Lyfjalög og almannatryggingar

Fimmtudaginn 09. mars 2000, kl. 11:08:51 (5105)

2000-03-09 11:08:51# 125. lþ. 76.1 fundur 401. mál: #A lyfjalög og almannatryggingar# (Lyfjamálastofnun o.fl.) frv. 108/2000, KolH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur, 125. lþ.

[11:08]

Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég vil lýsa ánægju minni með þessi orð hæstv. ráðherra og lýsa því að fengur verður að því að fá nýjar reglur í þessum málaflokki. Ég treysti því að heilbrrn. komi til með að kynna þær vel og vandlega þannig að öflug umræða geti skapast um þær í samfélaginu.