1999-06-10 15:05:32# 124. lþ. 2.2 fundur 2. mál: #A samningur milli Íslands, Noregs og Rússlands um þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs# þál., ÖJ (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 2. fundur, 124. lþ.

[15:05]

Ögmundur Jónasson (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Það er gott til þess að vita að þessi umræða hafi þó orðið til þess að starfandi sjútvrh. hafi verið kallaður til umræðunnar. Athugasemdir okkar í stjórnarandstöðunni við störf eða stjórn þingsins hafa þannig borið árangur að nokkru leyti.