Ferill 546. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1053 — 546. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um búnaðarfræðslu.
Frá landbúnaðarnefnd.
1. Við 1. gr. 2. og 3. málsl. falli brott.
2. Við 3. gr. Greinin orðist svo.
Með búnaðarfræðslu er átt við skipulegt nám og kennslu, rannsóknir, fræðslu og aðra leiðsögn er lýtur að vörslu, meðferð, ræktun og nytjun lands, annarra jarðargæða og búfjár til framleiðslu matvæla og hráefna til iðnaðarframleiðslu eða annarrar verðmætasköpunar og markaðssetningu þeirra afurða, svo og verndun lands og endurheimt landkosta. Búnaðarfræðsla spannar vísindalegt starf og þekkingarmiðlun um sérsvið landbúnaðar og fjölþættra landnytja, svo sem búvöruframleiðslu, akuryrkju, landgræðslu, garðyrkju, skógrækt, hlunnindi, veiðar í ám og vötnum, fiskeldi og ferðaþjónustu, svo og tæknimál, markaðsmál, vistfræði og umhverfismál sem tengjast þessum sviðum.
Markmið búnaðarfræðslu er:
a. að veita fræðslu, hagnýta starfsmenntun og háskólamenntun studda rannsóknum fyrir samkeppnishæfan og fjölþættan landbúnað sem byggist á sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda landsins,
b. að veita endurmenntun á þeim námssviðum sem lög þessi taka til.
3. Við 4. gr.
a. Í stað 1. og 2. mgr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:
Búfræðsluráð er landbúnaðarráðherra til ráðuneytis um mörkun heildarstefnu í búfræðslumálum og samræmingu starfa þeirra er að þeim vinna.
b. Í stað orðsins „átta“ í 3. mgr., er verði 2. mgr., komi: níu.
c. Í stað orðsins „einum fulltrúa tilnefndum“ í 3. mgr., er verði 2. mgr., komi: tveimur fulltrúum tilnefndum.
4. Við 6. gr. Fyrri málsliður greinarinnar orðist svo: Menntastofnunum landbúnaðarins ber að hafa í starfi sínu samstarf við aðra skóla og vísindastofnanir hér á landi og erlendis um menntun og rannsóknir.
5. Við 9. gr. Orðin „að fengnu samþykki búfræðsluráðs“ í 2. mgr. falli brott.
6. Við 10. gr. 2. mgr. orðist svo:
Inntökuskilyrði í háskólanám í landbúnaði og námskröfur svari til þess sem krafist er í viðurkenndum háskólum á sambærilegu sviði erlendis.
7. Við 11. gr. Orðin „sbr. 12. gr.“ falli brott.
8. Við 12. gr. Greinin orðist svo:
Almennt háskólanám skal miðast við þriggja til fjögurra ára nám. Heimilt er að bjóða upp á sérhæfðar styttri námsbrautir. Kennsla skal fara fram í námskeiðum sem metin eru í einingum. Fullt nám telst 30 einingar á námsári. Háskólanáminu skal ljúka með prófgráðu sem veitt er þegar nemandi hefur staðist próf í öllum námskeiðum og skilað með fullnægjandi árangri verkefnum sem tilheyra námi til prófgráðunnar.
9. Við 16. gr. Orðin „í landinu sem fé er veitt til úr ríkissjóði“ í 1. mgr. falli brott.
10. Við 17. gr. Greinin orðist svo:
Heimilt er að ráða sérfræðinga að menntastofnunum landbúnaðarins sérstaklega til rannsókna og geta þeir haft kennsluskyldu við viðkomandi stofnun hver á sínu sviði. Við ráðningu sérfræðinga á sviði rannsókna og annarra fræðistarfa við skólana skulu gilda sambærilegar reglur og eiga við um ráðningu kennara, sbr. 26. og 33. gr.
11. Við 19. gr.
a. Í stað orðsins „skal“ í 1. mgr. komi: má.
b. Síðari málsliður 2. mgr. falli brott.
12. Við 21. gr. Á eftir orðinu „rannsóknastofnun“ komi: á háskólastigi.
13. Við 22. gr. Orðin „nema annað sé berum orðum tekið fram í lögum þessum“ í 3. málsl. 3. mgr. falli brott.
14. Við 23. gr. Í stað 4. tölul. 1. mgr. komi tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
4. Einn fulltrúi kosinn af búnaðarþingi til tveggja ára í senn.
5. Einn fulltrúi og einn til vara skipaðir af landbúnaðarráðherra til tveggja ára í senn.
15. Við 29. gr. Orðin „og gegna auk þess fjölþættu menningarhlutverki á héraðs- og landsvísu“ falli brott.
16. Við 30. gr. 3. málsl. 3. mgr. orðist svo: Skólameistari ræður kennara og annað starfsfólk stofnunarinnar.
17. Við 31. gr.
a. 2. málsl. orðist svo: Í skólanefnd Hólaskóla eiga sæti einn fulltrúi landbúnaðarráðuneytis, einn fulltrúi búnaðarþings, tveir fulltrúar bænda í Hólastifti og einn fulltrúi samkvæmt tilnefningu samtaka sveitarfélaganna í Hólastifti.
b. Í stað orðsins „búfræðsluráði“ í 4. málsl. komi: búnaðarþingi.
18. Við 34. gr. Orðin „eða náms“ falli brott.
19. Við 35. gr. 2. mgr. orðist svo:
Landbúnaðarráðherra er heimilt að ákveða að við gjaldtöku sé mætt þeim kostnaði sem rekstur stofnananna hefur í för með sér.
20. Við 36. gr. 2. mgr. orðist svo:
Menntastofnunum landbúnaðarins er heimilt að koma á fót og eiga aðild að sjálfstæðum rekstrareiningum til styrktar og eflingar meginviðfangsefnum þeirra.
21. Við. 37. 1. mgr. falli brott.