Ferill 518. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 832  —  518. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um ofbeldi gegn gömlu fólki.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



     1.      Hafa heilbrigðisyfirvöld staðið fyrir könnun á umfangi og eðli ofbeldis gegn gömlu fólki þar sem makar eða skyldmenni eru gerendur?
     2.      Ef slík könnun hefur ekki farið fram, er fyrirhugað að gera hana?
     3.      Hafa einstakar heilbrigðisstofnanir, svo sem elli- eða hjúkrunarheimili, gert slíkar kannanir meðal vistmanna sinna og skjólstæðinga?
     4.      Hafa ráðuneytinu borist upplýsingar um ofbeldi gegn gömlu fólki, í heimahúsum eða á stofnunum, eða kærur vegna þess á undanförnum fimm árum?