Ferill 578. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 951  —  578. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um afföll á húsbréfalánum.

Frá Kristjáni Pálssyni.



     1.      Hver var heildarfjöldi húsbréfalána árin 1990–93?
     2.      Hve há voru afföll húsbréfalána í prósentum þennan tíma að meðaltali eftir mánuðum?
     3.      Hve háar upphæðir þurftu húsbréfakaupendur að greiða á þessum árum?
     4.      Hve hátt fóru afföllin á einn einstakling á þessum tíma?


Skriflegt svar óskast.