Ferill 563. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 916 — 563. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um PCB-mengun.
Frá Kristjáni Pálssyni.
1. Eru áform um að skrá staði þar sem PCB-eiturefni eru urðuð eða geymd?
2. Eru áætlanir um eyðingu PCB-eiturefna?
3. Er einhver vöktun á stöðum þar sem eiturefni eru geymd eða hafa verið urðuð?
4. Eru ákvæði um bann við notkun eiturefna eða um vöktun slíkra efna komin til framkvæmda, sbr. alþjóðlegan samning sem undirritaður var í Árósum sl. sumar?