Ferill 605. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1099  —  605. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um öryggis- og brunamál.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Er haft reglulegt eftirlit með slökkvibifreiðum út frá almennum og sérstökum öryggiskröfum sem gera þarf til slíkra tækja og hvernig er því eftirliti háttað?
     2.      Hvaða gæðakröfur eru gerðar við kaup á slökkvibifreiðum, á nýjum bifreiðum annars vegar og notuðum hins vegar? Er miðað við almennar staðlaðar reglur um gæði í því sambandi?
     3.      Hversu margar slökkvibifreiðar voru keyptar til landsins á árunum 1988–98 að báðum árum meðtöldum? Hversu margar þeirra voru keyptar nýjar og hversu margar voru notaðar? Hver var aldur notuðu bifreiðanna? Hvert var verð bifreiðanna? Þessar upplýs­ingar óskast sundurliðaðar eftir árum og eftir því hvort bifreiðarnar voru keyptar
                  a.      til Reykjavíkur,
                  b.      utan Reykjavíkur.
     4.      Hverjir voru seljendur bifreiðanna sem voru keyptar á þessum árum og hvaða ástæður réðu vali á seljendum?
     5.      Hefur Brunamálastofnun eða starfsmenn hennar haft milligöngu við kaup sveitarfélaganna á slökkvibifreiðum og öðrum aðbúnaði? Ef svo er, hvernig hefur þeirri milligöngu verið háttað?
     6.      Telur ráðherra að milliganga Brunamálastofnunar eða starfsmanna hennar samræmist hlutverki stofnunarinnar sem eftirlitsaðila og ráðgjafa sveitarfélaganna?
     7.      Telur ráðherra að hagkvæmni fyrir viðkomandi fyrirtæki hafi ávallt ráðið vali á seljanda slökkvibifreiða?
     8.      Telur ráðherra að ráðgjöf opinberrar stofnunar um einn seljanda slökkvibifreiða til sveitarfélaganna samræmist samkeppnislögum?
     9.      Til hvaða ráðstafana hefur verið gripið til að uppræta samskiptaörðugleika milli Eldvarnaeftirlits Reykjavíkur og Brunamálastofnunar sem fram hafa komið í fjölmiðlum?


Skriflegt svar óskast.