[prenta uppsett í dálka] 62. fundur, 125. lþ.
Margrét Frímannsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Það er alveg hárrétt hjá hv. þm. að ég er ein af flm. þessa frv. en hins vegar þá er það svo að ég er ekki sammála þessu eina atriði í greinargerðinni, þ.e. að það verði tollhöfn starfandi á Selfossi og í Þorlákshöfn. Ég tel að það sé málinu frekar til trafala ef það á fara að bæta við stöðu umfram það sem er í dag. Í ljósi þess að gæta þarf sparnaðar líka í ríkisrekstrinum er það skynsamlegt að tollhöfnin sé staðsett á einum stað á Suðurlandsundirlendinu, í Þorlákshöfn, og ekki á Selfossi. Ég held satt að segja að þeir hefðu ekkert að gera, báðir tollverðirnir, eða þrír eða hvað sem þeir yrðu margir.