Vörugjald af ökutækjum

Fimmtudaginn 24. febrúar 2000, kl. 12:58:15 (4829)

2000-02-24 12:58:15# 125. lþ. 71.6 fundur 385. mál: #A vörugjald af ökutækjum# (metangas- eða rafmagnsbílar) frv. 38/2000, KPál (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 125. lþ.

[12:58]

Kristján Pálsson (andsvar):

Herra forseti. Ég hjó aðeins eftir því að hv. þm. taldi að skógrækt og landgræðsla væri ekki hluti af Kyoto-samningnum. Ég held, af því að hún hélt að það væri ekki rétt hjá mér, að ég fari alveg rétt með það, herra forseti, að skógrækt er hluti af þessum samningi. En reyndar er það með þeim annmörkum að trén verða að vera fimm metra há og hærri, þannig að að því leyti til erum við í sjálfu sér ekki að tala um almenna skógrækt á Íslandi, alla vega er það á takmörkuðum svæðum. En auðvitað er sú skógrækt sem er alvöru skógrækt á Íslandi með miklu hærri tré en þetta.

[13:00]

Við eigum því að uppfylla þessi skilyrði okkar ef ég man rétt árið 2012 eða 2020. Ég man ekki nákvæmlega árið. Það er a.m.k. eftir 2010. Möguleikar til skógræktar eru því miklir. Aftur á móti eru möguleikar til landgræðslu flóknari og það verður að viðurkennast að það þarf að semja um það. En eftir því sem mér skilst þá eiga þeir samningar að geta gengið greiðlega fyrir sig, a.m.k. hvað okkur varðar sem erum í mikilli vörn gegn uppblæstri og þurfum virkilega að leggja á okkur til að halda við gróðri.

Af hálfu íslenskra stjórnvalda ætti því að vera nokkuð auðvelt að halda á því máli svo það nýttist okkur til að uppfylla Kyoto-bókunina.