Ferill 535. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 859 — 535. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um dragnótaveiðar í Faxaflóa.
Frá Guðjóni Guðmundssyni.
1. Hve mikill dragnótarafli barst á land úr Faxaflóa sl. þrjú fiskveiðár, þ.e. heildarmagn hvert ár, sundurliðað eftir fisktegundum?
2. Hvar var aflanum landað og hve miklu á hverjum löndunarstað?
3. Hvaða bátar hafa leyfi til þessara veiða og hvar eru þeir skráðir?
Skriflegt svar óskast.