Ferill 551. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 890  —  551. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um áhrif Nesjavallavirkjunar á lífríki Þingvallavatns.

Frá Guðna Ágústssyni.



     1.      Hversu miklu affallsvatni er veitt frá Nesjavallavirkjun til Þingvallavatns eða í grunnvatn sem streymir til Þingvallavatns?
     2.      Hvaða skaðleg efni og efnasambönd eru í affallsvatninu og hver verður styrkur þeirra þegar þau berast í Þingvallavatn?
     3.      Hvaða áhrif munu þessi efni hafa á lífríki Þingvallavatns og hversu vel hefur það verið kannað?
     4.      Hvaða áhrif munu efnin í affallsvatninu hafa á nýtingarhæfni hitaveituvatnsins sem sent er frá Nesjavallavirkjun til höfuðborgarsvæðisins?
     5.      Hversu mikið af næringarefnum er áætlað að berist til Þingvallavatns frá Nesjavallavirkjun, sumarbústöðum, ferðamönnum og af völdum annarrar landnýtingar og hvaða áhrif munu efnin hafa á lífríki vatnsins og útlit þess?


Skriflegt svar óskast.



















Prentað upp.