Ferill 602. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1089  —  602. mál.




Skýrsla



samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir 1997.

(Lögð fyrir Alþingi á 123. löggjafarþingi 1998–99.)



INNGANGUR

    Framkvæmdir í hafnargerðum á árinu 1997 urðu sem hér segir. Tölur frá fyrra ári eru til samanburðar.

1997
millj. kr.
1996
millj. kr.
Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir 843,9 860,8
Ferjubryggjur 11,0 49,8
Samtals 854,9 910,6

    Hér á eftir fer stutt lýsing á framkvæmdum á hverjum stað. Einnig er sérstakur kafli um rannsóknir. Þá er og fjallað um framkvæmdir við landbrotsvarnir og sagt frá framkvæmdum í höfnum sem ekki hafa notið ríkisstyrks.

RÍKISSTYRKTAR HAFNARFRAMKVÆMDIR

Grundartangi.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. (Sjá kaflann um hafnarframkvæmdir sem ekki eru ríkis­styrktar.)

Akranes.
    Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur var keypt og sett upp.
    Í júní var boðin út vinna við þekju og lagnir nýs stálþils við Faxabryggju. Aðeins eitt til­boð barst og var það talsvert yfir kostnaðaráætlun. Tilboðinu var hafnað og framkvæmdinni frestað fram á næsta ár.
    Framkvæmdakostnaður: 2,0 millj. kr.

Borgarnes.
    Engar framkvæmdir.

Snæfellsbær.
    Arnarstapi: Í febrúar lauk Hagtak hf. við dýpkun sem samið var um á síðasta ári. Sker vestan bryggjunnar var sprengt og efni grabbað út fyrir hafnargarðinn, alls um 1.000 m³. Kostnaður við dýpkunina reyndist talsvert lægri en búist var við. Ástæðurnar voru að upp­gröftur reyndist minni en áætlað hafði verið og heimilað var að moka efninu út fyrir hafnar­garðinn í stað þess að sigla því burt.
    Rifshöfn: Hluti af timburbryggju (32 m langur og tæplega 5 m breiður kafli) vestast í höfninni var endurbyggður. Timbur í bryggjuna, asobe-plankar og basraloc-staurar, var keypt hjá Byko. Smíði bryggjunnar var boðin út í september og var samið við lægstbjóðanda, Guðlaug Einarsson ehf. Verkinu var ekki að fullu lokið um áramót.
     Ólafsvík: Malbiksslitlag var lagt á 943 m² tengibraut frá Norðurtangabryggju að hafnarvog. Tak – Malbik ehf. í Búðardal sá um framkvæmdina.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 19,3 millj. kr.

Grundarfjörður.
    Í maí lauk Oddur H. Magnússon við að dýpka í krikanum við Suðurgarð og gekk frá upp­fyllingu við smábátaaðstöðuna. Kjarni og grjót framan á fyllinguna, alls 1.620 m³, var tekið við Mjósund í Hraunsfirði og í Kóngsbakkalandi í Helgafellssveit.
    Samið var við Króla ehf. um kaup og uppsetningu á 40 m langri flotbryggju ásamt land­göngubrú. Heimamenn sáu um að steypa landstöpul fyrir flotbryggjuna.
    Framkvæmdakostnaður: 7,3 millj. kr.

Stykkishólmur.
    Steypt var 170 m² upptökubraut fyrir smábáta vestan við bryggjuna í Skipavík. Heima­menn sáu um framkvæmdir.
    Framkvæmdakostnaður: 2,0 millj. kr.

Reykhólahöfn.
    Engar framkvæmdir.

Vesturbyggð.
    Brjánslækur: Engar framkvæmdir.
     Patreksfjörður: Steypt var upptökubraut fyrir smábáta og gert við grjótvörn í krikanum við Oddann, en tjón varð á grjótvörninni veturinn 1996. Í júní voru þessi verk boðin út sam­eiginlega ásamt tjónsviðgerð á Bíldudal. Samið var við Friðgeir V. Hjaltalín í Grundarfirði, en hans tilboð var lægst af þremur sem bárust. Framkvæmdir við upptökubrautina og tjóns­viðgerðir hófust í júlí og lauk 4. nóvember. Steypta upptökubrautin er 150 m² og um 2.000 m³ af grjóti og fyllingarefni fóru í skáann undir brautina og fláa meðfram henni. Í viðgerðina á Oddanum fóru 1.255 m³ af grjóti og kjarna sem að mestu var tekið úr Hlaðseyrarnámu. Um 460 m³ af grjóti voru teknir af Kleifaheiði.
     Bíldudalur: Gert var við tjón á grjótgarðinum sunnan við Bíldudalshöfn. Friðgeir V. Hjaltalín í Grundarfirði vann verkið að undangengnu útboði í samvinnu við Patreksfjörð. Í viðgerðina fóru um 900 m³ af grjóti og kjarna. Grjótið var unnið í námu í landi Bíldudals við veginn yfir Hálfdán.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 10,9 millj. kr.
    Styrkur úr Hafnabótasjóði: 5,1 millj. kr.

Tálknafjörður.
    Fyrirhugað var að ljúka frágangi á lögnum og þekju við nýja stálþilið en ákveðið var að fresta því verki um tvö ár og byggja í staðinn skjólgarð vestan við smábátahöfnina. Verkið var boðið út í ágúst og samið við Friðgeir V. Hjaltalín. Byrjað var á framkvæmdum í október og þeim lokið í desember. Garðurinn er um 130 m langur og í hann fóru 4.151 m³ af grjóti og kjarna. Efnið var tekið úr námu í Mikladal.
    Framkvæmdakostnaður: 5,7 millj. kr.

Bolungarvík.
    Unnið var að uppsetningu ljósamasturs og frágangi á raflögn við Brjótinn. Rafsjá í Bol­ungarvík annaðist verkið. Frágangi á raflögninni var ekki að fullu lokið á árinu.
    Framkvæmdakostnaður: 1,7 millj. kr.

Ísafjarðarbær.
     Þingeyri: Engar framkvæmdir.
     Flateyri: Engar framkvæmdir.
     Suðureyri: Gert var við tjón á skjólgarðinum austan við höfnina. Samið var við Jón og Magnús á Ísafirði um framkvæmdina. Bætt var í garðinn um 1.650 m³ af grjóti og kjarna. Efnið var tekið úr námu á Ísafirði.
     Ísafjörður: Í apríl var lokið smíði ferjubryggju í Sundahöfn og dýpkun að bryggjunni. Samið var um þessi verk við Eirík og Einar Val hf. í nóvember á síðasta ári. Undirverktaki við dýpkun var Björgun ehf. og var 2.380 m³ af efni dælt upp framan við bryggjuna. Í plan fram að brúarbás fóru um 2.000 m³ af fyllingarefni og grjóti og 41 m³ af steypu fóru í brúar­básinn. Gamla ferjubrúin frá Þorlákshöfn var notuð eftir að gerðar höfðu verið á henni ýmsar lagfæringar og hún stytt í 15 m. Sjálf bryggjan er 12 m löng, byggð úr asobe-harðviði við steyptan landvegg. Hönnunardýpi við bryggjuna er 4,5 m.
    Unnið var að raflögn og lýsingu á nýja þilið í bátahöfninni. Orkubú Vestfjarða lagði nýja 710A-heimtaug inn í hafnarhúsið og gekk frá inntaksbúnaði. Í apríl var boðin út smíði töflu­skápa ásamt lýsingu og raflögn fram á bryggjuna. Samið var við Pólinn ehf. á Ísafirði, sem átti lægsta boðið, og luku þeir verkinu 23. júní. Settir voru upp fjórir tenglabrunnar við kant og lagt í þá fyrir fimm 125A- og fjóra 63A-tengla.
    Til stóð að hefja byggingu stálþils í Sundahöfninni en því var frestað þar sem ekki var samstaða um það meðal heimamanna.
    Framkvæmdakostnaður: 30,5 millj. kr.
    Styrkur úr Hafnabótasjóði: 1,0 millj. kr.

Súðavík.
    Í júlí var boðin út lenging og styrking grjótvarnar á Norðurgarði. Aðeins eitt tilboð barst í verkið, töluvert hærra en kostnaðaráætlunin. Tilboðinu var hafnað og ákveðið að endurskil­greina verkið og bjóða það síðan út að nýju strax á næsta ári.
    Framkvæmdakostnaður: 0,8 millj. kr.

Norðurfjörður.
    Engar framkvæmdir.

Drangsnes.
    Í apríl var boðin út endurbygging á skjólgarði við bátahöfnina í Kokkálsvík. Samið var við Guðjón Jónsson, Nýbýlavegi 24 á Hvolsvelli, um framkvæmdina. Verkinu lauk í ágúst. Grjótvörn var endurraðað og bætt í hana 3.000 m³ af kjarna og flokkuðu grjóti.
    Framkvæmdakostnaður: 6,4 millj. kr.

Hólmavík.
    Unnið var við slitlag á hafnarsvæði. Tvöföld klæðning, 1.100 m², var sett á tengibraut að trébryggju við eystri hafnargarð og 102 m² slitlag steypt á vegtengingu við hafnarvog. Vinnuflokkur Vegagerðarinnar sá um útlögn á klæðningu í lok ágúst og byrjun september. Samið var við Ásmund og Ólaf sf. um steypuvinnu við hafnarvogina og luku þeir verkinu um miðjan ágúst.
    Framkvæmdakostnaður: 2,1 millj. kr.

Hvammstangi.
    Endurbygging á fremstu 60 m af Norðurgarði var boðin út. Samið var við lægstbjóðanda, Byggingarfélagið Stapa hf. Stálþil var keypt af Hedru hf. að undangengnu útboði. Sprengt var fyrir þilinu á um 33 m kafla. Jafnframt var 140 m² svæði sprengt og dýpkað meðfram þil­inu á þeim kafla. Lagðar voru ídráttarlagnir og steypt þekja við stálþilið og yfir fremsta ker­ið, alls 268 m². Dýpkun reyndist meiri en gert var ráð fyrir í upphafi. Að auki var samið um nokkur minni háttar aukaverk, svo sem varðandi breytingar á lögnum og útfærslu á kanti. Viðbótargreiðslur til verktaka vegna þessara þátta voru alls um 2,5 millj. kr. Verktími var frá júlí fram í nóvember.
    Framkvæmdakostnaður: 26,7 millj. kr.

Blönduós.
    Gengið var frá lögnum og lýsingu við nýja viðlegukantinn norðan á bryggjunni. Samið var við Stíganda hf. um byggingu ljósamasturs- og vatnshúss. Bæjarstarfsmenn sáu um teng­ingu á vatnslögn og samið var við Gest Guðmundsson rafverktaka um að setja upp lýsingu og ganga frá raflögnum á bryggjunni. Vinna við ljósamasturshús hófst í mars og lokið var við raflögn og lýsingu í september.
    Framkvæmdakostnaður: 4,8 millj. kr.

Skagaströnd.
    Framkvæmdum við grjótvörn við enda Vesturgarðs sem hófust árið 1996 var haldið áfram. Uppgjöri vegna gjaldþrots V. Brynjólfssonar ehf. lauk í ársbyrjun. Áður en til þess kom var vinna við að leggja veg að nýrri grjótnámu, sem er í ásnum austan við Hvammskots­bruna, langt komin og búið var að flytja um 750 m³ af grjóti á lager inn á Skagaströnd. Í mars var verkið boðið út að nýju. Jafnframt var boðin út sjóvörn við Breiðablik og Straum­nes. Þrjú tilboð bárust, öll töluvert yfir kostnaðaráætlun. Samið var við Rögnvald Árnason Sauðárkróki sem átti lægsta boðið, 113% m.v. kostnaðaráætlun. Vinna við grjótvörnina hófst að nýju í maí og verkinu var að fullu lokið í ágúst. Sett var grjót meðfram steinsteypukerun­um á 30 m kafla að vestanverðu, fyrir endann og 20 m upp með garðinum að innanverðu. Að auki voru settir um 150 m³ af stórgrýti út á klöppina við suðvesturhornið á gömlu síldarverk­smiðjunni til að draga úr ágjöf þar. Flokkað grjót var alls 6.866 m³ og kjarni 1.816 m³, sam­tals 8.682 m³. Samið var aukalega við verktakann um frágang á svæði við gömlu námuna í Hvammskotsbruna og við landeigendur sem tóku að sér uppgræðslu á námusvæðinu.
    Framkvæmdum við innsiglingarmerki sem setja átti á Brúnkollu var frestað.
    Framkvæmdakostnaður: 21,6 millj. kr.

Sauðárkrókur.
    Lenging Sandfangara og grjótvinnsla fyrir Norðurgarð var boðin út. Samið var við lægstbjóðanda, Rögnvald Árnason á Sauðárkróki. Verkið hófst um miðjan apríl og lauk í ágúst. Gert hafði verið ráð fyrir að lengja Sandfangarann um 30 m en í ljós kom að garðurinn var styttri en talið var og þurfti því að lengja hann um 40 m. Nothæft grjót í brimvarnir er ekki á aðgengilegum stöðum í nágrenninu. Grjótnáma er í landi Hvalness á Skaga í um 43 km fjarlægð. Til viðbótar langri flutningsleið er burðargeta vegarins lítil. Helst þarf að sæta lagi að flytja grjót meðan frost er í jörð. Kostnaður við grjótöflun er því mjög hár. Um 5.000 m³ af grjóti og kjarna fóru í lengingu Sandfangara og 744 m³ voru teknir upp og endurraðað. Um 1.900 m³ af grjóti voru settir á lager fyrir fyrirhugaða lengingu Norðurgarðs.
    Framkvæmdakostnaður: 19,1 millj. kr.

Hofsós.
    Engar framkvæmdir.
    Fjármagnskostnaður: 0,2 millj. kr.

Haganesvík.
    Engar framkvæmdir.

Siglufjörður.
    Boðin var út vinna við um 1.250 m² þekjusteypu, vatnslögn og lagningu ídráttarröra fyrir raflögn við löndunarbryggju. Samið var við Bás ehf. sem átti lægsta tilboð í verkið. Snjó­bræðslulögn var sett í þekjuna á 15 . 80 m svæði. Verkið hófst í júlí og lauk um miðjan október.
    Undir lok ársins var lýsing og raflögn á bryggjunni boðin út og samið við Rafbæ sf. Því verki lauk ekki á árinu.
    Framkvæmdakostnaður: 12,6 millj. kr.

Hafnasamlag Eyjafjarðar.
     Ólafsfjörður: Árni Helgason, verktakinn sem samið var við um grjótvörn við Norðurgarðinn 1996, fór fram á það í nóvember sama ár að fá að fresta framkvæmdum til vors þar sem ekki væri hættandi á að opna Norðurgarðinn yfir vetrartímann. Í maí 1997 hófst hann handa að nýju og lauk verkinu um miðjan nóvember. Á sama tíma var unnið við 160 m langan sjóvarnargarð við Námuveg norðan hafnarinnar og flóðavörn meðfram Ólafsfjarðará. Grjótvörnin er u.þ.b. 240 m löng og nær frá enda sjóvarnar við Námuveg út með Norður­garðinum u.þ.b. 50 m fram fyrir Þverbryggju. Grjót og sprengdur kjarni var úr námu í landi Garðs vestan við Ólafsfjarðarvatn. Endurnýtanlegt grjót í garðstæðinu reyndist aðeins um helmingur þess sem gert hafði verið ráð fyrir og því þurfti að vinna meira magn í námunni. Flokkað grjót og kjarni sem bætt var í garðinn var um 8.100 m³. Heimamenn ákváðu að færa garðinn framar í beygjunni á móts við olíu- og lýsistankana til að fá meira landrými. Í þetta fóru að auki 4.600 m³ af kjarna sem Ólafsfjarðarbær greiddi að fullu.
    Í júlí var boðin út dýpkun við Þverbryggju og inn í Vesturhöfn. Aðeins eitt tilboð barst í verkið frá Hagtaki hf. og var það töluvert yfir kostnaðaráætlun. Tilboðinu var hafnað og samið við Hagtak um tímagjald. Verkið var unnið í október og voru 9.525 m³ af lausu efni grafnir upp úr höfninni.
     Dalvík: Engar framkvæmdir.
     Árskógssandur: Gengið var frá raflögn og lýsingu við nýja þilið. Samið var við Raflagnaverkstæði Tómasar um verkið en Raftákn á Akureyri sá um hönnun. Verktími var frá júní til október.
     Hrísey: Á árinu var samið um aðild Hríseyjarhafnar að Hafnasamlaginu. Unnið var að frágangi á raflögn við nýja þilið. Gengið var frá raflögn og aðaltöflu í ljósamasturshúsi, lagðir rafstrengir í annan tenglaskápinn og settir upp tenglar. Hjörtur Gíslason, rafverktaki í Hrísey, annaðist raflagninguna. Verkfræðistofan Raftákn á Akureyri sá um hönnun. Eftir er að leggja rafstrengi í annan tenglaskápinn, tengja stigaljós og setja upp lýsingu í mastur.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 31,1 millj. kr.

Grímsey.
    Gert var við tjón á Aðalhafnargarðinum. Bætt var um 3.800 m³ af grjóti utan á garðinn á um 60 m kafla næst landi. Grjótið var flokkað úr haugum sem til voru í námunni við flug­völlinn. Jarðverk ehf. á Dalvík annaðist þetta verk. Einnig var gert við gat á steypukeri á haus Aðalhafnargarðsins. Guðlaugur Einarsson frá Fáskrúðsfirði var fenginn til þess verks.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 6,4 millj. kr.
    Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 5,8 millj. kr.

Hafnasamlag Norðurlands.
     Hjalteyri: Engar framkvæmdir.
     Akureyri: Lokið var uppgjöri á verki sem unnið var 1996. Steypt þekja og ídráttarlagnir við stálþilsbakkann í Krossanesi voru boðnar út. Samið var við lægstbjóðanda, Kötlu hf. í Árskógshreppi. Verktími var frá júní til september. Steypt var 1.200 m² þekja, byggt ljósa­masturs- og vatnshús, lagðar vatnslagnir og ídráttarrör fyrir raflögn. Raflögn og lýsing við kantinn var síðan boðin út í september. Samið var við Rafeyri ehf. á Akureyri um verkið og lauk því í desember.
     Svalbarðseyri: Gengið var frá grjótfláa innan hafnar. Samið var við Jarðverk á Dalvík um framkvæmdina. Verkið var unnið í desember. Í grjótvörnina fóru um 1.500 m³ af grjóti og kjarna. Efnið var tekið úr námu í grennd við þjóðveginn, 6 km sunnan Svalbarðseyrar.
     Grenivík: Engar framkvæmdir.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 25,5 millj. kr.

Húsavík.
    Útboð á gerð brimvarnargarðs frá enda Norðurgarðs ásamt sjóvarnargarði fór fram í júní. Samið var um bæði verkin við lægstbjóðanda, Rögnvald Árnason á Sauðárkróki. Fram­kvæmdir hófust um mánaðamótin september–október. Byrjað var á sjóvörninni og efni í hana fengið úr Katlanámu við Húsavík. Í nóvember var opnuð náma fyrir grjót í brimvarnargarð­inn í landi Mánárbakka á Tjörnesi. Fram að áramótum voru unnir í námunni um 14.000 m³ af grjóti og flokkaðir þar í hauga og að auki 1.700 m³ sem fluttir voru á lager við Húsavíkur­höfn. Hinn 18. desember fór verktakinn í jólafrí. Þá var komin upp hugmynd um að breyta verkinu og fara með brimvarnargarð út á Böku vestan við höfnina.
    Í júlí var boðin út dýpkun við Þvergarð. Verkið var ekki á áætlun fyrr en 1999 en hafnar­stjórn var heimilað að bjóða það út gegn því að hún fjármagnaði hluta ríkisins þar til fjár­veiting fengist á fjárlögum. Eitt tilboð barst, frá Hagtaki hf. Þar sem tilboðið var töluvert yfir kostnaðaráætlun var því hafnað og samið við Hagtak um að vinna verkið á tímagjaldi. Laust efni var grafið upp úr Suðurhöfninni, við enda Þvergarðsins og vestan hans þannig að þar er nú um 40 m breið renna með 6–7 m dýpi. Magn uppgraftrar var alls um 8.000 m³.
    Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur um veður og sjólag var keypt.
    Framkvæmdakostnaður 42,8 millj. kr.

Tjörneshöfn.
    Engar framkvæmdir.

Kópasker.
    Unnið var við frágang raflagnar og lýsingar á breikkun aðkomuleiðar niður á bryggjuna sem gerð var á síðasta ári. Settur var upp götukassi og ljósastaur. Rafmagnsveitan annaðist verkið.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður 0,3 millj. kr.

Raufarhöfn.
    Lokið var uppgjöri vegna steyptrar upptökubrautar fyrir smábáta sem gerð var á síðasta ári.
    Sett var steypt slitlag, 10 cm þykkt, á tengibraut milli Hafskipabryggju og Fiskiðju­bryggju. Samið var við Iðufell ehf. um framkvæmdina en Tækniþjónustan á Húsavík sá um hönnun. Uppgröftur var 135 m³, fylling undir slitlag 175 m³ og flatarmál slitlags 1.750 m². Verkið var unnið í júlí og ágúst.
    Framkvæmdakostnaður: 4,5 millj. kr.

Þórshöfn.
    Uppgjöri vinnu við þekju og lagnir frá síðasta ári var lokið. Þá var unnið við frágang á raflögn og samið við ÞH verktaka um að endurbyggja masturshús frammi á hafskipabryggj­unni. Framkvæmdum við masturshúsið lauk ekki á árinu.
    Í júní voru boðnar út framkvæmdir við Suðurgarð og lenging Norðurgarðs ásamt sjóvörn við Bakkaveg. Samið var við lægstbjóðendur, Hjarðarnesbræður ehf. Lenging Norðurgarðs­ins var ekki á áætlun fyrr en á næsta ári, en heimilað var að bjóða garðana út í einu lagi. Framkvæmdir við Suðurgarðinn hófust í ágúst. Þeim lauk ekki á árinu. Grjót var tekið úr námu skammt ofan við þorpið. Mikill vatnsagi og aur í námunni olli erfiðleikum. Semja varð við verktakann um að sækja möl 20 km vegalengd til að bæta í garðinn svo hann yrði akst­ursfær.
    Framkvæmdakostnaður: 27,0 millj. kr.

Bakkafjörður.
    Gengið var frá uppgjöri og samið um verklok við Rögnvald Árnason verktaka á tjóns­viðgerð á brimvarnargarðinum við Nýhöfn frá síðasta ári.
    Lokið var smíði á 20 m langri viðlegubryggju við innri garð. Efni í hana, gagnvarin fura frá Superbyg, var keypt á síðasta ári. Samið var við Guðlaug Einarsson um smíðina og hófst hún um miðjan mars og lauk í byrjun maí. Heildarkostnaður við bryggjuna varð 5 millj. kr. Þar af voru 1,4 millj. kr. greiddar á síðasta ári.
    Samið var við Malarvinnsluna hf. á Egilsstöðum um að leggja slitlag, tvöfalda klæðningu, á tengibraut innan hafnarsvæðisins við Nýhöfn. Flatarmál slitlags er 2.390 m². Efni í slit­lagið kom frá Vegagerðinni. Undirbúningur undir slitlagið, jöfnun og fylling, var unninn af ýmsum.
    Framkvæmdakostnaður: 5,6 millj. kr.
    Uppgjör vegna tjóns: 5,0 millj. kr.
    Styrkur úr Hafnabótasjóði: 4,5 millj. kr.

Vopnafjörður.
    Í apríl var boðið út í einu lagi þrískipt grjótverk, bygging skjólgarðs við nýja smábáta­höfn, grjótvörn á fláa innan hafnar og viðgerð á tjóni sem varð á innri brimvarnargarði í október 1995. Sex tilboð bárust og var samið við þann sem átti lægsta boðið, Stefán Gunn­arsson á Djúpavogi. Verktaki hóf framkvæmdir í byrjun júní og lauk þeim um miðjan nóvem­ber. Grjót var tekið í námu í landi hreppsins á Kolbeinstanga. Það var að hluta tekið úr hrúg­um sem urðu afgangs á Bakkafirði á síðasta ári. Í skjólgarð við smábátahöfnina fóru 15.266 m³ af flokkuðu grjóti og kjarna. Grjótvörn fláa á hafnarsvæðinu frá miðbryggju að lýsis­bryggju var endurhlaðin og bætt í hana um 7.200 m³ af flokkuðu grjóti. Grjótvörnin var færð utar á kafla, en heimamenn greiddu kostnað við það. Í tjónsviðgerð á innri brimvarnargarði fóru um 2.000 m³ af flokkuðu grjóti og 1.300 m³ af kjarna. Nam viðgerðarkostnaðurinn 4,2 millj. Hafnabótasjóður styrkti viðgerðina.
    Samið var við Króla hf. í Garðabæ um kaup og uppsetningu á flotbryggju úr tveimur 20 m löngum steyptum einingum. Heimamenn báru sjálfir kostnað við 1/ 4hluta flotbryggjunnar þar sem ekki var metin þörf á nema 30 m bryggju og miðaðist styrkurinn við þá lengd. Starfs­menn Vopnafjarðarhrepps sáu um að steypa landstöpul fyrir flotbryggjuna. Eftir er að ganga frá lýsingu og raflögn við smábátahöfnina.
    Framkvæmdakostnaður: 26,0 millj. kr.
    Styrkur úr Hafnabótasjóði: 4,2 millj. kr.

Borgarfjörður eystri.
    Í maí var boðin út bygging Skarfaskersgarðs sunnan við bátahöfnina hjá Hafnarhólma. Fjögur tilboð bárust en þeir sem áttu tvö lægstu boðin hættu við. Samið var við Njörð sf. um framkvæmdina á verði sem var rúmum 4% yfir kostnaðaráætlun. Verktími var frá 1. júní til 1. desember. Efni í garðinn, alls 12.841 m³ af flokkuðu grjóti og kjarna, var tekið í grjótnám­unni við Ós.
    Samið var við verktakann um tjónsviðgerð á eldri görðum. Bætt var 600 m³ af grjóti í brimvörn garðsins milli lands og Hafnarhólma og 75 m³ í Hólmagarð. Hafnabótasjóður styrkti viðgerðina.
    Framkvæmdakostnaður: 26,1 millj. kr.
    Styrkur úr Hafnabótasjóði: 1,5 millj. kr.

Seyðisfjörður.
    Lokið var við smíði á húsi undir tollaðstöðu fyrir ferju sem samið var um á seinni hluta síðasta árs.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 34,1 millj. kr.

Neskaupstaður.
    Lokið var uppgjöri á vinnu við þekju og lagnir á stálþil við bræðslu.
    Í lok október 1996 var boðin út dýpkun hafnarinnar á svæði milli loðnubryggju og togara­bryggju. Tvö tilboð bárust í verkið, annað frá Björgun ehf., 29% af áætlun, og hitt frá J&K Petersen, 173% af áætlun. Samið var við Björgun og var byrjað á verkinu í nóvember 1996 og því lokið í ársbyrjun 1997. Úttektarmæling var gerð í mars. Heimilað var að auka dýpkunina um 5.200 m³ og samið við verktakann um viðbótina á sama einingarverði. Alls var því dælt upp úr höfninni 17.800 m³ af lausu efni. Auk þess var dýpkað rúmlega 400 m³ við nýju netaverkstæðisbryggjuna. Hafnarsjóður kostaði þá dýpkun að fullu.
Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 9,1 millj. kr.

Eskifjörður.
    Unnið var að lengingu bræðslubryggju um u.þ.b. 20 m. Heimilað var að flýta verkinu en samkvæmt hafnaáætlun átti það að koma til framkvæmda á árunum 1999–2000. Heimamenn fjármagna verkið að fullu þar til fjárveiting verður til þess á fjárlögum. Stálþil var keypt frá Arbed og rekstur þilsins og fylling boðin út í júní. Samið var við lægstbjóðanda, ÞH verk­taka, um framkvæmdina. Byrjað var á verkinu í ágúst og því lokið um áramót. Reknar voru 53 AZ18-plötur, settar upp stagfestingar og fyllt með 5.220 m³ af efni. Gengið var frá bráða­birgðafestingum í fyllingu og þybbur settar á þilið svo að skip gætu lagst að og bundið. Hönnunardýpi við nýja hluta bryggjunnar er 8,5 m.
    Framkvæmdakostnaður: 25,0 millj. kr.

Reyðarfjörður.
    Dýpkað var við vesturenda Vöruhafnarkantsins. Samið var við Björgun ehf. um fram­kvæmdina án útboðs. Verkið var unnið í júní. Úttektarmæling var gerð í ágúst og dælt upp 6.680 m³ af efni.
    Áætlað var að setja upp festapolla við Vöruhafnarkant en því var frestað.
    Framkvæmdakostnaður: 2,7 millj. kr.

Fáskrúðsfjörður.
    Trévangur hf. á Reyðarfirði lauk verki við stálþil milli hafskipabryggju og Bæjarbryggju sem samið var um á síðasta ári. Vegna þess að þilið skreið fram að neðan um 40–50 cm á 15–20 m kafla voru gerðar nokkrar breytingar á kantbita. Einnig var samið við Trévang um jarðvegsskipti á um 40 m kafla framan við þilið. Nokkuð meira var fyllt upp en hönnunardýpi segir til um og er ætlunin að jafna það út þegar fyllingin hefur sest til. Vinnu við kantbita og jarðvegsskipti lauk í júlí.
    Í júlí var boðin út þekja og lagnir við þilið. Samið var við lægstbjóðanda, ÓS ehf., um verkið. Vinna hófst í ágúst og lauk í lok október. Steypt var 1.070 m² þekja, byggt 5,5 . 2,5 m ljósamasturs- og vatnshús, lögð vatnslögn og ídráttarrör fyrir raflagnir.
    Samið var við Guðmund Hallgrímsson rafverktaka um að ganga frá rafmagnstöflu og setja upp ljós. Frágangi raflagna á bryggjunni er ekki lokið.
    Framkvæmdakostnaður: 22,9 millj. kr.

Stöðvarfjörður.
    Engar framkvæmdir.

Breiðdalsvík.
    Lokið var úttekt á verki sem unnið var á síðasta ári og uppgjöri við Örn Ingólfsson verk­taka. Rannsóknir leiddu í ljós að steypan sem notuð var uppfyllti ekki tilskildar kröfur. Greidd voru 70% fyrir steypu í þekju og 80% fyrir steypu í ljósamasturshús.
    Frestað var að bjóða út afganginn af þekju á stálþilsbryggjuna, um 1.080 m², þar sem heimamenn treystu sér ekki til að fjármagna sinn hluta.
    Framkvæmdakostnaður: 0,8 millj. kr.

Djúpivogur.
    Engar framkvæmdir.
    Fjármagnskostnaður: 0,6 millj. kr.

Höfn í Hornafirði.
    Dýpkað var innan hafnar með dýpkunarskipi hafnarinnar, Soffíu, eins og undanfarin ár. Samkvæmt fjárlögum var gert ráð fyrir 12.000 m³ dýpkun og var því dælt á land á árinu. Mikill framburður sest til í höfninni og reynslan sýnir að þörf er á 12–15 þús. m³ árlegri viðhaldsdýpkun. Í hafnaáætlun 1997–2000 er miðað við 15.000 m³ ári.
    Í febrúar var lokið dýpkun við loðnubryggju sem samið var um við Hagtak hf. á síðasta ári. Sprengt var 1.536 m² svæði og dýpkað í 7,5 m. Alls voru 8.800 m³ af efni grafnir upp.
    Í mars lauk smíði á nýrri loðnubryggju sem samið var um við Guðlaug Einarsson á seinni hluta síðasta árs. Verkinu seinkaði nokkuð vegna þess að siglt var á bryggjuna meðan hún var enn í smíðum. Ákveðið var að lengja bryggjuna til vesturs meðfram enda gömlu bryggj­unnar. Við þetta stækkaði hún um 60 m², fremri kantur hennar varð 50 m í stað 40 m og gamla bryggjan lengdist um 5 m. Landveggur var lengdur um 8 m upp með gömlu bryggjunni að austan.
    Framkvæmdakostnaður: 46,0 millj. kr.

Vestmannaeyjar.
    Lokið var við frágang raflagna á stálþilið við Lönguna. Samið var við raftækjavinnustof­una Geisla um smíði töfluskápa og lagningu raflagna í brunna. Rafmagnsveitan sá um að leggja heimtaugar.
    Samið var við J&K Petersen frá Færeyjum um að dýpka við fyrirhugað stálþil austan Friðarhafnarkants. Borað var og sprengt á alls um 2.300 m² svæði austan við þilstæðið og rúmlega 12.000 m³ af lausu og föstu efni fjarlægðir. Svæðið næst þili 20 . 75 m var dýpkað í 8,0 m en aðrir hlutar svæðisins voru dýpkaðir í 7,5 m. Vinna við dýpkunina hófst í sept­ember og lauk í nóvember.
    Í september var boðinn út rekstur á stálþili austan Friðarhafnarkants og steypa á kantbita. Samið var við lægstbjóðanda, Skipalyftuna ehf., um verkið. Stálþilsefni og festingar voru keyptar frá Arbed. Rekið var niður 70,0 m langt þil með hönnunardýpi 9,0 m. Í útboðinu var gert ráð fyrir að sprengja þyrfti skurð fyrir þilinu, en verktakinn tók þá ákvörðun að reka það niður án þess að sprengja. Tókst honum að koma öllum plötum niður á rétt dýpi, fyrir utan tvær plötur sem þurfti að stytta um u.þ.b. 1,0 m og tvær um 0,5 m. Verkinu var ekki lokið um áramót.
    Framkvæmdakostnaður: 83,1 millj. kr.

Stokkseyri.
    Engar framkvæmdir.

Eyrarbakki.
    Engar framkvæmdir.

Þorlákshöfn.
    Í júní var boðin út þekja og lagnir við nýja stálþilið sem nú hefur hlotið nafnið Skarfa­skersbryggja. Samið var um verkið við þann sem lægst bauð, Heimi Guðmundsson bygging­armeistara. Steypt var 3.015 m² þekja og gengið frá lögnum fyrir vatn og rafmagn á bryggjuna. Verkinu lauk í byrjun desember.
    Framkvæmda- og fjármagnskostnaður: 29,8 millj. kr.

Grindavík.
    Í ársbyrjun fór fram forval á verktökum vegna dýpkunar á innri hluta innsiglingarrennu og að því loknu var fjórum aðilum gefinn kostur á að bjóða í verkið. Tilboð voru opnuð þann 14. apríl og skiluðu eftirtaldir inn tilboði: J&K Petersen 119%, Ístak hf. 154% og Irish Dredging 283% af áætlun. Hagtak hf. skilaði ekki inn tilboði. Samið var við J&K Petersen. Byrjað var í maí og lauk framkvæmdum við dýpkunina í lok ágúst. Töluvert bættist við verkið frá því sem gert var ráð fyrir við útboðið. Bætt var við rúmlega 7.000 m³ greftri yst til að víkka aðkomu að rennunni. Enn fremur reyndist klöpp vera á allmiklu stærra svæði en fram kemur í jarðfræðiskýrslu. Bora og sprengja þurfti á 15.847 m² af alls um 23.600 m² svæði sem dýpkað var í 7 m. Grafnir voru upp 10.106 m³ af lausu efni og um 35.000 m³ af föstu efni voru fjarlægðir. Til verksins voru notaðir tveir gröfuprammar og tveir borflekar. Auk þess voru tveir prammar til að flytja efni, 120 m³ og 170 m³ og dráttarbátur. Hagtak hf. vann sem undirverktaki við borun, sprengingar og uppmokstur allan verktímann.
    Framkvæmdakostnaður: 214,4 millj. kr.

Sandgerði.
    Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur var keypt og sett upp.
    Framkvæmdakostnaður: 1,4 millj. kr.

Hafnasamlag Suðurnesja.
     Garður: Engar framkvæmdir.
     Reykjanesbær: Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur var keypt og sett upp á hafnarskrifstofunni í Keflavík.
    Lokið var við að steypa þekju og ganga frá lögnum og lýsingu við nýja kantinn í Helgu­vík. Samið var við Hjalta Guðmundsson um hluta af verkinu haustið 1995 og á síðasta ári var síðan samið við hann um framhald verksins.
    Gert var við tjón sem varð árið 1995 á keri í aðalhafnargarðinum í Keflavík. Innri ker­veggur var steyptur upp, fylling sett á bak við, gengið frá lögnum og þekja steypt. Viðlaga­trygging hafnaði kröfu um að bæta tjónið og hefur hafnarsjóðurinn höfðað mál til að fá greiðslu bóta. Kostnaður við viðgerðina var áætlaður 14,2 millj. kr. og samþykkti Hafna­bótasjóður að veita styrk sem næmi 60% af þeirri upphæð. Uppgjöri vegna framkvæmdar­innar var ekki lokið um áramót
     Vogar: Í apríl var boðin út styrking grjótvarnar á Norðurgarði. Samið var um verkið við lægstbjóðanda, Ellert Skúlason hf. Garðurinn var endurbyggður og bætt í grjótvörnina alls 13.890 m³. Hafnabótasjóður bætti tjón á garðinum sem metið var á 2 millj. kr. og var tjóns­viðgerðin felld inn í styrkinguna. Grjót til verksins var tekið í Voganámu um 1 km utan við þorpið. Verkinu lauk um miðjan október.
    Framkvæmdakostnaður: 41,0 millj. kr.
    Styrkur úr Hafnabótasjóði: 8,2 millj. kr.

Hafnarfjörður.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. (Sjá kaflann um hafnarframkvæmdir sem ekki eru ríkis­styrktar.)

Garðabær.
    Engar framkvæmdir.

Kópavogur.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. (Sjá kaflann um hafnarframkvæmdir sem ekki eru ríkis­styrktar.)

Óskipt fjárveiting.
    Ýmsar minni háttar framkvæmdir, svo sem lagfæring á innsiglingarmerkjum, uppsetning stiga á bryggjur, lýsing og önnur öryggismál, voru styrktar. Almennt er miðað við að einstak­ar framkvæmdir kosti ekki meira en um 1,0 millj. kr.
    Framkvæmdakostnaður: 3,1 millj. kr.

HAFNARFRAMKVÆMDIR SEM EKKI ERU RÍKISSTYRKTAR

Í höfnum landsins var ýmislegt gert án ríkisstyrkja. Mest eru þetta viðhaldsverkefni eða minni háttar nýbyggingar. Þó var unnið að nokkrum stærri verkefnum í höfnum á síðastliðnu ári sem ríkissjóður tók ekki þátt í. Eftirfarandi hafnir hafa komið upplýsingum um fram­kvæmdir á framfæri.

Grundartangi.
    Hafnar voru framkvæmdir við stækkun Grundartangahafnar. Stækkunin felur í sér að byggður verður 200 m langur stálþilskantur með 13 m dýpi. Kanturinn snýr á móti suðaustri og er í framhaldi af eldri kanti sem er 55 m langur með 10 m dýpi. Gert er ráð fyrir að síðar verði hægt að endurbyggja eldri hlutann og dýpka við hann þannig að heildarlengd bryggju með 13 m dýpi verði 250 m. Markmiðið er að höfnin geti eftir stækkun tekið á móti svo­nefndum Panamax-skipum en það eru stærstu skipin sem geta farið um Panamaskurðinn. Þetta eru um 60.000 tonna skip, 225 m löng, mesta breidd er 32,2 m og hámarks djúprista 11,6 m. Í júlí var boðinn út rekstur á stálþili, fyllingu og steypu á kantbita. Samið var við lægstbjóðanda, Völ hf. Stálþil og festingaefni, alls um 1.200 tonn, var keypt frá Arbed. Undirverktaki við fyllingu var Björgun ehf. Rúmlega 200.000 m³ af sjávarmöl verður dælt á land og komið fyrir í fyllingum. Gert er ráð fyrir að Völur hf. ljúki við sinn þátt verksins um mánaðamótin maí–júní á næsta ári.
    Framkvæmdakostnaður: 190,0 millj. kr.

Hafnarfjörður.
    Verktakinn JVJ lauk verki við Austurbakka í Straumsvík sem hófst árið 1996 og fólst í að reka niður þil, steypa kant og dýpka. Í framhaldinu var boðin út vinna við frágang á yfir­borði og lögnum við kantinn. Samið var um verkið við HG malbikun ehf. Hluti þekju var steyptur og hluti malbikaður. Verkinu lauk um haustið og var Austurbakkinn, sem er 100 m kantur með 10 m dýpi, formlega tekinn í notkun í október. Alls var unnið fyrir um 40 millj. kr. á árinu og heildarkostnaður við byggingu kantsins og dýpkun er því nálægt 300 millj. kr.
Einnig var hafinn undirbúningur að framkvæmdum utan Suðurgarðs með rannsóknum o.fl. Samið var við Siglingastofnun um prófun á líkönum fyrir væntanlegar nýframkvæmdir í Hafnarfjarðarhöfn og lágu niðurstöður fyrir í ársbyrjun 1998.
    Framkvæmdakostnaður: 63,0 millj. kr.

Kópavogur.
    Sæþór ehf. lauk dýpkun á svæði við fyrirhugaða bryggju sem samið var um undir lok síð­asta árs. Í ársbyrjun var boðinn út rekstur stálþils, steypa á kantbita og bygging ljósamast­urshúss og samið um verkið við lægstbjóðanda, Stapa ehf. Lokið var við þessar framkvæmdir um sumarið og bryggjan tekin í notkun. Nýi viðlegukanturinn er 75 m langur með 8 m dýpi. Eftir er að ganga frá vatns- og raflögnum við kantinn og steypa þekju.
Framkvæmdakostnaður: 44,0 millj. kr.

Reykjavík.
    Helsta framkvæmd ársins var olíubryggja í Örfirisey. Unnið var að dýpkun aðsiglingar, efnisskiptum fyrir bryggju og hafin bygging skjólgarðs.
    Aðrar helstu framkvæmdir á vegum Reykjavíkurhafnar á árinu voru ýmis verkefni við þróun hafnarlands og landgerð bæði í Gömlu höfninni og í Sundahöfn. Úthlutun lóða á hafn­arsvæðinu hefur aukist mikið undanfarin ár. Á árunum 1995–97 hefur verið úthlutað um 30 ha af lóðum á hafnarsvæðinu og vinna við landgerð hefur því verið stór hluti framkvæmda á vegum Reykjavíkurhafnar.
    Lokið var frágangi yfirborðs á Vogabakka og hafist handa við fyrsta áfanga í byggingu Skarfagarðs, sem er skjólgarður fyrir Sundahöfn.
    Framkvæmdakostnaður: 250,0 millj. kr.

FERJUBRYGGJUR

    Lokið var byggingu ferjuaðstöðu á Arngerðareyri. Einnig voru gerðar endurbætur á ferju­bryggjunni í Bæjum og minni háttar viðgerðir á nokkrum öðrum stöðum við Ísafjarðardjúp og Breiðafjörð.
    Framkvæmdakostnaður: 11,0 millj. kr.

SJÓVARNARGARÐAR

    Á Akranesi var boðin út sjóvörn við Krókalón og samið við Þrótt ehf. um verkið. Byggður var rúmlega 120 m langur sjóvarnargarður sem nær frá húsi nr. 111 suður á móts við hús nr. 97 við Vesturgötu og um 50 m langur garður við norðurenda Ægisbrautar.
    Í Ólafsvík var endurbyggð sjóvörn við Ennisbakka en sjóvörn sem þar var fyrir skemmdist á 170 m kafla í óveðri sem gerði í nóvember 1996.
    Í Ísafjarðarbæ var unnið að styrkingu á sjóvörn á Flateyri og boðinn var út um 120 m langur kafli í sjóvörn vestan á eyrinni á Suðureyri. Samið var við Jón og Magnús um þessar framkvæmdir.
    Á Blönduósi var boðin út sjóvörn sunnan Blöndu. Samið var við Rögnvald Árnason um verkið að undangengnu útboði. Byggður var upp um 90 m kafli frá ósnum suður á móts við hitaveitulagerinn við Blöndubyggð. Gamla sjóvörnin þar fyrir sunnan var lagfærð og styrkt lítils háttar.
    Á Skagaströnd var gerð sjóvörn framan við tvö hús á Hólanesinu, Breiðablik og Straum­nes. Lengd sjóvarnar var um 25 m á hvorum stað. Sjóvörnin var boðin út með vinnu við grjótvörn við enda Vesturgarðs. Rögnvaldur Árnason á Sauðárkróki átti lægsta boð og var samið við hann um hvorutveggja.
    Á Ólafsfirði var lokið við 160 m langa sjóvörn við Námuveg og flóðavörn meðfram Ólafsfjarðará.
    Á Árskógssandi var gerð 50 m löng sjóvörn neðan við bæinn Brimnes og á Svalbarðseyri var gerð 50 m löng sjóvörn við sláturhúsið. Jarðverk á Dalvík vann bæði þessi verk að undangengnu útboði.
    Á Húsavík var byggður 400 m langur sjóvarnargarður undir Húsavíkurbökkum í fram­haldi af sjóvörn sem komin var og náði suður fyrir sláturhúsið. Samið var við Rögnvald Árnason að undangengnu útboði. Nú er búið að verja allan þann kafla sem ráðgert var að verja í sjóvarnarskýrslunni frá 1995. Heimamenn telja þó að enn sé þörf á að verja um 150 m kafla í viðbót, suður að Hauksmýrarlæk.
    Á Þórshöfn var boðin út um 300 m löng sjóvörn við Bakkaveg. Verkið var boðið út sam­tímis verkinu við Suðurgarð og lengingu Norðurgarðs. Samið var við Hjarðarnesbræður sem áttu lægsta boð. Verkinu var ekki lokið um áramót.
    Í Vestmannaeyjum var lokið við að endurbyggja sjóvörn á Eiðinu sem samið var um við Suðurverk á síðasta ári.
    Á Eyrarbakka var undir lok síðasta árs samið við Suðurverk hf. um að byggja 270 m langan sjóvarnargarð í vestur frá frystihúsinu. Lokið var við það í febrúar.
    Í Ölfushreppi var unnið að sjóvörn á Hafnarnesinu við Þorlákshöfn. Samkvæmt óskum heimamanna er gerð tilraun með að hlaða upp garði fram á berginu í stað þess að byggja flóðvarnargarð frá Sporinu að vegi við fiskeldisstöð eins og skýrslan frá 1995 gerir ráð fyrir. Í þessum áfanga var lokið um helmingi þess garðs sem áætlað er að þurfi.
    Í Herdísarvík var ýtt upp malarkambi við Herdísarvíkurtjörn og hnullungsgrjóti úr fjör­unni raðað á kambinn. Samið var um þetta verk við SEES árið 1995 ásamt sjóvörnum á Suð­urnesjum og í Bessastaðahreppi en tafir urðu á að leyfi fengist hjá Náttúruverndarráði til að hefja framkvæmdir þar til á þessu ári.
    Í Bessastaðahreppi var samið við Suðurverk hf. um byggingu sjóvarnar frá Marbakka suður fyrir Litlubæjarvör nr. 4 og um 400 m kafla við Hliðsnes. Verkið hófst í byrjun nóvem­ber og var ekki lokið um áramót.
    Á Seltjarnarnesi var samið við Borgarvirki um gerð sjóvarna að undangengnu útboði. Byggður var sjóvarnargarður á kaflanum Selbraut–Sæbraut og gert við þrjú skörð sem voru komin í sjóvarnargarðinn út í Gróttu. Á norðurströndinni var hlaðin sjóvörn við Lindarbraut, Bollagarða og víðar. Sjóvörn er nú komin í gott horf meðfram allri norðurströndinni frá bæjamörkum að Gróttu að undanskildum 150 m kafla við Ráðagerði. Þessu til viðbótar lét Seltjarnarnesbær byggja sjóvarnargarða við Golfvallarveg og við golfvöllinn.
    Framkvæmdakostnaður: 66,4 millj. kr.

RANNSÓKNIR

    Á vegum Siglingastofnunar var unnið að rannsóknum fyrir 35,1 millj. kr. Helstu verk­efnisflokkar eru eftirfarandi:
     Frumrannsóknir. Kostnaður 2,6 millj. kr. Með frumrannsóknum er átt við öflun ýmissa grunnupplýsinga, mælingar og rannsóknir sem stuðla að öryggi sjófarenda og réttum ákvarð­anatökum við val á lausnum við mannvirkjagerð.
     Grunnkort af höfnum. Kostnaður 2,0 millj. kr. Dýptarmælingar voru gerðar á Sauðárkróki, Ólafsfirði, Kópaskeri og í Þorlákshöfn.
     Sjávarföll og sjávarflóð. Kostnaður 2,0 millj. kr. Í samstarfi við verkfræðistofuna VST var þróað reiknilíkan fyrir sjávarföll og sjávarflóð fyrir hafsvæðið umhverfis Ísland. Reikni­líkanið veitir upplýsingar um sjávarföll utan hafna og áhlaðanda af völdum lágs loftþrýstings og vindáhlaðanda þegar líkanið er keyrt með tölvuspá Veðurstofunnar. Við kvörðun reikni­líkansins verður stuðst við sjávarfallamæla sem settir hafa verið upp í höfnum.
     Líkantilraunir og frumáætlanir. Kostnaður 16,2 millj. kr. Lokið var gerð skýrslu um rannsóknir og líkantilraunir af innsiglingunni til Grindarvíkurhafnar. Niðurstöður rannsókn­anna á innsiglingunni eru að lagt er til að dýpkuð verði bein innsiglingarrenna til hafnar­innar. Ysti hluti hennar verður með 9,5 m dýpi, 70 m breiður og um 450 m langur. Til að skýla innsiglingunni og höfninni er lagt til að byggðir verði tveir brimvarnargarðar út að inn­siglingarrennunni.
    Gert var líkan af Hafnarfjarðarhöfn og unnar tillögur að nýrri höfn utan Suðurgarðs. Þar er gert ráð fyrir allt að 600 m löngum kanti með 8 til 10 m dýpi, aðstöðu fyrir allt að 3 flot­kvíar og um 24 hektara landsvæði. Gerðar voru tillögur að löndunarkanti fyrir Vopnafjarðar­höfn og ákveðið að fara í líkantilraunir árið eftir. Unnið var að tillögum að nýjum hafskipa­bakka fyrir Eskifjarðarhöfn og smábátahöfn á Stöðvarfirði.
     Öldurannsóknir. Kostnaður 4,7 millj. kr. Unnið var að þróun gagnagrunns fyrir öldu- og veðurmælingar. Mæligögnum frá upplýsingakerfi um veður og sjólag er safnað saman hjá Siglingastofnun og þau sett í gagnagrunninn.
    Öldusveigjureikningar voru gerðir fyrir Ísafjarðardjúp inn til Ísafjarðar og Súðavíkur. Þessar athuganir voru notaðar til að kanna áhrif lengingar Mávagarðs á kyrrð í Sundahöfn og áhrif dýpkunar og lengingar þverkants í Sundahöfn. Jafnframt var gerð athugun á vind­öldu á Ísafjarðarpolli. Öldusveigjureikningar inn til Súðavíkurhafnar voru notaðir til að meta áhrif lengingar hafnargarðs á ölduhreyfingu innan hafnar. Unnið var að öldusveigjureikning­um fyrir Skagafjörð inn til Sauðárkrókshafnar og metin hönnunaralda fyrir lengingu brim­varnargarðs. Þá var áfram unnið að öldureikningum á Faxaflóa inn til Reykjavíkur og Hafn­arfjarðar.
     Efnisflutningar. Kostnaður 1,6 millj. kr. Fylgst var með botnbreytingum við innsiglinguna til Hornafjarðar og víðar.
     Aðrar rannsóknir. Kostnaður 6,0 millj. kr. Á árinu var byrjað að birta rauntímaupplýsingar um veður og sjólag á heimasíðu Siglingastofnunar.
    Unnið var að rannsóknum á sambandi öldugerðar og öryggis og stöðugleika minni fiskiskipa í nærri brjótandi öldum með það að markmiði að nýta upplýsingakerfið til að auka öryggi sjófarenda og auðvelda sjósókn. Gerð var skýrsla um aðferðafræðina m.a. í samvinnu við Háskólann í Þrándheimi: Information System on Waves and Stability of Small Fishing Vessels.
     Smíðað var líkan af fiskibátnum Skúm GK 111 og smíðaður mælir til að mæla stöðugleika líkansins í öldu. Búnaðurinn er smíðaður af Rafagnatækni og er eftirlíking af mæli, Stöðug­leikavaktinni, sem settur hefur verið í fiskiskip til að fylgjast með stöðugleika þeirra.
    Hafið var samstarf við Háskólann í Þrándheimi við gerð ísingarspár fyrir fiskiskip með það að markmiði að nýta upplýsingakerfið við spá um ísingu fiskiskipa.
    Birt var grein um byggingu brimvarnar- og leiðigarðsins á Austurfjörutanga við Horna­fjarðarós „Berm Breakwater in the Tidal Inlet of Hornafjörður, Iceland“ á alþjóðlegu ráðstefnunni MEDCOAST '97. Unnið var að grein um grjóthrúgugarða sem birta á í mars 1998. Greinin er unnin í samvinnu við dönsku straumfræðistöðina og fjallar um reynslu af hönnun og byggingu grjóthrúgugarða á Íslandi og líkantilraunir með þessa garða sem gerðar voru í Danmörku.


Tafla I. Hafnarframkvæmdir 1997.

Höfn Verkefni Styrkhlutfall Heildarkostnaður     ,
millj. kr.
Ríkishluti,
millj. kr.
I. Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir
Akranes Faxabryggja, þekja, lagnir og lýsing
Upplýsingakerfi
60%
90%
0,6
1,4

2,0

1,7
Snæfellsbær Rifshöfn, trébryggja endurbyggð 60% 14,0
Arnarstapi, dýpkun 90% 3,3
Arnarstapi, leiðrétting vegna dýpkunar 1996 90% -5,2
Ólafsvík, leiðrétting vegna dýpkunar 1996 90% -0,3
Rif, leiðrétting vegna dýpkunar 1996 90% 0,8
Leiðrétting vegna eldri framkvæmda 90% -0,4
Ólafsvík, slitlag á tengibraut 60% 1,4
Fjármagnskostnaður 90% 0,6 14,2 8,0
Grundarfjörður Dýpkun við flotbryggju 90% 0,9
Flotbryggja 60% 6,4 7,3 4,6
Stykkishólmur Uppsátur fyrir smábáta 60% 2,0 2,0 1,2
Vesturbyggð Patreksfjörður, upptökubraut 60% 4,4
Leiðrétting vegna fyrri ára 90% -0,2
Fjármagnskostnaður 90% 1,4 5,6 3,7
Tálknafjörður Grjótgarður við smábátahöfn 90% 5,7 5,7 5,1
Bolungarvík Lýsing og raflögn við Brjót 60% 1,7 1,7 1,0
Ísafjarðarbær Ísafjörður, stálþil 60% 0,1
Ísafjörður, ferjubryggja 90% 24,5
Ísafjörður, bátahöfn, raflögn og lýsing 60% 4,9 29,5 25,1
Súðavík Grjótgarður 90% 0,8 0,8 0,7
Drangsnes Endurbyggður skjólgarður 90% 6,4
Leiðrétting vegna framkvæmda fyrri ára 90% -0,1 6,3 5,7
Hólmavík Slitlag á tengibraut 60% 2,1 2,1 1,3
Hvammstangi Norðurgarður, stálþil 60% 23,9
Norðurgarður, dýpkun 90% 2,8 26,7 16,8
Blönduós Norðurgarður, lýsing og lagnir 60% 4,8 4,8 2,9
Skagaströnd Grjótvörn við enda Vesturgarðs 90% 21,6 21,6 19,4
Sauðárkrókur Norðurgarður, 60 m lenging 90% 6,7
Sandfangari, 30 m lenging 90% 12,4
Leiðrétting vegna framkvæmda fyrri ára 60% -0,3 18,8 17,0
Hofsós Fjármagnskostnaður 90% 0,2 0,2 0,2
Siglufjörður Löndunarbryggja, frágangur 60% 12,6
Leiðrétting vegna framkvæmda fyrri ára 60% -0,3 12,3 7,4
Hafnasamlag Árskógssandur, raflagnir 60% 1,7
Eyjafjarðar Hrísey, raflagnir við stálþil 60% 1,5
Ólafsfjörður, grjótvörn við Norðurgarð 90% 11,9
Ólafsfjörður, dýpkun 90% 13,0
Fjármagnskostnaður 60% 0,6
Fjármagnskostnaður 90% 2,4 31,1 26,9
Grímsey Fjármagnskostnaður 90% 0,6 0,6 0,5
Hafnasamlag Svalbarðseyri, grjótflái innan hafnar 60% 1,7
Norðurlands Krossanesbryggja, þekja og lagnir 60% 17,2
Krossanesbryggja, stálþil 1996 40% 5,1
Krossanesbryggja, stálþil 1996 (leiðrétting) 60% 1,3
Fjármagnskostnaður 90% 1,5 26,8 15,5
Húsavík Norðurgarður lengdur 90% 28,5
Upplýsingakerfi 90% 1,4
Dýpkun við Þvergarð 90% 12,9 42,8 36,7
Kópasker Smábátahöfn, skjólgarður 90% 0,1
Fjármagnskostnaður 90% 0,2 0,3 0,3
Raufarhöfn Uppsátur fyrir smábáta 60% 0,5
Tengibraut 60% 4,0 4,5 2,7
Þórshöfn Suðurgarður 90% 24,1
Masturshús 60% 0,4
Löndunarkantur, þekja og lagnir 60% 2,5 27,0 23,4
Bakkafjörður Skjólhöfn, slitlag 60% 2,0
Viðlegubryggja við innri garð 60% 3,6 5,6 3,4
Vopnafjörður Smábátahöfn, skjólgarður 90% 12,5
Smábátahöfn, flotbryggja 60% 4,0
Grjótvörn á hafnarsvæði 60% 5,3 21,8 16,9
Borgarfjörður eystri Skarfaskersgarður 90% 24,6 24,6 22,1
Seyðisfjörður Tollaðstaða 60% 32,2
Fjármagnskostnaður 60% 1,9 34,1 20,4
Neskaupstaður Stálþil við bræðslu, þekja og lagnir 60% 0,5
Dýpkun hafnar 90% 8,0
Fjármagnskostnaður 60% 0,6 9,1 7,9
Eskifjörður Stálþil við bræðslu 60% 25,0
Leiðrétting vegna hafnarvogar 40% -2,3
Leiðrétting vegna frystihúsabryggju 60% -0,7 22,0 13,7
Reyðarfjörður Dýpkun við vöruhafnarkant 90% 2,7 2,7 2,4
Fáskrúðsfjörður Hafskipabryggja, þekja, lagnir og lýsing 60% 13,9
Leiðrétting vegna hafskipabryggju 1996 60% 0,6
Hafskipabryggja, stálþil 60% 9,0 23,5 14,1
Breiðdalsvík Stálþil, þekja 60% 0,8 0,8 0,5
Djúpivogur Fjármagnskostnaður 90% 0,6 0,6 0,5
Höfn í Hornafirði Dýpkun hafnar 90% 5,3
Dýpkun við loðnubryggju 90% 31,6
Loðnubryggja, stækkun 60% 9,1 46,0 38,7
Vestmannaeyjar Dýpkun í Friðarhöfn 90% 37,6
Friðarhöfn, stálþil 60% 42,4
Stálþil við Löngu, þekja og lagnir 60% 3,1 83,1 61,1
Þorlákshöfn Skarfaskersbryggja, þekja og lagnir 60% 24,9
Fjármagnskostnaður 90% 4,9 29,8 19,3
Grindavík Dýpkun innsiglingar, fyrsti áfangi 90% 214,4
Leiðrétting vegna framkvæmda fyrri ára 90% -0,8 213,6 192,3
Sandgerði Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur 90% 1,4 1,4 1,3
Hafnasamlag Keflavík, grjótgarður 90% 0,7
Suðurnesja Vogar, styrking grjótvarnar 90% 20,1
Helguvík, lagnir, lýsing og þekja 60% 6,5
Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur 90% 1,4 28,7 23,9
Af óskiptu fé Vesturbyggð, stigar í Patrekshöfn 60% 0,5
Drangsnes, garðsendaljós 90% 0,5
Drangsnes, rafvæðing í Kokkálsvík 60% 1,3
Hvammstangi, dýpkun í smábátahöfn 90% 0,4
Skagaströnd, garðsendaljós 90% 0,4
Leiðrétting vegna Grenivíkur 60% -0,4
Leiðrétting vegna Sandgerðis 60% -0,5
Leiðrétting vegna innsiglingarljósa á Eskifirði 90% -0,1
Leiðrétting vegna deiliskipulags á Eskifirði 60% -0,2
Leiðrétting vegna innsiglingarmerkja í Vogum 90% -0,1 1,8 1,6
Alls ríkisstyrktar framkvæmdir 843,9 843,9 667,9
40% 2,8
60% 295,1
75% 12,9
90% 533,1
Samtals 843,9
II. Ferjubryggjur
Ferjubryggjur, óskipt 100% 0,1 0,1
Flatey á Breiðafirði 100% 0,1 0,1
Staður 100% 0,3 0,3
Gemlufall 100% 0,1 0,1
Ögur 100% 0,3 0,3
Arngerðareyri 100% 7,4 7,4
Bæir 100% 2,5 2,5
Holtsbryggja 100% 0,2 0,2
Samtals ferjubryggjur 11,0 11,0

Tafla II. Framkvæmdir við sjóvarnir 1997.

Höfn millj. kr.
Akranes 3,8
Snæfellsbær 5,3
Ísafjarðarbær 5,2
Munaðarnes í Árneshreppi 0,2
Blönduós 5,3
Skagaströnd 2,0
Ólafsfjörður 4,2
Árskógssandur 4,4
Svalbarðsströnd 1,0
Grenivík 0,1
Húsavík 5,1
Þórshöfn 0,4
Vestmannaeyjar 2,6
Eyrarbakki 10,9
Ölfushreppur 2,4
Herdísarvík 1,7
Sandgerði 0,1
Bessastaðahreppur 3,6
Seltjarnarnes 8,0
Óskipt vegna áætlana 0,1
Samtals 66,4



Tafla III. Rannsóknarverkefni 1997.

Verkefni millj. kr. millj. kr.
Almennar rannsóknir, óskipt 5,7
Ýmis sérverkefni 6,8
Úthafsöldumælingar 0,1
Líkantilraunir
  Hornafjörður 0,1
  Grindavík 1,1
  Hafnafjörður 8,1
  Sameiginlegur kostnaður 3,0 12,3
Rannsóknarverkefni í höfnum
  Snæfellsbær 0,1
  Ísafjörður 1,4
  Súðavík 0,2
  Sauðárkrókur 0,8
  Ólafsfjörður 0,2
  Kópasker 0,2
  Vopnafjörður 1,4
  Borgarfjörður eystri 0,1
  Eskifjörður 0,3
  Stöðvarfjörður 0,2
  Höfn í Hornafirði 1,0
  Þorlákshöfn 0,5
  Grindavík 0,1
  Hafnasamlag Suðurnesja 0,2
  Hafnarfjörður 2,2
  Reykjavík 1,0
  Ýmsar hafnir 0,3 10,2
Samtals 35,1



Tafla IV. Staða ríkissjóðs vegna hafnargerða 1997 (í millj. kr.).

Staða ríkissjóðs
í árslok 1996
Ríkishluti framkvæmda Fjárveiting Staða ríkissjóðs
í árslok 1997
Höfn Vantar Ónotað 1997 1997 Vantar Ónotað
Akranes 10,9 1,7 15,0 2,4
Borgarnes 0,1 0,0 0,1
Snæfellsbær 3,9 8,0 12,3 0,4
Grundarfjörður 0,0 4,6 4,6 0,0
Stykkishólmur 0,1 1,2 1,5 0,2
Reykhólahöfn 0,1 0,0 0,1
Vesturbyggð 15,4 3,7 8,3 10,8
Tálknafjörður 5,9 5,1 1,3 2,1
Bolungarvík 2,9 1,0 1,3 3,2
Ísafjarðarbær 1,7 25,1 33,1 6,3
Súðavík 0,6 0,7 13,4 13,3
Norðurfjörður 0,0 0,0
Drangsnes 0,8 5,7 3,8 1,1
Hólmavík 0,2 1,3 1,5 0,4
Hvammstangi 0,0 16,8 10,0 6,8
Blönduós 3,0 2,9 5,0 0,9
Skagaströnd 11,9 19,4 16,3 15,0
Sauðárkrókur 1,2 17,0 14,6 1,2
Hofsós 1,4 0,2 1,6 0,0
Haganesvík 0,0
Siglufjörður 6,0 7,4 6,8 5,4
Hafnasamlag Eyjafjarðar1 25,2 26,9 20,2 31,9
Grímsey 5,7 0,5 2,4 3,8
Hafnasamlag Norðurlands2 109,3 15,5 40,8 84,0
Húsavík 8,6 36,7 33,8 5,7
Tjörnes 0,0
Kópasker 2,6 0,3 1,7 1,2
Raufarhöfn 0,2 2,7 2,5
Þórshöfn 1,3 23,4 30,7 6,0
Bakkafjörður 4,2 3,4 0,2 1,0
Vopnafjörður 16,9 16,5 0,4
Borgarfjörður eystri 1,7 22,1 16,7 3,7
Seyðisfjörður 10,1 20,4 21,2 9,3
Neskaupstaður 9,2 7,9 9,3 7,8
Eskifjörður 0,5 13,7 0,5 13,7
Reyðarfjörður 2,5 2,4 0,0 0,1
Fáskrúðsfjörður 2,6 14,1 6,3 5,2
Stöðvarfjörður 0,2 0,0 0,2
Breiðdalsvík 5,1 0,5 4,6
Djúpivogur 4,3 0,5 4,8
Höfn í Hornafirði 11,5 38,7 13,4 13,8
Vestmannaeyjar 43,2 61,1 38,9 65,4
Eyrarbakki 1,0 0,0 1,0
Þorlákshöfn 50,7 19,3 41,7 28,3
Grindavík 102,8 192,3 26,0 269,1
Sandgerði 140,9 1,3 45,5 96,7
Hafnasamlag Suðurnesja³ 107,3 23,9 41,2 90,3
Hafnarfjörður 19,0 0,0 19,0
Garðabær 0,1 0,0 0,1
Óskipt 0,9 1,6 2,1 0,4
Samtals 681,9 55,2 667,9 567,0 779,9 52,3

1   Á árinu sameinaðist hafnarsjóður Hríseyjar Hafnasamlagi Eyjafjarðar.
2   Hafnarsjóðir Svalbarðseyrar, Hjalteyrar, Grenivíkur og Akureyrar sameinuðust í Hafnasamlag Norðurlands.
3   Á árinu sameinaðist hafnarsjóður Voga, Gerðahrepps og höfnin Keflavík – Njarðvík í Hafnasamlag Suðurnesja.


Tafla V. Fjárveitingar til hafnarframkvæmda 1997.

millj. kr. millj. kr.
Almennar hafnir 567
Lendingarbætur
  Búðir, Snæfellsbæ 0,5
  Grunnavík, Ísafjarðarbæ 0,6
  Kjörvogur, Árneshreppi 0,1
  Broddanes, Broddaneshreppi 0,3
  Reykir á Reykjaströnd, Skarðshreppi 0,5 2
Ferjubryggjur
  Ferjubryggjur við Ísafjarðardjúp 5
Samtals 574



Tafla VI. Fjárveitingar til sjóvarna 1997.

Sjóvarnargarðar (fjárlagaliður 10-333) millj. kr.
Akranes 5,9
Snæfellsbær 4,5
Ísafjörður 6,4
Blönduós 2,3
Höfðahreppur 1,5
Árskógshreppur 0,5
Svalbarðsstrandarhreppur 1,0
Húsavík 4,2
Þórshafnarhreppur 3,3
Ölfushreppur 2,5
Vestmannaeyjar 3,0
Bessastaðahreppur 6,5
Seltjarnarnes 4,8
Óskipt 4,6
Samtals 51,0

Tafla VII. Úthlutanir Hafnabótasjóðs 1997.

Styrkir millj. kr. millj. kr.
a. Styrkir til nýframkvæmda
  Vesturbyggð 0,7
  Bolungarvík 0,3
  Hólmavík 0,4
  Hvammstangi 2,5
  Blönduós 1,1
  Þórshöfn 0,6
  Bakkafjörður 0,1
  Seyðisfjörður 5,2
  Sandgerði 2,0 12,9
b. Tjónastyrkir
  Drangsnes 0,4
  Vesturbyggð 4,9
  Hafnas. Eyjafjarðar 0,1
  Grímsey 5,8
  Skeggjastaðahreppur 5,3
  Vopnafjörður 4,2
  Borgarfjörður eystri 1,5
  Stöðvarfjörður 0,3
  Hafnasamlag Suðurnesja/Vogar 2,0
  Hafnasamlag Suðurnesja 6,2 30,7
Styrkir alls 43,6
Lán millj. kr. millj. kr.
a. Lán til heimahluta í nýframkvæmdum
  Hafnasjóður Snæfellsbæjar 4,8
  Stykkishólmur 0,4
  Hólmavík 0,4
  Þórshöfn 0,5
  Vopnafjörður 2,5 8,6
b. Bráðabirgðalán út á væntanlega fjárveitingu 0,0
Lán alls 8,6
Samtals lán og styrkir 52,2