Ferill 495. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 805  —  495. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um aðgerðir til að bæta tengsl atvinnulífs og einkalífs.

Flm.: Kristín Ástgeirsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd er hafi það hlutverk að setja fram til­lögur um aðgerðir sem auðveldi fólki að samræma betur en nú atvinnulíf og einkalíf. Verði tillögurnar unnar í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélög, Skrifstofu jafnréttis­mála og kvennasamtök.
    Tillögurnar skulu m.a. taka til:
     a.      vinnutíma og sveigjanleika á vinnumarkaði,    
     b.      leyfis vegna veikinda barna,
     c.      lengingar fæðingarorlofs kvenna og karla,
     d.      hvatningar til karla um að þeir nýti rétt sinn til fæðingarorlofs og leyfis vegna veikinda barna,
     e.      hvatningar til karla um að þeir sinni betur uppeldis- og heimilisskyldum sínum,
     f.      hvatningar til vinnuveitenda um að sýna foreldrum ungra barna meiri skilning og sveigjanleika í skipulagi vinnunnar,
     g.      nauðsynlegra úrbóta í launamálum kvenna,
     h.      þjónustu við fjölskyldur vegna barna og aldraðra,
     i.      skólatíma barna,
     j.      möguleika til samveru, tómstundastarfs og menningarlífs,
     k.      möguleika fólks til endurmenntunar,
     l.      fræðslu um hlutverk og ábyrgð foreldra,
     m.      fræðslu um jafnrétti á heimilum,
     n.      hlutverks atvinnurekenda og stéttarfélaga við að skapa betra vinnuumhverfi og bættar aðstæður fólks til að samræma einkalíf og atvinnu.
    Tillögur skulu lagðar fram innan árs og þeim hrint í framkvæmd á næstu fjórum árum.

Greinargerð.


    Í umræðu sem nú fer fram víða um heim um verkefni kvennabaráttunnar ber einna hæst kröfur um aðgerðir af hálfu opinberra aðila og vinnumarkaðarins í heild sem verða megi til að auðvelda fólki að samræma betur en nú atvinnulíf og einkalíf. Þegar bandaríski femínist­inn Gloria Steinem var spurð hvert hún teldi vera mikilvægasta baráttumál kvennahreyfinga á næstu 25 árum nefndi hún fyrst jafnrétti á heimilunum. Hún sagði að undanfarin 25 ár hefði umræðan um stöðu kynjanna einkum snúist um jafna möguleika utan veggja heimilanna, úti á vinnumarkaðinum, en að jafnrétti þar næðist aldrei nema jöfnuður ríkti í verkaskiptingu á heimilum.
    Í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 1998–2001 um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna er vikið að tengslum atvinnulífs og fjölskyldulífs (liður 3.12) og er þar gert ráð fyrir rannsókn á viðhorfum karla og kvenna, sem og atvinnurekenda. Það er gott og blessað en dugar allt of skammt. Annars staðar á Norðurlöndum er mikið rætt um samhengi atvinnu og einkalífs og til hvaða aðgerða þurfi að grípa til að bæta tengslin þar á milli. Slík­um aðgerðum er ætlað að minnka vinnuálag á konum með því að hvetja til jafnari verkaskipt­ingar á heimilum og þar með að fá karla til að sinna hlutverki sínu sem heimilisfeður (feður) betur og sjá til þess að þeir hafi til þess svigrúm, auk þess að koma til móts við gjörbreytta fjölskylduhætti. Litið er á slíkar aðgerðir sem leið til jafnréttis á heimilum og sem aðgerð til að bæta stöðu barna.
    Í allri stefnumótun sem varðar daglegt líf fólks er mikilvægt að átta sig á mismunandi fjöl­skyldugerðum og því að börn og fullorðnir verði að geta sinnt bæði atvinnu og einkalífi hvernig sem fjölskyldan er. Þá er einnig brýnt að samræma betur atvinnulíf og einkalíf til að tryggja öryggi barna og draga úr andlegu álagi, svo og vegna fjölbreytilegra hlutverka sem einstaklingar þurfa að sinna í lífi sínu. Hægt er að draga úr slíku álagi með aukinni samvinnu innan fjölskyldna, sveigjanleika á vinnumarkaði, bættri félagsþjónustu o.fl. Síðast en ekki síst gætu slíkar aðgerðir orðið til að draga úr upplausn og sundrungu fjölskyldna sem er eitt þeirra einkenna nútímasamfélaga sem einkum bitna á börnum.
    Á vettvangi Evrópusambandsins eru tengsl atvinnulífs og einkalífs mjög til umræðu, bæði sem hluti af jafnréttisáætlun sambandsins og þáttur í félagsmálastefnu þess. Ástæða umræð­unnar er sívaxandi atvinnuþátttaka kvenna sem breytir öllum aðstæðum á heimilum og um leið þörfinni fyrir þjónustu við fjölskyldur. Evrópusambandið hefur beint sjónum að þeim miklu breytingum sem eru að verða á samsetningu fjölskyldna um alla Evrópu. Þeim heim­ilum þar sem aðeins býr einn fullorðinn með eða án barna fjölgar stöðugt. Þá fjölgar einstæðum foreldrum jafnt og þétt, hópur aldraðra fer sístækkandi og hjónaskilnaðir færast í vöxt. Um leið fer barneignum fækkandi. Kannanir sýna að einstaklingum sem búa einir er hættara en öðrum við að lenda út af beinu brautinni. Hér á landi má m.a. sjá þetta í tölum Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar þar sem einhleypir karlar eru stærsti hópur þeirra sem njóta félagslegrar aðstoðar. Þá má ekki gleyma hópum fólks sem samfélagið þarf að gefa sérstakan gaum, svo sem fötluðum, öldruðum og útlendingum sem hér setjast að. Eitt af hlut­verkum stjórnvalda er að bregðast við slíkum breytingum, marka stefnu og finna leiðir til úr­bóta þar sem þeirra er þörf, auk þess að upplýsa almenning og efla umræður um þróun sam­félagsins.
    Samkvæmt könnun Hagstofunnar á heimilum hér á landi voru þau árið 1998 samtals 89.900. Á tæplega fjórðungi heimila býr aðeins einn. Á öðrum fjórðungi heimila búa tveir fullorðnir með börn undir 16 ára aldri, en á tæplega 38% heimila búa fleiri en tveir fullorðnir. Þessar tölur sýna að heimili með foreldri/foreldra og börn yfir 16 ára aldri eða önnur samsetn­ing fullorðinna er algengasta tegund heimila hér á landi. Óhætt er að fullyrða að miklar breyt­ingar hafa orðið á samsetningu fjölskyldna ef litið er til lengri tíma og að þær hafa haft gífurlegar afleiðingar fyrir líf fólks. Brýnt er að draga breytingarnar fram í dagsljósið, gera sér grein fyrir afleiðingum þeirra og orsökum og grípa til nauðsynlegra aðgerða til að bæta mannlífið, ekki síst með hag barna í huga.
    Vinnutími hefur löngum verið lengri hér en gengur og gerist í öðrum Evrópulöndum. Einkum hefur vinnutími karla utan heimilis verið langur, en þeim konum sem vinna fullan vinnudag utan heimilis fjölgar stöðugt. Þar við bætist öll sú ólaunaða vinna sem unnin er innan heimilanna og hvílir enn að meiri hluta á herðum kvenna. Langur vinnutími þýðir að gengið er á þær stundir sem fólk hefur til samvista við fjölskyldu sína eða vini utan vinnu­tíma. Óhætt er að fullyrða að íslenskir karlmenn hafa löngum átt lítinn frítíma og að það hefur bitnað á samskiptum við fjölskyldur þeirra. Greinilegt er að kröfur karlmanna um að fá tíma fyrir fjölskylduna, hvort sem það er við fæðingu barns eða síðar, aukast stöðugt og er það vel. Fregnir að utan herma að æ erfiðara verði að fá fólk til að sinna störfum sem kalla á miklar fjarvistir eða röskun á heimilishögum og að það eru karlmennirnir sem láta ekki lengur bjóða sér slík býti. Við þessu þarf samfélagið að bregðast og koma betur til móts við fjölskyldurnar.
    Eftir því sem rannsóknum á heilsufari fólks fleygir fram kemur æ betur í ljós hve góð hvíld, hæfileg hreyfing og gott félagslíf eru öllum nauðsynleg. Til þess að ná æskilegu jafn­vægi milli vinnu og frístunda, hvernig sem þær eru nýttar, þarf breytingar á vinnumarkaðin­um og aukinn skilning á sveigjanleika, bæði hvað varðar vinnutíma og þjónustu sem snýr að einkalífi fólks.
    Það er ekki nægjanlegt að einblína á vinnutíma fullorðinna, einnig þarf að skoða vinnu­tíma og frístundir barna og kanna hvað þeim er boðið upp á og hvernig auðvelda má þeim að samræma nám, frístundastarf, menningu og fjölskyldulíf, t.d. með betra skipulagi.
    Launamál í landinu eru sérstakur kapítuli út af fyrir sig, ekki síst það mikla launamisrétti milli karla og kvenna sem viðgengst. Ljóst er að lág laun og langur vinnutími kemur illa niður á þeim fjölskyldum sem búa við slíkar aðstæður, ekki síst einstæðum foreldrum og börnum þeirra. Nefnd Sameinuðu þjóðanna sem kannaði hvernig Íslendingar hafa staðið við barna­sáttmála Sameinuðu þjóðanna benti á misrétti sem börn einstæðra foreldra búa við hér á landi sökum bágra aðstæðna. Slíkt á ekki að líða og þær verða síst til að hjálpa fólki að ná æskilegu jafnvægi milli atvinnu og einkalífs.
    Þannig mætti fara yfir fleiri þætti sem snúa að atvinnu og einkalífi fólks. Í tillögugreininni er vikið að flestum þeim þáttum sem þarf að kanna og nauðsynlegt er að taka á til að auðvelda fólki að bæta tengsl einkalífs og atvinnulífs. Hér er um það að ræða að ríkisvaldið marki stefnu sem nái til sem flestra hópa samfélagsins, leitað verði samvinnu við sveitarfélög, atvinnurekendur og stéttarfélög í landinu, m.a. með það í huga að þessir aðilar semji í ríkari mæli en gert hefur verið um langt skeið um félagslegar aðgerðir sem bæta lífsgæðin. Þess má geta hér að Evrópusambandið hefur beint því til aðila vinnumarkaðarins innan Evrópusam­bandsins að þeir semji oftar en hingað til um möguleika fólks til endurmenntunar þar sem augljóst er að þörf fyrir endurmenntun verður æ brýnni í nánast öllum atvinnugreinum.
    Eitt af hlutverkum ríkisvaldsins er að leggja fram upplýsingar um breytingar og þróun samfélagsins þannig að einstaklingar, skólar, stéttarfélög, vinnuveitendur og aðrir sem hafa áhrif á daglegt líf fólks taki mið af þeim og bregðist við.
    Annað hlutverk sem ríkisvaldið hefur tekið að sér og á að sinna er að stuðla að sem mestu jafnrétti þegnanna, ekki síst jafnrétti karla og kvenna. Því miður er víða pottur brotinn í þeim efnum hér á landi sem annars staðar og því þörf margvíslegra aðgerða. Í tillögugreininni er vikið að fjölmörgum atriðum sem snerta stöðu kynjanna, enda löngu ljóst að besta aðferðin til að bæta tengsl atvinnu og einkalífs, og þar með að tryggja öryggi og velferð barna, er að jafna sem mest aðstöðu kynjanna. Í því felst m.a. að útrýma launamisrétti og vekja karlmenn til vitundar um uppeldis- og heimilisskyldur þeirra. Síðast en ekki síst er það skylda ríkis­valdsins að taka til í eigin ranni og vekja aðila vinnumarkaðarins af þungum svefni, þannig að þeir stefni inn í 21. öldina sem hluti af samfélagi sem virðir jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna, samfélagi sem telur sitt æðsta hlutverk að tryggja börnum gott og gjöfult líf.