Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Það kemur mjög skýrt fram hjá hv. þm. Kristni H. Gunnarssyni að hann er ósammála túlkun ráðuneytisins á lögunum. Ég vildi aðeins fá að heyra það skýrar hvort hv. þm. telji þá algerlega óþörf þau ákvæði sem þarna eru sett inn til viðbótar. Það er mikilvægt að fá að vita það.
Hins vegar vil ég taka undir með honum í því að auðvitað er mikil nauðsyn á að menn létti af útveginum þeim hömlum sem orðið hafa til þess að menn eru farnir að gera út minni báta en þeir hefðu viljað gera. Spurningin er auðvitað: Hvernig fara menn að þessu? Það dugir auðvitað ekki að létta bara stærðartakmörkunum af því að þessi floti þarf þá á meiri veiðiheimildum að halda. Því stærri og fleiri sem þessir bátar verða því meira þurfa þeir að fá að veiða. Ef menn hleypa stórum bátum inn í þennan flokk þá munu þeir ekki gera annað en útrýma hinum í stórum stíl. Ég tel að það þurfi líka með einhverjum hætti að mynda almennar reglur þannig að hægt verði að opna á milli þeirra kerfa sem verða í gangi. Veiðiheimildir gætu þá farið eftir því hvernig hagkvæmast er að gera út en væru ekki njörvaðar í sömu viðjar og undanfarin ár.