[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 124. lþ.
Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):
Herra forseti. Ég verð að viðurkenna að ég sá ekki þessa auglýsingu í blöðunum og hef þess vegna ekki kynnt mér málið jafn vel og hv. fyrirspyrjandi. En sé svo að ekki sé farið að lögum þá eru auðvitað aðilar sem eru til þess bærir að dæma um það hvort menn fara að lögum eða ekki.
Það er alveg ljóst að þegar grunnskólinn var fluttur frá ríkinu til sveitarfélaganna var sveitarfélögunum veitt umboð til þess að fara með yfirstjórn grunnskólans. Ef deilt er um það í þessu máli að menn fari að grunnskólalögunum eða ekki þarf auðvitað að skoða það. Ég heyrði þegar það var fyrst kynnt að menn ætluðu að fara þessa leið í Vesturbyggð að einhverjir aðstandendur málsins töldu að verið væri að brjóta grunnskólalögin. Það hefur ekki borist neitt erindi til mín vegna þessa máls. Ég verð að meta það út frá öðru en auglýsingu í dagblöðunum hvaða afstöðu ráðuneytið tekur til málsins og það verður að skoða það frá öðrum sjónarhóli en þeim sem auglýst er í dagblöðunum. Einnig verður að leggja mat á það hvernig uppbyggingin verður með hliðsjón af grunnskólalögunum.