Ferill 323. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 934  —  323. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um Lífeyrissjóð bænda.

Frá Pétri H. Blöndal og Gunnlaugi M. Sigmundssyni.



     1.      Við 1. gr. Við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Sjóðurinn er eign sjóðfélaga og lífeyrisþega. Innstæða eða réttindi skv. 7. gr. eru eign rétthafa.
     2.      Við 8. gr. Greinin orðist svo:
                  Félagsfundur fer með æðsta vald í málefnum sjóðsins. Heimild til að sitja félagsfund hafa sjóðfélagar eða umboðsmenn þeirra. Stjórn lífeyrissjóðs boðar til félagsfundar. Henni ber að boða félagsfund innan viku ef sjóðfélagar með1/ 10atkvæðavægis eða endurskoðendur sjóðsins krefjast þess skriflega og greina fundarefni. Til félagsfundar skal boðað með dagskrá í auglýsingu í fjölmiðlum með minnst fjögurra vikna og mest sjö vikna fyrirvara.
                  Atkvæðisréttur sjóðfélaga á félagsfundi fer eftir áunnum og framreiknuðum iðgjöld­um þeirra eftir nánari ákvæðum í samþykktum sjóðsins skv. 22. gr. Sjóðfélagi getur veitt öðrum skriflegt umboð til þess að fara með atkvæði sitt á félagsfundi. Slíkt umboð gildir aldrei lengur í en tvö ár og það má afturkalla hvenær sem er.
                  Árlega skal halda félagsfund, ársfund, í síðasta lagi fjórum mánuðum eftir lok     reikn­ingsárs. Í fundarboði skal auglýst eftir framboðum til stjórnar og gefa tveggja vikna framboðsfrest. Á ársfundi skal taka fyrir skýrslu stjórnar, ársreikninga, tryggingafræði­lega úttekt, fjárfestingarstefnu, laun stjórnar og tillögu stjórnar eða félagsmanna um breytingar á samþykktum sjóðsins. Til breytinga á samþykktum sjóðsins þarf 2/ 3 hluta atkvæða.
                  Stjórn sjóðsins og endurskoðanda skal kjósa beint á ársfundi eða með almennri leyni­legri póstatkvæðagreiðslu fyrir ársfund.
     3.      Við 22. gr. Á eftir 1. málsl. komi nýr málsliður, svohljóðandi: Þar komi m.a. fram að hver sjóðfélagi verði reglulega upplýstur um réttindi sín og eign sína í sjóðnum sem er verðmæti réttinda hans í sjóðnum, þ.e. hlutdeild hans í hreinni eign til greiðslu lífeyris.
     4.      Við frumvarpið bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                  Stjórn sjóðsins sem situr við gildistöku laga þessara skal sitja þar til ný stjórn hefur verið kjörin á fyrsta ársfundi eftir gildistöku laga þessara, sbr. 8. gr.
                  Ákvæði laga nr. 50/1984 um skipulag og starfsemi sjóðsins skulu gilda eftir því sem við á þar til nýjar reglur hafa verið settar á fyrsta ársfundi, sbr. 22. gr.