Ferill 509. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1192 — 509. mál.
Breytingartillaga
við frv. til l. um Háskóla Íslands.
Frá Guðnýju Guðbjörnsdóttur og Svanfríði Jónasdóttur.
Við 18. gr. 2. mgr. orðist svo:
Háskólaráði er heimilt að semja við stúdentaráð, félög stúdenta, hollvinasamtök, einstaklinga, samtök þeirra og fyrirtæki eða opinberar stofnanir um að taka að sér þjónustu fyrir hönd Háskóla Íslands enda sé farið að ákvæðum í 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins.