Ferill 488. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 798 — 488. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um réttindi heyrnarlausra.
Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.
Hvernig hyggst ráðherra tryggja þau sjálfsögðu mannréttindi þeirra Íslendinga sem eru heyrnarlausir eða heyrnarskertir að fylgjast með almennri stjórnmálaumræðu fyrir Alþingiskosningarnar í vor?