Ferill 600. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1087 — 600. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um löggæslu í Grindavík.
Frá Sigríði Jóhannesdóttur.
1. Er ráðherra tilbúinn að styðja ákvörðun sýslumannsins í Keflavík um að leggja niður bakvaktir hjá lögreglunni í Grindavík þó að sýnt hafi verið fram á að það hafi ekki sparnað í för með sér og tryggi ekki sem skyldi öryggi íbúanna í Grindavík?
2. Telur ráðherra að löggæslu sé sinnt nægilega vel í verstöðvarbæ þar sem búa 2.169 manns og þar á ofan yfir 200 manns sem búa nú í verbúðum, auk þess sem fjölmargir bætast í hópinn í landlegum, þegar tekur minnst 25 mínútur að kalla til lögregluaðstoð úr næstu opinni lögreglustöð frá kl. 1 eftir miðnætti í miðri viku?
3. Er ráðherra tilbúinn að staðfesta með lögum eða reglugerð að lögreglustöð skuli vera áfram í Grindavík?
4. Er ráðherra tilbúinn til að staðfesta að áfram verði rekin umboðsskrifstofa sýslumanns í Grindavík eins og verið hefur?
Skriflegt svar óskast.