Ferill 73. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1015  —  73. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um sérstakt átak í vegagerð í afskekktum landshlutum.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið. Umsagnir bárust nefndinni frá Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi.
    Í tillögunni er gert ráð fyrir að gert verði sérstakt átak til að ljúka uppbyggingu og lagn­ingu bundins slitlags á vegum sem tengja heila landshluta eða fjölmenn byggðarlög við meginþjóðvegakerfið og á næstu þremur árum verði varið allt að 2.500 millj. kr. úr ríkissjóði til þessa verkefnis, til viðbótar fjármunum af vegáætlun, með það að markmiði að árið 2001 verði allir þéttbýlisstaðir þar sem íbúar eru 100 eða fleiri tengdir þjóðvegakerfi landsmanna með vegum með bundnu slitlagi.
    Samgöngunefnd vekur athygli á því að unnið er að slíku átaki í sérstakri nefnd um byggðamál í tengslum við fyrirhugaða breytingu á kjördæmum og leggur því til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Stefán Guðmundsson og Ásta R. Jóhannesdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 4. mars 1999.



Einar K. Guðfinnsson,


form., frsm.


Guðmundur Árni Stefánsson.


Egill Jónsson.



Ragnar Arnalds.


Árni Johnsen.


Magnús Stefánsson.



Kristján Pálsson.