Ferill 8. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


124. löggjafarþing 1999.
Þskj. 8  —  8. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um auglýsingar og auglýsingagerð.

Frá Gísla S. Einarssyni.



     1.      Hver hefur annast auglýsingar og auglýsingagerð fyrir Lánasýslu ríkisins og Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa sl. 7 ár?
     2.      Hefur auglýsingagerðin verið boðin út?
     3.      Hver er kostnaðurinn af þessum auglýsingum, aðgreint eftir árum, hjá hvorum aðila fyrir sig?


Skriflegt svar óskast.