Ferill 551. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1193 — 551. mál.
Svar
umhverfisráðherra við fyrirspurn Guðna Ágústssonar um áhrif Nesjavallavirkjunar á lífríki Þingvallavatns.
1. Hversu miklu affallsvatni er veitt frá Nesjavallavirkjun til Þingvallavatns eða í grunnvatn sem streymir til Þingvallavatns?
Afköst orkuvers Orkuveitu Reykjavíkur á Nesjavöllum eru 200 MW í varmaorkuveri og 60 MW í raforkuveri. Starfsemi hófst í orkuverinu árið 1990 og þar til seint á nýliðnu ári voru afköst orkuversins smám saman aukin. Affallsvatni frá Nesjavallavirkjun má skipta í tvo meginflokka, annars vegar skiljuvatn, sem er jarðhitavatn frá borholunum, og hins vegar þéttivatn, sem er jarðhitagufa sem hefur verið þétt í orkuverinu.
Til þess að framleiða 60 MW af rafafli þarf um 110 kg/sek. af 190°C jarðgufu. Gufan er síðan nýtt til þess að hita upp kalt grunnvatn til hitaveitunota. Við það þéttist hún og er fargað í grunna borholu rétt við virkjunina. Helstu efni sem fylgja þéttivatninu eru um 15–20 mg/kg af koltvíildi ( CO2) og um 4 mg/kg af brennisteinsvetni ( H2S).
Hluti skiljuvatns sem berst frá borholunum og fylgir gufunni er nýttur við upphitun á grunnvatni til hitaveitunota. Rennsli þess er um 180 l/sek. Vatnið er síðan losað í Nesjavallalæk og er þá um 50–60°C heitt. Rennsli skiljuvatns er nokkru meira en nýtist virkjuninni, eða um 240 l/sek. Umframmagni, sem er um 60 l/sek., er veitt ónotuðu í Nesjavallalæk um 450 metrum ofar og er þá um 100°C heitt. Á neðri staðnum er styrkur koltvíoxíðs í vatninu um 30 mg/kg og brennisteinsvetnis um 60 mg/kg en allmiklu lægri á efri staðnum. Vatnið hverfur niður í grunnvatn um sprungu í hrauninu (Lækjarhvarf) um 2 km neðan við neðri losunarstaðinn og um 3,5 km frá strönd Þingvallavatns. Þessi grunnvatnsstraumur hefur verið metinn um 1600 l/sek.
2. Hvaða skaðleg efni og efnasambönd eru í affallsvatninu og hver verður styrkur þeirra þegar þau berast í Þingvallavatn?
Styrkur uppleystra efna er nokkru meiri í háhitavatni en köldu grunnvatni. Við aðskilnað vatns og gufu dreifast efnin milli fasanna eftir náttúru efnanna. Langflest efnin sitja eftir í vatninu en nokkur, sérstaklega gastegundir, dreifast milli vatns og gufu.
Af aðalefnum í vatni og gufu eru það helst kísill og brennisteinsvetni sem eru virk í affallinu frá virkjuninni. Kísillinn situr alfarið eftir í skiljuvatninu og er það yfirmettað af kísli þegar því er veitt í Nesjavallalækinn og verða því nokkrar útfellingar í lækjarfarveginum næst losunarstaðnum. Brennisteinsvetni í vatninu oxast yfir í súlfat þegar það kemst í samband við súrefni andrúmsloftsins. Þetta gerist strax í Nesjavallalæknum og er ferlinu lokið áður en vatnið berst í grunnvatnið.
Í lindum við Þingvallavatn þar sem áhrifa losunarinnar gætir hefur styrkur kísils aukist úr 15–20 mg/kg í 50–60 mg/kg, súlfats úr 12 mg/kg í 20 mg/kg og klórs úr 7 mg/kg í 20 mg/kg.
Sjónir manna beinast hins vegar einkum að snefilmálmum (þungmálmum) sem fylgt geta háhita og sérstaklega kvikasilfri og arseni sem mælast í hærri styrk í þéttri gufu og skiljuvatni en í köldu yfirborðsvatni og grunnvatni. Fram að þessu hefur styrkur þessara efna hins vegar mælst lágur í lindum við Þingvallavatn þar sem áhrifa affallsvatnsins gætir.
3. Hvaða áhrif munu þessi efni hafa á lífríki Þingvallavatns og hversu vel hefur það verið kannað?
Grunnvatnsstreymi í efstu jarðlögum á Nesjavallasvæðinu er í átt að Þingvallavatni. Við ströndina eru nokkrar lindir. Tekin eru reglulega sýni á sex stöðum við vatnið, við Lækjarhvarf og í vatnsbólinu við Grámel. Í sýnunum er fylgst með styrk allra aðalefna auk hitastigs. Þar fyrir utan hafa verið gerðar rannsóknir á lífríki vatnsins á þessu svæði og sértækar rannsóknir á þungmálmum, bæði í lindum og lífríki. Mælingar á lífríki og seti í nágrenni linda annars vegar og í þjóðgarðinum hins vegar sýna lágan styrk þessara efna í lífríki og niðurstöður benda heldur ekki til að munurinn á mæligildum milli þessara staða sé marktækur.
Athygli vekur hins vegar að mikill breytileiki blýmagns í sýnum af síkjamara og vatnabobba bendir til að víða megi finna staðbundna blýmengun á botni sem sérfræðingar töldu líklegast að rekja mætti til blýnotkunar vegna veiðarfæra.
Mikilvægt er að reglulegum mælingum verði haldið áfram til að byggja upp nauðsynlegan gagnagrunn um ástand svæðisins og vatnsins í heild. Slíkur gagnagrunnur sem byggður er á reglulegum vöktunarmælingum er nauðsynlegur til þess að unnt sé að meta áhrif framkvæmda og túlka breytingar á mæligildum og lífríki sem kunna að líta dagsins ljós í framtíðinni.
4. Hvaða áhrif munu efnin í affallsvatninu hafa á nýtingarhæfni hitaveituvatnsins sem sent er frá Nesjavallavirkjun til höfuðborgarsvæðisins?
Kalt vatn frá Grámel við Þingvallavatn er hitað upp í Nesjavallavirkjun og notað til húshitunar á höfuðborgarsvæðinu. Vatnafræðilegar rannsóknir sýna að Grámelur er utan þess svæðis þar sem áhrifa jarðhitaíblöndunar gætir. Affallsvatnið frá Nesjavallavirkjun mun því ekki hafa áhrif á nýtingarhæfni hitaveituvatnsins sem sent er frá Nesjavallavirkjun til höfuðborgarsvæðisins.
5. Hversu mikið af næringarefnum er áætlað að berist til Þingvallavatns frá Nesjavallavirkjun, sumarbústöðum, ferðamönnum og af völdum annarrar landnýtingar og hvaða áhrif munu efnin hafa á lífríki vatnsins og útlit þess?
Aukin ákoma áburðarefna eykur frumframleiðni og getur breytt hraða á flutningi efnis milli fæðuþrepa og rýrt vatnsgæði, sem er helsta einkenni tærra vatna. Frumframleiðsla svifþörunga í Þingvallavatni er talin takmörkuð af köfnunarefni um mitt sumarið. Þá eykst tærleiki vatnsins og meginfrumframleiðslan fer fram á botninum. Ákoma sem hefði áhrif á þessi einkenni gæti breytt búsvæðum fiska og þar með haft bein áhrif á ólík afbrigði bleikjunnar í vatninu.
Á þessari öld hefur köfnunarefni í andrúmslofti aukist í heiminum vegna aukinnar losunar á köfnunarefnisoxíðum. Heildarlosun Íslendinga árið 1997 er t.d. talin um 28.600 tonn. Efnamælingar á ískjörnum frá Grænlandi sýna að köfnunarefni í úrkomu á norðurslóðum hefur aukist frá því fyrir 100 árum. Notkun tilbúins áburðar almennt í landbúnaði jókst eftir miðja þessa öld, en aftur hefur dregið úr notkuninni eftir 1980.
Áætla má að ákoma köfnunarefnis á vatnasvæði Þingvallavatns með úrkomu nemi um 380 tonnum á ári. Ákoma vegna áburðarnotkunar og skólps frá íbúum, sumarbústöðum og ferðamönnum á svæðinu eykur ákomu umfram náttúrulega ákomu um u.þ.b. 25%. Stærsti hluti ákomunnar, sérstaklega sá hluti sem berst á gróið land, binst í gróðri og jarðvegi en berst ekki í vatnið.
Náttúrulegt írennsli köfnunarefnis í Þingvallavatn með lindum er áætlað 116 tonn á ári. Írennsli vegna áburðar og skólps gæti aukið írennsli köfnunarefnis umfram náttúrulegt írennsli um 15% og er hlutur skólps um þriðjungur, enda berst það greiðar í vatnið en áburður sem dreift er á gróið land. Írennsli vegna Nesjavallavirkjunar og tengdra mannvirkja hefur ekki verið metið sérstaklega.
Reikningsæfingum eins og hér að framan sem eingöngu eru byggðar á gefnum forsendum verður að taka með varúð því að þær eru í eðli sínu óvísindalegar og geta gefið tilefni til ófrjórra deilna um forsendur. Því skiptir miklu fyrir aðgerðir til verndar vatninu og eins fyrir skipulag að vöktunarmælingar verði efldar til að ákvarðanir megi taka á grundvelli beinna mælinga og góðrar þekkingar.