Ferill 598. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1080 — 598. mál.
Skýrsla
menntamálaráðherra um framkvæmd skólahalds í grunnskólum skólaárin 1995–96, 1996–97 og 1997–98.
(Lögð fyrir Alþingi á 123. löggjafarþingi 1998–99.)
Inngangur.
Með setningu laga, nr. 66/1995, um grunnskóla urðu miklar breytingar á skólahaldi hér á landi. Þegar lögin komu að fullu til framkvæmda 1. ágúst 1996 fluttist ábyrgð á grunnskólahaldi að fullu frá ríki til sveitarfélaga og tóku þau m.a. við öllu mannahaldi í grunnskólum. Ríkið ber enn kostnað af samræmdum prófum, kennaramenntun og námsgögnum. Sérstök stofnun, Námsgagnastofnun, sér um útgáfu og dreifingu námsgagna til grunnskóla, nemendum og foreldrum þeirra að kostnaðarlausu.
Fyrir flutning grunnskóla til sveitarfélaga var landinu skipt í átta fræðsluumdæmi í samræmi við kjördæmaskipun landsins. Í hverju fræðsluumdæmi starfaði fræðsluskrifstofa sem m.a. hafði eftirlit með skólahaldi og sá um sérfræðiþjónustu. Við flutninginn voru fræðsluskrifstofur lagðar niður en sveitarfélögum gert að halda uppi sambærilegri þjónustu við grunnskóla. Í dag starfar 21 skólaskrifstofa á vegum sveitarfélaga. Sem dæmi um aðrar breytingar sem urðu með grunnskólalögunum frá 1995 má nefna að samræmdum prófum hefur fjölgað, allir skólar eiga að innleiða sjálfsmat og gefa út skólanámskrá og að foreldraráð skal starfa við hvern skóla.
Í 9. gr. grunnskólalaga er kveðið á um að menntamálaráðherra skuli gera Alþingi grein fyrir framkvæmd skólastarfs í grunnskólum á þriggja ára fresti. Í skýrslu þessari sem nær yfir skólaárin 1995–96, 1996–97 og 1997–98 er að finna ýmsar upplýsingar um skólahald, svo sem fjölda skóla, nemenda og kennara, árangur á samræmdum prófum, fjölda kennslustunda í einstökum námsgreinum, fjölda nýbúabarna og þróunarstörf.
Þau þrjú skólaár sem skýrslan tekur til eru nokkuð sérstök að því leyti að skólaárið 1995–96 stóð undirbúningur að flutningi grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga sem hæst og erfiðlega gekk að afla upplýsinga frá grunnskólum vorið 1996. Skólaárið 1996–97 komu grunnskólalögin að fullu til framkvæmda og settar voru fjölmargar reglugerðir við lögin, m.a. reglugerð um upplýsingaskyldu sveitarfélaga um skólahald í grunnskólum. Í menntamálaráðuneytinu var stofnuð ný deild, mats- og eftirlitsdeild, m.a. til að annast ákveðna upplýsingaöflun frá skólum, sjá um úttektir á sjálfsmatsaðferðum skóla og úttektir á einstökum skólum eða tilteknum þáttum skólastarfs. Mats- og eftirlitsdeild aflaði upplýsinga frá grunnskólum fyrir skólaárið 1996–97. Vel gekk að afla upplýsinga um ýmsa þætti skólastarfs þetta skólaár en hins vegar fékk ráðuneytið ekki fullnægjandi upplýsingar um fjölda starfandi réttindakennara og leiðbeinenda.
Stefna fræðsluyfirvalda í upplýsingaöflun um starfsemi grunnskóla kemur fram í grunnskólalögum, fyrrnefndri reglugerð og í ritinu Í krafti upplýsinga (sjá heimasíðu menntamálaráðuneytisins, www.mrn.stjr.is) sem menntamálaráðuneytið gaf út snemma árs 1996. Skólaárið 1996–97 var undirritaður samningur við Hagstofu Íslands um öflun tölfræðilegra upplýsinga um grunnskóla og hóf Hagstofan upplýsingaöflun samkvæmt þeim samningi skólaárið 1997–98.
Haustið 1996 hófst endurskoðun á aðalnámskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla. Þeirri vinnu er senn lokið og mun kennsla eftir nýrri aðalnámskrá grunnskóla hefjast haustið 1999.
I. Skólar.
Fjöldi almennra grunnskóla hefur haldist svipaður um langt skeið. Helst ber á breytingum í þá veru að skólum fjölgar í Reykjavík og að mjög fámennir skólar á landsbyggðinni eru sameinaðir eða lagðir niður. Í fjölmennasta skóli landsins voru 797 nemendur skólaárið 1997–98.
Á því þriggja ára tímabili sem hér um ræðir hefur fámennum skólum fækkað um átta eða úr 97 í 89. Í fámennasta skóla landsins voru þrír nemendur síðastliðið skólaár. Fjöldi sérskóla og einkaskóla hefur verið nokkurn veginn sá sami síðastliðin ár, einkaskólum hefur fækkað úr sjö í fimm frá 1995 til 1998. Á því tímabili sem skýrslan nær til voru starfandi sex heimavistarskólar á grunnskólastigi. Benda má á að skólaárið 1990–91 voru starfandi 30 skólar sem annaðhvort voru hreinir heimavistarskólar eða heimanaksturs- og heimavistarskólar. Heimavistarskólum hefur því fækkað mikið frá 1991 og er það í samræmi við stefnu fræðsluyfirvalda að nemendum skuli ekið í skóla sé þess nokkur kostur, ekki síst yngri nemendum, og að nemendur eigi kost á námi í heimabyggð, sbr. lög um grunnskóla nr. 49/1991 og nr. 66/1995. Skólum sem hafa undanþágu frá níu mánaða starfstíma hefur fækkað um meira en helming á tímabilinu og eru nú aðeins 11. Einsetnum skólum fjölgaði fremur lítið á tímabilinu en í samningi ríkis og sveitarfélaga við flutning grunnskólans kemur fram að allir skólar á landinu eigi að vera einsetnir skólaárið 2002–03. Rétt er að taka fram að skólum fækkaði um sex milli skólaáranna 1996–97 og 1997–98. Tafla 1.1 sýnir að einsetnum skólum fjölgaði um sex milli ára en hlutfallsleg aukning einsetinna grunnskóla er um 5%, sbr. mynd 1.1. Þetta skýrist af því að þeir skólar sem voru sameinaðir eða lagðir niður voru fámennir, einsetnir skólar.
| 1.1. Fjöldi grunnskóla 1995–98. | |||
| Skólaár |
|||
| 1995–96 | 1996–97 | 1997–98 | |
| Alls | 213 | 204 | 198 |
| Grunnskólar, þ.m.t. einkaskólar | 207 | 197 | 192 |
| Sérskólar | 6 | 7 | 6 |
| Fámennir skólar* | 97 | 93 | 89 |
| Heimavistarskólar | 6 | 6 | 6 |
| Einsetnir skólar | 141 | 144 | 150 |
| Undanþága frá 9 mánaða skólatíma | 24 | 12 | 11 |
| * Skólar með 100 nemendur eða færri. | |||
| Heimildir: Menntamálaráðuneyti. Hagstofa Íslands, Landshagir 1998 og óbirtar upplýsingar frá Hagstofu Íslands. | |||
Hér er myndað efni sem sést ekki í vefútgáfu
II. Nemendur.
Heildarfjöldi nemenda í grunnskólum landsins er rúmlega 42 þúsund á ári hverju, sjá töflu 2.1. Í töflu 2.2 má sjá fjölda nemenda í sérskólum, sérdeildum og einkaskólum og fjölda nýbúa í grunnskólum, þ.e. nemenda með annað móðurmál en íslensku. Heildarfjöldi nemenda hefur haldist nokkuð stöðugur og ekki er að vænta neinna sérstakra breytinga á nemendafjölda á næstu árum miðað við fyrirliggjandi tölur.
| 2.1. Fjöldi nemenda á grunnskólaaldri eftir árgöngum 1995–98. | |||||||||||
| Alls | 1. b. | 2. b. | 3. b. | 4. b. | 5. b. | 6. b. | 7. b. | 8. b. | 9. b. | 10. b. | |
| 1995–96 | 42.482 | 4.567 | 4.567 | 4.133 | 3.854 | 3.866 | 4.041 | 4.288 | 4.338 | 4.342 | 4.486 |
| 1996–97 | 42.004 | 4.613 | 4.402 | 4.500 | 4.084 | 3.771 | 3.787 | 4.004 | 4.225 | 4.281 | 4.337 |
| 1997–98 | 42.318 | 4.435 | 4.646 | 4.369 | 4.527 | 4.088 | 3.810 | 3.803 | 4.034 | 4.225 | 4.354 |
| Árin 1995, 1996 og 1997 er hlutfall drengja 51% af nemendum og hlutfall stúlkna 49%. | |||||||||||
| Heimildir: Menntamálaráðuneyti. Fjöldi nemenda í grunnskólum 1995–96 og 1996–97. Hagstofa Íslands, Landshagir 1997 og Landshagir 1998. | |||||||||||
| 2.2. Nemendur í sérskólum, sérdeildum og einkaskólum og nýbúar* 1995–1998. | |||
| Skólaár | |||
| 1995–96 | 1996–97 | 1997–98 | |
| Í sérskólum | 203 | 210 | 165 |
| Í sérdeildum | 273 | 385 | vantar |
| Í einkaskólum | 650 | 515 | 547 |
| Nýbúar** | 309 | 429 | 550 |
| *Nemendur sérskólum, sérdeildum og einkaskólum og nýbúar eru innifaldir í heildarnemendatölum í töflu 2.1. | |||
| **Nýbúum í grunnskólum fjölgaði frá hausti 1995 til vors 1996 í 320. Frá hausti 1996 til vors 1997 fjölgaði þeim í 484. | |||
| Heimildir: Skýrslur menntamálaráðuneytis um fjölda nemenda í grunnskólum 1995–96 og 1996–97. Hagstofa Íslands fyrir skólaárið 1997–98. Um stöðu og þátttöku útlendinga í íslensku samfélagi, álit nefndar um málefni útlendinga, júní 1997. | |||
Í 36. gr. laga um grunnskóla, nr. 66/1995, er kveðið á um rétt nemenda sem hafa annað móðurmál en íslensku til sérstakrar íslenskukennslu. Í reglugerð nr. 391/1996, um íslenskukennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku, er nánar kveðið á um íslenskukennslu þessara nemenda. Þegar grunnskólinn fluttist til sveitarfélaga þann 1. ágúst 1996 var ráðgjöf um nýbúafræðslu hjá menntamálaráðuneytinu flutt yfir til sveitarfélaga.
Skóladagar.
Þegar flutningur grunnskólans til sveitarfélaga stóð sem hæst skólaárið 1995–96 gekk erfiðlega að afla upplýsinga frá grunnskólum um starfsemi þeirra. Þrátt fyrir eftirrekstur tókst ekki að fá inn vorskýrslur nema frá hluta grunnskóla og því eru ekki fyrirliggjandi marktækar upplýsingar um fjölda skóladaga þetta skólaár. Á mynd 2.1 má sjá meðaltal skóladaga skólaárin 1996–97 og 1997–98. Samkvæmt grunnskólalögum skal lágmarksfjöldi skóladaga nemenda vera 170 árlega.
Hér er myndað efni sem sést ekki í vefútgáfu
Viðmiðunarstundaskrá.
Fjöldi kennslustunda eykst ár frá ári á tímabilinu, sbr. ákvæði grunnskólalaga þar um. Á mynd 2.2 má sjá heildarkennslustundafjölda á viku í skyldunámi frá 1995.
Hér er myndað efni sem sést ekki í vefútgáfu
Í grunnskólalögum er kveðið á um frekari fjölgun kennslustunda á viku til skólaársins 2001–02. Í töflu 2.3 má sjá hver heildarkennslustundafjöldi skal vera á ári að lágmarki skólaárið 2001–02 þegar ákvæði um fjölgun kennslustunda skal að fullu vera komið til framkvæmda.
| 2.3. Heildarkennslustundafjöldi að lágmarki á ári skólaárið 2001–02. | |
| Heildarkennslustundafjöldi á ári | |
| 1. bekkur | 1.020 |
| 2. bekkur | 1.020 |
| 3. bekkur | 1.020 |
| 4. bekkur | 1.020 |
| 5. bekkur | 1.190 |
| 6. bekkur | 1.190 |
| 7. bekkur | 1.190 |
| 8. bekkur | 1.258 |
| 9. bekkur | 1.258 |
| 10. bekkur | 1.258 |
Í töflu 2.4 má sjá hvernig skólatími grunnskólanemenda hefur skipst u.þ.b. á milli námsgreina við lok 10 ára skólagöngu.
| 2.4. Hlutfallsleg skipting skólatíma nemenda eftir námsgreinum að lokinni 10 ára skólagöngu í grunnskóla. | |||||
| Íslenska | 18% | Erlend tungumál | 9% | Kristinfræði | 3% |
| Stærðfræði | 15% | Náttúrufræði | 6% | Íþróttir | 10% |
| Listgreinar | 20% | Samfélagsgreinar | 7% | Valgreinar | 12% |
Á töflum 2.5, 2.6 og 2.7 má sjá fjölda kennslustunda á ári í einstökum námsgreinum hjá 7, 10 og 13 ára nemendum á umræddu tímabili samkvæmt viðmiðunarstundaskrá.
| 2.5. Fjöldi kennslustunda á ári varið til kennslu einstakra námsgreina 1995–96. | ||||||
| 7 ára nemendur | 10 ára nemendur | 13 ára nemendur | ||||
| kennslust. | hlutfall | kennslust. | hlutfall | kennslust. | hlutfall | |
| Íslenska | 223 | 26% | 192 | 20% | 161 | 14% |
| Stærðfræði | 96 | 11% | 128 | 13% | 127 | 11% |
| Samfélagsgr. og náttúrfr. | 65 | 8% | 161 | 17% | 192 | 17% |
| Erlend tungumál | 0 | 0% | 0 | 0% | 193 | 17% |
| Íþróttir | 96 | 11% | 96 | 10% | 96 | 9% |
| List- og verkgreinar | 159 | 18% | 190 | 20% | 224 | 20% |
| Kristinfræði | 33 | 4% | 33 | 3% | 0 | 0% |
| Stundir til ráðstöfunar | 192 | 22% | 160 | 17% | 127 | 11% |
| Samtals | 864 | 100% | 960 | 100% | 1.120 | 100% |
| 2.6. Fjöldi kennslustunda á ári varið til kennslu einstakra námsgreina 1996–97. | ||||||
| 7 ára nemendur | 10 ára nemendur | 13 ára nemendur | ||||
| kennslust. | hlutfall | kennslust. | hlutfall | kennslust. | hlutfall | |
| Íslenska | 238 | 26% | 204 | 20% | 170 | 14% |
| Stærðfræði | 102 | 11% | 136 | 13% | 136 | 11% |
| Samfélagsgr. og náttúrfr. | 68 | 7% | 170 | 17% | 170 | 14% |
| Erlend tungumál | 0 | 0% | 0 | 0% | 204 | 17% |
| Íþróttir | 102 | 11% | 102 | 10% | 102 | 9% |
| List- og verkgreinar | 170 | 19% | 204 | 20% | 238 | 20% |
| Kristinfræði | 34 | 4% | 34 | 3% | 34 | 3% |
| Stundir til ráðstöfunar | 204 | 22% | 170 | 17% | 136 | 11% |
| Samtals | 918 | 100% | 1.020 | 100% | 1.190 | 100% |
| 2.7. Fjöldi kennslustunda á ári varið til kennslu einstakra námsgreina 1997–98. | ||||||
| 7 ára nemendur | 10 ára nemendur | 13 ára nemendur | ||||
| kennslust. | hlutfall | kennslust. | hlutfall | kennslust. | hlutfall | |
| Íslenska | 238 | 25% | 204 | 19% | 170 | 14% |
| Stærðfræði | 102 | 11% | 136 | 13% | 136 | 11% |
| Samfélagsgr. og náttúrfr. | 68 | 7% | 170 | 16% | 170 | 14% |
| Erlend tungumál | 0 | 0% | 0 | 0% | 204 | 17% |
| Íþróttir | 102 | 11% | 102 | 10% | 102 | 9% |
| List- og verkgreinar | 170 | 18% | 204 | 19% | 238 | 20% |
| Kristinfræði | 34 | 4% | 34 | 3% | 34 | 3% |
| Stundir til ráðstöfunar | 238 | 25% | 204 | 19% | 136 | 11% |
| Samtals | 952 | 100% | 1.054 | 100% | 1.190 | 100% |
Hér er myndað efni sem sést ekki í vefútgáfu
III. Mat.
Samræmd próf.
Samkvæmt 46. gr. grunnskólalaga og reglugerð nr. 516/1996, um framkvæmd samræmdra prófa í grunnskólum, skulu allir nemendur þreyta samræmd próf í ákveðnum námsgreinum við lok grunnskóla. Nemendur sem eru veikir á prófdegi skulu gangast undir sjúkrapróf. Fyrrnefnd reglugerð tók gildi 1. janúar 1997 og hafa samræmd lokapróf í 10. bekk farið fram tvívegis samkvæmt henni.
Menntamálaráðuneytið hefur gert samning við Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála um framkvæmd samræmdra prófa í 4., 7. og 10. bekk. Samningurinn gildir frá árinu 1997 til og með 2001.
Samkvæmt reglugerðinni er hægt að veita undanþágu frá próftöku í sérstökum tilvikum. Nemendur með annað móðurmál en íslensku þurfa ekki að þreyta samræmt próf í íslensku og heimilt er að veita nemendum, af sérstökum ástæðum, undanþágu frá kennslu í tiltekinni námsgrein. Þá þurfa nemendur, sem víkja svo frá almennum þroska að þeim henta ekki samræmd próf, ekki að þreyta prófin, sbr. reglugerð þar um. Hér er aðallega um að ræða nemendur með einstaklingsnámskrá og nemendur í sérskólum og sérdeildum. Einnig er nemendum í sérstökum tilvikum veitt heimild til að taka próf með fráviki frá prófreglum. Flest frávik eru veitt vegna leshömlunar og er nemendum þá boðið upp á snældu með upplestri á prófunum sem þeir geta stjórnað sjálfir.
Grunnskólalögin og reglugerð um samræmd próf kveða einnig á um samræmd próf í íslensku og stærðfræði í 4. og 7. bekk og hafa þau verið haldin þrisvar sinnum, fyrst haustið 1996. Fyrir utan þá nemendur sem víkja svo frá almennum þroska að þeim henta ekki samræmd próf er heimilt að veita nemendum með annað móðurmál en íslensku undanþágu frá því að þreyta samræmt próf í íslensku í 4. og 7. bekk.
Á töflum 3.1–3.3 má sjá meðaltal einkunna í samræmdum prófum í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla 1996, 1997 og 1998 eftir greinum.
| 3.1. Meðaltal einkunna* í samræmdum prófum í 4. bekk 1996, 1997 og 1998 skipt eftir kyni. | |||
| Stærðfræði | Íslenska | ||
| 1996 | |||
| Drengir | 4,9 | 4,7 | |
| Stúlkur | 5,1 | 5,3 | |
| 1997 | |||
| Drengir | 5,1 | 4,8 | |
| Stúlkur | 4,9 | 5,2 | |
| 1998 | |||
| Drengir | 5 | 4,6 | |
| Stúlkur | 5 | 5,4 | |
| *Einkunnirnar eru normaldreifðar á kvarðanum 1–9 þar sem lægsta mögulega einkunn er 1 og hæsta mögulega einkunn er 9. Einkunnirnar eru því sambærilegar milli ára og námsgreina. | |||
| Heimild RUM, 1999. | |||
| 3.2. Meðaltal einkunna* í samræmdum prófum í 7. bekk 1996, 1997 og 1998 skipt eftir kyni. | |||
| Stærðfræði | Íslenska | ||
| 1996 | |||
| Drengir | 4,9 | 4,5 | |
| Stúlkur | 5 | 5,5 | |
| 1997 | |||
| Drengir | 4,9 | 4,7 | |
| Stúlkur | 5,1 | 5,3 | |
| 1998 | |||
| Drengir | 4,9 | 4,7 | |
| Stúlkur | 5,1 | 5,3 | |
| *Einkunnirnar eru normaldreifðar á kvarðanum 1–9 þar sem lægsta mögulega einkunn er 1 og hæsta mögulega einkunn er 9. Einkunnirnar eru því sambærilegar milli ára og námsgreina. | |||
| Heimild RUM, 1999. | |||
| 3.3. Meðaltal einkunna* í samræmdum prófum í 10. bekk 1996, 1997 og 1998 skipt eftir kyni. | |||||
| Stærðfræði | Íslenska | Danska | Enska | ||
| 1996 | |||||
| Drengir | 4,8 | 4,5 | 4,5 | 5,0 | |
| Stúlkur | 5,2 | 5,6 | 5,5 | 5,0 | |
| 1997 | |||||
| Drengir | 4,9 | 4,5 | 4,5 | 4,9 | |
| Stúlkur | 5,1 | 5,5 | 5,5 | 5,1 | |
| 1998 | |||||
| Drengir | 4,8 | 4,5 | 4,5 | 4,9 | |
| Stúlkur | 5,2 | 5,6 | 5,6 | 5,1 | |
| *Einkunnirnar eru normaldreifðar á kvarðanum 1–9 þar sem lægsta mögulega einkunn er 1 og hæsta mögulega einkunn er 9. Einkunnirnar eru því sambærilegar milli ára og námsgreina. | |||||
| Heimild RUM, 1999. | |||||
Á töflum 3.4, 3.5 og 3.6 má sjá meðaltal einkunna í 10. bekk 1996, 1997 og 1998 skipt eftir kyni og landshlutum.
| 3.4. Meðaltal einkunna* í samræmdum prófum í 10. bekk 1996 eftir kyni og landshlutum. | ||||||||
|
|
Stærðfræði | Íslenska | Danska | Enska | ||||
| Drengir | Stúlkur | Drengir | Stúlkur | Drengir | Stúlkur | Drengir | Stúlkur | |
| Reykjavík | 5,1 | 5,6 | 4,8 | 5,9 | 4,9 | 5,9 | 5,4 | 5,5 |
| Reykjanes | 5,0 | 5,4 | 4,8 | 5,7 | 4,7 | 5,5 | 5,3 | 5,1 |
| Suðurnes | 4,1 | 4,7 | 3,7 | 4,7 | 4,7 | 5,4 | 4,4 | 4,6 |
| Vesturland | 4,5 | 5,0 | 4,1 | 5,4 | 4,1 | 5,4 | 4,5 | 4,8 |
| Vestfirðir | 4,0 | 4,3 | 3,4 | 4,6 | 3,7 | 4,6 | 4,1 | 4,4 |
| Norðurland vestra | 5,0 | 4,4 | 4,4 | 4,7 | 4,5 | 4,8 | 4,5 | 4,4 |
| Norðurland eystra | 4,6 | 4,7 | 4,4 | 5,5 | 4,1 | 5,1 | 4,6 | 4,8 |
| Austfirðir | 4,4 | 5,2 | 4,6 | 6,1 | 4,7 | 5,9 | 4,7 | 5,1 |
| Suðurland | 4,6 | 5,1 | 4,0 | 5,3 | 3,9 | 5,1 | 4,4 | 4,5 |
| Landið allt | 4,8 | 5,2 | 4,5 | 5,6 | 4,5 | 5,5 | 5,0 | 5,0 |
| *Einkunnirnar eru normaldreifðar á kvarðanum 1–9 þar sem lægsta mögulega einkunn er 1 og hæsta mögulega einkunn er 9. Einkunnirnar eru því sambærilegar milli ára og námsgreina. | ||||||||
| Heimild RUM, 1999. | ||||||||
| 3.5. Meðaltal einkunna* í samræmdum prófum í 10. bekk 1997 eftir kyni og landshlutum. | ||||||||
| Stærðfræði | Íslenska | Danska | Enska | |||||
| Drengir | Stúlkur | Drengir | Stúlkur | Drengir | Stúlkur | Drengir | Stúlkur | |
| Reykjavík | 5,3 | 5,3 | 4,9 | 5,7 | 4,9 | 5,8 | 5,4 | 5,5 |
| Nágrenni Reykjavíkur | 5,2 | 5,4 | 4,9 | 5,8 | 4,7 | 5,7 | 5,2 | 5,3 |
| Suðurnes | 4,3 | 4,4 | 3,8 | 4,7 | 4,3 | 5,1 | 4,6 | 4,6 |
| Vesturland | 4,5 | 5,2 | 4,1 | 5,4 | 3,7 | 5,2 | 4,2 | 4,7 |
| Vestfirðir | 4,4 | 4,3 | 3,9 | 4,7 | 3,8 | 4,9 | 4,0 | 4,8 |
| Norðurland vestra | 5,1 | 5,4 | 4,3 | 5,8 | 3,9 | 5,6 | 4,3 | 5,2 |
| Norðurland eystra | 4,3 | 5,0 | 3,8 | 5,3 | 3,8 | 5,1 | 4,3 | 4,9 |
| Austurland | 4,9 | 4,7 | 4,3 | 5,2 | 4,6 | 5,6 | 4,5 | 4,9 |
| Suðurland | 4,8 | 4,8 | 4,4 | 5,3 | 4,3 | 5,1 | 4,4 | 4,6 |
| Landið allt | 4,9 | 5,1 | 4,5 | 5,5 | 4,5 | 5,5 | 4,9 | 5,1 |
| *Einkunnirnar eru normaldreifðar á kvarðanum 1–9 þar sem lægsta mögulega einkunn er 1 og hæsta mögulega einkunn er 9. Einkunnirnar eru því sambærilegar milli ára og námsgreina. | ||||||||
| Heimild RUM, 1999. | ||||||||
| 3.6.Meðaltal einkunna* í samræmdum prófum í 10. bekk 1998 eftir kyni og landshlutum. | ||||||||
| Stærðfræði | Íslenska | Danska | Enska | |||||
| Landshluti | Drengir | Stúlkur | Drengir | Stúlkur | Drengir | Stúlkur | Drengir | Stúlkur |
| Reykjavík | 5,3 | 5,5 | 4,9 | 5,9 | 4,8 | 5,8 | 5,5 | 5,4 |
| Nágrenni Reykjavíkur | 4,9 | 5,4 | 4,7 | 5,9 | 4,6 | 5,8 | 5,2 | 5,3 |
| Suðurnes | 4,3 | 4,6 | 4,0 | 5,0 | 4,3 | 5,4 | 4,6 | 5,0 |
| Vesturland | 4,5 | 5,1 | 4,2 | 5,4 | 4,2 | 5,4 | 4,3 | 4,9 |
| Vestfirðir | 4,0 | 5,0 | 3,6 | 5,4 | 3,9 | 5,5 | 4,0 | 5,1 |
| Norðurland vestra | 4,2 | 5,1 | 3,7 | 5,1 | 4,0 | 5,1 | 4,1 | 4,4 |
| Norðurland eystra | 4,6 | 5,0 | 3,9 | 5,1 | 4,1 | 5,0 | 4,3 | 4,5 |
| Austurland | 4,4 | 4,9 | 4,2 | 5,3 | 4,4 | 5,5 | 4,4 | 4,9 |
| Suðurland | 4,5 | 4,8 | 4,4 | 5,1 | 4,6 | 5,2 | 4,6 | 4,7 |
| Landið allt | 4,8 | 5,2 | 4,5 | 5,6 | 4,5 | 5,6 | 4,9 | 5,1 |
| *Einkunnirnar eru normaldreifðar á kvarðanum 1–9 þar sem lægsta mögulega einkunn er 1 og hæsta mögulega einkunn er 9. Einkunnirnar eru því sambærilegar milli ára og námsgreina. | ||||||||
| Heimild RUM, 1999. | ||||||||
Hér er myndað efni sem sést ekki í vefútgáfu
Í töflum 3.7, 3.8 og 3.9 og á mynd 3.2 kemur fram fjöldi og hlutfall nemenda sem ekki þreyttu samræmd próf eða voru með heimild til fráviks á samræmdum prófum vorin 1997 og 1998 eftir námsgreinum. Sjúkraprófin eru ekki innifalin í töflunum en á síðastliðnum tveimur árum hafa rúmlega 20 nemendur verið veikir á prófdegi og um 3/ 4 þeirra hafa þreytt sjúkrapróf.
Í dálkinum Fara ekki í próf eru nemendur sem vegna fötlunar eða annarra gildra ástæðna gátu ekki þreytt prófin og nemendur sem höfðu undanþágu frá menntamálaráðuneytinu frá námi í einstökum námsgreinum. Þar eru einnig taldir þeir sem höfðu lokið prófi áður eða hætt námi á skólaárinu. Upplýsingar um fjölda nemenda sem voru veikir eða mættu ekki í prófin hefur Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála unnið úr mætingarlistum sem fylgdu prófúrlausnum til stofnunarinnar. Tafla 3.9 um Frávik sýnir fjölda og hlutfall nemenda sem þreyttu prófin með fráviki frá prófreglum.
| 3.7. Brottfall í samræmdum prófum í 10. bekk vorið 1997. | |||||||||
| Fara ekki í próf | Veikindi | Mættu ekki | Brottfall | ||||||
| Heildarfjöldi | Fjöldi | % | Fjöldi | % | Fjöldi | % | Fjöldi | % | |
| Íslenska | 4.335 | 118 | 2,5 | 23 | 0,5 | 18 | 0,4 | 159 | 3,6 |
| Stærðfræði | 4.335 | 109 | 2,5 | 22 | 0,5 | 16 | 0,4 | 147 | 3,4 |
| Enska | 4.335 | 131 | 3,0 | 16 | 0,4 | 16 | 0,4 | 163 | 3,8 |
| Danska | 4.335 | 179 | 4,1 | 24 | 0,6 | 18 | 0,4 | 221 | 5,1 |
| Heimildir: RUM, 1999. | |||||||||
| 3.8. Brottfall í samræmdum prófum í 10. bekk vorið 1998. | |||||||||
| Fara ekki í próf | Veikindi | Mættu ekki | Brottfall | ||||||
| Heildarfjöldi | Fjöldi | % | Fjöldi | % | Fjöldi | % | Fjöldi | % | |
| Íslenska | 4.289 | 115 | 2,7 | 21 | 0,5 | 12 | 0,3 | 148 | 3,5 |
| Stærðfræði | 4.289 | 104 | 2,4 | 24 | 0,6 | 13 | 0,3 | 141 | 3,3 |
| Enska | 4.289 | 111 | 2,5 | 16 | 0,4 | 16 | 0,4 | 143 | 3,3 |
| Danska | 4.289 | 151 | 3,5 | 17 | 0,4 | 18 | 0,4 | 186 | 4,3 |
| Heimildir: RUM, 1999. | |||||||||
| 3.9. Frávik í samræmdum prófum 1997 og 1998. | ||||||
| Frávik 1997 | Frávik 1998 | |||||
| Heildarfjöldi | Fjöldi | % | Heildarfjöldi | Fjöldi | % | |
| Íslenska | 4.335 | 111 | 2,6 | 4.289 | 244 | 5,7 |
| Stærðfræði | 4.335 | 103 | 2,4 | 4.289 | 244 | 5,7 |
| Enska | 4.335 | 108 | 2,5 | 4.289 | 247 | 5,8 |
| Danska | 4.335 | 106 | 2,4 | 4.289 | 224 | 5,2 |
| Heimildir: RUM 1999. | ||||||
Hér er myndað efni sem sést ekki í vefútgáfu
TIMSS-rannsókn.
Frá árinu 1989 hefur verið unnið að viðamikilli fjölþjóðlegri rannsókn á námshögum, námsskilyrðum og árangri nemenda í stærðfræði og náttúrufræði í grunn- og framhaldsskólum (TIMSS – Third International Mathematics and Science Study). Rannsóknin er gerð á vegum IEA (International Association of Educational Achievement).
Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála sá um framkvæmd TIMSS hér á landi vorið 1995, en vinnuhópur var starfræktur í tengslum við gerð könnunarinnar. TIMSS-könnunin á Íslandi náði til 12.000 nemenda í 3., 4., 7. og 8. bekk grunnskóla og nemenda á síðasta ári mismunandi námsbrauta í framhaldsskóla. Einnig tóku 600 kennarar og 200 skólameistarar og skólastjórar þátt í könnuninni.
Rannsóknin skiptist í eftirfarandi meginhluta: Fyrirlögn kunnáttuprófa í stærðfræði og náttúrufræði í grunn- og framhaldsskólum, fyrirlögn spurningalista fyrir nemendur, kennara og skólastjóra grunnskóla annars vegar og framhaldsskóla hins vegar og innihaldsgreiningu námsefnis og námskráa í stærðfræði og náttúrufræði handa grunn- og framhaldsskólum. Menntamálaráðuneytið og Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála fjármögnuðu rannsóknina hérlendis.
Niðurstöður TIMSS sem birst hafa eru fyrst og fremst lýsandi. Hægt er að sjá hvernig Íslendingar standast fjölþjóðlegan samanburð á námsárangri í stærðfræði og náttúrufræði, auk margvíslegra þátta sem tengjast námsárangri. Í töflum 3.10 og 3.11 má sjá árangur Íslands í TIMSS-rannsókninni sem gerð var hér á landi árið 1995 í 4. og 8. bekk í stærðfræði og náttúrufræði samanborinn við önnur þátttökulönd. Nú er unnið að frekari úrvinnslu gagna úr TIMSS-rannsókninni á vegum Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála og má vænta frekari niðurstaðna í árslok 1999.
| 3.10. Niðurstaða landa í TIMSS-rannsókn 1995 – náttúrufræði. | ||||
| 4. bekkur | 8. bekkur | |||
| Land* | Meðaltal | Land | Meðaltal | |
| Kórea | 597 | Singapúr | 607 | |
| Japan | 574 | Tékkland | 574 | |
| Bandaríkin | 565 | Japan | 571 | |
| Austurríki | 565 | Kórea | 565 | |
| Ástralía | 562 | Holland | 560 | |
| Holland | 557 | Slóvenía | 560 | |
| Tékkland | 557 | Austurríki | 558 | |
| England | 551 | Ungverjaland | 554 | |
| Kanada | 549 | England | 552 | |
| Singapúr | 547 | Ástralía | 545 | |
| Slóvenía | 546 | Írland | 538 | |
| Írland | 539 | Bandaríkin | 534 | |
| Skotland | 536 | Kanada | 531 | |
| Hong Kong | 533 | Noregur | 527 | |
| Ungverjaland | 532 | Nýja Sjáland | 532 | |
| Nýja Sjáland | 531 | Taíland | 531 | |
| Noregur | 530 | Ísrael | 530 | |
| Lettland (LSS) | 512 | Hong Kong | 512 | |
| Ísrael | 505 | Skotland | 517 | |
| ÍSLAND | 505 | Grikkland | 497 | |
| Grikkland | 497 | ÍSLAND | 494 | |
| Portúgal | 480 | Lettland (LSS) | 485 | |
| Kýpur | 475 | Portúgal | 480 | |
| Taíland | 473 | Íran | 470 | |
| Íran | 416 | Kýpur | 463 | |
| Kúveit | 401 | Kúveit | 430 | |
| Alþjóðlegt meðaltal 524 | Alþjóðlegt meðaltal 527 | |||
| Ekki er um að ræða marktækan mun frá meðaltali hjá þeim löndum sem eru innan brotalínanna. | ||||
| * Þau lönd sem eru skáletruð uppfylltu ekki aðferðafræðilegar kröfur TIMSS-rannsóknarinnar. | ||||
| Heimild: RUM, 1999. | ||||
| 3.11. Niðurstaða landa í TIMSS-rannsókn 1995 – stærðfræði. | ||||
| 4. bekkur | 8. bekkur | |||
| Land* | Meðaltal | Land | Meðaltal | |
| Singapúr | 625 | Singapúr | 643 | |
| Kórea | 611 | Kórea | 607 | |
| Japan | 597 | Japan | 605 | |
| Hong Kong | 587 | Hong Kong | 588 | |
| Holland | 577 | Tékkland | 564 | |
| Tékkland | 567 | Holland | 541 | |
| Austurríki | 559 | Slóvenía | 541 | |
| Slóvenía | 552 | Austurríki | 539 | |
| Írland | 550 | Ungverjaland | 537 | |
| Ungverjaland | 548 | Ástralía | 530 | |
| Ástralía | 546 | Írland | 527 | |
| Bandaríkin | 545 | Kanada | 527 | |
| Kanada | 532 | Taíland | 522 | |
| Ísrael | 531 | Ísrael | 522 | |
| Lettland (LSS) | 525 | Nýja Sjáland | 508 | |
| Skotland | 520 | England | 506 | |
| England | 513 | Noregur | 503 | |
| Kýpur | 502 | Bandaríkin | 500 | |
| Noregur | 502 | Skotland | 498 | |
| Nýja Sjáland | 499 | Lettland (LSS) | 493 | |
| Grikkland | 492 | ÍSLAND | 487 | |
| Taíland | 490 | Grikkland | 484 | |
| Portúgal | 475 | Kýpur | 474 | |
| ÍSLAND | 474 | Portúgal | 454 | |
| Íran | 429 | Íran | 428 | |
| Kúveit | 400 | Kúveit | 392 | |
| Alþjóðlegt meðaltal 529 | Alþjóðlegt meðaltal 520 | |||
| Ekki er um að ræða marktækan mun frá meðaltali hjá þeim löndum sem eru innan brotalínanna. | ||||
| * Þau lönd sem eru skáletruð uppfylltu ekki aðferðafræðilegar kröfur TIMSS-rannsóknarinnar. | ||||
| Heimild: RUM, 1999. | ||||
Þegar niðurstöður TIMSS-rannsóknarinnar um frammistöðu nemenda í stærðfræði og náttúrufræði voru birtar urðu allnokkrar umræður á opinberum vettvangi um ástæður útkomu Íslands í könnuninni. Í júní 1997 sendi menntamálaráðuneytið frá sér fréttatilkynningu vegna málsins þar sem gert var grein fyrir viðbrögðum ráðuneytisins við niðurstöðu TIMSS-könnunar í 3. og 4. bekk grunnskólans. Þar kemur m.a. fram að í nýjum námskrám verði lögð mikil áhersla á skýr og mælanleg námsmarkmið og að ákveðið hafi verið að auka kennslu í stærðfræði og raungreinum í grunnskólum. Einnig kemur fram að árið 1997 hafi kennaramenntunarstofnunum verið veittur styrkur til að bjóða stærðfræðikennurum endurmenntun á sínu sviði. Enn fremur hafi helmingur af ráðstöfunarfé Þróunarsjóðs grunnskóla runnið til verkefna á sviði náttúrufræði og stærðfræði árið 1997.
Sjálfsmat.
Í 49. gr. laga nr. 66/1995, um grunnskóla, er kveðið á um að grunnskólar skuli innleiða aðferðir til að meta skólastarfið. Jafnframt er ákvæði þess efnis að á fimm ára fresti skuli að frumkvæði menntamálaráðuneytisins gerð úttekt á sjálfsmatsaðferðum skóla. Ákvæði um úttekt á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla kemur til framkvæmda skólaárið 2001–02. Menntamálaráðuneytið hefur gefið út leiðbeiningarbækling um sjálfsmat sem ætlaður er leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Ráðuneytið kannaði vorið 1998 hvernig grunnskólar hafa staðið að framkvæmd fyrrnefnds ákvæðis grunnskólalaga. Skólaárið 1997–98 voru 198 grunnskólar starfandi í landinu og bárust svör frá 62% skóla, sem gerir það að verkum að niðurstöður eru ekki marktækar. Niðurstöðurnar eru því birtar með þeim fyrirvara að hér sé fyrst og fremst um vísbendingar að ræða.
Eins og sjá má á mynd 3.3 hafa 77% þeirra skóla sem svöruðu könnuninni unnið að sjálfsmati síðastliðið skólaár, en í 23% tilvika hefur ekkert verið unnið við það. Spurt var af hvaða ástæðum vinna við kerfisbundið sjálfsmat væri ekki hafin. Algengasta tilgreind ástæða þess að sjálfsmat væri ekki hafið var þekkingarskortur, en einnig voru nefndar ástæður eins og tímaskortur, tíð mannaskipti bæði meðal stjórnenda og kennara, óvissa um greiðslu fyrir vinnu við sjálfsmat og að önnur verkefni hefðu haft forgang. Enn fremur var spurt hvenær áætlað væri að vinna við sjálfsmat hæfist. Fáir þeirra sem ekki höfðu unnið að sjálfsmati gátu tilgreint nákvæmlega hvenær það hæfist. Nokkrir ráðgerðu þó að hefja þá vinnu haustið 1998 eða haustið 1999.
Hér er myndað efni sem sést ekki í vefútgáfu
Þeir skólar sem höfðu unnið að sjálfsmati voru mislangt á veg komnir, eins og sjá má á mynd 3.3. Tæplega 50% skóla sögðust hafa hafið undirbúning kerfisbundins sjálfsmats og í rúmlega 35% skóla var gagnaöflun vegna sjálfsmats hafin. Í tæplega 30% skóla hafði farið fram kerfisbundið mat á ákveðnum þáttum skólastarfsins. Aðeins 8% skóla höfðu unnið sjálfsmatsskýrslu og tæplega 14% skóla höfðu unnið umbótaáætlun í kjölfar sjálfsmatsins. Í tæplega 15% skóla var verið að vinna að sjálfsmatsskýrslu þegar könnunin var gerð og 22% skóla ráðgerðu að vinna umbótaskýrslu í kjölfar sjálfsmats.
IV. Kennarar.
Fjöldi og stöðugildi.
Í töflu 4.1 má sjá fjölda kennara og stöðugildi réttindakennara og leiðbeinenda í grunnskólum á tímabilinu 1995–98. Ekki tókst að afla fullnægjandi upplýsinga um réttindakennara og leiðbeinendur fyrir skólaárið 1996–97 og er því gerður fyrirvari um áreiðanleika upplýsinga fyrir það skólaár. Hins vegar er ljóst að réttindakennurum og leiðbeinendum hefur fjölgað verulega frá árinu 1995, eða um 328 einstaklinga, og stöðugildum hefur einnig fjölgað verulega, eða um 377 stöðugildi frá árinu 1995, þótt nemendum hafi ekki fjölgað á tímabilinu. Hlutfall karla og kvenna helst nánast óbreytt á tímabilinu, um 73% kennara eru konur og 27% karlar.
| 4.1. Fjöldi kennara og stöðugildi 1995–98. | |||
| Skólaár | |||
| 1995–96 | 1996–97* | 1997–98 | |
| Fjöldi alls | 3.549 | 3.319 | 3.877 |
| Réttindakennarar | 3.040 | 2.939 | 3.265 |
| Leiðbeinendur | 509 | 380 | 612 |
| Hlutfall réttindakennara | 86% | 89% | 84% |
| Hlutfall leiðbeinenda | 14% | 11% | 16% |
| Stöðugildi alls | 2.959 | 2.960 | 3.336 |
| Réttindakennarar | 2.635 | 2.664 | 2.892 |
| Leiðbeinendur | 324 | 296 | 444 |
| Hlutfall stöðugilda réttindakennara | 89% | 90% | 87% |
| Hlutfall stöðugilda leiðbeinenda | 11% | 10% | 13% |
| Hlutfall kynja | |||
| Hlutfall kvenna | 73% | 74% | 73% |
| Hlutfall karla | 27% | 26% | 27% |
| * Settur er fyrirvari við tölur fyrir skólaárið 1996–97 þar sem ekki tókst að afla upplýsinga frá 42 skólum, en tekið skal fram að mestmegnis var um að ræða fámenna skóla. | |||
| Heimildir: Tölur fyrir 1997–98 eru frá Hagstofu Íslands. Eldri tölur eru frá menntamálaráðuneytinu. | |||
Eins og kemur fram í töflu 4.1 eru um 13% stöðugilda mönnuð leiðbeinendum. Nú er að störfum nefnd sem menntamálaráðherra hefur skipað til að fjalla um og gera áætlun um þörf fyrir kennara hér á landi til ársins 2010.
Meðalstarfsaldur.
Í töflu 4.2 um meðalaldursdreifingu kennara eftir kjördæmum má sjá að meðalstarfsaldur kennara er um 17,7 ár.
| Tafla 4.2. Meðalstarfsaldur kennara eftir kjördæmum í ágúst 1996. | ||||
| Kjördæmi | Meðalstarfsaldur/ár | Kjördæmi | Meðalstarfsaldur/ár | |
| Reykjavík | 17,94 | Norðurland vestra | 17,62 | |
| Reykjanes | 17,26 | Norðurland eystra | 18,13 | |
| Vesturland | 18,22 | Austurland | 17,81 | |
| Vestfirðir | 17,25 | Suðurland | 17,47 | |
| Heimildir: Svar við fyrirspurn á 122. löggjafarþingi, 259. mál. | ||||
Á mynd 4.1 er grunnskólakennurum skipt í fimm aldurshópa árin 1995 og 1997. Mestur fjöldi kennara bæði árin er á aldrinum 35–44 ára. Töluverð fjölgun hefur orðið í yngsta aldurshópnum milli ára. Afar fáir kennarar eru í aldurshópnum 65 ára og eldri.
Hér er myndað efni sem sést ekki í vefútgáfu
Brautskráningar.
Á mynd 4.2 kemur fram fjöldi brautskráðra kennara frá Kennaraháskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands. Taldir eru með allir þeir sem útskrifast úr kennaranámi, bæði úr B.Ed.-námi og uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda. Fjölgun brautskráðra árið 1996 má skýra með að þá voru í fyrsta skipti útskrifaðir nemendur í fjarkennslunámi frá Kennaraháskóla Íslands. Háskólinn á Akureyri útskrifar eingöngu nemendur úr uppeldis- og kennslufræði árið 1996.
Hér er myndað efni sem sést ekki í vefútgáfu
Endurmenntun.
Endurmenntun grunnskólakennara er að mestu í höndum Kennaraháskóla Íslands. Í sumum tilvikum eru námskeið skipulögð í samvinnu við aðra aðila, svo sem fagfélög og sveitarfélög. Ár hvert sækir fjöldi kennara endurmenntunarnámskeið. Árið 1995 sóttu 1.270 kennarar námskeið á vegum Kennaraháskólans, árið 1996 sóttu 1.258 kennarar námskeiðin og árið 1997 voru það 1.544 kennarar sem sóttu endurmenntunarnámskeið á vegum Kennaraháskólans.
V. Útgjöld til grunnskóla.
Þegar fjallað er um útgjöld til grunnskóla fyrir tímabilið 1995–98 ber að hafa í huga að 1. ágúst 1996 komu grunnskólalögin að fullu til framkvæmda þannig að frá þeim tíma hafa sveitarfélögin fjármagnað starfsemi grunnskólanna. Ríkið ber áfram kostnað af námsgögnum, samræmdum prófum og kennaramenntun. Samhliða flutningi grunnskólans til sveitarfélaga var gert samkomulag um framlag ríkisins til einsetningar grunnskóla. Í samkomulaginu skuldbindur ríkið sig til að greiða allt að 265 m.kr. árlega árin 1997–2001 til að koma til móts við byggingu skólahúsnæðis hjá sveitarfélögum með yfir 2.000 íbúa.
Eins og sjá má í töflu 5.1 hafa framlög hins opinbera hækkað nokkuð frá árinu 1995 og eru nú 2,83% af vergri landsframleiðslu. Hækkunin nemur 0,4% á tímabilinu. Kostnaður á hvern nemenda var árið 1997 um 350 þús. kr. og hafði hækkað um 96 þús. kr. frá 1995. Framlag ríkissjóðs hefur af eðlilegum ástæðum lækkað nokkuð og var árið 1997 0,38% af vergri landsframleiðslu, en framlag sveitarfélaga var árið 1997 2,4% af vergri landsframleiðslu, miðað við 1,17% árið 1995. Í töflu 5.1 eru útgjöld heimila vegna grunnskóla talin nema um 0,10% af vergri landsframleiðslu. Rétt er að vekja athygli á því að tölur um útgjöld heimila eru gróf áætlun. Þær upplýsingar sem taflan byggist á eru fengnar hjá Þjóðhagsstofnun. Hér er valin sú leið að telja framlag ríkissjóðs til sveitarfélaga, þ.m.t. þá upphæð sem samið var um vegna einsetningarinnar, sem útgjöld ríkissjóðs en ekki sem útgjöld sveitarfélaga.
| 5.1. Útgjöld til grunnskóla 1995–98. | ||||||
| 1995 | 1996 | 1997 | ||||
| Útgjöld hins opinbera í millj. kr. | 10.979 | 13.159 | 14.977 | |||
| Hlutfall af vergri landsframleiðslu | 2,43% | 2,71% | 2,83% | |||
| Kostnaður hins opinbera á nemanda í þús. kr. | 258 | 313 | 354 | |||
| Útgjöld ríkissjóðs í millj. kr.* | 5.691 | 6.904 | 2.039 | |||
| Hlutfall af vergri landsframleiðslu | 1,26% | 1,4% | 0,38% | |||
| Kostnaður ríkissjóðs á nemanda í þús. kr. | 134 | 164 | 48 | |||
| Útgjöld sveitarfélaga í millj. kr. | 5.288 | 6.255 | 12.938 | |||
| Hlutfall af vergri landsframleiðslu | 1,17% | 1,28% | 2,4% | |||
| Kostnaður sveitarfélaga á nemanda í þús. kr. | 124 | 149 | 306 | |||
| Útgjöld heimila í millj. kr.** | 495 | 584 | 530 | |||
| Hlutfall af vergri landsframleiðslu | 0,11% | 0,12% | 0,10% | |||
| Kostnaður heimila á nemanda í þús. kr. | 12 | 14 | 13 | |||
| Verg landsframleiðsla | 451.547 | 485.884 | 529.179 | |||
| * 1996: Tilfærsla frá ríki til sveitarfélaga vegna grunnskóla var 2.772 m.kr. og er sú upphæð færð sem útgjöld ríkissjóðs. 1997: Tilfærsla frá ríki til sveitarfélaga vegna grunnskóla var 1.261 m.kr. og er sú upphæð færð sem útgjöld ríkissjóðs. | ||||||
| ** Hér er um grófa nálgun að ræða. | ||||||
| Heimild: Búskapur hins opinbera 1995–96, Þjóðhagsstofnun, nóv. 1997 og Þjóðhagsstofnun 1999, óbirtar upplýsingar. | ||||||
VI. Aðstaða.
Í reglugerð nr. 384/1996, um upplýsingaskyldu sveitarfélaga um skólahald í grunnskólum, er sérstakt ákvæði þess efnis að menntamálaráðuneytið skuli afla upplýsinga um húsnæði grunnskóla innan eins árs frá gildistöku reglugerðarinnar. Þessi upplýsingaöflun fór fram vorið 1997 og bárust svör frá 195 skólum eða 99% skóla.
Í reglugerð nr. 519/1996, um lágmarksaðstöðu grunnskóla, er tilgreint að húsnæði til stjórnunar, félagsstarfs og kennslu í öðrum greinum en íþróttum skuli að jafnaði vera um 8 fermetrar nettó eða 10 fermetrar brúttó á hvern nemenda í tveggja hliðstæðna eða stærri skólum. Í fyrrnefndri upplýsingaöflun var m.a. spurt um brúttóstærð skólahúsnæðis. Með því að tengja saman fjölda nemenda hvers skóla að hausti 1996 og stærð skólahúsnæðis fékkst út meðaltal fermetrafjölda á hvern nemanda. Í ljós kom að í 32 einsetnum skólum (af 144) voru minna en 10 fermetrar á hvern nemanda. Í tvísetnum skólum voru sex skólar með minna en 10 fermetra á hvern nemanda. Í reglugerð um lágmarksaðstöðu er kveðið á um að í fámennum skólum skuli gera ráð fyrir hlutfallslega stærra húsnæði á nemanda til að rúma þá starfsaðstöðu sem kveðið er á um í reglugerðinni. Samkvæmt svörum skóla um skólahúsnæði vorið 1997 er þessu ákvæði reglugerðarinnar nokkuð vel fullnægt.
Samtals voru 2.646 kennslustofur í þeim skólum sem svöruðu. Fjöldi kennslustofa í skólunum er allt frá einni upp í 41.
Í reglugerð um lágmarksaðstöðu grunnskóla er kveðið á um hvað telst til nauðsynlegrar aðstöðu í grunnskólum og var spurt um þá aðstöðu sem reglugerðin tilgreinir, svo sem aðstöðu til tónmennta-, raungreina-, tungumála-, heimilisfræði- og tölvukennslu. Í ljós kom að í sumum tilvikum skortir nokkuð á að í skólum sé fullnægjandi aðstaða miðað við ákvæði reglugerðarinnar. Einungis var spurt um hvort aðstaðan væri fyrir hendi, ekki um gæði hennar. Í eftirfarandi töflu má sjá hlutfall skóla með sérgreinastofur. Aðstaða til tölvukennslu er í 64% skóla en rúmlega 91,7% skóla segjast hafa tölvur til afnota fyrir nemendur.
| 6.1. Hlutfall skóla* með sérgreinastofur og aðstöðu fyrir tölvukennslu 1997. | ||
| % | ||
| Tónmenntastofa | 42,5 | |
| Raungreinastofa | 48,2 | |
| Tungumálastofa | 6,6 | |
| Heimilisfræðistofa | 72,8 | |
| Aðstaða til tölvukennslu | 64,1 | |
| Tölvur til afnota fyrir nemendur | 91,7 | |
| *Sérskólar eru ekki taldir með. | ||
| Heimildir: Könnun menntamálaráðuneytisins 1997. | ||
Tölvur.
Í upplýsingaöflun menntamálaráðuneytisins vorið 1997 sem minnst var á hér að framan var spurt um fjölda tölva í skólum. Niðurstaða þeirrar athugunar sýndi að á landinu öllu voru að meðaltali um 20 nemendur um hverja tölvu. Ástandið var misjafnt eftir kjördæmum eins og sjá má á mynd 6.1. Flestir voru þá um hverja tölvu í Reykjaneskjördæmi eða 35 nemendur, en fæstir nemendur voru um hverja tölvu á Vestfjörðum eða 12 nemendur. Ekki hefur verið aflað sambærilegra upplýsinga um fjölda tölva í grunnskólum síðan vorið 1997, en telja má næsta víst að ástandið hafi batnað nokkuð síðan umrædd könnun var gerð.
Hér er myndað efni sem sést ekki í vefútgáfu
VII. Úrskurðir í málum sem snerta skólahald og framkvæmd grunnskólalaga.
Í kjölfar grunnskólalaganna frá 1995 voru settar nýjar reglugerðir um ýmis ákvæði laganna til að skýra málsmeðferð og framkvæmd þeirra. Jafnframt voru ýmsar eldri reglugerðir felldar úr gildi. Eðlilegt er að við svo umfangsmiklar breytingar sem lögin fólu í sér komi upp álitamál og ágreiningsefni. Menntamálaráðuneytinu hafa borist fjölmargar kærur, fyrirspurnir og beiðnir um úrskurði í vafamálum sem snerta skólahald og framkvæmd grunnskólalaganna. Í mars 1997 gaf ráðuneytið út rit með safni úrskurða í álitamálum. Vegna þeirra fjölda mála sem hafa bæst við síðan var ritið endurútgefið haustið 1998. Markmiðið með útgáfu slíks rits er að kynna úrskurði og afstöðu ráðuneytisins í álitamálum fyrir sveitarstjórnum, skólanefndum, skólaskrifstofum, foreldrum, kennurum, nemendum og öðrum sem skólahald varðar. Hægt er að kynna sér efni þessa rits á heimasíðu menntamálaráðuneytisins, www.mrn.stjr.is.
Ritinu er skipt upp í 19 efnisflokka. Efnisflokkar og fjöldi mála eru eftirfarandi:
| Agi og brottrekstur úr skóla | 7 | Skólanefnd | 4 |
| Foreldraráð | 9 | Skólasel | 1 |
| Lok skyldunáms | 6 | Skólasókn | 7 |
| Nám og kennsla | 5 | Starfsfólk grunnskóla | 6 |
| Rannsóknir og kannanir | 1 | Starfstími grunnskóla | 6 |
| Samræmd próf | 6 | Þátttaka foreldra í kostnaði | 4 |
| Samvinna heimila og skóla | 2 | Undanþága frá skyldunámi | 6 |
| Sérkennsla og sérfræðiþjónusta | 8 | Önnur mál | 1 |
| Skólaakstur | 1 | Öryggismál | 3 |
| Skólahúsnæði | 1 |
Þróunarsjóður grunnskóla.
Þróunarsjóður grunnskóla var stofnaður 1989. Sérstakar reglur gilda um úthlutun úr sjóðnum og sér ráðgjafarnefnd um að meta umsóknir og gera tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar. Frá upphafi starfrækslu Þróunarsjóðs grunnskóla hafa um 230 þróunarverkefni hlotið styrki og þannig hefur verið stuðlað að margháttuðu þróunarstarfi í grunnskólum á undanförnum árum. Menntamálaráðuneytið hefur árlega gefið út yfirlitsrit með lýsingum á einstökum þróunarverkefnum. Rit þessi eru aðgengileg á heimasíðu ráðuneytisins, www.mrn.stjr.is.
| 8.1. Heildarstyrkveitingar í þús. kr. og fjöldi styrktra verkefna úr Þróunarsjóði grunnskóla 1989– 97. | |||||||||
| 1989 | 1990 | 1991 | 1992 | 1993 | 1994 | 1995 | 1996 | 1997 | |
| Heildarstyrkveiting | 4.194 | 9.038 | 9.640 | 8.014 | 8.600 | 8.217 | 8.000 | 8.300 | 9.000 |
| Fjöldi styrktra verkefna | 16 | 26 | 24 | 20 | 24 | 28 | 20 | 24 | 16 |
| Heimild: Menntamálaráðuneytið. | |||||||||
Til móts við nýja tíma – menntaþing.
Þann 5. október 1996 stóð menntamálaráðuneytið fyrir menntaþingi undir yfirskriftinni „Til móts við nýja tíma“. Þingið var haldið í Háskólabíói og Þjóðarbókhlöðu. Tilgangur þingsins var að leiða saman áhugasama aðila um menntun og skólastarf og jafnframt að vera vettvangur þar sem nýjungar væru kynntar. Á þinginu voru flutt fjölmörg erindi, málstofur voru starfræktar og loks var sýningarsvæði þar sem skólum og þjónustustofnunum gafst tækifæri til að kynna ýmsar nýjungar og þróunarverkefni í skólastarfi. Meðal þeirra málefna sem rædd voru á þinginu má nefna gæði og árangur skólastarfs, símenntun, menntun í alþjóðlegu upplýsingasamfélagi, menntun og jafnrétti og forvarnir í skólakerfinu. Þingið var öllum opið og var aðsókn mjög góð. Þar komu saman nemendur, skólafólk, fulltrúar sveitarfélaga og fleiri til að ræða og kynnast fjölmörgum þáttum sem snerta skólastarf í landinu.
Málþing um jafnréttismál.
Í nóvember 1997 stóð menntamálaráðuneytið í samvinnu við karlanefnd Jafnréttisráðs fyrir málþingi um stöðu stráka í íslenskum skólum undir yfirskriftinni „Strákar í skóla“. Þar fjölluðu íslenskir og erlendir sérfræðingar um ákveðna þætti málsins og kynntu rannsóknir, auk þess sem kennarar, foreldrar og nemendur sögðu frá reynslu sinni. Erindin sem flutt voru á málþinginu voru birt í riti sem m.a. er að finna á heimasíðu menntamálaráðuneytisins, www.mrn.stjr.is.
Samstarf heimila og skóla.
Grunnskólalögin frá 1995 kveða á um að þriggja manna foreldraráð skuli starfa við hvern grunnskóla og jafnframt er heimild til stofnunar foreldrafélags. Áður höfðu lög einungis kveðið á um foreldra- og kennarafélag við hvern skóla. Foreldraráði er ætlað að fylgjast með uppbyggingu og framkvæmd skólanámskrár og öðrum áætlunum um skólahald og á að veita umsögn um áætlanir um skólahald. Með þessu nýja ákvæði um foreldraráð hefur verið skapaður formlegur vettvangur til að koma sjónarmiðum foreldra um innihald og áherslur í starfi skólans og skipulagi skólahalds á framfæri við stjórn skólans.
Í könnun menntamálaráðuneytisins í árslok 1996 á fjölda foreldraráða og starfsemi þeirra kom í ljós að stofnuð höfðu verið foreldraráð við 152 grunnskóla eða við 71% skóla. Í dag, tveimur og hálfu ári eftir að grunnskólalögin komu að fullu til framkvæmda, eru foreldraráð starfandi við 178 grunnskóla.
Foreldrafélög eru starfandi við langflesta grunnskóla. Haustið 1997 hélt menntamálaráðuneytið sérstaka ráðstefnu í samvinnu við ýmsa aðila um samstarf heimila og skóla undir heitinu „Frá orðum til athafna“. Á heimasíðu ráðuneytisins, www.mrn.stjr.is, er að finna samantekt frá ráðstefnunni.
IX. Reglugerðir.
Grunnskólalögin kveða á um setningu allmargra reglugerða og hefur menntamálaráðuneytið gefið þær allar út að einni undanskilinni, þ.e. reglugerð um framkvæmd 33. gr. laganna um námsgögn. Eftirfarandi reglugerðir hafa verið gefnar út í kjölfar grunnskólalaganna frá 1995:
Reglugerð um afnám ýmissa reglugerða um grunnskóla, nr. 321/1997.
Reglugerð um rétt nemenda og foreldra/forráðamanna til að skoða metnar prófúrlausnir nemenda, nr. 710/1996.
Reglugerð um námsmat nemenda sem víkja svo frá almennum þroska að þeim henta ekki samræmd próf, nr. 709/1996.
Reglugerð um Þróunarsjóð grunnskóla, nr. 657/1996.
Reglugerð um lágmarksaðstöðu grunnskóla, nr. 519/1996.
Reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra prófa í grunnskólum, nr. 516/1996.
Reglugerð um fyrirkomulag æfingakennslu kennaranema í grunnskólum, nr. 393/1996.
Reglugerð um íslenskukennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku, nr. 391/1996.
Auglýsing um gildistöku aðalnámskrár grunnskóla, nr. 437/1996.
Reglugerð um sérkennslu, nr. 389/1996.
Reglugerð um nemendaverndarráð í grunnskólum, nr. 388/1996.
Reglugerð um valgreinar í grunnskólum, nr. 387/1996.
Reglugerð um sérfræðiþjónustu skóla, nr. 386/1996.
Reglugerð um skólareglur og aga í grunnskólum, nr. 385/1996.
Reglugerð um upplýsingaskyldu sveitarfé laga um skólahald, nr. 384/1996.
Reglugerð um framkvæmd laga um grunnskóla, nr. 66/1995, nr. 349/1995.
Að auki hefur verið gefið út erindisbréf fyrir trúnaðarmenn við framkvæmd samræmdra lokaprófa í grunnskóla, nr. 233/1997.
X. Útgefin rit sem tengjast málefnum grunnskóla.
Á eftirfarandi yfirliti má sjá þau rit sem gefin hafa verið út á vegum menntamálaráðuneytisins á árunum 1995–98 og tengjast málefnum grunnskólans á einn eða annan hátt. Hér er t.d. um að ræða nefndarálit, samantektir frá ráðstefnum sem ráðuneytið hefur staðið að og ýmis upplýsingarit, bæði á íslensku og á erlendum tungumálum, sem einkum eru gefin út með það í huga að þau nýtist til kynningar t.d. í alþjóðlegu samstarfi.
Yfirlit yfir öll rit sem hafa verið gefin út á vegum menntamálaráðuneytisins frá 1991 er að finna á heimasíðu ráðuneytisins, www.mrn.stjr.is. Mörg ritanna eru aðgengileg til útprentunar af heimasíðunni.
Útgefin rit menntamálaráðuneytisins 1995–98 sem tengjast málefnum grunnskóla:
Að byrja í skóla : kynningarrit fyrir foreldra / forráðamenn barna sem eru að byrja í skóla. Endurskoðuð útg., 5. pr. 1995. 24 s. (1. útg. 1986. Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur yfirtók útgáfuna.)
Ársskýrsla skólasafna í grunnskólum 1995–1996. 1998. 11 s. ISBN 9979-821-91-7.
Ársskýrsla skólasafna í grunnskólum 1996–1997. 1998. 12 s. ISBN 9979-882-02-6.
Brúum bilið : rit um tengsl leikskóla og grunnskóla. 1997. 31 s. ISBN 9979-821-89-2.
Bækur og tímarit fyrir skólasöfn í grunnskólum : (stofnkostur). 5. útg. 1996. 98 s. ISBN 9979-821-60-4. (1. útg. 1980.)
The Educational System in Iceland. 1995. 42 s. ISBN 9979-821-42-6.
The Educational System in Iceland. 1997. 28 s. ISBN 9979-821-80-9.
The Educational System in Iceland. 1998. 47 s. ISBN 9979-821-95-7.
Efling íþróttastarfs : skýrsla nefndar um eflingu íþróttastarfs. Des. 1997. 77, [56] s.
Efling náms- og starfsráðgjafar : nefndarálit : staða starfs- og námsráðgjafar, hlutverk og verksvið : tillögur. Okt. 1998. 29 s. ISBN 9979-882-01-8.
Enn betri skóli: þeirra réttur – okkar skylda : grundvöllur endurskoðunar aðalnámskráa. Apr. 1998. 59 s.
Enn betri skóli: þeirra réttur – okkar skylda : ný skólastefna : grundvöllur endurskoðunar á aðalnámskrám fyrir grunnskóla og framhaldsskóla. Febr. 1998. 23 s.
Fíknivarnir í grunn- og framhaldsskólum : niðurstöður könnunar. [1996]. 36 s.
Fjöldi nemenda í grunnskólum 1995–1996. Des. 1995. 15 s.
Fjöldi nemenda í grunnskólum 1996–1997. Nóv. 1996. 15 s.
Foreldraráð við grunnskóla: niðurstöður úr könnun á stofnun foreldraráða við grunnskóla og viðhorfum skólastjóra til þeirra 1996. Mars 1997. 16 s. ISBN 9979-821-85-X.
Frá orðum til athafna : samantekt erinda og umræðna á málþingi um samstarf heimila og skóla í leik- og grunnskólum sem haldið var á Grand Hótel í Reykjavík 17. október 1997. Jan. 1998. 36, [3] s. ISBN 9979-821-92-2.
Fréttabréf menntamálaráðuneytisins: 1. tbl. mars, 2. tbl. maí, 3. tbl. des. 1995. 1. tbl. okt. 1996. 1. tbl. febr., 2. tbl. maí, 3. tbl. sept., 4. tbl. nóv. 1997. 1. tbl. febr., 2. tbl. apr., 3. tbl. sept., 4. tbl. des 1998.
Gildandi lög, reglugerðir og erindisbréf um mennta- og menningarmál : 1. október 1994. [1994]. [1], 22s.
Gildandi lög, reglugerðir og erindisbréf um mennta- og menningarmál : 1. janúar 1996. Jan. 1996. 22 s.
Gildandi lög, reglugerðir og erindisbréf um mennta- og menningarmál : 1. október 1996. [1996]. 23 s.
Gildandi lög, reglugerðir og erindisbréf um mennta- og menningarmál. Júní 1997. [1], 19 s.
Gildandi lög, reglugerðir og erindisbréf um mennta- og menningarmál. Nóv. 1997. [3], 19 s.
Í krafti upplýsinga : tillögur menntamálaráðuneytisins um menntun, menningu og upplýsingatækni : 1996–1999. Mars 1996. ISBN 9979-821-49-1.
Íslenska skólakerfið. 1998. 35 s. ISBN 9979-821-99 -X.
Íslenskukennsla fyrir nýbúa : tillögur starfshóps. Okt. 1992. 25, [51] s. ISBN 9979-821-23-X.
Kennari, skóli & læsi íslenskra barna / Sigríður Þ. Valgeirsdóttir. 1997. xv, [1], 218 s. ISBN 9979-54-187-3. (Dreifing: Háskólaútgáfan.)
Kultur og uddannelse : fremtidens forudsætning. Febr. 1996. 21 s. ISBN 9979-621-56-6. (Menning og menntun, á dönsku.)
Lýsing á þróunarverkefnum sem Þróunarsjóður grunnskóla styrkti 1994–1995. Jan. 1996. 39 s. ISBN 9979-821-49-3.
Lýsing á þróunarverkefnum sem Þróunarsjóður grunnskóla styrkti 1995–1996. Jan. 1997. 29 s. ISBN 9979-821-64-7.
Lýsing á þróunarverkefnum sem Þróunarsjóður grunnskóla styrkti 1996–1997. Jan. 1998. 31, [3] s. ISBN 9979-821-91-4.
Lög um grunnskóla 1995 : yfirlit yfir fyrirspurnir, dreifibréf til skóla, fréttatilkynningar og kvartanir vegna laga um grunnskóla, nr. 66/1995. Mars 1997. 43 s.
Markmið íþróttakennslu í grunnskólum og framhaldsskólum / skýrsla forvinnuhóps á námssviði skólaíþrótta. Des. 1997. 62 s. (Endurskoðun aðalnámskrár 1996–1998.)
Markmið listkennslu í grunnskólum og framhaldsskólum / skýrsla forvinnuhóps á námssviði lista. Sept. 1997. [1], 36 s. (Endurskoðun aðalnámskrár 1996–1998.)
Markmið með náttúrufræðinámi í grunnskólum og framhaldsskólum / lokaskýrsla forvinnuhóps á námssviði náttúrufræða. Nóv. 1997. [4], 56 s. (Endurskoðun aðalnámskrár 1996–1998.)
Markmið móðurmálskennslu í grunnskólum og framhaldsskólum / skýrsla forvinnuhóps á námssviði móðurmáls. Júní 1997. [72] s. (Endurskoðun aðalnámskrár 1996–1998.)
Markmið samfélagsgreina í grunnskólum og framhaldsskólum / skýrsla forvinnuhóps á námssviði samfélagsgreina. Mars 1998. 72, 5, 11, [2] s. (Endurskoðun aðalnámskrár 1996–1998.)
Markmið stærðfræðikennslu í grunnskólum og framhaldsskólum : drög / skýrsla nefndar til að koma með tillögur um hvernig efla megi námsgreinina stærðfræði og stærðfræðiáhuga nemenda í skólakerfinu. Júní 1997. 66 s. (Endurskoðun aðalnámskrár 1996–1998.)
Markmið tungumálakennslu í grunnskólum og framhaldsskólum / skýrsla forvinnuhóps á námssviði erlendra tungumála. Des. 1997. 89, [3] s. (Endurskoðun aðalnámskrár 1996–1998.)
Markmið upplýsinga- og tæknimennta í grunnskólum og framhaldsskólum / skýrsla forvinnuhóps á námssviði upplýsinga- og tæknimennta. Ágúst 1997. 48 s. (Endurskoðun aðalnámskrár 1996–1998.)
Mat á kennaramenntun í Kennaraháskóla Íslands, félagsvísindadeild Háskóla Íslands og kennaradeild Háskólans á Akureyri : fyrstu niðurstöður úr könnun meðal nemenda sem brautskráðst hafa með B.Ed.-gráðu frá Kennaraháskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri. Mars 1998. [1], 15 s.
Mat á kennaramenntun í Kennaraháskóla Íslands, félagsvísindadeild Háskóla Íslands og kennaradeild Háskólans á Akureyri : greinargerð umsjónarhóps. Mars 1998. [1], 8 s.
Mat á kennaramenntun í Kennaraháskóla Íslands, félagsvísindadeild Háskóla Íslands og kennaradeild Háskólans á Akureyri : skýrsla ytri matshóps. Mars 1998. [2], 36 s.
Menning og menntun : forsenda framtíðar. [2. pr.] Febr. 1996. 21 s. ISBN 9979-821-46-9.
Nám að loknum grunnskóla. 21. útg. Mars 1996. 65 s. ISBN 9979-821-55-8.
Nám að loknum grunnskóla. 22. útg. Mars 1997. 71 s. ISBN 9979-821-66-3.
Nám að loknum grunnskóla. 23. útg. Mars 1998. 73 s. ISBN 9979-821-82-5.
Námssvið náttúrufræða : áfangaskýrsla : grunnskólinn : tillögur forvinnuhóps að faglegri stefnumótun á námssviði náttúrufræða. Júní 1997. [22] s. (Endurskoðun aðalnámskrár 1996–1998.)
Nefnd um mótun menntastefnu : áfangaskýrsla. Jan. 1993. [4], 63 s. ISBN 9979-821-33-7. (Annar titill: Áfangaskýrsla nefndar um mótun menntastefnu.)
Nefndarálit: Kennara- og uppeldisháskóli Íslands : drög að námskrá. Júní 1997. 122 s. ISBN 9979-821-77-9.
Ráðstefna menntamálaráðuneytisins um ýmis málefni barna og unglinga með sérþarfir : Borgartúni 6, Reykjavík, 2. mars 1996. Sept. 1996. 80 s. ISBN 9979-821-61-0.
Salamanca-yfirlýsingin og rammaáætlun um aðgerðir vegna nemenda með sérþarfir : alþjóðleg ráðstefna um menntun nemenda með sérþarfir, Salamanca, Spáni, 7.–10. júní 1994. Menntamálaráðuneytið : Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna : menntamálaráðuneytið á Spáni, des. 1995. 41 s. ISBN 9979-821-50-7.
Sértæk lesröskun : skýrsla starfshóps menntamálaráðuneytisins um nemendur með sértæka lestrar- og réttritunarerfiðleika í grunnskólum og framhaldsskólum. Okt. 1997. 65 s.
Sjálfsmat skóla : leikskólar, grunnskólar og framhaldsskólar. Maí 1997. [4], 21 s. ISBN 9979-821-76-0.
Skrá um starfandi skólastjórnendur og kennara 1995–1996. Des. 1995. 159 s. ISBN 9979-821-49-3.
Skýrsla nefndar um réttindamál grunnskólakennara við flutning grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga. Des. 1995. 48, [5] s.
Skýrsla nefndar um stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna : í samræmi við þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi 4. júní 1996. Okt. 1997. 10 s.
Skýrsla starfshóps á vegum menntamálaráðherra um starfstengd réttindi kennara vegna flutnings grunnskóla til sveitarfélaga. Apríl 1994. [2] 16 s.
Skýrsla stefnumótunarnefndar til menntamálaráðherra / stefnumótunarnefnd um endurskoðun námskráa grunn- og framhaldsskóla. Apr. 1997. [2], 14 s.
Sundstig : sundpróf í grunnskóla. Ágúst 1995. 19 s.
Til móts við nýja tíma : Menntaþing 1996 : áhersluatriði í erindum fyrirlesara á menntaþingi í Háskólabíói og Þjóðarbókhlöðu 5. október 1996. Okt. 1996. 53 s.
Tilfærsla grunnskólans til sveitarfélaga : lokaskýrsla kostnaðarnefndar. Febr. 1996. [1], 25, [16] s.
Tillögur að fyrirkomulagi verkefna fræðsluskrifstofa eftir flutning grunnskólans til sveitarfélaga. Okt. 1995. 21, [35] s.
Tölfræðihandbók um menntun og menningu. Sept. 1996. 113 s. ISBN 9979-821-61-2.
Uddannelsessystemet i Island. 1995. 42 s. ISBN 9979-821-43-4.
Uddannelsessystemet i Island. 1998. 47 s. ISBN 9979-821-96-5.
Um íslenskukennslu erlendis á grunnskólastigi : ábendingar um hentug námsgögn / Bára Björgvinsdóttir og Ingileif Ástvaldsdóttir. Menntamálaráðuneytið : Skrudda, okt. 1995. 16 s. ISBN 9979-821-48-5.
Um íslenskukennslu erlendis á grunnskólastigi : leiðarvísir. 2. útg. Menntamálaráðuneytið : Skrudda, mars 1995. 34 s. ISBN 9979-821-41-8. (1. útg. 1989 undir heitinu: Námsvísir fyrir íslenskukennslu á Norðurlöndum (í Danmörku og Svíþjóð).)
Um stöðu og þátttöku útlendinga í íslensku samfélagi : álit nefndar um málefni útlendinga. Júní 1997. 73, [24] s. ISBN 9979-821-90-6.
Upplýsingar um leik-, grunn- og tónlistarskóla skólaárið 1996–1997. Apr. 1998. 21 s. ISBN 9979-821-94-9.
Úrskurðir og álitamál vegna laga um grunnskóla, nr. 66/1995. 2. útg. með viðbótum. Ágúst 1998. 68 s. ISBN 9979-882-00-X. (1. útg. 1997 undir heitinu: Lög um grunnskóla 1995 : yfirlit yfir fyrirspurnir, dreifibréf til skóla, fréttatilkynningar og kvartanir vegna laga um grunnskóla, nr. 66/1995.)
Útbreiðsla Lions-Quest námsefnisins, Að ná tökum á tilverunni : niðurstöður athugunar vorið 1995. Des. 1995. 10 s. ISBN 9979-821-51-5.
Úthlutun styrkja úr Þróunarsjóði leikskóla 1989–1996. [1997]. [8] s.
Yfirlýsing um íþróttir, umburðarlyndi og drengilega keppni : hringborðsumræður Amsterdam, 11. apríl, 1996. 1996. 14 s.
Útgáfur sem tengjast grunnskóla í samvinnu við aðra:
Handraði : handbók um málefni grunnskóla. Samband íslenskra sveitarfélaga : Menntamálaráðuneytið, [1997]. 1 lausblaðab.
Industrial competitiveness and technology policies : outlook 1995 : Iceland. [Reykjavík] : Ministry of Industry and Commerce : Ministry of Education and Science, Oct. 1995. 21 s.
Menntun, mannauður og framleiðni : greinargerð til menntamálaráðherra / Tryggvi Þór Herbertsson. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, febr. 1997. [2], 33, ix s. (Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Skýrsla ; C97:02.)
Strákar í skóla : erindi frá málþingi karlanefndar Jafnréttisráðs og menntamálaráðuneytis 27. nóvember 1997. Menntamálaráðuneytið, Skrifstofa jafnréttismála, júní 1998. 44 s. ISBN 9979-821-97-3.
Bæklingar og veggspjöld:
Dagur íslenskrar tungu : 16. nóvember 1997 : hugmyndir að viðfangsefnum sem gætu komið að gagni í leikskólum og grunnskólum. 6 s. + veggspjald.
Strákar í skóla : málþing á vegum karlanefndar Jafnréttisráðs og menntamálaráðuneytisins, fimmtudaginn 27. nóvember 1997, veggspjald.