýsingum, viðhorfum og reynslu við önnur svið auk þess að efla áþreifanleg verkefni með þetta að markmiði og undirbúa þannig samræminguna að efnahagsstefnu, menntastefnu, svæðastefnu og atvinnustefnu landanna.
Ísland vill einnig styrkja norrænt samstarf við ESB-stofnanir bæði á vinnumarkaðs- og vinnuumhverfissviðinu.
Ísland leggur áherslu á aukið vinnumálasamstarf innan svæða á Vestur-Norðurlöndum og norðurslóðum auk þess sem eflt er margvíslegt samstarf við grannsvæði Norðurlanda um vinnumarkaðs- og vinnuumhverfismál.
1. Vinnumarkaðsmál.
Í þeirri viðleitni að koma á fullri atvinnu og efla þau réttindi sem eru tilgreind í samningnum um sameiginlegan norrænan vinnumarkað eru áherslur á eftirfarandi meginmarkmið:
– Efla virka og öfluga vinnumarkaðsstefnu, með það að markmiði að styrkja starfsemi á vinnumarkaði og að viðhalda skilvirkni og sveigjanleika á vinnumarkaði.
– Efla réttindi þau, sem eru grundvölluð í samkomulaginu um sameiginlegan norrænan vinnumarkað, hér með talið að standa áfram vörð um sömu meðferð á norrænum þegnum á vinnumarkaði einstakra landa - og vinna að auknum hreyfanleika vinnuaflsins yfir landamæri í þeim mæli að þetta stuðli að aukinni jákvæðri þróun að sameiginlegum vinnumarkaði.
– Gera sýnilegt og skapa umræður um ójafnvægi á vinnumarkaði.
Sérstök verkefni:
Unnið er að verkefni sem auka á þekkingu á og innsýn inn í með hvaða hætti stjórnun vinnumarkaðsstefnunnar í einstökum löndum á sér stað.
a. Starfsmenntamál.
Helstu áherslur:
– Styrkja frumkvæði sem hefur að markmiði að auka framleiðni, þar á meðal framtak sem eykur hæfni vinnuaflsins.
– Halda áfram samvinnu á sviði starfsmenntunar einkum á sviði eftir- og framhaldsmenntunar til að bæta þekkingu vinnuaflsins.
– Efla samvinnu um endurhæfingu til starfs.
Sérstök verkefni:
Nauðsynlegt er að skoða hvaða áherslur hafa verið í löndunum um starfsmenntamál langtímaatvinnulausra og hver sé árangurinn eða hvort framboðin starfsmenntun í löndunum henti þessum hópi illa.
Ráðstefna um starfsmenntamál langtímaatvinnulausra.
b. Atvinnumál sérstakra hópa.
Helstu áherslur:
– Bæta möguleika eldra fólks og annarra illa staddra hópa til atvinnu.
Sérstök verkefni:
Undanfarin ár hefur verið lögð sérstök áhersla á atvinnumál ungs fólks. Þau verða áfram í brennidepli. Mikill áhugi er hins vegar á að skoða nú sérstaklega atvinnumál eldra fólks, bæði vegna breytinga á vinnumarkaði og viðhorfum til eldra fólks sem vinnuafls. Þannig takast á ýmis sjónarmið um atvinnumál eldra fólks, m.a. það sjónarmið að úrelding þekkingar sé það hröð að betra sé að ráða yngra fólk til starfa og það sjónarmið að aukin þörf sé fyrir að sem flestir standi undir samneyslunni ekki síst vegna aukins hlutfalls eldra fólks í samfélaginu.
Ráðstefna um atvinnumál eldra fólks.
c. Jafnrétti á vinnumarkaði.
Helstu áherslur:
– Vinna gegn mismunun á vinnumarkaði.
Sérstök verkefni:
Mikilvægt er að kanna hvernig framkvæmd vinnumiðlunar og önnur þjónusta við þá sem eru í atvinnuleit sé m.t.t. jafnréttissjónarmiða. Er unnið eftir ákveðnum jafnréttismarkmiðum við að útfæra þjónustuna eða er sérstakt átak í gangi í löndunum til að taka á sýnilegri mismunun við þjónustuna.
Ráðstefna um jafnrétti í þjónustu við þá sem eru í atvinnuleit.
d. Vinnumiðlun.
Helstu áherslur:
– Auka upplýsingar um aðstæður á vinnumarkaði á Norðurlöndum með efldri vinnumiðlun yfir landamæri, þar með taldar auknar skipulagðar upplýsingar til vinnumiðlunarskrifstofa landanna auk annarra stjórnsýslutækja um aðstæður á vinnumarkaði á hinum Norðurlöndunum.
– Halda áfram með og efla vinnumiðlunarsamstarf milli norrænu vinnumiðlunarkerfanna og efla samstarfið innan vinnumiðlunarkerfis Evrópu EURES.
Sérstök verkefni:
Unnið er að verkefni sem á að gefa yfirlit yfir vinnumiðlunaraðferðir sem notaðar eru við vinnumiðlun milli Norðurlanda. Verkefnið á einnig að draga fram nýjar aðferðir í ljósi nýrrar tækni og alþjóðavæðingar vinnumarkaðarins.
e. Vinnumarkaðsrannsóknir.
Helstu áherslur:
– Halda áfram samvinnu um vinnumarkaðsrannsóknir og efla útbreiðslu á niðurstöðum rannsókna, á Norðurlöndum sem utan þeirra.
Sérstök verkefni:
Unnið er að þverfaglegu rannsóknarverkefni með öðrum norrænum ríkjum. Um er að ræða sameiginlegt rannsóknarverkefni Vinnumálastofnunar, Tryggingastofnunar og Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar með sambærilegum aðilum í hinum löndunum, þar sem markmiðið er að gera grein fyrir mismunandi ferlum einstaklinga í velferðarkerfinu. þ.e. varpa ljósi á ólíkar aðstæður fólks sem hefur framfæri af einstökum þáttum velferðarkerfisins, gera grein fyrir skörun í kerfinu, sem og að skýra betur virkni þess.
2. Vinnuumhverfismál.
Í þeirri viðleitni að styrkja markmiðið um að launþegar séu verndaðir gegn slysum og hvers kyns heilsutjóni vegna vinnu sinnar og aðstæðna á vinnustað er lögð megináhersla á eftirfarandi:
– Styrkja grundvallarreglur þær um bætt vinnuumhverfi sem norræni vinnuumhverfissamningurinn hefur að geyma.
– Stuðla að því að Norðurlöndin standi áfram í fremstu röð ríkja hins Evrópska efnahagssvæðis hvað varðar þekkingu á vinnuumhverfismálum og áherslu á forvarnir á vinnustöðum. Efla samstarf við evrópskar stofnanir, þ.á.m. vinnuumhverfisstofnun ESB í Bilbao á Spáni.
– Efla þekkingarmiðlun um vinnuumhverfismál innan vébanda norrænu stofnunarinnar fyrir framhaldsmenntun innan vinnuumhverfissviðsins.
– Stuðla að rannsóknum á áhrifum vinnuumhverfisþátta á heilsu starfsmanna og líðan.
– Stuðla að framþróun þeirra aðferða sem beita má til þess að hafa áhrif á vinnuumhverfið og stuðla að forvörnum gegn slysum og sjúkdómum sem rætur eiga að rekja til þess.
a. Rannsóknir á sviði vinnuverndar.
Helstu áherslur:
– Stuðla að auknum rannsóknum á tengslum vinnu og heilsufari kvenna, en litlar rannsóknir hafa verið gerðar á því sviði. Efla samstarf við ESB stofnanir um rannsóknir og nýtingu niðurstaðna rannsókna.
– Hin árlega norræna vinnuverndarráðstefna verði útvíkkuð þannig að sérfræðingar frá fleiri löndum Evrópu taki þátt í henni.
– Efla rannsóknir á áhrifum vinnuumhverfisþátta sem eru sérstakir fyrir norðurslóðir og tengjast þeim atvinnuvegum og atvinnuháttum sem þar eru ríkjandi, t.d. fiskveiðum og fiskvinnslu.
b. NIVA — norræn stofnun fyrir framhaldsmenntun á vinnuumhverfissviði.
Helstu áherslur:
– Leggja áherslu á námskeið þar sem miðlað er þekkingu sem aflað er í samnorrænum rannsóknarverkefnum.
– Þróa námskeið um aðferðafræði í vinnueftirliti og miðlun þekkingar til stjórnenda og starfsmanna á vinnustöðum.
– Þróa námskeið um afmörkuð svið sem varða vinnuaðstæður kvenna sérstaklega, t.d. um áhrif einhæfrar vinnu og þróun vinnuskipulags og tækni sem kemur í veg fyrir einhæfni vinnunnar.
– Þróa námskeið um vinnuumhverfisþætti sem eru sérstakir fyrir norðurslóð, svo sem um áhrif kulda og um vinnuumhverfi við fiskveiðar og fiskvinnslu.
c. Stjórnvaldsaðgerðir og eftirlit.
Helstu áherslur:
– Leggja áherslu á þróun aðferða sem beita má til að bæta vinnumhverfi á vinnustöðum þar sem konur eru í meirihluta. Þetta á t.d. við um aðferðir til að draga úr skaðlegum áhrifum einhæfrar vinnu.
– Leggja áherslu á upplýsingaskipti milli landanna með það að markmiði að ræða og draga lærdóm af markmiðum þeim og leiðum sem löndin nota í viðleitni sinni til að bæta vinnuumhverfið. Enn fremur að stuðla með þessum hætti að samræmingu laga og reglna á sviði vinnuumhverfismála.
– Taka fyrir verkefni sem stuðla að aukinni þátttöku starfsmanna í mótun vinnuumhverfis síns, þar á meðal verkefni sem stuðla að aukinni þekkingarmiðlun til starfsmanna á vinnustöðum til auka hæfni þeirra til að hafa áhrif á mótun vinnuumhverfisins.
– Halda áfram samráði Norðurlanda á sviði stöðlunar og efla norræn áhrif á evrópska staðlasamvinnu hvað varðar öryggi og heilbrigði.
3. Sameiginleg vinnumál.
Með sameiginlegum vinnumálum er átt við verkefni sem ná bæði til vinnumarkaðs- og vinnuumhverfismála. Um er að ræða samstarf við jaðarsvæði eins og grannsvæði Norðurlanda og afmörkuð svæði innan Norðurlanda, samstarf við aðila vinnumarkaðarins, atvinnumál innflytjenda og ýmis upplýsingamál.
a. Samstarf við jaðarsvæði.
Undanfarin ár hefur verið unnið að margvíslegu samstarfi við grannsvæði Norðurlanda um vinnumarkaðs- og vinnuumhverfismál. Samstarf þetta hefur einkum náð til Eystrasaltsríkjanna. Þessu samstarfi verður haldið áfram.
b. Svæðabundið vinnumálasamstarf.
Ísland hefur einnig áhuga á að líta sérstaklega á þau svæði innan Norðurlandasamstarfsins sem tilheyra Vestur-Norðurlöndum og norðurslóðum bæði í vinnumarkaðs- og vinnuverndarmálum.
c. Samstarf við aðila vinnumarkaðarins.
Helstu áherslur:
– Þróa samvinnu við aðila vinnumarkaðarins.
– Stuðla að því að félagsleg sjónarmið verði að veruleika í evrópskri samvinnu.
Sérstök verkefni:
Aðilar vinnumarkaðarins innan ESB hafa unnið að því að ná samkomulagi um fyrirkomulag tímabundinna ráðninga. Samkomulag þetta gæti leitt til tilskipunar sem næði til alls Evrópska efnahagsvæðisins. Sveigjanlegt vinnufyrirkomulag hefur einnig mikið verið til umfjöllunar innan norræna samstarfsins m.a. var það umfjöllunarefni á ráðstefnu í Ósló, þar sem ýmsar rannsóknarniðurstöður voru kynntar. Nú síðustu ár hafa rutt sér til rúms ýmis ný ráðningarform sem m.a. gera það óljóst hvort um launþega eða verktaka sé að ræða. Mikilvægt er að kanna stöðu þessara mála á Norðurlöndum. Mikill áhugi er fyrir að skipuleggja ráðstefnu um ráðningarfyrirkomulag í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins á næsta ári.
Ráðstefna um ráðningarfyrirkomulag
d. Atvinnumál innflytjenda.
Helstu áherslur:
– Efla framlag til baráttunnar gegn kynþátta- og útlendingahatri í þjóðfélaginu.
– Stuðla að samlögun flóttamanna og innflytjenda í þjóðfélaginu.
– Efla þátttöku innflytjendakvenna og ungmenna á vinnumarkaði.
– Tryggja sömu meðferð í atvinnulífinu með tilliti til kyns, kynþáttar, þjóðflokks, trúarbragða eða frá hvaða landssvæði menn koma o.s.fr.v.
e. Upplýsingamál.
Helstu áherslur:
– Grundvallarreglur norræna fyrirkomulagsins fái hljómgrunn í alþjóðlegu samstarfi.
– Efla upplýsingar og markaðssetningu á mikilvægum sviðum innan norrænnar vinnumarkaðs- og vinnuumhverfisstefnu.
– Breiða út almenna þekkingu á mikilvægum vandamálum er varða vinnumarkað og vinnuumhverfi á Norðurlöndunum með því að efla áfram það upplýsingastreymi, sem meðal annars berst í gegnum „Arbetsliv i Norden“.
– Breiða út þekkingu á Norðurlöndunum um Evrópusamstarfið, þar á meðal á Evrópusviðinu.
– Breiða út þekkingu í Evrópu á grundvallarþáttum norræna fyrirkomulagsins, sem vinnumarkaðs- og vinnuumhverfissviðið felur í sér.
17. JAFNRÉTTISMÁL
Grundvöllur norræns samstarf á sviði jafnréttismála er norræn samstarfsáætlun sem tekur til tímabilsins 1995 til 2000. Samkvæmt henni er markmiðið:
að samstarfið leiði til þess að haldið verði áfram að þróa sameiginlega lífssýn Norðurlandaþjóða, svo og sameiginlega stefnu þeirra í víðara samstarfi innan Evrópu og á alþjóðavettvangi,
að samstarfið stuðli að árangursríkara og öflugra jafnréttisstarfi á innanlandsvettvangi í hverju og einu Norðurlandanna,
að það verði sjálfsagt að gæta jafnréttissjónarmiða í starfi á mismunandi sviðum stefnumótunar í þjóðfélaginu. Einnig skal gæta jafnréttissjónarmiða á þeim sviðum stefnumótunar sem starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar tekur til.
Samkvæmt áætluninni er samstarfinu beint að eftirfarandi málaflokkum:
– Jöfnum aðgangi kvenna og karla að ákvarðanatöku í stjórnmálum og efnahagsmálum.
– Jafnri stöðu og áhrifum kvenna og karla í efnahagsmálum.
– Jafnri stöðu kynjanna í atvinnulífinu.
– Bættum möguleikum kvenna og karla til að sameina foreldrahlutverk og launavinnu.
– Þróun jafnréttismála innan Evrópu og á alþjóðavettvangi.
Á grundvelli samstarfsáætlunarinnar hafa jafnréttisráðherrar Norðurlanda samþykkt tvær verkáætlanir, um karla og jafnrétti sem tekur til tímabilsins 1997 til 2000 og um baltneskt — norrænt samstarf á sviði jafnréttismála sem tekur til tímabilsins 1998 til 2000. Jafnréttisráðherrar Norðurlanda leggja árlega fram yfirlit yfir þau verkefni sem þegar er unnið að og fyrirhuguð eru á yfirstandandi ári.
Að öðru leyti mun Ísland leggja áherslu á:
1. Samvinnan á Norðurlöndum.
Ísland leggur áherslu á að áfram verði unnið á þeim brautum sem markaðar hafa verið í þegar samþykktum áætlunum. Áhersla verður lögð á þau verkefni er snúa að stöðu kvenna í efnahagslífinu, einkum að því er varðar launajafnrétti kynja. Á árinu 1999 mun koma út fræðsluhefti þar sem kynntar verða aðgerðir og verkefni sem unnin hafa verið á þessu sviði í löndunum fimm frá því Norræna jafnlaunaverkefninu lauk á árinu 1994. Er mikilvægt að fræðsluheftið fái góða kynningu og verði hvati til áframhaldandi aðgerða á þessu sviði.
Nauðsynlegt er að áfram verði markvisst unnið að því að tryggja konum raunverulega jafnstöðu á við karla í efnahagslífinu. Ísland telur mikilvægt m.a út frá samþættingarsjónarmiðinu að vinnumálaráðherrar Norðurlanda komi markvisst að þessu starfi og verða kannaðir möguleikar á því.
Samkvæmt verkáætluninni um karla og jafnrétti kynja verður hafist handa við samvinnuverkefni um karla, jafnrétti og atvinnulíf á árinu 1999. Um er að ræða samstarfsverkefni milli jafnréttis- og vinnumálasviðsins. Markmið þess er að beina sjónum að tengslum karla við atvinnulífið, yfirvinnu og réttindum þeirra varðandi hlutastörf og orlofstöku. Starfsmenning karla og þær væntingar sem gerðar eru til þeirra á vinnumarkaði er lykilatriði í þessu verkefni. Gert er ráð fyrir að skipaður verði norrænn starfshópur til að stýra þessu verkefni.
Á árinu 1999 mun taka til starfa hjá Norrænu rannsóknarstofunni í kvenna- og jafnréttisfræðum (NIKK) starfsmaður sem á að byggja upp, styðja við og samhæfa norrænar karlarannsóknir. Ísland telur mikilvægt og mun beita sér fyrir því að þeir aðilar sem vinna sérstaklega að málefnum karla og jafnrétti, t.d. á jafnréttisskrifstofunum á Norðurlöndum, myndi eins konar ráðgjafarhóp við þennan nýja starfsmann og fái jafnframt möguleika á að mynda með sér tengslanet og styrkja þannig starfið á innlendum vettvangi.
Bæði framangreind verkefni eru tilgreind í verkáætluninni um karla og jafnrétti kynja en hafa verið í biðstöðu m.a. vegna þess að sýnt þykir að þau kalli á einhverja innlenda fjármögnun.
2. Samstarf við ESB.
Ísland leggur áherslu á að þau málefni sem eru efst á baugi innan Evrópusambandsins verði á dagskrá norræns samstarfs og þannig verði ekki aðeins tryggt að löndin tvö, Ísland og Noregur, sem ekki eiga aðild að Evrópusambandinu fái nauðsynlegar upplýsingar, heldur einnig að það samhæfingarstarf sem nú á sér stað á þessu sviði sé tryggt.
Þá er mikilvægt að metið sé hverju sinni hvort og þá hvernig þau verkefni sem unnið er að á norrænum vettvangi geti lagt sitt af mörkum til þróunar mála á þessu sviði innan Evrópusambandsins. Þykir í þessu sambandi rétt að huga bæði að hinni nýju stöðu við karlarannsóknir hjá NIKK og því viðamikla verkefni sem nú er á lokastigi um konur og völd á Norðurlöndum.
3. Samstarf við Eystrasaltsríkin.
Skipaður hefur verið starfshópur/verkefnisstjórn til að fylgja eftir þeirri áætlun sem samþykkt var í lok ársins 1997 um samstarfsverkefni á sviði jafnréttismála við Eystrasaltsríkin. Áætlunin gildir til ársins 2000. Starfið er rétt að hefjast. Mun Ísland leggja sitt af mörkum til að vel takist til undir sinni formennskutíð.
18. HÚSNÆÐIS- OG BYGGINGARMÁL
Á húsnæðisráðherrafundi í Halmstad 15. júní 1998 voru lögð fram drög að samstarfsáætlun fyrir árið 1999. Samstarfsáætlunin var unnin sameiginlega af fulltrúum Svíþjóðar og Íslands í embættismannanefndinni með hliðsjón af formennskuári Íslands.
Verkefni næsta árs.
Starfsáætlun embættismannanefndar um húsnæðis- og byggingarmál (EK-Bygg) byggir á samstarfsáætlun sem húsnæðisráðherrar Norðurlandanna hafa samþykkt fyrir tímabilið 1998–2001 þar sem lögð er áhersla á þrjú megin viðfangsefni:
– Félagslegir þættir húsnæðismála.
– Sjálfbær þróun í byggingar- og húsnæðismálum.
– Samvinna við grannsvæðin.
Jafnframt er lögð til grundvallar formennskuáætlun íslenskra stjórnvalda. Í starfi embættismannanefndarinnar á næsta ári verður lögð áhersla á þátttöku og samstarf við Vestur-Norðurlönd. Norrænt samstarf á sviði húsnæðismála verður kynnt aðilum á þessum vettvangi á Vestur-Norðurlöndum og fulltrúum boðin þátttaka í námsstefnum og fundum á vegum nefndarinnar.
Fjárveitingar til byggingar- og húsnæðismála hafa dregist verulega saman á síðustu árum og takmarkar það möguleika á að ráðast í ný verkefni. Norðurlandanefnd Norðurlandaráðs hefur fjallað um framkvæmdaáætlun í húsnæðis- og byggingarmálum 1998–2001 og leggur þar megináherslu á verkefni um félagslega þætti húsnæðismála. Í starfsáætluninni fyrir 1999 er lögð áhersla á að ljúka þeim verkefnum sem eru í gangi og fylgja þeim eftir með námsstefnum þar sem m.a. yrði lögð áhersla á að kynna þingmönnum Norðurlandaráðs niðurstöður verkefnanna.
Meðfylgjandi eru viðfangsefni samstarfsins á næsta ári.
1. Félagslegir þættir húsnæðismála.
Á undanförnum árum hefur verið unnið að rannsóknum á orsökum og afleiðingum félagslegs aðskilnaðar (bostadssegregation) á húsnæðismarkaði á Norðurlöndum. Næsta skref í þessu starfi er að safna saman og kynna dæmi um góðar lausnir á þessu sviði. Embættismannanefndin hefur stofnað til samstarfs við Samband sænskra sveitarstjórna sem hefur tekið að sér undirbúning að norrænu samstarfi um hvernig megi styrkja ímynd íbúðarhverfa og samheldni íbúanna. Í tengslum við þetta verkefni eru áform um rannsóknarverkefni og skoðanaskipti um hvernig beita megi skipulagi og stjórnun húsnæðismála varðandi byggða- og búsetuþróun.
a. Húsnæði fyrir sérhópa.
Staða sérhópa á húsnæðismarkaðnum hefur verið í kastljósi umræðunnar síðastliðin ár. Húsnæðismál aldraðra m.a. eru dæmi um þetta. Á árinu 1998 hófst undirbúningur að verkefni undir heitinu „húsnæðismál aldraðra í framtíðinni“. Markmiðið er að lýsa reynslu af mismunandi fyrirkomulagi húsnæðismálum aldraðra á Norðurlöndum. Gert er ráð fyrir samanburðarrannsókn á fyrirkomulagi og framkvæmd þessara mála. Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað árið 1999 málefnum aldraðra. Lögð er sérstök áhersla á að ljúka þessu verkefni á næsta ári.
b. Húsnæðislöggjöf og efnahagslegt umhverfi.
Á árinu 1997 var gefið út á vegum embættismannanefndarinnar rit um Húsnæðislöggjöf Norðurlandanna (Nordisk bustadsrett) og hefur það nú komið út í enskri þýðingu. Á árinu 1999 lýkur verkefni undir heitinu „Housing in the Nordic Countries“.
Í báðum þessum verkefnum liggur fyrir mjög greinargóð lýsing og samanburður á lögum og reglum sem stýra húsnæðismálum og lánafyrirkomulagi á Norðurlöndum.
Í öllum norrænu löndunum hafa að undanförnu orðið breytingar og eru að verða á stjórnsýslu og þátttöku hins opinbera í húsnæðismálum. Á árinu 1999 verður haldin ráðstefna undir heitinu „Bostadsfinanseringens omstrukturering i Norden – individuellt och behovsprövat stöd til konsumtion“. Skýrslunar tvær verða til umræðu og umfjöllunar á ráðstefnunni.
Í nefndarstarfinu á þessu ári hefur komið fram umræða um lagalega umgjörð fyrir félög, fyrirtæki og félagasamtök sem starfa að húsnæðismálum. Ástæðan er breytingar á starfsumhverfi húsnæðisfélaga og þær breytingar sem orðið hafa í kjölfar minni þátttöku hins opinbera í lánveitingum til húsnæðismála ásamt nýjum kröfum í kjölfar Evrópusamstarfs. Lagt er til að haldin verði námsstefna þar sem fjallað verði um mismunandi fyrirkomulag þessara mála á Norðurlöndum og reglur Evrópusambandsins þar að lútandi.
2. Sjálfbær þróun.
Undir formennsku Svía á yfirstandandi ári hafa verkefni sem tengjast sjálfbæru samfélagi haft forgang. Embættismannanefndin styður námsstefnu um „Vistvænar byggingar“ (Miljømæssigt bæredygtigt byggeri) sem halda á í byrjun 1999 undir danskri stjórn. Það er mikilvægt, einkum fyrir Ísland, að áframhald verði á norrænum skoðanaskiptum þar sem sérstaklega er fjallað um byggingar- og húsnæðismál í ljósi sjálfbærrar þróunar. Eðli málsins samkvæmt þarf að þróa þessi mál á þverfaglegum forsendum og í rannsóknasamstarfi á breiðum grundvelli. Í þeim efnum væri eðlilegt að embættismannanefndin leitaði samstarfs m.a. við nefnd umhverfismála (EK-Miljø) og eftir samstarfi um rannsóknir á þessum vettvangi við þá aðila sem tengjast því með einum eða öðrum hætti.
3. Grannsvæðin.
Fram til þessa hafa samskipti við grannsvæðin verið á grundvelli tengsla milli tveggja landa (bilaterala program). Á árinu 1999 verður lögð áhersla á að miðla sameiginlega upplýsingum og þekkingu á húsnæðismálum á Norðurlöndum til grannsvæðanna á grundvelli rannsóknaverkefnanna „Housing in the Nordic Countries“ og „Boligrett“. Boðið verður upp á námsstefnur í löndunum þar sem niðurstöður verða kynntar á vegum embættismannanefndarinnar. Húsnæðisyfirvöldum í Eystrasaltsríkjunum verður boðið að fá til sín slíka kynningarfundi.
19. IÐNAÐAR- OG ATVINNUMÁL
Markmið og leiðir.
Samstarfið á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um iðnaðar- og atvinnumál byggir að nokkru á hefðbundnum viðfangsefnum og venjum en að öðru leyti á nýlundu og frumkvæði þeirra sem forustu hafa hverju sinni.
Eftir sem áður verður höfuðmarkmið samstarfsins að efla samkeppnishæfi atvinnulífsins á Norðurlöndum og búa þar með í haginn fyrir aukið bjargræði þegnanna og hagsæld.
Samstarfsaðilarnir eru ráðherranefndin um iðnaðar- og atvinnumál (MR-N) og samnefnd embættismannanefnd (EK-N), svo og Velferðar- og atvinnumáladeild norrænu ráðherraskrifstofunnar í Kaupmannahöfn (NMRS), einnig starfshópar skipaðir til einstakra afmarkaðra ætlunarverka, enn fremur þar að lútandi stofnanir, sem eru Norræni iðnaðarsjóðurinn (NI) og Norræna prófanastofnunin (Nordtest).
Efni.
Ráðstöfunarfé til hinna ýmsu ætlunarverka á vegum ráðherranefndarinnar (MR-N) ákvarðast af samstarfsráðherrum Norðurlanda (MR-Sam) og nemur fjárveitingin á árinu 1999 1,4 millj. DKK. Að auki eru 600 þús. DKK ætlaðar til samstarfsverkefnis um upplýsingatækni í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Norðurlöndum.
Á döfinni.
Þegar er hafinn undirbúningur og framkvæmd nokkurra verkefna, sem haldið verður áfram á hinu íslenska formennskuári. Má þar m.a. tilgreina viðfangsefni, er lúta að því að framfylgja niðurstöðum rannsóknar sem gerð var á sóknarfærum og samstarfsáformum um norræna nýsköpun; samstarf atvinnuþátta um umhverfisverndarstefnu í framleiðsluiðnaði; viðfangsefni á sviði upplýsingatækni og rafrænna viðskipta til bættrar samkeppnisstöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Auk þess verður um áramótin hrundið af stað verkefni, sem kallast Norðurlöndin sem ein samkeppnishæf heild. Þá er að fara af stað tilraunaverkefni er tekur til rafrænna viðskipta með byggingarvörur.
Ráðagerð.
Áhersluatriði á íslenska formannsárinu eru m.a. eftirfarandi:
Þörf er talin á nýrri og breiðari sýn á nýsköpunarferlið og hið norræna samstarf um nýsköpunarstefnu. Þar mætti taka mið af víðtækari skilgreiningum en þeim hefðbundnu, sem hingað til hafa að mestu snúist um rannsóknir og tækniþróun. Því er stefnt að því að glöggva og kveða sérstaklega á um almenna þróun atvinnulífsins, með tilliti til þess, að atriði svo sem aðgengi að fjármagni, opinber íhlutun, skipulagning og stjórnun hafi samverkandi áhrif á nýsköpun einstakra fyrirtækja. Þarna hlýtur að koma tilstilli og samræming hins pólitíska valds og stofnana þjóðfélagsins.
Annað brýnt mál er svokallað „benchmarking“ eða samkeppnishæfi á Norðurlöndum. Á þeim vettvangi verða skilgreindar bæði hömlur og möguleikar, er forsvarsmenn fyrirtækja mæta við að skynja Norðurlöndin heildrænt í samkeppninni við umheiminn. Reynt verður að tilgreina svæði þar sem samnorrænt framtak í atvinnumálum getur bætt rekstrarskilyrði fyrirtækjanna. Verði þar horft til nýsköpunar, vinnumarkaðarins, menntunar o.s.frv.
Ætlunin er að menn beri saman bækur sínar um reynslu af gildandi lagasetningu, aðferðum og skorðum hvers konar. Með hliðsjón af því verði stefnt að nánara samráði þeirra aðila hins norræna samstarfs, er fara með stefnumörkun í atvinnumálum, vinnumálum og menntamálum.
Hugað verður að iðnhönnun sem sérlegu samstarfssviði á hinum norræna vettvangi.
Fyrirliggjandi er að ráðherranefndin efli framtak, í tengslum við viðfangsefni og samstarfsverkefnin á hverjum tíma, sem gæti orðið til þess að bæta forsendur kvenna til atvinnusköpunar og atvinnurekstrar.
Sérstætt atvinnusköpunarverkefni, verði að leggja þróun ferðaiðnaðar lið á vestnorrænum slóðum sem og í norðurhéruðum Skandinavíu, með samverkan viðkomandi aðila á þessum svæðum. Í þessu tilliti verði lögð áhersla á þróun ferðaiðnaðar á norðlægum slóðum, þ.e. Grænlandi, Færeyjum og Íslandi sem og hinum samísku svæðum Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Þannig bendir Alheimsferðamálaráðið sérstaklega á, að slík framandi og fáförul landssvæði hafi til að bera stórfellda möguleika til þróunar ferðamannaiðnaðarins sem og atvinnusköpunar og farsældar.
Grannsvæðin.
Áframhald verður á samstarfinu við Eystrasaltsríkin til eflingar atvinnulífsins þar. Dæmi þar um mætti nefna verkefnið Nordpraktik. Með því er átt við áætlun sem gefur ungu fólki af grannsvæðunum í Eistlandi, Lettlandi, Litháen og af St. Pétursborgarsvæðinu í Rússlandi, kost á að ferðast um og kynnast starfs- og framleiðsluháttum, sem tíðkast í litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Norðurlöndum.
ESB/EES.
Fylgst verður grannt með þeirri þróun innan vébanda Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins, sem kann að hafa hagnýtt gildi fyrir iðnþróun og atvinnulíf á Norðurlöndum.
Enn fremur verður eftir atvikum lögð áhersla á, að efla gagnkvæm tengsl ráðherranefndarinnar (MR-N) og embættismannanefndarinnar (EK-N) við norrænu sendinefndirnar og iðnaðarfulltrúana í Brussel.
Stofnanirnar.
Embættismannanefndin fer með mál tveggja stofnana í umboði ráðherranefndarinnar, þ.e. Norræna iðnaðarsjóðsins í Ósló (NI) og Norrænu prófanastofnunarinnar (Nordtest) í Espoo í Finnlandi. Starfsemin þar er bæði talin afar mikilvæg og hafa sérlegt gildi fyrir norrænt samstarf. Stjórnskipaðir fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum sitja í stjórnum beggja stofnananna, og munu ráðherranefndin og embættismannanefndin eftir sem áður gaumgæfa og sinna því starfi, sem þar fer fram.
20. UPPLÝSINGATÆKNI
Í formannstíð Norðmanna árið 1997 og Svía árið 1998 hefur verið lagður grunnur að samstarfi Norðurlandanna á sviði upplýsingatækni. Á formennskuári Íslands í Norrænu ráðherranefndinni árið 1999 mun Ísland leggja áherslu á að vinna að þeim markmiðum, sem staðfest voru á ráðherrafundi um samstarf Norðurlanda á sviði upplýsingatækni, sem haldinn var í Haga-höllinni 20. mars 1998. Meginmarkmið samstarfsins eru að:
– efla lýðræði,
– tryggja öllum aðgengi að upplýsingasamfélaginu,
– efla norræn tungumál og norræna menningu,
– ryðja brautina fyrir rafræn viðskipti,
– örva uppbyggingu tengsla meðal lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Á ráðherrafundinum var ákveðið að efla samstarf þjóðanna á sviði upplýsingatækni og mynda norrænt tengslanet milli þeirra ráðuneyta sem bera ábyrgð á samræmingu á sviði upplýsingatækni.
Ísland hyggst vinna að þessum markmiðum með því að:
1. Standa fyrir ráðstefnu.
Haldin verði ráðstefna á Íslandi þar sem þátttakendur verði þeir aðilar sem vinna að stefnumótun og framkvæmd stefnu landanna um upplýsingasamfélagið.
Tilgangur ráðstefnunnar verður að skiptast á upplýsingum um hvað löndin eru að gera á þessu sviði, hvað er í bígerð, spá fyrir um þróun næstu ára og undirbúa formlega gangsetningu tengslanets embættismanna.
Haldinn verði embættismannafundur til að undirbúna ráðstefnuna þar sem rætt verði um fyrirkomulag hennar og dagskrá.
Ráðstefnan verði t.d. haldin í júní, á sama tíma og fundur forsætisráðherra Norðurlanda er í Reykjavík.
2. Gefa út skýrslu um stöðu og stefnu Norðurlanda í upplýsingatæknimálum.
Í tengslum við ráðstefnuna verði gefin út skýrsla um þróun upplýsingasamfélagsins á Norðurlöndum sem dreifa mætti til lykilaðila í Evrópu og birta á Veraldarvefnum.
3. Koma á rafrænu tengslaneti og vefsíðum.
Komið verði á rafrænu tengslaneti milli þeirra aðila sem fara með stefnumótun og framkvæmd stefnu stjórnvalda í hverju landi. Settur verði upp póstlisti þar sem fréttum og upplýsingum, sem nýst geta öðrum löndum, er reglulega komið á framfæri. Póstlistinn verði jafnframt sá vettvangur sem notaður væri til að einstaklingar sem vinna á þessu sviði geti skipst á skoðunum um þau mál sem efst eru á baugi hverju sinni.
Komið verði upp sérstökum vefsíðum fyrir almenning og fyrirtæki þar sem miðlað verður upplýsingum um það nýjasta sem er að gerast í málefnum upplýsingasamfélagsins á Norðurlöndum.
IV. „FÓLK OG HAF Í NORÐRI“
Áherslur Íslands hvað varðar norrænt samstarf um þróun í átt að sjálfbæru samfélagi á norðurslóðum og vestnorrænum svæðum
Inngangur.
Á formennskuárinu 1999 hyggjast Íslendingar leggja sérstaka áherslu á ábyrga auðlindanýtingu, hreint umhverfi, náttúruvernd og heilbrigt mannlíf á norðurslóðum og á Vestur-Norðurlöndum. Þó norðlægar slóðir séu eitt þeirra svæða í heiminum sem eru tiltölulega óspillt er ljóst að á síðustu árum hefur mannlíf og náttúra þar átt við ákveðin vandamál að stríða. Vandamálin eru í senn af vistrænum og félagslegum toga og eðli þeirra þannig að þau verða ekki leyst nema með þverfaglegu og fjölþjóðlegu samstarfi. Hugmyndir um sjálfbært samfélag á norðurslóðum og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda falla vel að þeirri áherslu sem lögð er á sjálfbært samfélag á Norðurlöndum í samstarfi þeirra. Þessar áherslur eru í samræmi við þá áherslu sem Finnar leggja á Norðlægu víddina í samstarfi Evrópusambandsins og verður leitast við að kynna okkar sjónarmið við mótun þeirrar stefnu sem þar stendur fyrir dyrum.
Áætlun þessi tekur til verkefna sem heyra m.a. undir umhverfis-, sjávarútvegs-, landbúnaðar-, mennta-, rannsókna-, byggðamála-, samgöngumála- og orkumálasvið. Áætlunin hefur verið samin í samvinnu fulltrúa ýmissa sviða með það að markmiði að hún verði höfð til hliðsjónar á formennskuári Íslendinga eftir því sem við á. Áætlunin felur í sér þau markmið sem Íslendingar munu vinna að á formennskuári sínu hvað varðar norðurslóðir og vestnorræn svæði.
Markmiðin eru:
1.0 Að stuðla að sjálfbæru samfélagi á Norðurlöndum með sérstakri áherslu á norðurslóðir og vestnorræn svæði.
Hér er um yfirgripsmikið markmið að ræða og því hafa Íslendingar valið að leggja áherslu á fáein svið sem mikilvægt er að fjalla um í þessu sambandi.
1.1 Sjálfbær nýting auðlinda hafsins
Íbúar á norðurslóðum og á vestnorrænum svæðum eiga það sameiginlegt að byggja afkomu sína á nýtingu náttúruauðlinda, einkum auðlinda hafsins. Sjálfbær nýting þeirra er því ein af grundvallarforsendum þess að lífsskilyrði íbúanna séu tryggð. Nýting þessara auðlinda er einnig nátengd menningu og hefðum þessara þjóða. Þó sumar þjóðir á norðurslóðum njóti virðingar fyrir umgengni og stjórnun á nýtingu auðlinda hafsins er sjálfsagt að vera á verði gagnvart ofnýtingu. Sama máli gegnir um mengun hafsins í Norður- og Norðvestur-Atlantshafi. Því verður á formennskuári Íslands lögð sérstök áhersla á verkefni sem dregið geta úr mengun og stuðlað að skynsamlegri nýtingu endurnýjanlegra auðlinda á svæðinu.
Varðandi auðlindastjórnun hafa íbúar á norðurslóðum og vestnorrænum svæðum reynslu sem vert er að miðla bæði innan svæðisins og til umheimsins Nátengt þessu er rétturinn til að nýta auðlindir hafsins, þ.m.t. sjávarspendýr. Verndun umhverfisins er frábrugðin verndun auðlinda að því leyti að mengun á að mestu leyti upptök sín utan svæðisins. Því nægir ekki að beita sér fyrir aðgerðum innan svæðisins eingöngu til að ná þeim árangri sem stefnt er að. Hér er vert að benda á að á næsta ári mun CSD (Umhverfisnefnd Sameinuðu þjóðanna) leggja áherslu á hafið og sjálfbæra nýtingu þess á árlegum fundi sínum og gefur það einnig tilefni til áherslu á málefni hafsins í norrænu samstarfi. Einnig er rétt að benda á það að á fundi Norðurskautsráðsins 17.–18. september sl. var samþykkt aðgerðaáætlun um verndun hafsins á norðurskautssvæðinu og verður henni hrint í framkvæmd sem fyrst.
1.2 Sjálfbær þróun landbúnaðar og verndun landgæða
Á norðurslóðum, þar sem land er viðkvæmt, og víða hjá öðrum löndum er lögð vaxandi áhersla á varðveislu og endurheimt landgæða, en landbúnaður byggir í grundvallaratriðum á hæfilegri landnýtingu þar sem ekki er gengið á auðlindina sem slíka og landinu skilað jafn hæfu til framleiðslu frá einni kynslóð til annarrar. Hér er um ung vísindi að ræða, sem hafa aflað sér sér viðurkenningar á síðustu árum. Á formennskuári Íslands verður lögð áhersla á að vitneskja sem þegar er orðin til á þessu sviði verði nýtt. Í því sambandi verði einnig horft til þróunarríkja þar sem vankunnátta í meðferð landgæða mun leiða til skertrar framleiðslugetu
1.3 Sjálfbær þróun í samfélögum á norðurslóðum og vestnorrænum svæðum.
Smáar byggðir á norðurslóðum eiga margt sameiginlegt þegar kemur að skipulagningu og þróun byggða á köldum og viðkvæmum svæðum. Nægir þar að nefna sorp og úrgangsmál, náttúruvernd, ferðamennsku, orkumál og fleira. Innan Norrænu ráðherranefndarinnar hefur verið unnið að sumum þeim þáttum sem hér hafa verið nefndir. Í Norðurskautssráðinu hefur verið lögð áhersla á það frá Íslands hálfu að gerð verði heildstæð áætlun um sjálfbæra þróun á norðurskautssvæðinu. Við leggjum til að gerð verði könnun á því hverju þarf að bæta við þá rannsóknavinnu sem þegar hefur farið fram til að markmiðið um sjálfbæra þróun í samfélögum á norðurslóðum og vestnorrænum svæðum geti orðið að veruleika.
1.4 Verndun náttúrunnar og líffræðilegrar fjölbreytni á norðurslóðum.
Náttúra á norðurslóðum og vestnorrænum svæðum er afar viðkvæm. Aukið álag á náttúruna getur haft í för með sér óbætanlegt tjón. Því verður lögð áhersla á það af Íslands hálfu að unnið verði að verkefnum sem stuðla að náttúruvernd á Norðurslóðum. Einn af vinnuhópum Norrænu ráðherranefndarinnar er að vinna að áætlun, „Handlingsplan om Naturskydd i Arktis“. Ísland vill, eftir því sem tilefni gefst til, leggja áherslu á framkvæmd þeirrar áætlunar. Þetta markmið er eitt af þeim málum sem við leggjum mikla áherslu á og búast má við því að áætlunin „Handlingsplan om Naturskydd i Arktis“ innihaldi tillögur um verkefni sem þjóni þessu.
1.5 Atvinnuþróun á Vestur-Norðurlöndum og norðurslóðum.
Frjáls samkeppni hvað varðar verslun og viðskipti er vaxandi krafa í heiminum í dag. Tollaívilnanir og verndaraðgerðir verða æ verr séðar í ljósi þróunarinnar hjá GATT-WTO og alþjóðavæðingarinnar. Jaðarsvæðin verða að taka mið af þessari þróun ef þau ætla að eiga aðild að henni og njóta fjárfestinga. Vandamál jaðarsvæða hvað varðar aðgengi hafa í för með sér aukinn kostnað, sem gerir þessum svæðum erfitt að taka þátt í alþjóðaviðskiptum. Hluti ástæðunnar liggur í því að efnahagur landanna byggist að mestu leyti á endurnýjanlegum fiskauðlindum en náttúrulegar sveiflur valda því að erfitt er að gera fjárfestingaráætlanir sem standast samkeppni; og hluti hennar liggur í legu landanna sem veldur auknum kostnaði.
Þörf er á að kanna þessi mál í löndunum í Norður-Atlantshafi en niðurstöður slíkrar úttektar væru mjög gagnlegar stjórnendum og stjórnmálamönnum í löndunum. Á slíkri könnun má byggja þegar þróaðar eru leiðir til að finna á hvaða sviðum styrkur svæðisins liggur og þannig vega upp á móti þeim vandamálum sem upp koma vegna legu landanna og aðgengis.
2.0 Að auka samskipti og upplýsingastreymi milli fólks/íbúa á norðurslóðum og vestnorrænum svæðum.
Byggð á norðurslóðum er dreifð og samgöngur oft erfiðar. Upplýsingatækni nútímans býður upp á ýmsa möguleika til að stuðla að þekkingu og menntun. Það er til dæmis mikilvægt að miðla þekkingu og lausnum á vandamálum af sama toga. Það hefur einnig mikla þýðingu að niðurstöður rannsókna og kannana sem gerðar eru á norðurslóðum séu gerðar aðgengilegar fyrir sem flesta, bæði almenning og rannsóknastofnanir. Samstarf menntastofnana og norðurslóðastofnana eru einn mikilvægasti þátturinn í þessu efni.
3.0 Að auka skilning og þekkingu umheimsins á lífi og kjörum fólks á norðurslóðum og vestnorrænum svæðum.
Íbúum á norðurslóðum og vestnorrænum svæðum hefur stundum þótt gæta skilningsleysis á menningu þeirra og tengslum við náttúruna, ekki síst þegar nýtingu náttúruauðlinda ber á góma. Upplýsingamiðlun í þessu samhengi er því mjög mikilvæg. Umræða um siðfræði veiðimannsins og siðfræði náttúruverndar væri tilvalið innlegg í umræður um þetta mál. Hér veltur á miklu að valdir séu markhópar og leiðir sem skila árangri til aukins skilnings á menningarlegri fjölbreytni með sérstöðu norðlægra og vestnorrænna svæða í huga. Vel má hugsa sér samvinnuverkefni mennta-, sjávarútvegs- og umhverfisgeira á þessu sviði.
1 Sbr. m.a. vinnuskjal framkvæmdastjórnar ESB um framkvæmd neytendalöggjafar í Evrópu svo og kröfur ýmissa aðila t.d. kaupmanna, lögmanna á Norðurlöndum (t.d. í Danmörku, þar sem þeir hafa krafist „mindre sjusk i lovgivningen“) en þeir aðilar halda því fram að reglur séu orðnar of margar og að oft skorti nægilega yfirsýn yfir skyldur neytenda og réttindi en á hinn bóginn sé nauðsynlegt að tryggja skilvirka framkvæd á þeim réttarreglum sem eru í gildi hverju sinni.