Vörugjald af ökutækjum

Fimmtudaginn 24. febrúar 2000, kl. 12:57:22 (4828)

2000-02-24 12:57:22# 125. lþ. 71.6 fundur 385. mál: #A vörugjald af ökutækjum# (metangas- eða rafmagnsbílar) frv. 38/2000, MF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 125. lþ.

[12:57]

Margrét Frímannsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir þau sjónarmið sem þarna komu fram. Það er nauðsynlegt að um ákveðna jöfnun sé að ræða. Og ef rafmagnsbílar eru að koma á almennan markað þá má skoða hvort ástæða sé til að ýta undir notkun þeirra þegar einhver reynsla er komin á það hvernig þeir gefast hér, fyrst á höfuðborgarsvæðinu og síðan á fjallvegum landsins, að þá megi fara að skoða það hvort ástæða sé til að lækka gjöldin eitthvað enn frekar.

En eins og þetta er sett fram með þessa jöfnun þá finnst mér þetta vera gott frv. og nægjanlegt skref í bili.