Stjórnarskipunarlög

Miðvikudaginn 16. júní 1999, kl. 14:08:30 (398)

1999-06-16 14:08:30# 124. lþ. 8.30 fundur 1. mál: #A stjórnarskipunarlög# frv., GuðjG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 8. fundur, 124. lþ.

[14:08]

Guðjón Guðmundsson:

Herra forseti. Ég er andvígur þeirri miklu stækkun landsbyggðarkjördæmanna sem stefnt er að. Ég tel að það margþætta samstarf sem nú er í einstökum kjördæmum verði erfiðara í þessum stóru kjördæmum og í sumum tilfellum óframkvæmanlegt. Einnig tel ég að samband þingmanna við kjördæmi sín verði miklu erfiðara eftir þessar breytingar en það er nú. Miklu betra hefði verið að jafna vægi atkvæða með því að halda óbreyttri kjördæmaskipan en fækka þingmönnum landsbyggðarkjördæmanna sem hefði leitt til svipaðrar niðurstöðu. Ég óttast að væntanleg kjördæmabreyting sé fyrsta skrefið í þá átt að gera landið allt að einu kjördæmi. Það tel ég að verði landsbyggðinni ekki til velfarnaðar og greiði því atkvæði gegn þessu frv.