Ferill 543. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 868  —  543. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á orkulögum, nr. 58/1967, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 123. löggjafarþingi 1998–99.)



1. gr.

    Við 61. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Rafmagnsveitum ríkisins er heimilt að stofna og eiga hlut í félögum sem hafa það að meg­intilgangi að framleiða, flytja, dreifa eða selja orku. Fyrirtækinu er jafnframt heimilt að stofna og eiga hlut í félögum til að hagnýta þá sérþekkingu og búnað sem fyrirtækið ræður yfir til rannsóknar- og þróunarstarfa á sviði orkumála og til orkuverkefna erlendis. Til að stofna eða eiga hlut í félögum þarf heimild ráðherra hverju sinni. Áður en ráðherra veitir slíka heimild skal leitað álits fjármálaráðherra.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Tilgangur þessa lagafrumvarps er að afla lagaheimildar fyrir Rafmagnsveitur ríkisins annars vegar til að stofna og eignast hlut í félögum með það að markmiði að gera fyrirtækinu kleift að taka þátt í samstarfi við aðra aðila á sviði orkumála og hins vegar til að stofna eða eiga hlut í félögum til að nýta þá þekkingu og búnað sem Rafmagnsveiturnar búa yfir til efl­ingar útflutningi á sérþekkingu í þágu fyrirtækisins sjálfs.
    Varðandi fyrra atriðið eiga Rafmagnsveitur ríkisins nú í formlegu samstarfi við fjölmarga aðila. Má þar nefna Stykkishólmsbæ vegna hitaveituframkvæmda í Stykkishólmi, Norð­lenska orku ehf. um Villinganesvirkjun, Sunnlenska orku ehf. um virkjun í Grensdal og all­marga aðila vegna rannsókna á háhitasvæðinu í Öxarfirði. Öll þessi verkefni falla beint undir tilgang og verksvið Rafmagnsveitna ríkisins eins og þau eru skilgreind í orkulögum. Nú er hins vegar komið að því að stofna þarf til formlegs félagsskapar vegna framangreindra verk­efna og því mikilvægt að Rafmagnsveiturnar hafi skýra heimild til þátttöku í þeim félögum sem til stendur að stofna.
    Varðandi seinna atriðið hafa Rafmagnsveiturnar bæði einar sér og í samstarfi við aðra staðið að markaðssetningu á íslenskri sérþekkingu tengdri orkumálum erlendis. Ástæða er til að Rafmagnsveiturnar geti einnig stofnað félög eða tekið þátt í félögum sem starfa að til­teknum verkefnum, bæði til samstarfs við aðra og ekki síður til takmörkunar á áhættu þar sem það á við. Þá er einnig mikilvægt að Rafmagnsveiturnar geti á sama hátt staðið að og tekið þátt í rannsóknar- og þróunarverkefnum. Breytingin heimilar Rafmagnsveitunum hins vegar ekki að taka að sér ráðgjöf eða verktöku hér á landi í samkeppni við önnur fyrirtæki á almennum markaði.
    Gert er ráð fyrir að verkefni sem fyrirtækið ræðst í á grundvelli lagaheimildarinnar stuðli að hagkvæmari rekstri fyrirtækisins og skili því arði. Í því sambandi er einnig rétt að nefna að samkvæmt samningi ríkissjóðs og Rafmagnsveitnanna frá 9. janúar 1995 er gert ráð fyrir að hluta af arðgreiðslum þess verði varið til rannsóknar- og þróunarverkefna. Er gert ráð fyrir að sú heimild sem fyrirtækinu er veitt með þessari grein nýtist því meðal annars í slík­um verkefnum. Þar sem Rafmagnsveiturnar eru ríkisfyrirtæki og undir yfirstjórn ráðherra samkvæmt orkulögum er talið rétt að leita þurfi hverju sinni heimildar hans til að stofna félög eða kaupa hlut í félögum. Jafnframt þykir rétt til að stuðla að samræmi að leitað sé álits fjármálaráðherra hverju sinni.
    Í frumvarpinu er lagt til að Rafmagnsveitum ríkisins verði heimilað að stofna og eiga hlut í félögum. Þeim verði hins vegar einvörðungu heimilt að stofna eða eiga hlut í félögum sem hafa þann megintilgang að framleiða, flytja, dreifa eða selja orku, stunda rannsóknir og þróunarstarfsemi eða sinna verkefnum erlendis. Iðnaðarráðherra veitir Rafmagnsveitunum heimild til að stofna eða eignast hlut í félögum en leita skal álits fjármálaráðherra áður en slík heimild er veitt.


Fylgiskjal.

Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á orkulögum,
nr. 58/1967, með síðari breytingum.

    Með frumvarpi þessu er lagt til að Rafmagnsveitum ríkisins verði heimilt að stofna eða eiga hlut í félögum sem hafa það að megintilgangi að framleiða, flytja, dreifa eða selja orku. Fyrirtækinu er jafnframt heimilt að stofna eða eiga hlut í félögum til að hagnýta þekkingu sína og starfsreynslu á sviði orkumála og orkuverkefna erlendis.
    Ekki verður séð að samþykkt frumvarpsins hafi kostnað í för með sér fyrir ríkissjóð.