Ferill 183. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 971  —  183. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á skaðabótalögum, nr. 50 19. maí 1993, sbr. lög nr. 42 13. maí 1996.

Frá meiri hluta allsherjarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðmund Jónsson, Gest Jónsson og Sigrúnu Guðmundsdóttur frá nefnd um endurskoðun skaðabótalaga, Benedikt Bogason frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti, Axel Gíslason, Sigmar Ármannsson og Bjarna Guðmundsson frá Sambandi íslenskra tryggingafélaga, Pál Gunnar Pálsson, Rúnar Guðmundsson og Helga Þórsson frá Fjármálaeftirlitinu og Guðríði Ólafsdóttur, Helga Seljan og Jóhannes Albert Sævarsson frá Öryrkjabandalagi Íslands. Þá komu á fund nefndarinnar Hrafn Magnússon og Haukur Hafsteinsson frá Landssamtökum lífeyrissjóða, Magnús Norðdahl og Ari Skúlason frá Alþýðusambandi Íslands, Jón R. Pálsson frá Vinnumálasambandinu, Marteinn Másson frá Lögmannafélagi Íslands og Þórarinn V. Þórarinsson frá Vinnuveitendasambandi Íslands.
    Nefndinni bárust umsagnir frá Bændasamtökum Íslands, Bandalagi háskólamanna, Ör­yrkjabandalagi Íslands, Vátryggingaeftirlitinu, Tryggingastofnun ríkisins, Alþýðusambandi Íslands, Vinnumálasambandinu, Sambandi íslenskra tryggingafélaga, Lögmannafélagi Ís­lands, Umferðarráði, Sambandi almennra lífeyrissjóða, Landssambandi lífeyrissjóða, Vinnu­veitendasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Félagsmálastofnun Reykjavík­urborgar, Læknafélagi Íslands og Guðmundi Skaftasyni, fyrrverandi hæstaréttardómara.
    Frumvarpið er samið af Guðmundi Jónssyni, fyrrverandi hæstaréttardómara, og Gesti Jónssyni hæstaréttarlögmanni, en þeir voru haustið 1996, ásamt Sigrúnu Guðmundsdóttur hæstaréttarlögmanni, skipaðir í nefnd til að vinna að heildarendurskoðun skaðabótalaga. Skilaði nefndin áliti í tvennu lagi þar sem Sigrún skilaði minnihlutaáliti.
    Helstu breytingar á gildandi skaðabótalögum sem lagðar eru til í frumvarpinu eru eftirfar­andi:
     1.      Við útreikning bóta fyrir varanlega örorku verði notaður samfelldur margfeldisstuðull til 75 ára aldurs.
     2.      Við ákvörðun bóta fyrir varanlega örorku verði miðað við fjárhagslegt örorkumat fyrir alla slasaða en ekki einungis þá sem nýta vinnugetu sína til að afla tekna.
     3.      Árslaun til ákvörðunar bóta miðist við meðalatvinnutekjur slasaða síðustu þrjú almanaksárin fyrir slys. Þá verði tekin upp lágmarksviðmiðun við útreikning bóta fyrir varan­lega örorku en hámark viðmiðunarlauna verði óbreytt.
     4.      Reglum um frádrátt frá skaðabótakröfu vegna varanlegrar örorku verði breytt þannig að auk þeirra greiðslna sem nú dragast frá komi greiðslur frá almannatryggingum og hluti örorkulífeyris frá lífeyrissjóði til frádráttar.
     5.      Bótaréttur 70 ára og eldri vegna varanlegrar örorku verði aukinn.
     6.      Heimild til að ákveða álag á miskabætur verði rýmkuð auk þess sem fellt verði niður ákvæði um að bætur greiðist ekki nái miskastig ekki 5%. Þá breytist aldurstengd skerðing miskabóta þannig að hún hefst við 50 ára aldur og verður 1% á ári að 75 ára aldri en engin eftir það.
     7.      Veruleg breyting verði á reglum um örorkunefnd. Aðalreglan verði sú að málsaðilar afli sér sjálfir sérfræðilegra álitsgerða um örorku- og/eða miskamat en báðir aðilar hafi rétt til þess að skjóta slíkum álitsgerðum til örorkunefndar til endurmats. Örorkunefnd verði einungis matsaðili á fyrsta stigi þegar málsaðilar óska þess sameiginlega.
     8.      Ársvextir bóta fyrir þjáningar, varanlegan miska, tímabundið atvinnutjón, missi framfæranda og varanlega örorku hækki úr 2 í 4,5%.
     9.      Heimild til ákvörðunar miskabóta skv. 26. gr. laganna verði rýmkuð. Verði t.d. heimilt að láta þann sem veldur líkamstjóni af ásetningi eða stórfelldu gáleysi greiða miskabæt­ur til þess sem misgert var við. Þá verði heimilt að gera þeim sem af ásetningi eða stór­felldu gáleysi veldur dauða annars manns að greiða maka, börnum eða foreldrum miska­bætur.
    Meðal þess sem rætt var ítarlega í nefndinni er sú breyting sem lögð er til í frumvarpinu að bætur frá lífeyrissjóði og almannatryggingum dragist frá bótum vegna varanlegrar örorku. Ástæða þeirrar breytingar er sú að allt önnur sjónarmið eru uppi í frumvarpinu en í gildandi lögum hvað þetta varðar. Margföldunarstuðullinn er annars eðlis og við það miðaður að tjónþoli fái að fullu bætt það tekjutap sem hann verður fyrir vegna varanlegrar örorku. Áður var margfeldisstuðullinn hins vegar við það miðaður að tjónþoli héldi óskertum rétti til bóta frá þriðja aðila, t.d. almannatryggingum og vátryggingum. Í frumvarpinu er við það miðað að bætur skerðist ekki vegna slysatrygginga eða annarra bótaúrræða sem tjónþoli hefur sjálf­ur kostað með greiðslu iðgjalds en hins vegar komi bætur af félagslegum toga að fullu til frá­dráttar. Litið er svo á að bótaréttur frá lífeyrissjóði sé í senn af félagslegum toga og úrræði sem launþegi kostar sjálfur. Algengast er að vinnuveitandi greiði 60% iðgjalds til lífeyris­sjóðs en launþegi 40%. Með hliðsjón af þessari skiptingu er lagt til í frumvarpinu að 60% bóta frá lífeyrissjóði komi til frádráttar skaðabótakröfu vegna varanlegrar örorku eins og aðrar félagslegar greiðslur. Meiri hlutinn leggur til að sömu reglur gildi um bætur vegna tímabundins atvinnutjóns, enda eðlilegt að hið sama gildi um þetta tvennt hér. Því verði 60% af greiðslum frá lífeyrissjóði vegna tímabundins tekjutjóns dregin frá skaðabótum fyrir tíma­bundna örorku. Þess þarf hins vegar að gæta þegar verðmæti örorkulífeyris er dregið frá bót­um fyrir varanlega örorku að við útreikning bótanna eru þær lækkaðar um þriðjung vegna skattfrelsis og svokallaðs hagræðis af eingreiðslu. Örorkulífeyrir er hins vegar skattskyldur eins og launatekjur. Af þeirri ástæðu er nauðsynlegt að skerða útreiknað eingreiðsluverð­mæti örorkulífeyris um þriðjung áður en dregið er frá. Því er lagt til í frumvarpinu að til frá­dráttar skaðabótum fyrir varanlega örorku komi 40% (þ.e. 2/ 3 af 60%) af reiknuðu eingreiðsluverðmæti örorkulífeyris frá lífeyrissjóði, sbr. 4. gr. frumvarpsins.
    Nokkuð var rætt um 13. gr. frumvarpsins þar sem gert er ráð fyrir að heimild til ákvörðun­ar miskabóta verði rýmkuð. Tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið sem fram koma í at­hugasemdum frumvarpsins við umrædda grein. Þar kemur fram að við mat á fjárhæðum bóta skuli m.a. hafa í huga umfang tjóns, sök tjónvalds og fjárhagsstöðu hans. Séu börn fórnar lömb kynferðisbrota beri að líta til þess hversu alvarlegar afleiðingar brots eru fyrir þau, svo og til eðlis verknaðarins, hve lengi misnotkun hafi staðið og hvort um misnotkun fjölskyldu- eða trúnaðartengsla sé að ræða. Leggur meiri hlutinn sérstaka áherslu á að slík tengsl milli brotamanns og brotaþola eiga ekki að leiða til lækkunar bóta.
    Við meðferð málsins hjá nefndinni lögðu höfundar frumvarpsins til endurskoðaðan marg­feldisstuðul til útreiknings varanlegrar örorku, sbr. 5. gr. frumvarpsins. Við endurskoðunina var forsendum við gerð stuðulsins breytt þannig að atriðum sem hafa áhrif á starfslíkindi er sleppt fram að 67 ára aldri nema tekið er tillit til dánar- og örorkulíkinda á sama hátt og áð­ur. Með þessu er horfið frá tillögu um fráhvarf frá hefðbundinni notkun starfslíkindaþáttar­ins. Sigurður Freyr Jónatansson tryggingastærðfræðingur endurreiknaði stuðulinn í samræmi við þessa breyttu forsendu í samvinnu við Bjarna Þórðarson tryggingastærðfræðing. Þá fóru þeir sameiginlega yfir aðra þætti stuðulsins að ósk nefndarinnar og staðreyndu réttmæti hans miðað við gefnar forsendur.
    Að beiðni nefndarinnar létu höfundar frumvarpsins stilla upp í töflu undirstuðlum sem sameiginlega mynda endurskoðaða margfeldisstuðulinn. Taflan er birt í fylgiskjali með nefndarálitinu. Leggur meiri hlutinn til að sú útgáfa margfeldisstuðulsins sem þar birtist verði tekin inn í frumvarpið.
    Breytingar á frumvarpinu sem meiri hlutinn leggur til, aðrar en þær sem gerð er grein fyrir hér að framan, eru eftirfarandi:
     1.      Lagt er til að í stað orðsins „rúmliggjandi“ í 2. gr. frumvarpsins komi orðið rúmfastur. Í umræddri grein eru tvö orð, rúmliggjandi og rúmfastur, notuð í sömu merkingu. Gæti það valdið ruglingi og er því lagt til að einungis annað þeirra, rúmfastur, verði notað. Telja verður það hugtak heppilegra þar sem það lýsir betur því sem átt er við.
     2.      Lagt er til að í stað orðanna „ekki veikur“ í 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna komi orðið vinnufær. Í umræddum málslið segir að þegar sérstaklega standi á sé heimilt að greiða þjáningabætur þótt tjónþoli sé ekki veikur. Í raun er þar átt við að greiða megi þjáninga­bætur þótt tjónþoli sé farinn að vinna. Bent hefur verið á að orðið veikur hefur tvenns konar merkingu sem vísi annars vegar til sjúkleika og hins vegar til óvinnufærni. Orðið veikur kemur tvisvar fyrir í 1. mgr. 3. gr. laganna og hefur í 1. málsl. merkinguna van­líðan eða veikindi en í 2. málsl. merkinguna óvinnufær. Verður að telja óheppilegt að sama orðið hafi tvær mismunandi merkingar í sömu lagagrein og því er umrædd breyting á orðalagi lögð til. Ekki er um að ræða breytingu á innihaldi greinarinnar heldur er orðalagið einungis gert skýrara.
     3.      Lagt er til að í stað orðanna „eftir að ekki er að vænta þess að tjónþoli nái frekari bata“ í 1. mgr. 5. gr. laganna komi orðin: þegar heilsufar tjónþola er orðið stöðugt. Er sú breyting í samræmi við sams konar breytingar á lögunum sem lagðar eru til í 1., 2. og 3. gr. frumvarpsins.
     4.      Lagt er til að í stað orðanna „þegar honum er metin varanleg örorka“ í 1. efnismgr. 5. og 6. gr. frumvarpsins komi orðin: sem upphaf varanlegrar örorku miðast við. Þá komi í stað orðanna „þegar honum er metin örorka“ í 2. efnismgr. 5. gr. orðin: á þeim tíma sem upphaf varanlegrar örorku miðast við. Með þessari breytingu verður skýrara að bætur vegna varanlegrar örorku reiknast frá þeim degi er tímabundinni örorku lýkur. Ekki er um efnislegar breytingar að ræða.
     5.      Lagt er til að á undan orðinu „gáleysi“ í 2. efnismgr. 13. gr. frumvarpsins komi orðið stórfelldu. Að sögn höfunda frumvarpsins hefur umrætt orð fyrir mistök fallið út úr texta frumvarpsins. Þá er tekið fram í athugasemd við greinina í frumvarpinu að stórfellt gá­leysi þurfi til bótaskyldu í því tilviki sem 2. efnismgr. 13. gr. fjallar um.

    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerðar eru tillögur um í sérstöku þingskjali.

Alþingi, 3. mars 1999.



Sólveig Pétursdóttir,


form., frsm.


Valgerður Sverrisdóttir.


Jón Kristjánsson.



Hjálmar Jónsson.


Árni R. Árnason.


Kristján Pálsson.




Fylgiskjal.


1 2 3 4 5 6 7
Aldur Trygg.-
stuðull m. v.
jafnar
tekjur
Aldurs-
breytinga-
stuðull
tekjufalls
Aldursbrst.
að teknu
tilliti til
núvirðingar
Afvöxt-
un til
18 ára
Stuðull
vegna
skatt-
frelsis
Marg-
feldis-
stuðull
0 21,537 1,300 1,28677001 0,619 0,667 11,438
1 21,537 1,300 1,28677001 0,636 0,667 11,746
2 21,537 1,300 1,28677001 0,653 0,667 12,064
3 21,537 1,300 1,28677001 0,671 0,667 12,389
4 21,537 1,300 1,28677001 0,689 0,667 12,724
5 21,537 1,300 1,28677001 0,707 0,667 13,067
6 21,537 1,300 1,28677001 0,726 0,667 13,420
7 21,537 1,300 1,28677001 0,746 0,667 13,782
8 21,537 1,300 1,28677001 0,766 0,667 14,155
9 21,537 1,300 1,28677001 0,787 0,667 14,537
10 21,537 1,300 1,28677001 0,808 0,667 14,929
11 21,537 1,300 1,28677001 0,830 0,667 15,332
12 21,537 1,300 1,28677001 0,852 0,667 15,746
13 21,537 1,300 1,28677001 0,875 0,667 16,171
14 21,537 1,300 1,28677001 0,899 0,667 16,608
15 21,537 1,300 1,28677001 0,923 0,667 17,057
16 21,537 1,300 1,28677001 0,948 0,667 17,517
17 21,537 1,300 1,28677001 0,974 0,667 17,990
18 21,537 1,300 1,28677001 1,000 0,667 18,476
19 21,388 1,270 1,26454459 1,000 0,667 18,031
20 21,233 1,240 1,2413132 1,000 0,667 17,572
21 21,072 1,210 1,2176876 1,000 0,667 17,106
22 20,905 1,180 1,19296961 1,000 0,667 16,626
23 20,731 1,150 1,16711618 1,000 0,667 16,130
24 20,550 1,120 1,14008244 1,000 0,667 15,619
25 20,363 1,090 1,11240649 1,000 0,667 15,101
26 20,168 1,060 1,08344583 1,000 0,667 14,567
27 19,965 1,040 1,06392913 1,000 0,667 14,161
28 19,755 1,020 1,04404764 1,000 0,667 13,750
29 19,536 1,010 1,0345202 1,000 0,667 13,474
30 19,310 0,970 0,99533764 1,000 0,667 12,813
31 19,075 0,965 0,99046904 1,000 0,667 12,595
32 18,831 0,960 0,98583889 1,000 0,667 12,376
33 18,579 0,955 0,98093661 1,000 0,667 12,150
34 18,317 0,950 0,97574001 1,000 0,667 11,915
35 18,045 0,945 0,97073167 1,000 0,667 11,678
36 17,764 0,940 0,96540227 1,000 0,667 11,433
37 17,473 0,935 0,95972257 1,000 0,667 11,180
38 17,172 0,935 0,95979541 1,000 0,667 10,988
39 16,861 0,935 0,95932798 1,000 0,667 10,784
40 16,539 0,935 0,95929217 1,000 0,667 10,577
41 16,207 0,935 0,95869933 1,000 0,667 10,358
42 15,863 0,930 0,95339605 1,000 0,667 10,083
43 15,509 0,930 0,95279049 1,000 0,667 9,851
44 15,143 0,925 0,9474586 1,000 0,667 9,565
45 14,766 0,920 0,94115602 1,000 0,667 9,265
46 14,377 0,920 0,94040728 1,000 0,667 9,014
47 13,977 0,920 0,93898149 1,000 0,667 8,750
48 13,566 0,915 0,9332288 1,000 0,667 8,440
49 13,142 0,910 0,92635712 1,000 0,667 8,116
50 12,707 0,910 0,92481804 1,000 0,667 7,834
51 12,260 0,920 0,93307715 1,000 0,667 7,626
52 11,801 0,925 0,93680233 1,000 0,667 7,370
53 11,329 0,935 0,94518838 1,000 0,667 7,139
54 10,846 0,950 0,95868031 1,000 0,667 6,932
55 10,350 0,960 0,96776224 1,000 0,667 6,678
56 9,842 0,965 0,97205071 1,000 0,667 6,378
57 9,321 0,965 0,97160987 1,000 0,667 6,037
58 8,786 0,965 0,97092373 1,000 0,667 5,687
59 8,237 0,965 0,97046794 1,000 0,667 5,329
60 7,673 0,965 0,96967428 1,000 0,667 4,960
61 7,092 0,965 0,96897475 1,000 0,667 4,581
62 6,493 0,970 0,9727517 1,000 0,667 4,211
63 5,873 0,980 0,98113217 1,000 0,667 3,841
64 5,229 0,990 0,99007076 1,000 0,667 3,451
65 4,556 1,000 1 1,000 0,667 3,038
66 3,850 1,000 1 1,000 0,667 2,567
67 3,101 1,000 1 1,000 0,667 2,067
68 2,991 1,000 1 1,000 0,667 1,994
69 2,852 1,000 1 1,000 0,667 1,902
70 2,675 1,000 1 1,000 0,667 1,783
71 2,440 1,000 1 1,000 0,667 1,626
72 2,118 1,000 1 1,000 0,667 1,412
73 1,664 1,000 1 1,000 0,667 1,109
74 1,000 1,000 1 1,000 0,667 0,667

    Í 1. dálki sést sá aldur sem miðað er við. Tryggingafræðilegu stuðlarnir í 2. dálki sýna nú­virði 1 kr. árslauna miðað við 4,05% ávöxtun (þ.e. 4,5% fyrir fjármagnstekjuskatt) og að teknu tilliti til dánarlíkinda, örorkulíkinda og starfslíkinda. Í 3. dálki sést aldursbreytinga­stuðull tekjufalls sem notaður var í frumvarpinu frá 1995 og var hugsaður til leiðréttingar á mismunandi tekjum yfir starfsævina. Í 4. dálki er aldursbreytingastuðullinn eftir að reiknuð hafa verið inn áhrifin af núvirðingu þannig að tekjur sem eru næstar í tíma hafi mest vægi. Í 5. dálki eru afvöxtunaráhrifin miðað við 2,7% ávöxtun (þ.e. 3% fyrir fjármagnstekjuskatt) fyrir börn sem eru ekki enn farin að afla sér tekna. 6. dálkur sýnir 33,3% lækkun vegna tekjuskattfrelsis bóta. Að lokum er í 7. dálki sjálfur margfeldisstuðullinn sem er margfeldi af 2., 4., 5. og 6. dálki.