Ferill 225. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1039 — 225. mál.
Frumvarp til laga
um Orkusjóð.
(Eftir 2. umr., 8. mars.)
1. gr.
2. gr.
Úr Orkusjóði er heimilt:
1. að fjármagna yfirlits- og undirbúningsrannsóknir á orkulindum landsins samkvæmt áætlun sem sjóðurinn gerir til fimm ára á grunni rannsóknaráætlana Orkustofnunar; áætlunina skal endurskoða árlega og skal hún hljóta samþykki ráðherra,
2. að styrkja gerð yfirlitsathugana á möguleikum til að auka hlutdeild innlendra orkulinda í orkubúskap þjóðarinnar,
3. að veita opinberum aðilum, félögum og einstaklingum lán til að leita og afla jarðvarma með jarðvísindalegum forrannsóknum, jarðborunum og vinnslurannsóknum til að meta árangur borana,
4. að styrkja sérstök verkefni á sviði hagkvæmrar orkunotkunar, þar með talda fræðslu og upplýsingastarfsemi, svo og hagrænar athuganir í orkumálum og umhverfisathuganir í tengslum við orkurannsóknir,
5. að veita fyrirtækjum eða einstaklingum styrki eða áhættulán til hönnunar eða smíði frumgerðar tækja og búnaðar sem ætla má að leiði til þess að dregið verði úr notkun jarðefnaeldsneytis.
3. gr.
Orkuráð semur árlega fjárhags- og greiðsluáætlun fyrir Orkusjóð, m.a. á grundvelli áætlunar skv. 1. tölul. 2. mgr. 2. gr., og sendir ráðherra svo snemma að fylgt geti fjárlagafrumvarpi til Alþingis.
Ráðherra ræður framkvæmdastjóra Orkusjóðs að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins.
Orkumálastjóri skal veita orkuráði ráðgjöf eftir því sem um verður beðið.
4. gr.
Framkvæmdastjóri eða aðili sem orkuráð semur við skv. 1. mgr. skal hafa lokið gerð reikninga fyrir Orkusjóð eigi síðar en 1. mars ár hvert fyrir næstliðið ár og hafa afhent þá orkuráði til samþykktar.
Allur kostnaður við rekstur Orkusjóðs greiðist af tekjum sjóðsins.
5. gr.
1. vextir af fé sjóðsins,
2. fé það sem veitt er í fjárlögum hverju sinni,
3. endurgreiddur kostnaður af rannsóknum og áætlanagerð, jarðhitaleit og jarðborunum skv. 6. gr.
6. gr.
Endurgreiðslu skal að fullu lokið eigi síðar en sjö árum eftir að leyfi hefur verið gefið út. Endurgreiddu fé skal varið skv. 1. tölul. 2. mgr. 2. gr. laga þessara.
7. gr.
Áður en tillaga er gerð um lánveitingu úr Orkusjóði skal orkuráð leita umsagnar sérfróðra aðila um jarðfræðilegar og vinnslutæknilegar líkur á árangri og um fjárhagslegan ávinning af öflun jarðvarma.
8. gr.
Ef tiltekin borun, sem lánað hefur verið til skv. 3. tölul. 2. mgr. 2. gr., reynist árangurslaus eða árangur til muna lakari en gert var ráð fyrir samkvæmt áætlunum sérfræðinga eða kostnaður óeðlilega hár og ávinningur af notkun borholunnar til vinnslu jarðvarma því minni en upphaflega var gert ráð fyrir og fjárhagslegri afkomu lántaka stefnt í hættu af þessum sökum er ráðherra heimilt, að fenginni tillögu orkuráðs, að fella niður að hluta eða öllu leyti endurgreiðsluskyldu lántaka, skv. 3. tölul. 2. mgr. 2. gr.
9. gr.
10. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Nýtt orkuráð skv. 3. gr. skal taka við stjórn Orkusjóðs við gildistöku laganna.